Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hér er ekki mynd af Össuri Skarphéðinssyni

 
Bretinn Anthony Eden
 
Draumur þessa manns var að búa nú loksins til öðruvísi Evrópu. Nýja Evrópu. Sem að megin upplagi yrði fríverslunarsvæði. Yrði E.F.T.A. Þessi maður var Anthony Eden. Sem þreyttur og úrvinda Breti hafði hann umsjón með rjúkandi rústum meginlands Evrópu. Og hann langaði ekki að berjast á bak við gaddavíra þess á ný. En meginland Evrópu átti sér ekki þennan draum. Draumur meginlandsins hefur aldrei verið þess eðlis að hann gæti vaxið og dafnað innan ramma lýðræðislegs stjórnarfars. Ekki innan þess ramma og frelsis þar sem stjórnmálamenn væru ábyrgir gagnvart kjósendum sínum og þjónuðu fólkinu sem kaus þá. Þess vegna hafnaði meginlandið eðlilega draumum Anthony Eden og varð auðvitað eitt stykki Evrópusamband á ný: varð gaddavír í nýrri útgáfu.
 
Hver sagði þetta um Ísland og skellti hurðinni í lás? Össur? Jóhanna? Steingrímur?
 
"England, in effect, is insular. She is maritime. She is linked through her exchanges, her markets, her supply lines to the most distant countries. She pursues essentially industrial and commercial activities and only slightly agricultural ones. She has, in all her doings, very marked and very original habits and traditions. In short, England's nature, England's structure, England's very situation differs profoundly from those of the Continentals."

Nei. Það var þetta sem skiptiborðið um borð í Charles de Gaulle sagði um Bretland. Og hann hafði og hefur enn rétt fyrir sér. Bretland á ekki heima á bak við gaddavír Evrópusambandsins. Og Ísland þúsund sinnum því síður. En hvað var það sem kom skiptiborðinu um borð í Charles de Gaulle í þá aðstöðu að geta sagt Bretum að halda kjafti. Hvað?
 
Nú flæða fjármunir út úr gaddavíravirki Evrópusambandsins á meginlandinu og inn í breska pundið. Því breska pundið er ekki á leið til helvítis og verður líklega aldrei leyst upp úr þessu. Pundið er hvorki bjölluvír né sprengjuvír eins og evra brusselbjána. Enginn markaður getur leyst pundið upp því myntin sú er ekki pólitísk tröllskessa. Og in God we Trust stendur enn á Bandaríkjadalnum. Take that!
 
Stalín fékk völdin með því að aðlaga stjórnkerfi Sovétríkjanna að sjálfum sér með sífelldum skipulagsbreytingum (structural reforms). Bók Niels Erik Rosenfeldt um anatómíu einræðisins er vel þess virði að hún sé lesin.
 
Á Íslandi aðlagar nú ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu stjórnkerfi lýðveldisins að hinu Nýja Sovétríki Evrópu - á meðan bitist er um allt nema það sem ekki sést.
 
Fyrri færsla
 

Akropolis Adieu og Þýskalandi komið á

Þýska útgáfustarfsemi Der Spiegel 4 maí 2012

Mynd; Þýska útgáfustarfsemi Der Spiegel 4. maí 2012 

Hefur þýska pressan efni á þessu? Hún býr sig til og kemur út í misheppnaðasta bæli Evrópu. Er Grikkland misheppnað ríki (a failed state)? Ef svo. Hvernig varð vagga lýðræðisins svona misheppnuð á aðeins 30 árum? Er gjaldmiðill hennar ónýtur. Er regluverk ríkisins ónýtt. Eru lögin ónýt. Er evrópusamband Grikklands við hin sex misheppnuðu kjarnaríki Evrópusambandsins ónýtt. Svarið við síðustu fjórum spurningunum er því miður já. En svarið við þeirri fyrstu er nei. Banvæn 30 ár Grikklands í Evrópusambandinu eru nú öllum til sýnis.

Svona fer þegar lýðræðið er tekið úr umferð og hið þaulæfða og meðfædda brunalið meginhlands Brusselveldisins — undir stjórn frönsk-þýsku þokuleppalúðrasveitarinnar — er látið um að kveikja í Evrópu aftur. Þetta er kallað ordnungspolitik; súrkálað franskbrauð eða brawn í voilà.

Og ég sem hélt að sjálfur væri ég mikill svartsýnismaður. Ha ha ha. Krugman talar um þrjá - já þrjá - mánuði í Eurodämmerung

Má bjóða þér meira rúgbrauð, elskan 

Nixon talar hér fyrir neðan um gíslatökur undir læstu gengisfyrirkomulagi. En evran er þó miklu miklu verri en gíslatakan sem Nixon nefnir hér. Og alveg sérstaklega þegar fullveldis- og fjármálalegir spákaupmenn hins handjárnaða gengisfyrirkomulags hennar heita Þýskaland og Frakkland. Þegar maður er fullvalda ríki þá þarf bara að senda út eina stutta tilkynningu. Það er nóg. Bæði þennan 15. ágúst 1971, þegar dollarinn varð frjáls, og enn þann dag í dag. Ert þú fullvalda? Takið sérstaklega eftir hugtakinu forward-looking í tilkynningu Nixons

Dönitz mynt Evrópusambandsins er hættulegur rekaviður 

Fyrri færsla

Engin hætta á að þetta verði bannað í landi hinna frjálsu


Engin hætta á að þetta verði bannað í landi hinna frjálsu

Dúóið Borgarastyrjaldirnar (The Civil Wars) flytja þjóðsöng sinn. Hann verður ekki bannaður í landi hinna frjálsu. Aldrei.

En þessum hér þjóðsöng, sem á eftir fer, hefur ríkisstjórn Íslands nú komið fyrir í útrýmingarhættu. Og hart er unnið við að grafa undan stjórarskrá okkar. Ósk ríkisstjórnarinnar er að Íslandi verði blætt út til veldis stórríkja á ný. Evrópustórríksins í smíðum. Þá verður ekki, áður en langt um líður, neins staðar hægt að standa og syngja sönginn okkar eins og Hildur okkar gerir hér: 

Hildur syngur þjóðsönginn 

Spila => Hildur syngur þjóðsönginn fyrir Japansleikinn

Fyrri færsla

Íslandi þarf ekki að ýta út úr Evrópu


Íslandi þarf ekki að ýta út úr Evrópu

Sitjandi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er einstakt dæmi í lýðveldissögu þjóðarinnar. Allar ríkisstjórnir sem setið hafa við þau dýrmætu völd sem forfeður okkar sköffuðu þeim, höfðu það sem sinn metnað og tilgang að varðveita frelsi þjóðarinnar sem vannst með fullveldinu. En bara ekki þessi ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur: Hún vill ýta þjóðinnt út úr húsi sínu. Út úr fullveldinu sem er heimili frelsisins.

Við erum ekki í Evrópu. We are not there. Við erum hér. Og við erum sem betur fer ekki á meginlandi Evrópu. Okkur þarf því ekki að ýta út úr Evrópu. Þegar vöggu lýðræðisins hefur verið ýtt út úr svo kallaðri Evrópu, þá munu skuggamyndirnar af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar ekki falla vel á neina veggi nema meginlands Evrópu.

Þökk sé þeim byggðu húsið okkar og sem þrýstu landhelgi Íslands út. En ekki inn. Hafið er sverð og skjöldur heimils okkar. Það er stórt og voldugt.

Fyrri færsla


Evran hlýtur að styrkjast þegar vagga lýðræðisins fellur úr henni

Eftir munu þá sitja hefðbundnari kistulagningarmenn meginlands Evrópu. Og þegar evran eftir úrsögn Grikklands styrkist enn frekar úr samhengi við þarfir þyrstra, já, þá mun um leið hengingarólin herðast um hálsa þeirra sem þyrstastir eru eftir í grafhvelfingum lýðræðisins á meginlandi Evrópu. Sá þorsti mun síðan framkalla frekara skófall af þessari margfætlu Evrópusambands meginlandsins (drop off). Og svo koll af kolli. Og alltaf styrkist evran við hvern lim sem markaðurinn sker af henni. 

Þegar hið bráðnauðsynlega eyðileggjandi afl anglo-sax kapítalismans hefur gengið alveg frá evrumargfætlunni dauðri, þá mun eftir sitja hið fyrrverandi náttúrulega de.facto myntbandalag nokkurra skyldra ríkja, sem skapaðist á meginlandi Evrópu undir vernd bandaríska hersins. Svo þarf að leysa Evrópusambandið alveg upp — banna það — og fara aftur á þann punkt í sögunni sem hét 1954, þar sem ófriðarhættu var varanlega útrýmt í Evrópu fyrir fullt og allt með aðstoð Bandaríkjanna. 

En þetta allt mun því miður ekki fara svona. Að minnsta kosti ekki fyrr en Evrópa flýtur tortímd í eigin vessum á ný. En áður en það gerist verður meginlandið orðið að hinu Nýja Sovétríki Evrópu. Og þá munu ár og dagar líða . . 
 
Hinum leynilegu gjaldeyrishöftum þýska seðlabankans muna sumir eftir frá árinu 1992 þegar seðlabankinn missti stjórn á peningapólitík marksins. Þau komu í veg fyrir að týrólaðir hattar þyrftu að birtast í fölnuðum höndum Þjóðverja við að biðja um nýtt "realignment" vegna ofsafengins innflæðis úr franska frankanum á skrifstofum sjálfra síns í heimsveldi Brussels - þarna þegar pundið varð frjálst á ný. Miklu miklu verra en þetta 1992-smotterí bíður nú. En öngvar lækningar vandamálsins munu rúmast innan ramma lýðræðislegs stjórnarfars. Þannig eru ófreskjur að eðlisfari.
 
Hmpf! 
 
Fyrri færsla
 

Stofnun Ríkisútvarpsins

Hvaða stofnanalega metnað -e.institutional ambition- hefur Ríkisútvarpið DDRÚV. Ég spyr. Öll starfsemi lifandi manna hefur einhvern ákveðinn metnað byggðan inn í sjálfa sig.

Jú. Þegar Sovétríkin voru og hétu þá var hinn stofnanalegi metnaður Ríkisútvarpsins að varpa fallegu ljósi daðrandi stofnanalegra einfeldninga þess ofan í lifandi líkhús hins mannlega fáránleika elítuvæddra Sovétríkja; á kostnað íslensku þjóðarinnar.

En eftir að sjálft Sovétríki sannleiksstofnana evrópuelítunnar sveik sjálft haldandi tilgangsúrverk Ríkisútvarpsins, þá hefur hinn stofnanalegi metnaður þess verið sá, að varpa fallegu ljósi daðrandi einfeldninga stofnunarinnar ofan á Evrópusambandið. Að frammstilla ESB sem nýrri himnaríkisstofnun Evrópu sem stofnanalega er tilbeðin þar á degi hverjum.

Hinn stofnanalegi metnaður Ríkisútvarpsins í æðsta veldi er nú bara einn; að þrýsta hinu rotnandi rotna Evrópusambandi inn í saklaus hjörtu Íslendinga.

Þetta apparat var ekki stofnað til þessa fyrirmáls. Það var upphaflega stofnað Íslandi til hagsbóta. Ekki til skaðræðis. En tilgangur er ekki það sama og metnaður.

Er þessi stofnun orðin óforbetranleg? Að minnsta kosti metnaður hennar er. Hann er rotinn.

Fyrri færsla

Bankia S.O.S 


Bankia S.O.S

Þriðji stærsti banki Spánar, Bankia, hefur skyndilega beið um að uppstilling sólstóla bankans á sólþilfari ESB-Titanic verði breytt, þannig að sólin skíni betur niður á botn bankakerfis þessa evruríkis. Þá finnst sólstóll herra Franco fyrr og áður en geislar evrunnar ná að skína úr sér allri birtunni ofan í fólkið í landinu.

Ríkisstjórn Spánar neitaði því harðlega fyrir aðeins nokkrum dögum síðan að bankakerfi Spánar þyrfti á nokkurri frekari rosalegri björgun frá ríkinu að halda. En nú verður peningum almennings á Spáni í 25 prósent depression atvinnuleysi hent inn í þennan banka sem stýrt var af herra Rodrigo Rato, fyrrverandi forstjóra Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins. Hann hefur nú sagt af sér og er farinn heim að grenja, eftir aðeins tveggja ára lífslengd bankans, sem búinn var til sem þjónandi steypuklessulok ofan á brunarústir nokkurra annarra banka og sparisjóða landsins. Þetta er byrjunin á Spáni, 99 af 100 hlutum evrusprengjunnar sitja þar tifandi eftir.

Hvað skyldi hin nýja þýsk/franska sovétsósa jómfrúar Angelu Merkel frá fyrrverandi Deutsche Demokratische Republik (DDR) segja við þessu? Fyrrverandi fyrrverandi fyrrverandi er ekkert grín.
 
Fyrri færsla
 
 
Krækja
 

"Kosningar" í Sovétríkjum Evrópu í dag: ESB

Hin Nýju Sovétríki Evrópusambandsins voru efld að upplagi með "þingkosningum" í Grikklandi og Frakklandi í dag. Þessar valdalausu kosningar valdalauss fólks í hinum Nýju Sovétríkjum Evrópu sanna það sem hugsandi menn hafa lengi vitað; að nasismi, kommúnismi og fasismi geta aldrei þrifist og komist til valda í lýðræðislega sterkum þjóðríkjum. Það þarf alltaf skipbrot lýðræðisins og elítuvæðingu samfélagsins til, svo að þessi öfl geti komist til valda. Þau þrífast ekki í þjóðríkjum. Þau þrífast alltaf best í upplausn og stjórnleysi samansettra heimsvelda og keisaradæma. Nazi-Þýskaland var ekki þjóðríki, heldur var það var aðeins hin fyrsta útgáfa Evrópusambandsins sem ætlaði að verða heimsveldi og þar í gegn að krefjast síns "réttmæta sess" í heiminum. Góðar, sannar og frjálsar stofnanir geta aldrei andað, þrifist og lifað af í ríkjasamsteypum sem minna á heimsveldi látinna keisaradæma. En þannig er ESB.  

Hvað skyldi gríska stjórnarskráin segja við hina hina fimmföldu stjórnarskrá franska lýðveldisins í dag? Þær hljóta að tala saman í gegnum hina góðu sameiginlegu mynt sína og milljón síðna regluverk brjálsemisbandalags þeirra. Og nú á að stækka franska ríkisskammtinn enn meira. Gefa franska líkinu inn enn meiri ríkiskommúnisma á meðan Grikkland springur út sem hin fullkomna púðurtunnuafleiðing myntbrjálsemisverks Evrópusambandsins. Nasistískir kommúnistar Grikklands fengu samanlagt hátt í 20 prósent atkvæða. Í Frakklandi fékk fullkomin þjóðnýting alls 53 prósent atkvæða.

Tálsýnin sem blasað hefur við mönnum sem bláguli Evrópusambands-fjaðurfuglinn sem reis úr rústum hinnar fyrri sem og seinni heimsstyrjaldar meginlands Evrópu, var fölsk. Þetta var og er ennþá sami fuglinn og síðast, en nú dulbúinn sem nýtt Evrópusamband. Úr úr þessu 50 ára brjálsemisverki Evrópusambandselítunnar finnast ekki lengur neinar samfélags- og efnahagslegar lausnir sem rúmast innan ramma lýðræðislegs stjórnarfars. 200 ára fornöld er skollin á í ESB.

Til hamingju Evrópa. Einn eina skóflustunguna ofan í gröf þína tókstu í dag. Nú er bara eftir að sameinast Putin og troða Kínverjum upp í kjaftinn á fólkinu

Fyrri færsla
 
 

37 lítra V12 Rolls Royce Griffon enn í Spitfire í loftinu yfir dauðri Evrópu

Í Spitfire sat stundum 37 lítra V12 Rolls Royce Griffon aflvél sem gat gefið einum manni 2400 hestöfl. Flugvélin gat með fiffi náð 974 kílómetra hraða á klukkustund, sem er nokkuð nálægt hraða hljóðsins. Margir drengjanna voru aðeins 17 ára gamlir þegar þeir fóru að æfa sig á vélunum í 7 klukkustundir áður en þeir fóru á þeim í bardaga. Nú geta þeir ekki einu sinni fengið leyfi til að vinna byggingavinnu fyrr en þeir eru orðnir 18 ára, að minnsta kosti víða í Evrópu, sem er sökkvandi. Þetta er ekki hlutfallslegur stöðugleiki, sagði hrossagaukurinn mér.

Hér ræða nokkrir menn um eitt stórt atriði. Vilt þú yfir höfuð fjárfesta annarra manna eða jafnvel þínum eigin peningum í Evrópusambandinu? Er aðeins eitt ár í það að gjaldeyrishöft verða innleidd á evrusvæðinu - og eignir fólks sem fyrirtækja gerðar upptækar? Eru þetta síðustu ár markaðskapítalisma í Evrópusambandinu? Stjórnmálamenn Evrópusambandsins hafa fallið gjaldþrota ofan á kjósendur sína og geta ekki lengur borgað það sem stóð á gúmmítékka þeirra allar götur hin síðustu 50 ár. Allt þetta og meira til var til umræðu í Milken stofnuninni í Bandaríkjunum fyrir nokkrum dögum. Hinir evrópsku gestir eru með báðar fætur á jörðinni og segja samhljóma að stjórnmál í Evrópusambandinu verði brátt þjóðnýtt á ný, því þau eru einfaldlega gjaldþrota.

Á meðan flýgur Bretland heim í sínum vélum, samhliða Bandaríkjamönnum, sem þegar árið 1930 skildu að vonlaust var að reyna að prenta gull. Þeir urðu hvorugir peningapólitískir monetzary fetishistar.

Evrópa er búin að vera. Þar er bannað að segja að keisarinn sé allsber. Og bráðum verður þar aftur bannað að tala. Þetta er fróðlegt

Skyldi myndbandið ekki spilast, þá er hér bein krækja á það: Is It Time to Invest in Europe?

Krækja

Hendry on Europe: ‘The reality is you just can’t make up how bad it is’ 

Tengt efni

Chinese palaces, in central Ireland (sjá umsókn um geðrannsókn til skipulagsnefndar hér

Fyrri færsla

Kaupmáttarjöfnuður Range Rovers


Kaupmáttarjöfnuður Range Rovers

Nordisk statistisk årsbok 2011 - Genomsnittlig ekvivalerad disponibel inkomst per hushåll
 
Óþarft er að nota öll þrjú hugtökin þegar rætt er um Evrópusambandið. Fasistar, nasistar og kommúnistar eru eðli samkvæmt aðeins tveir hópar; ekki þrír. Nasistar og kommúnistar eru sósíalistar þar sem fyrr nefnda tilbrigðið í þriðju rúgbrauðssymfóníu Evrópu þjóðnýtti fólkið sjálft, en það síðar nefnda þjóðnýtti atvinnutækin, og setti allar auðlindir í þjóðareign, svo hún —já hún þjóðin— gæti dáið bláfátæk í þeim upp í háls. Fasistar eru að verða sjaldséður fugl því sósíalistar létu skjóta þann aðal sem færði fasistum völd. En þeir eru samt í Evrópusambandinu.

En sé kaupmáttarjöfnuður ráðstöfunartekna fimm Norðurlanda skoðaður eftir hrun - og eftir að búið er að núlla út áhrif fimm mismunandi gengisskráninga fimm gjaldmiðla - og umreikna kaupmáttinn yfir í mynt fasista, nasista og kommúnista Evrópusambandsins, sem nú heitir evra, já þá lítur myndin svona út eins og hér fyrir ofan, vel að merkja eftir bankahrunið á Íslandi. Kaupmátturinn sem sagt þarna kominn yfir í mynt fasista, nasista og kommúnista. Takið eftir hversu Norðmenn eru "varkárir" með greiðslur til gamla fólksins þrátt fyrir ríkidæmi hins opinbera.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á Íslandi nær ekki lengur alveg upp á Range Rover húddið handa öllum. Fallið er því töluvert. Og þessar fimmtíu og tvær árlegu fyrsta í maí utanlands martraðarferðir í Hennes Gucci, liggja ekki lengur alveg á laflausu. Því miður. Og bílar eru ekki pressaðir fyrir en á þriðja, fjórða og jafnvel á fimmta ári. Varalitað gangverð plastmála forsætisráðherraínunnar hækkar þó að utan, þrátt fyrir að vera tómt að innihaldi. 
 
HLUTFALL ALDRAÐRA Í EVRÓPULÖNDUM Morgunblaðið 31 mars 2012
Það sem fær verkalýðsforingja til að froðufella yfir myndinni hér að ofan er sú staðreynd að hún sýnir kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna í evrum. Takið hér vel eftir: Heimilanna. Bölið mikla fyrir verkalýsðforingjana er það að svo margir hafa hér haft fulla atvinnu á hverju heimili - og svo margir Íslendingar eru hafa verið þátttakendur á vinnumarkaði. Haft laun. Einmitt vegna þess að þeir hafa getað fengið atvinnu. Það gátu þeir vegna þess að hér var svo lengi forsætisráðherra við völd sem heitir Davíð Oddsson. Kjarabót Davíðs fólst í atvinnu handa öllum. Svoleiðs er illa séð í norrænum velferðarríkjum þar sem kassinn er dópsala stjórnmálamanna í kosningum. Og svo er þjóðin okkar svo ung því hér þorir fólkið að eignast börn því á Íslandi er fólkið ekki ESB-atvinnulaust lífið út. Hér er miklu yngri þjóð en þær sem búa á heimsins stærsta elliheimili er nefnist Evrópusambandið; sem orðið er örorkudeild hagkerfa heimsins vegna 30 ára samfellds massífs fjöldaatvinnuleysis, vegna einmitt sjálfrar tilvistar ESB.
 
Atvinnuþátttaka undir forsæti Davíðs Oddssonar varð sú mesta meðal beggja kynja í löndum OECD. Velmegun og kaupmáttaraukning varð einnig sú mesta í öllum löndum OECD. Davíð byggði það hagvegakerfi Íslands sem verkalýðforingjar landsins þola ekki, en þjóðin elskar. Hátt atvinnuhlutfall (allir ekki á kassanum) og lægsta atvinnuleysi í Evrópu árum og árum saman og lægri skattar. Endalausar framfarir og mikil þjóðhagsleg uppbygging varð. Fólk komst á bragðið og vandist góðu. Fallið var því töluvert hátt niður næsta þrep. 
 
Allar þjóðir þurfa —að því er virðist— að brotlenda að minnsta kosti einu sinni í lífi sínu á hinum alþjóðlega flugvelli fjármála; til að geta öðlast dýrmæta reynslu. Hefði bankakerfið ekki verið einkavætt undir stjórnartíð Davíðs Oddssonar þá hefðu það verið sjálfir ríkisbankarnir sem fóru á hausinn þarna haustið 2008 í stað einkabanka. Og umsvif þess og fjárglæfrar hefðu verið síst minni. 
 
Það var einmitt það sem gerðist og er enn að gerast í Landesbanka kerfi Þýskalands. Opinberir stjórnmálamenn fóru með fylkisbankakerfi Þýskalands í þrot því það var samkvæmt ESB-tilskipunum þvingað út á hinn alþjóðlega fjármálamarkað. Stjórnmálamönnum sem sátu í fylkisbönkum Þýskalands var bannað að einbeita sér að því sem var sérþekking þeirra; að lána út peninga til fyrirtækja í fylkjum sínum, sem þeir þekktu svo vel. Þekktu út og inn. Þeir voru þvingaðir út á alþjóðlegu fjármálamarkaðina vegna regluverks ESB og EES.
 
Hefði Davíðs ekki notið við þá hefði fjármálamiðstöðin Ísland orðið að falla gjaldþrota ríkisrekin í fang þjóðarinnar. Miðstöðinni heði þrotið gjaldið. Við værum því þjóðargjaldþrota nú. Það var svo sannarlega þarft þjóðþrifaverk sem Davíð vann. Að koma bankakerfinu af herðum þjóðarinnar og úr höndum stjórnmálamanna. Og það afrekaði hann í TVÍGANG!
 
Price level index for household final consumption expenditure (HFCE), 2010, EU27=100
 
Myndina allra efst hér að ofan geta Íslendingar notað sem tékkaávísun á þá staði í lokuðum ESB-heimi þar sem vöruverð er hvað lægst. Gott er að vera ekki læstur inni í Evrópusambandi fasista, nasista og kommúnista, því skyldu vörurnar nú fást á bestu kjörunum fyrir utan ESB, þá notum við frelsi fullveldis okkar til að kaupa þar inn. Slæm reynsla okkar af erlendum þráhyggju fyrirkomulögum einokunarkaupmennsku ætti að vera orðin okkur í blóð borin.
 
Significant differences in consumer prices across Europe fyrir árið 2010
Síðan notum við næst efstu myndina hér að ofan —sem einnig er gjaldmiðla og gengisleiðrétt— og þessa hér til hliðar, sem kompás til að finna út úr því hvar við eigum ekki að kaupa inn fyrir það sem stendur á ávísuninni í efstu myndinni. Myndin hér að ofan sýnir okkur hvar við fáum mest og minnst fyrir peninginn. Við hljótum fyrst og fremst að versla við okkur sjálf og fara síðan neðar í bláu röðina þarna á myndinni, eftir því sem hér heima ekki fæst. En best er þó að komast út fyrir þessa mynd þegar þess þarf. Út í hinn stóra frjálsa heim fyrir utan lokað tollabandalag ESB, sem er eins og lokaður múr gagnvart umheiminum.

Fjöldi nauðungaruppboða á mánuði í Danmörku - DST mars 2012
Svo eru það nauðungaruppboðin í Danmörku sem eina ferðina enn voru komin upp í 502 uppboð á mánuði, þegar danska hagstofan gaf út síðasta yfirlit sitt yfir helvítis fasteignamarkaðinn í landinu. Hann er búinn að hrynja þrisvar sinnum á síðustu 30 árum. 

Um 40 prósent húsnæðiseigenda undir 35 ára aldri í Danmörku skulda meiri peninga í fasteign sinni en hægt er að selja hana á. Alls er hver fimmti fasteignaeigandi í Danmörku eignalaus (staða 22/04/2010). Mörg ár munu líða þar til hægt er að komast út úr þessum festum. Fari allt á versta veg mun skuldari verða eltur uppi með rest-skuldina þar til yfir lýkur. Þess ber auðvitað að geta að Danmörk er í Evrópusambandinu og er norrænt velferðarsamfélag, stundum. Þar fást líka vínarbrauð. Allir Danir vita að ekkert verður gert þeim til aðstoðar, því Danmörk er jú í Evrópusambandinu - og getur því ekkert gert.

Í samfleytt 5 ár voru nauðungaruppboð í Danmörku yfir 1400 talsins í hverjum mánuði. Þetta var á árunum 1988 til 1992. Þið hafið eflaust ekki heyrt neitt um þetta, sem betur fer. Þarna lækkaði húsnæðisverð um 40 prósent. Í samfleytt 6 ár voru nauðungaruppboð yfir 1000 talsins í hverjum mánuði í þessu norræna velferðarríki. Það voru árin 1988 til 1994.

Eiginlega má segja að margir Íslendingar séu nú að upplifa í fyrsta skiptið hvernig það er að vera aðeins lúxusdýr í hæsta skala Evrópusambands fasista, nasista og kommúnista. Verkalýðsforystan hefur það helsta verk á höndum að viðhalda sjálfri sér. Fyrst og fremst. Það er hennar fyrsta boðorð. Að redda sjálfri sér frá afleiðingum fullrar atvinnu með því að transformera V8-aflvél samfélagsins yfir í vanmátta skattpínda strengjabrúðu Evrópusambandsins undir stjórn hinnar hreinu vinstrikomma ríkisstjórnar Íslands með aðstoð ríkisstjórnarútvarps DDRÚV.
 
Svo er það komman sem vantar á milli 5 og 5 og allt hitt þruglið sem agndofa ég get varla haft eftir úr þessu: Fasistar, nasistar og kommúnistar
 
Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband