Leita í fréttum mbl.is

Andrómeda er þarna -

M31 - Andrómeda - mynd NASA

- M31 - 

- og hún hefur áhrif. Það hafa peningastefnur líka. Sama á hvorn veginn þær eru samdar og metnar. Lars Svensson neitaði að beita trúarbrögðum mónutjöruista evrusvæðis og fór því konsekvent frá sænska seðlabankanum sem síðan klessti sænska hagkerfinu

Þetta sýnir okkur að það eitt að vera í Evrópusambandinu án evruupptöku, lokar smám saman á fullveldi ríkjanna í peninga- og peningastefnumálum (e. national monetary policy) með yfirríkislegum þrýstingi og duldum hótunum klíkuveldis þess í gegnum ERM og sáttmálalegt niðurbrot ríkjanna í óendanlegri aðlögun (acquis). Já, smáríkið Svíþjóð er undir yfirríki Evrópusambandsins og í ERM - en þjóð þess ekki. Hún er að verða heimilislaus

Og allir vissu árið 1945 hvað heimilislaus þjóð þýddi. Um það ástand ríkti þá alger og heilagur sannleikur. Í Evrópusambandinu í dag þýðir hins vegar orðið "þjóð" kynþáttahatur. Slíkar eru þar framfarirnar (e. integration) og slík er þar samhæfingin (e. coordination)

  1. Turning and turning in the widening gyre
  2. The falcon cannot hear the falconer;
  3. Things fall apart; the centre cannot hold;
  4. ?

En líklega á sjálfur aðdragandinn þeirrar fyrstu og þá haldandi síðustu, meira og betur við nú

Trúarathöfn Evrópusambandsins er nefnist Hans & Grétu þensluskapandi niðurskurðaraðgerðir (e. Emu's Expansionary Austerity Fairy Tail Ritual) fer svona fram; þú stingur hníf í hagkerfið og býst við að blæðandi hag þess vaxi kraftur. Þegar árangurinn kemur til þín í formi hrynjandi landsframleiðslu, minnkandi tiltrú markaðarins, versnandi lánskjörum og súgþurrkun skattatekna ríkisins, þá endurtekur þú athöfnina þar til kenning Einsteins um heimsku mannanna er að fullu sönnuð. Svona fara Hans & Grétu þensluskapandi niðurskurðaraðgerðir Evrópusambandsins fram

Og nú hefur Laffer sagt að verðbólga sé eftir allt saman óháð peningamagni peningakerfisins; e. "Inflation does not appear to be monetary base driven" sagði hann heiðarlega. Það skyldi þó aldrei vera þannig, er það nokkuð. Ávallt er hollt að muna að peningamagn peningakerfisins er ekki sama og peningamagn hagkerfisins - svona eins og undir gufuhvolfinu í Sahara og Dyflinni á sama tíma

Þar sem meginland Evrópu er nú orðið þýskt á ný þá bíðum við spennt eftir áhrifamætti og hinu sanna aðdráttarafli rúgbrauðs á súrkál á öllu hinu endurþýskaða meginlandi taparanna í ESB

Einu sinni áttu alltaf allir að vera rétt í þann mund að flytja til Finnlands. En útkoman varð samt alltaf minni en núll. Hví skyldi svo vera - og það þrátt fyrir allar þessar harmónikkuðu hljómkviður hins níunda rúgbrauðs symfóníu og súrkáls

Fyrri færsla

Gorkúlan RÚV (áður Ríkisútvarpið) fallin saman


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband