Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið verður Úkraína

Þjóðernisbrota- og tungumálakort af Úkraínu

Mynd; þjóðernisbrota- menningar- og tungumálakort af pólitískri púðurtunnu Úkraínu

Úkraínuvæðing og Balkanisering Evrópusambandsins

Að mörgu leyti má segja að Evrópusambandið sé Úkraína og að Úkraína sé eins og smækkuð mynd af Evrópusambandinu undir framköllun þess er stanslaust skerpist sem yfirríkisleg umboðslaus ófreskja á framköllunarpappír Brusselveldisins. Sem fjöl-hegningar-samfélag* með hroðalegum mannlegum framtíðarhorfum

Þannig er útópíusamband ESB að verða. Það er orðið yfirríkisleg samsteypa elítuvelda þar sem heilar sex fimm-ára áætlanir í stíl Sovétríkjanna sálugu hafa nú þegar spilað sig algerlega fallít í formi hinna þriggja tíu-ára áætlana Evrópusambandsins umhverfis "Lissabon markmiðin" frægu. Þau eru hin marklausu mið sem meðal annarra ESB-fíklar á borð við fyrrum forsætis- utanríkis- allsherjar- og menntamálaráðherra Íslands staupuðu sig svo lengi á. Sem sú lygi er um tíma hélt pappírsfljótum sambandsins rennandi til áfangastaðar lyganna í Brusselskógum ESB. Þeir sem sögðu "þetta er þvaður", voru hins vegar sendir í intellektuelt gúlag í aðildarlöndunum

Allar þessar þrjár 10-ára Lissabon-áætlanir ESB eru fyrir löngu orðnar elítuvátryggt ESB-misfóstur gegn framförum og hagsæld. Þær urðu að herjandi fíaskói á fólkið í Evrópusambandinu, eins og við mátti búast

* Fjöl-hegningar-samfélag er hægt að skilgreina sem samsull "esb-samhæfinga" og svo kallaðra "esb-umbóta" (coordination & structural reforms). ESB-samhæfing og ESB-samþvættið fer ávallt og einungis fram í nafni elítu- og klíkuvelda, ekki ósvipað peningaþvætti. Algerlega framhjá fólkinu

ESB-samhæfing felst í því í að lofa yfirríkislega að gera landi sínu og þjóð í heild eitthvað slæmt í þágu elítu landsins, gegn því að annað ESB-land lofi yfirríkislega að gera sínu landi og fólki eitthvað sem í heild er jafn slæmt fyrir það land og þá þjóð, en eins og í fyrrnefnda landinu, einungis í þágu elítu hins síðarnefnda lands

Allir tapa nema ESB-elítan og ESB-hagsmunaklíkan. Svona er Evrópusambandið byggt upp um leið og AngloSaxon PaxAmerican-Evrópa er rifin niður og sjálfstæði og fullveldi aðildarríkjanna dælt úr þeim yfir í hið nýja allsherjandi sovét ESB

Fyrri færsla

Austurvöllur orðinn Wall Street sósíalista og stjórnleysingja?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband