Leita í fréttum mbl.is

Hefur Bjarni Ben skrifað Ísland inn í nýjan nasistaflokk?

MISFÓSTRIÐ AIIB INNVIÐA-FJÁRFESTINGARBANKI ASÍU

Andrew Hastie þingmaður frjálslyndra og forseti upplýsingaþjónustu-nefndar ástralska þingsins, líkir Kína við ris og útbreiðslu nasisma á 20. öld. Hann segir að þegar að Ástralíu kemur, þá hafi henni eins og Frakklandi á 20. öld mistekist að horfast í augu við hið sanna eðli þess stjórnarfars sem nasisminn er. Það að mistakast að horfast í augu við og stöðva útbreiðslu kínverskra áhrifa er á pari við að hafa mistekist að hefta útbreiðslu nasisma á sínum tíma. Ástralíu hefur mistekist að koma auga á áhrif kínverska kommúnistaflokksins í innviðafjárfestingum í Asíu á svipaðan hátt og Vesturlönd lokuðu augunum fyrir ásetningi Jósefs Stalín og kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Okkur hefur mistekist við að koma auga á hversu hreyfanleg alræðisstjórnin í nágrenni okkar er orðin: |Breitbart|ABC|DW|

Sem sagt; Bjarni Benediktsson hefur meldað Ísland inn í nýtt helvíti á jörð. Það var svo sem honum líkt. Enda um fullvaxið smábarn að ræða sem tekist hefur að búa til litla flokksholu úr sófapullum, humar-hummi, metoo-gaggi og umhverfismálaklámi í höll þeirra sem kalla sig "þingflokk" Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra þann 1. júlí 2015, þvert á aðvaranir dýpsta og eina raunverulega bandamanns okkar, Bandaríkjanna:

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum [jáh bara sí svona, thi hi], þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með," sagði hann í samtali við Morgunblaðið"

Evrópusambandið, Rússland og Kína er pólitísk þrenna hins gamla heims á landmassa EvrAsíu. Þar breytist aldrei neitt. Þeim tekst aðeins að villa á sér heimildir í vissan tíma, þar sem nytsamir kjánar eins og Bjarni Ben hoppa um borð. En svo fellur gríman alltaf og hinn og nakti sannleikur tekur við

Íslendingar og hið nýja lýðveldi okkar Ísland, á betra skilið en raðbilaða kjána af þessu tagi. Þeir geta kostað þjóðir allt

Fyrri færsla

Trump skiptir um bleyju á Angelu Merkel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Margir sagnfræðingar hafa fært sterk rök fyrir því að það hafi að lokum verið orkuskortur sem stöðvaði drápsvél þýsku nasistanna.

Í því ljósi er nöturlegt að verða vitni að því hvar í lið núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins ætlar að skipa sér.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 14:37

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Göring sagði við Hitler: "Á meðan Bandamenn há velknúið stríð þá heyjum við grasstríð, mein Fuhrer".

Bjáninn Hitler keypti af bræðrum sínum í Moskvu jafn mikið magn af hráefnum og olíu á mánuði eins og það tók hann marga mánuði að ræna frá þeim með hertöku. Og á meðan Stalín gagnrýndi Winston fyrir að opna ekki "aðrar vígstöðvar" þá var Lutfwaffe Hitlers að nota olíu Stalíns til að kveikja í breskum borgum og slátra breskum almenningi.

En eitt er víst. Raðdómgreindarskertur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefði getað skipað sér í hóp okkar sjálfstæðismanna með því að afþakka aðildina að kínverska misfóstrinu AIIB og sýna þannig okkur og heiminum að þar færu ekki kjánar og læmingjar sturtandi sjálfum sér fyrir björg.

Bjarni hefur ekki minnstu hugmynd um hvað hann er að gera Íslandi með pökkum Orkubandalags Evrópusambandsins. Ekki minnstu hugmynd!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2019 kl. 15:36

3 identicon

Það er skelfilegt til þess að hugsa að svarið sé

Já 

við spurningunni sem felst í fyrirsögn pistilsins.

Hreint út sagt skelfilegt hvernig komið er fyrir Sjálfstæðisflokknum.

Þar fer allt hið versta saman, hroki, dómgreindarleysi og gæsagangs raðsturlun forystu og þingmanna flokksins.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 15:58

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

1. Á Alþingi sagði Bjarni í mars í fyrra að:

"Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innrimarkaðsmál" [ESB]. Sjá hér.

2. Síðan þetta var, eða 12 mánuðum síðar, hefur nýr vagn sem var að "loka stofnskrá" ekið hjá og Bjarni stokkið á hann að ráði ættarvitans.

Manni verður óglatt!

3. Þingflokkur læmingja í flokknum ákveður svo að stökkva með eftir að hafa farið á námskeið í þjóðsvikum hjá Bjarna.

Maður ælir!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2019 kl. 18:44

5 identicon

Hvað veldur, að þínu mati Gunnar, þessari raðbilun Bjarna sem fram kemur í því að hann sagði eitt í gær og allt annað í dag?

Margir velta þessu fyrir sér.  Er þetta heilabilun?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 19:27

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei, ekki heilabilun, þvert á móti. Heilabilað fólk gerir ekki svona. En hollt er að muna það Símon Pétur að ríkisstjórnir margra landa hafa oft í sögunni brugðist þjóðum sínum algjörlega. Þess vegna viljum við siðmenntaðar þjóðir hafa þjóðkirkju sem er sá æðsti móralski turn sem enginn getur litið fram hjá og sem þjóðir geta snúið sér til þegar ríkisstjórnir bregðast þjóðum sínum og hneppa þær í ánauð imperíal heimsvelda. Þ.e. þegar ríkisstjórnir breytast í sértrúarsöfnuði, eins og ríkisstjórn Ísland er núna, fróandi sér við loftslagsklám sitt hvern einasta dag. 

Þegar Nasistahreyfingin var að feta sig upp metorðastigann í stórum hluta heimsins, þá er hollt að muna að þó svo að sum lönd Evrópu hafi ekki verið hernumin af Þýskalandi, þá voru til dæmis öll löndin á Íberíuskaga höll undir þýska nasista og setti sig ekki upp á móti þeim, og stærstur hluti Miðausturlanda var bandamaður nasista og Norður-Afríka einnig.

Bjarni er bara einfaldur kjáni á borð við þá sem stjórnuðu bönkum og klöppuðu fyrir þeim fávísu mönnum sem þar hófu sig upp til skýjanna. Hann ætlar í útrás með súrefni Íslendinga, raforkuna, og láta þjóðina kafna eins og hann vildi kæfa hana í Icesave.

Þ.e. hann er einfaldlega plebbi sem aldrei hefði átt að koma nálægt stjórnmálum. Og þú sérð einnig raðbilaðan plebba-frænda hans í Viðreisn sem gengið hefði í svitabol allra mestu pesta mannkynssögunar sökum heimsku. Guð þessara manna bjó í bönkunum fyrir hrun. Og þar er hann enn í sama bankahólfinu.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2019 kl. 20:27

7 identicon

Jú, ætli það sé ekki rétt að Bjarni og Benedikt séu genetískt raðbilaðir plebbar.  Manni hefur virst það.

Man þegar Halldór Jónsson rifjaði upp sögu Sveins Benediktssonar og Síldarversmiðja ríkisins. 

Það virðist vera það eina sem þeir sérhæfa sig í, að sölsa undir sig ríkiseigur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 21:16

8 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Þið gerið þ alt of flokið.

Þetta er einfalt og snýst EKKI um Kína,Rússland og svo framvegis.

Þetta snýst allt um VOLD ROMVERSK KAÞOLSKU KIRKJUNAR gegn ollu því sem ekki er VATIKANIÐ.

Decline of Roman empire .

Hnignun Rómaveldis alstaðar á móti rísandi gildum sem ekki eru Rómversk kaþólsk eis og austrið ber meira með sér.

Íslendingar eru mótmælendur en halfgerðir vesalingar sem slíkir.

HVAÐ ER VERÐIÐ A BJORNUM ?

Það er þ eina sem skiptir Vesalings mótmælendur mali !

Þá veit Páfin og Washington Dc.

Rétta mótmælendum ódýran bjór og þá er sigurinn unnin gegn ISslendingum!!þeir alveg kol fallnir f odyra bjórnum frá USA eða Washington dc.

Kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 11.8.2019 kl. 21:54

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Lárus minn.

Heiðnikirkjuveldi háskólanna í dag hefur miklu meiri völd en Kaþólska kirkjan hafði á miðöldum. Mörgum sinnum meiri völd og peninga. Háskólamenntabólan er þess utan sennilega eins stærsta fjármálabóla mannkynssögunnar og aflátsbréfasala.

Námsmenn um öll Vesturlönd eru skuldum vafnir fyrir svo gott sem lítið nema rusl í ofboðslega of mörgum tilfellum.

Í dag er það Heiðnikirkjuveldi háskólanna sem bannfærir fólk og sviptir það ærunni og spáir fyrir um heimsendi og næstu helvíti.

Íslenska ríkið hefur þess utan rænt flestum eigum og jörðum kirkjunnar frá henni og hent þeim á bál sitt og brennt þær til ösku.

Þú ert þúsund árum of seint á ferðinni Lárus. Þú ættir að ganga í Karl Marx kirkju Vinstri grænna með yfirprest-vísindaþingmann þeirra þar sem ég man ekki og vil ekki vita hvað heitir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2019 kl. 22:14

10 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar og Gestir OG TAKK fyrir skrifað mál.

Það hefur nú lengst af verið talið varhugavert að trúa mönnum fyrir ráðsmennsku af einhverju tagi sem hafa verið árum saman með brækurnar á hælunum fullum af skít í rekstri fyrirtækja.

Voru sagðir 133000000 slóðin eftir þennan mann.

Heirði einu sinni í Illuga nokkrum sem þá var Menntamálaráðherra,

hann taldi að menn þirftu að fara svona minnsta kosti 3svar á hausinn til að verða færir um að reka fyrirtæki,og í framhaldi af því taldi hann sjálfsagt að kenna öfuguggafræði í skólum frá 6ára aldri.

Þetta er fólkið sem fer með þjóðstjórnina í dag.

Er furða þó að maður ÆLI ef maður heirir í einverju af þessu PAKKI

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 11.8.2019 kl. 22:24

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar.

Það versta er þó nýlendukúgunar-amen þessa fólks í dag.

Við værum ekkert í dag ef það hefði verið við völd fyrr á tímum. Lítið sem ekkert.

"Fjárlagafrumvarpið, sem danska ráðherrabrotið lagði fyrir Alþingi 1875, var þannig: tekjur kr. 247.906,00, gjöld kr. 203.788,00. 

Árið 1874 var engin brú og enginn brautarstúfur á Íslandi. Sjávarútvegurinn var aðallega rekinn á smá bátum. Í Hafnarfirði voru að vísu skútur 15 til 40 lesta og hákarlaskip á Eyjafirði. Engir vitar voru hjer á landi." Morgunblaðið 20. maí 1944

Við skulum ekki minnast á hafnir á þessum árum, þar sem bátar og skip þurftu að leggja til hafs þegar illa veðraði til að brotna ekki í spón uppi við land. Sjá frásögn Trausta Jónssonar veðurfræðings af árinu tveimur árum síðar: 1877

Þetta lið hefði aldrei reist neinar virkjanir hér enda hefur það aldrei byggt neitt, heldur einungis hent pappírum fram og til baka um loftin blá. Þetta eru pappírshausar eins og sést.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2019 kl. 22:56

12 identicon

Illt er hverri þjóð

að hafa genetískt raðbilaða bjána

sem leppa erlends alríkis.

Til hvers var þá barist fyrir fullveldi

og sjálfstæði lands og þjóðar?

Í meira en 600 ár lutum við erlendum yfirráðum. 

Illt er að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að leyfa 

sturluðum bjánum að glutra niður bæði fullveldinu

og sjálfstæðinu.

Sú skömm þeirra skal aldrei gleymast.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 23:00

13 identicon

Vidkun Quisling hét maður, sá var norskur.

Hann var leppur nasista í Noregi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 23:49

14 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Island er ekki m eitt hrun heldur 2 en þ ma aldrei minnast a það fyrra sem er ISLENSK ERFÐAGTEINJNG og sco seinna Bankahrunið. 

Hvoru tveggja ma rekja til CHICAGO !!

CICAGO HAGFRÆÐIN byggir a þvi að solsa allt unir sog og skilja allt eftir i rjukandi rust en græða sjalfur a ta og fingri og gruunurinn að þeirri hagfræði eru nefnil CHICAGO BOFARNIR SJALFIR .. sem eru grunnurinn að þessu sem þu varst að vitna sjalfur i og þ er einmm su hagfr sem er verið að halda að haskola nemum en buið að gefa CHICAGO bofa kennjngunni finna nafn sem kallast nuna

NY FRJALSHYGGJA!!!!

Eg er motmælandi og alvoru motmælandi en ekki LETT KAÞOLIKKI eins og flestir motmælendur eru. 

Lárus Ingi Guðmundsson, 11.8.2019 kl. 23:53

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þá verður þú endilega að halda áfram að mótmæla með okkur Lárus minn góður.

Vér mótmælum allir sem einn því að eitt heimsveldi hafi allt að segja um samband þjóðar við Guð vors lands.

Vér mótmælum þannig heimsveldum sem þykjast vita allt best. Sérstaklega Evrópusambandsheimsveldinu núna.

Við heimtum að fá að lesa og skila Biblíuna (lögin) samkvæmt okkar eigin túlkun á henni (sem þýðir við viljum hafa okkar eigin stjórnarskrá, setja okkar eigin lög í okkar eigin landi og sem gilda aðeins fyrir okkur en ekki aðrar þjóðir jarðar sem hafa aðra siði og sínar hefðir). Og við verjum rétt okkar með þeim landamærum sem Guð Gamla testamentisins kynnti til sögunnar og gaf þar með þjóðum jaðrar, þeim til varnar.

Við heimtum því sjálfsákvörðunarrétt þjóða sem Gamla testamentið kenndi að væri eina vörnin gegn imperíal heimsveldum jarðar á borð við Evrópusamband, Egyptaland hið forna, Kínahelvíti og önnur Sovétríki sögunnar.

Já. Vér mótmælum enn!

Við heimtum sjálfsákvörðunarrétt fyrir íslensku þjóðina.

Pronto!

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2019 kl. 00:13

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Það gæti vel hugsast að það séu samantekin ráð hjá Bjarna og frændum hans að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn til að gera sjálfstæðismenn Íslands tímabundið heimilislausa, þannig að landið geti betur runnið inn í Evrópusambandið. En þar virðist allur hugur þessa fólks liggja. Hjá nýja nýlenduveldinu.

Þeim hefur þegar tekist að helminga hann á 10 árum.

Mér finnst þetta ekki ólíkleg skýring á óútskýranlega ömurlegri hegðun þessa fólks.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.8.2019 kl. 05:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband