Leita í fréttum mbl.is

Gulu vestin mótmæla innflytjenda-áformum alþjóðaelíta

****

Screen Shot 2017-02-03 at 16-40-37

Mynd, Paul Romer (PDF bls. 15): Fyrst voru það kjarneðlisfræðingarnir sem fengu þessa falleinkunnar-greiningu, svo voru það hagfræðingarnir - og næst verða það svo kölluð loftslags"vísindi" sem fá þessa sömu falleinkunnar-greiningu þegar þvæla þeirra hrynur. Romer er aðalhagfræðingur Alþjóðabankans sem stofnaður var til að reisa heiminn úr síðustu rústum imperíal glóbalista 1945

****

Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, á von á nýrri heimsókn um helgina. Um er að ræða þá sem svo oft er um getið í skoðanakönnunum og kosningum sem; minna menntað fólk, minna þénandi fólk búandi á röngum stöðum og fólk með rangar skoðanir sem stangast á við hin yfirþyrmandi mikilvægu atkvæði alþjóðaelíta með réttar skoðanir úr heiðnikirkjuveldum háskólanna, sem dýrka Icesave-þrælakistur og fórna vilja lífi þjóðar sinnar með því að láta hana um að borga svo kallaðan "skít" eftir aðrar þjóðir í heiminum, með til dæmis Parísarsamkomulögum og Davos einkaþotusamkomum

Um er að ræða fólk í gulum vestum sem alþjóðaelítur vilja helst svipa kosningarétti vegna þess að það kýs með landinu sínu en ekki á móti því og það kýs meira að segja með þjóð sinni en ekki á móti henni. Þetta eru sem sagt "hinir fyrirlitlegu" í Frakklandi (eins og Hillary Clinton kallaði þann helming Bandaríkjamanna sem studdi hana ekki) sem í gulum vestum ætla að heimsækja forseta Frakklands nú um helgina; til að mótmæla áformum hans um að skrifa á þeirra vegum undir samn­ing Sam­einuðu þjóðanna um fólks­flutn­inga (sjá hér), sem er hreinræktuð elítugeðbilun á hæsta stigi

Mikill meirihluti Frakka álítur samkvæmt rannsóknum að innflytjendur hafi skaðað landið þeirra og enn stærri meirihluti þeirra segir að innflytjendur hafði skaðað þjóðarsamheldnina og þjóðarsamstöðuna í Frakklandi

Í fyrradag neyddist franski forsetinn Macron að draga til baka boðaðar skattahækkanir á orku sem rekja má til svo kallaðs Parísarsamkomulags alþjóðaelíta gegn frönsku þjóðinni og öðrum þjóðum Vesturlanda. Hvað gerist eftir komandi helgi, er ekki vitað enn

Halda á enn eina hindurvitna samkundu hinna fljúgandi elíta í Katowice í Silesiahéraði í Póllandi næstu dagana. En á hinu gamla svæði Silesia búa hins vegar 30 þúsund kolaverkamenn, eða helmingur þeirra sem vinna kol í ESB. Hvað þeir hafa að segja, er loftslagselítum nýmarxismans náttúrlega óviðkomandi, eins og var í gömlu Sovétríkjunum. En þau voru fyrsta alþjóða-sjálftektar poppskál vinstrimanna á kostnað verkalýðs þjóðanna. Þar var Alþjóða-nallinn popplagið sem kyrjað var með steyttum hnefa, löðrandi í blóði hinna fyrirlitlegu. Í þessa nýju poppskál nýmarxismans er forysta Sjálfstæðisflokksins nú fallin sem eitt lítið popp og metoo humar

Á ári hverju, þessi árin, er jarðarbúum drekkt í tveimur og hálfri milljón svo kallaðra vísindarannsókna og vísindaniðurstaða (e. scientific papers). Prófanir sýna hins vegar að aðeins 30-40 prósent þeirra er hægt að endurtaka með sömu niðurstöðum og þeir vísindamenn sem gerðu þær fengu. Með öðrum orðum: 60 til 70 prósent svo kallaðra vísindatilrauna er ekki hægt að endurtaka með sömu niðurstöðum og skýrslur vísindamanna segjast fá. Verst er staðan í svo kölluðum félagsvísundum (e. social science) því í reynd er í mjög mörgum tilfellum um sósíalistavísindi að ræða (e. bullshit). Sovétríkin voru full af þannig "vísindum". Og Vesturlönd eru að fyllast af þannig vísindum í dag, eins og sést til dæmis á mjög mörgum Alþingismönnum og embættismönnum þeirra. En það versta er samt, að á sviði svo kallaðra raunvísinda er staðan í mjög mörgum tilfellum að verða sama tóma þvælan og kjarneðlisfræðingar unnu áratugum saman við, undir heitinu súperstrengir. Öll sú kenning og rannsóknir voru tóm þvæla og hún kostaði heilan foss af fé skattgreiðenda. Kenningin um loftslagsmál verður eins. Tóm þvæla, eins og "nýja hagkerfið" í banka-hagfræðibólunni var, með foss af fé almennings sér til uppihalds. En sá sem fyrir alvöru var fyrstur til að græða stórfé á þessu öllu var trúðurinn Al Gore. Og svo koma allir hinir - og vilja það sama. En svo klárast poppið

Fyrri færsla

Sigmundur Davíð greinilega besti maðurinn í bransanum


Sigmundur Davíð greinilega besti maðurinn í bransanum

ÍSLAND

Myndin af besta manninum í bransanum er nú að verða flestum ljós. Fyrst að svo margir vilja fyrir alla muni koma Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og flokki hans fyrir pólitískt kattarnef, þá er varla hægt að komast hjá því að álykta sem svo að þar fari mesti stjórnmálamaður Íslands þessi árin. Framskriðin móðursýkin vegna glasaglaums er nú svo of-stæk, að boðað er nunnu- og munkaklausturhald á staðnum þar sem landráðaleg svikin fóru fram af hálfu vinstristjórnarinnar síðast. Bara að Vinstri nýgrænahreyfingin og Samfylkingin hefðu verið fullar þá, en það voru þær ekki - og heldur ekki forysta Sjálfstæðisflokksins þegar hún gerði í Icesave metrópólítan-buxurnar í já-já jó-jó kannski-klúbbunum þá

FRAKKLAND

Franski bankaforsetinn Emmanuel Macron er að missa hanastélstökin sem hann hafði aldrei nema að embættisnafninu til á frönsku þjóðinni sem býr til Frakklandið sem hann á að taka sig af, en sem hann hefur bara ekki gert. Macron lendir stundum í Frakklandi ofan úr græna lofthjúpnum ógurlega sem er að reynast eitt stærsta áróðurs- og lygaáhlaupið í sögu mannkyns. Sá hjúpur er nú á barmi svo mikillar örvæntingar að eitt barn sem fannst í barnlausri og steingeldri Evrópu var látið vitna þar - og líka í DDRÚV hér. Næst verður líklega eyddum fóstrum veifað á hinu græna altari nýmarxismans, því nóg er af þeim. Fyrst rak franska og þýska ESB-elítan áróður fyrir dísil með aðstoð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem er útibú þýska iðnaðarins í Brussel. Svo hrundi Evrópusambandið við fyrsta vindhanagal haustið 2008 og bönkunum í formi ESB var sigað á þjóðir þess til að bjarga sambandinu og þeim umboðslausu sem þéna stórt á því skattfrjálst. Atvinnuleysi í Frakklandi hefur verið krónískt þetta tíu prósentin eða svo, frá því að elítur landsins hófu fullveldisfórnirnar í efnahagsmálum Frakklands með stofnun Evrópusambandsins. Nýjasta firran til að flýja tóm glösin heima, er að stofna her hér og þar. Hafa námsmenn og hjúkrunarfólk nú boðað þátttöku sína í gulum vestum um næstu helgi. Þetta mál snýst ekki bara um skattaokur á dísli eða bensíni í miðjum lofthjúp grænna veruleikafirrtra elíta. Það snýst um hið fullkomna sambandsleysi imperíal glóbalista við þær þjóðir sem halda þeim uppi

RÚSSLAND

Rússland gæti nú verið að búa sig undir að taka allt Svartahafið yfir. Það hefur lagt hald á herskip Úkraínu og neitar að skila þeim aftur. Olíuverð er hrunið og Pútín er óvinsæll heima og efnahagur landsins er afar slæmur. Bandaríkin eru að koma sér fyrir í Rúmeníu með herstöð fyrir flugherinn og árásargrúppa USS Harry S. Truman er komin úr norðri inn í Miðjarðarhaf. Nálægt botni þess er áttavillt Tyrkland rambeltandi með lykilinn inn og út úr Svartahafi og fyrir botni þess er Ísrael að undirbúa fyrirbyggjandi aðgerðir á þá sem sitja um landið á tvennum eða jafnvel fleiri vígstöðvum. Það gæti farið að draga til tíðinda. Það var jú á jóladag sem Rússland réðst inn í Afganistan. Verða þetta friðarjól eða ekki. Það veit ég ekki

VOPNAHLÉ

Markaðsmenn létu blekkjast í einn dag vegna þriggja mánaða vopnahlés í viðskiptahallastríði Bandaríkjanna og Kína. Gosið í þeirri flösku var ekki meira en svo. Og ESB er ekki skemmt þessa dagana, því Íranmálið er að vefjast um háls þess eins og snara

Fyrri færsla

Til hamingju með fullveldið íslenska þjóð


Til hamingju með fullveldið íslenska þjóð

Fáni Íslands

Þakklátur er ég fyrir fullveldi þjóðar minnar á þessum 100 ára afmælisdegi þess. Fullveldi þjóða fæst ekki í verslunum né hjá fjölþjóðasamböndum og allra síst hjá yfirríkislegum imperíal stofnunum á borð við Evrópusamband. Sýni þjóð næga samstöðu og baráttuvilja til að taka sér fullt vald yfir sínum málum, þá fæst fullveldi hennar viðurkennt af öðrum þjóðum sem farið hafa sömu eða svipaða leið til fullra valda yfir sínum málum, þ.e. hina göfugu leið þjóðernissinna. Galdurinn við fullveldið er að hafa það - og að tapa því ekki. Ég minni enn einu sinni á orð Jóns Sigurðssonar forseta, því þau eiga aftur og aftur við þegar íslenska þjóðin þarf að standa vörð um rétt sinn, fullveldi og sjálfstæði:

****

Sverrir Kristjánsson - 1961 - Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar - setur allt sitt traust á alþýðuna - bls liii 53

****

Fyrri færsla

Trump aflýsir G20-fundi með Pútín. Lögregla stormar Deutsche Bank. Merkel nauðlendir. Öld Asíu að enda


Trump aflýsir G20-fundi með Pútín. Lögregla stormar Deutsche Bank. Merkel nauðlendir. Öld Asíu að enda

Eftir að hafa lýst því yfir að fyrirhugaður fundur með forseta Rússlands myndi eiga sér stað á G20-toppfundinum sem hefst í Argentínu í dag, þrátt fyrir aðgerðir Vladímírs Pútín á innhafinu á milli Úkraínu og Rússlands, uppi í hafkrikanum á milli Krímskaga og Rússlands, þar sem Pútín lagði hald á þrjú skip Úkraínu, þá tilkynnti Donald J. Trump eftir fund með utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafa sínum í forsetaflugvélinni á leið þeirra til Argentínu, að hætt væri við fundinn með Pútín

Vinsældir Vladímírs Pútíns á heimavelli eru hratt fallandi, nú stuttu eftir kosningar. Svo seint sem í október höfðu þær fallið niður í 66 prósent úr 82 prósentum í apríl. Hlutfall þeirra sem treysta Pútín féll úr 59 prósentum niður í 39 prósentur á sama tíma, og hlutfall þeirra sem vantreysta honum tvöfaldaðist. Aðeins 40 prósent kjósenda segjast myndu kjósa Pútín á ný og 81 prósent segja hann ábyrgan fyrir slæmum gangi mála í Rússlandi

Aðgerðir Pútíns Rússlandsforseta gegn Úkraínu eru að margra mati tilraun rússneska forsetans til að reyna að bæta úr óvinsældum hans á heimavelli. Bæði Vladímír Pútín og Evrópusambandið berjast nú við kjósendur sem þola varla meira af imperíalisma þeirra, og bæði fyrirbærin eru að mestu umboðslaus í sessi. Líta bæði fyrirbærin fullveldi þjóð-ríkja afar illum augum og bæði fyrirbærin líta á almenna kjósendur sem nytsaman úrgang til að smyrjast ofan á brauð elíta

Aðgerðir Rússlands gegn Úkraínu núna minna mjög svo á aðdraganda innrásarinnar í Georgíu. En þar sem Donald J. Trump hefur verið mun harðari gegn imperíal-látum Rússlands -og Evrópusambandsins líka með hið lamandi Þýskaland sem fordæmisgefandi skemmdarvarg innanborðs í NATO- þá standa ríkin í jaðri Rússlands betur að vígi núna, en þegar Barack Omaba var við völd. Trump hefur rétt Úkraínu sterkari hjálparhönd en Obama og beitt Rússland harðari þvingunaraðgerðum en Obama og stóraukið við bein hernaðarútgjöld Bandaríkjanna til styrktar ríkjum Austur-Evrópu og við Eystrasalt. En þrátt fyrir þetta skrifa veruleikafirrt dagblöð á Vesturlöndum allt annað en sannleikann í því máli

James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í kynningu sinnu á nýrri þjóðaröryggisstefnu í fyrra að Bandaríkin vilja alls ekki, ég endurtek: vilja bara alls ekki, sjá Rússland falla saman sem ríki, en sú hætta er fyrir hendi og hún kemur innan frá úr sjálfu Rússlandi. Hættan á að Evrópusambandið falli saman hefur einnig stóraukist frá og með þeim degi er veruleikinn reyndi í fyrsta skiptið á það árið 2008. Sambandið er að falla saman enda er það ekki þjóð-ríki heldur sáttmálapokaílát ókjörinna elíta gegn fólkinu í ríkjum þess

Og fyrst við erum að þessu, þá má einnig geta þess hér að hin svo kallaða öld Asíulanda er nú að renna sitt síðasta skeið, þar sem Asía er að enda sem misheppnaðar byltingar, einsflokks lýðræðisafskræmingar, skortsvæði fyrir þjóðfélagslega samheldni í löndum hennar, stríðshættusvæði og misheppnaður efnahagur. Misheppnuð efnahagslíkön ráða þar för ásamt miðstýrðri óðaöldrun, elítuspilling ríkir, skortur á einstaklingsfrelsi er krónískt, takmarkað siglinga- og ferðafrelsi er reglan, tölvurárásir og persónunjósnir alla daga ársins, draugaborgir rísa, ávísanaheftastjórn er útbeidd, ríkisrekstur er krónískur og tollamúrar hafa gert það að verkum að álfan Asía er að hníga niður í sólarlag sitt sem geld heimsálfa áður en hún náði að efnast og er því líða undir lok sem heimsálfa fátæktar. Þessi stappa gamla heimsins mun hins vegar ekki stappast í komandi mús þegjandi og hljóðalaust

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn sagði í vikunni að 1/4 hluti landsframleiðslu Japans muni hverfa á næstu fjórum áratugum vegna óðaöldrunar Japana, nema að til stórkostlegrar framleiðniaukningar komi. En vandamálið við þannig framleiðniaukningar er hins vegar það að þær tortíma restinni af áhuga þjóðarinnar á að taka þátt í lífinu í landinu. Kína og restin af útflutningafíklum Asíu, ásamt Þýskalandi og Rússlandi, munu svo fylgja Asíu til grafar, því þar er ástandið síst skárra

Angela Merkel kemst ekki á réttum tíma á þennan svo kallaða G20-fund vegna flugvélabilunar. Þýski herinn annast viðhald flugvélar hennar og þurfti hún því að snúa við og nauðlenda í Köln

Aðalstöðvar hins þýska fjármálaflaggskips, Deutsche Bank, var í gær stormað af lögreglu í Frankfurt, skammt frá Köln þar sem Angela Merkel var nauðlent, og lögreglan lagði hald á gögn bankans. Hann er tengdur við peningaþvættis-rúllettu Danske Bank. Það mál er að vinda uppá sig sem eitt stærsta mál sinnar tegundar í heiminum. Danska fjármálaráðuneytið hefur sætt sundurlemjandi gagnrýni í því máli og stjórn Danske Bank er ekki stætt

Fyrri færsla

ESB-leitin að stað fyrir greiðslukerfi [u]


ESB-leitin að stað fyrir greiðslukerfi [u]

Viðtal við James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í tilefni þess að ráðuneyti hans lauk við gerð nýrrar varnarstefnu fyrir Bandaríkin á síðasta ári. En Bandaríkin eru það ríki frjálsra manna sem lifað hefur lengst í allri sögu mannkyns sem frjálst land frjálsra manna er stjórna sér sjálfir án kónga, keisara og einræðisherra. Bandaríkin eru eina landið í mannkynssögunni sem bæði er frjálst og öruggt samtímis. Þau eru eina ríkið í mannkynssögunni sem státað getur af slíkum árangri

****

NÝ VARNARSTEFNA

Ný varnarstefna Bandaríkjanna gengur út á að verjast árásum á það ríkja-kerfi heimsins sem meðal annars Evrópusambandið er að reyna að tortíma. Í stuttu máli gengur ný varnarstefna Bandaríkjanna út á að verjast árásum á fullveldi sjálfstæðra ríkja. Þetta er endurskilgreining á þeim hættum sem steðja að Bandaríkjunum og þeim mörgu löndum sem þau hafa skuldbundið sig til að verja. Síðasta og nú 10 ára gömul varnarstefna Bandaríkjanna, var með aðaláherslurnar á hryðjuverkasamtök og hryðjuverkaríki. James Mattis segir að varnarstefnan verði að taka mið af veröldinni eins og hún er, en ekki eins og við viljum hafa hana. Stefnan á prenti snýst að miklu leyti um fjórar helstu hættur: Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu. En í praxís snýst hún þó fyrst og fremst um að verja og varðveita sjálfsákvörðunarrétt Bandaríkjanna og þeirra þjóða sem fylgja þeim að málum

Íran er í reynd ekki land, þegar minnst er á þá sem stjórna landinu. Þegar talað er um Íran verða menn að ákveða hvort þeir eiga við byltingarklíkuna sem hrifsaði til sín völdin og sem ræður yfir landinu með því að ráðast að þjóðinni, eða þá að menn verða að ákveða hvort þeir eiga við írönsku þjóðina sem byltingarklíkan er með í gíslingu. Þessi byltingarklíka í Íran er með kjarnorkuvopnaprógramm í gangi. Klíkan er ekki með kjarnorkuprógramm í gangi, heldur kjarnorkuvopnaprógramm. Og þeir eru með eldflaugaprógramm í gangi fyrir kjarnorkuvopnaprógrammið. Þeir eru með virkt tölvuárásarlið að störfum og þeir eru með árásarkerfi á skipaferðir í gangi. Og þeir eru með aftökusveitakerfi í gangi erlendis. Byltingarklíkan reyndi til dæmis að taka sendiherra Sádi-Arabíu af lífi "hér í Bandaríkjunum, í minna en fjögurra kílómetra fjarlægð frá þessum stað sem við erum að tala saman á núna", sagði Mattis. Stutt er síðan að Danmörk var á öðrum endanum vegna morðsveita Írans í Danmörku. Það gæti eins verið að störfum hér á Íslandi vegna Schengen fyrirkomulagsins, sem sum ríki þess kerfis nota til að selja hryðjuverkagengjum og glæpasamtökum -með nægt fé frá til dæmis Íran- aðgang að fyrir peninga, með því að selja þeim borgararéttindi fyrir fé vegna þess að þeirra eigin efnahagur í Evrópusambandinu er að þrotum kominn vegna aðildar þeirra að Evrópusambandinu og vegna þess að landamæri þeirra eru orðin loftið, lygar og lofið tómt, vegna ESB

EN HVAÐ GERIR UMBOÐSLAUST EVRÓPUSAMBAND

Evrópusambandið er nú að reyna að þróa greiðslukerfi sem gerir Evrópusambandsríkjum mögulegt að eiga viðskipti við Íran og Bandaríkin á sama tíma. Bandaríkin hafa sagt að ekkert ríki geti átt viðskipti við þau ef það hyggst eiga viðskipti við Íran á sama tíma. Hið kerfislega fullveldistortímandi Evrópusamband vill ekki fylgja Bandaríkjunum hér að málum, því það lítur ekki á sjálfsákvörðunarrétt þjóða sem þá heilögu stofnun sem ber frið og manngæsku í heiminum uppi. Það vinnur því að uppsetningu greiðslukerfis sem Bandaríkin hafa ekki möguleika á að fylgjast með, til þess að geta átt viðskipti við bæði byltingarklíkuna í Íran og Bandaríkin á sama tíma. Fyrst reyndu Þýskaland og Frakkland að fá Austurríki til að hýsa greiðslukerfið. En þá áhættu vildi Austurríki ekki taka, af ótta við refsiaðgerðir Bandaríkjanna. Síðan var reynt að fá Lúxemborg til að taka að sér hýsinguna, en það vildi stórhertogadæmið ekki, vegna bankakerfisins. Ferlið er nú náð það langt í að reyna að komast fram hjá varnarstefnu Bandaríkjanna, að Þýskaland og Frakkland eru með fyrirætlanir um að hýsa kerfið með þeim hætti að ef það er til húsa í Þýskalandi, að þá fer yfirstjórn þess fram í Frakklandi og öfugt. Með þessum hætti reyna þau að búa til það stóra og víðtæka einingu að ógerlegt sé fyrir Bandaríkin að grípa til aðgerða gegn þeim, nema með því að setja svo stóran hluta hins alþjóðlega greiðslukerfis í það mikla hættu að áhrifanna myndu gæta um allan heim. Og svo ótrúlegt sem það kann að hljóma þá segja talsmenn þessa verks að mögulegt sé að Bretland verði með í þessu plotti

WSJ í gær: France and Germany Step In to Circumvent Iran Sanctions

Þýskaland var þegar árið 1933 byrjað að þróa fangabúðakerfi fyrir óæskilegar þjóðfélagseiningar. Þá þegar voru 110 fangabúðir teknar til starfa í landinu. Þegar yfir lauk spannaði fanga- og úrrýmingabúðakerfi Þýskalands 42 þúsund búðir í Þýskalandi og hinum hernumdu löndum. Svo segja sumir að þýska þjóðin hafi ekki vitað neitt. En það er ekki rétt. Hún vissi vel hvað var að gerast. Bandaríkin vita vel hvað er að gerast í Íran, Mið-Austurlöndum, Kína, Norður-Kóreu og Rússlandi. Og einmitt þessi árin vita þau vel hvað gæti orðið næstu skrefin í Evrópusambandinu, nú þegar sambandið með tilskipunum er að hirða sjálfsákvörðunarréttinn af þeim þjóðum sem álpuðust þar inn

Uppfært kl. 15: Donald J. Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær við blaðamenn fyrir utan Hvíta húsið að það líti út fyrir að Bretlandi verði fyrir tilstuðlan ESB ekki heimilt að gera sína eigin viðskiptasamninga við Bandaríkin, vegna hins svo kallaða "útgöngusamkomulags" sem Theresa May forsætisráðherra hefur gert við Evrópusambandið, en sem breska þingið hefur ekki samþykkt enn. Uppreisnarástand ríkir í bresku stjórnmálalífi vegna þessa samnings Theresu May og kalla margir hann svikráðabrugg ESBsinna við bresku þjóðina í kjölfar þjóðaratkvæðis hennar um úrsögn Bretlands úr ESB (bein krækja á vef Hvíta hússins á YouTube)

****

ESB reynir nú, á árinu 2018, að leita að stað fyrir greiðsluerfi sem leynt getur sannleikanum fyrir því ríki sem reisti Evrópu úr rústum síðasta impeíal-stjórnskipulags álfunnar. Ekkert dæmi er til í allri mannkynssögunni um takmarkað ríkisvald í imperíal fyrirbærum á borð við Evrópusambandið. Þannig veldi verða alltaf og undantekningalaust ofríki yfir borgurunum og enda alltaf í blóðbaði. Þjóðarbandalagið aðhafðist ekkert þegar Þýskaland hóf kerfislega að rað- og mölbrjóta Versalasamninginn. Það aðhafðist ekkert þegar Japan gleypti stóran hluta Kína í sig og það aðhafðist ekkert þegar Ítalía sendi her sinn um Súesskurðurinn inn í Abbesíníu til að brytja þar íbúana niðir og gasa þá með efnavopnum. Og Sameinuðu þjóðirnar munu heldur ekkert aðhafast þegar leitin að stað fyrir greiðslukerfi breytist í leit að stöðum fyrir nýjar fangabúðir í Evrópu. Fjölþjóðaisminn er ekki það sem bjargað hefur mestu hér í þessum heimi, heldur er það þjóðerniskenndin sem bjargað hefur mestu. Aðeins samvinna fullvalda þjóða gat bjargað Evrópu á 20. öldinni úr samrunaklóm þeirra isma sem þá stóðu fyrir dauða 200 milljón manna. Fjölþjóðaisminn er því miður oftar er en ekki aðeins hraðbraut inn í alræðið. Og enginn getur lengur mótmælt því að umboðslaust Evrópusamband er sú braut sem er að flytja Evrópu einmitt þangað

Fyrri færsla

Bilað Frakkland mótmælir. Lýðskrum ESB-elíta [u]


Bilað Frakkland mótmælir. Lýðskrum ESB-elíta [u]

yahoo com news vote trump appears french election posters

Mynd: AFP-Yahoo: Ný kosningaplaköt fyrir ESB-þingkosningum næsta sumar eru komin upp í Strassborg, heimabæ ESB-lýðskrumsþings Norður-ESB-Kórreku. "Kjóstu, annars færð þú Trump yfir þig". Með þessu lýðskrumi esb-elítanna á að pumpa upp kosningaþátttökuna til ESB-þingsins sem í sumum löndum sambandsins er 13 prósent. Fleiri útgáfur ESB-plakatsins má sjá hér og hér. Hvílík viðurstyggð!

****

FRANSKA ÞJÓÐIN FER Í NEYÐAR-VESTIN

(Sjá tengda frétt Morgunblaðsins að neðan) Vestin eru gul og gefa til kynna að Frakkland sé bilað. Allir eru skyldaðir að hafa svona vesti í bílnum sínum og að klæðast þeim ef bíllinn bilar á vegum úti. Þetta eru einu mómælin í Frakklandi sem ekki eru skipulögð af pólitískum hreyfingum, verkalýðsbossum eða rauðum námsmönnum. Þess vegna álítur ESB-bankaforsetinn Macron að um sérstaka hættu sé að ræða og notar táragas án ástæðu. Hann gæti eins reynt að reka þjóðina. En þetta er sem sagt þjóðin að reyna að reka hann - og ESB-liðið sem er að hefja norðurkóreanska kosningabaráttu fyrir ESB ponzy-þinginu næsta sumar

Allir vita að Frakkland er bilað. Landið er núna á fimmtándu stjórnarskrá sinni og fimmta lýðveldinu frá því í byltingunni. Úniversalismi byltingarinnar reyndist ekki vera lækning, heldur útópía. Ekkert þýðir að kjósa. Maður fær bara það sem maður vill ekki fá og meira ESB. Bjarni-bráðnandi og Guðni-grænabylting gætu lært ýmislegt hér. Kommunum í VG er hins vegar ekki hægt að kenna neitt. Þeir kunna rauða sovétríkið í græna búningunum enn. Þessi mótmæli í Frakklandi snúast minnst um bensín og dísilverð. Þau snúast um elítuna gegn þjóðinni. ESB-lýðskrums-kosningaplakatið fyrir stofnun Evrópusambandsins árið 1992, úr sömu skúffu, var svona

Parísarsamkomulag fljúgandi elíta, var ekki samkomulag við neina þjóð né neitt fólk. Hið sama gildir um það eins og um stofnun Evrópusambandsins 1992; bæði eru lýðskrumsverk fljúgandi glóbal-elíta, sem aðeins lenda til að mjólka landann

Uppfært 26.11.2018 kl. 07:10

Eftir að hafa í morgunsárið hlustað á Jón Baldvin Hannibalsson úr þokulúðrasveitarstöðvum DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, þar sem gengið er á gullfæti í bræddu ríkissilfri Egils, þá ætti öllum að vera það ljóst, að Jón Baldvin hlýtur að flokkast sem yfirmaður lýðskrumsflokka um ESB á Íslandi. Áratugum saman mærði hann hinn lýðskrumspólitíska myntbandalags-bastarð Evrópusambandsins út og inn alla daga og nætur. Hann vissi auðvitað minna en ekkert um hvað hann var að tala, allan þann tíma. Hann lýðskrumaðist bara áfram með það mál á meðan allir menn með fullu viti sögðu alveg frá byrjun, að myntbandalag Evrópusambandsins væri fullkomin tortímandi efnahagsleg og pólitísk geðbilun, ofan í ERM (e. extended recession mechanism) sem líka var tortímandi útópía hins framlengjandi kreppufyrirkomulags EEC. Stofnun Evrópusambandsins var því fyrst og fremst geðbilun og lýðskrumsverk verstu lýðskrumara álfunnar í 500 ár, því með Maastrichtsáttmálanum var það og Evrópusambandið stofnað árið 1992

Allir með bara eina baun í heilastað vissu frá upphafi að evran var geðbilun. Allir með eina baun í toppstykkinu vissu líka að hinn svo kallaði "innri markaður" ESB var einnig geðbilun og firrt útópía. Hann er einungis stuðarasvæði Þýskalands (e. buffer zone) og er að sprengja Evrópu í tætlur með þeytivinduaflinu sem Þýskaland ávallt stendur fyrir í álfunni. Þetta á Jón Baldvin þó enn eftir að skilja. En það kemur vonandi

Allt Samfylkingarbatteríið í kringum Jón Baldvin er eitt samfellt lýðskrum, því allt batteríið um hið svo kallaða Evrópusamband er fyrst og fremst tært lýðskrum. Enginn bað um sambandið og enginn hefur haft hið minnsta gagn af því og það var minna en engin þörf á því. Þvert á móti þá hefur það rústað álfunni efnahagslega, félagslega og pólitískt, og hún stendur því nú á barmi nýs kerfislægs ófriðar vegna einmitt sjálfrar tilvistar Evrópusambandsins. Verstu ófriðarbál mannkynssögunnar eru kerfislæg. Tilvist ESB er slíkt misfóstur. Það er Kína Evrópu

Om igen, om igen Jón Baldvin og svo væri ágætt ef þú reyndir að tala óútsletta íslensku, því þá skilur fólkið þig betur. Þú sem hafðir svo skemmtilegt vald á íslenskunni. En hafðu samt þakkir fyrir að hafa náð þetta langt í þessum byrjanda-áfangabekk um ESB. Næsti áfangabekkur fjallar um Perustrokk og Gallanostur ESB, þar sem þuklað verður á miðstýrðri ESB-ljósaperu, nostrað um galla misfóstursins og Adolf Hitler heiðrarður, eins og Petain, fyrir frammistöðuna fram til ársins 1939

Fyrri færsla

Snúið Ameríku-bak þetta. En er það svo?


mbl.is 42 handteknir í mótmælum í París
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snúið Ameríku-bak þetta. En er það svo?

Wall Street Journal 2018-11-06 - special US defence outlay Europe

Mynd, WSJ: Þróun sérstakra beinna útgjalda Bandaríkjanna til varnar Evrópu, ofan í allt annað, frá því að Donald J. Trump tók við forsetaembætti. Eins og sést snýr hann baki við, ekki Evrópu, heldur stefnu Barack Obama

****

CAESAR, NAPÓLEON, HITLER ... BRUSSEL

Í fyrradag héldu Bandaríkin upp á og minntust þess að vera það ríki frjálsra manna sem lifað hefur lengst í allri sögu mannkyns sem frjálst land frjálsra manna er stjórna sér sjálfir án kónga, keisara og einræðisherra. Bandaríkin eru eina landið í mannkynssögunni sem bæði er frjálst og öruggt samtímis. Þau eru eina ríkið í heiminum sem státað getur af slíkum árangri. "Við fólkið", eins og fyrstu tvö orð bandarísku stjórnarskrárinnar segja, treystum til dæmis á Guð, því hin heilaga ritning Vesturlanda, Biblían, er að mjög mörgu leyti hornsteinn Bandaríkjanna

Þegar gerðar eru kröfur til tveggja stærstu ESB-ríkjanna í Evrópu um að standa loksins við NATO-sáttmálaskuldbindingar sínar, þá rís í þýska kansleríinu dulbúin gáfumenna-deild Angelu Merkels upp með rassaköstum og hótar heiminum að smíða kjarnorkuvopn. Hvorki meira né minna. Þannig hefur Þýskaland ávallt hagað sér þegar aðrir krefja það um að uppfylla lágmarksskyldur sínar. Það tryllist. Á sama tíma mergsýgur það önnur lönd og fer með þau eins og nýlendur. Þessi sér-evrópski andaður andi smitar svo um sig í nýja ESB-keisaradæminu og kallar forseta Frakklands fram á svalirnar þar sem lýst er yfir smíði hers sem verja á hina ESB-aðframkomnu sukkstofnun Evrópu gegn Bandaríkjunum - á sama tíma og Frakkland gjaldfellur í NATO og neitar að borga. Er þetta ekki geðsjúkt og geðvillt! Verja Evrópusambandið gegn Bandaríkjunum. Þvílíkt lýðskrum af allra verstu sort! En við nánari athugun er að sjálfsögðu átt við að Evrópusambandið þurfi að verjast frelsi og fullveldi sjálfstæðra ríkja með stofnun nýs terror-yfirríkis, sem að sjálfsögðu verður nýmóðins Sovétríki - og er nú þegar á góðri leið með að verða það. Þýski kanslarinn frá DDR, heimtaði því í gær á fundi í Konrad Adenauer stofnuninni, að ESB-ríkin yrðu að vera reiðbúin að láta fullveldi sitt af hendi. Enginn kjósandi í neinu ESB-landi hefur verið spurður að neinu

"Það voru þjóðernissinnar sem björguðu Evrópu í tvígang," segir sagnfræðingurinn og bóndinn Victor Davis Hanson í grein sinni: The Mad, Mad Meditations of Monsieur Macron

Ísland verður aldrei frjálst OG öruggt svo lengi sem það er með annan fót sinn fastan í Evrópu. Við erum minna frjáls og minna fullvalda núna en við vorum áður en við gerðum samning við hið ömurlega Evrópusamband um EES. Og við erum minna örugg núna en þá, vegna EES-samningsins, þrátt fyrir Kalda-stríðs sigur Bandaríkjanna yfir Sovétríkjunum! Við höfum ekki haldið nógu vel á spilunum. Við þurfum að brenna EES-bátana sem fyrst. Þeir bátar eru vondir bátar. Við verðum að halda fyrst og fremst tryggð okkar við það eina frjálsa og örugga ríki sem til er í þessum heimi: Bandaríki Norður-Ameríku. Nýja heiminn! Annað er tálsýn og ömurleiki

Fyrri færsla

Orkupakki ESB: Beinlaus og bitlaus Sjálfstæðisflokkur?


Orkupakki ESB: Beinlaus og bitlaus Sjálfstæðisflokkur?

Það er ömurlegt að jafnvel sumir kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins skuli sækjast eftir að íslensk mál, hagsmunir og réttindi, skuli færð enn meira undir lagabákn og reglur ókjörinnar stofnunar Evrópusambandsins. Hér á ég við orkustjórnmála-pakka Evrópusambandsins og fleira

Nú hefur það samband náð svo langt í að vanskapa Evrópu að ríkin þar þurfa að búa við þann óhugnað að allt að helmingur löggjafar þeirra er saminn af ókjörinni klíku manna sem ekkert lýðræðislegt umboð hafa í neinu landi. Að slík banvæn beináta hinna allra lægstu hvata mannkyns hafi jafnvel náð að éta sig -ósýnilega- inn í hryggsúlu Sjálfstæðisflokksins er hrikalegt. Ekkert dæmi er til í allri mannkynssögunni um takmarkað ríkisvald í imperíal fyrirbærum á borð við Evrópusambandið. Þannig veldi verða alltaf og undantekningalaust ofríki yfir borgurunum og enda alltaf í blóðbaði

Hluta af þessu ofríki kynntust Íslendingar í kjölfar bankahrunsins og þegar íslenskir Vinstri grænir svikahrappar reyndu að troða landinu okkar þar inn með því að svíkja kjósendur sína á hinn hroðalegasta máta og þóttust vera að "semja við" fyrirbærið með Samfylkingu. Um þær icesave-mundir við halelúja-gagg embættismenna kom einnig í ljós að beinátan hafði holað hryggsúlu margra þingmanna Sjálfstæðisflokksins svo að innan, að það lá við að flokkurinn félli saman. Restin af flokknum er það sem sést sem rúm tuttugu prósent í dag, og sem heldur varla lengi, því formaðurinn er nýbúinn að gera marxíska útópíusamninga við svikahrappaflokk Vinstri grænna um að banna og banna og banna freslið, á meðan ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins, föst í humarklóm, heldur að orka sé eitthvað sem lúti lögmálum um frjálsa markaði. Sennilega tók þetta lið ekki eftir 2x500 MW virkjuninni um borð í USS Harry S. Truman (4x Búrfell) þegar það lét ljósmynda sig á flugbraut þess. Það heldur kannski að hægt sé að stóla á "frjálsa markaði" við að knýja 100 þúsund tonn áfram á 60 km hraða á klukkustund um höfin 20 ár í senn. Þegar um orku er að ræða þá ráða hernaðarlögmálin mestu um þau mál. Aðeins fífl halda að orkugeiri landa sé til að fara með á markað eins og um gosdrykki sé að ræða

Styrmir Gunnarsson spyr skiljanlega hvers vegna þessi hrikalega þögn ríki um samþykkt miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem hafnar þriðja orkustjórnmála-pakka Evrópusambandsins

Þetta er þörf spurning hjá Styrmi. Svarið við henni er hins vegar það að Napóleon sagði að aldrei mætti trufla óvininn á meðan hann er að gera í buxur sínar. Þá þarf nefnilega að ríkja þögn. Og þetta er hún

Búast má því við að það sé enn einu sinni rétt að flokksforysta Sjálfstæðisflokksins sé búin að kaupa sér bleyjupakka, en sé þó enn að bera það undir me-too marxistahreyfinguna hvað gera skuli næst í flokknum á Facebook. Óvinir flokksins þegja þó sem fastast og minnast ekki á orkuskiptin á flokknum, sem Embættismennastéttin mátar við forystuna með berum augum, eins og sést í öllum könnunum

Evrópusambandið er Napólonsk útópía. Sambandið er tandurhrein firra frá upphafi til enda og eitt samfellt lýðskrumsverk. Bræðin í fólkinu á götum og í sveitum landa þess er að verða svo mikli að það styttist í næstu bardaga, því helmingurinn af þeim lögum sem fólkið í sambandinu býr við, er saminn af ókjörnum lýðskrumurum í öðrum löndum. Fólk þolir þetta ekki lengur. Þetta samræmist ekki þeirri þjóðerniskennd þjóðanna sem ól af sér sjálfsákvörðunarrétt þeirra og þjóðfrelsi. Fólkið er að verða hrikalega reitt og sárt og Evrópusambandið er í engu sambandi við það. Engu sambandi, enda er það umboðslaust. Fólkið bað aldrei um Evrópusambandið

Að Sjálfstæðisflokkurinn sé að hika við að hafna alfarið meiru af þessu viðurstyggilega sambandi, boðar ekki neitt gott fyrir minn flokk. Og loks til áminningar: EKKERT esb-ríki hefur haft neinn teljanlegan hag af hinum svo kallaða "innri markaði" Evrópusambandsins. Sá markaður er einungis stuðpúðasvæði Þýskalands, eins og Rússland hefur það með löndin í sínum jöðrum, og þar á meðal er Úkraína. Án þessa stuðpúða er Þýskaland gjaldþrota

Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Franski fasistinn Pétain heiðraður


Franski fasistinn Pétain heiðraður

Franska Maastricht herferðin ps-maastr92

Mynd: Kosninga-áróðursplakat Mitterrands forseta Frakklands fyrir stofnun Evrópusambandsins árið 1992. Lýðskrumið og Bandaríkjahatrið "nei við Bandaríkjunum og Japan með því að segja já við stofnun Evrópusambandsins" sést á myndinni. Fréttirnar um hrun Japans 1989 höfðu ekki enn borist. En þarna fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um stofnun Evrópusambandsins, með svo kölluðum Maastricht-sáttmála. Aðeins 51 prósent Frakka sögðu já. Kosningaþátttakan var aðeins 69,7 prósent

****

ESB OG EVRAN

Emmanuel Macron notaði tækifærið um síðustu helgi -þar sem byrjuninni á endalokum Fyrri heimsstyrjaldarinnar var fagnað- og heiðraði sem yfirmaður franska hersins marskálk Philippe Pétain, sem var einn harðasti fasisti Frakklands í Síðari heimsstyrjöldinni, þar sem hann sat í embætti forsætisráðherra og þjóðhöfðingja Frakklands. Þar vann Pétain þétt saman með þýskum nasistum. Stóð hann meðal annars fyrir því að smala Gyðingum í Frakklandi saman, sem fyrir það eitt að vera hin varnar- og þjóðarheimilislausa smáþjóð Gyðingar, voru sendir til útrýmingar í morðiðnaðarkerfi kanslara Þýskalands, sem þá hét Adolf Hitler. Árið 1945 var Pétain dæmdur til dauða af hæstarétti Frakklands fyrir landráð. Dómurinn var síðar mildaður í ævilangt fangelsi. Pétain var þarna um síðustu helgi heiðraður fyrir frammistöðu sína í Fyrri heimsstyrjöldinni. Mönnum ber þó ekki enn saman um hana. Pétain kenndi lýðræðinu um að veikja Frakkland og átti það að hafa lagt gruninn að minna en góðum viðbrögðum franska hersins er Þjóðverjar réðust þar inn og Pétain samdi við þá um hernám Frakklands. Þeim Gyðingum sem eftir eru í Frakklandi brá heldur betur í brún þessa helgina

Næsta dag fór Emmanuel Macron svo í ný föt og tengdi þá sem sýna þjóð sinni tilfinningar sem eru næsti bær við móðurástina -þ.e. þjóðernisást- við fasisma. Því með henni eru þeir að vanvirða allar aðrar þjóðir með því að þykja meira vænt um sína eign þjóð og sitt eigið land en allar aðrar þjóðir og öll önnur lönd heimsins. Ömurlegur tilgangurinn með því að segja svona þarna á þessari stund, er auðvitað fyrst og fremst sá að tengja alla þá sem sýna Evrópusambandinu andspyrnu, við einmitt fasisma. Jósef Stalín tókst stundum að snúa sovéskum börnum gegn foreldrum sínum og láta þau ljóstra upp um þá. Ástin á kommúnismanum var æðsta ástin í því þjóðskipulagi. Æðri en móðurástin

Fyrir helgi, sagði franski Macron-forsetinn að Evrópusambandið þyrfti að stofna her sem verndað gæti það gegn Bandaríkjunum, sem Frakkland með NATO-aðild sinni er þó skuldbundið að verja. Bandaríkin hafa nefnilega gagnrýnt helstu forsprakka Evrópusambandsins, þ.e. Þýskaland og Frakkland, fyrir að standa ekki við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO og þar með að sýna slæmt fordæmi sem önnur NATO-aðildarríki í Evrópusambandinu þá fylgja. En þar sem flest Evrópusambandsríkin segjast ekki hafa efni á að standa við NATO-skuldbindingar sínar, þá á sem sagt, samkvæmt Macron, að stofna þann Evrópusambandsher sem sambandið hefur efni á til að verjast Bandaríkjunum. Hann nefndi líka Rússland og Kína, en Japan var þó sleppt í þetta skiptið

Í næstu viku má því gera ráð fyrir að Macron og afgangurinn af kanslara Merkel setjist yfir það verk að forrita kjarnorkuvopna-eldflaugar Frakklands upp á nýtt, þannig að þær séu klárar til að sendast á Bandaríkin. Að þær bendi frá og með þá á þau. Byrjað verður auðvitað á því sem er ódýrast. Hvað framhaldið svo verður er væntanlega undir þýskum ostum og súrkáli komið, sem Macron snæðir dag hvern til að komast hjá því að sýnast franskur. Þess má geta að franska hagkerfið er það lokaðasta í OECD. En því ræður forsetinn að sjálfsögðu engu um, þar sem hann er helst ekki franskur

Síðasta verk Angelu Merkel í kanslaraembættinu gæti frá og með nú orðið það að heiðra Adolf Hitler fyrir frammistöðu hans fram til ársins 1939

Síðan gætu þau Macron og Merkel sest yfir íslenskum sviðakjömmum (að sjálfsögðu ekki frá Guðna Th. forseta X) og haldið áfram að gera eins og Pétain; að kenna lýðræði (kosningum) um veikleika og hrakfarir Evrópusambandsins. En einmitt það hefur verið föst venja Evrópusambandsins áratugum saman. Herða verður sambandið svo það standist þá komandi árás Bandaríkjanna sem Macron greindi frá fyrir helgi

Fyrri færsla

Á 11. stund 11. dags 11. mánaðar fyrir 100 árum


Á 11. stund 11. dags 11. mánaðar fyrir 100 árum

Auðlegð þjóðanna: Nýjasta stálstykkið á 1700 miljarða króna hóf sjópróf sín í fyrra. Þetta er enn eitt bandaríska ofurstálstykkið í röð ellefu slíkra. Aðeins 153 ár eru liðin frá því að Bandaríkin lágu í rústum borgarastyrjaldar. Ekkert annað ríki mannkynssögunnar hefur ráðið ríkjum á öllum höfum jarðar samtímis. Millistéttin er hryggsúlan og Trump er að styrkja hana

****

SVEFNGENGLAR KOMA EKKI AF STAÐ STYRJÖLD

Fyrri heimsstyrjöldin skall ekki á vegna fyrst og fremst svo kallaðra "pólitískra svefngengla", eins og oft hefur verið haldið fram. Henni lauk 11. nóvember kl. 11 fyrir hundrað árum. 20 milljón manns létu lífið

Þýskaland ræður í dag einu sinni enn ríkjum í Evrópu eins og það gerði 1871, 1914 og 1939. Hvað gerist næst veit enginn. En nú er komið að því að Þýskaland fari enn einu sinni í brjálæðiskast og það er nú þegar byrjað að taka nýja syrpu á Evrópu með því að:

1. Tilskipa peningapólitískar kúgunaraðgerðir gegn ríkjum Suður-Evrópu og setja ríki þeirra á annan endann fjárhagslega, efnahagslega og pólitískt séð, eftir að hafa fyrst þrýstidælt inn á þau illa fengu lánsfé með útlánaskilmálum undir beltisstað, með ECB-seðlabankann í rassvasanum

2. Tilskipa kúgunaraðgerðir gegn þjóðum Austur-Evrópu til að neyða þau til að taka við hrikalegum afleiðingum vanhæfs kanslara Þýskalands í innflytjendamálum, með hótunum um að rúlla yfir nýfengið sjálfstæði þeirra, hlýði þau ekki

3. Tilskipa kúgunaraðgerðir gegn Stóra-Bretlandi vegna Brexit

4. Hvetja önnur ríki í Evrópu til að gjaldfalla á skuldbindingum sínum í NATO með því hlaupast sjálft á brott frá sínum eigin skuldbindingum þar, og þar með eyðileggja varnarbandalagið sem mest innanfrá

5. Skilyrða útkomur Evrópusambandsríkja úr áföllum, þjóðerni þeirra

Já tímarnir breytast, og um síðustu helgi sáum við að það var ekki efnahagurinn sem skipti mestu máli í þingkosningunum í Bandaríkjunum, eins og sífellt er tönglast á með hakkavélum heimskunnar, með til dæmis hinu þreytta enska slagorði "it is the economy stupid", heldur voru það ríkiborgararéttindi og þegnskapur í þjóðríki sem skipti öllu máli þar, eins og þegar Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu. Fólk vill búa í þjóðríki. Það vill ekki bara búa í hagkerfi eða regluverki. Móðurástin, þ.e. ástin á sínum nánustu, til dæmis sinni eigin þjóð, er hvorki pólitísk kenning né regluverk. Sífellt fleiri kosningar snúast um þessi algeru tilvistarmál, sem eru frumforsendur velsældar og alls annars

KERFISLÆGAR STYRJALDIR

Kerfislægar styrjaldir verða fyrst og fremst vegna þess að ný ríki (veldi) eru að ryðja sér til rúms í veraldarhafinu. Og svo einnig vegna ríkja (velda) sem eru að sökkva í hinu sama pólitíska hafi heimsins

Fyrri heimsstyrjöldin varð vegna þess að þrjú ný ríki voru að ryðja sér til rúms í heiminum: 1. Japan, 2. Þýskaland og 3. Bandaríkin. Önnur ríki (veldi) voru þvinguð til hliðar og það gekk ekki þegjandi og hlóðalaust fyrir sig. Þegar skipan heimsmála riðlast, þá er um meiriháttar afleiðingar að ræða

Allir sem hugsuðu hefðu átt að vita að stofnun Þýskalands 1871 myndi hafa stórkostleg áhrif á önnur ríki í Evrópu og á heiminn allan. Það sama gildir um Japan. En það sem skipti mestu máli voru hin nýju Bandaríki Norður-Ameríku í vestri

Frá lokum borgarastyrjaldar Bandaríkjanna 1865 og á næstu 40 árum þróuðust þau úr stríðshrjáðu landi, yfir í að framleiða helming alls þess sem framleitt var í heiminum árið 1900. Já, stríð geta stundum leyst mál. Þarna urðu Bandaríkin ein ósundrandi þjóð. Blek á pappír á borð við sjálfstæðisyfirlýsingar býr ekki til þjóðir. Það gerir hins vegar blóð, sameiginlegar þjáningar og trú, saga, tungumál og áföll

Ris Bandaríkjanna kostaði önnur ríki stöðuna sem heimsveldi. Og það voru Bandaríkin sem í fyrsta skiptið í mannkynssögunni sendu tvær milljóir manns úr nýja heiminum yfir í gamla heiminn til að koma í veg fyrir að ein pólitísk eining myndi ráða yfir samfelldum landmassa frá ströndum Atlantshafs til Kyrrahafs, sem ógnað gæti hinu nýja lýðveldi Bandaríkjanna með tvennum vígstöðvum. Þetta endurtóku þau stuttu síðar í síðari fasa sömu styrjaldar

Í dag eru það bæði sökkvandi og rísandi ríki (veldi) sem móta söguna. Evrópa er að anda út sínum síðasta anda sem fyrrverandi ofaní fyrrverandi safn velda á borð Egyptaland hið forna. Evrópa réði heiminum í samfellt 500 ár. Sá tími er liðinn núna

Rússland er að sökkva sem síðasta veldið í Evrópu sem einhver áhrif hefur í sínum heimshluta. Með falli Sovétríkjanna féll síðasta veldi Evrópu sem hafði áhrifavald um allan heim; þ.e. heimsáhrif. En Evrópa hefur ekki lengur neitt heimsáhrifavald í neinum mikilvægum málum. Það er rétt svo að um heimshlutavald er að ræða, þegar menn nefna Evrópu á nafn. En án Bandaríkjanna getur Evrópa ekkert, því Evrópa er ekki eitt-ríki og getur ekki orðið eitt-ríki og verður aldrei eitt-ríki. Þannig er staða Evrópu orðin í dag

Og nú virðist tími Rússlands og Þýskalands kominn til að hverfa af sögusviðinu sem heimshluta-veldi. Það mun ekki ganga þegjandi og hljóðalaust fyrir sig. Ekkert getur stöðvað þetta ferli, sýnist mér

Næstu 500 árin í mannkynssögunni verða í nafni Bandaríkja Norður-Ameríku. Austurhvel jarðar, gamli heimurinn, er að brotna upp í pólitískar öreindir

Um daginn spurði ég: "Er það kannski einber tilviljun að gengi gjaldmiðla Rússlands, Tyrklands og Írans (Sýrland-potturinn) er á hraðri niðurleið, gagnvart Bandaríkjadal?

Ef þetta er ekki tilviljun, hver skyldi þá samnefnari þessa sameignlega gengisfalls þessara þriggja gjaldmiðla vera?"

Svarið er þetta; Þessi þrjú ríki eru andsnúin Bandaríkjunum. Það er það sem er að gerast. Slíkt er heimsáhrifavald Bandaríkjanna að erfitt er að sameinast gegn þeim. Það kostar. En hér er ekki um vísvitandi aðgerð af hálfu Bandaríkjanna að ræða. Heldur er þetta einungis dæmi sem sannar hvað það getur kostað að sameinast gegn Bandaríkjunum. Markaðurinn hugsar sitt og leitar í skjól tilvistarlegs öryggis. Slíkt pólitískt tilvistaröryggi er nú aðeins að finna á Vesturhveli jarðar í dag. Og svo mun verða um langa framtíð. Austurhvelið -gamli heimurinn- er að brotna upp

Almenningsálit hefur aldrei verið áhrifavald í heiminum. Það er eins og andvari eða goluþytur. Soft-power er einungis háskóla-fetismi til að breiða yfir ekkert-vald. Mjúkt-vald án raunverulegra valda er ekkert-vald

Krækja

Victor Davis Hanson, sagnfræðingur og bóndi: The 11th Hour of the 11th Day of the 11th Month—100 Years Ago

Fyrri færsla

Evrópa ætti að stóla á hernaðarmátt Pútíns


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband