Leita í fréttum mbl.is

Stærsta vandamál Evrópu er áfram Þýskaland

"Ég var kjörinn fulltrúi fólksins í Pittsburgh en ekki París"

- Donald J. Trump

Þeir sem neita því að Þýskaland sé stærsta vandamál Evrópu, gleyma því að öll Evrópa snýst einmitt um vandamálið Þýskaland. Búið er að segja okkur í samfellt 60 ár að svo sé. Og sem bein afleiðing þeirrar ályktunar er krafist þess að íbúar meginlands Evrópu samþykki að búið sé að umturna Evrópu yfir í það sem hún ekki endilega sjálf vill vera, en þarf að vera, er okkur og þeim sagt. Hún er orðin svona vegna Þýskalands. Heilt batterí af ólýðræðislegum stofnunum og pólitískt ólögmætum svikráðum í einmitt krafti þeirra, stýrir Evrópu núna. Það batterí er Evrópusambandið og elítur þess

Og Evrópusambandið var stofnað til að glíma við vandamálið Þýskaland, ekki satt. Þýskaland er sem sagt vandamálið. En nú hefur Þýskaland tekið vandamálið yfir og það sjálft er orðið Evrópa, að mestu leyti. Frakkar mega því nú sitja heima í landi sínu, sem í of lágreista rúst er lagt vegna myntar, yfirríkislegra stofnana og batterís sem þeim er enn sagt að séu tilkomin vegna vandamálsins með Þýskaland. Ekki satt

En nú hefur vandamálið það öðlast sitt eigið líf, þannig að verkum innan Frakklands núna eru virk öfl sem aðeins er hægt að líkja við þau virku öfl sem unnu saman með Þýskalandi í Síðari heimsstyrjöldinni: unnu með því við að "sameina" Evrópu". Framgangsmátinn er hins vegar annar í dag en hann var þá. En imperíal er hann samt. Adolf var imperíal-veldi kynþáttaelíta með heimsyfirráð í eftirrétt

Emmanuel Macron var sem persóna kjörinn forseti Frakklands um daginn. Það var hins vegar ekki pólitík hans sem var kjörin forseti. Þjóðin studdi ekki pólitík hans, heldur studdi hún persónuna Macron til að koma í veg fyrir að önnur persóna yrði forseti landsins. Umboð Macrons hjá sundraðri þjóð er því ekki mikið. Enda sýnir það sig í stjórnmálum Frakklands, núna strax, og langt aftur í fortíðina allar götur frá Frönsku byltingunni. Landið er á sinni fimmtándu stjórnarskrá síðan þá. Það segir okkur að eitthvað margt og mikið virkar ekki eins og vera skyldi innanborðs í Frakklandi, sem er á sínu fimmta lýðveldi. Hvað er að í Frakklandi fimmunnar og þeirrar fimmtándu?

Marcon hagar sé eins og kjáni gagnvart þeim sem hann skuldar flest. Hann gerir lítið úr forseta Bandaríkjanna og lítilsvirðir hann. Það voru Bandaríkjamenn sem kusu þann forseta sinn og það sem þeir kusu var einmitt pólitík hans, þrátt fyrir persónuna. Í engilsaxnesku lýðræði er málefnið ávallt stærra en maðurinn sem koma á því til framkvæmda. Slíkt stjórnarfar er mjög slæmar fréttir fyrir þá sem aðhyllast einræði og andlýðræðisleg öfl. Þannig að Macron forseti Frakklands er hér fyrst og fremst að ausa úr sér yfir sjálfa bandarísku þjóðina. Því hefur hann ekki efni á. Frakkland getur ekki staðið á eigin fótum. Hvorki í fjármálaheimi veraldar undir mynt Þýskalands, né í utanríkismálum, né í efnahagsmálum og allra síst í varnarmálum, nema með því að segja sig úr Evrópusambandinu fyrst. Landið hefur lítið að segja miðað við fyrri tíð, nema með því að annast fyrst og fremst sig sjálft og sína kjósendur, en ekki Evrópu sem er ekki til, nema sem landfræðilegt hugtak

Og annars staðar í Evrópu, á austri væng hennar, hugsa menn sitt. Þar eiga menn næstum engra sameiginlegra hagsmuna að gæta með Frakklandi og heldur ekki með uber-vandamálinu Þýskalandi. Austur-Evrópa getur staðið sjálf af því að Bandaríkin vilja það. En án hennar stenst Vestur-Evrópa hins vegar ekki. Og sérstaklega ekki með Macron sem forseta Frakklands, ef þetta er þá ekki bara enn eitt umboðslausa baby-face álfunnar að gera í sig, áður en andlitið frýs fast til er kaldur pólitískur veruleikinn frostbítur það af honum

Frakkland skuldar Bandaríkjunum óheyrilega eftir síðustu hundrað árin. Í 15 ára stríði er hófst sem árás á NATO-ríkið Bandaríkin árið 2001, var bandalagið í fyrsta sinn virkjað samkvæmt samningi sem til er vegna veldis Bandaríkjanna og sem þar í stendur: "allir fyrir einn og einn fyrir alla". En það fór samt þannig að Bandaríkjamenn máttu sætta sig við að heyja lengsta stríð í sögu lands síns að mestu einir, án virkra bandamanna að ráði. Tryggð er einungis tryggð þegar flest í veröldinni segir þér að þú eigir ekki að vera trúr einmitt núna, en þú ert það samt. Það er tryggð. Og Frakkland og Þýskaland brugðust bandamanni sínum er þau afneituðu vandamáli hans og létu Bandaríkin sitja ein, ásamt Bretum, föst í vandamálum næstu 15 árin

Þessu hefur forseti Frakklands ekki efni á. Og franska þjóðin veit það. En henni er hins vegar sagt að hún eigi áfram að lifa vanrækt sem grunnpólitísk eining landsins og mest á lygi. Á lyginni um Evrópu sem á ný orðin er næstum því Þýskaland. Of mikið Þýskaland. Of mikið vandamál. Of mikið næstum því óleysanlegt vandamál á ný

Þegar Macron segir eftirfarandi til að hæða og spotta forseta Bandaríkjanna: "Gerum heiminn mikilfenglegan á ný" (e. “Make our planet great again”) - þá er hann að segja: "fórnaðu landi þínu svo að heimurinn megi verða mikilfenglegur á ný". Hann segir hér með að heimurinn hafi verið mikilfenglegur vegna Bandaríkjanna. Það getur vel verið að einmitt það sé rétt hjá honum, en þá varð heimurinn aðeins þannig vegna þess að Bandaríkin sjálf voru mikilfengleg. Og þau urðu að vera það, til að geta haft eitthvað gott að segja

En enginn leiðtogi neinnar þjóðar í heiminum var kjörin, né verður nokkru sinni kjörinn, til að gera heiminn mikilfenglegan á ný. Enginn hefur umboð til slíks. Og enginn ætti nokkru sinni að reyna það. Því það er uppskriftin að helvíti á jörð. Það er aðeins hægt að vísa veginn og aðstoða aðra með svipuð viðhorf til að gera sín eigin lönd mikilfengleg á ný. Að þjóðin vísi veg með flottu fordæmi og það hefur Bandaríska þjóðin svo sannarlega gert. En það er greinilega ekki það sem forseti Frakklands hefur á sinni dagskrá. Hann er greinilega kominn til valda til að sparka dósinni enn lengra niður götu Evrópu til glötunar og inn í næsta lýðveldi Frakklands, í röð næstum of endalausra slíkra torgreinanlegra mistaka

Macron hefur ekki efni á að heyja neins konar stríð við Bandaríkin. Bandaríkin hafa hins vegar efni á að heyja stríð og styrjaldir og tapa þeim. Kerfið stenst það mjög vel því engilaxneska kerfið er ávallt stærra en einn maður. Þegar hins vegar Macron tapar stríði (deilum) við Bandaríkin, sem hann mun gera, þá hrynur um leið fimmta lýðveldi Frakklands, því Macron er stærri en pólitík þess. Þannig er nú það. Þannig kerfi hafa ekki efni á að tapa. Og þau geta næstum aldrei sigrað, vegna þess að þau eru bara einn maður

Evrópa nálagst 1914 hægt en örugglega á ný. Þökk sé Evrópusambandi þess. Það er þjóðfélagslega séð ólögmæt pólitísk eining. Það er hins vegar þjóðin sem er hin eina sanna pólitíska eining sem komin er til að vera. Það stendur svart á hvítu í Gamla testamenti Vesturlanda. Allt annað er rusl og létt bráð ömurlegra afla, eins og sést. Þetta endar ekki sérlega vel. Það er mín skoðun

Donald Trump hefur svarið þjóð sinni hollustu, með því að kyssa stjórnarskrá hennar á Biblíu Lincolns. Hann ætlar að gera Bandaríkin mikilfengleg á ný. Án aðstoðar Frakklands, Þýskalands, Evrópu og heimsins. Til þess var hann kjörinn og þannig urðu Bandaríkin til: þau gerðu sig sjálf. Þau eru og verða áfram Made in USA

Fyrri færsla

Þrír stórir hvellir þann 1. júní 2017


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá!!....hvílíkt svakalegt fífl sem þú ert kallinn!! Ég á varla orð!!!....og þú bjóst í þessu sambandi djöfulsins í 25 ár!!??....hvers vegna í ósköpunum??....af hverju varstu ekki í landi dýrðarinnar, Bandaríkjunum??!! Og þú dáist að fíflinu og sóðapésanum Trump!!?? The "grab them by the pussy man"!!!....verði þér að góðu!! Það er nú varla hægt að segja að óþverrinn Trump have verið kosinn, þegar Hillary fékk 3 milljónum fleiri atkvæði! Ekki með neinum glæsibrag alla vega! Þessi fantur er á eyðileggingarherferð gegn sínum eigin þegnum, með billjónera frá Wall Street í ráðherra embættunum! Sem er skítsama um the average Joe!! Skattalækkanir handa hinum ofurríku og niðurskurður á réttindum þegnanna! Maðurinn er fársjúkur viðbjóður!!

Jon Kristjansson (IP-tala skráð) 3.6.2017 kl. 18:55

2 identicon

Vandamálið hjá þér, Gunnar, er að þú talar um að Þýskaland fyrr hafi ætlað að "sameina Evrópu".  Þetta er algert þvaður ... hvaða hluti "Detuchland fuer Deutchen" er að sameina Evrópu? Alveg þver öfugt ... þeir vildu sameina þýsku ríkin, en Evrópa er ekki bara þýsk ríki ... hvorki þá né í dag.

Sameining Evrópu, er skipulögð morð á Evrópubúum ... ekki ætla ég að tala um ágæti þess, eða átala um hversu slæmt það sé ... Evrópa á sér stóran galla ... þar sem maður getur tæplega sagt að maður muni sakna þessara fífla ... en hvað sem því líður.  Evrópubúar eru eins og svalan ... þeir hafa mynda margar "svölu" tegundir, vegna einangrunar ... þessar svölutegundir geta aldrei sameinast aftur ... sameining Evrópu, er að "drepa" alla og sjá til þess að aðeins ein ... "súper" svala, verði eftir.

Með öðrum orðum, menn eru að hrinda í framkvæmd nákvæmlega sömu "holocust" og þeir ásaka Hitler um.  Og allur almenningur er sammála að "fjölmenning" er góð ... þó svo að þessi sama "fjölmenning" þýði gereyðingu einstakra svölutegunda.

Svo er hitt, sem margir "missa" í þessu samhengi ... þróun þjóða, manna og samfélagsins.  Átti sér mest stað, í Grikklandi hinu forna ... og ástæða þess, eru hinar gífurlega andstæður sem voru meðal grískra svæða ... andstæður sem unnu saman.  Samruni þessara ríkja ... urðu einnig endalok þess.  Sigur "trúnnar" yfir Rómarveldi, olli hungursneyð, fátækt og voru stærsti orsakavaldur hinna myrku miðalda.  Nútímin, varð til ... þegar menn gátu komið sér undan oki trúarinna ... og "samkeppni" átti sér stað ... samkeppni, sem leiddi til rígs og jafnvel styrjalda.

Fólki er kennt, að þessi "barátta" sé slæm ... en er það svo? Lífið sjálft, gengur út á hvað ... drepum við ekki lambið, til að geta étið það og lifað sjálf. Veiðum við ekki fiskinn, og rotum hamm og slægjum ... gengur ekki barátta lífsins út á að éta, eða verða étinn ... er ekki barátta lífsins, að mynda besta mögulega lífskosti ... svo að líf, haldi ávallt áfram.

Ef við myndum banna öllum að drepa lamb til að éta það ... og banna öllum að slá gras, eða á nokkurn hátt framfleyta sjálfum sér á kostnað annars lífs ... er það ekki "dauði" fyrir alla?

Með öðrum orðum, draumur "trúarinnar" er dauði yfir lífinu ... barátta, styrjaldir og þróun mankyns og þjóðfélaga ... er ástæða lífsins.

Þetta eru andstæður góðs og ills ...

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 4.6.2017 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband