Leita í fréttum mbl.is

Sósíalistar komnir á ískalt hlaðborð xD ?

Fáninn

VIKAN

(rautt, litur lýðveldissinna - blátt litur krata?)

FÖSTUDAGUR 8. MARS

Mario Draghi

Mynd WSJ: evrusólin

Í síðasta bloggpistli, föstudag (ég fastaði þó ekki), fjallaði ég um Svíþjóð og biðstofuna niður í evru, sem fékk e-efnanúmerið ERM2. Þar inni er Svíþjóð, en sem neitar samt að höggva af sér restarnar af útlimunum og að fella síðustu tennurnar, svo að hún geti setið nógu fast-þrædd upp á strekktum gengisvírnum, sem heimilar ekki að hún blakti meira en plús mínus það sem nefnd í Brussel hefur ákveðið að þvotturinn á ERM2 snúrunni megi blakta. Vírinn er svo hafður uppi þar til að síðustu sjálfstæðistilburðir landsins hafa verið þurrkaðir upp, undir stingandi sólbruna ECB-seðlabankans, í höndum þurrkaðs tómats frá Pasta, sem þerrað hefur upp alla Evrópu til handa Þýskalandi, samkvæmt nýrri rannsókn

MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019

Í þar síðasta pistli, á miðvikudag, spurði ég hvort að Sjálfstæðisflokkurinn ætli bjóða fram ískalt hlaðborð á ný. Glórulaus pistill Þórdísar Kolbrúnar í Mogganum í dag gefur til kynna að hlaðborðið innihaldi frá og með nú það sem í Evrópu eru kallaðir sósíalistar, en kratar á Íslandi. John Locke (1632 –1704) var sósíalisti sem bjó svo vel að geta rúllað kenningum sínum um líberalisma út í stjórnaskrárbundið stjórnarfar og þjóðfrelsi sem breskir Íhaldsmenn höfðu byggt upp frá og með 13. öld, eða 400 árum áður en Locke fæddist. Fyrirmyndarríki John Lockes hófst í Frakklandi, þar sem líberalistar stofnuðu nýtt ríki sem hófst á því að skilgreina hverjir máttu vera með í ríki líberalismans þar, og hverjir ekki. Þeir sem máttu ekki lengur vera með í frönsku þjóðinni voru teknir af lífi, slíkur var krafturinn í úníversalisma líberalista

Hinum megin Atlantsála varð hins vegar á sama tíma til nýtt ríki sem byggði á vinnu hins enska Sir John Fortescue (1394-1479) og samlanda hans John Selden (1584–1654), sem kallaður var Talmúdistinn í Turninum (hann sat þar inni um tíma), því hann eins og stofnendur Bandaríkjanna og svo síðar Lincoln líka -nema þá helst vinstrimaðurinn Thomas Jefferson sem var í burtu að dá blóðbað hetjulíberalista sinna í Frakklandi- byggðu að miklu leyti lagaheimspeki bæði Bretlands og Bandaríkjanna á Ísraelsríki hinu forna og þótti því ákaflega vænt um Gamla testamentið, sem snillingurinn Patton, sem talaði bæði þýsku og frönsku, las í hvern einasta helvítis dag. Allt er til sölu hjá líberalistum: þjóðin, þjóðríkið, þjóðfrelsið, fjölskyldan, Guð og æran líka. Þeir hafa öðlast "einstaklingsfrelsi" til að gera ekkert í ekkert-heimum. Það er þeirra vegna að heimurinn er í klessu í dag. Hér má fræðast um þetta allt og sérstaklega hvað Íhaldsstefnan er, því hún skapaði það sem kallast Vesturlönd: Hvað er Íhaldsstefna?

Í leiðinni er hægt að geta þess að engin svo kölluð fjórða iðnbylting er í gangi. Hún er ekki fædd enn, en margir reyna hins vegar að geta sér til um hverju hún muni bylta og hvernig. Útbrunnin stafræn tækni á leið í þrot er ekki bylting. Hún er aðeins það stig sem bílaiðnaðurinn var á í kringum 1950: bransi í leit að nýjum hávaxtar-tekjuleiðum, en sem ekki fundust

Í kaldaborðs pistli mínum um xD-réttina á því, fjallaði ég líka um NATO og benti lesendum á Victor Davis Hanson bóndann og hernaðarsögufræðing útskýra um hvað NATO snýst, og um hvað ekki; Það snýst um að halda Bandaríkjunum inni, Rússlandi úti og Þýskalandi niðri á jörðinni. Einnig kom ég inná nýja könnun í Þýskalandi sem segir að Þjóðverjar séu alveg við það álíta Pútín heilagan anda og Kínverja eins og þá sjálfa, eða jafnvel betri en Bandaríkjamenn. Bóndinn Hanson kom einnig í vikunnu með ágætis uppgjör á því hvað er að gerast meðal "líberalista" í Bandaríkjunum: Pigs on Two Legs Turn on Each Other

ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019

Á þriðjudag fjallaði ég um að engar spár ECB-seðlabanka Evrópusambandsins um verðbólgu á evrusvæðinu, hafa staðist

SUNNUDAGUR 3. MARS 2019

Á sunnudeginum fjallaði ég um fjárnám á evrusvæðinu þar sem ný rannsókn segir að Þýskaland hefur grætt næstum því tvær billjónir evra á evrunni, en Frakklandi hefur blætt það mikið út, samkvæmt rannsókninni, að blóðmissir þess svarar til 3,5 sinnum þeirrar blóðgjafar sem Austur-Þýskalandi var veitt til að forða því frá úrkynjunaraldauða kommúnismans, eftir hrun Berlínarmúrsins frá austri til vesturs (líberalisminn). Um er að ræða næstum eina og hálfa landsframleiðslu Frakklands í blóðgjöf. Fyrir Ítalíu er staðan enn verri samkvæmt þessari rannsókn. Blóðtap Ítalíu svarar til þess að hún hafi verið þvinguð til að endurreisa Austur-Þýskaland rúmlega fjórum sinnum og tapað við það rúmlega tvöfaldri landsframleiðslu sinni

Fyrri færsla

Aftur og aftur: fjölmiðlar, Svíþjóð, ERM2 og evra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar góð úttekt á góðum greinum og alltaf fróðlegt að lesa frá þér. plús skemmtilega skrifað. :-)

Valdimar Samúelsson, 9.3.2019 kl. 20:44

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Getur verið að samantekt vikunnar gæti útlagst á einhverskonar veg svosem þess, að "the fourth reich is slowly progressing"? Í þetta sinn án evrivaraskeggs og útrýmingarbúða, en með djöfullegu valdi peninganna, sem nú eru um það bil að drekkja Þýskalandi?

 Bara spyrinnocent

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 9.3.2019 kl. 23:10

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Valdimar og Halldór Egill.

Var að koma aftur heim í sveitina á milli örfokssanda Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar og Sprengisands. Var nefnilega á Ellý í kvöld, síðustu sýningu. Og viti menn, birtist þá ekki maður að nafni Ragnar Bjarnason og var með uppistand, frammíköll og læti, greinilega ölvaður af gleði.

Takk elsku Ísland! Þetta var ógleymanlegt kvöld. Þvílík snilld!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.3.2019 kl. 01:28

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Já Gunnar! Skerið er ekki svo skelfilegt, sé það látið í friði. Við eigum svo mikið af fallegu fólki, frumkvöðlum, snillingum og ófervandis dásemlagheitum.  

 Raggi Bjarna, Ellý og Guð má vita út í hið endalausa. Þetta er landið Okkar!

 Sofðu vel.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.3.2019 kl. 01:59

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakkir Halldór.

Leiðrétting: 

Það er víst búið að bæta við fleiri sýningum á Ellý, frétti ég í morgun, þannig að þær munu standa yfir fram í júní. Þetta átti að vera síðasta sýningin í gærkvöldi, en það verða sem sagt fleiri. Eftirspurnin eftir því sem Ellý Vilhjálms og Svavar Gests héldu á sínum tíma að væri að verða útdautt, er svona mikil. Sýningin í gærkvöldi var sú 208. í röðinni.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.3.2019 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband