Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Í lok dagsins; evran lifði daginn af

EMU bankar lokun 27 sept 2011
 
Histerískur léttir fór um hlutabréfamarkaði Evrópu í dag. Franskir stórbankar færðu sig einu skrefi aftar frá bjargbrún þjóðnýtingar með allt að 18 prósenta hækkun. Afréttari var veittur vonlitlum evruáhugamönnum sem gengu berserk af sopanum.

Á bar í New York eða Washington hittust um helgina — í pásu frá neyðarfundi AGS vegna evrulandavanda myntarinnar frægu - herra Axel Weber (fyrrverandi BuBa-stjóri og ECB stjórnarmaður), Jurgen Stark (fyrrverandi BuBa- og ECB stjórnarmaður) og hinn eini sanni Jens Weidmann núverandi aðalstjóri þýska seðlabankans, Deutsche Bundesbank alias BuBa. Þrír helstu þýskir seðlamenn saman á knæpu. Allt mjög eðlilegt hér. Gerist á hverjum degi.  

Kóróna dagsins var viðtal systurasna RÚV hjá BBC við taugaveiklaðan takkaýtustjóra á fjármálamarkaði, svo kallaðan miðlara (e. trader). Þarna fékk bjarnarstofninn ókeypis byr undir báða vængi og birnir hafa átt erfiða daga undanfarið, nema ef væri hjá Steingrími J. Það heimskulegasta sem menn geta gert í dag er að fylgja ráðum mannsins og yfir höfðuð að opna fyrir asnaveitur BBC eða RÚV. Gáfulegra hefði verið fyrir BBC að ræða við það fólk sem getir hreint í stúdíó heimskunnar hjá þeim eftir lokun. 

Komi til hruns þess sem maðurinn boðaði er best að eiga ekki neina peninga (nema að eiga samtímis prentara þeirra), né gull eða annað málmrusl, heldur að eiga einfaldan hlut í fyrirtækjum sem lifa geta hrunið af, skulda ekki neitt, og gætu þess vegna opnað banka með sínu eiginfé þegar sólin rís á ný. Mörg tæknifyrirtæki eiga það mikið eigið fé að þau gætu opnað stórbanka eins og að drekka vatn. Þau fara ekki á hausinn þó svo að kreppan geisi.
 
Gott er að gæta að því að vera með eigur sínar í mynt sem hverfur ekki eða á á hættu að verða að dufti. Myntir fullvalda ríkja eru þessum kostum gæddar. Ríkisskuldabréf landa sem eiga sína eigin mynt eru einnig ágæt því þau munu ekki fara á hausinn, svo lengi sem þau skulda ekki of mikið í erlendri mynt eða í mynt sem þau eiga ekki sjálf. Þau fella bara gengið til að koma þannig í veg fyrir að skattatekjur ríkisins og þar með greiðslugeta þess þorni ekki upp og þau fari í þrot. Einnig er gott að vera í kauphöll sem verður ekki lokað, nema að til kjarnorkustyrjaldar eða byltingar komi.

Gott er líka að muna það að fólk fætt eftir 1982 veit flest ofurvel að ríki þeirra munu ekki hafa efni á að standa við loforð sín um ellilífeyrisgreiðslur til þeirra þegar sú kynslóð verður gömul. Það fólk mun grípa til sinna eigin ráða. Þetta gildir sérstakelga um öll lönd Evrópusambandsins.
 
Á morgun verður gaman að sjá hvora stefnu af öngvum mögulegum fjallgöngumennirnir á Mount Evrurest munu taka.
 
 

Árabátur Evrópusambandsins

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland
Peningavopn myntbandalags Evrópusambandsins 
 
Í þessum bát líða árin. Lítt sækist róðurinn og fúl er legan orðin um borð. Svo lítið hefur fiskast. Árin eru liðin, orðin að áratugum og lítið sem ekkert gerist. Ennþá 30 árum á eftir Bandaríkjunum og lífslangt massíft atvinnuleysið orðið fastgróið við kynslóðirnar. Allir í OECD nema Japan hafa siglt fram úr evrusvæði Evrópusambandsins.  

Verið er reyna að afhenda Þýskalandi þetta fagra vopn, sem dýrkað er á RÚV og sem dýrkað var á BBC árum saman. Rjúkandi fullveldis vopninu hefur áður verið beitt á krummaskuð á borð við Grikkland, Írland og Portúgal. Um gikkinn þarf sjálfur kanslari Þýskalands, og nokkrir fleiri þar á bát, helst að halda - og hleypa af. Helst á meðan Frakkland, Ítalía og Spánn horfa spennt á. Þau falast eftir bæði fullveldi og greiðslukorti Þýskalands. Án þessa tveggja eru þau varanlega föst í suður-evrópskri sælu.
 
Verið er að afhenda kanslaranum og Þýskalandi hattinn.
 
Frú Angela Merkel hittir herra Haddon
 
 
 
 

Árangursskýrsla ráðsstjórnar Evrópusambandsins; janúar-september: Opferation snjóþrúgur

 
Lýðræðisþjóðir fara ekki í stríð við aðrar lýðræðisþjóðir
 
Í fyrra tókst þeim að koma Grikklandi í de facto gjaldþrot. Skjaldborg.
 
Og þá tókst þeim einnig að koma Írlandi og Portúgal í hendurnar á Alþjóða Gjaldeyrissjónum. Það er svo gott að vera evruland. Þrjú hér á skalla af völdum myntarinnar frá ECB-seðlabankanum. Skjaldborg.

Á þessu ári er árangurinn svona:

Gjaldþrotasmitin æða nú um allt evrusvæðið sem stormsveipur á milli hálf- og heilgjaldþrota bankakerfa landanna. Skjaldborg.
 
Fullkomlega ótímabær stýrivaxtahækkun ECB-Trichet var sviðsett svo einhver héldi að minnsta kosti ekki að ECB-seðlabankinn væri minna galinn en restin í Brussel - og ennþá til á yfirborði jarðar. En sú ákvörðun var verk fífla. Nú þarf að taka ákvörðunina til baka. Skjaldborg.

Hlutabréfamarkaðir evrulanda hafa fallið um 20 prósent á síðustu 12 mánuðum. Skjaldborg.
Bankakerfi evrulanda hafa fallið um 50 prósent á síðustu 12 mánuðum. Skjaldborg.
Franskir stórbankar og Ítalskir hafa fallið um 65-70 prósent. Skjaldborg. 

Spánn og Ítalía eru að lokast af frá alþjóðasamfélagi peninganna. Skjaldborg.

Staðan er orðin þannig að farþegum ESB Titanic er nú sagt að þeir eigi þrjár vikur eftir ólifaðar. Ef skip þeirra, ESB Titanic, sé ekki tekið úr umferð fyrir þann tíma þá sekkur það. Já sekkur. Eins og steinn. Skjaldborg.
 
Aðeins 17 prósent Þjóðverja styða björgunarsjóð evrusvæðis og þar af leidda efnahagslega stjórnun yfir evrulöndum

Eh herm
 
Sorry Deutschland. History has conspired against you, again. You must sign away €2 trillion, and debauch your central bank, and accept 5pc inflation, or be blamed for Götterdämmerung. It is not fair but that is what monetary union always meant. Didn't they tell you? Gong ping!
 
Fyrri færsla
 
 

Vara Þorgerður

Það setur að manni vissan kuldahroll að lesa um ummæli þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem nú er fyrrverandi varaformaður og menntamálaráðherra flokksins, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, hér

Samkvæmt þessu harmar hún að við ESB-efasemdarmenn kætumst yfir því að hafa haft bæði siðferðis- og vitsmunalega rétt fyrir okkur. Að við skyldum hafa unnið sannan sigur yfir hálfum og heilum lygaþvættingi og falsi elítu hálauna- og menntaðra lýðskrumara Über-Evrópu um Evrópusambandið, og flestu sem því hefur fylgt frá því löngu fyrir ólögmæta stofnun þess. Athugið að Evrópusambandið er ekki það sama og EEC var og sem heldur ekki var það sama og Kol & Stál var. Og mismunurinn á þessu þrennu er ægislega mikilvægur.

Það sama var sagt þegar menn kættust yfir sigri frelsisins yfir kommúnismanum í Sovétríkjunum og lendum þess. Sagt var þá að yfirvofandi hrun þeirra gæti orðið jafnvel enn verra en sjálf vistin í þessu heimsveldi hins mannlega geldneytis. Og þau lönd sem þá höfðu byggt upp viðskipti við Sovétríkin með því annað hvort að vera þvinguð til þess, eða af öðrum ástæðum, myndu ekki eiga sjö sæla dagana í vændum. Og svo var sagt að enginn vissi hvað taka myndi við!! Nehei, vissu ekki hvað taka myndi við! Þeir, þessir sumir, héldu virkilega innra með sér að þetta gæti sem sagt orðið enn verra en það hafði verið í 70 ár í algerum fullkomnum hryllingi. Jafnvel sumir háttsettir en þreyttir í stjórnmálum Vestanhafs voru komnir í þær götóttu buxur að samþykkja bæri ástandið sem "jafnvægi" og realpolitik  eins og það var þá. Því miður kæru fangar, þetta verður bara að vera svona, því það er orðið svona. En sem betur fer átti Ameríka einn ektamann á réttum stað, Ronald Reagan. Og hann var ekki bara til vara, sem betur fór. 

Lýðræðisþjóðir fara ekki í stríð við aðrar lýðræðisþjóðir. En það gera hinsvegar lönd og svæði þar sem lýðræði er á undanhaldi. Lýðræðið er einmitt á undanhaldi í Evrópusambandinu. Því hefur ófriðarhættan aukist í takt við aukin völd Evrópusambandsins. Þetta er staðreynd. En Samfylkingin í ESB vill ekki að þú fáir að vita þetta

Evrópusambandið er eitur fyrir lýðræði og sátt í Evrópu. Sambandið er orðið eins konar millistig á milli lýðræðis og keisaraveldis. Það fyrirkomulag sem hélt friðinn í Evrópu frá stríðslokum var lýðræði þjóða í Vestur-Evrópu og tilvist Bandaríkjamanna þar. Ef annað þessa hefði vantað, þá er alls óvíst að Evrópa væri annað en hérað í austur-þýskalandslegri Sovétsókn í dag.

ESB er að eyðileggja Evrópu. ESB er að eyðileggja lýðræði og sátt í Evrópu. ESB er að eyðileggja efnahag landa Evrópu. ESB hefur og er að eyðileggja markaði Íslands í austri til frambúðar. Demógrafísk þróun Evrópu er banvæn. Og það er hún vegna þess að Evrópusambandið hefur drepið framtíðarvonir fólksins með því að stofna til og viðhalda hræðilegu atvinnuástandi þar áratugum saman. Og alltaf bætast nýar brotalamir frá höfuðstöðvum elítunnar við - og reiði fólksins eykst.
 
Evrópu er líklega ekki við bjargandi lengur. Því þurfum við að losa nokkuð lausa hlekki Íslands til þessa deyjandi heimshluta. Og við verðum að horfa fastar í vestur.
 
Very rarely in political history has any faction or movement enjoyed such a complete and crushing victory as the Conservative Eurosceptics. 

Sjálfstæðiflokkurinn hefur verið rekinn úr Þorgerði Katrínu. Þorgerður er orðin gjaldþrota stjórnmálamaður því hún átti aldrei neitt fast til að standa á móti með. Hún er blásin út í buska sögunnar. Þar er hún strand - og hún á bágt.
 
Óskabarn Þorgerðar er að kafna á meðgöngutímanum. Við skulum að minnsta kosti vona að svo sé. Því myntbandalagið var fyrst og fremst hugsað sem leynilegur stolinn naflastrengur frá Móðir Evrópu yfir í fóstur elítunnar; Bandaríki Evrópu - en sem þó alltaf myndu aðeins verða ófreskja af verstu sort, svo lengi sem þau lifðu.
 
Alls óvíst er hvernig móðirinni mun reiða af. Hvort mun deyja á undan. Staðgöngumóðir Brussels, eða fóstur þeirra í henni? 
 
Fólkið er ekki heimskt

Evrópusambandið krefur Möltu um 6,9 prósent af landsframleiðslu til hjálpar Grikklandi

Heilbrigðiskerfi OECD landa 2007 hagstofa Íslands
 
Nú eru góð ráð dýr fyrir litlu Möltu. Aðeins 77 sardínur eru þar eftir í RÚV-dósinni til útflutnings. Og í þar síðustu viku lækkaði Moody's lánshæfnismat sitt á ríkissjóði landsins, vegna einmitt andþrengsla sem rekja má beint til evruupptöku landsins. 

Nú krefst foringjaráð ráðstjórnar Evrópusambandsins í Brussel að 400.000 íbúar fátæku Möltu hósti upp með 400 milljónir evra í ESB Potemkin skjaldborgar-björgunarsjóð handa Grikklandi. Þetta eru 6,9 prósent af landsframleiðslu Möltu eins og hún var árið 2009. 

Þetta er stærra hlutfall en Pólland eyðir í allt heilbrigðiskerfi sitt á ári. Þetta eru hlutfallslega þrír fjórðu af þeirri upphæð sem Ísland eyddi í allt heilbrigðiskerfi sitt árið 2007.

Gjörðu svo vel Malta; borga. Bjargaðu okkur! 

Það er því ekki nema von að Andrésar andar ríkisstjórn Evrópusambandsins á Möltu — sem þó er tvöfalt hugrakkari en Iceslave ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur — kveinki sér og biðjist vægðar frá að kíkja í pakka þann. Hún er að hugsa um að hugsa um að eiginlega dálítið smá pínu ponku biðja biðja og vona vona að hún geti allra allra náðarsamlegast fengið eitthvað sem líkist tryggingu fyrir því að þessir fjármunir íbúa Möltu komi einhvern tíma til baka í þurrausinn ríkiskassa þann sem Moody's dæmdi svo illa haltan að hann var settur í skammarkrókinn í vikunni sem leið. Malta biður því náðarsamlegast um að fá að fara finnsku leiðina til ESB-himnaríkis Samfylkingarinnar. Að fá tryggingu, veð, eða bara eitthvað annað en gas, þegar allt er hrunið.
 
Frá einum lesanda Möltutíðinda; Greece is doomed to failure and Malta is not that far behind with a debt of over 6 billion euro. The funny part about all this, is, that Malta has to borrow 75 million euro to lend them to Greece already a failed state. Perhaps Greece put up a few old marble statutes as collateral. 

Háskólakórdrengir Evrópusambandsins á Íslandi munu hins vegar halda sig áfram við orðaleiki sína í Potemkin Skjaldborgar sandkassa sínum í aðalstöðvum Evrópusambandsins á Íslandi;
 
- ólíklegt
- kannski má ætla
- hugsum ekki að til komi 
- ætla má að ekki komi til
- gerum ekki ráð fyrir að
- farvegur
- komum að málinu 
- og erum aular allir saman.
 
Þetta var silfur Egils (ekki síldar) 
 
Krækjur

 
Tengt
 
 

Kreppan búin og "depression" að hefjast

Einn peningur - einn foringi - enginn markaður
 
Verða það franskir stórbankar sem leysa úr læðingi 1931 Creditanstalt-Bankverein atburðarás okkar tíma? Það bankahrun þessa fyrrum Austurrísk-Ungverska banka kom af stað kreppunni miklu 1931 og sem geisaði næstu tíu árin - The Great Depression. Henni lauk með örvunarpakka heimsstyrjaldarinnar seinni sem nam hallarekstri ríkisins upp á 30 prósent af landsframleiðslu Bandaríkjanna og Bretlands. 
 
Meanwhile the pro-Europeans find themselves in the same situation as appeasers in 1940, or communists after the fall of the Berlin Wall. They are utterly busted; Guilty Men 
 
Eitt er víst. Evrukrísan er orðin svo gegnum eitruð að hún verður ekki leyst með neinu öðru en ömurlegri útkomu. Þetta er sjálfhelda þar sem engin farsæl lausn er möguleg. Þessi myntbandalagskreppa ESB-elítu-brjálæðinga er að breytast í annað hvort komandi einræðisveldi í lýðræðislegu svartnætti - eða í fjármálalegar og efnahagslegar brunarústir Evrópu til langframa.
 
23. apríl 2009; Heldurðu að myntbandalagið sé að hrynja? - spyr blaðamaðurinn. "Ég veit það ekki. En evran er fyrirbæri sem tæknilega getur aldrei virkað. Stjórnmálamennirnir hafa búið til peninga- og fjármálalegan Frankenstein. Löndin reka burt frá hvort öðru. Ábyrgð stjórnmálamannanna er að leysa það vandamál. En ég held ekki að við ættum að vænta mikils í þeim efnum" 
 
Hvort munu menn velja aurinn eða frelsið? Veruleikafirrt Evrópuklíkan mun alltaf velja aurinn - og svartnættið. Það sýnir sagan okkur. Frankenstein fjármála á lögheimli sitt í Brussel.

Fjárfestar tryggja sig í auknum mæli gegn evru-ríkisgjaldþroti Þýskalands

Mynt sem ekki er beintengd fullveldi og sjálfstæði þjóðríkis er rusl af Samfylkingar ættum.
 
Unnið er nótt sem nýtan dag við að reyna að beintengja evrumyntina — og það hægfara járnbrautarstórslys sem á henni hangir — við restina af fullveldi þjóðríkja þeirra sem að evrunni ósjálfbjarga og þvinguð standa. Það er að segja: verið er að reyna að koma evrunni í beint himneskt samband við skattgreiðendur þjóðríkjanna, svo hægt sé að þurrka tapi fórnarlamba Brusselelítunnar yfir á herðar þeirra sem enn standa uppréttir í myntbrandaralaginu. Þetta átti ekki að geta gerst samkvæmt öllum Babelsturnspírum regluverka Evrópusambandsins, en er samt að gerast. 

Vænst og beinlínis er þess nú krafist að þýskir skattgreiðendur taki á sig brunarústir þær sem evran og seðlabanki hennar í Frankensteinfürt hafa eldað í kvöldmatinn handa þeim sem neyddir hafa verið til að nota þennan myntþeytugeril elítunnar, og sem alltaf var ætlað að læða stofnun Einræðis Bandaríkja Evrópu einmitt svona í gegnum bakdyrnar á Evrópusambandinu. Sem eru óteljandi margar og nokkurs konar kjarnakljúfar fullveldis.

Þetta vita fjárfestar. Því tryggja þeir sig í auknum mæli gegn því að hið óhugsandi gerist: að Þýskaland verði ríkisgjaldþrota í þessu ferli. Skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Þýskalands er því komið yfir 100 punkta og læddist meira að segja upp í 108 punkta í dag (CDBR1U5:IND). Á Bandaríki Norður Ameríku er það bara 51 punktar, svipað og í nóvember á síðasta ári. Bandaríkin eiga sína eigin mynt. Til hennar flýja menn nú í miklum mæli, því þeir sömu menn vita ofurvel að hún er ekki af Samfylkingarættum. 
 
Og skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Ítalíu heldur áfram að þjóta upp. Það er nú örfoka statt í himinhvolfum Skjaldborgar Samfylkingarinnar; 550 punktar. Upp upp upp. Það eina sem vex í evrulandi er hræðsluálagið.

Klofin geðþreyta forsætisráðherra

Í fyrradag kom skjaldborgarinn frú forsætisráðherraína Reykjavíkur innri, Jóhanna Sigurðardóttir, út úr álfheimum með hugljómun sína er þá hét: "Hefur engin áhrif á aðildarviðræður". Já þær halda áfram þó svo að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hafi aldrei beðið um neitt slíkt. Og ófarir Evrópusambandsins hafa auðvitað engin áhrif á neitt þó svo að enginn viti lengur hvað Evrópusambandið er. Allra síst veit forsætisráðherraínan hvað Evrópusambandið var.

Kollegi hennar í Danmörku sagði kjósendum að Evrópusambandið væri steindautt. Og svo eru það náttúrlega finnsku leiðin í ESB-kirkjugarðinum og kollegi hennar í Svíþjóð, sem sagði að sænska fólkið hefði ekki gengið í Evrópusambandið, eins og það er orðið núna; flestar reglur þess þverbrotnar og allt á hausnum utandyra sem innan. Enginn ávinningur af evrunni, nema skaði. Fimm ESB-ríki á gjörgæslu hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum og þar af eru þrjú þeirra evruríki á leið í ríkisgjaldþrot! Og enn fleiri ríki eru í þann mund að banka upp á hjá sjóðnum. Þetta gengur allt svo vel, ekki satt! Stöðugleikinn klesstur upp á vegg. Potemkin Skjaldborgin.
 
Stefnuræðan: Skjól Skjaldburg Grikkland. Krónan ónýt Írland harr þesp. Ping, pong, dong pmfkt! Adiam Spánn sökkva evra condiment mal conecter Portúgal hrun. Skajldburg! Proin in sapien evra Írland. Krónan ónýt. Viðsnúningur og kraftaverk í útflutningsgreinum, ping, krónan ónýt. Donec ac sapien. Heidi und sviðakjammar. Meira en 12,98 og minna en 1.313,15 ESB. Krónan ónýt. Gong, Zap, Össur. Við megum ekki ræna þjóðina !gong! því sem hún !ping! bað ekki um. ESB og ESB Zap Ítalía, Spánn. Finnland omg. Krónan ónýt!
 
Í hvaða heimi lifir þessi manneskja þarna í einangrun sinni frá þjóðinni? Jú í Skjaldborginni! Hún lifir í skjaldborginni komandi að 7000 störfum borðliggjandi í farveginum sem stendur út af endanum og veit ekki annað en, getur ekki séð annað en, hefur ekki heyrt annað en. Allar setningar hennar eru froðusnakkk. Hún er það versta sem gengið hefur yfir landið okkar frá þessu háa sæti íslenska lýðveldisins. Klofningsmaður þjóðarinnar númer eitt.
 
ÍSLENDINGAR HAFA ALDREI HAFT SANNAN OG EINLÆGAN ÁHUGA Á AÐ GANGA Í EVRÓPUSAMBANDIÐ. ALDREI!
 
Skömm ÞÍN er alger.
 

mbl.is Vandræðin í Evrópu geta haft áhrif á áhuga Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komatsu fær ekki lengur greidda reikninga frá kínverska ríkinu á fjöllum

Umdekur fjölda manna við illa fengið kínakapítal kommúnista minnir mig á umgang margra manna við íslenska útrásarvíkinga, - í þátíð. Skór voru sleiktir og munnvatni lekið á ólíklegustu stöðum. Jafnt innanlands sem utan. Ef maður leyfði sér að efast þá voru stimpilpúðar afdalamennsku dregnir glóandi fram. Alveg eins og gerst hefur í ESB-umræðunni hér á Íslandi. Afdalamaður, afturhaldsseggur, nýir tímar, þú eftir_á_maður sem ekki er viðbjargandi og svo framvegis. Snillingar.

Gott væri nú ef hægt væri að flýja með eitthvað af illa fengum — eða þaulskipulögðum —kommúnista peningum almennings í Kína til peningaþvottastöðva á Ítalíu, Ungverjalandi, eða Kalmar, og það á grímsfjallahraða (heimildarmynd). Snillingar.
 
Reuters has reported that Bank of China, a dealer in China's foreign exchange market, has stopped doing foreign exchange forwards and swaps with several European banks. Separately, sources say the European banks involved are Societe General, Credit Agricole, and BNP Paribas, the three banks being frozen out of the US money markets. 
 
Kínverskir bankar hafa dregið til sín fálmarana undanfarið og hætt að miklu leyti að eiga viðskipti við evrópska stórbanka. Gjaldeyrisskiptalínum er lokað og hurðinni skellt í kassann. Og auðvitað ekki vegna neins annars en þess að Kínverjar eiga enga peninga. Skuldavandi kínverska ríkisins er afar athyglisvert mál. Snillingar.
 
 
 
Krækja, Credit-Writedowns; Chinese shunning trade with French banks
 
Af fjallaferðum Kínverja
 
Kalmar
 
 
 
Ungverjaland og Ítalía
 
 
 
Fyrri færsla
 
 

Standard & Poor's lækkar lánshæfnismat Ítalíu

Skjaldborg evrunnar 
CDS Ítalía 19. september 2011
 
Mynd: Bloomberg. Skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Ítalíu var 489 punktar í gær, áður en S&P lækkaði lánshæfnismat sitt á Ítalíu. Skoða ber þetta í samanburði við skuldatryggingaálgið á ríkissjóð Íslands sem var 305 punktar á sama tíma í gær.
 
Seint í gærkvöldi var lánshæfnismat ríkissjóðs Ítalíu lækkað og gildir lækkunin á matinu fyrir skuldbindingar ríkissjóðs til bæði lengri og skemmri tíma. 

Tvær aðalástæður S&P fyrir lækkuninni eru þessar;
  1. Stjórnmálaástand á Ítalíu
  2. Horfur landsins í efnahagsmálum
Við er átt að ríkisstjórn landsins sé nokkuð óstarfhæf — illa starfhæf eða getulaus — og að ólíklegt sé að Ítalía muni geta snúið aftur til hagvaxtar. Hann hefur verið næstum 100 prósent fjarverandi frá hagkerfi landsins í meira en 10 ár. Versandi lánskjör þessa evrulands og sífellt þyngri vaxtabyrði sem brýst út sem sífellt þyngri fjármögnunarkostnaðar, mun gera Ítalíu enn erfiðara fyrir við að reyna að koma hagvexti aftur á hið fölnaða efnahagslega landakort þessa evruríkis. Ítalía er þriðji stærsti ríkisskuldari heimsins.
 
The rationale given by S&P primarily cites governmental dysfunction and the improbability of Italy’s returning to robust economic growth. 

Italy: 3.6.3 Transfer-union
Sem sagt: stjórnmálamenn Ítalíu og hinn pólitíski trúverðugleiki/stöðugleiki skiptir hér miklu máli. Og refsiaðgerðir þær sem verið er að innleiða sem tilraun Ítalíu til að halda sér innan dyra á evrusvæðinu, skila einnig neikvæðum punktum í mati S&P.  

Samkvæmt þessu á Ísland von á mikilli lækkun á lánshæfnismati ríkissjóðs okkar, því ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er sjálfur svarti dauðinn fyrir Ísland. En henni er alveg sama um landið eins og flestir Íslendingar hafa tekið vel eftir. 
 
Hin séríslenska ESB-öryggissvíta Jóhönnu og Össuar á evrusvæðinu virðist ekki lengur hafa pláss fyrir Ítalíu, enda ekki skrýtið þar sem Frakklandið fyllir svo mikið í herbergjum þessarar ESB-einka-skjaldborgar þeirra. Endurspeglun ESB-RÚV mun skoða málið.  
 
Fimm lönd Evrópusambandsins eru nú á gjörgæslu hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum. Þrjú lönd evrusvæðisins stefna þráðbeint í ríkisgjaldþrot. Og enn fleiri eru á sömu braut.
 
Nú hljóta kommúnistar Kína að fagna, um leið og fer um þá. Hér opnast ný samleið þeirra með kommunum á Ítalíu sem bíða eftir frelsun á fjöllum á sköllum.
 
 
 
Transfer-Union Ítalíu virkar ekki; CESifo; bls. 122. Í kafla 3.6.3 á blaðsíðu 121 er einnig fjallað um fall Berlínarmúrsins yfir ríkissjóð Vestur-Þýskalands, í Transfer Union sem virkar ekki heldur. Ferðalag frelsisins yfir í jöfnuðinn. Hvað nú? Og hvað þá?
 
Fyrri færsla
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband