Leita í fréttum mbl.is

Fyrsta valdaránstilraunin í sögu Bandaríkjanna mistókst. Orkupakki3. May enn við fulla (ó)stjórn. Stuttar fréttir [u]

Því meir sem Vesturlönd geggjast, því betri verður Erla Þorsteins

****

BANDARÍKIN

Það voru ekki menn með sólgleraugu og axlaskúfa, og það voru ekki oligarkar í einkaþotum né "vér rauðir Marxistar" sem reyndu að ógilda kosningar og fjarlægja réttkjörna ríkisstjórn Bandaríkjaforseta frá völdum. Nei það voru embættismenn ríkisins, með fjölmiðla í vösunum, ásamt haturshreyfingu vinstrimanna, sem reyndu að framkvæma fyrsta valdaránið í sögu landsins. Ræna átti völdum til handa Hillary Clinton sem þetta fólk og fjölmiðlar þeirra sögðu að Donald J. Trump hefði rænt kosningasigri frá. Hún ein hefði einkarétt kosningasigri, svona svipað og ESB. Á þessa leið sagði bóndinn Victor Davis Hanson í Kaliforníu fram þulu sína um valdaránið, reyndar fyrirfram, og um einkaleyfi vinstrisins á að hata annað fólk, sem birtist einnig sem loftslagsofsóknir gegn kapítalisma, ásamt metoo, bæði knúið áfram af hatri

ÍSLAND

Á Íslandi ganga hlutirnir hins vegar þannig fyrir sig að smá biti af fullveldi landsins kemur til útborgunar í launaumslag þingmanna, og það er síðan notað til innkaupa þeirra erlendis. Sé bitinn, "pakkinn", nógu stór sem færður er yfir á erlendar hendur þá fá þeir punkta erlendis, sem jafnvel nægja til að að kaupa sér embætti, sem er mun tryggari staða en að þurfa að láta kjósa sig á flótta, svífandi um í fallhlíf burt frá fólkinu, þar sem nauðlending meðal hins almenna borgara er það versta sem hægt er að lenda í, vegna þess að þingmenn og flokksformenn gætu jafnvel lent meðal þeirra sem borða rangt, kjósa rangt, búa rangt, eru of lítið eða of mikið menntaðir, hugsa ekki rétt og tala vitlaust, og þola jafnvel ekki gungur og druslur nálægt sér. Það er þannig sem ræna á Íslandi frá þjóðinni; í bitum

Og þegar búið er að sundra þjóðinni nógu mikið, þá er eftirleikurinn mun auðveldari. Því með því að sundra íslensku þjóðinni, þá snýst hún ekki gegn embættismanna-þingmönnum sjálfum, nei nei, heldur snýst þjóðin þá gegn klofinni sjálfri sér, og opnar þar með leið fyrir "björgunarpakka" utanfrá í formi ESB. Einu sinni var það Noregur sem átti að halda friðinn meðal þjóðarinnar, sem þá hafði verið klofin. En núna er það ESB, sem kallað verður á vettvang, vegna þess að stjórnmálamenn klufu þjóðina. Þeir eru að reyna að eyðileggja það sem hún stóð sameinuð um eins og járnkall; sjálfstæðið og fullveldið

Klofningur meðal barna, skapaður af foreldrum þeirra, fær börn ekki til að snúast gegn foreldrum sínum. Nei nei. Þau snúast gegn hvort öðru. Miskunnarlaust. Rífa hvort annað á hol

Stöðva verður orkupakka3 - áður en hann nær að verða pakk

Uppfært: kl 19:45

FRÚ MAY ENN VIÐ FULLA STJÓRN Á STJÓRNLEYSINU

"No, the UK parliament has not taken control"
- W.M.: EuroIntelligence

Hlægilegt er að lesa allar "fréttirnar" um að "breska þingið hafi tekið vald af Theresu May". Enginn tekur valdið af forsætisráðherra Bretlands. Það eina sem þingmenn geta gert er að skipa forsætisráðherranum að gera eitthvað, en þeir hafa enga möguleika á að þvinga hann til þess, eins og bent er á hér. Og eins og þeir ættu að vita sem enn halda að umsókn Íslands inn í Evrópusambandið sé í gildi, þá er það þannig að Evrópusambandið má aðeins semja við forsætisráðherra, kanslara eða pólitískan forseta landa. Það er; pólitískt yfirhöfuð landa (e. heads of states). Það getur ekki samið við þingmenn, né þing þeirra. Og þar sem Theresa May er forsætisráðherra Bretlands þá eru furðufréttir dagsins um að vald hafi verið tekið frá henni, aðeins ein sönnunin í viðbót fyrir því hversu lélegir og rotnir "helstu fréttamiðlar" Vesturlanda eru orðnir, og því óvinir fólksins, eins og Donald J. Trump segir hér

Og þar sem það var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Íslands og ríkisstjórn hans sem dró umsókn lands okkar inn í Evrópusambandið til baka, og hætti henni og umsóknarferlinu öllu, þá var það einmitt eina rétta leiðin. Þingmenn hefðu auðvitað getað mómælt, en slíkt var bara froða, því að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var meirihluti þingsins og ríkisstjórn Íslands. Og þó svo að SDG hefði látið skúringakonu eða bara hjúkku um að senda telefaxið, skyldi norðanmaðurinn Gunnar Bragi, eins og ég, hafa verið upptekinn við annað, til dæmis úti að reykja eins og ég, eða á bar, eða á Ellý, eins og ég; þá er faxið frá honum og ríkisstjórn hans, og hljómar svona: Dear Ha Ha Ha

Sendi ég þeim báðum minn stærsta fingurkoss, og skúringakonunni og hjúkkunni líka

- Gunnar, húsmóðir í Skorradal. Íhaldsmaður
- og fyrrverandi skúringakona
sem gerði leikskóla barna minna
hreinan í fjögur ár á kvöldin

****

STUTTAR FRÉTTIR (ekki DDRÚV)

A. Japan tilkynnir að það elfi hervarnir sínar gegn Kína til muna. 1) Það reisir nýjar herstöðvar á Ryukyu og Miyakojima eyjum. 2) Báðar verða með eldflugavarnir til lofts og láðs. 3) Japan ákvað einnig að auka drægni ASM-3 eldflauga sinna úr 125 mílum í 250 mílur. 4) Og að samhæfa nýju tiltökin með annarri loftvarnargetu landsins. 5) Ríkisstjórnin ætlar hefja endurskoðun á reglum til að stöðva leka á bandarískri tækni frá Japan til Kína (millistéttar Guðlaugs Þórs)

B. Dómstóll í Suður-Kóreu hefur lagt hald á eignir Mitsubishi Heavy Industries í S-Kóreu. Þær eiga að fara í að borga stríðskaðabætur vegna hersetu Japana á S-Kóreu í Síðari heimsstyrjöldinni

C. Japan er sennilega rauntölu-ríkara land en Kína (nettó-virði). Og það er ekki með 1000 milljón fátæklinga hangandi um háls ríkisstjórnarinnar. Japan er jafnara og heilsteyptara land en Kína. Það hefur forðast "fjölbreytileika". Það er því ekki að leysast upp. Þjóðin stendur saman. Það getur því söðlað um á sjálfu sér á örstuttum tíma, án þjóðfélagslegra vandræða og átaka, gerist þess þörf. Japan er lýðræðisríki á 6852 eyjum. Það er sennilega með her sem hvað úr hverju stenst hefðbundna hernaðargetu Kína. Japan var bandamaður Bretlands -og aðstoðaði Frakkland- í Fyrri heimsstyrjöldinni. Það sendi flota sinn inn á Miðjarðarhaf, þeim til aðstoðar. Hér má lesa fróðlega grein um sigur Japans í þeirri styrjöld, á sögubloggsíðu Flotastofnunar Bandaríkjanna

Fyrri færsla

Kva? Ekkert. Bara alls ekkert!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Kva? Ekkert. Bara alls ekkert!

Uppfært mánudaginn 25. mars 2019

Útsendingarrof CBS vegna Mueller-skýrslu 24-3-19

Bein krækja á frétt Breitbart: hér - og á þessa upptöku Breitbart af útsendingarrofi CBS: hér

****

KVA?

Íþróttaútsending til margra milljóna áhorfenda rofin. Og með hverju. Jú með fréttum um að niðurstaða tveggja ára nornaveiða á hendur Donald J. Trump sýni ekkert. Trump hafði ekkert með Rússa að gera. Bara ekkert! Núll, zero, nada!

Hvað skyldi líberalistaflokkur Demókrata með einkaleyfi á að hata annað fólk gera núna? Og hvað gerir metoo-nýnasistahreyfingin á kristalhnífanótt við þessu. Og allar háskóladeildirnar sem snúast um kvenrembu og hatur, já, hvað gera þær! Hvern á að taka fyrir næst. Hvar fæst nýtt bensín á hatursbál þeirra núna? Allt bara búið?

Nei heldur betur ekki. Einkaleyfið til að hata annað fólk verður látið gilda áfram, sama hvað það kostar; hatursveldið snýr sér bara annað. Til dæmis að loftslagsmálum... og svo kallaðir "fjölmiðlar" spila auðvitað með, eins og gegn Trump og fjölskyldu hans og Lýðveldissinnum, sama hvar í þá næst

Leiðari Wall Street Journal, mánudaginn 25. mars, segir meðal annars þetta um niðurstöður Mueller-rannsóknarinnar:

[..] It means no Trump officials abetted the hack into Democratic emails, and no Trump officials conspired with WikiLeaks (Roger Stone’s fantasies aside). The conclusion should restore a measure of public confidence in our political system and the integrity of U.S. elections. Imagine the political crisis had Mr. Mueller found the opposite?

The end of the collusion illusion should also cause the media to do some soul-searching about rushes to judgment. For two years, with the help of ex-Obama officials, they spun anecdotes of contacts between Russians and Trump campaign advisers into a conspiracy. With few exceptions they went well beyond First Amendment oversight into anti-Trump advocacy. But it was always odd that those individual Russia-Trump contacts never added up to anything or went anywhere, which is why we warned about waiting for the facts. [..]

Já. Kannski eykst traustið á hinu pólitíska kerfi í Bandaríkjunum við þessar niðurstöður. Kannski. En traust kjósenda á stjórnmálaflokki Demókrata sem á þessum tveimur árum hefur opinberað sig sem skríl af verstu sort, verður ekki lagfært í bráð. Og ekki er ólíklegt að Barack Obama og Hillary Clinton endi bæði á bak við lás og slá, fyrir hlutverk sitt í að reyna að koma forsetaframbjóðandanum og réttkjörnum Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna frá embætti og fyrir kattarnef, með aðstoð embættismanna hliðhollum þeim. Og þegar að skrílsaðför Demókrata með aðstoð metoo-nýnasistahreyfingarinnar að dómaraefninu Brett Kavanaugh til hæstaréttar Bandaríkjanna er skoðuð, þá stækkar sennilega Demókrata-hópurinn sem er á leið í steininn

Myndskeið USA Today: En hvað sagði sjálfur Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna um þessa niðurstöðu 22-mánaða samfelldra Mueller-ofsókna Demókrata á hendur sér í dag?

****

KVA? ÖNNUR BYLTING?

Og nú virðist Líberalistapakki-1, Frakkland, vera við það að springa í loft upp aftur, því fjórir af hverjum tíu Frökkum vilja gera byltingu í þessu fyrsta ríki líberalismans. Svo hroðalega hefur stjórnmálastefna og stjórnarfar líberalismans brugðist Frökkum. Könnun IFOP meðal Frakka á því hvernig leysa megi þann pólitíska- og stjórnarfarslega vanda sem Frakkland er hafnað í, sýnir eftirfarandi niðurstöður:

1. Veit það ekki segja 8 prósent
2. Gera ekkert, segja 3 prósent
3. Rækilegar umbætur, segja 50 prósent
4. Gera byltingu, segja 39 prósent

En kannski væri bara nóg fyrir Frakka að segja sig úr Evrópusambandinu, til að byrja með. Segja sig úr ESB-pökkunum

Krækja á frétt um könnunina

Fyrri færsla

Orkupakki3: Aftur óvinur flokks og þjóðar?


Orkupakki3: Aftur óvinur flokks og þjóðar?

Stærsti hælbíturinn á Sjálfstæðisflokknum þessi árin virðist vera sjálf forysta flokksins, en einkum formaðurinn, skilji ég hlutverk formennsku rétt. Eins var staða beggja gagnvart flokknum í Icesavemálinu og reyndar gagnvart þjóðinni allri

Sjálfstæðisflokkurinn ætti kannski að bjóða forystunni að ganga í Sjálfstæðisflokkinn á ný, áður en hún leggur fram ESB-frumvarp um að Hafrannsóknarstofnun sé sett undir Evrópusambandið, og að Evrópusambandið stjórni þar með landhelginni okkar sem kostaði kannski eins mikið að berjast fyrir og það kostaði þjóðina að verða heimsmeistari í raforkuframleiðslu, til viðbótar við það að vera heimsmeistari í sjávarútvegi, að öllu leyti!

Milljón tonn af fiski og milljón tonn af áli á ári. Þetta getum við vegna þess að við erum ekki í Evrópusambandinu

Fyrst að flokkforystan hyggst koma gífurlegum fjárfestingum í til dæmis stóriðju í uppnám með orkupakka3, þá hlýtur það sama að eiga að gilda um útgerðarfyrirtækin. Ekki satt? Og garðyrkjubændur líka

Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan að eitt síldarbein felldi dómsmálaráðherrann vegna fullkominnar Evrópuþvælu á vakt flokksforystunnar. Stakk ráðherrann á hol. Hvar var formaðurinn þá?

Þá gæti forystan hallað sér aftur í sætum sínum í metoo-iðnbyltingarráði bráðnandi ísjaka, og sagt við kjósendur: "sorrý, þetta er ekki lengur á okkar höndum. Það er Evrópusambandið sem ræður þessu um þetta: um raforkumálin og fiskveiðar"

Þetta þetta er þá loksins komið yfir til Brusselveldisins og "þeir ráða þessu um þetta. Og þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis. Friðstjórn í stað sjálfsstjórnar, þ.e. fram að næstu borgarastyrjöld

Er það þetta sem fulltrúar ókjörinna embættismanna Evrópusambandsins í forystu Sjálfstæðisflokksins vilja. Er þetta það?

Hvað með kauplækkun? Eða bara að hunskast í vinnufötin og vinna fyrir þá sem kusu ykkur. Við förum fram á sigur. Já sigur. Ekki endalaust tap tap og tap. Takið ykkur saman. Það var nóg að bankakerfið hrundi vegna EES-samningsins. Miklu meira en nóg

Fyrri færsla

Orkupakkinn mun eyðileggja stóriðju á Íslandi


Orkupakkinn mun eyðileggja stóriðju á Íslandi

Nokkuð líklegt má teljast að Evrópusambandið muni með samanlögðum og sístækkandi orkupökkum sínum geta með tíð og tíma náð að banna íslenskum stjórnvöldum að gera samninga við stóriðjufyrirtæki hér á Íslandi. Og með sömu tíð og tíma náð að eyðileggja rekstrargrundvöllinn fyrir stóriðju hér á landi. Íslenskum stjórnvöldum yrði smám saman óheimilt að nýta íslenskra raforku í þágu Íslendinga, eins og okkur sýnist, fram yfir önnur notkunarsvið erlendra ESB-hagsmuna, sem hvenær sem er geta tekið sér bólfestu hér á landi, og nánast gert hvað sem er í skjóli EES, sem bara stækkar og stækkar í trássi við það sem þjóðinni var sagt um samninginn í upphafi. Það sama mun verða látið gilda um raforku og hefði gilt um fiskveiðar í íslenskri lögsögu, ef að við hefðum gengið í Evrópusambandið

Það má kallast jaðra við landráðalegan aulaskap að forystumenn Sjálfstæðisflokksins skuli ekki allir sem einn sjá hætturnar sem fylgja því að leyfa umboðslausu yfirríkislegu embættismannaveldi á borð við Evrópusambandið komast með krumlurnar í íslenska raforkuframleiðslu, dreifingu hennar, verðlagningu og notkun. Þar setjast að ömurleg öfl eins og mýpakkar á mykjuskán út um alla Evrópu

Samhliða þessu áhlaupi á raforkumálin reyna íslenskir stjórnmála- og smásölumenn allt hvað þeir geta að fórna íslenskum landbúnaði á altari ríkisstyrkts ESB-landbúnaðar, og gengur þriðji-flokkur Framsóknarflokksins þar hve harðast fram. Ofan í þetta tvennt bætist svo sú staðreynd, að við Íslendingar ráðum varla lengur því hver býr í landinu okkar eða ekki; og svo því hverjum erlendum er verið að selja landið undan þjóðinni í skömmtum, eða ekki

Þegar ég hugsa um núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins þá sé ég fyrir mér sennilega lélegasta formann flokksins frá upphafi, og sem fyrir aðeins nokkrum árum ætlaði sér að setja íslensku þjóðina í skuldafangelsi vegna skulda einkafyrirtækja. Við hverju má þá ekki búast þegar að íslensku olíunni kemur; raforkunni? Hvar er dómgreind hans? Formenn flokksins hafa verið þessir:

  1. Jón Þorláksson
  2. Ólafur Thors
  3. Bjarni Benediktsson
  4. Jóhann Hafstein
  5. Geir Hallgrímsson
  6. Þorsteinn Pálsson
  7. Davíð Oddsson
  8. Geir H. Haarde
  9. Bjarni Benediktsson

Traust mitt á forystunni í flokki mínum er því miður ekki til staðar í þessum efnum. Það hefur þurft að mata hana eins og hvítvoðung með teskeið á fullveldis-staðreyndum lífsins í næstum því 10 ár, bara til þess eins að flokkurinn rétt næði að lifa forystuna af. Og aðeins eru nokkrir dagar liðnir frá síðasta mannfalli í flokknum. Þá vegna Evrópudómstóla sem fylgja uppskriftinni að einræði æ nánar. Evrópumálin eru að eyðileggja flokkinn, eins og þau mál hafa gert og gera út um alla Evrópu. Er ekki kominn tími til að ranka úr EES-rotinu, sem breyttist í bankarotið vegna eins EES-samnings. Á kannski að eyðileggja enn meira?

Þjóðaröryggisstefna getur aldrei byggst á því að vona það besta. Slík stefna er og verður alltaf þjóðar-óöryggisstefna

Fyrri færsla

Líberalismi hefur steikt heilabú margra Sjálfstæðismanna


Líberalismi hefur steikt heilabú margra Sjálfstæðismanna

Þegar dómur hins svo kallaða Mannréttindadómstóls Evrópu --þar sem innangengt er yfir í Evrópudómstólinn, sem fylgir sovétisma klæddum í esbbúning-- barst sem frétt til Íslands, já, hvað var þá það fyrsta sem hér gerðist? Jú heilastarfsemi íslenskra líberalista sló yfir sjálfskiptingu líberalismans, og kom þar með í veg fyrir að hún gæti staðið vörð um það sem öllu máli skiptir; þjóðfrelsi Íslendinga. Nú er því úr vondu að ráða, í stað góðs

Allar góðar sjálfskiptingar vita hvað þær eiga að gera, þegar hættu ber að höndum. En það veit sjálfskipting líberalista hins vegar aldrei. Hún rífur því á örskömmum tíma það niður sem tók árhundruð að byggja upp

Líberalisminn um allar jarðir hefur steikt heilabú þeirra sem honum eru haldnir. Þeir geta ekki hugsað í stækum isma sínum, sem er að rífa niður Vesturlönd, og tæta þau í tætlur. Þeir eru eins og valtarar á hvolfi og gufugleypar í bakkgír

Annað dæmi um gufugleypir í bakkgír, er borgarstjórn Reykjavíkur. Sá gufugleypir hefur nú safnað alþjóðlegum skotmörkum saman í einn ruslahaug á Austurvelli, og þar með skaffað illa innréttuðum mönnum ókeypis skotmörk til að ná sér niðri á. Aðeins fávitar leyfa slíkt, því alls staðar sem þessu vandamáli líberalismans er leyft að safnast saman í eina hrúgu, sem skjólstæðingum heilastöppu líberalismans, gerast alveg hroðalegir hlutir, nú orðið. Svo langt hefur eyðilegging líberalista á Vesturlöndum náð. Einhver vitiborinn maður verður að stöðva þessa þéttingu vandamála í Reykjavík, áður en illa fer

Þið líberalistar hafið þegar eyðilagt skilyrðin fyrir fundarfrelsi í löndum ykkar. Og það er ekki gott. Það er mjög slæmt. Þið eruð sósíalistar því líberalismi er sósíalismi. Öll ríki ykkar leysast upp, og þar með þið líka. Þið eruð að leysast upp og það sést, langa vegu að

Líberalismi og öryggi útilokar hvort annað. Fólk vill öryggi, langt, langt á undan innfluttum ESB-paprikum, okurpökkum og Austurvallarlýð. Fólk vill hvorki fæða né ala börn sín upp á jarðsprengjusvæðum líberalista. Það eina sem virkar í raunheimum er því Íhaldsstefnan. Það var hún sem byggði upp Vesturlönd

Fyrri færsla

Framlag Þýskalands til NATO lækkað. "Fort Trump" að rísa í Póllandi?


Framlag Þýskalands til NATO lækkað. "Fort Trump" að rísa í Póllandi?

Duda og Trump júlí 2017 - undir hamrinum

Mynd: Varsjáryfirlýsing Trumps í júlí 2017. Duda og Trump undir málverkinu af Hamrinum (t.v.)

****

PRÚSSLAND II

Það mun varla fara vel niður í Washington að Þýskaland skuli ekkert hafa aðhafst til þess að verða við tilmælum Bandaríkjanna um að landið standi við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO. Framlag Þýskalands til viðhalds á varnarmætti hernaðarbandalagsins var óbreytt of lágt í fyrra, eða 1,23 prósent af landsframleiðslu, en landið hefur skuldbundið sig til að leggja tvö prósent af mörkum. Við þær fréttir bætast svo fyrirætlanir þýsku ríkisstjórnarinnar um að lækka framlagið um tæpa þrjá milljarða dala á þessu ári

RÚSSLAND III

Rússneska þingið samþykkti á miðvikdaginn reglur um sektir á þá sem sýna rússneska ríkinu "augljósa vanvirðingu" á Internetinu. Eina kosningaloforðið sem Vladímír Pútín gaf þegar hann var kjörinn forseti árið 1999, var það að hann skyldi endurreisa sovétríkin. Þarna er greinilega staðið við það, með einu skrefinu enn

BANDARÍKIN - PÓLLAND

Frá Pentagon sagði Kathryn L. Wheelbarger -sennilega næstæðsti maður bandaríska varnarmálaráðuneytisins- að ákveðið hefði verið að bandarískir hermenn myndu hafa fasta viðverðu í Póllandi. Það þýðir bandaríska herstöð þar. Sumir hafa gefið henni nafnið Fort Trump, á meðan að beðið var eftir ákvörðun um málið. Pólland hefur boðist til að greiða tvo milljarða dala af stofnkostnaðinum. Verður bandaríska herstöðin í Þýskalandi þá rifin upp með rótum og flutt? Ekki segja menn það. En sjáum nú til

Fregnast hefur að Donald J. Trump hafi hent framhaldssögusafni Obama, sem ber nafnið "Rússland skilið rétt", út um glugga Hvíta hússins. Þar er ekkert að skilja segir hann: Rússland er og verður alltaf harðstjórnarríki

Fyrri færsla

Fáviska vandalista


Fáviska vandalista

Myndskeið mbl.is: Sigríður Á. Andersen í gær

****

Þeir sem þekkja hlutverk Viðreisnar í því sem gerðist með Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra í gær, og sérstaklega eftir að hafa lesið þarfa Staksteina Morgunblaðsins í dag, ættu ef til vill að íhuga eftirfarandi:

Nú þegar vandalistar hafa fengið því framgengt að styttan af Kristófer Kólumbus í Los Angelesborg hefur verið fjarlægð, með þeim rökum að Ítalinn sem "fann" Ameríku hafi verið upphafið á "fjöldamorðum" í Ameríkum, þá snéru vandalir sér næst að Norður-Karólínu, til að kveikja þar í styttunni af Robert E. Lee hershöfðingja. Og það gerðu þeir. En þá kom hins vegar í ljós að styttan sem þeir höfðu kveikt í var af William C. Lee hershöfðingja, sem var einn af stofnendum fallhlífahersveita bandaríska hersins sem frelsuðu Frakkland í Síðari heimsstyrjöldinni

Samnefnarinn á flokka eins og Viðreisn, Pírata og Bjarta framtíð hlýtur að vera Vandalalistinn - og fleirum má við hann bæta, eins og til dæmis Vinstri myglugrænum, sem byggja alla pólitíska tilvist sína á Karl Marx útgáfunni af Kaþólsku kirkjunni á tímum Galileo. Þann flokk kjósa bara þeir sem enn eru austan Úralfjalla, og sem árið 1965 höfðu aldrei heyrt um rússnesku byltinguna. Líf þeirra hafði ekkert breyst. Þeir bjuggu bara, lifðu og dóu í genetíksu harðstjórnarríki. Og þannig er það ríki enn, eins og Vinstri rosagrænir, og verður alltaf

Erlendir dómstólar sem dæma önnur lönd á borð við það sem gerðist í gær, eru verkfæri glóbalista í höndum líberalista. Svo mikið er víst

Þeir, eins og flestar aðrar "alþjóðlegar stofnanir", þurfa bráðnauðsynlega á þeirri endurskoðun að halda sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði Íslendingum að nú færi fram á þeim, í sjálfri ríkisstjórn Bandaríkjanna

Það kom því vel á vondan að fyrirhugaður AKK arfahrúguviðtaki Angelu Merkels skyldi setja fram þá kröfu í opnu bréfi -á meðan blekið á pappírnum kenndum við Aachen er enn að þorna- að Frakklandi yrði gert að gefa sæti sitt í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna (enn ein alþjóðastofnunin sem þarf á endurskoðun að halda) eftir til Evrópusambandsins (og ein í viðbót) á meðan Þýskaland héldi sjálft þeim sætum sem því hefur verið treyst til að hafa, í ljósi unnins vandalisma þess á heiminum, og svo hinum nýja, sem fram fer nú, og er því ekki kominn til uppgjörs enn. Þetta, mínar dömur og herrar; er alþjóðasamvinnan, um vandalisma

Já, "samvinnan" í sjálfu "samfélagi þjóðanna" sem aldrei aldrei nokkru sinni í öllum ókomunum tíma alheimsins, geta haft sömu hagsmuna að gæta á sama tíma. Þeir munu aldrei geta farið saman. Aldrei. Þess vegna þarf að varðveita sjálfsákvörðunarrétt þjóða og þjóðfrelsi þeirra, því það er undirstaða alls þess frelsis sem hægt er að hafa í þessum heimi, sem einstaklingur. Allt hitt er útópía, eins og sást svo vel í gær. Rugl um glóbalisma í höndum líberalista

Fyrri færsla

OECD: Innfluttur dauði frá ESB


OECD: Innfluttur dauði frá ESB

1. SÝKLALYFJAÓNÆMI

Dauðsföll vegna sýklaónæmis - OECD

Mynd; WSJ Daily Shot og krækja á OECD og WEO

Myndin frá OECD sýnir áætluð dauðsföll vegna sýklalyfjaónæmis á hverja hundrað þúsund íbúa á ári. Ísland er lægst í heiminum. Þessu hyggst ríkisstjórnin, yfir engu?, breyta með þeim rökum að hún "eigi ekki annarra kosta völ". Vonandi verður það þá hún ein sem étur fársjúkan innflutning sinn. En auðvitað verður það ekki þannig. Það verður almenningur sem fórnað verður á altari EES samningsins. Honum skal blæða. Allt gott skal eyðilagt á altari EES. Sjálfstæðisfélagið Vörður um humar fagnar. Símsvari í stjórnarráðið er mun ódýrari í rekstri en ríkisstjórn sem "á ekki annarra kosta völ"

Það er lægsta sýklalyfjanotkun heimsins í landbúnaði og búfjárstofnum og þar með íslenskum landbúnaðarafurðum sem breytir öllu fyrir Ísland. Þess vegna er sýklalyfjaónæmi lægst hér

Fáninn

(rautt, litur lýðveldissinna - blátt orðið litur krata?)

Sigríður Ólafsdóttir Morgunblaðið 26 apríl 2017 - svo lengi lærir sem lifir

Mynd: Sjá grein Sigríðar Ólafsdóttur hér: Mogginn 26-4-17

*****

2. KJÁLKABROT

Donald J. Trump

TRUMP HEFUR BRETT UPP ERMARNAR: KJÁLKABROT HAFIN?

Þróun heilbrigðiskostnaðar - Bandaríkin undir Trump

Mynd WSJ Daily Shot: Heilbrigðisþjónusta: Verðlækkunarferli Trumps hafið

Hann lofaði þessu fyrir kosningar. Að lækka lyfjakostnað og verðið á heilbrigðisþjónustu. Mér sýnist að kjálkabrot Trumps á heilbrigðisgeiranum gangi bara ansi vel. Menn standa á öndinni og gapa yfir þróuninni

Þróun lyfjakostnaðar - Bandaríkin undir Trump

Mynd WSJ: Þróun lyfjakostnaðar eftir að Trump tók við

Kjálkabrot? Stendur við loforð sín? OMG! Gerir það sem hann segir? Skelfilegt!

Fyrri færsla

Evrópa að blindast: upplýsingaflæði í hættu vegna vantrausts


Evrópa að blindast: upplýsingaflæði í hættu vegna vantrausts

TRAUST OG TRÚNAÐUR MEÐAL BANDAMANNA

Sendiherra Bandaríkjanna í Berlín var í síðustu viku falið það verk að birta þýskum stjórnvöldum þau skilaboð frá Washington, að ef Berlín ákveður að byggja 5G-fjarskiptainnviði landsins upp á kínverskri tækni, þá neyðast Bandaríkin til að meðhöndla Þýskaland sem útibú Kína. Þá yrðu Bandaríkin að gera ráð fyrir því að mikilvægar upplýsingar sem Bandaríkin veita Þýskalandi, endi í höndum Kínverska kommúnistaflokksins. Yrðu þá mikilvægar upplýsingar að hætta að berast Þýskalandi. Málið snýst ekki bara um nafnið á uppsetningarbúnaði slíks fjarskiptakerfis, heldur um eðli þess

Fjarskiptakerfið hvílir á hugbúnaði sem viðstöðulaust þarf að uppfæra. Og eins og flestir vita eru hugbúnaðarmál veraldar komin í eðlislægt þrot, þar sem lengra verður varla haldið með þá örgjörva- og hugbúnaðartækni sem ekki getur vitað hvort að hann sé að tortíma heiminum eða að vinna honum gagn. Þó svo að upphafleg uppsetning 5G kerfisins sé hugsanlega þétt, þá mun kerfið taka stakkaskiptum með uppfærslum frá framleiðendum, sem í tilfelli Kína, er kommúnistaflokkurinn. Þessu greindi til dæmis Wall Street Journal frá í gær

Bandaríkin hafa bent þýskum stjórnvöldum, sem enn eru varla skriðin inn í hina stafrænu upplýsingaöld, á framleiðendur í Evrópu eins og til dæmis Ericsson og Nokia. Þau hafa ekki bent þeim á til dæmis hið bandaríska Cisco, því þýskum stjórnvöldum er svo illa við Bandaríkin, eða þá vegna þess að Bandaríkin eru á tröppunum með nýja tölvunartækni sem öðrum verður ekki treyst fyrir og sem enn er hernaðarleyndarmál. Það var jú Bandaríkjaher sem fann upp þá stafrænu tækni sem notuð er í dag ásamt internetinu. Hún er kaldastríðsafurð sem öllum varð heimlit að nota um leið og hún hætti að vera hernaðarleyndarmál. Tölvunarrisar heimsins í dag fundu hana ekki upp. Það gerði bandaríski herinn, og líklegt er að það sama muni gilda um orkutækni framtíðar. Það má því gera ráð fyrir því að upplýsingakerfi Schengensvæðisins verði eins og Þýskaland er þegar orðið: eða miðstöð fyrir helstu stríðsglæpamenn heimsins, bæði þá núlifandi sem unnu fyrir ríkisstjórn Adolfs Hitlers kanslara Þýskalands, og svo þeirra sem voru að verki við stríðsglæpi í Mið-Austurlöndum, og fengu í kjölfarið alþjóðlega vernd í Þýskalandi í boði Angelu Merkel, sem þýska blaðið Bild upplýsti í gær að teldu um fimm þúsund stríðsglæapamenn, sem Þýskaland og þar með Schengensvæðið hýsir nú, en sem enginn veit hverjir eru

ÚRSÖGN BANDARÍKJNNA ÚR NATO

Úrsögn Bandaríkjanna úr NATO er mál sem enginn ætti að afneita sem raunverulegum möguleika úr þessu. Fyrir það fyrsta er næstum að verða ógerningur að láta bandalagið sameinast um þau verk sem vinna þarf þegar að vinna þarf þau. Fjölbreytnin í bandalaginu er orðin slík. Og í öðru lagi er varla lengur hægt að segja að Þýskaland sé hernaðarbandalagshæft ríki að neinu leyti. Það er fordæmisgefandi versta land fyrir Evrópu sem hægt er að vinna saman með í varnarbandalagi á borð við NATO, sem kennt er við Norður-Atlantshaf, og sem krefst þess að löndin í bandalaginu séu að minnsta kosti á sömu pólitísku blaðsíðunni. Þýskaland er ekki lengur á sömu pólitísku blaðsíðu og vesturlönd. Og hugsanlega er hægt að segja að landið hafi heldur aldrei verið það

Þá vitið þið það. Upplausn NATO er hugsanleg. Og málið er þess eðlis að það snýst ekki bara um þau helstu núverandi pólitísku ríkishöfuð sem halda um stjórnartaumana beggja megin Atlantsála. Það er dýpra en svo. Bandaríska þjóðin er farin að líta á NATO sem hættulega gildru, sem eykur mannfall þegar til bandalagsins þarf að grípa, meðal annars vegna þess að hælbítar eru innan þess og sem koma í veg fyrir sigur í átökum. Plús það að enginn getur lengur vitað með hverjum land á borð við Þýskaland vinnur, eða ekki. Og þegar grípa þarf til herstyrks NATO þá eru það aðeins Bandaríkin sem hafa bardagakláran her og mannafla til að fara með sigur af hólmi í átökum

Fyrri færsla

Hættulegra að segja nei en að vera ólöglegur í ESB [u]


Hættulegra að segja nei en að vera ólöglegur í ESB [u]

Í ESB-Evrópu standa málin þannig, aðeins 30 árum eftir endursameiningu Þýskalands, að þar er orðið hættulegra að segja nei við innflæði ólöglegra innflytjenda og lýsa yfir efasemdum um þá, en að vera ólöglegur innflytjandi í sambandinu. Nú ert þú settur í ESB-gúlag ef þú efast um alræði Þýskalands í þessum málum, sem lét sturta milljónum af innflytjendum frá annarri plánetu, ástamt glæpa- og vígamönnum, yfir Evrópu og sem flæða þar um á milli landanna. En brjótir þú hins vegar lögin og ryðjist inn yfir ytri sem innri- gatasigta-landamæri landanna í sambandinu, þá færðu peningapoka frá hinu opinbera, sem þvingar þá út úr skattgreiðendum landanna, sem settir hafa verið í eins konar gúlag

Norðmenn þorðu heldur ekki að segja nei við þriðja orkupakkanum af sömu ástæðu. Þeir hræddust að vera settir gúlag með þeim sem sett hafa spurningarmerki við evrópusamrunann, sem verja á Þýskaland og Frakkland gegn alþjóðlegri samkeppni, með því að þau hafi völdin yfir öllum ríkjum Evrópu í gegnum ESB, sér í hag. Það er á þá leið sem Reuters skrifar um samþykki Noregs, þegar að þriðja orkupakkanum kemur. Norðmenn hafa aldrei þorað að segja nei við neinu frá ESB. Þeir hafa bara þorað að segja nei við Íslendinga

Þetta er að verða frekar súrrealistískt ástand í ríki líberalismans, sem Þórdís Kolbrún þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins dásamar í Moggapistli sínum nú um helgina. ESB (og EES) er orðið að de-facto gúlagkerfi, þar sem sjálf háborg líberalistanna, París, er að verða svipað apartheit-samfélag og Suður-Afríka var. Gildir hið sama um fleiri borgir í löndum Evrópusambandsins. Líberalistaríki hennar stendur á barmi borgarastyrjaldar og er þegar orðið að apartheit-einangrunarbúðum

Það tók Þýskaland ekki nema 30 ár að verða að nýrri og þrúgandi ógn yfir Evrópu. 1) Það lemur Suður-Evrópu í efnahagslegan plokkfisk og hefur gert svo allt frá því að það bjó til og fékk EMU-verkfærin í hendur sínar. 2) Þýskaland er þegar komið í stríð við Austur-Evrópu sem vogar sér að andæfa þýsku gerræði. 3) Þýskaland reynir allt hvað það getur að berja Bretland niður og út í brexit. Og 4) Grikkland fær enn og fékk í 10 ár verri meðferð úr lófa Þýskalands en ólöglegir innflytjendur frá annarri plánetu fá, og sem þýski kanslarinn veifaði bara inn og yfir Evrópu

Norðmenn þegja sem fastast 1933-sænskri þögn um allt, á meðan hin gamla aristókratíska undirgefni Svíþjóðar í garð Þýskalands, frá tímum Síðari heimsstyrjaldarinnar og fyrr, lepur það ábyrgðar- og stjórnleysi gagnvart Svíum úr hönd Þýskalands, sem sænsku ríkisstjórninni er skammtað þann daginn og hinn, af einskærum ótta við þær afleiðingar sem allar tilraunir til fullveldis í sænskum málum hefðu í för með sér. Svíþjóð er því að verða óþekkjanlegt stórslys

Hvað á svona "samvinna" að þýða? Þetta er að sjálfsögðu að nálgast geðklofaástand sem ekkert hefur með samvinnu að gera. Þvert á móti!

Sektarkennd Þýskalands vegna Síðari heimsstyrjaldarinnar hefur nú þegar að miklu leyti breyst í sektarkennd yfir því að hafa tapað henni. Ameríkuandúðin blómstrar og hefur gert svo áratugum saman, svæsin allar götur frá að minnsta kosti 1981. Og Ísrael og Gyðingar færast óðum efst upp á listann. Það var engin tilviljun að Ameríkuandúðarmiðillinn Der Spiegel skyldi á þremur árum birta tugi upploginna frétta um Bandaríkin, kosningabaráttu og forsetakjör Donalds Trump 2016, en sem blaðið afsakar sig með að hafi aðeins verið birtar vegna eins rotins og svikuls blaðamanns, sem skáldaði þær allar upp frá a til ö. Enginn fótur var fyrir neinu. Allt var upplogið og falsað, blaðsíðunúmerin líka. Hinn þýski stjörnu-blaðamaður tímaritsins færði hins vegar yfirmönnum sínum á Der Spiegel bara það sem þeir vildu heyra. Þess vegna runnu lygar hans niður eins og heitar lummur hjá ritstjórninni, því í hennar augum voru þær hinn hreini sannleikur um landið í vestri, sem hið aristókratíska "æðra Þýskaland" og skáldskapur þess um Sonderweg, hefur að miklu leyti fyrirlitið og jafnvel hatað frá fæðingu Bandaríkjanna sem lýðveldi fólksins. "We the people" hljómar þar ekki vel. Íslenskir Þýskalandsfetistar eru í hópi tryggustu áskrifenda að þessum miðli og margir til pólitísks heimils í Sjálfstæðisflokki mínum og á kratagervihnöttum. Þeir æmtu því; þessi maður verður aldrei forseti!

Á sama tíma -að sögn fréttaveitu Bloomberg, GPF og Stratfor og fleirum- neitaði Þýskaland að verða við bón varaforseta Bandaríkjanna í kjölfar öryggisráðstefnunnar í Munchen um daginn, um að sjófrelsis-sigla litlum þýskum herskipum um Kerchsundið, sem tengir Svartahaf og Azovhaf, og sem er alþjóðleg siglingarleið. Því neitaði Þýskaland með þeim rökum að slíkt væri "óþarfa áreitni" í garð Rússlands! Hið sama gerði Frakkland, það neitaði líka. Bæði löndin þykjast þó vera í NATO. Heldur virkilega einhver að þessi "fjölþjóðlegu-samvinnulönd" muni lyfta litla fingri Austur-Evrópu til varnar, þegar Rússland slær til og étur sig lengra vestur í álfunni. Eða Grikklandi, þegar Ottómankolin hitna upp fyrir suðumarkið þar. Þar stóð Grikkland varðstöðu fyrir norðrið í 500 ár og hún kostaði Grikki það mikið að það sést enn þann dag í dag

Svo kallar Þórdís Kolbrún ráðherra xD þetta bara "alþjóðlega samvinnu". Ég vona svo sannarlega að þetta sé ekki viðhorfið hjá fleiri Sjálfstæðismönnum, því þá er illa komið fyrir okkur, og Ísland á á hættu að glatast þjóðinni sem á landið. Að mæra Evrópusambandið er að verða eins og að dásama nýtt alræði yfir Evrópu sem "samvinnu" um fjölþjóðlega eyðileggingu

Við þurfum öldungadeild sem bremsuvirki á þannig fólk sem krefst ofangreinds ömurlegs sambands við önnur lönd. Bremsuvirki

Fyrri færsla

Sósíalistar komnir á ískalt hlaðborð xD ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband