Leita í fréttum mbl.is

Heimsendir: hringdi í sex bankastjóra

Myndskeið: Allar 135 ferðir STS geimskutla NASA á 30 árum. Lítið nema húmbúkk hefur gerst á þeim fronti síðan þá. Fátt merkilegt gerist nema að Bandaríkin geri það. Og svo mun verða um aldir enn. STS = Space Transportation System

****

Á Þorláksmessu voru það sex síma hringingar Steven Mnuchin viðskiptaráðherra Trumps, til sex bankastjóra, sem hringdu heimsendi inn, því þann daginn voru markaðir önnum kafnandi á settinu við að gera stórt. Helgina þar á undan varð einnig heimsendir er varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði af sér vegna þess að hann sjálfur passaði ekki inn í stjórnmálaprógramm forsetans og kosningaloforð hans

Í dag voru markaðir hins vegar í hysterísku sólskinsskapi og hráolíuverð steig upp úr heimsendinum um 9,6 prósent vestanhafs og 8,8 austan atlantsála. Naz-bykkjan fór upp um tæplega sex prósentur, SPX um það sama og Dow um tæplega fimm. Allt saman methækkanir á einum degi. Reyndar er þetta í fyrsta skiptið í mannkynssögunni sem að Dow-vísitalan hækkaði um þúsund stig á einum degi

Þetta og margt fleira úr sömu skúffum er til marks um þá miklu ringulreið sem ríkir í heiminum. Síðustu 30 árin hafa hamrar stjórnmálahreyfingar glóbalista barið svo á heiminum sem settur var upp árið 1945, að hann er að enda. Jacob Riis á að hafa sagt:

"When nothing seems to help, I go look at a stonecutter hammering away at his rock perhaps a hundred times without as much as a crack showing in it. Yet at the hundred and first blow it will split in two, and I know it was not that blow that did it, but all that had gone before."

Það er ekki síðasta hamarshöggið sem klýfur steininn. Það eru öll hin höggin sem dundu á honum þar á undan. Ergo: það voru hvorki Brexit né Trump sem klufu heiminn í uppnámum glóbalista. Síðustu krampaköst stjórnmálahreyfinga glóbalista spila sig um þessar mundir út sem örvæntingarfull marxísk lofthita-hystería á rauðu torgi. Þeir eru hræddir við að missa vinnuna - og æruna

Já. Heimurinn er að enda, því nýr er í smíðum. Mikli ólga er framundan og ófriður. Framtíðin er hins vegar alltaf fjárfestanleg, þrátt fyrir 50 milljarða dala ryksugun bandaríska seðlabankans á mánuði. Kína er búið að vera. Það á aðeins eftir að falla saman. Og ESB er að verða hættulegasti viðskiptafélagi Vesturlanda. Nýr heimur er að myndast. Enginn veit þó enn hvernig hann mun líta út. En þegar hann er kominn, þá segja allir: "að sjálfsögðu, þetta vissi ég allan tímann"

Á meðan lítið er enn ljóst og skýrt um hinn komandi heim, verðum við að láta okkur nægja herra heimsendi annan hvern dag og konu hans frú hysteríuna, ríðandi ver-öldinni sundur og saman, en þó mest á miðilsfundum í fjölmiðlum

Fyrri færsla

Heimsendir: varnarmálaráðherra segir af sér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Ekki stórmannlegt að kenna demókrötum um að ekki gangi eftir að byggja múrinn. Er lausnin að taka ríkisstarfsmenn í gíslingu til að reka á eftir óraunsæjum kosningaloforðum? Trump ætlaði að láta Mexíkóana kosta byggingu múrsins. Skiljanlegt er að Trump vilji ekki vera minni maður en demókratar sem byggðu mörg hundruð metra múr sem ekki heldur.

Spurningin er hvort aðferðir Trumps í heimsmálum valdi ekki meiri ringulreið en þeim er ætlað að uppræta. Vantar ekki í hann hinn djúpa stjórnanda sem sér lengra fram í tímann. Heimsmálin gætu orðið honum erfiðari en innanríkismálin, nema hvort tveggja sé? 

Sigurður Antonsson, 27.12.2018 kl. 21:35

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigurður.

Kosningaloforðið um múr eða landamæravarnir er alls ekki "óraunhæft", Sigurður. Þvert á móti. Það var víðtæk samstaða í þinginu um Secure Fence Act of 2006 þegar þingið afgreiddi þau lög. Um þúsund kílómetrar af varnarmúr var byggður, mest af léttara tagi en því Trump stefnir að. Demókratar hafa síðan þá talað um brýna þörfina á múr, og Repúblikanar líka. En það eru viss öfl í fylkjunum við landamærin sem sjá sér hag í ólöglegum og löglegum þrælum að sunnan. Demókratar eru jú þekktir fyrir að styðja þrælahald og Kaliforníufylki þeirra er á barmi upplausnar og sogar til sín 1/3 af öllum félagsmálaútgjöldum ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Fyrirtækin þar eru byrjuð að flýja fylkið því vinnuaflið þar er svo skaðað af vinstrimennsku.

Og svo hafa Demókratar uppgötvað að glæpa- og vandmálafólk sunnan við landamærin, helsta útflutningsvara Mexíkó, er hægt að nota í pólitískri baráttu gegn réttkjörnum forseta landsins, þ.e. gegn Donald Trump. Og nú þegar Rússaþvæla þeirra er að engu orðin og fólk úr þeirra liði á leið í fangelsi fyrir hana, þá hentar það Demókrötum mjög vel að hafa nóg af myndum af grenjandi fólki við landamærin í hinum svæsnu fjölmiðlum Demókrata á borð við CNN og allt hitt. Múr myndi eyðileggja það vopn þeirra.

Heimsmálin erfði Trump. Hann var kosinn til vernda Bandaríkin í þeim málum.

Norður-Kórea hefur verið sett í frost og þorir ekki að skjóta neinu upp né þróa prógrammið áfram eins og er. Þú hefðir kannski viljað þurrka hana út Sigurður? Kjarnorkuvopn NK ná til Evrópu, svo hvað tefur álfuna í að bergðast við?

Það ríkti svo sannarlega ringulreið í því máli þegar Trump tók við. Í 30 ár héldu forsetar Bandaríkjanna að Kína myndi stuðla að lausn þess máls. Það reyndist sannarlega rugl. Trump hefur sannað það.

Trump styður beint við Austur-Evrópu gegn ógnum frá Rússlandi. Ekki bara í NATO heldur beint.

Og Norður-Atlantshafsflotinn hefur verið virkjaður á ný.

Og 99 prósent af kalífati ISIS er horfið. Það er hins vegar ekki hægt að uppræta hugmyndina um ISIS, því þá yrði að drepa nokkrar þjóðir til að framkvæma það. Landsvæði þess er horfið, en hugmyndina um ISIS mun lifa um aldur og ævi meðal íslömsku þjóðanna.

Trump þyrfti að taka Þýskaland fyrir næst. Það land gengur ekki lengur eins slæmt og það með ESB í vasanum er orðið fyrir heiminn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.12.2018 kl. 03:54

3 Smámynd: Örn Einar Hansen

Sammála þessu með Kína, var að heira í dag að Kína hendir fólki út úr húsum sínum, með 5 dollara fyrir. Rífur niður húsin, og selur síðan rándýru verði ... á meðan hinir fátæku, er heimilausir og á götunni.

Augljóslega, er Kínverska ríkisstjórnin blönk. Búin að sóa öllum fjármunum sínum í afkastalausar fjárfestingar í Afríku. Þess vegna eru þeir núna að ræna "ríka" Kínverja, láta þá hverfa vikum saman, sem síðan eru í "æfilöngu þagnar og útgöngubanni", eftir að hafa gefið Xi Jin Ping öll auðæfi sín.

En sama má segja um Trump, ég efast um að aðferðir mannsins nái að fylla upp í fjármálagatið í Bandaríkjamönnum. Og þó maður vilji segja "vinstrimenn", verður maður skoða svolítið betur. Bandaríska ríkið heldur "verndarhönd" yfir George Soros, það er því ljóst að auðæfi mannsins hafa komið úr "gati" á fjármálakerfi bandaríkjanna. Þessi maður, hefur notað þessi auðæfi til að valda skaða í gervallri Evrópu.

Málið er mun flóknara, en maður heldur.

Örn Einar Hansen, 28.12.2018 kl. 17:16

4 Smámynd: Örn Einar Hansen

vantaði "rífur niður húsin, og byggir ný sem ..."

Örn Einar Hansen, 28.12.2018 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband