Þriðjudagur, 8. janúar 2019
Get ekki horft á meiri Ófærð. Nota Bergman í staðinn
Með því að horfa á Jacques Villeret fara með kvikmyndina Ingmar Bergman á innan við mínútu, þá sparast 54 mínútur, því að myndin Bergman með Jacques Villeret er bara ein mínúta. Þetta gengur því 55 sinnum hraðar fyrir sig en Ófærð, en hefur sama aðvörunargildi; kveikið ekki á DDR-Ríkissjónvarpinu í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar!
Frá því að Ingmar Bergman stóð fyrir hraðsteyptum skógi af honum sjálfsprottnum sjálfsmorðsdeildum á skandínavískum geðsjúkrahúsum, úti í hinu gráa og blýgráa endalausa þokuflatlendi Skánar, Jótlands og Sjálands, þar sem norrænn pyntingar-kratismi vex, þá hefur aðeins þetta bæst í helvítis handritin:
ÖLL fyrirtæki eru vond
ALLIR stjórnmálamenn eru vondir
ALLTAF verður að hafa homma með og helst lesbíur, því alkar eru komnir úr tísku (5-prósent reglan)
ALLIR hvítir eru vondir
Og ALLIR þeldökkir eru góðir
ALLIR eru samt aumingjar, nema þeir algerlega erlendu
ALLT gott er VONT
Og skylda er að hafa tíundu hverja persónu frá hinumegin af jörðinni
ALLIR peningar annarra eru eitraðir
Og ALLT satt er lygi
Lífið er HELVÍTI !!
Já lífið hjá frjálsustu og ríkustu kynslóð mannkynssögunar, er sannkallað skandínavískt vandmála-helvíti, ekki satt. Og ofan í það þá virðist útópísk-rómantísk náttúrudýrkun hafa gert fólkið náttúrulaust. Fólkið er að blásast upp og svo burt eins og geldur melur
Ég þoli bara ekki meira af þessari umturnuðu útópísku rullu, þar sem áratugurinn cirka 1970 er endurlífgaður sem nýr Led Frankenstein Hippalín á metafisískum gereyðilögðum deginum eftir Daginn eftir eftir Carl Sagan, og með því að poppa áratuginn upp sem Bergman, keyrðan í gegnum endurræsta SR-46, eftir 50 ára hlé, og svo dælt í gamlan mjölpoka af efstu hæð Gránu
Nú hef ég fengið gersamlega nóg af molbúa-skandínavísku þunglyndisefni, því ég bjó þar í 28 ár og var kominn með upp í háls af sósíalvandamála þunglyndis-myrkraverkum Skandínava. Um daginn gaf og henti ég öllum þeim bókum sem ég átti eftir steinsteyptu-sósíalistana Jan Guillou og Henning Mankell sem eyðilögðu Svíþjóð enn betur er Bergmann, sem sökk til helvítis í leirþokuna á Skáni
Mikið hlakka ég til þegar Yuppies koma til baka og þrusa nýrri Blondie í gang og mosaskeggur rakar sig. En á meðan reyni ég að halda lífi með því að loka fyrir DDRÚV, og hlusta á Glen syngja um línumanninn í Wichita. Þá var fólk ekki enn byrjað að farast úr tilgangslausu frelsi. Það var enn þakklátt fyrir að drepast ekki, skyldi það fá botnlangabólgu. Það mundi enn
Fyrri færsla
Gulu-vestin: Boxarinn frá Massy boxar frönsku lögregluna
Og
BLONDIE !
Take that DDRÚV!
Hvenær get ég hætt að borga!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Mánudagur, 7. janúar 2019
Gulu-vestin: Boxarinn frá Massy boxar frönsku lögregluna
Myndskeið: Gulum vestum var skyndilega lagt lið um helgina
****
Christophe Dettinger er franskur boxari sem varð Frakklandsmeistari í léttþungavigt árið 2007 og hélt titlinum í tvö ár. Þarna sést hann boxa. Kannski hefur framferði frönksu lögreglunnar farið í skap hans um helgina. Kannski ekki. En hann brást við. Enska dagblaðið Daily Mail, sem hefur nafngreint hann, segir að vegna þessa atviks eigi Dettinger yfir höfði sér 3-5 ára fangelsisvist. Er hans nú leitað. Rocky-húfuna á kollinum passar hann vel. Er annað hægt en að segja vaú hér - og velkomin til Evrópusambandsins?
Samkvæmt franska innanríkisráðuneytinu mótmæltu 50 þúsund manns nú um helgina, borið saman við 32 þúsund yfir jólin. Sagði ráðuneytið að 56 þúsund manna lögregluliði væri beitt gegn mótmælendum í landinu
Kannski þarf Macron forseti að fara að gera skellinöðru Hollande klára og fá hjálminn að láni sem aðstoðarmaður hans notaði við að berja mótmælendur. Og kannski lögreglumerkið líka. Ekki veit ég hvort að þetta sé staðfest sem verandi satt sem sést hér, en ljótt er það. Stundum eru fölsk myndskeið sett á YouTube. Við skulum að minnsta kosti vona að þetta sé ekki rétt
Áhlaup á Bastilluna gæti farið að koma til greina. En kannski að úrsögn Frakklands úr Evrópusambandinu geti stöðvað það. Varla er ofmælt að segja að þar innanborðs sé allt meira og minna á hvolfi og að reykinn sé farið að leggja upp af reiði fólksins í mörgum löndum þess
KÍNAKÁLIÐ OG ÁVAXTAFÉLAGIÐ
Leiðari Morgunblaðsins segir Warren Bufftet að fara varlega á hlutabréfamarkaðnum þessa dagana, vegna til dæmis Apple og Kína. En það fyrirtæki er stærsta einstaka eign Warrens. Ef hann fer nógu varlega þá kemst það kannski ekki upp fyrr en að hann er búin að fara mjög varlega að því að kaupa enn meira í Apple á meðan blóðið flytur. Hann vissi náttúrlega að frá því að Apple braut 200-dala múrinn þann fyrsta ágúst síðastliðinn, þá trylltist markaðurinn yfir alla línuna og bjó til bólustúf sem varaði í þrjá mánuði, eða fram í byrjun október. Þar rann svo á menn gríman gamla og þeir fóru að sjá að sér. Svo kom hin bólan, niðurbólan og andbólan (dældin), og þar erum við stödd í dag; í dæld. Það eru því góðir dagar fyrir Warren Bufftet í dag. Hann segist alltaf kaupa þegar óttinn ríkir og blóðið flýtur. Heimspeki hans er sú að hlutabréf séu eins og allt annað; þ.e. alltaf allt of dýr - og að hann voni því hvern einasta dag að þau lækki. En auðvitað gera þau það ekki, það veit hann of fossríkt vel. Ekki alltaf, en stundum. Þau lækka samt ekki nógu oft og þau hækka. Það vandamál geymir hann svo í peningaskáp
ÞÝSKALAND YFIRGEFI EVRÓPUSAMBANDIÐ
Þýski AfD flokkurinn (Valkostur fyrir Þýskaland) er þessa dagana að koma saman pólitískri stjórnarskrá flokksins fyrir næsta kjörtímabil ESB-platþingsins. Á prógramm flokksins er komin úrsögn Þýskalands úr Evrópusambandinu, takist ekki að forma sambandið til eftir óskum hans á næstu fimm árum. Flokkurinn segir að Evrópusambandið sé orðin gerspillt nómenklattúruklessa á Evrópu og að löndin verði að taka þjóðarmyntir sínar í notkun aftur. Hér er hið nýja prógramm AfD-flokksins á PDF formi. Hann er nú þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Þýskalands - og sem sagt: kominn með úrsögn Þýskalands úr ESB á sína pólitísku dagskrá. Það eru stór tíðindi í því landi
Fyrri færsla
2018 var gott ár fyrir Bandaríkin: þau stækkuðu og urðu betri
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 5. janúar 2019
2018 var gott ár fyrir Bandaríkin: þau stækkuðu og urðu betri
Mynd: Donald J. Trump, 45. forseti Bandaríkjanna. Ekki fæddur í gær
****
Að gera Bandaríkin stór tókst vel á síðasta ári. Fleiri svona ár gera þau sannarlega mikilfenglegri
Á árinu 2018 urðu Bandaríkin stærsti olíuframleiðandi veraldar með því að framleiða 11,6 milljón tunnur af hráolíu á dag. Í fyrsta sinn síðan árið 1973, eru þau stærsti olíuframleiðandi heims. Frá því að Trump tók völdin jókst framleiðslan um 3 milljón tunnur á dag. Hann minnkaði flækjustig í reglugerðafrumskóginum og lét meira af landi ríkisins liggja lausara til notkunar
Á árinu 2018 urðu Bandaríkin stærsti jarðgasframleiðandi heimsins og næst stærsti kolaframleiðandinn
Á árinu 2018 urðu Bandaríkin sjálfum sér næg með orku og útflutningur olíu hefur farið úr 700 þúsund tunnum á dag upp í 2,3 milljón tunnur á dag í stjórnartíð Trumps
Á árinu 2018 stækkaði hagkerfi Bandaríkjanna um 1,7 billjón dali og varð þar með næstum tvöfalt stærra en það Kínverska. Það stækkaði um 3,4 plús 4,2 prósentur á tveimur síðustu fjórðungum ársins. Nú þarf þrjá Kínverja til að framleiða rúmlega helming þess sem einn Bandaríkjamaður framleiðir
Á árinu 2018 fór atvinnuleysi í Bandaríkjunum niður í 3,7 prósent og slíkt hefur ekki gerst allar götur frá 1969. Atvinnurekendur eru í fyrsta skiptið í manns minnum byrjaðir að leita eftir fólki, en ekki öfugt, og þrjár milljónir Bandaríkjamanna þurftu ekki lengur á matarmiðum frá ríkinu að halda. Átta milljónir manna misstu stöðu sína sem verandi fátækir miðað við stöðuna fyrir átta árum síðan. Þetta er hræðilegt áfall fyrir vinstrimenn, en hvað gera Demókratar í því? Jú þeir stunduðu eyðileggingar, hvern einasta dag ársins 2018
Á árinu 2018 sögðu Bandaríkin sig frá Parísasamkomulagi um fúpp og fídus, og gerðu betur í þeim efnum en flestir þeir sem þar sitja og fróa sér efnahags- og málefnalega á kostnað skattgreiðenda
Á árinu 2018 varð ekki stríð á milli Bandaríkjanna og Norður-Kóreu. Kjarnorkuvopnaprófanir hættu og engum eldflaugum var skotið á loft né yfir nágrannalönd þess
Á árinu 2018 hrundi NAFTA ekki eins og fjölmiðlar og vinstrimenn messuðu. Samið var um viðskipti á milli þriggja landa Norður-Ameríku á ný
Á árinu 2018 hrundi NATO-ekki. Evrópuríkin "segjast" ætla að taka meiri þátt í að verja sig og börn sín. Þetta er síðasti sénsinn sem Bandaríkin geta gefið NATO-löndum Evrópu, því að Bandarískur almenningur, sem nýtur ekki veisluhalda NATO-elíta Evrópu, er orðinn næstum því 100 prósent viss um að NATO sé gildra sem Evrópa er að reyna að læsa Bandaríkin föst í. Flækjustigið í NATO er slíkt að varla er lengur víst að Bandaríkin fái að flytja hermenn og hergögn frá Normandí um Þýskaland og til austur-vígstöðvanna. Það eina sem eftir er af gamla NATO eru Bandaríkin, Pólland og Rúmenía. Það er að segja Bandaríkin í Póllandi og Rúmeníu, tvíhliða
Á árinu 2018 var í fyrsta sinn ráðist í það þarfa verk að byrja að meðhöndla Kína sem terrorríki í viðskiptum, alþjóðlegri sambúð og pólitískum tilvistarmálum heimsins
Á árinu 2018 var með morði á Jamal Khashoggi reynt að brjóta í spað hið óformlega anti-Íran bandalag Bandaríkjanna, Saudi Arabíu, Ísrael og Sameinuðu furstadæma Arabíu og annarra. En það tókst ekki
Á árinu 2018 var Donald J. Trump með miklu meira flygi og vinsældir meðal kjósenda en Angela Merkel, Theresa May og Emmanuel Macron höfðu í sínum löndum
Á árinu 2018 héldu vestrænir fjölmiðlar áfram miðilsfundum í sjálfsmorðsherbergjum sínum
Á árinu 2018 voru grunngildi Bandaríkjanna endurreist meira á einu ári en ef til vill nokkru sinni áður: Ríkið og hið opinbera, fékk mun meira og fastara þá stöðu grunaðs aðila og sakbornings sem stofnun Bandaríkjanna snérist um að yrði ávallt staða þess í þjóðfélagi Bandaríkjamanna. Að ríkisstjórnin hafi ávallt þá stöðu og virki það illa að hún láti borgarana í friði. Alveg þveröfugt við Evrópuaðalinn, sem býr svo vel að stór hluti almennings skríður enn um á jörðinni kyssandi dugleysi hins opinbera og ömurleika þess - og sé eins og dópistinn, öskrandi á enn meiri dugleysis-pyntingar hins opinbera. Ýmislegt fleira má nefna árinu 2018 tekna, fyrir Bandaríkin
Er ekki kominn tími á að Íslendingar ræði Bandaríkjamálin af fullu viti á ný?
Krækja: Actually, 2018 Was a Pretty Good Year (VDH)
Fyrri færsla
Skyndilegt sölustopp Apple í Kína
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 4. janúar 2019
Skyndilegt sölustopp Apple í Kína
Fyrirlestur Michael Pettis um Kína á gamla vinnustað Alberts Einstein. Takið vel eftir. Pettis rak um skeið punk-bar í Kína en honum lokuðu yfirvöld
****
Er Apple kanarífuglinn í kolanámunni?
Í fyrrakvöld kom afkomuviðvörun frá Apple. Salan verður minni en áætlað var í byrjun nóvember og sem þýðir 4-5 prósentu fall í veltu á milli ára, skrifaði Tim Cook forstjóri Apple. Öll aðvörunin tengist Kína, sem hæglega gæti verið að leggjast inn á bráðamóttöku. Annars kemur Apple-árið út með hæsta EPS nokkru sinni (hagnaður á hvern hlut)
Sem sagt: Apple sat með eigendum fyrirtækisins (almennings-hluthöfum þess) og greinendum þann 1. nóvember 2018 og gerði grein fyrir síðasta fjórðungsuppgjöri á símaráðstefnu með eigendum, öllum heiminum í vefvarpi og helsti greinendum. Tim Cook kom þar með íhaldssamar leiðbeiningar um lykiltölur fyrir næsta fjórðung, sem kemur til uppgjörs í byrjun febrúar n.k. En í fyrrakvöld kom svo skyndilega afkomuaðvörun frá Tim, sem meðal annars segir þetta:
[..While we anticipated some challenges in key emerging markets, we did not foresee the magnitude of the economic deceleration, particularly in Greater China. In fact, most of our revenue shortfall to our guidance, and over 100 percent of our year-over-year worldwide revenue decline, occurred in Greater China across iPhone, Mac and iPad.]
Sem sagt: Frá 1. nóvember til og með næstu nokkrar vikur, þá rekst Apple á skyndilegt stopp? í Kína (e. sudden stop). Í byrjun desember vita þeir hjá Apple sennilega þá þegar hvað er að gerast, en bíða í nokkrar vikur til að fá það staðfest. Og þá eru tvær vikurnar fyrir jól komnar, og þá er ekki hægt að koma með aðvörun, því þá er allur markaðurinn eins og hann lagði sig kominn á klósettið í svartsýniskasti um allan heim, en sem enginn þekkir í raun og veru skýringarnar á, séu þeir heiðarlegir og viðurkenni staðreyndir. Tim bíður því þar til 2. janúar með afkomuaðvörunina. Hún mun svo taka mesta gasið úr málinu og fá eigendur (fjárfesta) Apple til að líta raunsætt á málin þegar uppgjörið kemur í febrúar. Það sem gerðist hjá Apple í Kína gerðist fyrirvaralaust. Um er að ræða einn ákveðinn viðburð, sem breytti öllu
En það er eitt sem er dálitið merkilegt. Og hvað er það Gunnar? Jú, Þann 14. nóvember skrifaði Michael Pettis eftirfarandi (Pettis veit manna mest Vesturlendinga um kínverska hagkerfið, enda kennir hann Finance (fjármál) við Pekingháskólann og er búinn að reyna að vara Vesturlönd við því sem er að gerast í Kína árum saman. Hann skrifaði þetta:
[.. As long as the countrys bubble economy can be prolonged, Singles Day will continue to grow and break sales records. But as nervousness deepens in China and as economic worries spread, Singles Day itself will be threatened. In fact, while this years 22 percent increase in sales may seem impressive, at least part of this increase may simply reflect the fact that many new vendors joined the program; if so, the sales these newcomers would have made anyway will have been added to the Singles Day total as if they represent new economic activity.
One year on November 11, maybe next year or maybe in a few years, the dizzying sales growth of Singles Day will suddenly reverse. At that point, the exuberance of Chinas bubble economy will almost certainly have ended and, as that happens, young Chinese people will probably increasingly reject the extraordinary commercialization of Singles Day as the very symbol of what went wrong in China..]
Þetta er það sem er að gerast. Eins og Tim benti óbeint á, þá hefur 11-nóvember bóla einhleypra ungmenna sprungið einmitt þann 11. síðasta nóvember. Eða - aðeins 10 dögum eftir að Tim Cook gerði grein fyrir síðasta fjórðungsuppgjöri á símaráðstefnu með eigendum, öllum heiminum og greinendum - og leiðbeindi þeim líka um nánustu framtíð í meðal annars Kína. Tíu dögum síðar klessir Kína á vegg einhleypra ungmenna
Það er engan veginn hægt að kenna viðskiptastríði um klessukeyrslu kínverska hagkerfisins undanfarin mörg ár. Mjög mörg erlend stórfyrirtæki á borð við Pegatron, Samsung, Suzuki, Nikon og Panasonic sem eru að yfirgefa Kína, voru þegar með það á átætlun sinni löngu áður en Trump var kjörinn forseti. Kína er að úldna að innan og rotnuninni er stýrt innan frá. Fyrir utan 11. nóvember klikkunina í Kína, þá er allt annað hagkerfislegt fyrir langa löngu sprungið innvortis í því landi. Og nú sprakk 11. nóvember bólan líka og neytandinn með
Samsetningarfyrirtækið Foxconn sem Apple notar í Kína, er á leið út úr Kína, til Víetnam, sem Bandaríkin eru að byrja að vernda gegn einmitt Kína, því að Víetnam óttast Kína
Michael Pettis á skilið Nóbelsverðlaunin í hagfræði fyrir kenningar sínar um hvað gerist í alþjóðavæddum heimi undir offramboði sparifjár. Slíkt ástand er algerlega nýtt í sögunni
Heimurinn er dauður. Það er að segja: eftirstríðsheimurinn er dauður. Hann er farinn. Enginn veit enn hvaða og hvernig uppsetning hans tekur við. En það sjást samt vissar útlínur í þokunni
Fyrri færsla
10. stærsti banki Ítalíu settur í handjárn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 3. janúar 2019
10. stærsti banki Ítalíu settur í handjárn
ECB-aukaseðlabanki Þýskalands (stundum Frakklands líka) tók í gær yfir Banca Carige sem er tíundi stærsti viðskiptabanki Ítalíu, með 500 útibú í landinu. Stjórn bankans sagði af sér vegna fjárskorts og reynt verður að lauma honum yfir á ítalska ríkið, sem er á hausnum og mun þá verða enn meira á því höfði. Viðskiptavinir bankans hafa ekki og geta ekki greitt af lánum sínum í bankanum, sökum þess að Ítalía er steypt föst niður í hina þjóðhagslegu öryrkjastofnun Evrópusambandsins
Þar innanborðs rotnar og veslast allt upp í evrum og verður að efnahagslegum- og þjóðarpólitískum grafreit og geldingamiðstöð. Þjóðin er því öll að verða hjólastóluð og gengi hennar er 60 til 70 prósent of hátt. Enginn hagvöxtur hefur verið á Ítalíu í tæplega 30 ár og þjóðartekjur á mann eru þær sömu og fyrir 25 árum síðan. Landið er að breytast í framtíðarhelvíti í evrum
Bankinn hefur engan aðgang að nýju fé á alþjóðlegum fjármálamörkuðum því hann er á evrusvæðinu og mynt hans er stálfátæktarevra Þýskalands. Bankinn hefur heldur ekki aðgang að neinum seðlabanka, því að landið á engan slíkan lengur og ítalska ríkið er á hausnum vegna upptöku evru og esb-aðildar
Stofnanavætt esb-atvinnuleysið tryggir að alþjóðlegt lánstraust Ítalíu er framtíðarlélegt þegar í það er rýnt, því nú vita allir fjárfestar að það er atvinnustigið í landinu og þjóðfrelsi í peningamálum sem myndar gólfið undir alþjóðlegu lánshæfnismati ríkja. Einu tekjur allra ríkissjóða allra landa heimsins eru tekjur frá atvinnurekstri í landinu. Engar aðrar tekjur eru til
Í aðalstöðvum ECB-aukaseðlabanka Þýskalands í Frankfurt, læðast seðlabankamenn á snjóþrúgum um peningagólf evrunnar, svo þeir hrynji ekki í gegnum hugmyndafræðilega eggjaskurn hennar, sem orðin er gegnsæ. Þar inni hangir hins vegar bara einn dauður dordingull fastur í lygavef Evrópusambandsmanna, sem hristist og skelfur eins og félagmiðlavefur við hverja tilraun seðlabankamanna til að þruskast um peningagólf evrunnar á snjóþrúgum. Allsherjargeggjun verður smám saman næsta stig málsins á öllu evrusvæðinu, þegar öll líkfylgjan kemur út með peningapólitískan Frankenstein í vöggu esb-lýðræðisins
Fyrri færsla
Forsætisráðherra "samfélags" minntist hvergi á þjóðfélag
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1. janúar 2019
Forsætisráðherra "samfélags" minntist hvergi á þjóðfélag
Í áramótaávarpi forsætisráðherra kom hugtakið "samfélag" fjórtán sinnum fyrir, en hugtakið "þjóðfélag" kom hins vegar hvergi fyrir. Hvað þýðir þetta?
Jú. Hin grunnpólitíska eining í heiminum er, hefur alltaf verið, og verður alltaf þjóðfélagið eins og Biblían áréttar svo flott með þjóðum hennar, landamærum þjóða, aðgreiningu og skiptingu valds hjá þjóðum og að enginn (ekki einu sinni "alþjóðasamfélag" sem er nýyrði yfir hin venjulegu imperíal heimsveldi á borð við Egyptaland sem Biblía Vesturlanda af góðum og gildum ástæðum fordæmir og bannar algerlega) megi verða konungur/forseti yfir öðru fólki en því fólki sem konungurinn/forsætisráðherrann sjálfur er í þjóð með og af. Og hann á að vera kjörinn og lög manna þjóðarinnar eiga að ráða landi hennar, segir Biblían líka og hún bannfærir þar með alþjóðasamfélag imperíalista allra tíma, sem verandi hús fjötranna: þ.e. frá Egyptalandi til Caesars, Napóleons, Stalíns, Hitlers, Brussel og S.þ
Þetta félag, þjóðfélagið eru Vinstri útóískt grænir hættir að þekkja, svipað og síðast er þeir hétu Vinstri rauðir og alþjóðlegur (glóbal) kommúnismi var hin eina lögmæta félagstrú í barbaríinu sem þeir elskuðu svo heitt, að það kostaði hundrað milljónir manna lífið. Þar var þjóðfélagið gert að engu og var helst ekki til, því það braut í bága við kommúnismann, og "samfélag" hans, sem gekk út á að gera alla jarðarbúa blóðsogna þræla kommúnismans í einum allsherjar alþjóðakommúnisma "alþjóða-samfélagsins"
Það er hneyksli að svo fávís kona skuli sitja á æðsta pólitíska stól íslenska þjóðríkisins, lýðskrumandi um "félagana" í "samfélaginu" sem þjóðfélag hennar heldur uppi. Ef þjóðfélagið veslast upp, til dæmis með því að drekkja því með öðru þjóðfélagi, eða með rauðu eða grænu samfélagi komma, þá verður það ófært um að aðstoða neinn sem er í þjóðinni, og svo þá sem utan frá til þjóðfélagsins leita. Það drukknar og verður nýtt Sýrland. Allt sem fólk af sömu kommatrú og Vinstri grænir koma nálægt, drukknar og breytist í menntamannahelvíti fátæktarinnar, þar sem fólk flýgur í gegnum hin nýmarxísku heiðnikirkjuveldi háskólanna, án þess að vita neitt, eins og sést svo vel á ræðu forsætisráðherrans. En sem betur fer voru Vesturlönd byggð upp á Biblíunni, en ekki á alþjóðlegu kommúnistayfirvarpi þar síðustu glóbalista
Orðið "samfélag" er komið með stöðu póst-módern-nirvana afláts-bænahalds einfeldninga. Himpa-gimpa hippalegt orðskrípi úr hassi sem farið er með til að tendra þriðja augað uppi í túrban-skattaskrúfu póst módern afglapa
Ég er ekki í samfélagi með forsætisráðherranum og verð það líklega aldrei. En ég er hins vegar í þjóðfélagi með henni og umber hana vegna þess að hún ein af okkur, því eins og Gamla testamenti Biblíunnar meitlaði í stein, er hún rétt kjörin pólitískt yfirhöfuð þjóðar minnar - og það verður sem betur fer kosið á í mesta lagi fjögurra ára fresti næst, eða svo lengi sem samfélags-kommasteypa Evrópusambandsins er ekki krýnd sem fíaskó-konungur yfir minni þjóð. Sá síðasti var nefnilega ónýtur, því hann var ekki einn af oss, eins og Gamla testamentið sagði fyrir um, að myndi þýða eilíft fíaskó og fátækt
Sósíalistar Upplýsingarinnar (háskólarnir) reyndu allt hvað þeir gátu að gera ekkert úr Gamla testamenti Biblíunnar, en allan heiminn úr þeim sjálfum. Það Gamla var þeim þyrnir í augum, vegna einmitt þess sem hér fyrir ofan stendur. Án þess værum við ekki Vesturlönd. Engin leið er að skilja Biblíuna án þess að byrja á blaðsíðu númer eitt; Gamla testamentinu
- Gleðilegt nýtt ár
Fyrri færsla
Ný (tækifæris) viðhorf í öryggismálum Evrópu
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.1.2019 kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 31. desember 2018
Ný (tækifæris) viðhorf í öryggismálum Evrópu
Hljóðvarp: Victor Davis Hanson sagnfræðingur um framtíð Evrópu, þann fyrsta október 2015. Bein krækja á þennan þátt The Classicist á Hoover stofnuninni er hér
****
Vandamál NATO er Þýskaland, en ekki Bandaríkin
Verndar NATO ennþá Vesturlönd? Kemur það ennþá í veg fyrir ófrið í Evrópu? Tyggir það enn tilvist þess heims Vesturlanda sem settur var upp árið 1945, það er eftirstríðsfyrirkomulagsins (e. post war world order). Og er það Bandaríkjaleitt- og Bandaríkjafjármagnað NATO sem tryggt hefur friðinn og komið í veg fyrir þriðju heimsstyrjöldina?
29 þjóðir hafa nú fylkt og flýtt sér inn í hervarnarbandalagið NATO til þess að njóta þess, en ekki til að bera varnarmátt bandalagsins uppi. Stærsta vandamál NATO í dag er ekki Bandaríkin sem halda því uppi, heldur fjölmennasta ríki Evrópu sem heldur því niðri. Þýska landið sem allar götur frá fæðingu þess 1871 hefur leitast við að drottna yfir Evrópu, heldur NATO niðri og eins veiku og mögulegt er, til þess að halda sér og völdum sínum uppi. Þetta hefur Þýskaland stundað síðastliðin 40 ár.
Styrmir Gunnarsson veltir hér vöngum yfir hinum hefðbundnu rassaköstum Þýskalands, sem ávallt verða um leið og ósköp venjulegar og ofureðlilegar kröfur eru gerðar til þess um að haga sér nú loksins eins og venjulegt ríki sem skrifað hefur undir og tekið á sig skuldbindingar hervarnarbandalagsins NATO. Um leið og Þýskaland er innt eftir efndum í fjölþjóðlegum málum á borð við NATO, þá rís rass þess upp og hristir úr sér í ræðu og riti hugmyndum um sín eigin kjarnorkuvopn, og nú síðast nágranna síns, sem ekki einu sinni er fær um að verja sjálfan sig, þ.e. Frakklands
Eða ber að skoða Maximilian Terhalle-kjarnorkuvopnaþvælu Þýskalands í írönsku ljósi? Þýskaland gæti þannig notið góðs af því að Íran kjarnorkuvopnavæðist, því að Íran með bombuna myndi kalla á Japan, Taívan, Ástralíu, Saudi Arabíu og Tyrkland og þar með Þýskaland líka sem kjarnorkuveldi og svo koll af kolli inn í stjórnlaust helvítið, eins og síðast þegar Þýskaland kveikti í heiminum í þriðja skiptið á innan við 100 árum
En þetta eru alls ekki ný viðhorf: Charles de Gaulle var með sömu grillur um Bandaríkin í Evrópu og það kostaði þau ómældar fórnir í Víetnam, á sama tíma og þau tróðu tappanum í musteri mannvonskunnar í Moskvu, sem að Þýskaland nú að hálfu leyti í vösum fast er í. Það er ekkert nýtt þessu rassakasti Þýskalands
Þessi rassaköst í Þjóðverjum sem á þennan hátt reyna að koma sér hjá því að standa við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO, er því þekkt stærð þýska rassakastaríkisins. Það eina sem krafist er af Þýskalandi er að það hagi sér eins og ábyrgt land í bandalagi við þá sem það á allt að þakka. Það er nóg
- Ég þakka lesendum kærlega fyrir árið sem er að enda og óska ykkur gleðilegs nýs árs, sem verður hið fyrsta í útjarði nýs kafla í sögu okkar
Fyrri færsla
Dauðir erlendir ferðamenn lausnin fyrir Árneshrepp?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2019 kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 29. desember 2018
Dauðir erlendir ferðamenn lausnin fyrir Árneshrepp?
Það var ámátlegt að fylgjast með tvöföldu gjaldfalli formanns Framsóknarflokksins í sjónvarpinu í gær. Þar kom útópískur hann, fram fyrir hönd útópískrar ríkisstjórnar Íslands og gjaldféll tvisvar á sömu mínútunni á eyðsluskyldum háskatta-ríkisstjórnar Íslands, sem hrifsar til sín um það bil 40 prósent af öllu því sem framleitt er í landinu
Tvisvar á sömu mínútunni sagði hann Árneshreppi á Ströndum að hoppa upp í afturendann á sjálfum sér, vegna þess að hann þyrfti að laga svo margar brýr fyrir sunnan sem erlendir ferðamenn sem kunna ekki að keyra, kála sér á. Þannig væri ekki einu sinni hægt að moka snjó í Árneshreppi né hvað þá að lagfæra veginn fyrr en eftir mörg ár og áratuga vansæmd. Málið er að sjálfsögðu það að ekki má halda veginum til og í Árneshreppi opnum svo að erlendir grasasnar álpist ekki þar um og káli sér á núll komma fimm, því það kostar instant nýjan veg. Skítt með þá Íslendinga sem ævilangt hafa mátt bæði fjármagna og lifa með það sem erlendir ferðamenn geta ekki. Það eina sem máli skiptir eru erlendir ferðamenn ferðamanna-bræðslunnar og yfirstéttar-erlendir jarðabraskarar. En kjósendur og skattgreiðendur fari til fjandans og útgerðin líka
Samkvæmt þessu geta Reykvíkingar bara hunskast út á land þoli þeir ekki geggjunarglundroða borgarstjórnarinnar úr austri og Stalín-sprengt sjúkrahús DDR-Svandísar í mýri. Engin þörf er heldur á að moka út á Bessastaði því þar er enga mjólk að sækja, né neitt annað en tóma þvælu. Hvað með að eyðileggja veginn þangað, fyrst að enginn erlendur drepur sig þar í heimsku sinni? Þar býr jú bara einn maður
Svo er fólki bara sagt að ekkert sé hægt að gera í vegamálum nema með enn meiri skattheimtu ofan í fullt sovét. Gengur þar gjaldfallinn formaður Framsóknar sem forystuhrútur með sósíalistahjörð ríkisstjórnarinnar í bandi. Þvílíkt kommabæli!
Og svo kom rúsínan í útópíuenda ríkisstjórnar sósíalismans: Netsambandið er svo lélegt í Mjóafirði að þar er ekki einu sinni hægt að vera með fjarkennslu fyrir skólabörn. Fullkomið gjaldfall!
Á hvaða plánetu býr ríkisstjórnin sem lofar öllu fögru fyrir kosningar. Jú hún er lokuð inni í apabúri á apaplánetu umhverfisráðherrans. Ekkert var að marka Hvanneyrarfundinn með Bjarna Ben og kó fyrir kosningar. Ekkert! Sá maður virðist vera orðinn útópískt viðundur sem gengur fyrir hvellsprunginni kommalofttegund úr austri
Fyrri færsla
Heimsendir: hringdi í sex bankastjóra
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 26. desember 2018
Heimsendir: hringdi í sex bankastjóra
Myndskeið: Allar 135 ferðir STS geimskutla NASA á 30 árum. Lítið nema húmbúkk hefur gerst á þeim fronti síðan þá. Fátt merkilegt gerist nema að Bandaríkin geri það. Og svo mun verða um aldir enn. STS = Space Transportation System
****
Á Þorláksmessu voru það sex síma hringingar Steven Mnuchin viðskiptaráðherra Trumps, til sex bankastjóra, sem hringdu heimsendi inn, því þann daginn voru markaðir önnum kafnandi á settinu við að gera stórt. Helgina þar á undan varð einnig heimsendir er varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði af sér vegna þess að hann sjálfur passaði ekki inn í stjórnmálaprógramm forsetans og kosningaloforð hans
Í dag voru markaðir hins vegar í hysterísku sólskinsskapi og hráolíuverð steig upp úr heimsendinum um 9,6 prósent vestanhafs og 8,8 austan atlantsála. Naz-bykkjan fór upp um tæplega sex prósentur, SPX um það sama og Dow um tæplega fimm. Allt saman methækkanir á einum degi. Reyndar er þetta í fyrsta skiptið í mannkynssögunni sem að Dow-vísitalan hækkaði um þúsund stig á einum degi
Þetta og margt fleira úr sömu skúffum er til marks um þá miklu ringulreið sem ríkir í heiminum. Síðustu 30 árin hafa hamrar stjórnmálahreyfingar glóbalista barið svo á heiminum sem settur var upp árið 1945, að hann er að enda. Jacob Riis á að hafa sagt:
"When nothing seems to help, I go look at a stonecutter hammering away at his rock perhaps a hundred times without as much as a crack showing in it. Yet at the hundred and first blow it will split in two, and I know it was not that blow that did it, but all that had gone before."
Það er ekki síðasta hamarshöggið sem klýfur steininn. Það eru öll hin höggin sem dundu á honum þar á undan. Ergo: það voru hvorki Brexit né Trump sem klufu heiminn í uppnámum glóbalista. Síðustu krampaköst stjórnmálahreyfinga glóbalista spila sig um þessar mundir út sem örvæntingarfull marxísk lofthita-hystería á rauðu torgi. Þeir eru hræddir við að missa vinnuna - og æruna
Já. Heimurinn er að enda, því nýr er í smíðum. Mikli ólga er framundan og ófriður. Framtíðin er hins vegar alltaf fjárfestanleg, þrátt fyrir 50 milljarða dala ryksugun bandaríska seðlabankans á mánuði. Kína er búið að vera. Það á aðeins eftir að falla saman. Og ESB er að verða hættulegasti viðskiptafélagi Vesturlanda. Nýr heimur er að myndast. Enginn veit þó enn hvernig hann mun líta út. En þegar hann er kominn, þá segja allir: "að sjálfsögðu, þetta vissi ég allan tímann"
Á meðan lítið er enn ljóst og skýrt um hinn komandi heim, verðum við að láta okkur nægja herra heimsendi annan hvern dag og konu hans frú hysteríuna, ríðandi ver-öldinni sundur og saman, en þó mest á miðilsfundum í fjölmiðlum
Fyrri færsla
Heimsendir: varnarmálaráðherra segir af sér
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.12.2018 kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 22. desember 2018
Heimsendir: varnarmálaráðherra segir af sér
Vesturlöndum: Olivia Newton John í hvítu og meira í hvítu með henni hér. Þetta hófst allt saman með útgöngunni af Egyptalandi. Annars værum við ekki Vesturlönd í dag. Jólin nálgast..
****
22.12: Gáttaþefur
Nú er komið í ljós að James Mattis sem sagt hefur af sér sem varnarmálaráðherra Tumps (sjá: Mattis hættir hjá Trump), lagðist gegn flestum þeim mikilvægu málum sem leiddu til kjörs Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna. Mattis var á móti því að bakkað væri út úr svo kölluðu Parísarsamkomulagi og hann var á móti flutningi sendiráðsins í Ísrael til Jerúsalem. Hann var einnig á móti því að senda Íran-samkomulag Obama í tætarann
Obama hafði fjóra varnarmálaráðherra í sinni stjórnartíð og ég minnist þess ekki að nýgeggjunardeildir fjölmiðla og "sérfræðinga" hafi lagt lesendur sína i einelti með geðklofnum fréttum um brottför þeirra úr ríkisstjórn hans. Harry Truman hafði einnig fjóra varnarmálaráðherra í sinni stjórnatíð. Þess utan þá rak Barack Obama James Mattis án svo mikið sem eins símtals á sínum tíma. Donald Rumsfeld sagði af sér hjá Bush yngri, sem þannig hafði tvo varnarmálaráðherra í stjórnartíð sinni
Trump ákvað að senda bandaríska hermenn inn í Sýrland í sex mánuði, hann hafði jú lofað kjósendum því að leggja ISIS í rúst. Nú er 99 prósent af kalífati þeirra horfið af yfirborði jarðar, landsvæðinu, en sjálft ISIS mun þó aldrei hverfa alveg, því það liggur ætíð latent/sem óspírað fræ meðal íslömsku þjóðanna og bíður næsta tækifæris. Útilokað er annað en að það reyni einhvern tíma að rísa upp á ný. Enginn veit hvenær það gerist næst
Mattis skilaði góðu verki og beittari her, en hann fékk samt ekki, þrátt fyrir það, að standa í vegi fyrir áframhaldandi útfærslu MAGA-stefnu Trumps (Make America Great Again). Já, kannski var Mattis eins konar krati (of mikill?) eins og Trump orðaði það - "a sort of a Democrat"
Í dag bakaði ég laufabrauð og parta. Fallegt hrím var úti
Fyrri færsla
Myndir sem passa fordómum blaðamanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.12.2018 kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 32
- Sl. sólarhring: 69
- Sl. viku: 783
- Frá upphafi: 1404548
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 498
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008