Leita í fréttum mbl.is

Forsætisráðherra "samfélags" minntist hvergi á þjóðfélag

Í áramótaávarpi forsætisráðherra kom hugtakið "samfélag" fjórtán sinnum fyrir, en hugtakið "þjóðfélag" kom hins vegar hvergi fyrir. Hvað þýðir þetta?

Jú. Hin grunnpólitíska eining í heiminum er, hefur alltaf verið, og verður alltaf þjóðfélagið eins og Biblían áréttar svo flott með þjóðum hennar, landamærum þjóða, aðgreiningu og skiptingu valds hjá þjóðum og að enginn (ekki einu sinni "alþjóðasamfélag" sem er nýyrði yfir hin venjulegu imperíal heimsveldi á borð við Egyptaland sem Biblía Vesturlanda af góðum og gildum ástæðum fordæmir og bannar algerlega) megi verða konungur/forseti yfir öðru fólki en því fólki sem konungurinn/forsætisráðherrann sjálfur er í þjóð með og af. Og hann á að vera kjörinn og lög manna þjóðarinnar eiga að ráða landi hennar, segir Biblían líka og hún bannfærir þar með alþjóðasamfélag imperíalista allra tíma, sem verandi hús fjötranna: þ.e. frá Egyptalandi til Caesars, Napóleons, Stalíns, Hitlers, Brussel og S.þ

Þetta félag, þjóðfélagið eru Vinstri útóískt grænir hættir að þekkja, svipað og síðast er þeir hétu Vinstri rauðir og alþjóðlegur (glóbal) kommúnismi var hin eina lögmæta félagstrú í barbaríinu sem þeir elskuðu svo heitt, að það kostaði hundrað milljónir manna lífið. Þar var þjóðfélagið gert að engu og var helst ekki til, því það braut í bága við kommúnismann, og "samfélag" hans, sem gekk út á að gera alla jarðarbúa blóðsogna þræla kommúnismans í einum allsherjar alþjóðakommúnisma "alþjóða-samfélagsins"

Það er hneyksli að svo fávís kona skuli sitja á æðsta pólitíska stól íslenska þjóðríkisins, lýðskrumandi um "félagana" í "samfélaginu" sem þjóðfélag hennar heldur uppi. Ef þjóðfélagið veslast upp, til dæmis með því að drekkja því með öðru þjóðfélagi, eða með rauðu eða grænu samfélagi komma, þá verður það ófært um að aðstoða neinn sem er í þjóðinni, og svo þá sem utan frá til þjóðfélagsins leita. Það drukknar og verður nýtt Sýrland. Allt sem fólk af sömu kommatrú og Vinstri grænir koma nálægt, drukknar og breytist í menntamannahelvíti fátæktarinnar, þar sem fólk flýgur í gegnum hin nýmarxísku heiðnikirkjuveldi háskólanna, án þess að vita neitt, eins og sést svo vel á ræðu forsætisráðherrans. En sem betur fer voru Vesturlönd byggð upp á Biblíunni, en ekki á alþjóðlegu kommúnistayfirvarpi þar síðustu glóbalista

Orðið "samfélag" er komið með stöðu póst-módern-nirvana afláts-bænahalds einfeldninga. Himpa-gimpa hippalegt orðskrípi úr hassi sem farið er með til að tendra þriðja augað uppi í túrban-skattaskrúfu póst módern afglapa

Ég er ekki í samfélagi með forsætisráðherranum og verð það líklega aldrei. En ég er hins vegar í þjóðfélagi með henni og umber hana vegna þess að hún ein af okkur, því eins og Gamla testamenti Biblíunnar meitlaði í stein, er hún rétt kjörin pólitískt yfirhöfuð þjóðar minnar - og það verður sem betur fer kosið á í mesta lagi fjögurra ára fresti næst, eða svo lengi sem samfélags-kommasteypa Evrópusambandsins er ekki krýnd sem fíaskó-konungur yfir minni þjóð. Sá síðasti var nefnilega ónýtur, því hann var ekki einn af oss, eins og Gamla testamentið sagði fyrir um, að myndi þýða eilíft fíaskó og fátækt

Sósíalistar Upplýsingarinnar (háskólarnir) reyndu allt hvað þeir gátu að gera ekkert úr Gamla testamenti Biblíunnar, en allan heiminn úr þeim sjálfum. Það Gamla var þeim þyrnir í augum, vegna einmitt þess sem hér fyrir ofan stendur. Án þess værum við ekki Vesturlönd. Engin leið er að skilja Biblíuna án þess að byrja á blaðsíðu númer eitt; Gamla testamentinu

- Gleðilegt nýtt ár 

Fyrri færsla

Ný (tækifæris) viðhorf í öryggismálum Evrópu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

"Allt sem fólk af sömu kommatrú og Vinstri grænir koma nálægt, drukknar og breytist í menntamannahelvíti fátæktarinnar, þar sem fólk flýgur í gegnum nýmarxísku heiðnikirkjuveldi háskólanna án þess að vita neitt, eins og sést svo vel á ræðu forsætisráðherrans." Vel orðað og rétt. "Skaðmenntað" fólk.

Gleðilegt ár Gunnar og takk fyrir pistlana 2018.

Haukur Árnason, 1.1.2019 kl. 21:08

2 identicon

Sæll og gleðilegt ár.

Þetta er klassískt propaganda rugl. Samfélag hljómar eins og að sé hægt að stýra einhverju og minnir um leið á samkomulagið sem að þjóð hefur. Þetta er propaganda taktík sem er frekar grunn, hönnuð til að láta líta út fyrir að Katrín viti hvað hú sé að gera.

Þjóðfélagið breytist ekkert þó að nokkrir populiskir pólitíkusar reyni að móta einhvað úr engu. Þjóðfélagið er kannski dregið tímabundið undir skítuga mottu en þar getur það ekki verið til lengdar. Fólk heldur áfram að vera fólk og apar að apa eftir öpum.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 1.1.2019 kl. 21:34

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðilegt ár Haukur og takk fyrir lesturinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.1.2019 kl. 22:10

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðilegt ár Sigþór og takk fyrir.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.1.2019 kl. 22:11

5 Smámynd: Sigurður Oddgeirsson

Las ekki allan svadann. Hætti þegar þú komst með Biblíu-skýringarnar.

Ég held þú þurfir að taka Biblíuna fram aftur og lesa með meiri eftirtekt.

Sigurður Oddgeirsson, 2.1.2019 kl. 00:14

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir að lesa ekki það sem ég skrifaði Sigurður, og fyrir að geta samt bent mér á að skrifin mín séu vitlaus, án þess þó að koma með leiðréttingu á þeim.

Sem þökk fyrir býð ég þér til Jerúsalem til að gægjast á Biblíulegan glugga hjá George Weigel and Yoram Hazony, sem tala um nútíma, trúmál og siðferði, - þ.e. í Landinu helga þar sem sjálfsákvörðunarréttur þjóða Vesturlanda varð til fyrir tilstuðlan Gamla testamentisins, og sem forðaði einmitt Bandaríkjum Norður-Ameríku frá því að verða eins og Frakkland er þau voru stofnuð sem þjóðríki, og sem löngu löngu þar á undan aðstoðaði talmúdistann í Turninum (John Selden) við gerð stofnsáttmála um frumútgáfu þeirra í Bretlandi, sem margir vildu kalla Nýja Ísrael er þeir sáu uppskriftina að þjóðríkinu í Gamla testamenti Biblíunnar á sínu eigin tungumáli.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.1.2019 kl. 01:32

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Orðin samfélag og þjóðfélag eru nú svo sem notuð jöfnum höndum í umræðunni og einkennileg ályktun að ef einhver notar orðið samfélag sé viðkomandi þar með á móti þjóðfélögum.

Ekki er öll vitleysan eins - en það er amk. nóg til af henni!

Þorsteinn Siglaugsson, 2.1.2019 kl. 16:57

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Þorsteinn.

Ég borga forsætisráðherra Íslands rúmlega tvær milljónir króna á mánuði fyrir að vera æðsta pólitíska höfuð lýðveldis Íslendinga. Ef að forsætisráðherrann, þrátt fyrir skóg háskólaprófa á minn kostnað, veit ekki lengur að hún er æðsta pólitíska höfuð þjóðfélags Íslendinga, þá á hún að segja af sér, og alveg sérstaklega áður en hún fær þær hugmyndir í samfélagi sínu með fljúgandi umhverfiselítum annarra landa, að það séu alþjóðleg mannréttindi í því samfélagi hennar að Ísland sé ekki lengur Ísland.

En auðvitað verður hún að fá að hafa sitt þotusamfélag með þotufélögum í öðrum löndum til þess að bjarga heiminum frá glötun, eins og Al Gore - og sínar tvær milljónir á mánuði við það, eins og kóngarnir á öldum áður höfðu sitt alþjóðasamfélag kónga. Þetta er náttúrlega glataður vegurinn til helvítis, eins og Biblían varar svo flott við.

Já ég er viss um að forsætisráðherrann okkar er á móti þjóðfélögum og þjóðum. Það eru allir sannir alþjóðlegir kommúnistar. Þess vegna notar hún glóbalistaheitið samfélag yfir þau. Sú alþjóðlega elíta er að þræða þjóðfélög jarðar upp á einkalyklakippu sína um þessar mundir. Sama gamla sagan á ný.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.1.2019 kl. 17:29

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Gleðilegt ár Gunnar og takk fyrir allt á því liðna. Ég er mikið sammála greiningu þinni á kommeríinu, þetta er allt eins og á sömu bókina lært.

Halldór Jónsson, 3.1.2019 kl. 10:42

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gleðilegt ár Halldór og kærar þakkir fyrir þau liðnu!

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2019 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband