Leita í fréttum mbl.is

Bandaríski flotinn tekur stjörnusiglingafræði upp á ný

Navigation aboard the guided-missile destroyer USS Stout

Mynd og frétt: NPR 22. febrúar 2016

Svo seint sem í fyrra var stjörnusiglingafræði tekin upp á ný sem námsefni í akademíum bandaríska flotans. GPS tæknin er óáreiðanleg, viðkvæm og komandi skotmörk í hverslags hernaði. Langt er síðan að til dæmis Rússar gátu brenglað GPS merki og gert þau að svo gott sem rugli

Það fólk sem alið hefur allan sinn mann í borgum er orðið svo heimsku-hættulegt að það stefnir heiminum í hættu. Því lengra sem borgarfólk fjarlægist sveitina, hugsun og vitran lífsmáta byggðan á landnematilfinningu og lífsnauðsynlegri svartsýni í lífinu, því heimskara og óhamingjusamara verður það. Sokkinn skipafloti bjartsýnisfólksins liggur því enn á sjávarbotni við strendur Noregs. Ekkert land það fólk nam. Í dag situr það króknað fast í föl á heiði

Nýjasta dæmið um þannig heimsku eru "sjálfkeyrandi bílar". Þetta er svo heimsk hugsun að hún er orðin viðtekin sem staðreynd í hugum þeirra sem orðnir eru malbikaðir bjálfar

Tölvu og hugbúnaðarfólk veraldar er búið að byggja upp heim sem þolir ekki að hann sé notaður, né hvað þá að tækni þeirra sé notuð í mikilvæga hluti né trúað fyrir neinu mikilvægu. Að brjótast inn í ónýt kerfi er það sem er að gerast dag hvern. Svo ömurlegur er minnisvarði þessi. Þeir sem þekkja þennan heim best vita að þetta er rétt. Annars þekkja þeir alls ekki heiminn sinn

Þegar fjárkúgunarhugbúnaður glæpalýðs veraldar birtist á tímatöfluskjáum lestarkerfa stórborga og á skurðstofum sjúkrahúsa, þá veit maður að núverandi mest úrbreiddu hugbúnaðarkerfi heimsins eiga ekki nema 10 ár eftir ólifuð í

Þeir sem bjuggu þennan hugbúnað til voru bjálfar og þeim hefur mistekist í allra lægstu þrepum erfiðleikaskalans. Yfirbygging þeirra er því rusl sem þolir ekki notkun

Donald Trump sigraði yfirgnæfandi stórt í persónulegum atkvæðafjölda í Bandaríkjunum öllum, ef að New York og stórborgir Kaliforníu eru teknar út. Það segir okkur að landnemasál Bandaríkjanna er enn ekki orðin geðveik, ef litið er burt frá ófrjósömum alþjóðaelítum úrkynjarða stórborga. En þær elítur hafa misst vitið, eða jafnvel aldrei frá fæðingu haft það. Í Brexit-kosningunum var sagan sú sama. Bretar eru enn óbrjálaðir, nema í borgarvirkjum gegn veruleikanum

Þeir sem muna Búrfell hér heima muna hvernig þessi landnemahugsun er. Hún er varfærin og þjóðfélagsleg, tekur mið af því sem getur gerst mörgum skerfum síðar og flanar ekki út í sjálfsmorðsborgarlínur sem liggja inn í gaukshreiður grasasna í sjálfkeyrandi apabúrum. Þar sem yfirlæknirinn er stanslaust í ímyndaðri ferð til Mars að skoða hundrað milljón drepnar klukkustundir Sigmundar Freud, sem liggja ofan á hundrað milljón líkum Karls Marx, borandi í nef sitt - svo nefndar séu bara tvær yfir-þvælur tuttugustu aldarinnar sem komu úr sömu skúffu og sjálfkeyrandi vitsmunalegar drepsóttir nútímans eru fastar í

Það er millistétt okkar með landnemahugsun sem byggt hefur Ísland upp og það sama gildir um Bandaríki Norður-Ameríku. Og það er hún sem fjármagnar mesta herveldi mannkynssögunnar, þar sem eitt sykki af öllu strategískt mikilvægu kostar milljarða dala

Utanríkisráðherra okkar er sennilega orðinn algert borgarbarn. Hann heldur að NATO sé sjálfkeyrandi banki sem hægt er að taka allt út án þess að leggja nokkuð inn

Krækja: U.S. Navy Brings Back Navigation By The Stars For Officers

Fyrri færsla

Verður Norður-Kórea ríkt land?

Myndband: Stjörnusiglingafræði 1942


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þessi pistill þinn er klár snilld, og skáldmæltur ertu í þokkabót.

"Það fólk sem alið hefur allan sinn mann í borgum er orðið svo heimsku-hættulegt að það stefnir heiminum í hættu. Því lengra sem borgarfólk fjarlægist sveitina, hugsun og vitran lífsmáta byggðan á landnematilfinningu og lífsnauðsynlegri svartsýni í lífinu, því heimskara og óhamingjusamara verður það. Sokkinn skipafloti bjartsýnisfólksins liggur því enn á sjávarbotni við strendur Noregs. Ekkert land það fólk nam. Í dag situr það króknað fast í föl á heiði".

En ég fór að hugsa í gær þegar ég kíkti við hjá þér eftir nokkuð hlé, og sá að þú ert bjargfastur á yfirburði USA í komandi heimsátökum, og gott og vel, það er rétt að ekkert annað ríki hefur þá burði sem það ágæta land hefur.

En þegar frjálshyggjan knúði áfram Bandaríkin með því eina markmið að gera yfirstéttina ríka, óháð landshag, og kosning Trumps var andóf gegn, að þá var grunnframleiða landsins eyðilögð, og framleiðslubæirnir álíka draugalegir og námubæjar Klettafjalla.

Er einhver hátæknihlutur framleiddur í Bandaríkjunum í dag, sem treystir ekki á íhluti frá annað hvort Taívan eða Kína??

Er ekki sá sem er háður meintum óvini (það þarf aðeins eina bombu til að rústa örflöguframleiðslu Taívan) um aðföng, einfaldlega risi á brauðfótum??

Datt í hug að spyrja því ég svör þín eru ætíð fróðleg.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.5.2017 kl. 09:38

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir innlitið og skirf Ómar.

Já, Biblían og sérstaklega Gamla testamentið er enn framleidd og framreidd í Bandaríkjunum. Bókin hans Lincolns. Og ég hef tekið eftir því að Trump virðist vel að sér í stjórnmálafræði Gamla testamentisins, sem byggði upp Vesturlönd. Í Bandaríkjunum er ekki hægt að taka þátt í stjórnmálum án þess að þekkja vel til þessarar bókar.

En já Ómar, millistéttin í Bandaríkjunum er ekki knúin áfram af hugmyndfræðilegum þvættingi menntaelíta um "frjálshyggju" sem urðu til í úthverfum stórborga upp úr 1970. Hún hefur aldrei verið viðriðin þann lokaða gerviheim fræðimanna. Henni er andskotans sama um þó einhver sé ríkur, jafnvel ofsaríkur og að það ríki þokkalegur ójöfnuður í Bandaríkjunum. Það er henni alveg nákvæmlega sama um. En henni er ekki sama um að vera ýtt út úr því millistéttarlífi sem gerðu Bandaríkin þeirra að stórveldi. Það fyrirgefur hún aldrei. Og án hennar eru Bandaríkin í djúpum vandræðum. 

Hvað varðar íhlutina þá eru þeir að sumu leyti framleiddir í deildum bandaríska hagkerfisins í útlöndum, undir bandarísku eftirliti. Það tímabil er á enda. Þjóðarhagsmunir Bandaríkjanna (já þjóðríkið), brútal og naktir, eru loksins vaknaðir til sjálfsmeðvitundar á ný. Millistéttin sem er hryggsúlan í þjóðríki Bandaríkjanna er svo reið að hún mun ekki líða glóbal elítum stórborganna að ríða sér í afturendan á ný og skilja sig eftir í fjóshaug á meðan elítan sjálf ekur sem uppsafnaður, sjálfkeyrandi og haugdritandi skítakamar um allt landið.

Það væri nú aldeilis gleðilegt ef að rústa tækist grundvallarmistökum tæknigeirans með einni andskotans bombu. Það væri mjög þarft verk. Ég lifi í og á þessum geira veit hvað hann er mikið rusl. Það þarf nýtt að koma til. Og það nýja mun verða til í Bandaríkjunum. Ekki sem útlenskt samansettur íhlutur, heldur sem grunnrannsókna-árangur stærstu rannsóknarstofu veraldar og sem er í einkaeigu fyrirtækja bandaríska hagkerfisins. 

Krabbmeinsrestar tæknigeirans í glóbelli elíta má því fara til fjandans fyrir mér. Bombið bara draslið fyrir mér. Það er allt saman handónýtt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 10:21

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta sannar það að öflugustu ríki heims eru að gera ráð fyrir Global war. Það er ekki vafa mál að nú er tími að styrkja böndin við USA og Rússland en við eruð ekki hult með ESB enda eru þeir komnir í alla innviði okkar með sitt Glóballista fólk.  Ég vil skipulagðar aðgerðir gegn Vinstra liðinu sem eru Globallistar án þess að allir vita það almennilega. Eitt barnabarn mitt segir flesta kennara vera vinstralið en þar er hreinlega kennd vinstri fræði og það í skólum landsins þessi er 14 ára. Tökum Krakka fréttir sem eitt dæmi. Engin getur barist við RÚV. 

Valdimar Samúelsson, 31.5.2017 kl. 10:47

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður aftur Gunnar.

Orðanotkun mín um frjálshyggjuna var aðeins tilvísun í þann hagfræðiskóla sem mótaði efnahagsstefnu USA frá því á níunda áratugnum, og til dagsins í dag, og sá hagskóli var um leið drifkraftur Globalvæðingarinnar.  En það er örugglega rétt hjá þér að bandarísk millistétt var ekki mikið að spá í forsendum loforðanna um betri lífskjör, en í dag er hún örugglega að spá í afleiðingarnar.

Og ég get ekki að því gert að mér finnst vera dilemma í þessum rökum þínum að fólk sé ekki að spá í forsendur ríkdæmis, ef viðkomandi ríkdæmi ógnar fjárhagslegri tilveru þeirra, sem og styrkleika lands þeirra.  Það hefur ekki farið fram hjá mér Gunnar að þú ert harður gagnrýnandi afleiðinganna.

Og það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Varðandi þetta með bombuna, þá veit ég svo sem ekki alveg hvernig staðan er í dag, en í kjölfar jarðskjálftans mikla á Taivan þarna um árið, þá reis upp panikbylgja, hvar eigum við að fá örflögurnar?, og þá kom það fram í fréttum að aðeins eitt fyrirtæki var eftir í Silikon dalnum sem framleiddi þær, en sú framleiðsla var á fallandi fæti.  Get meir að segja ennþá flassað upp mynd einni í grein þar sem fjallað var um leyndarmálið sem að bak lág um velgengni Taivans, en það var hörkuduglegar ógiftar konur sem unnu að baki brotnu til að safna sér inn aur áður en þær stofnuðu heimili.  Það er það fór saman, gæðavinnubrögð, og ekki svo mjög hár launakostnaður.

En þú skautar framhjá spurningu minni Gunnar, það þarf fyrst að þróa nýja tækni, áður en menn geta sagt skilið við þá gömlu.

Og ég fæ ekki betur skilið skrif þín, sem vísa í up to date atburði, að það stefni í stríð.

Og hvernig getur land farið í stríð við birgja sinn og unnið??

Treysta á Þjóðverjana?  Nei bara djók.

En ég spyr því ég er mikið að velta þessu fyrir mér.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.5.2017 kl. 11:31

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar

Hvað varðar "hagfræðina" sem þú talar um, þá gat hún ekki komist til framkvæmda nema með og í krafti utanríkispólitíkur sem var bein afleiðing Kalda stríðsins. Glóballar-elítan úr stórborgunum tók þetta síðan sem gratís hlaðborð til sín og inn í ónýtar kenningar sínar, skrefinu lengra til fjandans, og úr varð glóballar fjármálageiri á sterum sem klessukeyrði veröldinni 2008.

Hvað varðar örflögur og annað í tæknigeirann þá hefur framleiðslustaðurinn ávallt einungis verið spurning um verð og utanríkispólitík þeirra stórbæjarelíta sem aldrei hafa unnið þarft verk og sem ég tala um hér að ofan. Spurningin er ekki og hefur aldrei verið um það að ekki sé hægt að framleiða hlutina annarstaðar.

Þetta er svipað og með svo kallaða "olíukreppu" 1974 og svo næst "sjaldgæfa málma" í Kína í hráefnabólunni sem nú er varnalega hrunin. Það mál er, var og verður alltaf spurning um verð og tækni. Það er nóg af þessu öllu í Bandaríkjunum og nágrenni þeirra á Vesturhveli jarðar.

Hvort að það vanti hluti í síma og prentara og tölvur er bara smá aðlögunarspursmál sem líður hjá á nokkrum mánuðum.

Þegar náttúruhamfarir og slíkt ríða yfir þá er það dæmt til að raska hlutunum um stund. En í fréttum glataðra fjölmiðla verða svo til tröllasögur til að selja músarsmelli um ófáanlega hluti sem yfirnáttúrlegt Kína í þeirra augum aðeins hefur. Þetta er sprenghlægilegt.

En segja má að hagfræðin sem komst á koppinn í háskólum Vesturlanda frá og með 1985 sé að miklu leyti  frekar fölsk fræði. Þetta er lokaður heimur sem eingöngu getur talað innbyrðis. Þetta er ekkert sem neinn nennir að hlusta á og of margt þar inni er jafn glatað eins og ofurstrengjakenningar kjarneðlisfræðinga. Þetta eru að sumu leyti munkaklaustur nútímans. Það sem er komið aftur er geopólitískur raunveruleiki þjóðríkjanna og grunngildi í bæði hugsun, tækni, fjárfestingum og öðru. "Trader mentality" hefur ekki séns í veröldinni lengur. Það tíabil sögunnar er búið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 12:02

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Valdimar fyrir innlit og skrif.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 12:03

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Allir almennilegir skólar, sem kenna siglingafræða, kenna nemendum að finna út stað skipsins með "sextant" og öðrum tækum (miðunarskífum og fleiru).  Því menn eiga að geta unnið sín störf um borð í skipunum ef tölvutengdu tækin bila.

Jóhann Elíasson, 31.5.2017 kl. 12:46

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður aftur Gunnar.

Svona til að það valdi ekki misskilningi þá hef ég ekkert á móti ríku fólki, svo framarlega sem það lætur mig og samfélag mitt í friði, og forsenda auðsköpunar þess sé eitthvað sem tengist framleiðslu verðmæta, en ekki afrán.  Þess vegna hef ég ekkert á móti borgaralegum kapítalisma, tel hann reyndar forsenda velmegunar og velferðar. Hins vegar er ég lítt rifinn af lénstíma, bæði þeim gamla sem og hinum nýja, og mér er slétt sama hvað orðagjálfur ræningjabarónarnir nota til að réttlæta gripdeildir sínar, en þarf samt að virða hvað aðrir kalla ósköpin, þó ég noti mitt tungutak, og þú greinilega þitt. 

Um afleiðingarnar erum við algjörlega sammála.

Og það sem þú segir hér að ofan er allt gott og gilt, það er ekkert náttúrulögmál að baki því trendi að færa heimsframleiðsluna í þrælabúðir þriðja heims, og allur arðurinn renni í vasa auðs án landamæra.

En engu að síður er málum svona háttað í dag og ég sé ekki tímalínuna í því að hætta á stríð við birgjann í mjög náinni framtíð, og endurreisa framleiðsluna heima fyrir í millitíðinni.

En hvað um það, verð að peista þessu líka, I love it;

"Tölvu og hugbúnaðarfólk veraldar er búið að byggja upp heim sem þolir ekki að hann sé notaður, né hvað þá að tækni þeirra sé notuð í mikilvæga hluti né trúað fyrir neinu mikilvægu. Að brjótast inn í ónýt kerfi er það sem er að gerast dag hvern. Svo ömurlegur er minnisvarði þessi. Þeir sem þekkja þennan heim best vita að þetta er rétt. Annars þekkja þeir alls ekki heiminn sinn

Þegar fjárkúgunarhugbúnaður glæpalýðs veraldar birtist á tímatöfluskjáum lestarkerfa stórborga og á skurðstofum sjúkrahúsa, þá veit maður að núverandi mest úrbreiddu hugbúnaðarkerfi heimsins eiga ekki nema 10 ár eftir ólifuð í

Þeir sem bjuggu þennan hugbúnað til voru bjálfar og þeim hefur mistekist í allra lægstu þrepum erfiðleikaskalans. Yfirbygging þeirra er því rusl sem þolir ekki notkun".

Takk fyrir spjallið Gunnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.5.2017 kl. 12:55

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Jóhann - og þakka þér fyrir.

Sjálfkeyrandi bílar með sextant í þoku verður skemmtileg sjón. Og þegar hámarkshraðinn í landinu verður lækkaður niður 10 km á klukkustund og formenn Alþýðusambands sjálfkeyrandi bíla fara með börnin sín á hestum í leikskólann því þeir vita hversu mikið drasl kerfið þeirra er og myndu því aldrei aldrei treysta því fyrir afkvæmum sínum, sem eru að verða svo allt of sjaldgæf í dag.

Allt saman vegna þess að örgjörvabransi veraldar í dauðateygjum framleiðslu án hagnaðar, þarf bráðnauðsynlega að troða draslinu sínu í bifreiðar til að halda sér á lífi.

Landsframleiðslan gæti dregist saman um svona 30 prósent og lönd dundað sér við þjóðargjaldþrotin sín. Allt vegna einhvers sem enginn lifandi maður með fullu viti hefur nokkru sinni beðið um. Frelsistákn einstaklingsins getur þá loksins aftur orðið hestur.

Við hliðina á þessu vegakerfi asna er þá hægt að byggja hestabrautir nútímans. Wall Street gæti jafnvel tekið  eitt hopp í einn sólarhring í nýjum hestvögnum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 13:07

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir Ómar. Þetta var ánægjulegt.

Góðar kveðjur austur til þín og þinna

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 13:13

11 identicon

Sæll 

Góður pistill og þörf pæling. 

Merkilegt þótti mér að heyra yfirlýsingu Microsoft forstjóra við "cry me a river" randsom búnaði. Hann vil stofna Net UN!

Fyrir utan hvernig það fyrirbæri mundi virka þá virðast fáir taka eftir því að forstjórinn er með þessu að reyna þurka út margra ára vanhæfni og viðvaningshátt við smíðar á stýrikerfum. 

Þessi framtíðarsaga mun verða sögð aftur og aftur ef þessi hugsun ræður framtíðar forsendum tækniuppbyggingar.

Ungur maður slasaðist illa er sjálkeyrandi bíll MS keyrði út í hraun. Hann hafði komið sér hæglega fyrir aftur í bílnum sem var að skila honum í flug til Keflavíkur. Bíllinn var rétt við hámarkshraða þegar skyndilega birtist aðvörunar-skilti á tölvuskjá í mælaborði bílsins. Farþeginn þurfti að píra augun úr aftursætinu, þar sem hann lá með kampavínsglas á leið sinni á viðskiptaráðstefnu snillinga, til að lesa á skiltið á skjánum. "Tölvunni þinni hefur verið rænt! Leggðu 3 ShitCoin inn á reikning xxx í aðalútibúi Búnaðarbankans á Langanesi. Eigðu góðan dag :).

Eða circa

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 31.5.2017 kl. 17:53

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Sigþór.

Já þetta er grátlega sprenghlægilegt aðalsmerki MS. Af krabbameinum geirans skulu menn þekkja þá.

Það versta er að þetta er ekki einu sinni 1 prósent af því sem við blasir í þessu máli svartra miðalda tölvunargeirans, sem enginn hefur beðið um.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 23:28

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það verður að koma því hér að að Ómar Geirsson hefur rétt fyrir sér varðandi margt hér.

1) Þegar menn byrjuðu að taka hin stóru 1950-mega-fyrirtæki Bandaríkjanna og hagræða þeim með endalausum uppstokkunum og aðskilnaði í hinar ýmsu sjálfstæðu einingar í ferli sem náði hámarki í glóbal geggjunar fjármálabólunni sem endaði 2008, þá gerðist það að:

2) Næstum allur afraksturinn af því langa ferli rann í vasa fámenns hóps þjóðfélagsins og millistéttinni var hent af rúllustiganum sem áður tyggði henni leið upp í stað stöðnunar eða niðurleiðar eins og nú.

3) Útkoman er sú að millistéttin sem fellur af rúllustiganum varð í hvert einasta skipti sem hún missti vinnuna að byrja í fyrsta þrepi rúllustigans á ný. Og þegar fyrirtækin eru í endalausum uppstokkunarferlum þá verður þessi staða millistéttarinnar óbærileg. Þetta fyrirgefur hún ekki. 

Og þetta gengur ekki upp. Og það vita menn núna. Og það er meðal annars þetta sem ríkisstjórn Donalds Trumps gengur út á að breyta. Það er engin afsökun lengur til fyrir því að brjóta svona hinn "þjóðfélagslega samning" sem allir eru fæddir inn í. Það gengur ekki upp fyrir neinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2017 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband