Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Miðvikudagur, 16. apríl 2014
ESB-aðild Spánar hefur rústað vegakerfi landsins
Nú segja vegamálamenn Spánar að vegakerfi landsins sé í sínu versta ásigkomulagi frá því að Spánn gekk í Evrópusambandið 1986. Þá var sambandið skammstafað EEC. Reyndar er ástand vegakerfisins nú það versta síðan AEC hóf skýrslugerðir um vegamál landsins árið 1985. Atvinnuleysi á Spáni eftir 28 ára aðild að Evrópusambandinu mælist nú 25,6 prósentustig
Það sem einkennir aðildarferli landa að Evrópusambandinu er að við inngönguhlið þess hefjast aðlögunar-limlestingar og sundurskrúfun þjóðríkisins á því að taka ríkisfjármálin kverkartaki þar til bláminn vegna köfnunar hefur drepið hið þjóðbernska afl þjóðríkisins; e. natal energy
Svo þegar því hefur verið kálað er landinu af afglapaveldi Evrópusambandsins ýtt inn í ERM-II pyntingarklefa evrusvæðis (óskabarn ASÍ) þannig að úr verði krypplingur sem gengur alfarið fyrir brusselsku handapati ríkisfjármála
Því með ERM-II er gírkassinn óafturkræft tekinn úr hagkerfinu þannig að einu hagstjórnartækin til umráða verða umlin sem koma frá köfnuðum stjórnmálamönnum upp í gegnum líkkistulok ríkissjóðs, undir oki Maastrichts, sem þegar á 20 ára afmæli sáttmálans er orðinn sú volga gróðurmold 1930-ástandsins sem nú rýkur úr á meginlandi Evrópu. Þar gengur allt samkvæmt áætlun til helvítis
Þeir sem aðhyllast ESB-aðild ákalla hagstjórn Sovétríkjanna; ríkisafskiptin og ekkert nema ríkisafskiptin; Vegakerfið til Sovétríkisins
Krækja; Spains roads currently in worst condition since 1985, says new study (El País)
Fyrri færsla
Hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 11. apríl 2014
Hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar
"Það getur ekki verið að þeim standi á sama"
Styrmir Gunnarsson á Evrópuvaktinni veltir fyrir sér þrá og afstöðu forystu verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu, sem, eins og hann orðar það, "er óskiljanleg"
Þessi afstaða hennar er mér ekki óskiljanleg. Það er hún ekki því að Evrópusambandið er allra tíma stærsta musteri massífs atvinnuleysis og hnignunar í Evrópu áratugum saman. Þangað laðast öfl eins og þessi, því ömurlegt ástand treystir tilverugrundvöll valda hennar. Helsta markmið svo nefndrar verkalýðsforystu í dag er að viðhalda sjálfri sér og völdum hennar. Henni stendur nú orðið á sama um flest annað en tilhrifsuð völd
Ekkert hefur verið eins slæmt fyrir atvinnuástandið og efnahagslegar framfarir í Evrópu og valdhrifsun Evrópusambandsins. Í dag hefur Evrópusambandinu meira að segja tekist að endurskapa 1930-aðstæður á meginlandi Evrópu. Hver hefði trúðað því er Margrét Thatcher lét af völdum; Að Þýskaland réði þegar yfir meginlandi Evrópu á ný árið 2013, er frú Thatcher lést
Svarið við spurningu Styrmis er því miður að miklu leyti þetta:
Ástæðan fyrir því að verkalýðsforystan á Íslandi berst fyrir innlimun Íslands í Evrópusambandið er sú hin sama og þegar verkalýðsforystan aðhylltist Sovétríkin, sem hún gerir jafnvel enn, því enn steytir hún þann kreppta hnefa framan í þjóðríki okkar (e. the Nation-State)
Verkalýðsforystan hefur frá upphafi aldrei þolað þjóðríkið sem verandi þá fremstu manngæskuberandi stofnun mankynssögunar sem það er. Og allra síst hefur hún þolað sterkar stofnanir þjóðríkisins á borð við lögreglu, ríkislögreglu og dómstóla. Áður fyrr og áratugum saman voru þessar stofnanir þjóðríkisins hótun við framvindu alþjóðlegrar byltingar sósíalista og kommúnista í anda glæpagengis kommúnista Sovétríkjanna og leppríkja þeirra
Í dag hefur verkalýðsforystan neyðst til að afskrifa möguleikann á því að komast fyrir eigin afli til valda innanfrá í þjóðríkinu með aðstoð byltingar sem kollvarpað gæti þjóðríkinu sem hinni fremstu manngæskuberandi stofnunar þjóða
En svo heppilega vill nú til að nýtt fyrirbæri í anda gömlu Sovétríkjanna er upprisið og sem verkalýðsforystan álitur að hún innan þess geti stigið til metorða og frekari valda. Og í leiðinni gæfist henni kostur á að útþynna eða jafnvel útrýma þjóðríkinu og stofnunum þess samkvæmt hinum gamla draum um alræði hennar í glæparíkinu á borð við Sovét. Þetta fyrirbæri nefnist Evrópusambandið í hinni gömlu og útjöskuðu Evrópu. Og sem laðar til sín andlýðræðisleg öfl eins og mý að mykjuskán
Svo einfalt er svarið það: hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar er þessi. Alveg á sama hátt og hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar í heimsstyrjöldinni síðari í Evrópu var sú, að styrjöldin myndi brjóta upp og undirbúa jarðveginn fyrir byltinguna sem hægt yrði að koma á er þjóðríkið lægi sem sundursprengd stærð og volg gróðurmold handa þessum öflum til að planta sér í. Þetta var martröð allra sannra andspyrnuhreyfinga í Evrópu; þ.e.a.s sósíalistar og kommúnistar innan hennar með þessa leyndu dagskrá. Þessi leynda dagskrá verkalýðsforystunnar er í ætt við falschfahrer er nú kallar sig "Já Ísland"
Verkalýðsforystuna ber ekki lengur að líta á sem sanna verkalýðsforystu, heldur fyrst og fremst sem óheillavænlega blöndu af ábyrgðarlausu ólögmætu pólitísku afli af elítutagi. Og sem jafnvel ennþá, árið 2014, getur reynst hættulegt sjálfri tilvist þjóðríkis Íslendinga. Þessi vellaunuðu elítuöfl skáka nú í skjóli ASÍ
Fyrri færsla
Finnland stefnir í skipbrot í evrum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 9. apríl 2014
Finnland stefnir í skipbrot í evrum
Mynd, Trading Economics; Atvinnuleysi í Finnlandi frá 1959 til 2014
Lars Christensen fjallar um evruríkið Finnland á heimasíðu sinni. Finnland hefur nú misst helsta fjöregg eins fyrirtækis í landinu er Nokia nefnist. Hvorki Evrópusambandsaðild né evruupptaka Finnlands getur enduruppfundið hið glataða fjöregg Nokia
Þetta áfall og óöryggi sem dunið hefur yfir launþega og heimili landsins hefur nú læst klóm sínum um háls finnska hagkerfisins (e. widespread idiosyncratic shock). Það er smám saman að farast. Og þessa köfnun er ekki hægt stöðva með aðstoð evrunnar og aðild landsins að ESB þvert á móti því að á síðasta uppgjörsári greiddi Finnland 1,7 miljarða evra nettó til Evrópusambandsins í Brussel. Aðildin að ESB og upptaka evru hefur ekki fært landinu neitt nema óafturkræf massíf óleysanleg vandamál
Samdráttur í landsframleiðslu Finnlands árið 2009 er hin alþjóðlega fjármálakreppa skall á varð svo hrikalegur vegna evruaðildar landsins að hann náði níu prósentustigum af landsframleiðslu, sem svarar til reksturs eins heilbrigðiskerfis. Þetta er mesti efnahagslegi samdráttur sem orðið hefur í Finnlandi síðan 1918
Fullveldi Finnlands í peningamálum hvarf algerlega og óafturkræft með evruupptöku ásamt stórum hluta fullveldis landsins yfir utanríkis- efnahags- og viðskiptastefnu er hvarf með ESB-aðild landsins 1994
Eins og að ESB-aðildin og upptaka evru og dauði Nokia væru ekki nóg af áföllum fyrir Finnland, þá lítur út fyrir að nýtt stórt áfall e. asymmetric shock sé að leiðinni yfir landið er nefnist; kreppa í Rússlandi
Lars Christensen segir að Finnland standi í þetta skiptið varnarlaust gegn nýrri kreppu í Rússlandi því í þetta skiptið á Finnland enga mynt sem það getur látið falla til að mæta áföllum og súgþurrkun eftirspurnar og skattatekna frá og í Finnlandi. Horfurnar fyrir Finnland eru því þær að landið mun þurfa að búa og sætta sig við miklu minni efnahagslegar framfarir, hagvöxt og velmegun en frjáls lönd geta búið við, um langa ókomna framtíð, er evran dag og nótt vinnur skemmdarverk sitt á Finnlandi til langframa
Atvinnuleysi í Finnlandi hefur nú lagt sig fast á ESB-hæðum, eða eurosclerosis, það er að segja á skelfilegum 7-10 prósentustigum í venjulegu ESB-árferði. Hvert skyldi þá ný rússneskt kreppa ofan í dauða Nokia fara með Finnland? Líklega til hins þriðja heims evrulanda
Á meðan, eða frá 1969, heldur álverið í Straumsvík viðstöðulaust nótt sem nýtan dag áfram að mala gull inn í hagkerfi Íslendinga. Þjóðhagslegt mikilvægi þess má bera saman við það nettó þjóðhagslega mikilvægi sem Nokia hafði um tíma fyrir efnahag Finnlands
Krækja; Currency union and asymmetrical supply shocks the case of Finland (Lars Christensen)
Fyrri færsla
Evran ER mynt Evrópusambandsins, það er sænska krónan ekki
Tengt
- Finnland á ekki afturkvæmt út úr ESB eða evru
- Finnskur ráðherra: mistök að Finnland skyldi taka upp evru
- Síðasta verksmiðja Nokia í Vestur-Evrópu
- Áhlaupið á íslensku krónuna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 7. apríl 2014
Evran ER mynt Evrópusambandsins, það er sænska krónan ekki
Vegna þess hversu Ísland er opið og alþjóðlega vel tengt, var það aðnjótandi heimsóknar François Heisbourg hina síðustu daga
Heisbourg er menntaður í Ecole Nationale dAdministration skólanum sem upphaflega var gæluverkefni Charles de Gaulle og sem Stalínistinn Maurice Thorez kom á laggirnar eftir að hann hafði dvalið í Moskvu Sovétríkjanna árin sem fósturjörð hans Frakkland var hernumin, eyðilögð og plundruð af Nasistum í of ákafri samvinnu við París
Sovétríkin áttu fyrsta flokks skóla sem hámenntuðu skriffinna í beinum sem óbeinum manndrápum út í morðótt nomenklattúruveldi Jósefs Stalíns um hin gjörvöllu Sovétríki hans. Og Frakklandi vantaði nauðsynlega skóla sem skrifað gætu út hámenntaða skriffinna er tekið gætu til hendinni og hannað bjúrókratíska innviði Frakklands og Evrópusambandsins. Er styrjöldinni lauk snéri Maurice Thorez heim með uppskriftina að Ecole Nationale dAdministration í ferðatöskunni. Birtist hann einnig sem andlit á sovésku frímerki og rann því beint inn í ríkisstjórn Frakklands er heim var komið
Það sem einkennir X-énarque-elítu-setulið Frakklands eftir umskólun í Ecole Nationale dAdministration, er það, að þessi franska X-elíta er næstum hvergi í veröldinni samkeppnishæf nema einmitt í miðborg Parísar. Aðeins þar þrífst hún vel. Sést það best á því að Frakkland liggur af Xinu sérhannað til örendis flatt undir þeirra þurru fótum. Og það þrátt fyrir að næstum öll hár á höfðum Frakka liggja sem sovéskt-þrædd til miðborgar Parísar. Þar er í þau haldið með miðstýringu X-setuliðsins sem sendir um þau merkin 0 eða 1 eins og að um handfléttað RAM væri að ræða. En samt gengur ekkert. Og það þrátt fyrir þá evru-mynt sem X-énarque-elítu-setulið Frakklands kom á í landinu undir forsæti Mitterrands
Svo sorglegt sem það er, þá er Frakkland að sökkva í evru-myntinni sem þeir kröfðust og óskuðu sér svo heitt. Það er að segja; sem X-énarque-elítu-setulið Frakklands krafðist og óskaði sér svo heitt. Dýrðardagar Frakklands á 5-7. áratugum síðustu aldar eru liðnir og vissuleg mikil og góð afrek X frá tímunum þeim eru rykfallin og í sundur að detta
Til Íslands kemur François Heisbourg og segir Íslendingum að evran sé nú ónýt og að Evrópa sé jafnframt svo gott sem einnig ónýt af hennar völdum. Sem er alveg hárrétt hjá honum. En það er líka hárrétt að Frakkar og Þjóðverjar hafa aldrei haft hundsvit á peningamálum. Það sást strax er bankastjórn ECB-seðlabanka Evrópusambandsins settist að völdum og sprengdi myntsvæði Evrópusambandsins í loft upp með því að framkvæma stærstu fjármálabólu veraldar á löndum þess undir stjórn Jean-Claude Trichet frá Lyon, sem skólaður var auðvitað til í Ecole Nationale dAdministration
En hér kemur svo rúsínan í ESB-endanum á énarque-elítu X. Jú, Ísland ætti nefnilega að ganga í ESB af því barasta. Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið af því að sambandið samkvæmt François Heisbourg á nú að verða Sambandsríkið, með stórum staf. En sambandið geti því miður ekki orðið Sambandsríkið fyrr en að það sem lækna átti ekki-sambandsríkið svo það gæti orðið Sambandsríkið þ.e. sjálf evran er nú allt laust og fast að drepa á meginlandi Evrópu. Hvert hringir maður þá? Jú, maður hringir að sjálfsögðu í Chief Inspector Charles LaRousse Dreyfus á geðbilunarhælinu Galeanstalt og pantar hjá honum nýjan tíma í Evrópufræðum
Nú er sem sagt það myntbein er hent var fyrir Mitterand Frakklandsforseta á meðan Þýskaland rann á ný saman í eitt, allt í einu orðið eitthvað svo vonlaust. Þýskaland er nefnilega á leiðinni austur
Eins og alltaf tala höfuð og "sérfræðingar" í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins með jafn mörgum tungum og til þarf svo hið bogna ljós undralands evrusvæðis og ESB varpist aldrei á nein viðkvæm mál
Furðulegt er að heyra að einhver sem kallaður er sérfræðingur í málefnum Evrópu og jafnvel Evrópusambandsins, skuli reyna að halda því fram að Svíþjóð og bara sökum þess að Svíþjóð er Svíþjóð sem þekkir í þykjustunni þekktan mann í þýsku landi sé á einhvern hátt undanþegin því að fara í gegnum ERM-II ferli Evrópusambandsins til að taka upp evru. Þetta er sprenghlægilegt því að í Sáttmála Evrópusambandsins stendur skrifað að evran ER mynt Evrópusambandsins eins og að Evrópuþing þess ER þing Evrópusambandsins
Í Sáttmálunum með stórum staf er njörvað niður og samþykkt af 28 þjóðþingum 28 ríkja að öll lönd sambandsins verði að taka upp evru af því að evran ER mynt Evrópusambandsins. Í sáttmálunum samþykktum og staðfestum af hinum sömu 28 þjóðþingum sömu 28 ríkja Evrópusambandsins stendur einnig að aðeins Danmörk sé með undanþágu frá þriðja fasa myntbandalagsins (ERM III) sem er evran, ásamt Bretlandi, sem er alveg undanþegið frá öllum fösum ERM; þetta stendur skrifað og staðfest af þjóðþingum allra landa Evrópusambandsins í Sáttmálunum og Svíþjóðar einnig
Það stendur sem sagt ekkert um það í neinum sáttmálum Evrópusambandsins að Svíþjóð sé á neinn hátt undanþegin því að taka upp evru. Landinu er samkvæmt Sáttmálunum skylt að gera það um leið og ESB- og evruyfirvöld hafa metið landið sem hæft til þess. Svíþjóð mun eins og öll önnur lönd ESB fyrst þrufa að ganga í gegnum ERM II, sem er pyntingaklefi myntbandalagsins, svo það geti látið ESB troða sér ofan í evru
Kannski eru kerfis-karlar Frakklands svo vanir því að geta skalkað og valkað með sáttmálana af því að landið þeirra heitir Frakkland og er einnig að hluta til Þýskaland, að þeir taka ekki eftir því hvaða skyldur og reglur eru lagðar hráar og ólagfærðar á venjuleg ríki í Evrópusambandinu
Þrátt fyrir góðan vilja og snjalla hugsun François Heisbourg, þá er Evrópa Evrópusambandsins ólæknandi. Hún er ólæknandi undir evru og hún er ólæknandi eftir evru. Stefnumótun sambandsins hefur því stefnt henni til 1914 á ný
Fyrri færsla
Afpöntuð ESB-ríkisstjórn og pöntunarseðlar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 3. apríl 2014
Afpöntuð ESB-ríkisstjórn og pöntunarseðlar
Sjá krækju á frétt Morgunblaðsins um utanríkisviðskipti og gjaldmiðla þeim tengdum, neðst í þessari bloggfærslu
Lesa; Áhlaupið á íslensku krónuna
Hvað skiptir máli í utanríkisviðskiptum
Það sem alltaf skiptir mestu máli er náttúrlega það að fá sjálfa pöntunina. Að vera samkeppnishæfur. Það er pretty fundamental, ekki satt? Að fá pöntunina
Og svo það, að geta uppfyllt pöntunina stundvíslega. Til dæmis með því að eiga góð skip og flugvélar. Að græða oftar á pöntuninni en ekki, er einnig mikilvægt, skyldu sumir ekki vita það. Það þýðir að tekjur verða oftar að vera stærri tala en útgjöld
Það fyrirbæri þekkja of margir stjórnmálamenn þó yfirleitt ekki, því þeir búa ekki til neina velmegun og skaffa íslenska hagkerfinu ekki neina peninga. Þeir eyða bara því sem aðrir hafa skaffað og keyra ríkissjóð landsmanna nær alltaf með krónísku tapi. Þeir eyða oftast um efni fram, nema þegar Davíð Oddsson stóð yfir þeim
Spurningin í utanríkisviðskiptum um það hvernig greitt er og með hverju, verður alltaf eins og gengur og gerist um allan heim. Aðeins aular eða blekkingarmenn í stjórnmálum þykjast ekki geta stundað utanríkisviðskipti við önnur lönd nema að þau noti sömu mynt og maður notar sjálfur. Sovéthugarríki transit- og útskipunarhafnar Rotterdams eru dauð og grafin. Og reiknivélar eru fyrir löngu uppfundnar. Sími og Internet hafa einnig verið tekin í notkun
En ég get ekki séð að of margir stjórnmálamenn skilji þetta. Er það kannski nokkuð þess vegna sem að þeir eru einmitt stjórnmálamenn? Afpantaðir stjórnmálamenn á kjördag eru óskemmtileg sjón. Kva, varstu afpöntuð?
Engum nema heimsins minnst fljótandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra í peningamálum létu sér detta í hug að afpantaðar yrðu vörur frá átjándu stærstu eyju veraldar vegna skorts á reiknigetu
Ferill pöntunar í utanríkisviðskiptum
- Pöntun kemur frá Japan
- Samið er um afhendingu og greiðsluskilmála
- Varan er send á næstu stóru höfn, til dæmis Rotterdam.
- Holland er þá transit-land í praxís
- Þar er vörunni umskipað og annað skipafélag tekur við
- Áfangastaður vörunnar er Ástralía
- Umboðsmaður norska söluaðilans í Japan sá um kaupin
- Frá Ástralíu er 1/10 hluti vörunnar sendur með flugi til Nýja Sjálands
Sjálf greiðslan fer fram í þeirri mynt sem gagnast báðum aðilum best
Hagstofa Íslands skráir þennan útflutning sem utanríkisviðskipti Íslands við ESB, því hún veit ekki betur. Hún GETUR ekki vitað betur
DDRÚV segir svo landsmönnum í Kastljósi frá þessum glæsilegu utanríkisviðskiptum Íslands við ESB. Þar fer nefnilega allt til ESB. En enginn hefur samt minnst hér á EES, ESB, evru né neitt E. Enda algerlega ástæðulaust
Svona hafa utanríkisviðskipti Íslendinga alltaf verið. Ekki nærri því allir hafa örugga vitneskju um endanlegt neysluland. Oft eru þau mörg. Nema að forsætisráðherrann afpantaði vilji láta lögregluna skammta fyrirtækjum landsins pantanir
Fiskútflutningur Dana til Íslands er tölu verður. En þegar nánar er skoðað í gagnagrunn DST kemur í ljós að allt eru þetta gullfiskar. Hvernig skyldi standa á þessu? Danir standa sem sagt í fiskútflutningi til Íslands. Hvað hefði minnsti fljótandi forsætisráðherra heimsins í peningamálum sagt við þessu áður en hún var afpöntuð
Að fá sjálfa pöntunina er alltaf mikilvægast
Í eðli sínu er mjög erfitt að vera seljandi. Það krefst mikils. Það er alltaf auðveldast að vera bara kaupandi. Eins og útrásarvíkingar voru flestir. Þeir keyptu og keyptu en gátu sjaldnast selt neinum neitt
Fjársterkustu framtíðarneytendur heimsins eru ekki í Evrópusambandinu. Þar eru þeir orðnir líkamlega of gamlir og stálfátækt evrunnar sér um hitt; stöðnun, hnignun, hrun og þrot. Þar mun fjársterkum neytendum fækka hratt. Allur vöxtur danskra dótturfélaga erlendis er því fyrir utan Evrópusambandið. Og ekkert getur Hagstofan sagt okkur um viðskiptamyntir dótturfélaga erlendis við umheiminn
Gott hjá Frosta!
Fyrri færsla
![]() |
Meira flutt út í dollurum en evrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 2. apríl 2014
Ó-hagganlegar stærðir
Reynsla Rússlands af ESB er fyrir það fyrsta mótuð af innrás Napóleons af heimsveldinu Frakklandi inn í Rússland
Charles de Gaulle forseti hins þriðja Frakklands af þeim fimm til sex, neitaði Bretum um inngöngu í Evrópusambandið, því hann sagði að Bretland passaði ekki þar inn. Passaði ekki þar inn, sagði hann, því Evrópusambandið ætti að ná frá eystri-ströndum Atlantshafs og austur að Úralfjöllum. Að Bretland ætti ekki heima á því meginlandi Evrópusambandsins. Þetta var og er alveg rétt hjá honum, enn þann dag í dag
Og í öðru lagi er reynsla Rússlands af Evrópusambandinu mótuð af innrás Adolfs Hitlers af brjáluðu Þýskalandi & Co inn í Rússland. Reynsla Rússlands af Vestur-Evrópu er því nokkuð strembin
En reynsla Rússlands af Evrópusambandinu er jafnvel ennþá erfiðari viðfangs því Evrópusambandið er nýtt dulbúið imperial-fyrirbæri sem stöðvar ekki útþenslu sína fyrr en það rekst á óhagganlegar fastar stærðir; rekst á immovable objects
Það væri ákaflega sorglegt ef að Evrópusambandinu tækist að véla NATO til þjónustu við sig sem útþenslubolverk Evrópusambandsins austur. Það væri virkilega sorglegt. Ég vona að NATO skilji þetta. Alveg sama hversu mikið Póllandi et al. langar í gamla veldið sitt, sem nú er læst inni í Úkraínu
Rússlandi var af Evrópusambandinu nú orðið Þýskaland lofað vissum hlutum er Sovétríkin hrundu. Þau loforð hefur ekki verið staðið við
Nái hin stuðandi hugsjón stærstu raflagningamanna Evrópusambandsins frá 1947 ruslatunnuupphafi þess alla leið til áfangastaðar sambandsins austur við Úralfjöll, já, þá vitum við fyrirfram hverslags barbarí það samband yrði. Það yrði tryllt
Það sem sögunnar menn eiga eftir að velta virkilega alvarlegum vöngum yfir um ókomna framtíð er þetta; hver styggði friðinn sem þjóðríki Bandaríkjamanna í Norður-Ameríku kom á og tryggði með meira en algerlega lögmætu valdi sínu á meginlandi Evrópu. Friðinn sem þjóðríkið Bandaríkin komu á, kostuðu og tryggðu með milljón sinnum meira lögmæti en alla aðra gat látið sig dreyma um, fyrr og allar götur Evrópu síðar
Og hver var það sem svo veruleikafirrtur varð strax árið 1947, að hann fór að gramsa ofan í hinu gamla ruslatunnuveldi meginlandsins á öskuhaugum þess. Hver er þessi sá er nú blæs þar af öllu sínu afli lífinu í gamlar glæður brennandi rústa tapranna á meginlandi Evrópu!
Það er nefnilega það; austur til Úrals
Og nú; mínar dömur og herrar; Hrossagaukurinn er kominn!
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 28. mars 2014
Að vera einn peningur
Mynd: Rússnesk rúbla - breskt pund - íslensk króna - miðað við Bandaríkjadal. Vísitölusamanburður gengis þeirra
Útflutningur Rússlands árið 1995 var að andvirði samtals 53,7 miljarðar Bandaríkjadala. Árið 2011 er útflutningur Rússlands hins vegar að andvirði orðinn 508 miljarðar Bandaríkjadala. Þetta er nálægt tíföldun á 16 árum
Heil 7 prósent af þessum tífalda útflutningi Rússlands árið 2011 fara enn til Kína. Sá útflutningur hefur tólffaldast á tímabilinu
Eystrasaltsríkin sem nú eru handjárnuð við vitlausa mynt Evrópusambandsins, geta sjálf upp á eigin spýtur enga viðskiptasamninga gert við nein lönd. Þau hafa misst fullveldið í þeim efnum. Þau hrundu ófullvalda niður úr Sovétríkjunum og ófullvalda inn í Evrópusambandið. Þau fóru úr og í aftur; reboot
Þau hafa einnig misst fullveldi sitt í orkumálum til Rússlands. Og það hefur Finnland líka. Eystrasaltsríkin eiga því enn, fyrst og fremst viðskipti við hvort annað og við Rússland
Merkilegt er nú að hugsa til þess að rússneska rúblan skuli hafa ráðið við þetta allt. Ekkert af þessu hefði verið hægt ef Rússland hefði ekki haft sinn eigin gjaldmiðil. Og ekki nóg með það. Rúblan kom Rússlandi í gegnum hrun Sovétríkjanna. Og það sést
Af þessu hefur Evrópusambandið mikið lært. Sambandið hefur lært að maður getur ekki orðið nýtt sovétríki án drottnandi myntar
Og eins og lesendur sjá og heyra gengur smíði hinna nýju sovétríkja Evrópusambandsins bara ansi vel. Hagfræðingurinn Jacques Rueff sem vann fyrir ríkisstjórn Frakklands sagði henni strax árið 1949 að; "LEurope se fera par la monnaie ou ne se fera pas" - eða - "Evrópa verður byggð með einum gjaldmiðli; annars ekki". En þá voru hinir fyrrverandi þrír-til-sex þegar farnir að vinda uppá sig og gramsa eftir sundursprengdu gulli sínu ofan í hinu gamla ruslatunnuveldi meginlandsins á öskuhaugum þess eftir heimsstyrjaldirnar tvær, plús allt það lausa
Helmut Schmidt (D) og Valéry Giscard d'Estaing (F) fóru stuttu síðar eftir steypustöðlum Jacques Rueff og byggðu skotpall evrunnar, sem heitir ERM. Sem var og er enn tröllskessa, efnahagslegt viðriðni og drápsvél velmegunar í Evrópu. Afurð fyrirbærisins sést mjög vel á Spáni á Steingrími, Jóhönnu og Össuri. Og í Danmörku (atvinnuleysi 7%). Og í Lettlandi (11,5%). Og út um allt evrusvæðið (12%) og allt ESB (10,8%)
Þó svo að allir borgarar Spánar (26%), Portúgals (15,3%) og Írlands (12%) dræpust undir evrunni þá verður ekki hætt við þetta brjálsemisverk Evrópusovétsambandsins. Enginn sem komið hefur inn í evruna mun lifandi út sleppa. Hið nýja sovétríki Evrópu er komið beyond point of no return
Það er því nokkuð sprenghlægilegt að verið sé að veita peningaverðlaun fyrir að koma með bestu uppskriftina á því hvernig hægt sé að brjótast út úr evrunni. Það er ekki hægt. Betra væri að veita mönnum verðlaun fyrir að sjá inn í sálir fólks
Til að brjótast úr úr evrunni þarf gífurlegan herafla og mátt kjarnorkuhótunar. Eða vernd Bandaríkjanna. En sú vernd er því miður ófáanleg. En kannski verður hún það síðar - er logarnir sleikja meginland evrunnar á ný
Og af hverju tók Evrópa ekki bara upp Bandaríkjadal fyrst eigin-mynt þjóðríkis samkvæmt Brussel er banvæn? Hvað er að?
En svo eru til þeir, sem á stundum segja að "lífið sé ekki bara einn peningur". Það segja reyndar flestir nema þeir sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þeir eru sem einn peningur í framan en sem skrifaður er út í gegn að aftan
Project Syndicate 25. mars 2014
Rífið evruna niður
Strategy;
João Ferreira do Amaral
Brigitte Granville
Hans-Olaf Henkel
Peter Oppenheimer
Jean Jacques Rosa
Antoni Soy
Jean-Pierre Vesperini
- for Saving the European Union from the Euro
Fyrri færsla
Tengt
Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 26. mars 2014
"dwell upon its horrors"
Þann 16. nóvember 1934 sagði Winston Churchill í ræðu að margir héldu því fram að besta leiðin til að komast hjá styrjöldum þið vitið; að varðveita friðinn væri sú að dvelja ætti stanslaust non-stop við myndina af hryllingi þeirra
Það er einmitt það sem lævísir áróðursmenn Evrópusambandsins hafa gert. Þeir hafa stanslaust viðhaldið þeirri mynd að þjóðríkið sem stofnun (e. institution) hafi verið orsakavaldur síðustu heimsstyrjaldar og að þjóðríkjum meginlandsins þurfi því að tortíma, svo að halda megi friðinn
En þegar nánar er að gáð sést að Evrópusambandið var í ruslahrúgum fyrst og fremst stofnað til að skaffa Þýskalandi og Frakklandi fjarvistarsönnun frá brennuvörgunum sjálfum sér. Því sem eitt stykki Evrópusamband væri betur hægt að komast hjá því að framtíðin kæmi og segði; "sjáið þið, þarna fara brennuvargar meginlandsins, samir við sig, eins og áður". Framtíðinni er hins vegar af blekkingunni ESB gert skylt að dvelja non-stop við gamlar hryllingsmyndir á meðan hið sama samband kemst á ný til keisaralegra valda yfir hinum gömlu elitæru og útjöskuðu vígvöllum meginlandsins
Ostpolitik Helmuts Schmidt sem gekk út á túkall og tvíkall var eitt af fyrstu krampakenndu ósjálfráðu taugaviðbrögðum hins fyrrverandi af öllu fyrrverandi í dulbúningi þess sem verandi eitthvað annað en einmitt hið sama gamla brunalið Þýskalands og síðast en bara nú brunandi smáskammtafræðilega fram á nýjum brautarteinum Evrópusambands yfir meginlandið
Ostpolitik Helmuts Schmidt gerði hinum fremsta og pólitískt erfðafræðilega sanna fjandmanni Evrópusambandsins númer eitt Bandaríkjum Norður Ameríku einungis erfiðara fyrir við að varðveita og tryggja friðinn á einmitt þessu eina og sama megnlandi tapranna í Evrópu. Schmidt lagði gömlu símalínur Þýskalands austur til þess að tryggja sér samvirðingu Frakka, sem þá voru Ameríku-hatarar meginlandsins númer absolut eitt og sem eru það jafnvel enn. Tækifærið í átt til "sambands" via stofnun ERM sem svo átti að byggja upp ESB var notað á meðan hvítinginn Carter ó bambi var varla við völd
The Time of the Nation-State is Over
Tími þjóðríkisins er búinn
- "forseti" leiðtogaráðs Evrópusambandsins, Herman Van Rompuy, í ræðu þann 9. nóvember 2010
Nú er í annað skiptið barið að dyrum hjá dyravörðum þvaður-sannleikans um Evrópusambandið. En enginn kemur þar til dyra, frekar en í fyrri skiptin. Nema auðvitað sjálfur nefstubbur Evrópusambandsins í búningi forseta þess. Sá hinn sami "forseti" og hélt fimm þúsund orða ræðu um "friðinn" á meginlandi Evrópu frá árinu 1945 til loka kalda stríðsins. Það gerði hann í Berlín árið 2010 er þess var minnst að 21 ár var liðið frá falli múrsins. Og það gerði hann alveg án þess að minnast einu orði á þá staðreynd að það var þjóðríkið Bandaríkin í Norður-Ameríku sem tryggði og varðveitti þann frið sem fáráðlingurinn þessi og hinn fyrsti "forseti" leiðtogaráðs ESB, Herman Van Rompuy, hélt þarna í kringum sjálfan sig undir föllnum múr í Berlín árið 2010
Það sem sögunnar menn eiga eftir að velta alvarlegum vöngum yfir um ókomna framtíð er þetta; hver styggði friðinn sem þjóðríki Bandaríkjamanna í Norður-Ameríku kom á og tryggði með meira en algerlega lögmætu valdi sínu í Evrópu. Friðinn sem þjóðríkið Bandaríkin komu á og tryggðu með milljón sinnum meira lögmæti en alla aðra gat látið sig dreyma um, fyrr og allar götur Evrópu síðar
Og hver var það sem strax varð svo veruleikafirrtur árið 1947 að hann fór að gramsa ofan í hinu gamla ruslatunnuveldi meginlandsins á öskuhaugum þess. Hver er þessi sá er nú blæs þar af öllu sínu afli lífinu í gamlar glæður brennandi rústa tapranna á meginlandi Evrópu!
Það að geta kastað af sér svona aðsvifsræðu um friðinn í Evrópu án þess að minnast einu orði á þjóðríki Bandaríkjamanna í Norður-Ameríku né hvað þá að þakka því fyrir hann er einungis á færi elítuveldis Evrópusambandsins. Það eitt er fært um slíkan hroka og gerræðislegar sjálfsbekkingar. Enda er Evrópusambandið fyrst og fremst stofnað til höfuðs þjóðríki Bandaríkjamanna. Fyrst og fremst og svo er enn. Og svo er enn . .
Fyrri færsla
Hagvöxtur í Rússlandi gæti orðið Evrópusambandslegur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 25. mars 2014
Hagvöxtur í Rússlandi gæti orðið Evrópusambandslegur
Í yfir 35 ár hefur ERM-I-II-III gengisfyrirkomulag Evrópusambandsins kyrkt og kæft hagvöxt og sprengt til langtíma upp atvinnuleysi í löndum Evrópusambandsins á miðstýrðan sovéskan hátt. Hinn þriðji fasi ERM-fyrirkomulagsins er sjálft pólitíska málgagnið evran
Ekkert hefur verið eins varanlega örkumlandi fyrir Evrópu og þetta ERM-elítusamsæri embættis- og stjórnmálastétta ESB gegn hinum efnahagslega raunveruleika í ofangreindu tímarúmi, sem lengist bara og lengist fyrir núlifandi kynslóðir í handjárnum sambandsins
Til hroðalegs hryllings geta menn sér nú til þess að hagvöxtur í Rússlandi gæti vegna einangrunaraðgerða Evrópusambandsins jafnvel fallið niður á ESB-level. Að hagvöxtur í Rússlandi gæti jafnvel orðið Evrópusambands-hryllingur sökum ytri efnahagsþvingana. Þá væri nú illa fyrir Rússlandi komið, því ERM-skrúfstykki Evrópusambandsins hefði sjálft KGB varla getað fundið upp
Allt sem ESB snertir á deyr. Enda hefur Evrópusambandið úti í Evrópu hlotið nafngiftina kirkjugarður ríkisstjórna fólksins. Þar hefur ESB-elítum heils meginlands tekist að innleiða varanlegar efnahagsþvinganir sem verandi "framfarir"
Fyrri færsla
Þýsk Evrópa gengur brátt (og illilega) aftur
Tengt
Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 21. mars 2014
Þýsk Evrópa gengur brátt (og illilega) aftur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 2
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 1407508
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 63
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008