Sunnudagur, 15. apríl 2018
Rússar hafa misst tökin
Í annað sinn á stuttum tíma kemur upp grafalvarlegt mál með kúnna Rússlands í Sýrlandi. Í fyrra sendu Bandaríkin flugskeyti á lið Assads í Sýrlandi, eftir að það beitti eiturefnahernaði á blásaklaust fólk. Rússland hélt þá í höndina á Assad-stjórninni. Flestir ályktuðu þá sem svo, að Pútín hefði greinilega litla stjórn á þeim sem hann studdi
Á laugardag sendu Bandaríkin og! Frakkland og Bretland nýja hrinu flugskeyta á efnavopnabúr Assads-stjórnarinnar. Og í þetta sinn heldur Rússland enn fastar um hönd kúnnans og hefur að miklu leyti leitt hann til sigurs. Rússland heldur bókstaflega sigurhönd kúnnans á lofti núna. Eða svo virðist vera. En samt gerist það á ný að eiturefnavopnum er beitt á blásaklaust fólk, einu sinni enn. Hvað er að? Hvað er að gerast?
Jú það sem er að gerast er líklega þetta; Rússland var þegar byrjað að missa stjórn á Assad-stjórninni í fyrra. En síðan þá hefur enn einn aðilinn bæst fastar við jöfnuna. Aðili sem miklu máli skiptir fyrir flest í heimshlutanum. Þessi aðili er klerkaveldi Írans. Assad er þeirra maður
Staðan er í raun orðin sú að Rússar hafa ekki bara misst stjórn á Assad, heldur hafa þeir líka misst stjórn á Íran. Rússneska slökkviliðið ræður alls ekki við eldinn lengur og er því sem næst orðið að brunaliði í heimshlutanum. Það er nær öruggt að Rússar höfðu ekkert með efnavopnaárás Assads að gera, svo vitlausir eru þeir ekki. En nú hafa þeir tvöfaldar eitur-slettur frá kúnnanum á höndum sínum. Og það er ekki traustvekjandi fyrir neinn
Ergo: fjandinn sjálfur er að verða laus í heimshlutanum: þ.e. Íran og félagar þess, sem breiða munu út hin verstu vopn; þar á meðal eiturefnavopn. Landbrú Írans til Miðjarðarhafs og þar með til Ísraels, er komin til að vera. Og hún verður notuð. Loftárás Ísraels á herstöð Írans í nágrenni Palmyra í Sýrlandi um daginn, var líklega árás á enn eitt skrímslavopnabúrið. Þessa brú hafa Rússar lagt, en sennilega án þess að gera sér að fullu grein fyrir því. Stuðningur Rússlands við Assad átti einungis að veita því aukið vogarstangarafl gegn Bandaríkjunum á heimsvísu, sökum þess að Rússland er sökkvandi -en ekki rísandi- ríki í veraldarhafinu. Hvað gerist næst?
Með því að láta alla aðila bíða nógu lengi eftir árásinni með aðstoð löngu liðinnar tíst tilkynningar -um árás sem var óskilgreind, ótímasett og loðin- hefur Bandaríkjamönnum sennilega tekist að kortleggja betur hver er hvar í jöfnunni og hvað þeir hræðast mest, þ.e. hverjar eru fyrirætlanir þeirra; í hvaða skotstellingar menn setja sig og hvert er hefndar-skotmark þeirra, ef til kemur; hvað er þeim dýrmætt; hversu langt hyggjast þeir ganga; hver stendur með hverjum og hverjir tala saman og ekki saman; hverjar og hvar eru dýrmætar hernaðarlegar eigur þeirra, sérstaklega þær eitruðu. Hver þolir óvissuna, biðina, verst; hver er hræddastur, því enginn vissi hvar slegið yrði til og gegn hverju. Yrðu t.d. rússnesku loftvarnarkerfin tekin út eða ekki
Fyrri færsla
Bandaríkin, Frakkland og Bretland tíndu upp rusl í nótt
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2018 kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 14. apríl 2018
Bandaríkin, Frakkland og Bretland tíndu upp rusl í nótt
Merkel svaf í bankanum í nótt og Katrín í Útópíu
Sagt er að Angela Merkel hafi sofið með rúblusæng yfir sér inni í hvelfingu þýska seðlabankans í nótt, sem kyntur er upp með rússnesku gasi. Í dagbók sína skrifaði hún að þýski gullforðinn væri líklega of þungur til að hægt sé að varpa honum á efnavopnaframleiðslu Sýrlands. Og að slík aðgerð myndi bara fjölga "flóttamönnum" inn í Þýskaland og þar með þrýsta kjósendum samstundis út úr CDU-flokki hennar líka. Inn og út jafnan, debet og kredit. En CDU-flokkurinn hennar er nú aðframkominn af (ó)gleði yfir gangverandi Tyrkjaráni Merkels í Þýskalandi
Það voru sem sagt burtflogið Bretland úr ESB, Frakkland og Bandaríkin sem tóku til í heiminum í nótt, en ekki Angela Merkel. Fyrir Frakkland er Bretland nú að verða betri strategískur samstarfsaðili en Þýskaland
Háð sumra þýskra manna er svo mikið og sárt að sumir þeirra hafa sagt, að Þýskaland sé ekki með í neinu, en ef hins vegar nógu hart sé þrýst, þá væri jafnvel mögulegt að kreista þá játningu fram í Berlín, að Þýskaland haldi jafnvel enn að það sé bandalagsþjóð með þeim þjóðum sem það ætlist til að verji sig
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands er hins vegar of hrædd við lífið til að geta tekið þátt í því. Hún hefur því valið sér og flokki sínum fasta búsetu í Útópíu, þar sem lífið er gamli góði marxisminn og fólkið andar sjálfviljugt að sér grænu eiturgasi nýmarxismans, því það rauða varð skyndilega uppselt
Seinkuð árásin hefur afhjúpað að Rússland er nakið á hundasundi sínu um heimshlutann. Eina sundfæra leiðin fyrir það núna er heim, þ.e. ef Trykir hleypa þeim heim á Bosporussundinu. Rússneski rað-kúnninn Assad-Sýrland kemst ekkert og Íran mun ekki gefa nýfengið klerkavald sitt eftir á landbrú þess yfir til fastrar sjía-íslam návígis-skotstöðu á Ísrael, sem yrði þá nýtt Gaza-svæði á útidyratröppum Ísraels í Suður-Sýrlandi. Rússlandi er hér með komið fyrir í föstu sæti á kamri, sem ekki verður tæmdur á næstunni. Norður-Kórea svitnar og líst ekki vel á að rauðlínuvarsla Trumps komi bara sí svona til framkvæmda eins og lofað var. Fyrirrennarar hans voru ekki svona. Og heldur ekki fyrirrennarar Macrons
Hér gerir bandaríska varnarmálaráðuneytið grein fyrir atburðum næturinnar, með frönskum og breskum bandamönnum sínum
Fyrri færsla
Svefngenglar koma ekki af stað styrjöld
![]() |
Eins og best verður á kosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. apríl 2018
Svefngenglar koma ekki af stað styrjöld
Auðlegð þjóðanna: Nýjasta stálstykkið á 1700 miljarða króna hóf sjópróf sín í fyrra. Þetta er enn eitt bandaríska ofurstálstykkið í röð ellefu slíkra. Aðeins 153 ár eru liðin frá því að Bandaríkin lágu í rústum borgarastyrjaldar. Ekkert annað ríki mannkynssögunnar hefur ráðið ríkjum á öllum höfum jarðar samtímis. Millistéttin er hryggsúlan
****
Fyrri heimsstyrjöldin skall ekki á vegna fyrst og fremst svo kallaðra "pólitískra svefngengla"
Kerfislægar styrjaldir verða fyrst og fremst vegna þess að ný ríki (veldi) eru að ryðja sér til rúms í veraldarhafinu. Og svo einnig vegna ríkja (velda) sem eru að sökkva í hinu sama pólitíska hafi heimsins
Fyrri heimsstyrjöldin varð vegna þess að þrjú ný ríki voru að ryðja sér til rúms í heiminum: 1. Japan, 2. Þýskaland og 3. Bandaríkin. Önnur ríki (veldi) voru þvinguð til hliðar og það gekk ekki þegjandi og hlóðalaust fyrir sig. Þegar skipan heimsmála riðlast, þá er um meiriháttar afleiðingar að ræða
Allir sem hugsuðu hefðu átt að vita að stofnun Þýskalands 1871 myndi hafa stórkostleg áhrif á önnur ríki í Evrópu og á heiminn allan. Það sama gildir um Japan. En það sem skipti mestu máli voru hin nýju Bandaríki Norður-Ameríku í vestri
Frá lokum borgarastyrjaldar Bandaríkjanna 1865 og á næstu 40 árum þróuðust þau úr stríðshrjáðu landi, yfir í að framleiða helming alls þess sem framleitt var í heiminum árið 1900. Já, stríð geta stundum leyst mál. Þarna urðu Bandaríkin ein ósundrandi þjóð. Blek á pappír á borð við sjálfstæðisyfirlýsingar býr ekki til þjóðir. Það gerir hins vegar blóð, sameiginlegar þjáningar og trú, saga, tungumál og áföll
Ris Bandaríkjanna kostaði önnur ríki stöðuna sem heimsveldi. Og það voru Bandaríkin sem í fyrsta skiptið í mannkynssögunni sendu milljón manns úr nýja heiminum yfir í gamla heiminn til að koma í veg fyrir að ein pólitísk eining myndi ráða yfir samfelldum landmassa frá ströndum Atlantshafs til Kyrrahafs, sem ógnað gæti hinu nýja lýðveldi Bandaríkjanna með tvennum vígstöðvum. Þetta endurtóku þau stuttu síðar í seinni fasa sömu styrjaldar
Í dag eru það bæði sökkvandi og rísandi ríki (veldi) sem móta söguna. Evrópa er að anda út sínum síðasta anda sem fyrrverandi ofaní fyrrverandi safn velda á borð Egyptaland hið forna. Evrópa réði heiminum í samfellt 500 ár. Sá tími er liðinn núna
Rússland er að sökkva sem síðasta veldið í Evrópu sem einhver áhrif hefur í sínum heimshluta. Með falli Sovétríkjanna féll síðasta veldi Evrópu sem hafði áhrifavald um allan heim; þ.e. heimsáhrif. En Evrópa hefur ekki lengur neitt heimsáhrifavald í neinum mikilvægum málum. Það er rétt svo að um heimshlutavald er að ræða, þegar menn nefna Evrópu á nafn. En án Bandaríkjanna getur Evrópa ekkert, því Evrópa er ekki eitt-ríki og getur ekki orðið eitt-ríki og verður aldrei eitt-ríki. Þannig er staða Evrópu orðin í dag
Og nú virðist tími Rússlands og Þýskalands kominn til að hverfa af sögusviðinu sem heimshluta-veldi. Það mun ekki ganga þegjandi og hljóðalaust fyrir sig. Ekkert getur stöðvað þetta ferli, sýnist mér
Næstu 500 árin í mannkynssögunni verða í nafni Bandaríkja Norður-Ameríku. Austurhvel jarðar, gamli heimurinn, er að brotna upp í pólitískar öreindir
Í síðustu færslu spurði ég: "Er það kannski einber tilviljun að gengi gjaldmiðla Rússlands, Tyrklands og Írans (Sýrland-potturinn) er á hraðri niðurleið, gagnvart Bandaríkjadal?
Ef þetta er ekki tilviljun, hver skyldi þá samnefnari þessa sameignlega gengisfalls þessara þriggja gjaldmiðla vera?"
Svarið er þetta; Þessi þrjú ríki eru andsnúin Bandaríkjunum. Það er það sem er að gerast. Slíkt er heimsáhrifavald Bandaríkjanna að erfitt er að sameinast gegn þeim. Það kostar. En hér er ekki um vísvitandi aðgerð af hálfu Bandaríkjanna að ræða. Heldur er þetta einungis dæmi sem sannar hvað það getur kostað að sameinast gegn Bandaríkjunum. Markaðurinn hugsar sitt og leitar í skjól tilvistarlegs öryggis. Slíkt pólitískt tilvistaröryggi er nú aðeins að finna á Vesturhveli jarðar í dag. Og svo mun verða um langa framtíð. Austurhvelið -gamli heimurinn- er að brotna upp
Almenningsálit hefur aldrei verið áhrifavald í heiminum. Það er eins og andvari eða goluþytur. Soft-power er einungis háskóla-fetismi til að breiða yfir ekkert-vald. Mjúkt-vald án raunverulegra valda er ekkert-vald
Fyrri færsla
Landgönguher í Japan endurreistur. Gengisfall ríal. Suðan í Sýrlands-pottinum. Þokubakkar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2018 kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. apríl 2018
Landgönguher í Japan endurreistur. Gengisfall ríal. Suðan í Sýrlands-pottinum. Þokubakkar
Mynd Reuters: Frá vígsluathöfn landgönguliðs Japans í Sasebo þann 7. apríl 2018. Heimahöfn USS Wasp er einnig í Sasebo
****
Japanska ríkið, sem telur 6852 eyjar, þar sem búið er á 430 þeirra, hefur nú endurreist landgöngulið sitt. Þetta er í fyrsta sinn sem Japan starfrækir slíkt herlið frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Vígslan fór fram við hátíðlega athöfn í Sasebo á Kyushueyju, sem er þriðja stærsta eyja landsins. Sasebo er í Nagasakisýslu, ef svo umsýslulega má að orði komast
Stofnstærð landgönguliðsins er um 2100 hermenn og er einungis um byrjun að ræða. Byrjunarhlutverk japanska landgönguliðsins er að verja fjarlægar eyjar suðvestur af meginlandinu, miðja vegu á milli Japans og Taívan. Í kjölfar Tohoku-jarðskjálftans 2011 kom fram mikil gagnrýni á stjórnvöld vegna vanbúnaðar í björgunarstarfi og hefur hún átt sinn þátt í endurreisn landgönguliðsins. En meginástæðan er auðvitað blöðruhálsbólgnun einræðisherradæmis Kína og þróunin á Kóreuskaga
Mynt Írans fellur hratt
Íranski íslams-ríalinn er nú fallinn um 25 prósent gagnvart Bandaríkjadal frá því í janúar. Síðustu daga hefur því sem næst öngþveiti ríkt á gjaldeyrismarkaði landsins. Seðlabankastjóri Írans kennir Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum um að hafa fingur með í gengisfallinu
Ný mótmæli, nú vegna yfirvofandi vatnsskorts, eru komin af stað í Íran og ekki hjálpar gengisfallið við innflutning á matvælum, sem koma til með að vanta ef vatn til ræktunar er of lítið. Borgarstjóri Teheran, sem talinn var "umbótasinnaður", hefur sagt af sér í annað sinn og uppsögn hans samþykkt
Íslamska byltingarherlið Írans hefur nú komið sér fyrir með fastar herstöðvar í Sýrlandi og þar með lagt íranska landbrú frá Íran til Miðjarðarhafs. Um þá brú flæða hergögn til árása á Ísrael með aðstoð liðsafla sem Íran hefur í vösum sínum í Sýrlandi, Líbanon og á Gazasvæðinu. Sjía-útlendingahersveitir Írans hafa þjálfað um 200 þúsund manna herlið í Sýrlandi, Írak, Líbanon og Yemen
Ánægja almennings í Íran með gang mála í landi sínu, er ekki beinlínis í takt við fjáraustur Írans í nýtt persneskt heimsveldi - í sívaxandi kapphlaupi við stofnun nýs Tyrkjaveldis, undir Súnní-íslam. En íslam er lárétt þokubakka-stjórnmálatrúarhreyfing sem virðir ekki lóðrétt landamæri ríkja sem viðhafa lóðrétt stjórnskipulag, og þar með lýð-ræði þjóðríkjanna upp úr Biblíu Vesturlanda
Lækningin við þokubökkum ólögmætra heimsvelda
Ekkert annað rit heimsins en Biblían innihélt uppskriftina að þjóð-ríkinu og stjórnarfari sem haldið er fyrir sig, innan lóðréttra landamæra þjóðríkis, þar sem konungurinn má bara vera konungur yfir sinni eigin þjóð, en ekki öðrum þjóðum. Í Biblíunni er þjóðin grundvöllur samfélags manna og heitir hann þjóðfélag
Þau, þjóðfélögin, bera uppi allt sem í dag er kallað "samfélag", og sem að mestu snýst um sósíalisma og nýmarxisma. Þessi svo kölluðu "samfélög" vil ég helst losna við að þurfa að halda uppi. Fyrir mig er þjóðfélag fínt og nóg. Þjóðfélagið er besta og göfugasta félag mannkynssögunnar. Þjóðfélagið er það eina sem virkar þegar Marx-Lenín-salernissetan brennur og fer í þrot með sitt andskotans "samfélag". Fánar samfélaga eru ávallt með hamar og sigð, rauða stjörnu eða hakakross. Til fjandans með þá. Einu félögin sem ég er í er þjóðfélag Íslendinga, þjóðkirkja þess og Sjálfstæðisflokkurinn. Aldrei geng ég í "samfélag"
Rússar, Tyrkir, Írarnir og Sýrland
Samsæti þessa þriggja fasa hersetuliðs, þrátt fyrir innbyrðis hatur þeirra á hvor öðrum í rústum Sýrlands, er nú haldið saman með sameiginlegri fyrirlitningu þeirra á Bandaríkjum Norður-Ameríku, en sem Kúrdar líta á sem mögulegan bjargvætt. Þessir þrír aðilar hafa svo gott sem enga sameiginlega hagsmuni. Tyrkir þola ekki Rússa og vilja þá burt upp fyrir Svartahaf. Rússar þola ekki Tyrki því þeir geta lokað Svartahafi og híft sig upp Balkanskaga, þar sem Rússar þykjast þurfa tilvistarleg ítök. Tyrkir þola ekki Írani af öllum mögulegum og ómögulegum ástæðum og það sama gildir um Írani, sem þola heldur ekki Rússland vegna til dæmis hernáms Rússa á norðurhluta Írans í Síðari heimsstyrjöldinni. Og Rússland veit hvaða stærð Íran er í túnfæti þess og öfugt. Þarna sitja þessir þrír aðilar saman í potti og brugga hvor öðrum launráð. Og innan skamms mun brugg þeirra sjóða upp úr pottinum sem þeir sitja naktir í
Fyrri færsla
Alþjóðleg fyrirtæki byrjuð að leka (þó ekki rússnesku hlátursgasi) [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.4.2018 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 9. apríl 2018
Alþjóðleg fyrirtæki byrjuð að leka (þó ekki rússnesku hlátursgasi) [u]
Hlutabréfaverð í alþjóðlegum fyrirtækjum hefur skyndilega tekið upp á því að hanga aftaní á markaði á mörkuðum, miðað við þau fyrirtæki sem starfa ekki alþjóðlega. Hin alþjóðlegu teika nú heima-klettana og varla það. Þetta eru sennilega nýjar bollur í súpunni sem Trump er að sjóða þar vestra. Er þetta ný þróun, eða bara stundarfyrirbæri?
Hlátursgaslögn Rússlands upp í heilabú Vesturlendinga er byrjuð að skila afli. Í dag er það Guðni Ágústsson sem í Morgunblaðinu ber fram þokubakka dagsins fullan af rússneskum hlátri. Um þokubakka Guðna halda traustir hálfmarxískir armar Framsóknarmanna, sem aldrei hafa kunnað sér sitt vinstra afl, þegar rússnesku hlátursgasi er hleypt á Framsókn. Nostalgían eftir gömlu dögunum er slík að flokknum er varla stætt í nútímanum. Flokkurinn veit því ekki lengur hvar hann á heima í flestum málum, og þarf því að taka allar kosningar með aðstoð nýrra uppfinninga. Það er sennilega það sem gerir flokkinn svona framsækinn að hann getur hvenær sem er breyst í Ofsóknarflokkinn, þar sem flokkurinn ofsækir sitt gamla sjálf. Steinar í frosti eru sennilega framsæknari
Jú, hér er þetta: Thersea May eitraði með banvænu rússnesku taugaeitri fyrir Rússa í Bretlandi. Svo illa tókst henni til að Rússarnir drápust ekki, heldur gekk frú May með allt sitt lækna- og sjúkrahúsalið í það að bjarga Rússunum frá sjálfri sér svo að þeir mættu lifa morðtilraun hennar af... (klikk) ..andartak... andartak... hmmm... ha ha ha ha ha ha ha (gasið)... haha ha ha ha ha ha (gasið)... hah ha ha ha ha ha ha... þetta er jú Upplýsingin... haha ha haa ha hah... Upplýsingin sem Dostojevskíj sá strax að myndi skila Lenín, Stalín og svo Pútín til valda í Rússlandi. Þvílík armaða af drasli!
--------------
Uppfært kl. 22:20,- eftir lokun markaða
Hlutabréf í Rusal féllu um 50,4 prósent í dag. Þessi rússneski álframleiðandi er sá stærsti í heiminum. Samhliða því féllu hlutabréf í fyrirtæki eins aðaleiganda Rusal, En+ Group PLC -sem skráð er á markað í Lundúnum- um 42 prósent. En+ Group PLC, sem er í meirihlutaeigu Oleg Deripaska á einmitt 48 prósent hlut í Rusal. Og rússneska rúblan féll einnig í dag, um 4 prósent, og helsta hlutabréfavísitala landsins, MICEX, féll um rúmlega 8 prósent. Oleg Deripaska var settur á svartan lista í Bandaríkjunum á föstudagskvöld. Þetta er dagurinn eftir þann föstudag
Fyrri færsla
Uppruni rússneska eitursins að koma í ljós
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 5. apríl 2018
Uppruni rússneska eitursins að koma í ljós
Mynd; Auðlegð þjóðanna kom til Víetnam um daginn
****
Þær fregnir berast nú frá Bretlandi, að rannsóknir MI6 á því rússneskt uppfundna eiturefni sem notað var í eiturvopnaárás á Salisbury -sem tilheyrir Wiltskíri í Englandi- sé að skila niðurstöðum um framleiðslustað efnisins
Rannsóknarstofur hafa nú með miklu -en þó ekki fullkomnu- öryggi staðsett hvar og í hvaða eiturefnastofum efnið er framleitt. Enn vantar þó búta í niðurstöðurnar. Rannsóknin er flókin því greina þarf uppruna allra efnanna, einnig mengunar- og aðskotaefna, og svo einnig þess burðarefnis sem ber eitrið í gegnum húðina og inn í líkama fórnarlambanna. Ljóst er, segja sömu fréttir, að rússnesk yfirvöld létu rannsaka hvort að Novichok-efnið væri nothæft sem efni til banatilræða. Bæði rannsóknarstofur á staðnum og leyniþjónustur Bretlands úti í mörkinni vinna saman að því að þrengja hringinn sem nálin með ör á endanum mun falla, og þar með benda á
Athygli vekur að Kína og Íran styðja Rússland í þessu máli. Kínverski varnarmálaráðherrann, Wei Fenghe, fundaði með rússneska kollega sínum Sergei Shoigu í Moskvu í fyrradag. Þar lagði Fenghe mikla áherslu á að Bandaríki Norður-Ameríku ættu að taka sérstaklega eftir aukinni strategískri samvinnu Kína og Rússlands í hermálum
Margir fjölmiðlar heimsins hafa í kjölfar Salisbury-árásarinnar lagt mikið upp úr því að túlka það sem er að gerast í heimunum núna, sem upptakt til einhverskonar endurtekins kalds-stríðs. Það álit er þó firra. Kalda-stríðið snérist um hugsjónir. Þar stóð þungvopnað alræði kommúnista og ógnaði veröldinni með heimsbyltingu. Andspænis honum stóðu frjálsir menn Vesturlanda með Biblíuna í höndum og boðuðu allt annað líf en helvíti kommúnismans gerði. Hugsjón var á móti hugsjón. Bilbíla Vesturlanda sigaði, auðvitað
Í dag hefur hins vegar enginn hugsjónir, þó svo að menn leiti eftir þeim á til dæmis samfélagsmiðlum og í alþjóðlegum fjóshaugum multilateral guðleysis. Meira að segja Páfinn virðist ekki vera með Helvíti á hreinu lengur. Velskilgreint helvíti vantar í jöfnuna, þó svo að í þykkum þokubökkunum sjáist annað veifið glitta í útlínur hins næsta helvítis á jörð manna
Lykilorðið hér er ekki nýtt-kalt-stríð, heldur Fyrri heimsstyrjöldin, sem skall svo gott sem fyrirvaralaust á. Hún snérist um 1. hagsmuni, 2. bandalög, 3. sökkvandi og hins vegar rísandi veldi. Sem sagt; hvaða ríki eru sökkvandi og rísandi í dag. Hvern vilja menn helst senda til helvítis, vegna öfundar og eigin veiklunar, innvortis sem útvortis. Það er spurningin. Og hún er stór, en þó ekki svo stór að svar við henni sé of erfitt að finna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. apríl 2018
Með kveðju frá Rússlandi
Mynd: tímaritið Economist. "Olíuverð og sovésk/rússnesk stjórnmál". Nánar hér
****
Það er greinilegt að fyrir dyrum í Rússlandi standa stórir og alvarlegir hlutir. Rússland skildi nafnspjald sitt eftir í Salisbury í Bretlandi um daginn, til að tryggja hamrandi fréttaflutning og aðgerðir sér í útvortis óhag, en innvortis í hag. Á rússneska nafnspjaldinu stóð: svona fer fyrir þeim Rússum og fjölskyldum þeirra sem svíkjast undan merkjum á næstu mikilvægu árum. Við erum að skrifa reglubókina upp á nýtt, þar sem gömlum óskrifuðum reglum er hent út. Það er að okkar mati nauðsynlegt því svo mikið og stórt stendur fyrir dyrum á næstu árum. Á komandi árum berst Rússland fyrir tilvist sinni í núverandi mynd. Við stöndum afar illa. Okkur hefur mistekist að umbylta hagkerfinu, við erum enn að mestu í vösum afla sem við sjálfir ráðum engu um; þ.e. heimsmarkaðsverði á olíu, sem Bandaríkjamenn hafa rústað með enn einni af sinni nýju fjandans tækni. Almenningur er í sívaxandi mæli að missa þolinmæðina og trú hans á framtíð landsins er orðin mjög slöpp, miðað við bóluárin þegar olíuverð fór hækkandi í samfellt 15 ár. Undanfarið höfum við einungis haft efni á lyklaborðsaðgerðum í utanríkismálum og einni lágvöru-hersýningu í Sýrlandi. Ef olíuverð hefði ekki tekið upp á því að byrja að hrynja í september 2013 og fara fram af brúninni sumarið 2014, þá hefðum við haft efni á meiru. Við hefðum þá haft meiri peninga á milli handanna til að senda út í jaðra sambandsríkisins (stuðpúðana) og við hefðum þá sennilega nú þegar haft efni á Úkraínu, undir okkar formerkjum. Tveir þriðju hlutar ríkisfjárlaga okkar komu frá orkugeiranum
Mynd: Olíuútflutningur Bandaríkjanna, þúsundir tunna á dag: Banabiti OPEC og félaga. Um leið og olíuverð hækkar koma bandarískir olíubrunnar on-line og þrýsta því niður á ný. Og break-even kostnaðarmark þeirra fer sífellt lækkandi
****
Allir menn vita að um leið og Vladímír Pútín komst til valda árið 2000, þá breyttist Rússland og varð nokkuð samt við sitt gamla á ný. Það varð á ný hart og stjórnmálin urðu harðneskjuleg. Á komandi árum verða tónarnir sem frá Rússlandi koma, mjög svo harðir. Mikið liggur við og þeir sem svíkja það stóra prógramm sem við erum við það að gangsetja, já, svona fer fyrir þeim. Þetta tilkynnist hér með öllum. Rússland er og verður alltaf harðbýlt land og ríki, haldið saman af KGB-stofnunum
Og nú er loftið líka að fara úr Kína. Það mun hjaðna eins og Japan hjaðnaði frá því að vera 17 prósent af heimshagkerfinu 1989 og niður í sex prósentin sem það er í dag. En Japan stendur þó betur að vígi en Kína, því það hefur ekki þúsund milljón fátæklinga hagandi um háls stjórnvalda, sem ofaní kaupið byggja allt sitt á einræðisvaldi
Rússland et. al. eru þrjú misheppnuð ríki sem komin eru með eilífan forseta sem er sonur sólarinnar: Rússland, Kína og Norður-Kórea. Þvílík þrenna maður
Fyrri færsla
Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Miðvikudagur, 28. mars 2018
Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi
Mynd: Reuters: Pólski varnarmálaráðherrann, Mariusz Blaszczak, undirritar Patriot-kaupsaming við Bandaríkin
****
Andrzej Duda forseti Póllands hefur undirritað stærsta vopnakaupasamning Póllands nokkru sinni. Um er að ræða Patriot eldflaugavarnarkerfi sem kostar 475 milljarða króna. Kerfið mun snúa að Rússlandi. Pólland hefur verið að byggja upp landvarnir sínar frá því að það komst undan tortímandi hernámi Sovétríkjanna, sem varaði í 44 ár, eftir fyrst að hafa verið hernumið og eyðilagt af Þjóðverjum í 7 ár. Bandaríska varnarmálaráðuneytið samþykkti í nóvember vopnasölu til Póllands fyrir að minnsta kosti 1050 milljarða króna á næstu árum. Þetta er fyrsti hlutinn. Næsti hluti verður stækkun á Patriot-eldflaugavarnarkerfinu ásamt 360-gráðu ratsjárkerfi. Yfirmaður pólska hersins, Leszek Surawski, segir að með þessu sé Pólland að færast nær fyrsta flokks landvörnum og verði hér með sterkari hluti NATO-vængsins sem snýr austur. Rúmenía ákvað einnig í nóvember að festa kaup á Patriot-eldflaugavarnarkerfinu, sem alls sex NATO-ríki hafa. Pólland er eitt af þremur NATO-ríkjum Evrópu sem uppfylla sáttmálabundnar fjárframlags-skyldur sínar við NATO. Hin ríkin eru Bretland og Rúmenía. Tvö önnur evrópsk NATO-ríki teljast vera nálægt því að uppfylla skuldbindingar sínar. Þau eru: Eistland og Grikkland
Sama dag, en hinum megin landamæra Póllands í vestri, gáfu þýskar stofnanir út leyfi fyrir nýrri gaslögn á milli Rússlands og Þýskalands. Hún auðveldar Rússlandi að hertaka Úkraínu og Pólland, ef til þess skyldi koma. Lögnin liggur um Eystrasalt og gefur Þýskalandi kost á að þrífast vestan við pólskan varnarmúr, þó svo að Pólland og Úkraína séu undir rússneskri árás. Orkuleiðslan kyndir upp tilvistaráhættu fyrir Pólland. Pólsk yfiröld hafa gagnrýnt Þýskaland harðlega fyrir að haga málum sér í hag á þennan hátt, en Póllandi og Úkraínu viðvarandi í óhag
Breska innanríkisráðuneytið er nú að hefjast handa við að endurskoða dvalarleyfi 700 rússneskra auðmanna sem leyft var að búsetja sig í fjárfestingaskyni í Bretlandi á árunum fyrir 2015, uppfylltu þeir kröfur um minnst tveggja milljón punda fjárfestingar í landinu. Bretar eru nú að yfirgefa Evrópusambandið og lögsögu þess
Í dag er Evrópusambandið á lífi vegna annarra. Það lifir á náð annarra í flestum efnum. Það hefur ekki þá eftirspurn sem þarf til að geta lifað í hagsæld og öryggi. Hagsæld verður ESB að sækja til viðskiptavina fyrir utan sambandið og veltir það þar með efnahagslegum byrðum yfir á aðra í formi eigin viðskiptahagnaðar, sem til verður með því að aðrir eru látnir sitja uppi með mikinn viðskiptahalla. Þýskaland er verst í þessum efnum. Það er með stærsta viðskiptahagnað nokkurs ríkis í heiminum og er það fyrst og fremst vegna gengisfölsunar og innvortis gengisfellinga gagnvart þeim ríkjum sem eru í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það (evran). Evrópusambandið hefur ekki orku til að halda hita á fólki og fyrirtækjum landanna gangandi. Rússland sér sambandinu fyrir orku að miklu leyti. Evrópusambandið getur heldur ekki varið og verndað líf borgarana og eigur þeirra gegn ógnum utan frá, og heldur ekki gegn ógnum sem koma innan frá og svo þeim ógnum sem illa grunduð tilvist sjálfs Evrópusambandsins skapar
Dagar Evrópusambandsins eru nú brátt taldir, því enginn bað um það nema fámenn elíta og nokkrir falskir þýskir fræðimenn, sem töluðu þjóðríkin miskunnarlaust niður sem göfugar stofnanir á sjötta áratug síðustu aldar, í einmitt þeim rústum sem þýsk heimspeki þeirra hafði komið til leiðar. Hefur sambandið nú skapað svo margar hættur og grafið undan velmegun, öryggi og friði í álfunni að ríkin eru hætt að taka mark á Evrópusambandinu vegna skaðsemi þess. Nú er svo komið að afkastið af eignarhlutum í 500 stærstu fyrirtækjum evrusvæðis á síðustu 12 mánuðum, er mínus eitt prósent. Helmingur tekna þessara 500 stærstu fyrirtækja evrusvæðis koma frá löndum utan myntsvæðisins og eru í Bandaríkjadölum, sem undirstrikar aðeins fáránleika og gagnsleysi evrunnar sem myntar. Hefur evran eftir aðeins 17 ár í umferð þrýst mörgum evru-löndum fram að brún þjóðargjaldþrots. Sum þeirra eru svo veikluð og sködduð að óvíst er að þau lifi af án þess að fara í nauðsynlegt þjóðargjaldþrot
****
Myndband: Rick Wakeman flytur í einleik hluta verks síns Leyndardómar Snæfellsjökuls, sem samið er í kringum samnefnda sögu Jules Verne. Þetta verk hans var á sínum tíma frumflutt og hljóðritað á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Lundúna og Enska kammerkórnum árið 1974. Rick Wakeman styður útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Hér er eitt stuð í viðbót með Wakeman, og svo hér í Lincoln dómkirkjunni
Fyrri færsla
Hvað stýrir Rússlandi - og Bretlandi ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.3.2018 kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 27. mars 2018
Hvað stýrir Rússlandi - og Bretlandi ?
Mynd: Ulysses S. Grant (U.S. Grant); hermaður og forseti. Vinstrisinnaðir sagnfræðingar reyndu síðar að skrifa þennan Repúblikana niður og næstum út úr sögunni, en tókst það ekki. Þeir eru enn gulir og grænir af öfund. Demókratar eignuðust aldrei neinn eins og Grant og geta líklega aldrei, því þeir eru næstum alltaf á rangri hlið mikilvægra mála og orðnir alþjóðlegir þrælahaldarar í dag; glóbalistar
****
Tyrkjaveldið (Ottoman-heimsveldið) féll saman í lok Fyrri heimsstyrjaldar. Bretland, Frakkland og Rússland deildu herfanginu upp í lönd - og landamæri þeirra snérust um olíu
Þegar U.S. Grant, hershöfðingi Lincolns forseta, lét af embætti sem einn mikilvægasti maður í sögu Bandaríkjanna og einn besti forseti þeirra, sem hinn átjándi, þá fór hann í heimsreisu og varð um leið fyrsti forseti Bandaríkjanna sem heimsótti Jerúsalem,- staðinn sem Lincoln dreymdi um að komast til, en komst ekki. Þá var borgin að þrotum komin, sagði Grant, og að mestu rústir einar eftir að hafa verið undir og í umsjá Tyrkjaveldis hundrað sinnum of lengi. Íbúarnir voru þá orðnir aðeins um 20 þúsund manns og rétt helmingur þeirra voru Gyðingar. Allt var í niðurníðslu sagði Grant. Þetta var 1869. Í dag er Ísrael, í umsjá Gyðinga, einn verðmætasti blettur jarðkringlunnar, með eigin geimferðastofnun og alles
Stuttu síðar byrja Vesturlönd að fara af kolum og yfir á olíu, en himnaríki heldur að sjálfsögðu áfram að keyra á réttlætinu einu saman, eins og það hefur alltaf gert. Fríðarráðstefnan í París 1919 gekk að miklu leyti út á að draga landamæri Mið-Austurlanda upp á ný, upp úr rústum Tyrkjaveldis. En áður en til ráðstefnunnar kom höfðu Bretar, Frakkar og Rússar mótað pólitískar stefnur sínar í þessum heimshluta með tilliti til olíu, sem þá var nýfundin og var að finnast í hreint ofboðslegum mæli. Það fór þó svo að Rússar komust ekki á Friðarráðstefnuna í París. En danski sendiherrann í Moskvu komst þó þangað, við illan leik, og reyndi að segja ráðstefnugestum frá því sem var að gerast í Rússlandi. Enginn trúði honum. En það var samt uggur í mönnum - og staðan enn óráðin, hvað varðaði framtíð Rússlands
Bretar, Frakkar og Rússar erfa sem sagt fall Tyrkjaveldis. Hinn iðnvæddi heimur er að fara úr kolum yfir á olíu. Svo kemur Síðari heimsstyrjöldin sem háð er á olíu. Og olíuverð fellur síðan niður í einn dal og sautján sent í febrúar 1946, að styrjöld lokinni, tunnan
Við tekur lágt olíuverð og þar af leiðandi miklar hörmungar í Sovétríkjunum, alveg fram til Yom Kippur stríðsins 1973. En þá byrjar hagur Sovétríkjanna heldur betur að vænkast, því þá, já þá, nota arabísku olíuríkin olíu sem vopn á Vesturlönd í fyrsta sinn. Þá settu þau vestrænu ríkin sem studdu Ísrael í olíubann og tóku efnahag Vesturlanda hálstaki. Þarna lifnaði heldur betur yfir Leonid Brezhnev-genginu í Kreml, því olíuverð rauk frá 10 dölum tunnan og upp í 110 dali á næstu 12 árum (á 2013 verðlagi). Þarna var Sovétríkjunum loksins gert kleift að kaupa sér inn stóran hluta heimsins. Gekk sovéski olíuiðnaðurinn svo vel að Brezhnev-gengið réðst inn í Afganistan á hundheiðinni sovéskri jólabensíngjöf 1979
Og í kjölfar Yom Kippur lifnaði heldur betur yfir Bandaríkjamönnum líka, en þó á dapurlegum nótum. Þeir gerðu sér þá í fyrsta sinn fyllilega ljóst mikilvægi breska arfsins sem þeir höfðu erft. Þeir urðu að gerast verndari Sádi Arabíu, fyrst að Bretland, sem fór næstum því með sig í þrot til varnar hinum siðmenntaða heimi, gat ekki lengur sinnt hlutverkinu sem verndari olíubirgða Vesturlanda. Bandaríkin urðu að taka að sér verndarhlutverkið sem áður var á breskum höndum og gæta olíubirgða Vesturlanda í Arabíu. Og það gerðu þeir. Bandaríkin vörðu þær gegn Sovétríkinu. Vörðu þær gegn Klerkaveldi Íran. Og vörðu þær gegn Saddam Hussein - og aftur
Aftur yfir til sovétríkjanna: En svo tók að halla undan sovéskum gullfæti olíunnar, því olíuverð byrjaði að falla snemma árs 1982 og hélt áfram að falla -næstum án afláts- næstu 17 árin. Á því tímabili hrundu Sovétríkin eins og spilaborg. Fyrst dó Brezhnev og getulaus Andropov tók við. Síðan dó hann og þá tók getulaus Chernenko við og dó í hvelli. Svo kom vesalings Gorbachev og fúttaði Sovétríkjunum af á 38 dölum tunnan, árið 1991. Og þá kom svo Boris Yeltsin keyrandi á vodka til hörmungarvalda því olíuverðið var komið niður í 28 dali tunnan og Rússland að brasa saman sem ríki. Það er svo ekki fyrr en Pútín kemst til valda að um einhver veruleg völd er að fást, því hann er svo heppinn að olíuverið hafði byrjað að hækka -eins og hjá Brezhnev- árinu áður, eða 1998. Pútín ríður svo á hækkandi olíuverði sem veitir honum síaukin völd fram til ársins 2012 og hann réðst inn í Georgíu og meira til, frá og með 8. ágúst 2008 (en Medevev var svo látinn taka samdráttinn í olíuverði 2009 til 2013). Þegar svo Pútín mætir aftur í vinnuna árið 2012, þá er olíuverið byrjað að falla úr 118 dölum tunnan og það hélt áfram að falla niður 28 dali tunnan 2016. Rússland er því komið í álíka stöðu og í aðdraganda falls Sovétríkjanna. Þurrkur er hroðalegur í rússneska ríkissjóðnum
En svo gerist það árið 2016 að Bretland ákveður að yfirgefa Evrópusambandið. Bretland hafði gengið í Evrópusambandið árið 1972 til að sundra því innanfrá. Það tókst ágætlega og svo fór, að árið 2016 sýnist Bretlandi þannig vera komið, að betur gangi að stúta restinni af Evrópusambandinu utan frá. Og það er það sem við sjáum í dag. Blekið er meira að segja varla byrjað að þorna á nýjum varnarsamningi Bretlands og Póllands - og engin flothæf skip verða því byggð í Stettin fyrir nein ESB-ríki. Deilum vér í sundur sundur og drottnum. Þetta! er gaman
Pútín potar úr austri í Vesturlönd og Bretland leiðir pot Pútíns með jarðkapli áfram beint yfir í ESB. Þar fær ESB eins konar endastuð frá Bretlandi í gegnum kapal sem ætti ekki að vera til, en er það samt. Sprikla svokölluð yfirvöld Evrópusambandsins nú kjarnaklofin á þriggja fasa kapli breska heimsveldisins, sem telur Bandaríkin líka. Og það styttist í að Þýskaland bregðist reglubundið við og hefji þann vígbúnað sem Trump kallar svo á. Og þá flýr restin af meginlandinu öskrandi burtu úr þrotabúi ESB. Svo hlægja Bretar, Rússar og Bandaríkjamenn saman um leið og Tyrkland breiðir úr sé upp Balkanskagann á ný, en sem er ekki í Evrópu, eins og ESB tilkynnti umheiminum þegar það hentaði því. En verður það þá svo? Mun þá Balkansagi ekki skyndilega tilheyra Evrópu á ný? Ég bara spyr
Flest í sambandi við olíubirgðir Vesturlanda í Arabíu er nú búið mál. Arabía hefur misst olíuvopnið á Vesturlönd, vegna tækniframfara í U.S.-landi Grants. Það vopn er nú aðeins hægt að nota til að koma tímabundnum verðhækkunum í kring. Og það vopn verða Rússar helst að komast yfir sem fyrst, því annars er Rússland búið að vera. Hvað skyldi nú Sádí ætla að gera fyrst að hið bandaríska vogarstangarafl þeirra er að hverfa svona hratt?
Pota ég því og pota - og gengur það bara ansi vel .... pota ég og pota
Hreyfimynd 18 þúsund hestafla: Borgar(a)lína Donalds J. Trump - á bandarískum dísil. Hver skriðdreki vegur 65 tonn. Á sex mánuðum flutti bandaríski herinn 12 milljón tonn hergagna til varnar olíubirgðum Arabíuríkja - hinum megin á hnettinum. Þau eru eina ríki jarðar sem fært er um slíkar aðgerðir, hvar sem er, hvenær sem er
****
Fyrri færsla
Ísrael viðurkennir að hafa grandað kjarnorkuvopnasmíði Sýrlands 2007
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. mars 2018
Ísrael viðurkennir að hafa grandað kjarnorkuvopnasmíði Sýrlands 2007
Kvikmynd: Upptaka Ísraelshers
Í gær viðurkenndi varnarmálaráðuneyti Ísraels í fyrsta sinn opinberlega að hafa grandað kjarnorkuvopna-smíðastöð Sýrlands í september 2007. Þá aðgerð framkvæmdi Ísraelsher fyrir rúmlega tíu árum síðan og sammæltust Ísraelar og Bandaríkjamenn um að halda aðgerðinni leyndri. En í gær kom svo staðfesting frá Ísraelsmönnum um að það sem marga grunaði, var einmitt rétt. Ekki mörgum árum síðar var landsvæðið sem um ræðir, komið í hendur Ríkis íslam. Kjarnorkuvopnasmíðastöðin í Sýrlandi var byggð með aðstoð Norður-Kóreu og geislavirku efnunum var siglt þaðan um borð í skipum Norður-Kóreu. Grunsemdir Ísraelsmanna vöknuðu þegar skipsfarmar frá Norður-Kóreu komu til uppskipunar í Sýrlandi og náðist uppskipunin á mynd. Og svo stuttu síðar þegar líkkistur úr blýi tóku að berast til Sýrlands frá Norður-Kóreu. En þar höfðu Sýlendingar verið að störfum við áætlunina og lent í járnbrautarslysi með farminn, sem leiddi til þess að farsímasamband víða í Norður-Kóreu var bannað í nokkur ár, því aðkoman að slysstað var svo hroðaleg
Ein af ástæðunum fyrir því að ríkisstjórn og her Sýrlands tókst að halda kjarnorkuvopnaprógramminu leyndu svo lengi, er talin vera sú að öll samskipti sem vörðuðu áætlunina fóru fram bréfleiðis með sérstökum sendiboðum, og að henni var haldið í einangrun frá öðrum þáttum herstjórnarinnar. Þarna munaði mjóu því stöðin var næstum fullgerð og tilbúin til vinnslu er Ísraelsmenn lögðu hana í rúst í september 2007
Leiðangur Ísraelshers hóst eftir að hermenn hans höfðu laumast á staðinn í Sýrlandi, tekið jarðvegssýni og aflað nauðsynlegra upplýsinga á jörðu niðri. Flogið var svo lágt upp Kýpurflóann, austur inn yfir land og inn í tímabundið blindaða loftrýmisgæslu Tyrklands og Sýrlands og sprengjunum síðan varpað frá nokkrum sérbúnum og þunghlöðnum orrustuþotum Ísraelsmanna, sem læðst höfðu lágt yfir jörðu að skotmarkinu. Að aðgerð lokinni var ríkisstjórn Tyrklands upplýst um málið og beðin afsökunar á þeim hluta leiðangursins sem lá um lögsögu þess. Í júní 1981 lagði Ísraelsher einnig kjarnorkuvopnavinnslu Saddams Hussein í Írak í rúst með sviparði aðgerð, sem nefnd var Opera
Ofsóknir á hendur Gyðingum hafa árþúsundum saman verið hroðalega svæsnar og illar. Í aðdraganda, undir, og í kjölfar Helfararinnar meinuðu Bretar Gyðingum að flýja til þess forna landssvæðis Gyðinga í Ísrael sem Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía og Páfagarður höfðu lagt blessun sína yfir með Balfour-yfirlýsingunni. Bretar brutu einhliða anda þess samkomulags með því að meina Gyðingum að flýja þar inn, en sem var einmitt tilgangurinn með yfirlýsingunni. Það gerðu Bretar af geopólitískum orsökum því olíusvæðin sem Bretar urðu að hafa aðgang að, lágu einmitt á áhrifasvæði Araba, og þá reyndu Bretar að styggja ekki, því þannig ömurleg var staðan í heiminum þá. Gyðingum var því haldið úti frá því lífsnauðsynlega rými sem þeir höfðu fengið úthlutað til að draga andann í
Á alþingi Íslendinga fara nú fram síðustu Gyðingaofsóknirnar á nýrri tímum. Þar skal mannorð Íslands og Íslendinga allra lagt í rúst með stjórnmálum sem aðeins er hægt að flokka niður í síðasta endann af öllum. Það var ekki heilastappa Framsóknarmanna, Pírata, Vinstri-grænna og Flokks hreina fólksins sem lagði grunninn að Vesturlöndum. Það gerði Gamla testamenti Gyðinga. Við eigum Gyðingum því óendanlega mikið að þakka. Og þær þakkir ber að sýna í verki, en ekki með heilastöðvun á Alþingi Íslendinga og endametrum bölvaðrar borgarstjórnar vinstri-manna Reykjavíkur
Engir aðrir í heiminum munu hafa fyrir því að standa vörð um líf Gyðinga en Gyðingar sjálfir. Hefðu þeir verið fullvalda og vopnaðir, þá hefði Helförin aldrei getað farið fram. En pennastrik vesalinga geta einnig verið öflug drápsvopn. Þau strik eigum við alls ekki að skaffa slæmum öflum
Krækja: Hinn gleymdi sannleikur um Balfour-yfirlýsinguna (Mosaic)
Tilgátu-heimildarmynd um aðgerðina í Sýrlandi (YouTube)
Fyrri færsla
Angela Merkel kom skríðandi til Póllands
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 78
- Sl. sólarhring: 88
- Sl. viku: 829
- Frá upphafi: 1404594
Annað
- Innlit í dag: 36
- Innlit sl. viku: 523
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008