Leita í fréttum mbl.is

"Blaðamaður" í Mið-Austurlöndum eða Rússlandi ?

Nokkuð mikið af því sem menn segja fréttir, hafa verið sagðar af stjórnmála- og blaðamanni sem hét líklega Jamal Khashoggi. Í því sambandi er gott að muna eftirfarandi:

Allir blaðamenn í hvorki Sádi-Arabíu, Tyrklandi né Rússlandi eru ekki dauðir, að minnsta kosti ekki enn sem komið er, þó svo að nokkuð margir andstæðingar þjóðhöfðingja þessara þriggja ríkja séu það

  1. Pútín
  2. Erdogan
  3. Konungur Sádi-Arabíu
  4. - og svo er það Kína

Bandaríkin eru eina stórveldi heimsins. Það, Tyrkland og Sádi-Arabía ásamt Ísrael og nokkrum öðrum ríkum, hafa bundist óformlegu bandalagi sem reynir að sporna við mjög svo auknum áhrifum Írans í Mið-Austurlöndum, sem eru heimshluti

Þrjú ríki berjast um sætið sem heimshlutaveldið í þessum heimshluta; (1) Íran, (2) Tyrkland og (3) Sádi-Arabía

Þau ríki sem til greina koma sem ráðandi heimshlutaveldi Mið-Austurlanda eru þó bara Íran og Tyrkland

En þau tvö ríki sem hins vegar segjast vera leiðtogaríki allra Sunni-múslíma í öllum löndum, eru Sádi-Arabía og Tyrkland. Saga Tyrklands sem leiðtogaríkis Sunni-múslíma er nokkuð löng. En hún endaði þegar Tyrkjaveldið féll alveg snemma á 20. öld, og þegar Sádi-Arabía varð formlega til sem konungsríki 1932. Þá tók Sádi við gæslu tveggja helgustu staða múslíma: Mekka og Medina

Tyrkland vill fá þennan titil aftur. Sádi-Arabía vill ekki missa hann. Og í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar tóku Bandaríkin við af Bretum, sem ábyrgðarmaður þjóðaröryggis Sádi-Arabíu

Óformlegt bandalag þessara ofangreindu ríkja gegn útbreiðslu Írans í Mið-Austurlöndum, eftir fall Ríkis Íslam (ISIS), stendur og fellur með þátttöku Bandaríkjanna. Falli þetta bandalag, þá fellur þjóðaröryggi Sádi-Arabíu líka. Og þá fellur heimshlutinn annað hvort til Írans eða Tyrklands, og með vissu inn í spíral upplausnar og stríða. Ef það gerist, þá geta Vesturlönd kannski um leið ýtt á eject-hnappinn fyrir núverandi velsæld og Pútín blaðamannavinur í Moskvu yrði umsvifalaust stórveldi á ný, því olía hans myndi kannski hækka í 300 til 400 dali tunnan á alþjóðlegum mörkuðum, og efnahagslíkan Íslands falla saman um leið og kúnnar þess falla um víða jörð

Blaðamaðurinn (í Sarajevó) svo kallaði, sem var meira stjórnmálamaður en blaðamaður, var andsnúinn stjórnvöldum Sádi-Arabíu. Þangað vildi hann fá sama stjórnmálaform og nú er að vaxa sig trúarlega stórt og sterkt sem íslamistaríki í Tyrklandi. Þess vegna er Tyrklandi svona vel við tilræðið á blaðastjórnmálamanninum, því það hjálpar því við að grafa undan Sádi-Arabíu og koma þar af stað upplausn, uppreisn eða óförum sem leitt geta til þess að það verði Tyrkland en ekki Sádi-Arabía sem stendur eftir sem leiðtogi Sunni-múslíma í öllum löndum

"Lengra" nær þetta ekki

Einu sinni varð mesti þálifandi fjöldamorðingi mannkynssögunar bandamaður Bretlands og Bandaríkjanna; um var að ræða Jósef Stalín. Þá sögðu Bretar og Bandaríkjamenn; "Hitler er verri. Við skulum fyrst ráða niðurlögum hans í bandalagi við Stalín. Þegar Hitler er farinn, þá snúum við okkur að Stalín. Við þurfum ekki að vera fullkomin. Við þurfum einungis að vera nóg góð"

Og nú skrifar nýsjálenskt dagblað að Evrópusambandið sé orðið það sem sambandið sagðist ætla að koma í veg fyrir að gæti gerst í Evrópu. Var Evrópa kannski ekki nógu góð frá 1945 til 1991? Hún er að minnsta kosti miklu verri í dag en þá. Krækja: "EU has become the kind of dictatorship it aimed to defeat"

Ég er að lesa hina nýju þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna (PDF). Hún kom út í desember 2017 og heitir: A Strategy of Principled Realism

Bless Útópía

Fyrri færsla

Nú eru það loftslags- og umhverfisvafningar sem seljast


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband