Leita í fréttum mbl.is

Ísland að hengja sig í reglu­verkareipi Evrópusam­bands­ins

Lögunum um hinn svo kallaða "innri markað" Evrópusambandsins var troðið í gegnum þjóðþing aðildarlandanna undir þeim fölsku formerkjum að hann ætti að fjarlægja tæknilegar viðskiptahindranir á milli landanna og koma í veg fyrir þær

Og hver varð árangurinn? Jú. Upp reis stærsta reglugerðarbákn nokkurs efnahagssvæðis veraldar. Gömlu Sovétríkin hefðu ekki komist með tærnar þar sem hælarnir eru á miðstýrðu reglugerðafargani hins innri markaðar ESB, sem er kenning skriffinna á blaði eins og kommúnismi Sovétríkjanna ávallt var í reynd fyrir borgarana

Sérhvert málasvið sem fært er undir miðstjórn Evrópusambandsins endar alltaf þannig að engin leið er að fá vald yfir þeim málum aftur. Og markmið Evrópusambandsins er einmitt að setja sig á ÖLL mál sem lúta að lífi, lífsmáta og dauða borgarana, sem lifa og deyja innan landamæra sambandsins og sem eru í sífelldri útþenslu undir fölskum og umboðslausum fána

Það er gleðilegt að sjá að Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn að gera sér grein fyrir því að jafnvel bara EES-tenging við Evrópusambandið er að verða jafn slæm fyrir Ísland eins og járntjald. Múr sem hækkar með hverjum myrklögðum regluverkadegi sem líður á alþingi Íslendinga, algerlega öndvert við markmið stofnunar lýðveldisins 1944 - og alla Sjálfstæðisstefnuna frá upphafi

Fjörutíu til fimmtíu miljörðum hent í EES-hafði í síðustu viku (líklega 500 miljörðum þegar upp verður staðið, sé þá yfir höfuð hægt að standa upp vegna EES-lömunarveiki) og leita þarf aftur til ársins 1987 til að finna þróttmikinn hagvöxt í raunhagkerfinu. Allir sem tengjast Evrópusambandinu verða fátækt, skriffinnsku og lömunarveiki að bráð

Það er eins gott að nýja norsk-íslenska síldin fyrir norðan land frétti ekki af þessu á næstu 30 árum, því þá mun hún einfaldlega drukkna úr hlátri

Fyrri færsla

Spurt er: Hvert er Rússland að fara?


mbl.is Vilja kaupskipin aftur til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Er að velta þessu fyrir mér og þurrka jafnharðan út,eftir að hafa lesið principheitið hennar Unnar Brár. Það er gott ef formaðurinn beitir sér,en svo mikið er víst hann verður að manna betur í flokknum. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.8.2015 kl. 02:08

2 identicon

Lögum um hinn innri markað.

Einkavæðing raforku fyrirtækja á Íslandi var með öllu ólögleg.

Ástæða einkavæðingar kom hvergi nálægt EES samningsins, þar sem Íslendingar hafa ekki tengst orkuneti EU.

Jafn viðkvæmt mál að Íslendingar hafa bundist samtökum sem stefna á einkavæðingu og afsal fiskveiði auðlinda sinna.

Geisp og ekkert skrítið að maður tali um fávitavæðingu ...

Leibbi Leibbs (IP-tala skráð) 23.8.2015 kl. 03:19

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þær eru slungnar leiðir ESB til að innleiða lögregluríki í þeim tilgangi að ráða niðurlögum þjóðríkja Evrópusambandsins og hins þjóðbernska afls þeirra (natal-energy), þannig að úr verði nýtt og fullkomið sovétríki undir löggum þeirra. 

Maður stendur bara með biblíu sósíalista (krata) í höndunum og er genetískt og fæðingarhálfvitalega sannfærður um að hægt sé að jafna út allt. Að allt verði lagt að jöfnu sem jafn-gott og endi sem eitt miðstýrt jafn-gott þeirra sem vita betur. Bara við vitum hvernig allt á að vera. Þetta er hinn innri markaður.

Svo er lögregluríkið í næsta fasa ESB innleitt enn frekar og fastar með því að ganga í gröf Schengen fyrirkomulagsins og fella með því niður girðingar innan réttarinnar (en ekki utan hennar), svo að hægt sé að láta lögregluríkið rísa enn frekar á fætur, því þá þarf að koma lögreglunni fyrir meðal borgarana inni í púðurtunnunni, í stað þess að hafa hana að stöfrum við gömlu girðingarnar til að hindra að púðurtunnan verði yfir höfuð til.

Þetta kemur. Púðurtunnur eru vinir okkar sósíalista. Þær þarf nefnilega að vakta. Og púðurtunnur okkar eru stórar og vaxa á veldisskala að afli.

Bara svo menn viti það, þá var sökkull hins miðstýrða yfirríkislega ESB sem við sjáum í dag lagður af Monnet og Salter eftir Fyrri! heimsstyrjöldina. Þvælan um Kol og Stálbandalagið var bara sölugas og PR-stunt sem tekið var í notkun á hentugum tíma til að skapa meðbyr eftir að Evrópusamband nasista Þýskalands og Parísarhluta Frakklands á öxli Lotharinga reynist svona illa - og sem verra er, skildi svo óheppilega eftir sig baneitraðan Le Cancer américain á meginlandinu. Svo nú er Evrópa í geislameðferð undir miðstjórn ESB. Allt mun verða gott og dautt.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2015 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband