Leita í fréttum mbl.is

Evrópa að blindast: upplýsingaflæði í hættu vegna vantrausts

TRAUST OG TRÚNAÐUR MEÐAL BANDAMANNA

Sendiherra Bandaríkjanna í Berlín var í síðustu viku falið það verk að birta þýskum stjórnvöldum þau skilaboð frá Washington, að ef Berlín ákveður að byggja 5G-fjarskiptainnviði landsins upp á kínverskri tækni, þá neyðast Bandaríkin til að meðhöndla Þýskaland sem útibú Kína. Þá yrðu Bandaríkin að gera ráð fyrir því að mikilvægar upplýsingar sem Bandaríkin veita Þýskalandi, endi í höndum Kínverska kommúnistaflokksins. Yrðu þá mikilvægar upplýsingar að hætta að berast Þýskalandi. Málið snýst ekki bara um nafnið á uppsetningarbúnaði slíks fjarskiptakerfis, heldur um eðli þess

Fjarskiptakerfið hvílir á hugbúnaði sem viðstöðulaust þarf að uppfæra. Og eins og flestir vita eru hugbúnaðarmál veraldar komin í eðlislægt þrot, þar sem lengra verður varla haldið með þá örgjörva- og hugbúnaðartækni sem ekki getur vitað hvort að hann sé að tortíma heiminum eða að vinna honum gagn. Þó svo að upphafleg uppsetning 5G kerfisins sé hugsanlega þétt, þá mun kerfið taka stakkaskiptum með uppfærslum frá framleiðendum, sem í tilfelli Kína, er kommúnistaflokkurinn. Þessu greindi til dæmis Wall Street Journal frá í gær

Bandaríkin hafa bent þýskum stjórnvöldum, sem enn eru varla skriðin inn í hina stafrænu upplýsingaöld, á framleiðendur í Evrópu eins og til dæmis Ericsson og Nokia. Þau hafa ekki bent þeim á til dæmis hið bandaríska Cisco, því þýskum stjórnvöldum er svo illa við Bandaríkin, eða þá vegna þess að Bandaríkin eru á tröppunum með nýja tölvunartækni sem öðrum verður ekki treyst fyrir og sem enn er hernaðarleyndarmál. Það var jú Bandaríkjaher sem fann upp þá stafrænu tækni sem notuð er í dag ásamt internetinu. Hún er kaldastríðsafurð sem öllum varð heimlit að nota um leið og hún hætti að vera hernaðarleyndarmál. Tölvunarrisar heimsins í dag fundu hana ekki upp. Það gerði bandaríski herinn, og líklegt er að það sama muni gilda um orkutækni framtíðar. Það má því gera ráð fyrir því að upplýsingakerfi Schengensvæðisins verði eins og Þýskaland er þegar orðið: eða miðstöð fyrir helstu stríðsglæpamenn heimsins, bæði þá núlifandi sem unnu fyrir ríkisstjórn Adolfs Hitlers kanslara Þýskalands, og svo þeirra sem voru að verki við stríðsglæpi í Mið-Austurlöndum, og fengu í kjölfarið alþjóðlega vernd í Þýskalandi í boði Angelu Merkel, sem þýska blaðið Bild upplýsti í gær að teldu um fimm þúsund stríðsglæapamenn, sem Þýskaland og þar með Schengensvæðið hýsir nú, en sem enginn veit hverjir eru

ÚRSÖGN BANDARÍKJNNA ÚR NATO

Úrsögn Bandaríkjanna úr NATO er mál sem enginn ætti að afneita sem raunverulegum möguleika úr þessu. Fyrir það fyrsta er næstum að verða ógerningur að láta bandalagið sameinast um þau verk sem vinna þarf þegar að vinna þarf þau. Fjölbreytnin í bandalaginu er orðin slík. Og í öðru lagi er varla lengur hægt að segja að Þýskaland sé hernaðarbandalagshæft ríki að neinu leyti. Það er fordæmisgefandi versta land fyrir Evrópu sem hægt er að vinna saman með í varnarbandalagi á borð við NATO, sem kennt er við Norður-Atlantshaf, og sem krefst þess að löndin í bandalaginu séu að minnsta kosti á sömu pólitísku blaðsíðunni. Þýskaland er ekki lengur á sömu pólitísku blaðsíðu og vesturlönd. Og hugsanlega er hægt að segja að landið hafi heldur aldrei verið það

Þá vitið þið það. Upplausn NATO er hugsanleg. Og málið er þess eðlis að það snýst ekki bara um þau helstu núverandi pólitísku ríkishöfuð sem halda um stjórnartaumana beggja megin Atlantsála. Það er dýpra en svo. Bandaríska þjóðin er farin að líta á NATO sem hættulega gildru, sem eykur mannfall þegar til bandalagsins þarf að grípa, meðal annars vegna þess að hælbítar eru innan þess og sem koma í veg fyrir sigur í átökum. Plús það að enginn getur lengur vitað með hverjum land á borð við Þýskaland vinnur, eða ekki. Og þegar grípa þarf til herstyrks NATO þá eru það aðeins Bandaríkin sem hafa bardagakláran her og mannafla til að fara með sigur af hólmi í átökum

Fyrri færsla

Hættulegra að segja nei en að vera ólöglegur í ESB [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hefur það verið uppi á borðum í opinberri umræðu

að að USA gangi úr NATÓ??

Jón Þórhallsson, 12.3.2019 kl. 16:30

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Gunnar. Spurningin er hverjir hafa samning um Keflavíkur flugvöll bandaríkja menn eða NATO.

Það ætti engin með viti að semja við Kína varðandi fjarskipti það er eins og að gefa þeim völdin á allan hátt það er nefnilega ný kynslóð sem er beintengd þessum símum.

Valdimar Samúelsson, 12.3.2019 kl. 17:13

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Jón.

Það fer eftir því hvað þú kallar opinber umræðu.

Þetta hér er til dæmis opinber umræða Jón.

En stutt er síðan að utanríkisráðherra Bandaríkjanna var hér í opinberri heimsókn og sagði okkur að allar þær stofnanir sem Bandaríkin settu á laggirnar og byggðu upp frá og með 1945, og sem eru beinagrindin sem eftirstríðs-heimsskipanin er byggð á, séu í endurskoðun. NATO er slík stofnun. Og ef NATO getur ekki sinnt hlutverki sínu vegna þess að heimurinn sé svo breyttir að það sé ekki hægt, þá er því sjálfhætt og það sama gildir aðrar stofnanir. Þá þarf að byggja nýjar, sem ráða við hlutverk sitt.

Svipuð umræða fer fram í öðrum löndum og hefur alltaf gert - en samt ekki á 2008-nótum.

En nú eru málin hinsvegar með stefnu í spíss, því tímarnir eru svo breyttir. Þeir gjörbreyttust árið 2008 - og einnig 1990 þegar Þýskaland endursameinaðist, og þá breyttist ESB líka og hætti að ráða við Þýskaland innan þess. Og kannski er Þýskaland á leið með að verða einn helsti óvinur NATO. 

Í tilfelli Bandaríkjanna þá er það bandaríska þjóðin sem afhendir Washington stefnumál ríkisstjórnarinnar. Það gerir þýska þjóðin ekki.

Þýska þjóðin getur ekki einu sinni afhent sinni eigin ríkisstjórn sín stefnumál, því hún veit ekki hver þau eru og Þýskaland veit ekki hvað það sjálft er, né hvað landið er að hugsa og hvað það ætlar að verða. Það er orðið pólitískt viðrinis-rekald sem annað hvort er að leysast upp eða herpast saman í nýjan gamlan hnút. Enginn veit hvað Þýskaland er að hugsa. Enginn. Og það er vandamál fyrir alla sem eru eða reyna að vera í samstarfi með því.

Enginn veit hvar landið stendur og með hverjum, og það er ekki í fyrsta skiptið í sögunni að þannig sé ástandið í landinu, og jafnframt á meginlandi Evrópu.

Sem betur fer eru Bandaríkin, Ísland og Bretland eyjur. Ein er risastór, en tvær eru minni. Við erum öðruvísi en meginland Evrópu.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 12.3.2019 kl. 17:18

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Við erum með varnarsamning við Bandaríkin, Valdimar. Um varnir Íslands.

Restin er smáatriði.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.3.2019 kl. 17:20

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar. Anda léttar. :-) Já þetta er alvarans mál í  mínum huga..

Valdimar Samúelsson, 12.3.2019 kl. 18:14

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já þetta er mikið alvörumál. Ekkert smá.

Og óvissa þess eykst, og minnkar ekki.

Áframhaldandi vernd Bandaríkjanna er frumforsendulegt tilvistarmál fyrir okkur.

Í því samhengi er ESB og EES-málið sandkorn í Sahara.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.3.2019 kl. 18:32

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Var ekki háttsettur Bandaríkjamaður hér í haust að skerpa á varnarsamningi þjóðanna.Hitti Guðlaug kampakátan að séð var.Jú mér léttir líka við það.

Helga Kristjánsdóttir, 13.3.2019 kl. 02:44

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Segi sama Helga.

Valdimar Samúelsson, 13.3.2019 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband