Leita í fréttum mbl.is

Svikráðasveitin á Alþingi

Forsætisráðherrann, yfirlýstur siðferðilegur pervert, hyggst flýja til útlanda til að þurfa ekki að hitta varaforseta Bandaríkjanna, sem styður ljós lífsins í stað myrkurs hins svarta kommúnisma Katrínar. Hún er kommúnisti. Hann er ljósvörðurinn, og sitjandi landverndari Íslands. Hún yfirgaf aldrei útópíu Sovétríkjanna. Hann yfirgaf aldrei ljósavélina sem drap á guðlausum Sovétríkjunum og gengur því enn

Utanríkisráðherrann, kannski guðlaus Þór, er styður sótsvartar skoðanir forsætisráðherrans hálfa leið, keppist við útúrsnúninga 24/7 á Alþingi Íslendinga, svo að erlent vald megi sem auðveldast fá völd yfir okkur Íslendingum á ný, sem yfirdrottnari eins og síðast. Hann er nýlendusinni og í stjórnarandstöðu við sjálfan sig

Formaður Sjálfstæðisflokksins, léttkeyptur, drabbandi og nýlendusinni líka, og sem nítt hefur niður flokk sinn í samfellt tíu ár, níðir nú niður það sem tók aldir að byggja upp: lýðveldið Ísland. Af ávöxtunum skuluð þið þekkja hann í stjórnarandstöðunni við sjálfan sig

Innflutt kjöt Framsóknarmanna úldið og ormétið er. Gamla nýlenduherrakjötið, sömu gerðar og síðast, pakkað inn sem uppgjöf hans fyrir stjórnarandstöðunni við sjálfan sig

Það eina sem upp úr stendur á Alþingi Íslendinga virðist vera Miðflokkurinn. Þangað leita því margir í skjól Sigmundar Davíðs

Ekki þarf að lesa langt í Konungabók Gamla testamentisins til þess að sjá hvar í sögunni við erum stödd á eftir Davíð. Viðurstyggð umrótsmanna blasir við augum þeirra er hafa þau opin og skilja

Fyrri færsla

Kudlow: Engin kreppa á leiðinni, heldur nýjar skattalækkanir


Kudlow: Engin kreppa á leiðinni, heldur nýjar skattalækkanir

Bandaríkin - Ísland - Grænland - Taívan

ENGIN KREPPA Á LEIÐINNI, HELDUR NÝJAR SKATTALÆKKANIR

Larry Kudlow forstjóri efnahagsráðunauta Hvíta-húss-ríkisstjórnar Trumps, sagði í gær að engin kreppa sé á leiðinni í Bandaríkjunum (e. no recession) og kynnir um leið áform um enn frekari skattalækkanir sem fjármagnaðar verða meðal annars með því sem kemur inn í tollum á innflutningi frá meðal annars Kína. Allir eru í vinnu sem aldrei fyrr, allir eru á hærri launum, allir kaupa meira og allir hafa það betra; engin kreppa er í aðsigi, segir hann, þvert á móti eru enn frekari skattalækkanir í vændum. Enda rauk smásöluverslun í Bandaríkjunum upp, samkvæmt nýjustu tölum fyrir helgi. Flestum að óvörum

Njáll Ferguson sagnfræðingur segir að enginn hlusti lengur á munkaklaustursmenn seðlabanka og viðurkennir jafnframt að hann sjálfur hafi haft rangt fyrir sér um næstum allt frá og með fyrir brexit --jafnvel frá og með 2008-- og viðurkennir snilli Trumps. Aðeins vitibornir menn kunna að viðurkenna mistök sín

Þegar Ronald Reagan varð forseti Bandaríkjanna árið 1981, þá varð hann strax hrikalega óvinsæll, og var það fyrstu þrjú ár sín á fyrra kjörtímabilinu. Svo óvinsæll var Reagan að New York Times --þá dagblað sæmilega geðhelbrigðra vinstrimanna-- sagði að enginn hefði mælst óvinsælli í Gallupkönnun en Ronald Reagan 1982. Þarna var Reagan að hefja glímuna við Sovétríkin. En svo sprakk hagvöxtur út eins og blóm og fór upp í 8-9 prósentur síðari hluta þriðja árs Reagans sem forseta og hélt áfram á fjórða árinu, kosningaárinu 1984. Þá gáfust margir kjósendur Demókrataflokksins upp og sögðu að þeim væri nákvæmlega sama um hvort Reagan sprengdi heiminn í tætlur eða ekki, þeir myndu þó að minnsta kosti deyja ríkir, og kusu manninn. Fengu þeir nafnið Reagan-demókratar

EN HVAÐ HÖFUM VIÐ HÉR HEIMA!

Hér heima höfum við hins vegar kven- og karlkerlingar öslandi um á sjálfspyntingarkeðjum í suðupotti svartra galdra, sem kalla má ok loftslagsklámiðnaðar eins konar nýs miðstýrðs sovétisma. Svo langt gengur ruglið í þessu sjálfspyntingarliði að það þykist hafa fundið steintöflur sannleikans uppi á Oki hér í Borgarfirði. En þegar betur var að gáð, þá reyndist steintafla sannleika þeirra vera skothelt eintak af Morgunblaðinu frá 1960, (PDF hér). Það verður væntanlega kynnt í bráðnandi Valhöll hálfkommanna þar, sem Moggalygi. Já, Mogginn bráðnar ekki eins létt og Bjarni Ben Icesave-formaður Sjálfstæðisflokksins. Svona er næstum allt þetta lið, blaffrandi og bráðnandi, norður og niður. Og bráðnandi Bjarni Benediktsson, úr sömu Valhöll og Benedikt frændi hans var, hið evra, er bara orðinn aftanívagn án vits og jarðsambands í ríkisstjórn með bjánum. Þetta fólk á íslensku þjóðina alls ekki skilið, ekki frekar en einokunarkompa "Verslunar-þjónustusamtaka" um innflutt esbrusl á hana skilið. Eiga hana ekki skilið sem bestu neytendur í heimi

Það lið dreymir nú blauta drauma um að geta loksins flutt inn sérhönnuð ruslmatvæli frá ESB og selt þjóðinni sem gersemar á uppsprengdu verði. Matvælarusl hefur nefnilega alltaf verið ófáanlegt hér á Íslandi, það hefur alltaf þurft að flytja það inn, því Ísland býður ekki upp á rusl. Hér vex einfaldlega ekki rusl. Ónýtar innfluttar kartöflur sem voru svínafóður voru seldar hér sem mannamatur í vor. Einokunarliðið keypti það sennilega af öskuhaugahaldara í ESB fyrir ekki neitt. Þetta er sama vandamálið í löndum Austur-Evrópu, sem kjarnalönd esb fóðra á þýsku rusli, sem sérhannað er til útflutnings til ESB-landa sem í handjárnuðu gengisfyrirkomulagi eru við það. Þýskt nautakjöt úr gúmmíi var selt hér sem mannamatur um daginn. Það var ekki einu sinni hæft í hakk. Svo lélegt var það að það gat ekki einu sinni brunnið við, svo sérhannað var það. Konan mín keypti það fyrir mistök og gerir það ekki aftur

Á meðan Trump kýlir skattana niður, en hagvöxt, atvinnu og tollana á misnotendur alþjóðakerfisins upp, þá situr okkar góða þjóð hér heima uppi með ríkisstjórn með allt niður um sig. Þjóðin situr varnarlaus og föst í EES-samningi, sem kýlir skattana upp sökum þess að hingað upp flæðir innflutt skattbyrðin inn frá Evrópusambandinu, sem er á hausnum og búið að vera sem lífvænlegur bústaður manna. Enda er Bretland að fara þaðan út. Hingað inn flæða ESB-mjaltavélar sem mjólka íslenska skattgreiðendur, eyðileggja landbúnað okkar og hvers Schengen-vottaður glæðalýður sturtast stjórnlaust hingað inn. Og ofan í allt þetta hyggst ríkisstjórn botnfallsins í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Vinstri grænum, henda fullveldi þjóðarinnar fyrir róða og margfalda hér raforkuverð. Íslensku hitaveiturnar munu fara sömu leið. Enginn kaus þetta fólk til þessara gjörða. Um hrein óheillindi og skemmdarverk er hér að ræða

GRÆNLAND KEYPT ÚT ÚR DÖNSKU ÞROTABÚI?

Donald J. Trump forseti staðfestir nú að Grænland hafi verið rætt í ríkisstjórn hans. Það eitt og sér staðfestir álit mitt sem ég lýsti hér í febrúar, að Bandaríkin vilja að Grænlendingar verði loksins sjálfstæð þjóð í sínu eigin landi og í öruggum höndum. Hve mikið það mun kosta Bandaríkin að kaupa Grænlandi frelsi frá nýlenduherrum þess, er ekki vitað enn. Í þau tæp 30 ár sem ég bjó í Danmörku og fylgdist mjög vel með dönskum stjórnmálum, var Grænland ávallt álitið byrði á Danmörku og talað niður til þess nema á tyllidögum. Það sama gilti um Færeyjar, sem Danske bank þurrkaði tapi sínu á í Færeyjamálinu

Danmörk veldur ekki hlutverki sínu sem nýlenduherra, hvorki á Grænlandi né í Færeyjum. Engan vegin, og sjálf hún Danmörk er heldur ekki fullvalda ríki lengur. Brussel er með fullveldi hennar læst inn í skáp hjá sér. Grænland er því rekald í veraldarhafinu og létt bráð uppkaupsveldis Kínverska kommúnistaflokksins og félaga hans. Hversu hátt Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn upp í áliti þar sem nytsamur kjáni, í gegnum bankaráð kommúnistaflokksins í AIIB, er ekki vitað enn og allra síst veit hann það sjálfur. En þaðan er lítillar aðstoðar að vænta til handa Grænlendingum, því Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er orðinn nýlendusinni sjálfur, ófær um að standa með sinni eigin þjóð í grundvallarmálum og búinn að rústa Sjálfstæðisflokknum

Grænlendingar virðast því miður ekki hafa neitt á borð við hið þjóðbernska afl íslensku þjóðarinnar, sem reif Ísland úr klóm danskra nýlenduhaldara. Þeir þurfa því aðstoð. Hér getum við aðstoðað Bandaríkin við að aðstoða Grænlendinga til fullveldis og sjálfstæðis í sínu eigin landi

ORRUSTUÞOTUR TIL TAÍVAN

Bandaríska forsetaembættið hefur samþykkt sölu á 66 Lockheed Martin F-16V orrustuþotum til ríkisstjórnar Taívans. Varnarmálafréttir segir að þverpólitísk samstaða sé um söluna í bandaríska þinginu og að mánuður sé í að afhendingar geti hafist eftir samþykki beggja málstofa þess. Þar í báðum málstofum eru menn enn harðari gagnvart Kína en Trump forseti. Flestir í heiminum nema í Valhöll eru sammála því sem Trump er að gera þar. En enginn þorði samt að vera fyrstur til að segja það. Valhöll fattar allt síðast, enda á eins konar listamannalaunum hjá íslensku þjóðinni í utanríkismálaranefnd, sem nytsamir kjánar. Varla neinn í þeirri plebbahöll á íslensku þjóðina lengur skilið. Svo mikið er víst

Ísland ætti fyrir löngu að hafa komið sér upp Lofthelgisgæslu með vopnuðum orrustuþotum íslensks varnarliðs, sem gætt gæti loftrýmis okkar í óbilandi bandalagsstreng við Bandaríkin. Allar afsakanir í þeim efnum eru lélegar afsakanir. Slíkt yrði landi okkar öllu mikil lyftistöng og íslensk ungmenni myndu flykkjast þar inn til þjálfunar, lærdóms og starfa. Færri myndu komast að en vildu, svo mikil yrði ásóknin í að fá að þjóna Lýðveldi Íslendinga og ættjörð sinni

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður 

Fyrri færsla

Sovésk miðaldastemming í utanríkis-málanefnd


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sovésk miðaldastemming í utanríkis-málanefnd

Nýlendunefndin nz

Mynd: Fulltrúar stórveldanna rétta í Nýlendunefnd yfir Arnari Þór Jónssyni í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar. Athugið: myndin er umskorin. Á veggmyndina vantar nefnilega Bjarna Benediktsson við hlið fyrirmyndar hans, sem stökk úr 21,7 prósentum niður í 10,9 prósentur á aðeins fjórum árum, og rústaði flokki sínum enn hraðar en Bjarna hefur tekist að rústa sínum. Öll skemmdarverkavon, um að steypa Sjálfstæðisflokknum alveg, er þó ekki úti enn. Bjarni situr þessa dagana útifund AIIB-bankaráðs Kínverska Kommúnistaflokksins. Á myndinni sést Jean-Claude Juncker benda fulltrúum sínum á Miðflokksmanninn

****

Úr frétt Morgunblaðsins: ""Mér finnst mjög al­var­legt að dóm­ari við Héraðsdóm komi og beri á borð fyr­ir ut­an­rík­is­mála­nefnd viðlíka van­traust á lög­gjaf­ar­valdi þjóðar­inn­ar eins og þú [kjósandi] ert að gera hér. Mér finnst þetta móðgun við okkur í þess­ari nefnd, móðgun við kjörna full­trúa þjóðar­inn­ar og ég verð að segja, að ásaka okk­ur kjörna full­trúa um að við séum að fara að fram­selja vald okk­ar í hend­ur er­lendra stofn­ana, að leggja af stað í ferðalag án fyr­ir­heits, um trúnaðarbrest við þjóðina, gervirök, út­úr­snún­ing, ógn við borg­ara­legt frelsi og háska­lega upp­gjöf gagn­vart lög­un­um sem vald­beit­ing­ar­tóli," sagði Rósa Björk og vísaði þar í minn­is­blað sem Arn­ar Þór lagði fram fyr­ir fund­inn."

 

Arnar Þór Jónsson

Mynd: Hinn seki, Arnar Þór Jónsson, íslenskur ríkisborgari

****

Tengt eftirmál

Joðsótt

Mynd: Þegar flugvél forsætisráðherra tók joðsótt. Icesave-braggarnir, gjöf fulltrúa stórveldanna til þjóðarinnar, sjást í bakgrunni. Vélin sem er 12 hreyfla, er af gerðinni Brussel Flying Fortress

Fyrri færsla

Stærsta viðskiptablokk veraldar að fæðast (ekki leynifjélag)


mbl.is „Þetta er bara mjög móðgandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stærsta viðskiptablokk veraldar að fæðast (ekki leynifjélag)

Myndi "markaðsbúskapur" henta Lögreglunni? Nei auðvitað ekki. Og fullvalda ríki lætur heldur ekki raforkumál sín í hendur leynifélags valdamanna annarra ríkja. Lætur þau mál ekki í hendur OPEC leynifélags (Table Ronde) sem á góðri leið er með að myrkva heilt meginland Evrópu á ný. Og heldur ekki Lögregluna, og því síður Landhelgisgæsluna, og alls ekki stjórnmálin, eins og þau því miður á mjög slæmri leið eru með að verða:

Alls ekki stjórnmálin
Alls ekki Lögregluna
Alls ekki Landhelgisgæsluna
Og alls ekki orkumálin, því þau lúta fyrst og fremst tilvistar-strategískum og geópólitískum lögmálum

Bara alls ekki. Kemur ekki til greina!

****

STÓRA-BRETLAND OG BANDARÍKIN

Boris Johnson forætisráðherra Stóra-Bretlands, fjármálaráðherra hans og John Bolton þjóðaröryggisráðgjafi Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta, funduðu saman í Lundúnum í fyrradag um bráðabirgðasamkomulag um frjáls viðskipti landanna á milli. Það er sagt taka gildi þann 1. nóvember 2019, eða daginn eftir að Stóra-Bretland yfirgefur Evrópusambandið, og ná til allra viðskipta landanna á milli. Gefið er til kynna að þetta komandi samstarf Bretlands og Bandaríkjanna verði kynnt á G7-fundi sjö stærstu efnahagsvelda heimsins í Frakklandi, dagana 24.-26. ágúst næstkomandi

Viðskiptablokkin Bandaríkin + Stóra Bretland + Kanada + Mexíkó yrði þar með yfirþyrmandi sú stærsta í veröldinni, með landsframleiðslu er svarar til 24,7 billjónum dala, eða nálægt tvöfalt stærri en Evrópusambandið, eftir að Bretland yfirgefur það. Kína er í dag aðeins þriðja stærsta viðskiptaland Bandaríkjanna á eftir Mexíkó, en færist í fjórða sætið þegar Stóra-Bretland kemur inn sem stærsta einstaka viðskiptaland Bandaríkjanna

Vinsamlegast athugið: Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hoppandi á, situr nú í bankaráði banka Kínverska Kommúnistaflokksins, svo ótrúlega 180-gráðulega sem það hljómar fyrir þá sem ekki eru í leynifélagi hans. En 180-gráður virðast sérgrein leynifélags hans í Sjálfstæðisflokknum: Sjá hér

Ekkert þessara landa hefur þurft að gefa millimetra af fullveldi og sjálfstæði sínu eftir til þess að geta átt viðskipti við hvort annað. Öflugasta þjóðríki mannkynssögunnar, Bandaríkjum Norður-Ameríku, dytti slíkt þjóðníðandi fyrirkomulag aldrei í hug. Það er aðeins á meginlandi taparanna í Evrópu og í Sovétríkjum sem að slíkt tíðkast

Landsframleiðsla Þýskalands dróst saman um 0,1 prósent á 2.fj. þessa árs. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist 0,2 prósent á sama tímabili. Hann er nú 10,5 sinnum minni en í Bandaríkjunum. Hlutabréfin í Deutsche Bank hríðfalla og nálgast núll. Þau standa í 5,90 evrum og hafa fallið úr 112 evrum í maí 2007, eða um 97 prósentur

LEIÐARI MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGINN 26. MAÍ 1944

"Í orðsendingu forseta Bandaríkjanna segir svo:

"Bandaríkin skuldbinda sig ennfremur til að viðurkenna algert frelsi og fullveldi Íslands, og að beita öllum áhrifum sínum við þau ríki, er standa að friðarsamningunum, að loknum núverandi ófriði, til þess að friðarsamningarnir viðurkenni einnig algert frelsi og fullveldi Íslands".

Og í orðsendingu sendiherra Breta í Reykjavík, er hann gaf í fullu umboði bresku ríkisstjórnarinnar, segir svo:

"Bretland lofar að viðurkenna algert frelsi og fullveldi Íslands og að sjá til þess, að ekki verði gengið á rjett þess í friðarsamningunum, nje á nokkurn annan hátt að ófriðnum loknum".

Íslenska þjóðin lítur svo á, að þar sem hún hefir í höndum slíka yfirlýsingu tveggja stærstu og voldugustu stórvelda heims, sje hennar hlutur vel trygður í nútíð og framtíð. Því að áreiðanlega er ekki til sá Íslendingur, sem vantreystir orðum þessara stórvelda." | Krækja (leiðrétt)

Þetta var ómetanlegt fyrir Ísland. Fullveldi og sjálfstæði Íslands varð þar með verjanlegt (e. defensible) vegna bandamanna okkar. Aðeins ömurlegt leynifélag fullt óheillinda varpar slíkri ófáanlegri gersemi okkar fyrir róða. Fullveldi okkar og sjálfstæði er verjanlegt. Við erum þar með ekki bóla á rassi tveggja ríkja meginlands Evrópu, eins og til dæmis Danmörk því miður er núna. Hún er því ekki eins vel sett og Ísland. Stjórnmál lýðveldis okkar sogast því ekki sjálfkrafa inn á hið pólitíska kauphallargólf leynifélags ESB, því við erum ekki þar. Við erum hjér! Aðeins vísvitandi óheillindi gætu gert slíkt mögulegt

Ein mikilvæg breyting var þó gerð. Enga friðarsamninga var sæst á því að Bandaríkin, Bretland og Frakkland höfðu lært sína hörðu lexíu af Fyrri heimsstyrjöldinni. Friðarsamningar komu því ekki til greina. Það eina sem til greina kom var SKILYRÐISLAUS UPPGJÖF að hætti Ulysses S. Grants, hvers spakmæli Mark Twain ávallt bar í sínum vösum - og sem oft var nefndur skilyrðislaus Grant (e. Unconditional Grant). Heillaóskum Grants, var hlegið að í Berlín árið 1871, eins og meistari Gordon A. Craig bendir þarna á

Take that!, leynifélag!

Fyrri færsla

Orkupakkagengi! Hvað með að byrja á þjóðlegu samstarfi [u] 


Orkupakkagengi! Hvað með að byrja á þjóðlegu samstarfi [u]

Allt hjal stuðningsmanna Orkubandalags Evrópusambandsins hér á okkar Íslandi um svo kallaða "alþjóðlega samvinnu" -stöðluð klisja yfir getuleysi á heimavelli- virkar eins og hlátursgas á þá sem horfa til þessa sama fólks þegar að þjóðlegri samvinnu kemur. Já þjóðleg samvinna þar sem kommapartýið AL gildir sem betur fer ekki. En þar, í al-kommapartýinu, átti allt að vera alþjóða-þetta og alþjóða-hitt undir al-þjóðakommúnismanum, sem drepa átti í þjóðum jarðar undir al-þjóðasöng einhvers sem kallað var hinn "al-þjóðlegi verkalýður", en sem hvergi var til. Finna þurfti hann upp. Það mistókst sem betur fer

Þetta al-fólk hefur fundið sér nýjan al-vettvang: EvrópuALsambandið, sem er sambandslaust við þjóðir þess. Þetta fólk sem þykist allt vita best, en gerðir það ekki, er algjörlega ófært um að vinna fyrir og með sinni eigin þjóð. Já bara einni þjóð. Vinna fyrir og með sinni eigin þjóð! Það brestur því á sjálfskiptingu sinni yfir í al-þjóðlegan barnaskap, þegar þeirra eigin þjóð neitar að veita því umboð til að hneppa hana sjálfa í ánauð umboðslauss fjölþjóðlegs yfirríkisvalds. Þetta fólk er nýlendusinnar nútímans. Það vill gera Ísland að nýlendu á ný

Það er enginn munur á Orkubandalagi Evrópusambandsins og á myntbandalagi þess. Bæði krefjast þess að fullveldi sé tekið frá þjóðinni og því dælt yfir til umboðslauss erlends valds. Öll bitastæð vopn þjóðar í báðum málaflokkum hverfa úr landi. Og það sem fyrir er af orkuinnviðum í landinu, verður sett í hendurnar á þið vitið hverjum

Hvað höfum við mátt þola af þvaðri frá þessu fólki í þessu máli núna? Jú þetta hér:

1. Orkupakka-nýlendulið þetta reyndi til að byrja með að selja íslenskum almenningi það að orkupakkar 1+2 hefðu lækkað raforkuverð, sem þeir gerðu ekki. Þvert á móti, þeir hækkuðu raforkuverð og gerðu þjóðinni lífið erfiðara og flóknara. Þeir pakkar minnkuðu skilvirkni og framleiðni og drógu úr hagvexti með því að stafla upp þvaðurfyrirtækjum sem öll eltu eina og sama kílóvattið í kerfinu. Engar framfarir, aðeins afturför. Meiri skriffinnska, meiri þvæla á pari við undirmálslánasölu- og þvæluvafninga bankabólutímabilsins, enda smyglað inn á þjóðina á þeim heilaþvegna galdratíma

Þessir fyrstu tveir pakkar Orkubandalags Evrópusambandsins hafa hvergi gengið upp. Svo illa gekk með þá að esb-elítan sagði til dæmis að danska þjóðin passaði ekki inn í pakkana tvo, vegna þess að sú þjóð neitaði að skipta um gerviveitufyrirtæki nógu oft á hverju ári, og væri því lélegur pakki. Þess vegna eru eru fleiri pakkar, til að kenna þannig pakki loksins á pakkana

Þriðji pakki Orkubandalagsins er hins vegar allt önnur og svæsnari skepna. Hann er yfirríkispakki og gengur sem yfirríkislög þvers og samtengd á landamæri þjóða og breytir því trójanska sem áður var inn komið í nýtt yfirríkisskrímsli, sem tekur völdin og fullveldið í orkumálum af þjóðum, eins og evran tekur fullveldið í peningamálum af þeim þjóðum sem í því bandalagi eru. Markmiðið er að koma í veg fyrir að ríki geti gætt sinna eigin hagsmuna: þau verða nýlendur

2. Svo komu "fyrirvarar" úr eins konar sérfræddu skvettvatni fyrir bjána, sem hellt var yfir og fyrir borð Alþings Íslendinga, þar sem Bjarni Benediktsson hafði flutt þessa hér ræðu sína fyrir ári. Þetta skvettvatn varð til eftir fund með norskum utanríkisráðherra um Orkubandalag Evrópusambandsins, gegn norskri og íslenskri þjóð, vafið inn í heyrúllur

3. Síðan kom "Neytendavernd" í anda Kínverska kommúnistaflokksins, plús "Al-þjóða samvinna". Hreint lágkúrulegt klám

4. Svo kom "Ekkert afsal fullveldis". Enn meira klám úr sömu skúffu

5. Og aðeins fjórum vikum síðar er "Ekkert afsal fullveldis" endurútgefið og skilgreint sem "Takmarkað afsal fullveldis"

- en sem í reynd er ótakmarkað og fyrirvaralaust afsal á fullveldi íslensku þjóðarinnar, um aldur og ævi, nema að EES sé öllu sagt upp, eins og það leggur sig. Sá samningur hefði aldrei fengist staðfestur af okkar hálfu, hefðu þessi vinnubrögð verið kynnt þjóðinni þá. Ætlast var til að hann yrði notaður eins og hann var gerður til að hafna svona alræði; senda það til baka til föðurhúsanna

Maður hefur aldrei séð aðra eins lygaherferð vesalinga, nema þá helst í icesavemálinu. Þetta lið hefur engu gleymt og ekkert lært

Fumskyldur íslenskra stjórnmálamanna eru þessar:

1. Að verja stjórnarskrá Íslands

2. Að verja eigur þjóðarinnar

3. Að verja líf, limi og eigur borgaranna

Þjóðin á allt það sem þið eru að reyna að svíkja úr hennar höndum. Hún á það allt. Hún og forfeður hennar byggðu það upp, með berum höndum

Uppfært, miðvikudagur, 14. ágúst 2019 kl. 16:41

STÓRA-BRETLAND OG BANDARÍKIN

Boris Johnson forætisráðherra Stóra-Bretlands, fjármálaráðherra hans og John Bolton þjóðaröryggisráðgjafi Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta, funduðu saman í Lundúnum í gær um bráðabirgðasamkomulag um frjáls viðskipti landanna á milli. Það er sagt taka gildi þann 1. nóvember eða daginn eftir að Stóra-Bretland yfirgefur Evrópusambandið, og ná til allra viðskipta landanna á milli. Gefið er til kynna að þetta komandi samstarf Bretlands og Bandaríkjanna verði kynnt á G7-fundi sjö stærstu efnahagsvelda heimsins í Frakklandi, dagana 24.-26. ágúst næstkomandi

Viðskiptablokkin Bandaríkin + Stóra Bretland + Kanada + Mexíkó yrði þar með yfirþyrmandi sú stærsta í veröldinni, með landsframleiðslu er svarar til 24,7 billjón dala, eða nálægt tvöfalt stærra en Evrópusambandið eftir að Bretland yfirgefur það. Kína er í dag aðeins þriðja stærsta viðskiptaland Bandaríkjanna á eftir Mexíkó og færist í fjórða sætið þegar Stóra-Bretland kemur inn sem stærsta einstaka viðskiptaland Bandaríkjanna. Ekkert þessara landa hefur þurft að gefa millimetra af fullveldi og sjálfstæði sínu eftir til þess að geta átt viðskipti við hvort annað. Öflugasta þjóðríki mannkynssögunnar, Bandaríkjum Norður-Ameríku, dytti slíkt þjóðníðandi fyrirkomulag aldrei í hug. Það er aðeins á meginlandi taparanna í Evrópu og í Sovétríkjum sem slíkt tíðkast

Landsframleiðsla Þýskalands dróst saman um 0,1 prósent á 2.fj. þessa árs. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist 0,2 prósent á sama tímabili. Hann er nú 10,5 sinnum minni en í Bandaríkjunum. Hlutabréfin í Deutsche Bank hríðfalla og nálgast núll. Þau standa í 6,04 evrum og hafa fallið úr 112 evrum í maí 2007, eða um 96 prósentur

Fyrri færsla

Alkunna er.. Ljóst er.. segir Björn Bjarna


Alkunna er.. Ljóst er.. segir Björn Bjarna

Þurrfóðurverksmiðja Sjálfstæðisflokksins um þessar mundir, Björn ESB Bjarnason, sem virðist orðinn eins konar Jón Frímann í fullorðinsstærð, stígur ekki lengur í vitið sem hann hafði, heldur er hann kominn í vítið sem hann varast ætti. Hann gerir lítið úr því að kallað er eftir frestun voðaverka

Þegar sjálfsmorðskandídatar sem eftir nokkuð langt líf hugleysis og uppgjafar loksins taka sig á og ætla að reisa sér minnisvarða í því lífi sínu, með því að rústa einhverju og kála sjálfum sér svo á eftir, þá gildir auðvitað það eitt að reyna að tala um fyrir þeim og fá þá til að slá fyrirætlunum sínum á frest þar til hið skyndilega, löðurmannlega og tortímandi hugrekki rennur af þeim

Við erum hér að tala um formann Sjálfstæðisflokksins sem staðráðinn er í að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn enn meira en hann þegar hefur gert. Því ætti hann að fresta. Við erum sem sé í hugum margra Sjálfstæðismanna stödd þar. Börnum er hægt að bjarga með því að fá þau til að hugsa sig um. Fyrir ári síðan hafði formaðurinn þveröfuga skoðun við þá sem hann þykist hafa í dag; þessa hér

Ekki veit ég hvað komið hefur fyrir Björn Bjarnason, nema þá það að hann hafi villt svona kyrfilega á sér heimildir svona lengi. En kannski hefur einhver eitrað fyrir þeim frændum. Það dettur manni helst í hug. Eru kannski Rússar með í þessu spili þeirra. Eru Rússar nokkuð hér að verki? Ég spyr, því halda mætti að forysta Sjálfstæðisflokksins sæti fjárkúgun, slík er u-beygja hennar

Undirskriftasöfnun meðal Sjálfstæðismanna sem alla ævi hafa fylgt forystunni gengur vel. Þar sér maður menn sem engum hefði dottið í hug að myndu skrifa undir og hverra fjölskylda sagði að slíkt kæmi aldrei til greina. En þeir gera það samt. Svo annt er þeim um landið sitt Ísland. Það er stærra en flokksforystan. Óendanlega stærra

Slefandi og áttavillt dekurbörn eiga ekki að fá að rústa því sem tekið hefur Íslendinga aldir að byggja upp

MIÐFLOKKURINN

Þess vegna blæs Miðflokkurinn til þverpólitískra funda um yfirríkispakka Orkubandalags Evrópusambandsins, sem þjóðþing landa, og þar með EINNIG Alþingi Íslendinga, mega ekki hefta sé því einu sinni kyngt. Stórum hluta fullveldis þjóðarinnar yrði þar með varpað fyrir róða, engum til gagns en öllum til ógagns:

Frummælendur verða:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra

Frosti Sigurjónsson fv. þingmaður Framsóknarflokksins

Styrmir Gunnarsson fv. ritstjóri Morgunblaðsins

Ingibjörg Sverrisdóttir ferðamálafrömuður

Ögmundur Jónasson fv. innanríkisráðherra og formaður BSRB

Fyrri færsla

Orkubandalag Brussels: ACER mun kynna nýjar valdakröfur sínar þann 1. september 2019


Orkubandalag Brussels: ACER mun kynna nýjar valdakröfur sínar þann 1. september 2019

The Illustrated Road to Serfdom Planners

Leiðin til ánauðar kynnt á "opnum fundi"

****

Standard og Poors skrifar að ACER-yfirríkisvaldið sem sjá á um að 10-ára orkuáætlun Evrópusambandsins sé framkvæmd eins og sambandinu einu sýnist -samkvæmt vér einir vitum- muni kynna nýjar valdakröfur sínar þann 1. september 2019. Sennilega Morten Helveg Petersen til mikils léttis, en honum tókst þegar í mars á þessu ári að "koma í veg fyrir að sérhagsmunir þjóða" fái nokkru ráðið í Orkubandalagi Evrópusambandsins (lesist: litlu þjóðirnar). Frjálst flæði raforku yfir landamæri landa innan orkubandalagsins mega þjóðþing landa ekki hefta. Hús fjötranna styrkist. Guð blessi hógvær Sovétríkin sem létu sér nægja 5-ára áætlanir og 45-ára hersetu

Í mars á þessu ári samþykkti "þingið" sem Evrópusambandið í Brussel er með á sínum snærum og sem hefur ekki tillögurétt, en er samt yfirríkisstofnun, nýjar valdaheimilir til handa ACER sem enginn virðist hafa minnst á hér á landi, og sérstaklega ekki Leynifélagið þingflokkurinn í Sjálfstæðisflokknum sem var

Hverju skyldi það sæta?

En fyrstu þvinguðu tengingarnar á milli landa með valdaheimildunum frá 26. mars 2019 eru þegar að komast til framkvæmda, sem þvinguð opnun fyrir rafstraum á milli Jótlands og Þýskalands. Hún þvingar TennetT til að opna fyrir rafstraum á milli Jótlands og Þýskalands þegar á þessu ári

Öllu þessu er afar auðvelt að þrýsta og þvinga í gegn undir formerkjum um komandi vá af einu eða öðru tagi, eins og alltaf í langri sögu nytsamra kjána. Vísað er til váar eins og allir einræðisherrar sögunnar hafa alltaf notað sér í hag. Gerir þú ekki þetta þá förumst við. Þú verður að samþykkja. Og leiðin til ánauðar opnast

Í dag er það loftslagsklámiðnaðurinn sem er með eignarréttinn á næsta heimsendi. Danska veðurstofan mátti hafa sig alla við að afneita föllnu hitameti á Grænlandi í síðustu viku. En enginn tekur auðvitað eftir því

Á sama tíma berast fréttir af velheppnaðri sölu hlutabréfa í vangefinni Grétu Thunberg, þar sem miklu fé hefur verið rakað inn. Al Gore má fara að verja tekjumet sitt í heimsendasölu

Hvað gerir Leynifélagið þingflokkurinn í Sjálfstæðisflokknum án flokks næst?

Fyrri færsla

Hefur Bjarni Ben skrifað Ísland inn í nýjan nasistaflokk?


Hefur Bjarni Ben skrifað Ísland inn í nýjan nasistaflokk?

MISFÓSTRIÐ AIIB INNVIÐA-FJÁRFESTINGARBANKI ASÍU

Andrew Hastie þingmaður frjálslyndra og forseti upplýsingaþjónustu-nefndar ástralska þingsins, líkir Kína við ris og útbreiðslu nasisma á 20. öld. Hann segir að þegar að Ástralíu kemur, þá hafi henni eins og Frakklandi á 20. öld mistekist að horfast í augu við hið sanna eðli þess stjórnarfars sem nasisminn er. Það að mistakast að horfast í augu við og stöðva útbreiðslu kínverskra áhrifa er á pari við að hafa mistekist að hefta útbreiðslu nasisma á sínum tíma. Ástralíu hefur mistekist að koma auga á áhrif kínverska kommúnistaflokksins í innviðafjárfestingum í Asíu á svipaðan hátt og Vesturlönd lokuðu augunum fyrir ásetningi Jósefs Stalín og kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Okkur hefur mistekist við að koma auga á hversu hreyfanleg alræðisstjórnin í nágrenni okkar er orðin: |Breitbart|ABC|DW|

Sem sagt; Bjarni Benediktsson hefur meldað Ísland inn í nýtt helvíti á jörð. Það var svo sem honum líkt. Enda um fullvaxið smábarn að ræða sem tekist hefur að búa til litla flokksholu úr sófapullum, humar-hummi, metoo-gaggi og umhverfismálaklámi í höll þeirra sem kalla sig "þingflokk" Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra þann 1. júlí 2015, þvert á aðvaranir dýpsta og eina raunverulega bandamanns okkar, Bandaríkjanna:

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum [jáh bara sí svona, thi hi], þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með," sagði hann í samtali við Morgunblaðið"

Evrópusambandið, Rússland og Kína er pólitísk þrenna hins gamla heims á landmassa EvrAsíu. Þar breytist aldrei neitt. Þeim tekst aðeins að villa á sér heimildir í vissan tíma, þar sem nytsamir kjánar eins og Bjarni Ben hoppa um borð. En svo fellur gríman alltaf og hinn og nakti sannleikur tekur við

Íslendingar og hið nýja lýðveldi okkar Ísland, á betra skilið en raðbilaða kjána af þessu tagi. Þeir geta kostað þjóðir allt

Fyrri færsla

Trump skiptir um bleyju á Angelu Merkel


Trump skiptir um bleyju á Angelu Merkel

Burr vs Brennan

Þið munið þegar að esb-svellbunkinn í Sjálfstæðisflokknum --þið vitið, þar sem esb-menn þess flokks falla ólæknandi hvor um annan, aftur og aftur-- sagði að Angela Merkel væri leiðtogi hins frjálsa heims af því að Donald Trump forseti Bandaríkjanna væri svo vondur að rukka einkum Þýskaland, sem er með stærsta viðskiptahagnað veraldar, um NATO-áskriftargjöldin sín. Já þið munið einnig xD-fólkið á esb-svellinu sem lapti upplýsingafölsun CNN-veldisins um að Brennan fráfarandi forstjóri CIA --sem sagði að Trump forseti Bandaríkjanna væri allt að því landráðamaður-- var sviptur öryggisheimildum sínum (1,4 milljónir Bandaríkjamanna hafa þær er varðar ríkisleyndarmál og 4,3 milljónir hafa þær á lægri stigum) og hefði fyrir þau ummæli verið sviptur "öryggisheimildum", sem þýddi að Trump væri að "þagga niður í" andstæðingum sínum, eins og einræðisherra, og væri að "flokksvæða" þær, eins og Björn ESB Bjarnason sagði saklausum Íslendingum frá - ásamt því að Robert Mueller væri að "hreinsa út í Washington" á meðan það var alveg öfugt: Muellert gæti verið á leið í spjældet, þar sem kumpánar Brennan eru að staflast upp

Sannleikurinn var hins vegar sá að Brennan hafði ítrekað logið að bandaríska þinginu og það var Richard Burr forseti upplýsingaþjónustunefndar bandaríska þingsins sem svipti hann þeim heimildum, með því að beina því máli til forsetaembættisins, því Brennan-maðurinn var greinilega orðin lygari geðbilaður af hatri og sem ekki var lengur unnt að stóla á

En hvað um það. Þá er komið að bleyjuskiptunum á Angelu Merkel "leiðtoga hins frjálsa heims"; eins og esb-blaðamenn allra landa (nýlendusinnar) sögðu að hún væri þegar Trump tók upp á því sem enginn hafði þorað að gera; að rukka hana og taglhnýtinga Þýskalans í ESB, sem herma eftir henni, um verndaráskriftina að NATO, sem Þýskaland vísvitandi er að reyna að rústa innanfrá

En "leiðtogi hins frjálsa heims" er Merkel auðvitað ekki frekar en esb-bófar eru "neytendavernd". Hún er miklu frekar leiðtogi hins ófrjálsa heims sem í vændum væri, réði hún nokkru sem helst um þann hluta veraldar. Það er nefnilega svo að Trump og Bandaríkin, sem hún og flest allir kanslarar Þýskalans frá 1871 hafa fyrirlitið og hatað, stendur nú næstum einhentur í því þarfaverki að vernda og halda alþjóðlegum siglingarleiðum um Hormuzsund opnum svo að Þýskaland geti nú fengið olíuna sína, og siglt útflutningi sínum heim til Kína þar sem Bjarni Ben situr í bankastjórn

Stærsti hluti olíuflutninga heimsins á sjó verða að fara um flöskuháls Hormuzsunds, eða í kringum 18 til 20 milljónir tunna á dag, og stór hluti þeirra fer áfram til Kína um flöskuhálsinn Malakkasund. Til samanburðar má líta á olíuflutninga um flöskuhálsinn Eystrasalt, sem eru 3,2 milljónir tunna á dag. En þar nýtur meginland Evrópu samt góðs af rúmlega 5000 kílómetra NATO-leiðslu Bandaríkjanna um meginlandið, sem sér stærstum hluta borgaralegrar flugumferðar fyrir flugvélaeldsneyti, sem dælt er áfram til þeirra frá ströndum Atlantshafsins og Miðjarðarhafs. Þegar þú flýgur frá meginlandi Evrópu þá flýgur þú mjög líklega á eldsneyti úr NATO-leiðslum Bandaríkjanna og birgðakerfi þess

Trump og Bandaríkin þurfa ekki á þessari olíu sem fer um Hormuzsund að halda, því þau eru orðin sjálfum sér næg í þeim efnum, og gott betur en það. Og það sem meira er, Þýskaland hefur neitað að senda skip á staðinn til verndar þýskum hagsmunum. Já, neitað því! og þar með afvísað beinni beiðni Bandaríkjanna um slíkt. Það var bara hlegið og púað á beiðni Bandaríkjanna í gúmmíþingi þýska nýlenduveldisins. Þetta er ekki að gerast í túnfæti Bandaríkjanna, heldur í túnfæti Þýskalands, eins helsta leiðtoga hins ófrjálsa heims

Bandaríkin sjálf myndu stórgræða á lokun Hormuzsunds, því olíu og gasútflutningur þeirra er orðinn það mikill. En sem sagt; eins og leiðari Wall Street Journal segir um málið:

"Europe claims it cant rely on the U.S., but look who is protecting ships" | WSJ

Þvaðurveldi ESB- og nýlendufjölmiðla Vesturlanda skyldi helst enginn trúa né taka alvarlega, og síst eins alvarlega og nýlenduforysta Valhallar gerir á staðnum vonda þar sem svellbunkinn er. Hann er það eina sem aldrei virðist bráðna í umhverfismálaklámflokki ríkisstjórnarflokkanna

Fyrri færsla

Bjarni trúir á landamæri, en bara ekki á landamæri Íslands


Bjarni trúir á landamæri, en bara ekki á landamæri Íslands

Það var eins og við manninn mælt, að í þau örfáu skipti sem formaður Sjálfstæðisflokksins opnar munninn, þá er enginn neinu nær um það hvaða skoðanir hann hefur á neinu. Sennilega hefur hann aðeins þá skoðun sem embættismenn segja honum að hafa, eða ættin

Samkvæmt fljúgandi Bjarna í fljúgandi kvöldfréttum DDRÚV um Íslandssölu til útlendinga í kvöld, þá trúir hann á landamæri. Hann trúir á að til sé úti í heimi svæði sem heitir "EES-svæðið", og að innan þess sé allt öruggt og gott. Hann trúir sem sagt ekki á landamæri Íslands. En þar, og einungis þar, hefur hann sjálfur lögsögu og umboð til að vinna landi okkar gagn, en ekki það ógagn sem hann er að vinna landi okkar og þjóð með pökkum Orkubandalags Evrópusambandsins, sem er innpökkuð ófreskja, svo ekki sé minnst á alla hina pakkana sem hann hefur fallið flatur fyrir eins og að raðbilaður væri

Bjarni hefur ítrekað lýst yfir vantrausti á íslensku þjóðinni og hann hefur ítrekað brugðist henni. En í kvöld brást hann einmitt við á þann ömurlega hátt sem hann hefur rústað Sjálfstæðisflokknum sem íslensku stjórnmálaafli með. Þarna er áfram ekkert, og því enga hjálp fyrir þjóðina að sækja, eins og í Icesave

Enginn hefur lengur stjórn á því hvað er á "EES-svæðinu". Landamæri þess virka auðvitað ekki, því þau eru ekki til. Og embættismanna-stjórnmálamenn þess hafa því eyðilagt líf borganna á því. Það skrifaði einmitt stærsti fjölmiðill Þýskalands um í síðustu viku. Stjórnmálamenn felldu niður þýska landamæravörslu, settu ónýtt Schengenkerfi í staðinn og það virkrar ekki hið minnsta og fólk missir lífið. Þeir hafa brugðist þýsku þjóðinni segir Bild

"Evrópusambandið afskaffaði landamæravörslu Þýskalands með Schengenfyrirkomulaginu án þess að setja á virka vernd í staðinn á ytri landamærum þess, eins og lofað var, og án þess að tryggja að gögnum og upplýsingum sé deilt meðal ríkjanna svo að lögreglulið landanna viti hvað þau eru að glíma við. [..] Það verður að vera algjört forgangsverk Angleu Merkel að breyta þessu loksins." Bild

Fyrri færsla

Aska Sjálfstæðisflokksins fýkur fyrir björg. Sumarhúsasala Björns Bjarnasonar


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband