Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Írskur blaðamaður gengur í skrokk á Iresave seðlabanka Evópusambandsins

Skyldi myndskeiðið ekki virka, þá er hér bein krækja.

Klaus Masuch fulltrúi ECB-seðlabanka Evrópusambandsins kemur til Írlands og reynir að tala sig frá raunveruleikanum á Írlandi, þar sem skattgreiðendur hafa verið settir inn á vörslureikning ECB og eru þar sem gíslar gangandi gjaldþrota bankakerfis evrulanda. Þetta eru spurningarnar sem RÚV hefði átt að spyrja frá byrjun, en gerði ekki, því RÚV virðist vera í eins konar hlutverki ECB, sem gerandi fulltrúi brusselveldis hér á landi. 

Blaðamaðurinn spyr: Af hverju eru írskir skattgreiðendur látnir borga fyrir banka sem eru gjaldþrota og verða aldrei annað en gjaldþrota? Af hverju? Þýskur fulltrúi þessa erlenda peningayfirvalds Írlands getur ekki svarað. Hann getur ekki svarað, því hið rétta svar er þetta: írskir skattgreiðendur eru látnir borga út áhættusækna lánadrottna sem fjárfestu í glæfrabankafyrirtækjum sem nú eru gjaldþrota og urðu það undir umsjá- og meðal annars fyrir tilstilli ECB-seðlabanka Evrópusambandsins. Tapinu er öllu þurrkað yfir á írska skattgreiðendur, svo halda megi tímabundið lífinu í restinni af evrunni. Írlandi er fórnað, eins og fleiri evruríkjum. Er enginn Davíð, enginn Geir og enginn Ólafur á Írlandi?

Þetta er það sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar reyndi í þrígang að hella yfir á herðar íslenskra skattgreiðenda. Það var þetta sem Ólafur Ragnar Grímsson stöðvaði. Og það var einmitt þetta sem neyðarlög ríkisstjórnar Geirs Haarde komu upphaflega í veg fyrir, en sem núverandi ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar reyndi að annúllera í þrígang og koma yfir á herðar íslenskra skattgreiðenda. "Við ætlum ekki að greiða skuldir óreiðumanna!" Hver sagði þetta?

Ólafi forseta tókst síðar að koma í veg fyrir að Jóhanna, Steingrímur og Össur kæmust upp með það sem ECB-seðlabanki Evrópusambandsins kemst upp með á Írlandi. Þau vildu skríða í duftið fyrir Evrópusambandinu. Koma íslenskum þegnum í hættulega ánauð, því þau hafa sótt um ESB-inngöngu þar fyrir sig sjálf, í trássi við einlægan staðfastan vilja þjóðarinnar og í umboðsleysi, því Vinstri grænir sóttu ekki neitt umboð fyrir þessum gjörðum sínum til kjósenda. Þetta er einkaumsókn þessa fólks og þau ætlast til að hún sé fjármögnuð með því að íslenska þjóðin afsali sér fullveldinu í þeirra þágu. Umsókn hinna útvöldu á kostnað almúgans. Hér eru svik í tafli. 
 
Fyrri færsla
 
 

TARGET2: Luftwaffe sem innheimtustofnun?

Fæstir stjórnmálamenn á Íslandi vita hvað TARGET2 er. Og ekki ætla ég að segja þeim hvað það kerfi er. En þér að segja, þá er þetta sjálft greiðslukerfi seðlabanka myntbandalags Evrópusambandsins. The Euro System.

Það er einnig of flókið mál að útskýra fyrir þeim sömu að í þessu greiðslukerfi evruseðlabanka — á barmi gjaldþrots — hafa seðlabankamenn um rúmlega fjögurra ára skeið leikið þann leik að senda innistæðulausar evrupeningaávísanir sínar niður í kjallara seðlabanka Þýskalands. Þar hafa nú hrúgast upp tölur sem innan skamms nálgast eina billjón evra (gríski bókstafurinn € með a trillion fyrir aftan). Tala þessi sýnir þær kröfur sem seðlabanki Þýskalands heldur nú í höndum sér gagnvart öllu seðlabankakerfi evrunnar. 

Bjartsýnismenn sögðu lengi vel að þetta væri ekkert mál, því það væri hlutverk ECB-seðlabanka Evrópusambandsins (evrunnar) að sjá um að innheimta þessar kröfur einstakra seðlabanka á hendur hvor öðrum. Ef illa færi þá myndi seðlabankinn bara prenta fyrir þessu (og um leið kaffæra Þjóðverja í verðbólgu). 

En þegar sökkulinn brast undan þessari ríkislausu ECB-peningamálastofnun fáráðlinga, þá er þeim sem seint hugsa að verða ljóst, að ECB mun ekki geta gegnt þessu útjöfnunar hlutverki þegar myntvafningurinn evra fellur saman og leysist upp í hinar upphaflegu öreindir sínar. Þetta mun óhagganlega gerast í bara einni af tveimur mögulegum útgáfum; 1) Sjálf evran fer inn í kjarnakljúfinn og verður leyst upp. 2) Sjálf evruríkin fara inn í kjarnakljúfinn og verða leyst upp sem sjálfstæð ríki. Hér er því miður engin lausn því evran er í eðli sínu eins og sníkjudýr úr hitabelti.

Þessi staðreynd stöðunnar er byrjuð að seytla agnar örlítið inn í meðvitund þýsku þjóðarinnar. Enginn hafði sagt henni frá neinu og allra síst frá eðli evrukerfisins. Seðlabankastjóri Þýskalands hefur nú lekið bréfi sínu til höfuðsalats ECB — sem órjúfanlega er nátengt pasta, tómatsósu og grískum bókstaf — til þýskra fjölmiðla. Lekinn fann sér stað fyrri parts síðustu viku.

Evrusjúkir eru orðnir það hræddir að þeir segja að kröfurnar í sendibréfi Jens seðlabankastjóra Weidmann í Bundesbankanum, til pastabanka evrunnar, um tryggingar fyrir innistæðulausum greiðslum, séu það alvarlega meintar að einungis sé hægt að uppfylla og innheima þær með hernaðarmætti (a military intervention). Þetta skrifa þeir í Financial Times í dag. Ég talaði þó um þetta við börnin mín um þar síðustu jól. Þau búa jú í ESB en vissu minna en ekki neitt, eins og flestir aðrir þar. 

Sem sagt; senda herinn til að innheimta þá gúmmítékka sem aðrir seðlabankar evruríkja hafa sent niður í kjallara þýska seðlabankans — og eiga ekki fyrir — því öngvar peningaprentvélar hafa þeir til þess. Þýski seðlabankinn er eini seðlabankinn í kerfinu sem ennþá á eftir pening fyrir kerfisgreiðslum. Það fer því að lækka risið á þaki ECB-seðlabankans, svo brátt gefst fólki tækifæri á komast þar að til að henda inn í hann matvælum.

Þessu til frekari staðfestingar leyfi ég mér að greina frá því hér að í ríkisstjórn Íslands sitja nú skjalfastir hættulega heimskustu menn allrar peningamálasögu Íslendinga. Það var og er sorglegt að Ísland skyldi þurfa að fara úr ösku banka- og útrásarvíkinga og yfir í eldborgargíg ESB-ríkisstjórnar Jóhönnu, Össurar og Steingríms
 
Fyrri færsla
 

Já en Kanadadalur er ónýt mynt

Eru menn búnir að gleyma því sem þeim var sagt hér á landi árið 1997? Þá var okkur sagt - í krafti hagfræðimenntunnar - að mynt Kanada væri ónýt og of lítil til að geta staðið ein. Okkur var einnig sagt að það væri alveg sama hvaða peninga- og efnahagsstjórn væri viðhöfð í hagkerfi Kanada. Myntin þeirra væri ónýt og gæti aldrei staðist.

Ég hélt satt að segja að menn hefðu annað og mikilvægra við tíma sinn að gera en gramsa í ruslatunnum eftir vopnum til að berja á íslensku krónunni með. Krónan haggast ekki. Sama hvaða rusli og drasli þið hendið í hana. Hún er mynt fullvalda Íslands, þjóðarinnar og allra auðæfa hennar. Hún er kjölfesta fullveldis og sjálfstæðis.

Eigum við nokkuð að minnast á evruna hér? Nei. Það tekur sig líklega ekki að gramsa dýrpa í þeirri botnlausu tunnu.

En þið eruð kannski að bíða eftir því að kjósendur hendi ykkur í ruslið? Sú athöfn myndi sumum þykja gustukaverk. Og lái ég þeim sú skoðun ekki. Höftin eru í höfðum ykkar sem þó og því miður eru bankabólugrafin. Við erum fullvalda ríki!

Fyrri færsla

Hirðlaus


Hirðlaus

Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi segir að sú umræða sem fram fer um ESB á Íslandi sé ekki sú rétta umræða sem eigi að fara fram. Finnst engum skrýtið að það sem kynnt var hér sem tollabandalag, sé nú komið með heilt sendiráð á Íslandi og önnum kafið við að hella hundruðum milljóna króna inn í pólitískan áróður fyrir sjálfu sér, - sem sagt; hér í sjálfu lýðveldi Íslendinga. Finnst mönnum þetta eðlilegt? Í sjálfu lýðveldi okkar sem enn er svo ungt að það öðlaðist sjálfstæði sitt fyrir aðeins 67 árum síðan. Og það eftir árhundruða harða baráttu forfeðra okkar.

Hér er sendiherranum vorkunn, því Ísland tilheyrir ekki hinni gömlu aristókratíu Evrópu. Þar sem því var bókstaflega trúað að blátt blóð rynni í æðum þeirra sem fæddust inn í korrréttar fjölskyldur. Aristókratía þessi er enn við lýði í Evrópu og hún er enn allsherjar smekksdómari yfir þeim skoðunum sem almenningur með rautt blóð í Evrópu má hafa. Þetta gildir enn um alla afkima samfélaga Evrópu.
 
Kúltúrelítan í ESB segir t.d. enn dauðlegum hvaða skoðanir á menningarmálum menn megi hafa. Hvað þeir megi og megi ekki borða, hvað þeir megi segja og hvar. Og enn fremur hvaða skoðanir á svo mörgu öðru dauðlegir menn megi hafa.

Fyrir vikið fyllist almenningur í Evrópu oft frústrasjónum þegar óskir hans eru dæmdar sem "ólögmætar" eða "rangar" af elítu ESB-landa. Og þá er Bandaríkjunum yfirleitt kennt um þessa vanlíðan. Almenningur í Evrópu má ekki eiga sér draum, nema að hann sé fyrst blástimplaður af elítunni. Þetta er einn munurinn á Bandaríkjunum og Evrópu.

Bandaríkjamenn búa í ameríska draumnum. Þeir þurfa ekki leyfi smekksdómara fyrir því að lita hárið á sér fjólublátt, borða bollur með múrskeið eða kaupa sér bifreið sem er trukksígildi. Þeir gera það sem þeim sýnist og þegar þeim sýnist. Í Evrópu þarf fólk að fá leyfi elítunnar fyrst. Hún ræður enn hvað, hvenær og hvernig. 

Í 27 ríkjum Evrópusambandsins hefur bláæða fólki Brusselveldis ESB tekist að selja þetta nýja konungsríki sitt sem fiðurfjaðrað Evrópusamband. Og sem fyrir elítunnnar tilstilli, hefur fengið kolaða stálvængi friðardúfu. Þessi friðardúfa á spariperum er að sögn forseta Evrópusambandsins, sem enginn kaus, komin svo hátt til flugs að hún hefur — að flestum forspurðum — útrýmt þjóðþingum 27 ríkja. Og enginn segir neitt. Já þetta er Evrópa; meginland tapara, einu sinni enn

Um helgina ætlum við að hafa svið. Saltinu er stráð
 
Fyrri færsla

mbl.is Þjóðþingin orðin að ESB-stofnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

200 sinnum allir Íslendingar atvinnulausir í ESB

Atvinnuleysi á evrusvæði frá 1991
 
Nú eru 24,3 milljónir manna atvinnulausir í Evrópusambandinu. Þetta eru 10,7 prósent allra á vinnualdri í evrum og 10,1 prósent vinnufærra íbúa allra 27 ríkja Evrópusambandsins. Fimm hundruð milljón íbúar þrauka í ESB. Þar af eru áttatíu milljón fátæklingar. Fjörutíu og þrjár milljónir manns eru matvælafátæklingar. Þrettán milljónir manns fá úthlutað matarpökkum frá hjálparstofnunum og hinu opinbera. Og milljónir fjölskyldna í fullri vinnu í Þýskalandi þurfa fátæktarhjálp. Launin eru svo lág í evrum.

Samkvæmt nýjustu fréttatilkynningu frá hagstofu ESB — hún birtist í dag — er atvinnuleysið í ESB orðið svo skuggalegt að halda mætti að öll bankakerfi allra Evrópusambandslanda hefðu hrunið í tvígang, fjórum sinnum á Spáni og Grikklandi, þrisvar sinnum í Portúgal, Írlandi, Lettlandi, Litháen, Eistlandi og Slóvakíu og tæplega tvisvar sinnum í því sem eftir er.
 
Atvinnuleysi evru og esblanda janúar 2012
Og nú er 791 dagur liðinn síðan Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins áttu að vera orðin að veruleika. En þá átti Evrópusambandið —samkvæmt 10-ára áætlun sovétmiðstjórar ESB— að vera orðið ríkasta hagkerfi í heiminum. Nú er stór hluti þess hins vegar á leið í gjaldþrot, restin fallin í hor eða komin með kryppu. Evrusvæðið er þvert á endalaus loforð orðið versta efnahagssvæði heimsins. Atvinnuleysi ungs fólks í evrum á Spáni er komið upp í fimmtíu prósent. Helming af hundraði. Allt landið er komið með 23,3 prósent atvinnuleysi.

Greinilegt er að framtíðarskipan gjaldmiðils- og gjaldeyrismála evrulanda hefur verið afnumin með upptöku evru og kostnaðurinn við hana að nálgast miðstýrt efnahagslegt sjálfsmorð.

Mexican peso pr US dollar
Fyrirtækið Össur H/F lærði af þessu og hefur því flutt framleiðslu fyrirtækisins í land sem býður starfsemi þess upp á að planleggja viðskiptin í sjálfstæðum mexíkönskum pesó í stað þess að þurfa að planleggja sjálfsmorð í evrum. En þetta sjá ekki allir. Ég heiti ekki Allir og veit að Mexíkó upplifði afar erfiða gjaldmiðilskreppu árið 1994 og aftur á ný svo seint sem árið 2008. Þetta er ástæðan fyrir því að Mexíkó er í uppáhaldi hjá forstjórn fyrirtækisins. Gengi pesó féll svo mikið. Landið er samkeppnishæft. 
 
Fréttatilkynningin frá sjálfsvígastofnun ESB er hér:
 
Það fyrsta sem fyrirtæki gera þegar þau ganga í evrusvæðið, er að segja upp fólki og reyna að þéna inn fimmkall á spákaupmennsku í erlendum gjaldmiðlum. Hagnaðarhlutfall fyrirtækja í evurlöndum er nær alltaf það lélegt. Enda sést það á atvinnuleysistölunum og litlum sem engum hagvexti áratugum saman. Það kostar að hafa enga framtíðarskipan í gjaldmiðils- og gjaldeyrismálum. Það kostar að eiga ekki krónu
 
Fyrri færsla
 

Munið þið eftir Tarik Aziz?

Hvernig stendur á því að mér detta tímarnir í kringum hátind Tarik Aziz í hug þegar ég sé þessa mynd hér að neðan og les fréttina? Einhver sem getur svarað því. Hvað er að. Eða var það bara CNN sem stóð fyrir þessu og gerði þetta svona eftirminnilegt? 

Eða er það klukkan á veggnum. Hún er annað hvort 13:23 eftir hádegi eða 01:23 eftir miðnætti. Úrið svitnar. Þetta gæti verið tveggja daga mynd. Höggmynd.

En hvar er myndin tekin. Í Aþenu? Í Róm? Á Íslandi? Í Sofíu eða á Möltu?

Svo er það lestarvagninn til vinstri á mynd myndarinnar. Útsýnið úr honum minnir mig ósjálfrátt á Doctor Zhivago. Hana sá ég einn, sem 10 ára gamall, því ekki var um annað að ræða, þegar ég fór einn með flóabátnum góða Drangi frá Siglufirði á skíðavikuna í Hlíðarfjalli. Nauða ég og nauða. Skarðið var auðvitað lokað. Ekki einu sinni Scanían hans pabba míns góða komst yfir. Það var að sjálfsögðu þessi merkilega stólalyfta sem dróg mig af stað. Svoleiðis höfðum við ekki. Mikill hafís var á leiðini og sumir ældu, en ekki ég. Bjartur reykti pípu sína, stýrði og lyktin var góð. Ég sá líka Sound of Music í sömu ferð. Trapp fjölskylduna. Tvær myndir á einni viku var svakalegt. En það voru jú tvö bíó. Fyrri myndin sat lengi í mér.

En svo er það þessi fáni. Stjörnunrar þekki ég, en liturinn er samt eitthvað svo breyttur. Eða þreyttur. Við erum að vinna.

ESB fáni - Fule - Steinrímur J og Ciolos mbl

Fyrri færsla

160 þýskir skattheimtumenn svífa til jarðar í Grikklandi 


mbl.is Sakar Morgunblaðið um lygar, ranglæti og heimsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

160 þýskir skattheimtumenn svífa til jarðar í Grikklandi

Um er að ræða 160 manna setulið þýskra skattheimtusérfræðinga sem aðstoða eiga við innheimtu skatta og gjalda af almenningi í ESB- og evruríkinu Grikklandi. Matsfyrirtækið Standard & Poor's flokkar nú Grikki sem gjaldþrota þjóð í gjaldþrota ríki. Stjórnmálamenn Grikklands hafa sumir hverjir verið fyrri til og þegar flutt peninga sína úr landi. Kannski þeir hvíli í sama skattaskjóli og lúxuslífeyrissjóðir 1.100 embættis- og stjórnmálamanna Evrópusambandsins gerðu í byrjun ársins 2009.

Reuters - evruríkið Grikkland
Fjármálaráðherra Norður-Rínar fylkis í Þýskalandi, Norbert Walter-Borjans, segir að Grikkland standi nú í svipuðum sporum og Austur-Þýskaland gerði þegar það kom gjaldþrota og eyðilagt undan kommúnisma Sovétríkjanna. Afleiðing 30 ára aðildar Grikklands að Evrópusambandinu og 10 ár þess í myntvafningi sambandsins, er sem sagt ekki nein hörmungaleg smásmíði. Svo virðist sem evran hafi jafnvel virkað betur en til var ætlast; sem gereyðingarvopn. Hver kann að umgangast gereyðingarvopn? Aðeins tveir möguleikar eru; on eða off

Almennt er talið að síðsta innheimtuferð Þýskalands inn í Grikkland hafi ekki verið nægilega hámörkuð. Þessi gangi þó betur, þar sem Þjóðverjar telja sig orðna sérfræðinga í Evrópufræðum.

Fyrri færsla
 
 

Ég spila ekki póker með fullveldi Íslands

Eins og við fengum að vita í nýrri skýrslu um húsnæðismarkaðinn í evruríkinu Írlandi, þá er evru-ástandið í því landi orðið þannig að þeir einir sem hafa bestu og tryggustu stöður hjá hinu opinbera — eða eru að öðrum kosti í vinnu hjá erlendum stórfyrirtækjum — geta fengið lán til húsnæðiskaupa. Og þá fá þeir ekki meira en sem svarar til 60 prósentum af kaupverði. Þessu greindi ég frá í síðustu bloggfærslu.

Og nú eru danskar húsnæðislánastofnanir hættar að lána Dönum til húsnæðiskaupa ef þeir búa úti á landi þar sem svo vill til að verð margra fasteigna er fallið niður í hálfa milljón danskra króna, eða sem svarar til 11,5 milljónum íslenskra króna. Upphaflega ástæðan fyrir þessari þróun er sú að Danmörk gekk í Evrópusambandið árið 1973. Á þeim tíma sem liðinn er frá inngöngu Dana í sambandið, hefur dönskum landbúnaði hrakað það mikið að hann er að deyja. Og með landbúnaðinum deyr danska landsbyggðin. Hið samfélagslega hlutverk dansks landbúnaðar og afleiddra atvinnugreina var það mikið. Ég þekki þetta því ég bjó í jóskri mold í 25 ár. Atburðarásin hefur nú náð því stigi að danskar húsnæðislánastofnanir, sem allar eru evrutengdar, vilja ekki lengur lána fólki peninga til þess að kaupa sér húsnæði í ESB-kirkjugarði Danmerkur á landsbyggðinni. Gott og vel segja kratar.

Á Hvanneyrarfundi Sjálfstæðismanna í Borgarfirði í haust kom ég og jós úr mér að verið væri að drepa Ísland með engri alvöru og pólitískt djúpri byggðastefnu* í landinu. Fyrir góðra —og vonandi tryggra— flokksmanna tilstilli, rataði neisti af þessu inn í Landsfundarályktun flokksins í byggðamálum. Það búa jafn margir á Íslandi í dag og á tímum Snorra Sturlusonar. Höfuðborgarsvæðið hér frátalið. Það var heldur ekki til þá. Þetta er í einu orði sagt brjálæði! Fullkomið brjálæði. Land sem ekki er notað verður á endanum tekið af okkur. Tekið af okkur. Numið af öðrum. Skiljið þið þetta?

Helstu afleiðingar engrar alvöru stefnu í þessu lífsnauðsynlega máli eru; bólugrafið hagkerfi áratugum saman, með tilheyrandi ónauðsynlegri verðbólgu. Svæsin eignaupptaka. Miklu minni nýsköpun. Glötun verðmæta. Minni samkeppni. Meiri fákeppni. Og afkynjun höfuðborgarsvæðisins (svo ég þurfi ekki að nota hér orðið úrkynjun), sem komið er úr tengslum og tryggum festum við landið. Það er orðið að skráargati Íslands. Það er ekki heppilegt að allir búi í skráargati. Í engu ríki heimsins getur þessu verið svona farið nema í Mónakó og Andorra. Ósló er bara 500.000 manns. En í landinu búa fimm milljón manns. Okkar höfuðborg er því miður ekki lengur höfuðborg fyrir land fiskimanna, bænda og smærri atvinnurekendur. Býrð þú í skráargati Íslands?

Ég sagðist ekki spila póker með fullveldi Íslands. Þess vegna hef ég ekki enn þorað að gerast meðlimur í stjórnmálaflokki. Að mínu mati eru menn að spila póker í stjórnmálum ef þeir segja eitt við kjósendur en gera svo allt annað og öfugt eftir kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn, sem er mér kær, hefur ekki enn afneitað nógu skýrt og afdráttarlaust fyrir mér og öðrum, að hann, undir ENGUM kringumstæðum, vilji EKKERT með NEITT af neinni Evrópusambandsaðild hafa með að gera. Að þar standi 0,00000 og void inni á bankabók flokksins. Að Ísland gangi ALDREI í neitt ríkjasamband og ekki í neitt Evrópusamband. Flokkurinn hefur heldur ekki enn eiðsvarið óskertu fullveldi landsins í peningamálum algera hollustu sína. Ég bíð. Á meðan hleður Vigdís Hauksdóttir og Sigmundur Davíð fullveldispunktum Framsóknarflokksins inn á kjörseðil minn. Hvað á ég að gera? Ég spila ekki póker á kjörstað.

Hér eru tvö viðtöl: Davíð Oddsson og Vigdís Hauksdóttir. Af hverju eru þau ekki þrjú, viðtölin? Því miður eru þau ekki bæði í kjöri. Þá væri val mitt ljúft og létt. Gerðu eitthvað maður!
 
* Nei: Byggðastefna er ekki það að ríkissjóður kjördæmapoti trilljón krónum inn í Göt á fjöllum

Fyrri færsla:
 
 
Tengt:
 
Ný rannsókn Íslandsbanka, PDF; Þýðing sjávarklasans í íslensku efnahagslífi + Heimasíðan 


Evran og hvellhettur

ESB fáni - Fule - Steinrímur J og Ciolos mbl
 
Sósíalistar og kommúnistar segja enn að Sovétríkin hafi mistekist vegna þess að þar voru menn sem kunnu ekki að umgangast evrópska sósíalismann. Sem afleiðing urðu þjóðir sósíalisma Sovétríkjanna bláfátækar. Þær misstu af nútímanum og allt að sjötíu milljón manns létu lífið vegna smávægilegra mistaka í umgengnisháttum. Já, heilu þjóðirnar misstu næstum lífið. Fræðimenn þessa furðuheims eru enn að útlista mistökin í ræðum og riti.

Nú þegar Grikkir urðu í reynd þjóðargjaldþrota í evrum í fyrradag, þá er okkur sagt að það sé vegna þess að þeir kunnu ekki að umgangast evruna. Halda mætti að hér væri um plastískt sprengiefni að ræða. "Varaðu þig, ekki láta myntina falla á gólfið, þá blæs hún hausinn af þjóðarbúinu". Þetta er furðuleg röksemdafærsla. Grikkjum var einmitt sagt að evran væri lausn á flestum vandamálum þeirra. Að hún verndaði þá gegn áföllum, stuðlaði að framförum, hagvexti og atvinnusköpun. Engin þessara loforða hafa ræst frekar en draumar sósíalista gerðu í Sovétríkjunum. Meiri og litríkari sósíalismi var þó sífellt kallaður á vettvang.
 
Ég hef séð hér heima hvernig sumir menn eru vanir að umgangast íslensku krónuna. Æða oft á henni og fara jafnvel offorsi yfir hana. Fyllast ofkæti, viðhafa kæruleysi, láta heilu bankakerfin hrynja ofan á hana og eru almennt vanir því að hún komi alltaf upp á ný til að bjarga þeim. Ég ætla bara að vona að íslensk skipa- og flugfélög séu ekki að standa í flutningum með þessa mynt Evrópusambandsins. Tjónið gæti orðið hreint ævintýralegt ef varlega er ekki farið. Setja þyrfti aðvörunarmerki á evrupeninga. Því hlýtur miðstjórn Evrópusambandsins í Brussel að geta komið í verk á skömmum tíma.  

****

SCSI/RICS Annual Property Report 2011

EVRURÍKIÐ ÍRLAND - HÚSNÆÐISLÁN TIL ALMÚGANS

The Availability of Finance (bls. 14)

On the residential side, only those in secure roles either in the public service or from high profile international firms are being offered mortgages, despite claims to the contrary from the banks themselves; even then, it has become extremely difficult to secure a mortgage for a loan-to-value ratio of greater than 60%. On average, the loan to value ratio for new mortgages is less than 70%, albeit at reduced values.

****


Í Sovétríkjunum höfðu þeir það gott sem voru í æðstu opinberum stöðum eða höfðu aðgang að dollurum. Á Írlandi er evru-ástandið í landinu orðið þannig að þeir einir sem hafa bestu og tryggustu stöður hjá hinu opinbera — eða eru að öðrum kosti í vinnu hjá erlendum stórfyrirtækjum — geta fengið lán til húsnæðiskaupa. Og þá fá þeir ekki meira en sem svarar til 60 prósentum af kaupverði. Írar kunna ekki að umgangast mynt Evrópusambandsins.

Meiru af ESB er nú hellt ofan í Grikkland, án nokkurs samráðs við þjóðina, eins og var í Sovétríkjunum. Gríska þjóðin hefur aldrei verið spurð að neinu er varðar Evrópusambandið. Hún var ekki spurð um sjálfa aðild landsins að ESB fyrir 30 árum síðan. Hún var ekki spurð um upptöku evru, þegar þrjú þúsund ára mynt landsins var bara sí svona hent fyrir borð.

Ríkisskuldir evrulandsins Portúgal eru allt í einu komnar í 107 prósent af landsframleiðslu. Eða svo héldu menn þar til í fyrradag. En nú er hins vegar komið í ljós að ríkisstjórn landsins kunni ekki að umgangast plastíska sprengiefnið evruna. Henni fipaðist svo — líklega vegna sprengihættu — að hún var ófær um að telja fram skuldir sjálfra ríkisfyrirtækja landsins í evrum. Þessar ótöldu fipuðu skuldir í evrum svara til fjórðungs fjárþarfar portúgalska ríkisins næstu þrjú árin, segir nýjasta rannsókn BNP Paribas. Hvað skyldi gerast næst. Afar erfitt er að umgangast mynt sem stökkbreytist alltaf þegar síst er þörf á þannig breytingum. Já, hvað næst?
  


Munið; evran átti að koma í veg fyrir krísur og vernda

Átti að vernda, koma í veg fyrir krísur og "lækna"
 
Allar ófarir evrulanda undanfarin ár hafa lítið sem ekkert með heimskreppu að gera. Ófarir evrulanda eru allar afleiðingar hinnar sameiginlegu myntar Evrópusambandsins. Allt mikilvægt er varðar þessa mynt hefur reynst gallað og sannað sig sem verandi algerlega öndvert við það sem lofað var
  • Grikkland er gjaldþrota eftir 30 ár í Evrópusambandinu
  • Evruupptaka 2002
  • Evran átti að vernda landið gegn áföllum
  • Aðgangur að alþjóðlegum fjármálamörkuðum lokaður landinu og bönkum þess í samfellt 4 ár
  • Tók aðeins 6 ár að sprengja efnahag í tætlur undir evru
  • Neikvæðir raunstýrivextir allan tímann
  • ESB-aðild átti að byggja "nýtt Grikkland". 30 ár eru liðin!
Langar þig að taka og greiða lán í Grikklandi? Spáni? Portúgal? Írlandi? Ítalíu? Eistlandi? Slóvakíu? Slóveníu?

Malta

Malta tók upp evru 2008. Nú hefur lánshæfnismat ríkissjóðs landsins verið lækkað í tvígang á síðustu sex mánuðum vegna smitáhrifa og niðurbrots í efnahags- fjármálalífi landsins. Evruknúið bankakerfi Möltu má sín lítils þegar um sundurtætt viðskipti evrubanka yfir landamæri er að ræða. Ríkissjóður og lýðveldi Möltu hefur misst allan útgáfurétt peninga, öll vaxtavopn og getur lítils stuðnings vænst frá bankakerfi í evrusvelti. Landið hefur misst allt fullveldi í peningamálum. Það er vélarvana. 

Aðeins þrem vikum eftir að síðustu ríkisfjárlög landsins voru samþykkt og viðtekin af fulltrúum fólksins, kom framkvæmdavald Evrópusambandsins í Brussel bréfleiðis til Möltu og blés hin nýju ríkisfjárlög lýðveldisins af borðinu. Þeim var skipað að gera ný. Og skera niður og neðar.

Allt er nú undir á Möltu, sérstaklega þverrandi lýðræði og fölnandi frelsi. Þar slær köldum svita út á reyndustu stjórnmálamönnum landsins. Við blasir hin óhjákvæmilega ömurlega framtíð inngreypt með ESB-innlimun og evruupptöku. Til baka verður ekki snúið.

Og áfram halda bylgjupappafréttamenn Íslands að forheimskast í silfruðu sardínupartý ljósvakamiðla landsins. Hvar er botn tunnu þeirra?
 
Fyrri færsla
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband