Leita í fréttum mbl.is

Þýskaland sparar sig og evruþrælabúðir sínar í hel

Reallohnindex = laun mínus verðbólga (Verbraucherpreisindex)

Þróun kaupmáttar launa í Þýskalandi

Statistisches Bundesamt, Veröffentlichung Reallohn, 3. Q 2013

Mynd: þróun raunlauna, kaupmáttar, í Þýskalandi síðustu 19 ár. Raunlauna-vísitalan hefst árið 1992 á vísitölunni 103,4 og endar árið 2013 á enn lægri vísitölu. Kaupmáttur féll í fyrra.

Launþegar í Þýskalandi hafa ekki fengið kauphækkun í nítján ár. Raunlaun í Þýskalandi hafa ekki hækkað í nítján ár. Kaupmáttur í Þýskalandi hefur ekki hækkað í nítján ár. Engin velmegunaraukning hefur átt sér stað hjá launþegum í Þýskalandi í nítján ár. Þetta er vél Evrópusambandsins. 

Þessi innvortis gengisfelling Þýskalans í meira en nítján ár —fyrst undir ERM-II ömurleika fyrirkomulaginu sem sprakk í loft upp árið 1992 og svo síðar undir innvortis evrustyrjöld ESB— er það sem er að drepa Evrópu og hefur verið að drepa Evrópu áratugum saman

Ekkert bendir til að þessi þróun —sem er innbyrðis kapphlaup evrulanda niður á botninn— hætti, þar sem engar líkur eru á að raunlaun —kaupmáttur— hækki í Þýskalandi eftir þessar samfelldu innvortis gengisfellingar landsins í meira en nítján ár. Innvortis gengisfelling gagnvart þeim löndum sem eru í læstu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland; kínverja Evrópu

Þessi þróun hentar elítuhagkerfi Þýskalands ákaflega vel. Leiguliðarnir, þýska þjóðin, er áfram handjárnuð á klafa og mun aldrei uppskera neitt nema eitt; elítustýrðar hörmungar þýskrar export- banka- og ESB-mafíu

Það eina sem svona land skilur á samkeppnismörkuðum, er gengisfelling beint í andlitið á því

Það er sko munur að láta svona vel að stjórn. Er það ekki ASÍ? Þetta eru blautir draumar útópíuforystu ASÍ, Viðskiptaráðs og Samtaka Atvinnulífsins: elítuvæddar ERM II og evruþrælabúðir

Fyrri færsla

Evrópusambandið lokar álfunni niður - til frambúðar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Anja sem skúrar gólf og gerir hreint fyrir tvær evrur á tímann (332 krónur) í Stralsund í Þýskalandi, sortnar fyrir augunum af bræði þegar hún les í dagblöðum um "þýska kraftaverkið í atvinnumálum", sem nú er notað sem tálbeitu-fyrirmynd handa öðrum evruríkjum á leið í þrot. "Ef ég gæti farið, þá væri ég fyrir löngu hætt og farin. Fyrirtækið hefur nauðgað mér í sex ár", segir Anja.
 
En Peter Huefken, sem er Þýskalands kollegi Gylfa Arinbjarnarsonar forseta ASÍ, segir að þetta sé langt frá því versta sem hann þurfi að eiga við í þýska evruríkinu. "Sumt fólk sem ég hef með að gera er með 55 cent á tímann (91 krónu)." Verkalýðsfélag Huefken er að reyna að stefna atvinnurekendum fyrir misnotkun á launþegum og hvetur önnur félög til að gera hið sama. Kauphækkun hefur ekki fengist í 19 ár. Og engin lágmakrslaun eru víðast hvar í landinu. Hægt en örugglega mjakar öldrunarhagkerfi Þýskalands Evrópu aftur á járnöld.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2014 kl. 22:22

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svona eru undur fjorfrelsisins. Þrælakisturnar í slavnesku löndunum sja þeim fyrir vinnuafli fyrir skit og ingenting af því að í heimalöndunum fá þeir bara ingenting. Þetta er frábær leið til að koma launum á samkeppnisstigið. Sá fær vinnu sem þiggur minst en ekki sá sem getur mest þannig færðu þa sem geta mest fyrr eða síðar fyrir það sama og þá sem geta ekkert.

Það verður annars spennandi að sjá upplitið á ASÍ þvottabirninum þegar twkið verður til við að troða okkur með skóhorni í gegnum Maastricht sáttmálann svo við verðum gjalgeng sem ræðarar á ESB galeiðunni. Hann horfir vafalaust með glampa í augum til þeirra Grikklandsára.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.3.2014 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband