Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 14. mars 2014
Evrópusambandið verður Úkraína
Mynd; þjóðernisbrota- menningar- og tungumálakort af pólitískri púðurtunnu Úkraínu
Úkraínuvæðing og Balkanisering Evrópusambandsins
Að mörgu leyti má segja að Evrópusambandið sé Úkraína og að Úkraína sé eins og smækkuð mynd af Evrópusambandinu undir framköllun þess er stanslaust skerpist sem yfirríkisleg umboðslaus ófreskja á framköllunarpappír Brusselveldisins. Sem fjöl-hegningar-samfélag* með hroðalegum mannlegum framtíðarhorfum
Þannig er útópíusamband ESB að verða. Það er orðið yfirríkisleg samsteypa elítuvelda þar sem heilar sex fimm-ára áætlanir í stíl Sovétríkjanna sálugu hafa nú þegar spilað sig algerlega fallít í formi hinna þriggja tíu-ára áætlana Evrópusambandsins umhverfis "Lissabon markmiðin" frægu. Þau eru hin marklausu mið sem meðal annarra ESB-fíklar á borð við fyrrum forsætis- utanríkis- allsherjar- og menntamálaráðherra Íslands staupuðu sig svo lengi á. Sem sú lygi er um tíma hélt pappírsfljótum sambandsins rennandi til áfangastaðar lyganna í Brusselskógum ESB. Þeir sem sögðu "þetta er þvaður", voru hins vegar sendir í intellektuelt gúlag í aðildarlöndunum
Allar þessar þrjár 10-ára Lissabon-áætlanir ESB eru fyrir löngu orðnar elítuvátryggt ESB-misfóstur gegn framförum og hagsæld. Þær urðu að herjandi fíaskói á fólkið í Evrópusambandinu, eins og við mátti búast
* Fjöl-hegningar-samfélag er hægt að skilgreina sem samsull "esb-samhæfinga" og svo kallaðra "esb-umbóta" (coordination & structural reforms). ESB-samhæfing og ESB-samþvættið fer ávallt og einungis fram í nafni elítu- og klíkuvelda, ekki ósvipað peningaþvætti. Algerlega framhjá fólkinu
ESB-samhæfing felst í því í að lofa yfirríkislega að gera landi sínu og þjóð í heild eitthvað slæmt í þágu elítu landsins, gegn því að annað ESB-land lofi yfirríkislega að gera sínu landi og fólki eitthvað sem í heild er jafn slæmt fyrir það land og þá þjóð, en eins og í fyrrnefnda landinu, einungis í þágu elítu hins síðarnefnda lands
Allir tapa nema ESB-elítan og ESB-hagsmunaklíkan. Svona er Evrópusambandið byggt upp um leið og AngloSaxon PaxAmerican-Evrópa er rifin niður og sjálfstæði og fullveldi aðildarríkjanna dælt úr þeim yfir í hið nýja allsherjandi sovét ESB
Fyrri færsla
Austurvöllur orðinn Wall Street sósíalista og stjórnleysingja?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 3. mars 2014
Austurvöllur orðinn Wall Street sósíalista og stjórnleysingja?
Flestir misskilja hlutverk Wall Street. Eina hlutverk Wall Street er að bjóða fram þjónustu sína; þ.e.a.s kaup- og söluþjónustu, afgreiðsluþjónustu
En sumir veraldlegir eru svo illa að sér að þeir halda að Wall Steet hafi á sínum höndum einhvers konar ráðgjafahlutverk um hvenær hvað sé keypt og hvað sé selt. Þeir sem halda að svo sé eru sannir afglapar. Enginn er eins ömurlega illa fær til ráðgjafar um kaup og sölur eins og Wall Street er
Kæri þjóðkjörni stjórnmálamaður: hlustar þú á ráðgjöf Wall Street? Ert þú seldur? Ert þú keyptur? Mikið meira get ég varla mælt í bili vegna ógurlegrar reiði, því svo hörmulega er mér misboðið
Ríki og alveg sérstaklega smá ríki þola ekki að opinber skömm brjótist til valda undir áföllum og taki sér stöðu við hásæti æðstu lýðræðisstofnunar landsins, til þess eins að fremja þar þá opinberu skömm sem umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið er. Hún er ekkert annað en opinber skömm. Þetta þolir Ísland ekki sem lýðræðisríki. Þetta verður að afmá. AF-MÁ!
Þeir sem fara fram á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort stolinni bifreið Lýðveldisins sé áfram nauðugri ekið til Brussel af próflausum þjófum, hafa engan skilning á því að þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt
Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin
Umsóknina verður umsvifalaust að afturkalla og draga alveg til baka. Óhæfuna og svikin gagnvart þjóðinni verður algerlega að afmáð og þau verða að hætta. Umsóknina á því umsvifalaust að draga til baka, fella niður og afmá
Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann
ESB-umsóknin: Þá opinberu skömm verður að afmá af Lýðveldinu
Fyrri færsla
Þýskaland sparar sig og evruþrælabúðir sínar í hel
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sunnudagur, 2. mars 2014
Þýskaland sparar sig og evruþrælabúðir sínar í hel
Reallohnindex = laun mínus verðbólga (Verbraucherpreisindex)
Statistisches Bundesamt, Veröffentlichung Reallohn, 3. Q 2013
Mynd: þróun raunlauna, kaupmáttar, í Þýskalandi síðustu 19 ár. Raunlauna-vísitalan hefst árið 1992 á vísitölunni 103,4 og endar árið 2013 á enn lægri vísitölu. Kaupmáttur féll í fyrra.
Launþegar í Þýskalandi hafa ekki fengið kauphækkun í nítján ár. Raunlaun í Þýskalandi hafa ekki hækkað í nítján ár. Kaupmáttur í Þýskalandi hefur ekki hækkað í nítján ár. Engin velmegunaraukning hefur átt sér stað hjá launþegum í Þýskalandi í nítján ár. Þetta er vél Evrópusambandsins.
Þessi innvortis gengisfelling Þýskalans í meira en nítján ár fyrst undir ERM-II ömurleika fyrirkomulaginu sem sprakk í loft upp árið 1992 og svo síðar undir innvortis evrustyrjöld ESB er það sem er að drepa Evrópu og hefur verið að drepa Evrópu áratugum saman
Ekkert bendir til að þessi þróun sem er innbyrðis kapphlaup evrulanda niður á botninn hætti, þar sem engar líkur eru á að raunlaun kaupmáttur hækki í Þýskalandi eftir þessar samfelldu innvortis gengisfellingar landsins í meira en nítján ár. Innvortis gengisfelling gagnvart þeim löndum sem eru í læstu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland; kínverja Evrópu
Þessi þróun hentar elítuhagkerfi Þýskalands ákaflega vel. Leiguliðarnir, þýska þjóðin, er áfram handjárnuð á klafa og mun aldrei uppskera neitt nema eitt; elítustýrðar hörmungar þýskrar export- banka- og ESB-mafíu
Það eina sem svona land skilur á samkeppnismörkuðum, er gengisfelling beint í andlitið á því
Það er sko munur að láta svona vel að stjórn. Er það ekki ASÍ? Þetta eru blautir draumar útópíuforystu ASÍ, Viðskiptaráðs og Samtaka Atvinnulífsins: elítuvæddar ERM II og evruþrælabúðir
Fyrri færsla
Evrópusambandið lokar álfunni niður - til frambúðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 1. mars 2014
Evrópusambandið lokar álfunni niður - til frambúðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 24. febrúar 2014
ESB-umsóknin: Þá opinberu skömm verður að afmá af Lýðveldinu
Ríki og alveg sérstaklega smá ríki þola ekki að opinber skömm (ignominy) brjótist til valda undir áföllum og taki sér stöðu við hásæti æðstu lýðræðisstofnunar landsins til þess eins að fremja þar þá opinberu skömm sem umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið er. Hún er ekkert annað en opinber skömm. Þetta þolir Ísland ekki sem lýðræðisríki. Þetta verður að afmá. AF-MÁ!
Vegna þessara skammargjörða og svika stendur Lýðveldi Íslendinga fast með höfuð sitt inni í póstkassa Evrópusambandsins. Þessari stöðu bernsks lýðveldis okkar var komið á með því að misnota æðstu stofnun Íslendinga. Þetta er óþolandi
Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt. Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin
Umsóknina verður umsvifalaust að afturkalla og draga alveg til baka. Óhæfuna og svikin gagnvart þjóðinni verður algerlega að afmáð og þau verða að hætta. Umsóknina á því umsvifalaust að draga til baka, fella niður og afmá
Þeirri íhlutunarstofu sendisveinaveldis Evrópusambandsins á Íslandi sem hér blandar sér í bæði stjórnmálaumræðu sem og líf íslensku þjóðarinnar og sem heldur uppi starfsemi hér á landi, verður einnig að loka tafarlaust. Evrópusambandinu og skósveinum þess verði gert að loka áróðursskrifstofu sambandsins á Íslandi
Og önnur umsókn inn í Evrópusambandið má aldrei aftur ég endurtek; má aldrei aftur koma á dagskrá hins háa Alþingis Íslendinga fyrr en að einlægur 75 prósenta meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi í samfellt 10 ár sýnt að hún af fullri einlægni og heiðarleika vilji sækja um að Lýðveldið Ísland verði innlimað í Evrópusambandið og þar með í skrefum sambandsins lagt niður. Þetta mál er þess eðlis
Sterk rök og hjartahreinar tilfinningar íslenskrar þjóðar ættu hins vegar að krefjast allt að 800 ára umhugsunartíma, eins og síðast. Í faðmi þeirra sterku raka og hreinu tilfinninga fæddist til dæmis stofnun Sjálfstæðisflokksins sem stjórnmálaafls. Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann
Afmá verður opinbera skömm svikahrappa af Lýðveldinu
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 22. febrúar 2014
Íþyngdarlögmál ESB
Össur Skarphéðinsson kemst ekki neitt, eins og allir sjá á meðfylgjandi frétt. Samfylking hans og Vinstri grænna var kosinn út á öskuhauga sem stjórnmálaleg afskræming og lýðræðislegt misfóstur. Þessi samfylking tveggja ömurlegra flokka trúði ekki á Ísland frekar en aðrir krónískir ESBistar gera. Hún trúði ekki á lýðveldi okkar Íslendinga í eigin landi. Svona er að verða getulausu Evrópusambandi við sjálfan sig að bráð. ESB-elítum sem á miðilsfundum sambandsista talar um Evrópuvexti sem eru ekki til
Og eins og allir sjá og vita þá fer Evrópusambandið heldur ekki neitt. Það kemst aldrei neitt, nema eitt; heim til föðurhúsa þess á meginlandi Evrópu; heim til vaxandi eymdar, örbyrgðar, fátæktar, massífs atvinnuleysis og ESB-einræðis. Básúna þokulúðrasveitir sambandsins út Lissabonþvaður þess, sem orðið er að heilum þremur tíu-ára-áætlunum sambandsins í sovétstíl, brennandi á öskuhaugum Evrópu, öllum til ógagns nema elítum ESB
Nú er hinn efnahags- og lífsgæðalegi mismunur á evrusvæði Evrópusambandsins og Bandaríkjum Norður-Ameríku orðinn svo hörmulega framskriðinn og krónískt mikill, að leita verður 50 ár aftur í tímann til að finna eins hlutfallslega mikinn mismun á lífsgæðum almennings í evruríkjum Evrópusambandsins og hins vegar lífsgæðum almennings í þjóðríki Bandaríkja Norður-Ameríku í dag. Og horfunar í ESB versna ár eftir ár og áratug eftir áratug
Ástandið er orðið virkilega aumt þegar svona lagað stendur í sjálfum slef-pappírum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel, sem þar með glymur æ meiri samruna út úr þokulúðrum sínum, sem laga á hinar sjálfsköpuðu brunarústir sambandsins. Alltaf á hinn æ-meiri samruni sambandsins að laga þær rústir sem tilvist hans skapar
Evrópusambandið fer nú að nálgast sjálfar stofn-brunarústir sínar og Róm. Svo hörmulega gengur þetta einkasamband elítunnar við sjálfa sig á meginlandi Evrópu
En það var einmitt þá fyrir 50 árum sem Bandaríkjamenn tóku sér frí frá plánetunni Jörð og fóru til tunglsins. Engin þjóð hefur fyrr né síðar farið í frí frá plánetunni Jörð. En það gátu Bandaríkjamenn þegar árið 1968
Þeir smíðuðu sér kraftmestu vél veraldarsögunnar er gaf þeim 165 milljón hestöfl til að lyfta þeim þrjú þúsund tonnum er lögðu af stað þráðbeint í loftið upp frá móður jörð, til ferðalags rakleiðis til tunglsins. Komu þeir svo aftur heim í þjóðríki sitt, stoltir af langri för
Þetta hefur engri annarri þjóð á plánetunni Jörð tekist. Og mun sennilega aldrei takast því Bandaríki Norður-Ameríku eru og munu verða öflugasta þjóðríki veraldar um aldur og ævi. Ekkert jafnast á við þjóðríkið
Evrópusambandið getur aldrei orðið þjóðríki - e. nation-state. Það getur bara orðið nýtt sovétríki
Enginn með fullu viti ætti að tala hið ömurlega íþyngdarlögmál Evrópusambandsins yfir fólk hér á landi. Enda gerir það enginn með fullu viti
Fyrri færsla
Ókjörin seðlabankastjórn ECB á bak við stjórnmálaþróun
![]() |
Dapurlegur dagur í sögu þjóðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 18. febrúar 2014
Ókjörin seðlabankastjórn ECB á bak við stjórnmálaþróun
Það eitt að á Ítalíu sé nú verið að mynda enn eina ríkisstjórnina undir hinum þriðja í röð ókjörna forsætisráðherra landsins, fær mann til að kasta upp yfir þeirri hörmulegu þróun stjórnmála sem tilvist Evrópusambandsins hefur valdið og nú fest í sessi víða á meginlandi Evrópu. Allt er þar gert til að varpa áhrifamætti og atkvæðum kjósenda endanlega fyrir björg svo að úr verði einræði
En öllu stækari verður ælan í munni manns er við blasir að á bak við nomenklattúru-þjóðnýtingu ítalskra stjórnmála stendur bankastjóri ECB-seðlabanka Evrópusambandsins í Frankensteinfurt. Þetta er sá hinn sami "óháði fagmaður" á skala Evrópusambandsins er hélt Harward-ræðu sína um "a more perfect Union" í október síðasta haust. Hugsið ykkur; þetta klám kemur úr munni ECB-seðlabankastjóra ESB
Ólögmætari pólitísk öfl og andslýðræðislegri undirróður mun brátt vart finnast í víðfeðmri stjórnmálasögu veraldar, nema þá einmitt í hinni löngu sögu pólitískra hörmunga á meginland taparanna í Evrópu; undir hinum þriðja himni þess; er myntbandalag nefnist.
Þar ríkja ósnertanleg pólitísk öfl er jafnast á við það versta sem sést hefur til einræðisins í heimsálfunni hin síðustu mörg mörg ár. Já seðlabankastjórar ECB-myntar sem diktera og predika stjórnmál í myntbandalagi ESB til einræðisins
Og áfram sekkur Finnland niður í þriðja kreppukaf sitt á finnsku leið landsins til ESB-örbyrgðar. Hafa ökuljós hagkerfis Finna undir evruforherðingu nú slokknað til frambúðar. Landið bakkar því inn í fortíðina
Í svartholi evrunnar í ESB ríkja myrkraverk
Fyrri færsla
RÚV, Evrópusambandið, Ísland og Ísrael
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. janúar 2014
RÚV, Evrópusambandið, Ísland og Ísrael
fyrsta, annað og þriðja ríkið
Af hverju er Ríkisútvarpinu sem kallar sig RÚV svona illa við Ísraelsríki? Jú vegna þess að RÚV er því sem næst orðið eins konar útvarps-turnaður stjórnmálaflokkur Evrópusambandsista. Þetta helst hönd í hönd. Að vera illa við þjóðríkið Ísrael og að dýrka Evrópusambandið. Helsti niðurrífandi fjandmaður Ísraelsríkis á veraldarvísu er Evrópusambandið og allt sem því sterklega er tengt
En Evrópusambandið sjálft er því miður einungis lagfærður framhaldsdraumur Adolfs Hitlers um þriðja ríkið. Vissuð þið það ekki. Hann, herr Hitler, sá um að Þýskaland bakkaði út úr leið þess yfir til þjóðríkis. Hann bakkaði Þýskalandi út úr þjóðríkinu til að geta endurreist gamla veldið; the Imperial Reich. Það var tilgangur þriðja ríkisins
Hann bakkaði því út úr leið þess yfir til þjóðríkis til þess að geta koma þriðja ríkinu á sem framhaldi. En framhald á hverju? Jú, eins og sumir muna var fyrsta ríkið meðal annars heimsveldi Karlamagnúsar og á endanum heimsveldi Habsborgara en snérist mestan hluta tíma þess um kjarna sinn; Þýskaland
Hvað var þá annað ríkið? Jú það var þýska keisaraveldið sem Otto von Bismarck keyrði upp í gegnum gólffjalirnar og fram hjá hinu þáverandi "samfélagi þjóðanna". Að mestu prússneskur bastarður frá upphafi til enda. Ólögmæt stofnun frá upphafi, að minnsta kosti gagnvart fólkinu - og mjög fljótlega gagnvart Bandaríkjunum
Þá höfum við hér bastarðana þrjá. Fyrsta, annað og þriðja ríkið. Evrópusambandið er framhaldið á þriðja ríki nasista og svo frá styrjaldarlokum útgönguleið kommúnista-sósíalista sem þola ekki sjálft koncept þjóðríkisins, sem mikilvægustu stofnun manngæskunnar
Þegar vel gekk á bankabóluárunum voru Íslendingar stundum uppnefndir Gyðingar norðursins. Þegar fullveldi þjóðríkis Íslendinga var nokkru síðar notað til að verjast með Neyðarlögum, þá var strax gripið til sömu tuggunnar: "þeir ætla ekki að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar". Eins og að þjóðríkið Ísland hafi verið sett upp sem fjármálastofnun. Hmm - þetta þjóðríki þarna í norðrinu sem tekur upp varnir fyrir hönd borgara Lýðveldisins, þarf strax að taka í sundur og innlima inn í Evrópusambandið. Inn í þriðja ríkið með það! Þannig var og er málunum enn háttað
Liggur undanfarið við að Samfylkingar-RÚVinu sé jafn illa við þjóðríkið Ísland eins og því er illa við þjóðríkið Ísrael, sem heldur uppi sterkum vörnum og berst ENNÞÁ! fyrir sjálfum tilverurétti sínum. Heldur uppi vörnum fyrir fólkið sitt, sem enginn hirti um að verja í þriðja ríki Evrópu. Þvert á móti var reynt að útrýma því þar. Það fólk er því ekki varnarlaust nú, þökk sé þjóðríkinu Ísrael
Það helgasta af öllu helgu í báðum löndunum er sjálfstæðið og fullveldið. Þetta tvennt a la ESB verður því að rífa niður í báðum ríkjum, sem eiga það einnig sameiginlegt að verða fullvalda og sjálfstæð þjóðríki á svipuðum tíma, með aðeins fjögurra ára millibili. En þau fjögur ár og nokkrum betur eru svartasti stökkpallsbletturinn í uppstigningu Evrópusambandsins
Án þessara svörtu stökkpallsára þriðja ríkisins yfir í ESB, væri ekki verið að reka líkkistur Evrópusambandsríkja saman í nýjan bálköst með evrunöglum nú
Ríkisútvarpið var ekki af þjóðríki Íslendinga stofnað til að éta börnin sín. Ei heldur voru útvarpsturnar háskólasamfélagsins fjárvæddir af þjóðríkinu til að framleiða og útbásúna þvaðri
Eitt af því sem einkennir þjóðfrelsisföst þjóðríki heimili manngæskunnar er styrkur þeirra til að standast sírenusöngmenn stjórnleysis og elítuvelda
Verið því viðbúin
Fyrri færsla
Hið opinbera á að forðast að láta fólkið skipta sér af lífi þess
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 13. janúar 2014
Hið opinbera á að forðast að láta fólkið skipta sér af lífi þess
Þannig voru stjórnmálin í gömlu Sovétríkjunum. Veldisvædd. Og þannig eru stjórnmálin að verða í hinu nýa sovétríki Evrópusambandsins. Fólkið á ekki að skipta sér þar af lífi hins opinberaða ESB, því sjálfri tilvist hins opinbera hefur þangað verið depónerað til sorpeyðingar í útrýmingarbúðum fullveldis aðildarríkjanna - og brennur fullveldi þeirra þar glatt á sáttmála-sorphaugum sambandsins
Borgararnir í aðildarríkjum eiga að snúa sér til Brussel og hætta að trufla stjórnmálamenn í aðildarríkjunum með kröfum um hitt og þetta. Kröfur borgarana gætu afhjúpað ESB-vætt samsæri hins opinbera hönd í hönd við hið óopinbera ESB gagnvart kjósendum; sem lengra og lengra er að verða á milli, því um ekkert er einfaldlega orðið mögulegt að kjósa. Sorphirða ESB hefur séð til þess undir hinu óopinbera samvinnusamsæri þess við hið opinbera í aðildarlöndum samsærisins. Evrópusambandið er verndari fullveldisbrunans og leiðir þjóðríkin til slátrunar
Heilar 500 þúsund blaðsíður af reglum, reglusettum, lögum og lagabálkum mynda undirstöðuna undir sorpeyðingarstöð fullveldisins í Brussel. Og umverfis þessar 500 þúsund blaðsíður hefur heill dómstóll verið byggður; Evrópudómstóllinn; European Court of Justice (ECJ). Lissabónaðir vinnupallar ERM123 skólpveitunnar hanga enn dinglandi utan á honum. En skila þarf þeim brátt til baka til gömlu Sovétríkjanna, þaðan sem þeir voru leigðir frá ásamt hugmyndafræðilegum lagastökkpalli dómstólsins yfir til einræðisins. Hinn vaktandi varðmaður fullveldisbrunans í öllum aðildarríkjunum stendur þar með ósnertanlegur og dæmir fullveldisbrunanum í hag. Dómstólinn er byggingarmeistari alræðisins
Genetísk beiðni Þjóðviljans um Áætlunarráð Ríkisins þriðjudaginn 25. nóvember 1969 hefur því skyndilega erfða og eðlilslægt stökkbreytt sér yfir í umsókn Lýðveldis Íslendinga inn í Evrópusambandið. Þjóðviljinn komst loksins til síns heima. Hvað meira skyldi standa þar í sömu opnu
He represented independence, in its deepest sense
- David Hazony minntist Ariel Sharon í gær
Hið Nýja Ísrael Englands sem birtist á læsilegu máli er Biblían var gefin út fyrir blóðrauð augu almennings á 16. öld, var fyrir marga boðberi hinnar langþráðu stofnunar þjóðríkisins undir nafni Nýja Ísraels. Það var langþráð stofnun sem í verkum John Lyly var vörn almúgans gegn keisaraveldum, elítuveldum og sovétríkjum
Allt er það Nýja Ísrael nú stanslaust á leið til sorpeyðingar í útrýmingarbúðum fullveldis þess í ESB. Aðeins eitt þjóðríki undir nafninu Ísrael er uppistandandi í dag. Og það ætlar ekki að láta leiða sig til slátrunar. Um það var meðal annars skrifað í gær. David Hazony; Ariel Sharon, 1928-2014
Ariel Sharon látinn. Helgaði Ísraelsríki líf sitt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 12. janúar 2014
Ariel Sharon látinn. Helgaði Ísraelsríki líf sitt
Allir vissu árið 1945 hvað heimilislaus þjóð þýddi. Um það barbaríska ástand ríkti þá alger og heilagur sannleikur. Algerlega heilagur sannleikur
Megi þjóðríkið Ísrael áfram verða það heimili sem Gyðinga svo sárlega vantaði. Þjóðríkið er heilög stofnun. Og þjóðríki Ísraels helgaði Ariel Sharon líf sitt
Þennan heilaga sannleik er nú úr tvennum áttum reynt að þurrka út úr vitund fólksins. Svo langt hefur það leikrit er Evrópusambandið samdi upp úr Kant nú spilast, að á tímabili kom til greina að afmá öll ummerki trúar Gyðinga í þjóðsöng þeirra. Svo nærri hefur á mörgum tímabilum í stuttu lífi Ísraelsríkis verið gengið að þjóðríkinu Ísrael. Samt er heimili Gyðinga þjóðríkið Ísrael rétt að slíta barnsskónum
Hvernig má vera að útblástursrör stjórnmálamanna meginlands Evrópu séu enn með slíkt gullfiskaminni. Því efst á dagskrá Evrópusambandsins er að leysa þjóðríkin upp
Og á meðan sú upplausn fer fram er stofnunin þjóðríkið (e. the concept of the Nation-State) rökkuð niður í svaðið og fólk heilaþvegið með Kantísku þvaður-útópíunni um Evrópusambandið úr Imagine-söng Lennons
Þetta hefur gengið svo langt að í Evrópusambandinu í dag þýða orðin "þjóð" og "þjóðríki" það sama og "kynþáttahatur". Slíkar eru þar framfarirnar (e. integration) og slík er þar samhæfingin (e. coordination)
Við megum aldrei gleyma þjóðríki Gyðinga, Ísrael; stofnað í maí mánuði árið 1948. Ég sendi Ísraelum hér með mínar einlægu samúðarkveðjur
Fyrri færsla
![]() |
Helgaði Ísraelsríki líf sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 9
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 111
- Frá upphafi: 1407506
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008