Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hver á að taka við flóttamönnunum frá Evrópusambandinu?

Sýrland er eins og Evrópusambandinu er ætlað að verða. Sambruni margra þjóða. Í sumri þessu á Sýrlandi búa nú fimm þjóðir, innan hannaðra landamæra með Schengen bragði. Landið er hannað af Frökkum eins og Evrópusambandið, sem arkitektónískt og stjórnsýslulega er einnig frönsk hönnun elíta þess miðstýrða lands. Franska sýrlenska hönnunin er sprungin og samsteypan brennur. Stendur bara í ljósum logum sem algert misfóstur fyrir borgarana. Evrópusambandið brennur einnig. Það logar. Klerkaveldi þess hefur kveikt marga elda. Og eldar þessir skapa vakúm. Í vakúmi þessu skjóta ömurleg öfl rótum og vaxa sig sterk

Svona er að neita að horfast í augu við þá staðreynd að þjóðríkið er fremsta manngæskuberandi skipan veraldlegra mála. Þess vegna vill Evrópusambandið drepa þjóðríkið. Drúsar þurfa til dæmis þjóðríki eins og Gyðingar, en hafa það ekki. Þeir leita ásjár í Ísrael, sem er eina lýðræðisríkið í Mið-Austurlöndum 

Vegna ESB-dýrkandi fjölmiðla og afglapa margra Vesturlanda er þjóðríkið Ísrael nú jafn hatað í Evrópu og Norður-Kórea er. En þökk sé þó fyrst og fremst sjálfu afglapaveldinu ESB, sem hatar Ísrael af því að það er nýtt þjóðríki og bara þjóðríki og sem þorir að verja sig og borgara sína. Það er frumskylda hverrar kjörinnar ríkisstjórnar að verja líf, limi og eignir borgarana. Alger lágmarks frumskylda!

Evrópusambandið er að búa til vakúm, sem verður fyllt upp. Flóðgáttirnar eru opnar, fyrst og fremst fyrir of mörgu illu. Hvert eiga þjóðir Evrópu þá að flýja, er ESB samkvæmt miðstýrðum áætlunum elíta þess, logar stafnana á milli og komandi blóðugir bardagar byrja að geisa?

Fyrri færsla

"Samstaðan" að ofan - eins og síðast


"Samstaðan" að ofan - eins og síðast

Það sprenghlægilega hefur nýlega gerst, að "samstaða vestrænna ríkja" hefur fengið nýja meiningu, af því að hún ógnar ekki mér. Ég er nefnilega með NATO í rasshendinni, viðskiptasamningana í hinni og fjarvistarsönnun frá sjálfum mér. Ég er ekki ég

Þegar Vestur-Þýskaland uppgötvaði að Pólland og Sovétríkin slökuðu á ferðaófrelsi fólksins í gegnum landamærin 1989, þá var ekki lengur gaman í Bonn, því það þýddi að toppurinn í Vestur-Þýskalandi gat ekki lengur notað peninga og viðskipti --í skiptum fyrir að sumt fólk fengi að yfirgefa samkvæmi kommanna í austri-- til að sleikja upp kommúnistaveldin, með það markmið fyrir augum að þau ríki yrðu smám saman fyllilega viðurkennd sem sjálfstæð! og fullvalda!, af því að á því gætu elítur Vestur-Þýskaland þénað

Þegar 380 þúsund manns flúðu þar af leiðandi kommabælin í Austri yfir til Vesturs árið 1989 og 400.000 manns árið eftir, var skaðinn skeður í Vestur-Þýskalandi og "útlendingar" strax orðnir skotspónn pólitískra afla þess lands ásamt endurkomu-enduruppréttingum framhandleggja þar í landi. Meira þurfti ekki til, en að fólkið og afkomendur þess sem átti eitt sinn heima í landi þessu, snéri sér vestur án þess að biðja elítuna um leyfi í skiptum fyrir einn pening að ofan niður í vasa þeirra í Austri, sem svo drukku hann út saman með þeim frá Vestri. Skipulagt og díalektískt miðstýrt frelsi að ofan, í skiptum fyrir viðskipti sem enn frekar hertu tökin um hálsa hinna kúguðu og grófu enn frekar undan lélegum efnahag þeirra og stækkuðu samspillinguna. Eins konar Brussel

Svo þegar pólska Solidarnosc (Samstaða) fór af stað með byltingu fólksins að neðan og upp í gegn, þá hneyksluðust vesturþýsku yfirvöldin og fóru hjá sér af vandlætingu og skömm yfir því að fólkið í Póllandi, sem Þýskaland ávallt hefur litið niður á, ætlaði ekki að sætta sig við miðstýrða byltingu elíta að ofan undir Ostpolitik sem skiptimyntar-díalektískan djöful með NATO í rasshendinni og samningana í hinni

Pólska Samstaða fældi hina vesturþýsku miðstýrðu frá hugsjóninni um frelsi. Enda þurfti pólska Samstaðan ekkert á þýskum peningum að halda því að ódíalektískir rangt-er-rangt og rétt-er-rétt-menn í Bandaríkjunum studdu pólsku Samstöðu bæði móralskt, pólitískt og fjárhagslega. Pólska Samstaðan var því alls ekki á neinum heimsóknarlista er Hans-Dietrich Genscher sótti Varsjá heim í mars 1981 og malbikaði í leiðinni braut Jaruzelskis til valdbeitingar og setningu herlaga yfir Pólverjum í desember sama ár. Jólagjöfin frá Vestur-Þýskalandi til Póllands. Ostpólitíkusinn Egon Bahr, hægri hönd Brandts, skrifaði náttúrlega með penna til veraldarinnar að heimsfriðurinn væri mun mikilvægari en Pólland, einu sinni enn

Ef að landamæri Þýskalands lægju upp að Úkraínu en ekki Póllands og annarra núll ríkja austar í augum Þýskalands, þá væri ekkert að gerast á þeim vígstöðvum annað en þið vitið hvað í dag. Svo langt nær samstaða vestrænna ríkja. Altsaa, þangað, en ekki lengra. Þegar um okkur er að ræða þá gilda nefnilega allt önnur lög og mál. Við hegðum okkur alltaf eins og síðast. Sem aular með NATO í rasshönd. Og nú íklæddir fjarvistarsönnunargagninu fræga, helvítis Evrópusambandinu

Að Bandaríkjamenn hafi nokkru sinni þolað bandamenn eins og Þýskaland og Frakkland í NATO, er hreint kraftaverk á stórskala. Og þau, gerast sko ekki alla daga

NATO var stofnað sem verjandi fullvalda ríkja af fullvalda ríkjum

En fullvalda ríki eru hins vegar bara alls ekki á dagskrá Evrópusambandsins. Þar er nefnilega unnið neyðarnótt sem ónýtan dag í reykfylltum bakherbergjum pólitískra vændishúsa við að útrýma þeim sem slíkum og öllu fullveldi þeirra. Fullvalda ríki er einnig bannorð í orðabók Evrópusambandsins. Ég er því bæði hneykslaður og gapandi af undrun yfir þessari heimsku og einfeldningshætti gagnvart þeim sem blása í gömlu glæðurnar sér til gróða og áhrifa austur. Halda mætti að þeir hefðu atvinnu af glapræðinu -- eins og í ESB, þar sem þrír-til-sex í rústum þeirra sjálfra hófu blásturinn í gömlu glæðurnar á ný árið 1950, vegna þess að þeir þoldu ekki lýðræðið og friðinn sem Bandaríkin með algeru lögmæti og ofurefli plöntuðu í gróðurmold landa þeirra. Með og úr því óþoli fyrir friði og lýðræði var Evrópusambandið steypt upp

Fyrri færsla

Bí bí og miðstýrt púff


Bí bí og miðstýrt púff

Sovét  ESB  Kína

"Ég nýt þessa, ég nýt þessa." Og hún hafði rétt fyrir sér.

Fyrst voru það Sovétríkin sem áttu að keyra Bandaríkin niður í ekki neitt. Sovétríkin eru hins vegar ekki til lengur. Bara brunarústir þeirra

Svo var það japanska kraftaverkið sem átti að sýna fram á að Bandaríkin væru krónískt biluð og föst. Nú er Japan að hverfa. Allt er þar hrunið, varanlega hrunið til frambúðar og þjóðin orðin geld eins og sú þýska, vegna svartrar framtíðar

Svo var það miðstýrt Evrópusambandið og evrusvæði þess sem átti loksins að skófla Sámi frænda fram af brúninni og niður í ekki neitt, sem máli skipti. Nú er ESB hins vegar orðið kommabæli sósíalista Sovétríkjanna og versta efnahagsvæði veraldar. Og ófriðarhorfur þar hafa tekið heldur betur við sér samkvæmt nákvæmri spá frú Margrétar Thatcher, um að dagar miðstjórnar-hannaðra gerviríkja væru algerlega liðnir. Það sagði hún, með öryggi og réttu, við ESB í Haag þegar árið 1992 - og jafnvel fyrr

Og nú er miðstýrt Kína kommúnistanna komið á koppinn stóra, að gera á sig út og suður, en þó mest niður, niður og niður. Það var nú svo með þann fulla bolla af kommatittum

Já, bæ bæ og púff!

Simon Johnson: The US Still Runs the World

Fyrri færsla

Er nýi Kínamúrinn fullbyggður?


Er nýi Kínamúrinn fullbyggður?

Undanfarið hafa markaðir skolfið vegna mála í Kína. Hægt er að spyrja sig hvers vegna heimurinn láti svona þegar aðeins er um verðfall á eignaraðildarhlutum í fyrirtækjum að ræða. Hægt er að spá í þetta og það geri ég

Mín hugsun hefur lengi verið sú að kommúnistaríkisstjórnum sé ekki treystandi fyrir neinu nema slæmu. Nú er það þannig að fjárfestingar (að búa til nýjar áþreifanlegar eignir) í Kína, eru undir stjórn þessara komma og þær eru um helmingur af landsframleiðslu. Helmingur!!!! Og þá skyldi maður ætla að þessar risavöxnu fjárfestingar skapi mikinn hagvöxt. Það hafa þær líka gert, um tíma. Þær hafa skapað vöxt alveg eins og bygging gamla Kínamúrsins bjó til vöxt á sínum tíma. Samt eru allar þessar fjárfestingar aðeins að búa til 5-6 prósent hagvöxt eins og er. Sumir ganga svo langt að segja að vöxturinn sé jafnvel orðinn neikvæður, þ.e. samdráttur

En það er ekki það sem mér finnst vera hið skuggalega í þessu. Nei það er sú óskaplega líklega staðreynd (sem sagt getgáta mín) að mest allar þessar fjárfestingar séu í nýjum Kínamúr. Að þær séu yfirgnæfandi flestar rangstæðar. Séu peningar sem notaðir hafa veið til að búa til ekki neitt nema feitt handa feitum kommum. Vegi sem enginn ekur eftir. Borgir sem enginn býr í. Skýjakljúfar sem standa tómir. Innviðir sem eins og Kínamúrinn gamli standa bara og sjást sem gervi úr gervi-hnetti

Sjálfur er ég sannfærður um að ríkisstjórnin í Kína hafi á undanförnum áratugum hamast við gerð stærstu manngerðu loftbólu veraldar. Sem er rangstæðar fjárfestingar (e. misallocation of capital) sem á eftir að springa svo hroðalega að japanska hrunið 1989 mun líta út sem himnaríki miðað við það sem í vændum er frá Kína. Og stjórnarfarslegir innviðir Kína eru að minnsta kosti jafn rotnir og í Úkraínu, sem er misheppnað ríki

Þrír milljón þýskir gámar láta úr höfn frá Hamborg til Kína á ári hverju, undanfarin fjögur ár. Þessi tala hefur hrunið um ca. tvö hundruð þúsund gáma til Kína á fyrsta helming ársins. Á þessu ári er þetta kannski hálf milljón gámar sem vantar, eins og er. En hvað ef þetta verður miklu miklu verra í mörg mörg ár? Þá þarf Þýskaland helst að kveikja í fleiru en einu landi á evrusvæðinu, til að lækka gengi evrunnar enn frekar

Hvenær er nú byltingin aftur? Hrunið er jú þegar byrjað

Í gær birtust endurskoðaðar hagvaxtartölur í Bandaríkjunum. Hagvöxtur er þar 3,7 prósent núna. Þetta er nóg fyrir bandaríska seðlabankann til að láta hendur standa fram úr ermum og hækka nú loksins stýrivextina upp í tölu sem er stærri en núll. Hvað munu núllin í ESB þá segja?

Fyrri færsla

Norska krónan og evran að hverfa

 


Norska krónan og evran að hverfa

EUR NOK ISK per USD frá 1 júlí 2008 til 27 ágúst 2015

Mynd: Gengið, uppáhalds málgagnið. Á myndinni sjást ekki enn 9 stýrivaxtahækkanir norska seðlabankans á 8 mánuðum, eins og 1998, þegar olíuverð fór niður í 19 dali tunnan.

Nú er fall norsku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal orðið tæp 40 prósent síðan 1. júlí 2008. Norska krónan er að gufa upp. Fall evrunnar á sama tíma er örlítið minna eða á bilinu 30 til 36 prósent. Seint koma sumir klesstir að múrnum, en koma þó

Þegar norska krónan innan skamms er fallin um 70 prósent gagnvart Bandaríkjadal og 40 prósent gagnvart íslensku krónunni, og þegar sveppahattur reykskýs norsku húsnæðisbólunnar sést frá Langanesi, undir 10-18 prósent stýrivöxtum norska seðlabankans, já, þá munu skattar á Íslandi lækka bara og lækka, því þá er samanburðarþvæla "kjarabaráttunnar" um kjör í "öðrum löndum" (plánetum) fallin í Fjármálaráðuneytinu sem ekta lygi, eins og hún alltaf hefur verið og verður alltaf. Læknar, hjúkrunarfræðingar, nefnið þið áróðurinn bara. Og DDRÚV og Bylgjan sem sprakk

Ég hlakka til þessara lækkandi skatta. Þá mun ég hafa það betra en best í mínu eigin landi. Tralla la la. Og na na ní nana

Fyrri færsla

Hvaða vextir eru of hátt uppi á Íslandi Ásmundur?


Hvaða vextir eru of hátt uppi á Íslandi Ásmundur?

Eru það innlánsvextir sem eru of háir? Nei, varla

Raunvextir á óverðtryggðum húsnæðislánum hér eru lægri en á Írlandi. Og útlánavextir lána með engu veði hér á landi, eru mun lægri en á Írlandi, þar sem raunvextir á þannig lánum eru 10-14 prósent á ári í jafnvel neikvæðri verðbólgu. Sömu sögu er að segja um lán án veðs í Danmörku. Og þar eru svo gott sem engir vextir á innlánum. Rekstrarlán til fyrirtækja þar í landi eru einnig á 8-16 prósent vöxtum í svo gott sem neikvæðri verðbólgu

Það er ekki hægt að bera raunvexti á húsnæðislánum hér á landi saman við hvaða land sem er. Til dæmis alls ekki við Danmörku, sem er með mölbrotið húsnæðislánakerfi á síðasta snúningi og sem mun leiða til þjóðargjaldþrots neiti markaðurinn að taka lengur þátt í þeim sirkus. Þriggja til fjögurra prósentustiga hækkun myndi gera út af við landið

Það voru kjarasamningar Ríkisins við lækna sem slitu akkerisfestar verðbólguvæntinga. Þá þegar hefði Seðlabankinn átt að hækka stýrivexti umsvifalaust til að komast mætti hjá þeirri verðbólguvæntingaskriðu sem leiddi til launahækkana á almennum markaði, sem ultu hér sem tærðar beinagrindur úr úr skápunum, án þess að nokkur áþreifanleg og raunveruleg innistæða væri fyrir þeim, önnur en huggulegheit

En þar sem seðlabankastjórnin ekur um í hjólastól íklædd magabelti, axlaböndum og haftaspelkum, þá hefur allt heilabú hennar pressast sem kósýgas út í gegnum ózonholu 13 manna stíflaðs nefs. Hvaða vextir hannaðir af nefnd eru of hátt uppi fyrir svoleiðis huggulegheit? Engir

Seðlabankastjórn er ekki vísindi. Hún er handverk sem byggir á þefnæmni skilvirks nefs. Nóg er að hafa bara einn mann með virkt nef til þess. Einn mann sem mætir á réttum tíma til þefja

Svo er gott að muna eftirfarandi: því lægri vextir, því hærra húsnæðisverð. Ekkert fæst hér ókeypis

Fyrri færsla

Vaxtasprotar lögregluríkis ESB og EES


mbl.is Vandinn er verðtryggingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxtasprotar lögregluríkis ESB og EES

The Illustrated Road to Serfdom Planners

Dafnar og vex leiðin til ánauðar

PLAN: Þær eru slungnar og duldar leiðir elíta ESB til að innleiða lögregluríki í þeim tilgangi að ráða niðurlögum þjóðríkja Evrópusambandsins og hins þjóðbernska afls þeirra (natal-energy), þannig að úr verði nýtt og fullkomnara sovétríki undir löggun þeirra

PLAN: Maður stendur bara með biblíu sósíalista (krata) í höndunum og er fæðingarhálfvitalega sannfærður um að hægt sé að jafna út allt. Að allt verði lagt að jöfnu sem jafn-gott og endi sem eitt miðstýrt jafn-gott þeirra sem vita betur. Bara við vitum hvernig allt á að vera. Þetta er hinn innri markaður ESB sem er stærsta reglugerðarbákn nokkurs efnahagssvæðis veraldar

PLAN: Svo er lögregluríkið í næsta fasa ESB innleitt enn frekar og fastar með því að ganga í gröf Schengen fyrirkomulagsins og fella með því niður girðingar innan réttarinnar (en ekki utan hennar), svo að hægt sé að láta lögregluríkið, vegna tilætlaðs "öryggistaps", rísa enn frekar á fætur, því þá þarf að koma lögreglunni í sívaxandi mæli fyrir meðal borgaranna innan í púðurtunnunni ESB, í stað þess að hafa hana að störfum við gömlu girðingar þjóðríkjanna til að hindra að púðurtunnan verði yfir höfuð til

PLAN: Já, þetta kemur. Púðurtunnur eru bestu vinir okkar sósíalista. Þær þarf nefnilega að vakta og þær krefjast meiri og meiri löggunar. Og púðurtunnur okkar eru orðnar risastórar. Þær vaxa á veldisskala að afli. Þær eru það eina sem vex í ESB. Og við erum -einu sinni enn- þegar búin að þjóðnýta sjálf stjórnmálin í löndum ESB í þágu ákveðins málsstaðar: samrunans. Síðast var það gert undir undir Nationalsozialismus, en tókst bara ekki nógu vel

PLAN: Bara svo menn viti það, þá var sökkull hins miðstýrða yfirríkislega Evrópusambands sem við sjáum í dag, lagður af Monnet og Salter eftir Fyrri! heimsstyrjöldina. Þvælan um Kola- og stálbandalagið var bara sölugas og PR-stunt sem tekið var í notkun á hentugum tíma til að skapa meðbyr eftir að Evrópusamband nasista Þýskalands og Parísarhluta Frakklands á öxli Lotharinga reynist svona erfitt í framkvæmd - og sem verra er, sem skildi svo óheppilega eftir sig baneitraðan Le Cancer américain á meginlandi Evrópu. Þess vegna er Evrópa í geislameðferð undir miðstjórn ESB. Allt mun verða gott og dautt

Fyrri færsla

Ísland að hengja sig í reglu­verkareipi Evrópusam­bands­ins


Ísland að hengja sig í reglu­verkareipi Evrópusam­bands­ins

Lögunum um hinn svo kallaða "innri markað" Evrópusambandsins var troðið í gegnum þjóðþing aðildarlandanna undir þeim fölsku formerkjum að hann ætti að fjarlægja tæknilegar viðskiptahindranir á milli landanna og koma í veg fyrir þær

Og hver varð árangurinn? Jú. Upp reis stærsta reglugerðarbákn nokkurs efnahagssvæðis veraldar. Gömlu Sovétríkin hefðu ekki komist með tærnar þar sem hælarnir eru á miðstýrðu reglugerðafargani hins innri markaðar ESB, sem er kenning skriffinna á blaði eins og kommúnismi Sovétríkjanna ávallt var í reynd fyrir borgarana

Sérhvert málasvið sem fært er undir miðstjórn Evrópusambandsins endar alltaf þannig að engin leið er að fá vald yfir þeim málum aftur. Og markmið Evrópusambandsins er einmitt að setja sig á ÖLL mál sem lúta að lífi, lífsmáta og dauða borgarana, sem lifa og deyja innan landamæra sambandsins og sem eru í sífelldri útþenslu undir fölskum og umboðslausum fána

Það er gleðilegt að sjá að Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn að gera sér grein fyrir því að jafnvel bara EES-tenging við Evrópusambandið er að verða jafn slæm fyrir Ísland eins og járntjald. Múr sem hækkar með hverjum myrklögðum regluverkadegi sem líður á alþingi Íslendinga, algerlega öndvert við markmið stofnunar lýðveldisins 1944 - og alla Sjálfstæðisstefnuna frá upphafi

Fjörutíu til fimmtíu miljörðum hent í EES-hafði í síðustu viku (líklega 500 miljörðum þegar upp verður staðið, sé þá yfir höfuð hægt að standa upp vegna EES-lömunarveiki) og leita þarf aftur til ársins 1987 til að finna þróttmikinn hagvöxt í raunhagkerfinu. Allir sem tengjast Evrópusambandinu verða fátækt, skriffinnsku og lömunarveiki að bráð

Það er eins gott að nýja norsk-íslenska síldin fyrir norðan land frétti ekki af þessu á næstu 30 árum, því þá mun hún einfaldlega drukkna úr hlátri

Fyrri færsla

Spurt er: Hvert er Rússland að fara?


mbl.is Vilja kaupskipin aftur til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurt er: Hvert er Rússland að fara?

Spurt er hér: Hvert eru Rússar að fara?

Svar: mér sýnist nú flest sem er að gerast í Rússlandi, sem og umhverfis það, gangi út á að sýna veröldinni að Rússland sé einmitt ekki að fara neitt. Verði ekki haggað. Rússland er ekkert að fara

Reynsla Rússlands af Evrópu er strembin

1) Innrás Napóleons inn í Rússland

2) Innflutningur Hegelsks marxisma í hertri útgáfu Marx frá Þýskalandi inn í Rússland sem leiddi til byltingar og stofnunar Sovétríkjanna og herför þeirrar elítu og glæpagengis gegn rússnesku þjóðinni, sem mátti þjást óendanlega í 70 ár undir þessari eitruðu innflutningsvöru frá Þýskalandi. Þessi þjóð henti svo af sér þessum innflutta kommúnisma á friðsamlegan máta

3) Innrás Imperial Þýskalands inn í Rússland undir leiðtogi hins þjóðkjörna Adolfs Hitler, sem bakkaði Þýskalandi brott af leið þess inn í þjóð-ríki (Weimar) og aftur út í heims-veldið (Imperial)

4) Útþensla valdaöxuls Lotharinga undir fölskum fánum Evrópusambandsins að landamærum Rússlands

Hvað eiga Rússar að hugsa?

Ef ég væri almennur Rússi þá myndi ég óttast Evrópusambandið alveg hroðalega mikið og reyndar alla pólitíska heimspeki frá meginlandi Evrópu og sérstaklega hinn rentu-sækna og orderly* kapítalisma elíta þess á hinn díalektíska máta, sem gerði rabb-fundarhöld og stjórnsýslu utan um þjóðarmorð og morðframleiðslu á stóriðnaðarskala mögulega. Og svo Guðleysi þeirra afla sem fest hafa nú djúpar rætur um allt ESB - sjálf Stjarnan úr skilti Sovétríkjanna!

*Almenningur verður gólfmottur elíta. Ekta og góður kapítalismi er alltaf dis-orderly (subbulegur, eins og alvöru lýðræði)

Frakkinn Maurice Thorez á sovésku frímerkiMyndi óttast stofnanakerfi ESB, sem byggt er upp samkvæmt sovéski fyrirmynd (hugmyndagloría X-énarque-elítu-setuliðs Frakklands úr Ecole Nationale d’Administration) sem Frakkinn Maurice Thorez kom heim með í ferðatöskunni frá Moskvu Stalíns. Birtist hann að verðlaunum sem andlit á sovésku frímerki og rann því með sovéska stjórnsýsluna beint inn í ríkisstjórn Frakklands - og inn í ESB!

Myndi óttast stjórnarskrá Evrópusambandsins sem er sterkt sovésk og sem er uppskrift að einræði (a totalitarian concept)

Óttast æðsta dómstól Evrópusambandsins, European Court of Justice, sem byggir á laga-heimspeki sem líkist fæðingarvottorði hæstaréttar Sovétríkjanna. Hin lagalega uppskrift að einræði

Óttast myntbandalag ESB sem er skilvirkara en bein herseta og sem stofnað var til á forsendum Þýskalands með aðstoð X-énarque-elítu-setuliðs Frakklands

Óttaðist alltaf fráfarandi forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem var Trotskíisti eins og hinn fráfarandi ECB-seðlabankastjóri Triceht frá Lyon

Og einnig hinn núverandi forseta framkvæmdastjórnar þess, sem er yfirlýstur lygari

Þing Evrópusambandsins, sem er sovésk hugmynd að uppruna

ESB-elítu Íslands sem flestir voru og eru enn harðlífis kommúnistar og dá því ESB framar öllu. ESB er nýtt kaffi-export út í tóma komma bolla þeirra

Og í leiðinni - fyrst við erum að þessu - íslenskan seðlabankastjóra sem byltingarsinnaðan Maóista sem getur ekkert nema að höft og peningaleg stegla ríki

Sem almennur Rússi væri ég því allverulega óánægður með þróunina á meginlandi Evrópu - einu sinni enn

Og hver myndi svo sem lá honum það. Hann mun því bakka fast upp um ríkisstjórn sína, því til dæmis bara vopnapantanir vegna Úkraínudeilunnar eru að reisa við hergagnaiðnað Þýskalands - einu sinni enn - og er það bara byrjunin, því Úkraína er stærra landsvæði en allt Þýskaland

Marga marga skriðdreka þarf því þýski iðnaðurinn að framleiða handa Úkraínudeilunni í skjóli Evrópusambandsins. Og áttahundraðþúsund nýir þrælar eru á leið inn á þýsku verksmiðjugólfin, fyrir bara hálfa til fjórar evrur á tímann!

Hvað hefði frú Margaret Thatcher sagt við þessu í dag?

Úr þessa manns er því byrjað að svitna. Einu sinni enn!

Fyrri færsla

Er Þýskaland þá hlutafélag?


Er Þýskaland þá hlutafélag?

Sömu örlög eru nú að ganga yfir Grikkland undir Evrópusambandinu (European Union) eins og gengu yfir DDR Austur-Þýskaland undir Sovétsambandinu (Soviet Union). Landið er loksins að falla saman undir peningapólitísku fjárnámi- og hersetu Þýskalands

Eins virðist eiga að færa gríska alþýðulýðveldið inn undir sogrör þýskra elíta, eins og DDR var fært inn undir Treuhandanstalt elítu, sem saug öll verðmæti og landareignir til sín upp úr DDR

Þannig get ég ekki séð af hverju þessar mörgu 14 grísku flughafnir sem sagt er að sé verið að "einkavæða" undir hinu nýja Treuhandanstalti evrugengisins, sé kölluð "einkavæðing". Því að þýska hlutafélagið heima í Þýskalandi sem á að fá 14 flughafnir grískra skattgreiðenda til 40 ára - fjöru­tíu ára! - er að mestu í eigu þýska sambandsríkisins Hesse og ríkisverks Frankfurt (German State of Hesse og Stadtwerke Frankfurt!). Í raun er þetta auðvitað langþráður ESB-varnarsamningur Grikklands gegn velmegun e. hedging against prosperity

Þetta hlýtur að þýða það að Þýskaland sé hlutafélag. Ef Þýskaland er hlutafélag, þá hljóta skattgreiðendur hluthafanna þar í landi vilja vita hverjir eiga landið þeirra? Því þeir hafa ekki fengið kauphækkun þar í landi síðastliðin 15 ár, vegna viðstöðulausrar innvortis gengisfellingar Þýskalands í 15 ár. Og sem framkvæmd er vegna evrustyrjaldar Þýskalands gegn evrulöndum. Svo mikið þarf að spara til að vinna stríðið

En auðvitað munu götudómstólar Þýskalands og Bild fjalla nánar um málið áður en endanlega verður skrifað undir þetta ósamkomulag við gríska alþýðulýðveldið í Evrópusambandinu NSU

Hvernig var þetta annars með vestur-landamæri Póllands, frá könslurum og seðlabankastjórum Þýskalands séð, þar sem miðja landsins er nú loksins komin til DDR. En hvar er þá austrið okkar? Í hugum Þjóðverja sem skipta máli, eru þau landamæri alls ekki varanleg og síst af öllu á "réttum stað"

Sjá frétt Morgunblaðsins hér að neðan frá aðalstöðvum friðarbandalagsins

Fyrri færsla

Fræðimenn - hvað er það?


mbl.is Þjóðverjar taka við rekstri 14 flugvalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband