Leita í fréttum mbl.is

Heimsókn Pompeo: Íslandi sett nýtt hlutverk og mikilvægi

Er virkilega enginn nema ég sem kem auga á hvaða grundvallarbreyting er að verða á mikilvægi Íslands í gagnkvæmu bandalagi okkar og Bandaríkjanna. Af hverju kom utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands?

Jú staðan er þannig að mörg rauð ljós vegna Norður-Atlantshafs og Íshafsins hafa í nokkur ár blikkað í mælaborði Hvíta hússins. Trump forseti sópaði gáfumannaskýrslunum ofan af þeim þegar hann kom inn, og hófst handa. Rauð ljós eru rauð ljós og þau á að taka alvarlega

Þau eru, ásamt öðrum, þessi: Grænland er á höndum ríkis sem ræður ekki við það sem geópólitíska einingu í veraldarhafinu. Það er á höndum Danmerkur, og Danmörk er í ESB og ræður ekki miklu um sín mál. Grænland er einnig á höndum Danmerkur sem verandi barn þess. Þessu barni getur Danmörk ekki sinnt því hún hefur hvorki pólitískan vilja til þess, né þau auðæfi sem þarf til að vernda það gegn slæmum ölfum í heiminum, né að skaffa því örugga og farsæla framtíð. Það geta einungis Grænlendingar gert sjálfir. En til þess þurfa mikilvægar breytingar að eiga sér stað fyrst:

Mike Pompeo kom til Íslands til að hefja það verk í samvinnu með Íslandi að leiða Grænland til sjálfstæðis sem fullvalda ríki. Við eigum að taka á okkur aðstoðarhlutverk í svipuðu ferli og við sjálf fórum í þegar að Bandaríkin studdu okkur til þess að verða sjálfstætt ríki

Bandaríkin eru byggð á Biblíunni og hún segir að enginn megi vera konungur/forseti yfir öðrum þjóðum. Bara sinni eigin þjóð. Þetta er frumregla sem enginn ætti að hunsa að ástæðulausu. Á því græddum við 1944. Og nú er það hlutverk Íslands að endurgjalda Bandaríkjunum þann greiða, með því að aðstoða þau við að frelsa Grænland úr festum við danska konungsríkið, svo að Bandaríkin geti í samvinnu með Íslendingum veitt Grænlandi sömu aðstoð og þau veittu okkur á leið okkar til sjálfstæðis og á fyrstu áratugum þess þar á eftir

Þess vegna sendi Donald Trump sinn æðsta diplómat til Íslands til að hefja þetta ferli

Við getum ekki sagt nei og við ættum ekki að segja nei. Við getum þetta og við erum siðferðilega skyldug til að segja já. Erum við klár? Já, saman með dýpsta bandamanni okkar: Bandaríkjum Norður-Ameríku

Bandaríkin þola ekki lengur kæruleysislegan umgang Danmerkur með Grænland. Lönd á ekki að láta reka ábyrgðarlaust um veraldarhafið. Þrír flugvellir sem næstum því komust á kínverskar hendur í Grænlandi var mjög svo ergilegt símtal sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna kæruleysis danskra stjórnvalda, var þvingaður til að hringja (Sjá grein WSJ 10. febrúar 2019). Of seint er að koma kínversku málmasamsteypunni Shenghe Resources Holding út úr Grænlandi, en margt annað er sennilega hægt að stöðva

Og þar sem til dæmis fyrrverandi Frankfurt-Hahn herflugvöllur Bandaríkjanna í Þýskalandi er með samþykki þýskra stjórnvalda kominn í 82,5 prósent eigu hins kínverska HNA Airport Group, þá er vel vitað hversu hörmulega ábyrgðarlaus yfirvöld landa Evrópusambandsins eru þegar að þjóðaröryggi kemur, þar sem Þýskaland ríður ávallt á vaðið sem kærulaus leiðtogi útópíu á framfærslu Bandaríkjanna í öryggismálum, sem það misnotar á hinn grófasta hátt. Og löndin sem eru á ESB-sporbraut umhverfis Þýskaland, fylgja sjálfkrafa slæmri fyrirmynd þess

Grænland er í túnfæti Bandaríkjanna og Kanada. Það verður tekið á málunum. Innganginum inn í Norður-Ameríku verður lokað, hvað sem það kostar og hvernig sem hann hugsanlega gæti orðið. Þjóðaröryggisstefna byggir alltaf á því versta sem getur gerst. Annars væri hún þjóðaróöryggisefna

Kannski sástu þetta fyrst hér

Fyrri færsla

Nei. Við ætlum okkur ekki að brenna inni í ESB og EES


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Flott Gunnar ég hef ekki heldur skilið þetta kæruleysi með Grænland. Ekki bara Danirnir heldur Kanarnir sjálfir yfir árin horfandi á Kínamenn troðandi sér inn og voru um það bil að leggja Grænland undir sig og svo Núbó hér með stefnu að byggja hvíldarborg sem engin skildi né setti í samband við námareksturinn þar. Finna höfn það er eins og fólk gangi ekki á öllum einskonar sombie contry. Jú rétt ég svarað einum í dag og sagði nú erum við kannski komnir með hlutverk í þessu spili Trumps. Þú svaraðir því og nú veit ég að það er að hjálpa Grænlendingum. Þakka Gunnar fyrir svarið. :-)  

Valdimar Samúelsson, 16.2.2019 kl. 23:28

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar.

Kalda stríðið er búið og hin grænlenska saga þess. Hún er liðin saga líka.

Heimurinn er kominn í re-config enduruppsetningarfasa og þetta er ein birtingarmynd þess. Þar rísa lönd eða falla.

Grænland er núna á danska örorkupakka-3, og öllum er ljóst að hann slekkur frekar grænlensku ljósin en að tendra þau. Grænlendingar vita það vel.

Örorkupakki-4 myndi drepa þá út.

Kveðja 

Gunnar Rögnvaldsson, 16.2.2019 kl. 23:43

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar þessvegna gæti ég sé Island sem link milli BNA og Grænlands. Einskonar höfuðstöðvar Grænlands á þeim sviðum (alþjóðasviðum)  

Valdimar Samúelsson, 17.2.2019 kl. 10:46

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar

Það eru átta ríki í Norðurheimskautsráðinu. En aðeins fimm þeirra eiga landamæri upp að Íshafinu. Bandaríkin, Kanada, Danmörk/Grænland, Noregur og Rússland. Við erum hinsvegar á mörkunum og erum að minnsta kosti strandríki þar (littoral). Ef Grænland verður sjálfstætt ríki þá verða ítök ESB að minnsta kosti engin, og því pólitískt einfaldara sem Íshafið er, því betra. Þetta er minnsta úthaf heimsins, en ef horft er á það með þeim augum sem horft er á Miðjarðarhafið, sem er fimm sinnum minna, þá er Íshafið ekki bara síki sem aðskilur heimsálfur, heldur gæti það orðið umferðaræð sem barist verður um völdin yfir, í þeim skilningi að þeir sem þar verða hið ráðandi afl, ræður um leið því hver fær og hver fær ekki að ráðast sjóleiðina inn í þau ríki sem að þessu hafi liggja. Um það snýst geopólitískur máttur flotavelda.

Varnarmálaséð eru ítök ESB-ríkja næstum engin á þeim átakalínum sem eru á sjálfu meginlandi Evrópu núna. ESB-ríkin hafa ekkert gert þar til að tryggja öryggi Austur-Evrópu. Það eru Bandaríkin með Trump sem forseta sem tyggja öryggi Austur-Evrópu. Aðeins Bandaríkin hafa gert eitthvað þar. Þau er stór í Póllandi og eru að byggja herstöð í Rúmeníu fyrir flugherinn og þau eru komin inn á Svartahaf. Bandaríkin geta ekki lengur treyst á hvaða NATO ríki ESB eru að vinna með Rússum eða ekki. Bandaríkin eru einnig farin að líta á NATO sem hættulega gildru sem seinkar þeim í viðbragðsflýti, sem kosta mun þau fjölda bandarískra mannslífa, þegar kallið kemur. Þau vita að ef Rússland lætur til skarar skríða í AE, að þá eru það Bandaríkin ein sem hafa hernaðargetuna og hinn pólitíska mátt til að mæta því. Evrópa flækist bara fyrir, seinkar öllu og eru Bandaríkin því farin að líta á NATO sem gildru sem drepur bandaríska hermenn með því að virka eins og skrifstofubákn.

Bandaríkin eru því að reyna byggja upp nýjan bandamanna-strúktúr sem virkar. Þau munu láta NATO í friði og borga áfram fyrir kvöldverðarsett Evrópusambandslanda þar og halda því á sama apastiginu og Sameinuðu þjóðunum, sem fá að vera í friði því sú stofnun virkar ekki og getur aldrei virkað nema sem kjaftaklúbbur þar sem gáfumannaliði heims er haldið uppteknu við franskar með tómatsósu, sem er betra en að hafa það annars staðar sem máli skiptir.

Það er því best fyrir alla að Evrópa haldi sig fyrir utan eldhúsið sem það þolir hvorki hitann í né hefur getu til að standa þar upprétt. Einnig verður að líta til þess að sérhver opnun Íshafsins fyrir umferð um það, opnar nýjar hættur fyrir Rússland sem ógna áður öruggu svæði þess í norðri, fái hvaða fífl sem er að ferðast þar um með sitt drasl. Þar er góður snertiflötur fyrir gagnkvæma samvinnu Bandaríkjanna og Rússlands.

Íshafið þarf ekki á evrópskri lömunarveiki að halda. Það þarf tvo til þrjá hliðverði sem sjá um það. Sem sjá um hvað fer inn og hvað kemst út. Bandaríkin þurfa á öflugu Grænlandi að halda, og Grænland þarf á öflugu Íslandi og Bandaríkjunum að halda. Það þarf ekki fleiri evrópska örorkupakka.  Því þeir drepa bara þjóðir og slátra efnahag landa. Evrópa er best komin þar sem hún er í Brussel við að kála sjálfri sér. Á meðan hún gerir það, þá kálar hún ekki öðrum.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.2.2019 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband