Leita í fréttum mbl.is

Ný (tækifæris) viðhorf í öryggismálum Evrópu

Hljóðvarp: Victor Davis Hanson sagnfræðingur um framtíð Evrópu, þann fyrsta október 2015. Bein krækja á þennan þátt The Classicist á Hoover stofnuninni er hér

****

Vandamál NATO er Þýskaland, en ekki Bandaríkin

Verndar NATO ennþá Vesturlönd? Kemur það ennþá í veg fyrir ófrið í Evrópu? Tyggir það enn tilvist þess heims Vesturlanda sem settur var upp árið 1945, það er eftirstríðsfyrirkomulagsins (e. post war world order). Og er það Bandaríkjaleitt- og Bandaríkjafjármagnað NATO sem tryggt hefur friðinn og komið í veg fyrir þriðju heimsstyrjöldina?

29 þjóðir hafa nú fylkt og flýtt sér inn í hervarnarbandalagið NATO til þess að njóta þess, en ekki til að bera varnarmátt bandalagsins uppi. Stærsta vandamál NATO í dag er ekki Bandaríkin sem halda því uppi, heldur fjölmennasta ríki Evrópu sem heldur því niðri. Þýska landið sem allar götur frá fæðingu þess 1871 hefur leitast við að drottna yfir Evrópu, heldur NATO niðri og eins veiku og mögulegt er, til þess að halda sér og völdum sínum uppi. Þetta hefur Þýskaland stundað síðastliðin 40 ár.

Styrmir Gunnarsson veltir hér vöngum yfir hinum hefðbundnu rassaköstum Þýskalands, sem ávallt verða um leið og ósköp venjulegar og ofureðlilegar kröfur eru gerðar til þess um að haga sér nú loksins eins og venjulegt ríki sem skrifað hefur undir og tekið á sig skuldbindingar hervarnarbandalagsins NATO. Um leið og Þýskaland er innt eftir efndum í fjölþjóðlegum málum á borð við NATO, þá rís rass þess upp og hristir úr sér í ræðu og riti hugmyndum um sín eigin kjarnorkuvopn, og nú síðast nágranna síns, sem ekki einu sinni er fær um að verja sjálfan sig, þ.e. Frakklands

Eða ber að skoða Maximilian Terhalle-kjarnorkuvopnaþvælu Þýskalands í írönsku ljósi? Þýskaland gæti þannig notið góðs af því að Íran kjarnorkuvopnavæðist, því að Íran með bombuna myndi kalla á Japan, Taívan, Ástralíu, Saudi Arabíu og Tyrkland og þar með Þýskaland líka sem kjarnorkuveldi og svo koll af kolli inn í stjórnlaust helvítið, eins og síðast þegar Þýskaland kveikti í heiminum í þriðja skiptið á innan við 100 árum

En þetta eru alls ekki ný viðhorf: Charles de Gaulle var með sömu grillur um Bandaríkin í Evrópu og það kostaði þau ómældar fórnir í Víetnam, á sama tíma og þau tróðu tappanum í musteri mannvonskunnar í Moskvu, sem að Þýskaland nú að hálfu leyti í vösum fast er í. Það er ekkert nýtt þessu rassakasti Þýskalands

Þessi rassaköst í Þjóðverjum sem á þennan hátt reyna að koma sér hjá því að standa við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO, er því þekkt stærð þýska rassakastaríkisins. Það eina sem krafist er af Þýskalandi er að það hagi sér eins og ábyrgt land í bandalagi við þá sem það á allt að þakka. Það er nóg

- Ég þakka lesendum kærlega fyrir árið sem er að enda og óska ykkur gleðilegs nýs árs, sem verður hið fyrsta í útjarði nýs kafla í sögu okkar 

Fyrri færsla

Dauðir erlendir ferðamenn lausnin fyrir Árneshrepp?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar og góðar greinar á liðnum árum og Gleðilegt Nýtt ár. Kv Valdimar.

Valdimar Samúelsson, 1.1.2019 kl. 01:53

2 identicon

Ég þakka fyrir góða pistla og hlakka til að fá fleiri.

Gleðilegt ár.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 1.1.2019 kl. 08:21

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér Valdimar, og þér Sigurður fyrir góðar kveðjur.

Gleðilegt nýtt ár.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.1.2019 kl. 19:26

4 Smámynd: Örn Einar Hansen

Þetta er alrangt ...

Vandamál NATO er Bandaríkin. Vandamál Evrópu, er að þau hafa tapað styrjöldinni, og nú er Evrópa ríkin fyrir norðan Þýskalands.

Stríðin hafa alltaf verið vegna "influttnings", sem hefur aukið en ekki minkað. Nú er síðasta vígi hinna svokölluðu "Gyðinga" að hverfa, þeir eiga Norðurlöndin eftir ... sem verða tekin af þeim innan skamms, eftir það ... verður algert hatur gegn öllum sem eru af norrænu kyni ... sem er þegar byrjað.

Sjálfur á ég engin börn, og þakka fyrir að ég skil ekkert eftir mig sem mun þjást í framtíðinni.

Örn Einar Hansen, 1.1.2019 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband