Leita í fréttum mbl.is

Munið; evran átti að koma í veg fyrir krísur og vernda

Átti að vernda, koma í veg fyrir krísur og "lækna"
 
Allar ófarir evrulanda undanfarin ár hafa lítið sem ekkert með heimskreppu að gera. Ófarir evrulanda eru allar afleiðingar hinnar sameiginlegu myntar Evrópusambandsins. Allt mikilvægt er varðar þessa mynt hefur reynst gallað og sannað sig sem verandi algerlega öndvert við það sem lofað var
  • Grikkland er gjaldþrota eftir 30 ár í Evrópusambandinu
  • Evruupptaka 2002
  • Evran átti að vernda landið gegn áföllum
  • Aðgangur að alþjóðlegum fjármálamörkuðum lokaður landinu og bönkum þess í samfellt 4 ár
  • Tók aðeins 6 ár að sprengja efnahag í tætlur undir evru
  • Neikvæðir raunstýrivextir allan tímann
  • ESB-aðild átti að byggja "nýtt Grikkland". 30 ár eru liðin!
Langar þig að taka og greiða lán í Grikklandi? Spáni? Portúgal? Írlandi? Ítalíu? Eistlandi? Slóvakíu? Slóveníu?

Malta

Malta tók upp evru 2008. Nú hefur lánshæfnismat ríkissjóðs landsins verið lækkað í tvígang á síðustu sex mánuðum vegna smitáhrifa og niðurbrots í efnahags- fjármálalífi landsins. Evruknúið bankakerfi Möltu má sín lítils þegar um sundurtætt viðskipti evrubanka yfir landamæri er að ræða. Ríkissjóður og lýðveldi Möltu hefur misst allan útgáfurétt peninga, öll vaxtavopn og getur lítils stuðnings vænst frá bankakerfi í evrusvelti. Landið hefur misst allt fullveldi í peningamálum. Það er vélarvana. 

Aðeins þrem vikum eftir að síðustu ríkisfjárlög landsins voru samþykkt og viðtekin af fulltrúum fólksins, kom framkvæmdavald Evrópusambandsins í Brussel bréfleiðis til Möltu og blés hin nýju ríkisfjárlög lýðveldisins af borðinu. Þeim var skipað að gera ný. Og skera niður og neðar.

Allt er nú undir á Möltu, sérstaklega þverrandi lýðræði og fölnandi frelsi. Þar slær köldum svita út á reyndustu stjórnmálamönnum landsins. Við blasir hin óhjákvæmilega ömurlega framtíð inngreypt með ESB-innlimun og evruupptöku. Til baka verður ekki snúið.

Og áfram halda bylgjupappafréttamenn Íslands að forheimskast í silfruðu sardínupartý ljósvakamiðla landsins. Hvar er botn tunnu þeirra?
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Vandi Grikkja er ekki evrunni að kenna.

Það eru þeim sjálfum að kenna.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.2.2012 kl. 09:57

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Evru og ESB landið Luxemburg er ríkasta land í heimi.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.2.2012 kl. 09:58

3 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Það má vel vera að Luxemburg sé ríkasta land í heimi, en það er ekki evrunni og ESB að þakka.

Sigurjón Jónsson, 23.2.2012 kl. 10:11

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Alveg einsog slæm staða í Grikklandi er ekki ESB og Evrunni að kenna.(einsog höfundur síðunnar heldur fram)

Sleggjan og Hvellurinn, 23.2.2012 kl. 10:50

5 identicon

Lúxemborg er vissulega auðugt land þótt það sé ekki endilega rétt að hún sé auðugasta land í heimi. Tölur um þjóðarframleiðslu á mann þar eru afbakaðar vegna þess að stór hluti vinnuaflsins býr handan landamæranna (og framleiðslunni því ekki deilt á réttan fjölda hausa) auk þess sem þar eru ýmiskonar pappírsumsvif.

Ríkidæmi Lúxemborgar er auðvitað ekki nýlega tilkomið og mun eldra en evran.

Að sama skapi er hátt spillingarstig, skattsvik og fjármálaóreiða eitthvað sem hefur fylgt Grikkjum meira og minna allan nútímann. Grikkir hafa þrátt fyrir það tekið verulegum efnahagslegum framförum frá stríðslokum.

Það sem er nýlega tilkomið er að Grikkland fari á hausinn.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 13:27

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vandi Grikkja er vegna þess að þýsku hagkerfi var þröngvað upp á þá með aðildinni að EMU.

Það vill segja að án evru hefðu Grikkir bara haldið sínum afslappaða Miðjarðarhafstakti. Evran og myntsamstarfið leiddu þá fram af brúninni.

Ergo, evran hefur verið þeim til bölvunar.

Ragnhildur Kolka, 23.2.2012 kl. 13:31

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Átti að vernda, koma í veg fyrir krísur og "lækna"

Það er tvær hliðar á öllum málum [minnst]. 30 ára plön leiða oftast hin rétta tilgang í ljós.

Luxemborg var valinn til hýsa Langtíma FjárfestingaBanka EU Seðlabankakerfisins á sínum tíma. 50% í eigu Frakka og Þjóðvera. Banki sem á að verðtryggja á langtíma forsendum í ríkjum utan Utan EU, mörg eru nú formleg Leppríki. Þessi þrautavarsjóður á ekki að greiða út arð. UK má hvenær sem kaupa sig inn í bankann og eignast þá jafn stór hlut og Frakkar og Þjóðverjar, búið er samþykkja það fyrirfram á EU þinginu, tengist því að Seðlabanki UK gangi í klúppinn, líka búið að fá samþykki fyrir því: Commission býður.


Einnig var Luxemburg  valinn til að vera valkostur gegn Sviss [Ísland var ekki valið til stund pengingaþvætti]. Flestir stóru bankar meirihátta ríkja EU plöntuðu svo niður útibúum þar.

Þetta er að skila þegnum Luxemborgar miklu í samburðartekjur. MeðalKaup í Lúxemburg er ekki að skila meira raunvirði en í Þýskalandi.

Fjarfestingabankann má færa hvenær sem er.

EU er byrja í miklu samdráttar skeiði. Þegar Þjóðverjar skera niður tölu sinna þegna um 1,0% á ári í 5 ár. Þá er það vegna 30 ára framtíðar sínar um að viðhalda raunvirði eftirspurnar á þegn.  
Rifjum um að tímum að í byrjun 20 aldar var áætluð byrgða staða í námum Þýsklands og EU ekki glæsilegileg á langtíma forsendum, þessi staða hefur ekki batanað.
EU tókst ekki að jafn vöruviðskipti við Kína, valkostur að gera meðaltekjurtekjur í EU og Kína þær sömu á langtímaforsendum er neyðarúrræði að mínu mati. 

Júlíus Björnsson, 23.2.2012 kl. 15:03

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Eins og ég sagði þá hafa raunstýrivextir í Grikklandi verið neikvæðir undir evru. Peningar í Grikklandi voru rangt verðlagðir og það varð einmitt til þess að fjáraustur og fjárhamstur fór fram. Á Íslandi hefði þetta haft skelfilegar afleiðingar.

Þeir sem segja að evran sé ekki helsta orsök vandamála Grikklands eru líklega geðbilaðir eða bara heimskir. Evran, sjálf upptaka hennar og í kjölfarið straumur af þýsku lánsfé í Grikklandi til baka til Þýskalands, þar sem hann hefur hrúgast upp í gerræðislegum viðskiptahagnaði, er einmitt eitt af því alvarlegasta sem gerst hefur. Peningar Grikkja liggja að miklu leyti á kistubotninum í Þýskalandi í formi viðskiptahagnaðar þess gagnvart Grikklandi. Og á þessum sama tíma hefur Þýskaland í 12 ár stundað innri gengisfellingu gagnvart Grikklandi á meðan Grikkjum er haldið læstum á evrudópinu með neikvæðum raunstýrivöxtum. Peninga- og vaxtastefna evru hefur eingöngu tekið mið af þörfum Þýskalands en EKKI af þörfum Grikklands.

Hve mörg fleiri ríki skyldu vera nokkurs konar Grikkland í myntbandalagi Evrópusambandsins? Og af hverju er Landesbanka-kerfi Þýskalands gangandi gjaldþrota? Er það vegna þess að þjóðverjar kunna ekki að umgangast evrur? Kannski er evran bara geislavirkur úrgangur frá Brussel?

Raunstýrivextir í Grikklandi frá 2002 til 2011

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2012 kl. 15:59

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er rétt að hertogadæmið Luxembúrg er ríkt anomalí tölum allra hagstofa. Stærsti hluti vinnuafls þeirra býr ekki í landinu. Ef það fólk væri talið með í hagtölum þá væri landsframleiðsla á hvern íbúa ekki svona há. 

Hertogadæmið Luxembúrg hangir meðal annars uppi á því að tvöfaldir lífeyrissjóðir starfsmanna Evrópusambandsins eru geymdir þar í skattaskjólum. Því fór fjármálaráðherra Luxemborgar í fýlu þegar landið hans var 2008 sett á lista Þýskalands yfir vafasöm skattaskjól. En það mál hefur líklega þegar verið leyst á fundi í reykfylltu bakherbergi í Brussel á milli sjússa.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2012 kl. 16:20

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fermingardrengirnir hjá þrumunni og sleggjunni eru bara að enduróma afneitunarmöntru ESB aðalsins eins og sönnum trúarofstækismönnum sæmir að bergmála trúarleiðtoga sína án þess að hafa hugmynd um það hvað hann er að segja. Ritningin segir...og allt það.  Geðveiki og heimska, sitt lítið af hvoru eins og hjá sauðahjörð annarra költa.

Bretar Frakkar og Þjóðverjar láa sér ekki nægja að mergsjúga Grikki í gegnum barbabrellur myntbandalagsins, heldur skilyrða þeir "neyðarlánin" þannig að í staðinn þurfa Grikkir að skuldbinda sig til hergagnakaupa frá þessum göfugmennum fyrir upphæð sem er ivið hærri en "hjálpin."

Talandium geðveiki og heimsku, þá má velta því fyrir sér hvort sú slæmska hrjái alla Grísku þjóðina líka, fyrst hún lætur sér þessa nauðgun í léttu rúmi liggja og vilja meira að segja halda í blessaða evruna og "samvinnuna" aðeins lengur. Það er jú búið að segja þeim að allt fari til fjandans ef þeir sleppa evrunni, þótt allt sé löngu komið þangað vegna hennar.

Hvað eru Grikkir ð hugsa? Hugsa þeir kannski?

Jón Steinar Ragnarsson, 23.2.2012 kl. 20:32

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er annars merkilegt að sjá þessa drengi með greindaranorexíuna básúna á sínu bloggi að ástandið hér sé krónunni að kenna en ekki okkur.

Í þeirri rökfræðiakrpatík hafa þeir fundið út að Evran sé það eina sem geti bjargað ástandinu hér.

Heimska og geðveiki Gunnar. Ég held það sé hóflegt greining hjá þér. 

Jón Steinar Ragnarsson, 23.2.2012 kl. 20:38

12 Smámynd: Júlíus Björnsson

ÉG var mikið í S- EU um 1975 til 1985 og þetta voru fjárhagslega non profit í heildina litið,  sjáfþurftar búskapur ,atvinnuleysi þótt konur unnu flestar 12 tíma heima. 

Svo komu þroskferilis lá til uppbyggingar [langtíma fjáfestingar lándrottna með lágum grunnvöxtum fyrir CPI], hagræðingar  brenna niður óþarfa eiginfé og minnka veð, svo samhæfingar til að jafna lá vsk vöruviðskipti í grunn sem heyrir undir Brussell framtíðarinnar.  Málið er þegar ferli lýkur , er uppbyggingu lokið og hagræðingu af hálfu Brussell.  [Greindir þjóðverjar vita allt um undirgreindar þjóðir: þegar raðað er í bekki þá vita þeir heimsku hvenæri greindari tala. það er mín reynsla, eins veit ég á sama hátt hvenær heimskir tala.  Rök er tilfinningalausar skoðanir.]

Heimskir heima hagfræðingar leppríkja sem langtíma fjárfestingar voru gerða í   skilja ekki að þetta er skamtímma aukning þjóðartekna. Vsk hagnaður sem þetta skilar aukreitis má bar eyða í efla sinn eign neytenda markað sem viðheldur langtíma þjóðartekjun, menntun út í loftið, innflutningur þræla og fasteignir út loftið verða byrði krefjast meiri orku og hráefnis til að standa undir sér.
    Langtíma varsjóðir hjálpsömu ríkjanna hægja á samdrætti hjá þeim næstu 30 ár. Margt smátt gerir eitt stórt. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Alhæfingar sem yfirgreindir tileinka sér. Longtime planning er ekki áhætta nema á Íslandi. Skýring óskast.

Júlíus Björnsson, 24.2.2012 kl. 03:57

13 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Í Austurríki (esb og evru land) er atvinnuleysið 4,1% en það er 7,2% á Íslandi. Þrátt fyrir elskulegu krónuna.

Þessar upplýsingar hljóta að vera áfall fyrir ykkur drengina sem styðja krónuna sama hvað. Og kenna Evruna um atvinnuleysið.

Mikið áfall.

Sleggjan og Hvellurinn, 24.2.2012 kl. 10:40

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í Austurríki og Þýskalandi er ekki persónafsláttur á launum  til ríkisins, lítil starfsmannvelta, og miklar kröfur gerðar til stafsmanna, sértaklega í yfirbyggingu. Svo gildir í EU að Ríkið má mismuna þegar það ræður í störf.


Þannig að atvinnuleysi tengist ekki evru í þessum ríkjum. Atvinnuleysi tengi frelsi sem er valfrjálst, á þroskaferli núverandi aðildar ríkja þá var uppbygging samfara og ódýrt lánsfé, þá fluttu mörg ríki EU inn óæðra vinnuafl að eigin mati til að vinna sín störf og sendu sína unga í nám. Elítur þóttust jafningjar þeirra þýsku og frönsku t.d. og hækkuð sig í kaupi og sömdu reglur um gífurlegar starflokagreiðslur.  

Þetta eru staðreyndir. Hinsvegar er ekki hægt að sanna að sumir hafi séð þetta fyrir, þá fyrir 30 árum síðar.

Íslendingar geta ekki keypt meir evrur af Seðlabanka EU til að markasetja hér en nægir til að viðhalda eðlilegri eftirspurn á heimamarkaði Íslands og max 5,0% verðbólgu, Brussell metur raunvirði sölu síðust 5 ára þegar evru kvóti er ákveðin fyrir Evru ríki.   Það auðveldar ekki Brussell að festa vöruviðskipta jöfnuðun í sessi að Íslendingar fara að markaðsetja evrur hér. Þessar evrur myndu rjúka úr landi strax.

Júlíus Björnsson, 24.2.2012 kl. 20:52

15 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

"Þannig að atvinnuleysi tengist ekki evru í þessum ríkjum."

Er komið öðrvísi hljóð í NEI-sinna.

Þegar það er lítið atvinnuleysi þá er það ekki evrunni að þakka.

Ef það er mikið atvinnuleysi þá er það evrunni að kenna.

Það kemur mér ekkert á óvart að þetta er hin nýja röksemd NEI-sinna. ..   hvítt er svart og svart er hvítt.

Sleggjan og Hvellurinn, 24.2.2012 kl. 21:07

16 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í þýskalandi  er óveðsettar og hreina eignir ekki nauðsymlega gefnar upp í efnahagsreikningum sem sýnir skuldir á móti eignum og svo eignir á móti framtíðar skuldum á núvirði gjaldaga. 

Það gerir þeim kleyft að reka sín [fjármála] fyrirtæki lengi með tekjur síðasta árs minni en gjöldin á síðasta ári.

Evra er ekki góð, á þýskan mælkvarða fyrir ríki, sem hafa möguleika til að standa á eigin fótum og gera það betur en þjóðverjar, þau ríki láta heldur ekki sína mynnt fljóta. Spánverjar geta minnkað atvinnuleysi eins og rússar á sínum tíma með ráða fleiri sópara til starfa hjá ríkinu. Það er líka hægt að greiða skuldir niður með að fækka þeim sem geta ekkert annað gert en reikna gróða fram í tímann.

Sannir ESB sinnar bera virðingu fyrir Meiriháttar ríkjum í EU og taka sér til fyrirmyndar.

Hæfur meirhluti EU sannar nú áfram á næstu árum að afætur [Já-sinnar] er byrði á stöndugum EU ríkjum.

Júlíus Björnsson, 24.2.2012 kl. 22:18

17 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Fyrirtæki í Þýksalndi gera upp skv IFRS sem eru alþjóðlegir reikningsstaðlar.

Allir sem fara eftir IFRS gera upp skv þeim reglum. 

Flest stærri fyrirtæki á Íslandi gera upp í IFRS. Og það er skilda ef fjármálagerningur á á markaði innan EES.

Sleggjan og Hvellurinn, 27.2.2012 kl. 10:53

18 Smámynd: Júlíus Björnsson

Long time planning verðtrygginar sjóðir sjámálstofnana samkvæmt Seðlabanka EU er þroskaðir reknir IRR, og útborgunar bindiskyldu streymi þeirra er alltaf á raunvirði hvers árs. Það er eignir framtíðar [Eigið-fé] er bindiskyldan.

Þjóðverjar taka  taka alla áhættu longtime í afföllum af bréfum til að nafnvextir í haus bréfs séu allaf þeir lægstu í samanburði.

Eftir 2000 og 2055 og í dag er  grunnvaxta gengi  hér 3,5%.  Þýsku banki tekur þá 30% aföll fyrir 5 ár þú færð útborgarðar 20 milljónir en skuldar 30 milljónir með 5,0% vöxtum, og leggur til bestu veð sagði Jón Ásgeir.  Þjóðverjar bóka alla vexti þegar raunvirði 20 milljónar er greitt. Ísland færir 30 miljónir  með nafnvöxtum á eiginfé. Þess vegna rauk það upp eftir 2000. Áhætta er ekki gefins í ríkjum sem geta ekki varpað græðgi sinn 100% á sína eigin almennu neytendamarkaði í skjóli bókhaldslaga sem eru ekki í samræmi.
Grikkland sannar að EU breytir engu um reglur á þjóðarmörkuðum.  

Júlíus Björnsson, 27.2.2012 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband