Leita í fréttum mbl.is

Hér væri hagvöxtur ef hreppspólitík Reykjavíkur nyti ekki við

NEI TAKK: SVEIT Í SVEITARFÉLAGI ÁN SVEITA

Ef samrunamenn fara ekki að taka sig saman innan í sjálfum sér, þá munu þeir halda áfram að renna saman og verða að engu innan í svarholi sjálfs sín. Samrunamenn eru eins og svartur hundur sem byrjaði á skottinu á sjálfum sér og át sig þar til að hann hvarf

Það er vægast um geimveruleka að ræða þegar þannig hundar halda því fram að sameina eigi til dæmis hátt í heilan landsfjórðung í einu sveitafélagi; þannig að algjörlega sé yppt öxlum yfir tilvistarlegum hornsteinum íslenskrar búsetu og byggða; þ.e. að horft sé algerlega fram hjá sveitinni sjálfri og sveitunum eins og þær hafa lagt sig í landinu í þúsund ár. Sveit er sveitarfélag Íslendinga frá upphafi og Íslendingar eru frá upphafi ekki samrunamenn. Þess vegna erum við hér, en ekki þar. Sveit án sveitarfélags er ekki lengur sveit, frekar en sveitarfélag er sveitarfélag án sveita. Þá er allt frá sveitinni tekið sem gerir hana að sveit og hún breytist í ekkert, og fólk flosnar upp og flýr þangað sem félag sveitunga er að finna. Hvernig dettur manni eins og Sigurði Inga í Framsókn svona algjör brusselsk þvæla í hug. Hvernig í ósköpunum getur svona mikil og súr óborgarabikkja komið frá þeim flokki. Hefur hann étið sjálfan sig?

Það er ekki að ástæðulausu að Miðflokkurinn er Miðflokkurinn því hann er sjálf miðin, bæði til sjávar og sveita. Hann er sjávarmiðin og landsmiðin, á meðan Framsókn og Sjálfstæðisflokkur eru orðin flokksviðrini sem svikið hafa sig báða og bía hvorn annan í sameiginlegt hel. Miðflokkurinn hefur því tekið mið af þeim tveimur og miðar þeim því niður, en honum ekki. Honum miðar upp. Hann er ekki miðaflokkur eins og Framsóknar- og Ósjálfstæðisflokkur eru orðnir happdrættismiðaflokkar; þar sem vinningur kjósenda er aldrei greiddur út, heldur bara endursameinaður þeim flokkum báðum. Trunt trunt og trunt; þannig hljóma þeir tveir flokkar á för sinni, og miðar ekki upp, heldur bara niður

UM BIKKJUZTAN

Bikkjuztan Reykjavíkurhrepps er hins vegar orðin það tröllvaxið og stórt, að örfáir kjánar þar eru komnir með völd til að taka heilt land niður. Til að taka Ísland niður. Þetta verður að stöðva og splitta Reykjavíkurborg upp í minni sveitarfélög. Þetta gengur ekki lengur. Væru þessir örfáir posh-kjánar sem þar eru með öll völd, ekki með þau völd, þá væri hagvöxtur sterkur á Íslandi í dag, því að mikill massi fólks í landinu gæti þá komist til vinnu, passað sitt fé og ræktað túnin í fyrirtækjum landsins og hagnast vel. Þetta fólk í svo kölluðum "úthverfum" sem posh-kjánarnir í miðbæ Reykjavíkurhrepps þola ekki, gæti þá annað hvort rekið sín eigin sveitarfélög eða sameinast þeim sem hugsa eins. Til dæmis Mosfellsbær og flest fyrir ofan Ártúnsbrekkualpana, sem miðbæjar posh-kommarnir komast ekki yfir, því þeir ganga um heiminn á gorgonsólum

Þessi gætu sameinast í nýju sveitarfélagi ef þau vilja, og lagt harðbraut sín á milli, og til Kef, og til Árborgar. Hraðbraut með ótakmörkuðum hámarkshraða í stað hins ótakmarkaða lágmarshraða sem kvarnirnar snúast á í hreppsstjórnhöfðum hins úr sér vaxna Reykjavíkurhrepps. Þá þyrfti enginn í þeim sveitum að koma til Reykjavíkurhrepps, nema af þeim fúsa og frjálsa óvilja sem sjálfspyntingar snúast ætið um

Það er ekki nógu gott að eitt vanskapað sveitarfélag á borð við Reykjavík geti haldið heilu landi í gíslingu, nú þegar hurðaskellatímar þess hrepps eru liðnir. Þetta hljóta menn að sjá. Þeir hljóta að sjá að setja verður hámark á stærð sveitafélaga. Að þau verði aldrei það stór að þau hætti að vera sveit. Að þjóðaröryggi í hreppamálum verði tryggt, þannig að allt landið og fólkið í því verði ekki sveitarlaust, eins og gerðist síðast um daginn á landsvísu, og á heimsvísu 2008. Sveitin mín góða er það sem allt snýst um, hefur alltaf gert og mun alltaf gera

Það er gott að lesa grein Guðmundar Oddssonar kennara og skólastjóra úr mínum gamla Víghólaskóla í Morgunblaðinu í dag. Hún er um PÍSA-þvælu hins vonlausa og skattfrjálsa OPEC-kartels OECD, og svo um það að flestir foreldrar skuli halda að þeir geti stjórnað skóla, einungis vegna þess að þeir sjálfir voru nemendur þar. Meira af svona vígum Guðmundur. Gott hjá þér; þú kannt enn

Ég bið og vona að Ísland verði aldrei í fremstu röð kjána

Fyrri færsla

NS2 og Þýskaland-fyrst-stefna þýskra stjórnvalda í ESB


NS2 og Þýskaland-fyrst-stefna þýskra stjórnvalda í ESB

Kokhraust þýsk stjórnvöld ásamt krónískum kóráhangendum þeirra hér heima, segja nú í kjölfar þvingunaraðgerða Bandaríkjaþings og bandaríska forsetans vegna Nord Stream2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands, að "evrópsk orkumál séu ákveðin í Evrópu og stjórnað þaðan"

En er það nú svo? (lesendur muna kannski ennþá eftir orkupakka3)

Nei það er ekki svo. Því fer fjarri. Þessi gasleiðsla er því miður aðeins enn eitt ágætis dæmið um Þýskaland-fyrst-stefnu þýska stjórnvalda í Evrópusambandinu; og í NATO; og í ERM; og í EMS; og gagnvart Grikklandi; og gagnvart Suður-Evrópu; og gagnvart Bretlandi; og gagnvart Póllandi; og gagnvart hverjum þeim sem vogar sér að vilja ekki það sama og Þýskaland, innan þessarar svokölluðu (hlægja hér) "samvinnu" í ESB-útópíunni og innan NATO sem Þýskaland hunsar skyldur sínar við, og hvetur þar með öll önnur ríki álfunnar til að gera hið sama

Þessa orkuleiðslu ákvað Þýskaland einsamalt og alveg sér, í óþökk landa Evrópusambandsins, sem það hefur læst föst við sig með þýsksniðnum lögum og reglum um að ryksuga Þýskalands innan ESB sé steypt föst niður í þau en ekki niður í Þýskaland

Þýskaland ákvað einnig þessa gasleiðslu í óþökk meirihluta Evrópuráðsins. Það ákvað hana líka í óþökk framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og í óþökk gúmmíþings þess. Í stuttu máli þá er NS2 ágætis dæmi um Þýskaland-fyrst stefnu Þýskalands í Evrópusambandinu á kostnað allra annarra. Og það vill svo til að Þýskaland hefur skrúfað lög Evrópusambandsins og reglur þess þannig saman að þau séu sérstaklega hagstæð fyrir það eitt og Frakkland, en fjandsamleg öllum þeim löndum sambandsins sem ekki heita Þýskaland og eru ekki á sporbraut um Þýskaland. Sama gildir um EES; Orkupakki3 er fjandsamlegur Íslandi –hvernig sem á hann er litið– en hagstæður Þýskalandi. Hann er samsæri gegn Íslandi

Þessi Þýskaland-fyrst stefna þýskra stjórnvalda í Evrópusambandinu svarar til að þess að Donald Trump myndi nota alríkislöggjöf Bandaríkjanna til að keyra New-York-fyrst stefnu á kostnað allra annarra fylkja Bandaríkjanna. Slíkt kæmi auðvitað aldrei til greina

Svarið við svona imperíal-yfirgangi er aðeins eitt, eins og Biblían segir frá: Ísland fyrst. Pólland fyrst. Grikkland fyrst. Frakkland fyrst. Bandaríkin fyrst. Hvert land gæti sinna þjóðarhagsmuna án þess að traðka á þjóðarhagsmunum annarra ríkja

Þetta er sem sagt hin fullkomna þýska frekja og yfirgangur sem mótað hefur flest í þessari álfu frá 1871 og síðan að Þýskalandi og Evrópu var komið á réttan kjöl á ný, og á ný, og á ný með aðstoð Bandaríkjanna frá 1917 til 2013:

• Fyrri heimstyrjöldinni
• Síðari heimstyrjöldinni
• Kalda stríðinu
• Og í evrukreppunni -

- þar sem bandaríski seðlabankinn bjargaði Evrópusambandinu í tvígang frá dauða með ótakmörkuðu aðgengi að Bandaríkjadölum. Hefði hann ekki gert það væri evran hrunin í dag og ESB þar með líka, samkvæmt innbrenndu kokhreysti-ruglinu í höfðum kanslara Þýskalands og forseta Frakklands

En nú er hins vegar sagt stopp; hingað og ekki lengra. Við Bandaríkin ætlum ekki að líða Þýskalandi að byggja risavaxna gildru fyrir þá bandarísku hermenn til að ganga í, sem verja eiga þetta króníska vesalingaveldi gegn hinu króníska vesalingaveldinu austar í álfunni

Yfir til þessa aulaveldis hefur Sjálfstæðisflokkurinn samþykkt að flytja fullveldi Íslands í orkumálum. Aulafélag xD hefur sent Ísland til súgþurrkunnar (the cleaners) í ESB. xD stundar Þýskaland-fyrst og Ísland-síðast stefnu

Ég óska lesendum mínum gleðilegra jóla - og vona að allir sem vilja hafi rafmagn til afnota, því það er Guðs gjöf

Fyrri færsla

Öll vinna við lagningu Nord Stream2 gasleiðslunnar stöðvuð í gær


Öll vinna við lagningu Nord Stream2 gasleiðslunnar stöðvuð í gær

Í gær laugardag stöðvaði svissneska Allseas fyrirtækið alla vinnu við lagningu NS2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands. Daginn áður hafði Donald Trump forseti Bandaríkjanna staðfest samþykkt beggja deilda Bandaríkjaþings um refsiaðgerðir og eignafrystingu á hendur þeim sem vinna við lagningu leiðslunnar

Allseas stöðvaði umsvifalaust alla vinnu í gær og sagði að það myndi fara eftir öllum tilmælum og leiðsögn Bandaríkjanna í þessu máli. Hefði fyrirtækið hins vegar ekki farið eftir bandarískum tilmælum, hefði Bandaríkjastjórn lagt hald á öll þrjú skip fyrirtækisins –Pioneering Spirit, Audacia og Solitaire– sem þarna eru að störfum, um leið og þau kæmu inn í bandaríska lögsögu í framtíðinni. Bandarísk stjórnvöld hefðu einnig lagt hald á og lokað skrifstofum Allseas í Houston í Texas og bannað fyrirtækinu að starfa í lögsögu Bandaríkjanna árum saman

Þessi gasleiðsla hefur valdið miklum og djúpum klofningi meðal þjóða Evrópu og sérstaklega á milli þeirra þjóða sem þykjast vera bandalagsþjóðir í NATO, sem Bandaríkin bera uppi. En segja má hins vegar að án aðstoðar Bandaríkjanna frá og með 1945 og vernd þeirra, væri Þýskaland ekki orðið óformelgur einræðisherra og keisari yfir 27 löndum álfunnar núna, og því í standi til að tröllríða óskum nánustu NATO-bandalagsþjóða í þessum efnum. Þá aðstöðu komst Þýskaland aðeins í vegna verndar Bandaríkjanna

En nú eru komnir nýir tímar, nýr forseti í Hvíta húsið vestanhafs og nýtt sovétríki í smíðum austur í Rússlandi, sem Barack Obama og Hillary Clinton særðu að of miklu leyti fram og efldu, með friðþægingarstefnu sem olli því að Rússland taldi sér óhætt að rúlla yfir Krím og hluta af Úkraínu og sem varð þess valdandi að Eystrasaltslöndin þrjú og stór hluti landa Austur-Evrópu upplifa stöðuna sem lífshótandi fyrir sig. Og eins og lesendur kannski vita, þá er Rússland einnig zarinn í Sýrlandi fyrir tilstilli Obama núna, og ástandið þar eftir því. Barack Obama og Hillary Clinton ætluðu að fremja "reset" (endursetningu) á Rússlandi og reyna að búa til Wisconsin úr því. Óx því fyrirlitningin í Kreml á Bandaríkjunum í takt við skriðdýrsháttinn sem viðhafður var þar, eins og gerðist í kjölfar München 1938. "Ég hef hitt þá og þeir eru ormar" var þá sagt þar

Staðreyndin á jörðu niðri í Evrópu er sú, að ef að Bandaríkin myndu pakka saman og fara heim með herlið sitt þaðan og loka niður bækistöðvum sínum þar, þá væri friðurinn úti í álfunni. Þjóðir Evrópusambandsins væru komnar í hár saman mörgum sinnum meira og dýpra en þær eru nú þegar, og staðbundin hernaðarátök væru ekki langt undan, og jafnvel þegar hafin. Ekkert land myndi sætta sig við ofríki Þýskalands í Evrópu ef að Bandaríkin væru ekki þar sem eins konar umsjónarafl

En nú er sem sagt kominn annar maður í Hvítt hús og nýir tímar eftir hrun útópíu líberalismans árið 2008. Og sá maður hefur megnustu fyrirlitningu á þeim sem komu þessari stöðu um kring. Þess vegna hafa elítutærir menn verið að koma fljúgandi út um glugga þess húss. Menn sem héldu að kórrétt ferilskrá þeirra og réttu doktors-phd-embættismanna-eftirnöfnin kæmu sjálfkrafa í stað utanríkisstefnu þjóðkjörins forsetans; sbr. villta-vesturs ástand þannig eftirnafna innan FBI, CIA og NSA

Í fyrsta sinn mælist nú meirihluti fyrir því meðal Pólverja að landið þeirra yfirgefi Evrópusambandið, eða 47 prósentur; á móti 45 prósentum sem vilja það ekki. Og staðan í Póllandi er þannig að enginn Pólverji mun fara í stríð við annan Pólverja vegna hugsanlegrar útgöngu þess af lögsögu Evrópusambandsins. Þar er staðan ekki eins og í Skotlandi, þar sem helmingur Skota myndi berjast mjög svo hart fyrir því að vera áfram hluti af öflugu Bretlandi. Lönd verða yfirleitt ekki sjálfstæð ríki með aðstoð kjörkassa. Þau verða það flest fyrir tilstilli vopnaðrar baráttu, blóðsúthellinga og dauða. Ekkert getur haldið ríkjum saman nema fólkið í þeim. Þess vegna er Evrópusambandið að liðast í sundur. Og flestu venjulegu fólki er auðvitað nákvæmlega sama, nema náttúrlega phd-elítunni sem bjó það til, og tróð því sem hettu með hengingaról yfir höfuð þess

Leiðtogar verða heldur ekki leiðtogar til dæmis Vesturlanda með aðstoð samþykkis annarra ríkja. Nei, þeir verða leiðtogar vegna þess að enginn annar hefur burði né getu til að vera leiðtogi hins frjálsa heims. Leiðtogahlutverkið er eins og sjálfstæði ríkja; maður tekur það. Ísland tók sér því sjálfstæði sjálft, og vegna þess að öll þjóðin var nær 100 prósent sammála, þá þurfti ekki bardaga til. En það er hins vega ekki þannig með þá tugi þúsunda manna sem búa hér í landi okkar og eru ekki fæddir hér á Íslandi. Hvað þeir myndu gera í þannig stöðu, þarf ekki endilega að fara saman með því sem við Íslendingar gerum og viljum. Of mikill innflutningur framandi fólks og of hratt, er mjög svo hættuleg skepna, enda stendur allt um það í Biblíunni. Aðeins Íslendingar geta haldið Íslandi saman sem ríki. Staflar af útópískum líberalistum og glóbalistum geta það ekki

Fyrri færsla

Orkupakkar ESB eyðileggja fyrir Íslandi 


Orkupakkar ESB eyðileggja fyrir Íslandi

Örorkupakkar ESB

Ekkert nema ömurleiki og áunnin örorka fyrir Íslendinga hefur komið út úr orkupökkum Evrópusambandsins. Þeir virka eins og tundurspillir. Þeir skemma. Þeir naga. Þeir kveikja elda. Þeir slökkva ljós og drepa á hugrekki og áræðni. Heill her af embættismönnum djúpríkja koma saman og ráða með sér ráðum um hvernig innrétta eigi heil ríki sem þeir ekkert, bara alls ekkert, umboð hafa fyrir, né skilja, og ætla sér alls ekki búa í, elska né rækja. Þeir skilgreina hvað er gúrka og þar með hvað er ekki gúrka. Og þeir skilgreina hvað er raforkukerfi og hvað er ekki raforkukerfi. Aðeins höfuðlaust fólk með inngróið heilalíkþorn í heilastað, hlustar á sovétgasið úr þessu fólki. Helst til að þéna á eyðileggingu þess með því að þykjast vera fínt fólk með kórréttar hugmyndir í inngrónum heilalíkþornum

Boris Johnson lætur til skarar skríða

Boris Johnson er að hefja strategíska brottför úr þessu helvítis helvíti. Hann mun hvorki sigta eftir breiðum samningi við Evrópusambandið né leggja Stóra-Bretland undir nein lög og reglur þess. Hann hefur mjög svo sennilega ákveðið að flýta lagalegum aðskilnaði við sambandið með því að láta lægri dómsstig um að leysa úr mörgum þeim lagalegu spursmálum sem upp munu koma í sambandi við skilnaðinn. Heilalíkþorn embættismannaveldanna höfðu til að tefja fyrir aðskilnaði komið sér saman um að aðeins hæstiréttur gæti tekið þau mál fyrir og leyst úr þeim. En með því að færa lægri dómsstigum umboð til að leysa úr lagalegum spursmálum skilnaðarins, mun Johnson flýta því til muna að Bretlandi verði ekki aftur snúið inn í Evrópusambandið. Að ná "point of no return" strax. Að lagalegur aðskilnaður hafi strax á fyrstu metrum útgöngunnar fjarlægt Bretland svo frá Evrópusambandinu að engin leið sé að sameina þau aftur. Þetta kallast að afaðlaga Bretland frá Evrópusambandinu á mettíma til að koma í veg fyrir að neinn geti aðlagað málsaðilana á ný

Samhliða þessu mun Boris vinna að smá-samkomulagi við ESB á sviði viðskipta og hafa viðskiptasamkomulagið þannig að engin þjóðþing 27 landa ESB þurfi að koma nálægt málinu. Að pakkinn sé það lítill að hægt sé að smíða hann á innan við ári. Þannig skilnaðarfyrirkomulag myndi þýða að hægt sé að prjóna við það eftir þörfum. Gott dæmi um þannig sérþarfir er til dæmis fjármálaþjónusta. Um regluverks-jafngildi yrði þar að ræða eins og viðhaft var á milli ESB og Sviss. Tvíhliða en ekki alhliða

Örorkubandalögum heilalíkþorna hryllir auðvitað við að lönd endurheimti fullveldi sitt og sjálfstæði, því þau gætu jafnvel tekið upp á því að byrja að ganga og geta sjálf. Að þau gangi hreinlega inngrónu heilalíkþornin af sér

Fyrri færsla

Nóg er af kuldanum - og gott betur en það 


Nóg er af kuldanum - og gott betur en það

Nóg af kulda í Manitoba

Mynd: Kuldinn kl. 22 að staðartíma í Manitoba í gærkvöldi var mínus 31 gráða á selsíus, og ca mínus 45 á Grænlandsjökli. Beiðist er velvirðingar á stærð myndarinnar, en minna getur varla gert það sem ég vil að hún geri (bein krækja á myndina í nýjum glugga)

****

Nú þegar fréttir af kuldum hafa verið bannfærðar, eins og slæmar fréttir af stöðu vestrænna banka voru bannfærðar hér á árum áður, þá virðist vera nóg af kuldanum að taka mjög svo víða. Og þar sem DDRÚV-skógareldarnir, sem sú ríkisrekna trunta boðaði sem náttúruhamflettingu á Kaliforníu, reyndist einungis vera háspennulínur sem í lélegu ásigkomulagi voru notaðar sem stórvirkir kveikjarar, þá voga ég mér að birta hér einna afneitandi mynd af því sem í fjöl... afskakið.. einmiðlum bannað er að tala um

Og hið fullkomlega sprenghlægilega kom svo sem rúsínan í truntuenda hennar í síðustu viku, þar sem DDRÚVið hans Eiríks Honeckers í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, sagði að vegna kuldaóveðurs hérlendis (bannað) "hefði ekki verið neitt undarlegt við það að Íslendingar skyldu hafa flúið landið okkar til Vesturheims". Það var sem sagt þetta sem þeir flúðu yfir til, þ.e. þrjátíu stiga gaddur í stað smámínusanna hér heima

Halda mætti að við Íslendingar hefðum þá þegar búið við lygabrettið DDRÚV, eins og við gerum í dag. En nei, svo dýrt var brettið ekki þá. Fólk flúði úr íslenska eldinum í öskuna handan sjóndeildarhrings, vegna sögusagna á borð við þær sem geisa enn þann dag í dag. Einmiðlar bregðast aldrei. Þeir eru og verða ávallt fyrst og fremst Gróa á Efstaleiti, eins og þá. Ekkert hefur breyst, nema fjármögnunin og afhendingaröryggi hennar

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður, en ekki veðurfræðingur 

Fyrri færsla

Boris: "Hart Brexit" tryggt með nýjum lögum


Boris: "Hart Brexit" tryggt með nýjum lögum

Þeir sem reyndu að eyðileggja breska þjóðaratkvæðið um útgöngu Bretlands af lögsögu Evrópusambandsins, fá útborgað á næstu dögum. Útborgunin til þeirra verður svo kallað "hart Brexit"

Bretland mun yfirgefa Evrópusambandið þann 31. janúar næst komandi og þar með hefja eins árs úrsagnar- og aðlögunarferli

EN, ríkisstjórn Borisar Johnsons ætlar á næstu dögum að setja það í lög að óheimilt sé að aðlögunartímabilinu sem þarna verður málsaðilanna á milli sé framlengt [ það er að segja að þessu aðlögunartímabili milli Stóra-Bretlands og nú 27 landa Evrópusambandsins og sem varir fram til 31. desember 2020, með "fyrirvara" um að fram til 1. júlí á sama ári sé mögulegt að semja um "framlengingu aðlögunartímabilsins", náist samkomulag ekki um öll útgöngumál fyrir þann tíma, eða að (og hér kemur það) að útlit sé fyrir að samkomulag náist ekki í tæka tíð ]

Ný löggjöf ríkisstjórnar Johnsons og þar með mikils meirihluta þingsins, mun banna slíka framlengingu, enda var hún upphugsuð af svikahröppum í hans eigin flokki og stjórnarandstöðunni sem vildu koma í veg fyrir útgönguna, með því að eyðileggja samningsaðstöðu lands síns og þar með halda því sem einskonar gísl þar til rétta tækifærið byðist til að kjósa aftur um sama hlutinn með aðstoð þjóðfjandsamlegra fjölmiðla á borð við BBC og annarra gáfumennafyrirbæra á sviði vitsmunaglæfra

Þarna tryggir Johnson það að Bretland yfirgefi loksins Evrópusambandið og komi ekki aftur nálægt því svo lengi sem það er á lífi, og sérstaklega, taki ekki þátt í hrundansi þess

Að ári liðnu mun Bretland því ekki vera bundið af neinum lögum og reglum Evrópusambandsins. Svo gott sem engir tollar eru á flestum vörum milli landa, nema á sumum matvælum og ökutækjum. Í heildina litið er meðaltal tolla svo lágt að þeir skipta ekki máli og algjört afnám þeirra myndi heldur ekki skipta máli fyrir Bretland. Hins vegar eru það óbeinir tollar (gjöld) og reglugerðir (fargan) sem skipta máli og þeim EES-hryllingi ætlar Bretland sér ekki að vera bundið af eins og Ísland. Þess vegna mun Bretland fara hreint og allsgáð út úr Evrópusambandinu og ekki koma nálægt neinni ESB-löggjöf á borð við til dæmis vinnumarkað, vinnuafl, laun og umhverfismál. Bless

Það eina sem samið verður um fram til 1. júlí 2020 er smápakki um tollgæslu aðilanna á milli. Og fari ESB ekki að vilja Bretlands í þeim efnum þá er það verst fyrir það sjálft, en ekki fyrir Bretland, því heimurinn er stór. Engin ástæða er fyrir Bretland að lúta neinum þeim reglum á sviði vinnulöggjafar og umhverfismála sem Brusselveldinu hentar. Enda var því óveldi aldrei ætlað að breiða sig yfir þau málefni þjóðanna

Áttatíu þingmanna meiri hluti er áttatíu þingmanna meirihluti. Þeir sem sviku landið sitt fá hér með loksins útborgað. Þeir fá ekkert, nema stóra skömm á stærstu spjöldum sögunnar

Sem sagt: "hart Brexit" í síðasta lagi eftir eitt ár. Það verður auðvitað mjög hart fyrir ESB-lönd og svo einnig EES-lönd á borð við Ísland, að horfa upp á það. Einmitt þess vegna er brexit Breta kallað hart. Það verður ákaflega hart fyrir þau lönd sem eftir sitja, að þurfa að dúsa áfram í meginlandsmusteri ESB-helvítis

En það er refsing sem líkja má við það að dúsa árum saman í fangaklefa sem gerður er úr rafhlöðum eins og þeim sem eru í rafbílum. Fyrst fer heilinn, svo hverfur frjósemin og á endanum blæðir manni út, því hjarta og æðakerfi falla í sundur. Þannig virkar of náin snerting við vitsmunaglæfra góða fólksins. Þegar á reynir er það fólk nefnilega ekki gott. Það er vont, eins og þeir sem bjuggu fangavistvænt sovétríkið til

Fyrri færsla

Að minnsta kosti næstu 10 ár Stóra-Bretlands verða í nafni Borisar Johnsons


Að minnsta kosti næstu 10 ár Stóra-Bretlands verða í nafni Borisar Johnsons

Working-class voters propelled the Conservatives to a decisive victory

Mynd WSJ DS; Það var verkalýðurinn sem knúði fram yfirburðarsigur breska Íhaldsflokksins í kosningunum þann 12. desember 2019. Þar með knúði verkalýðurinn einnig fram verstu útreið Verkamannaflokksins síðan 1935

****

Þjóðlegir stormsveipir tveggja stórþjóða sópa nú burt fjölþjóðaþvættingi (e. multilateralism) og merkantílisma síðustu margra áratuga. Í Bretlandi –sem kaus að yfirgefa kartelbunker Evrópusambandsins– er kominn til valda maður að nafni Boris Johnson sem sitja mun við völd næstu tíu árin eða lengur. Hann hefur tryggt sér þann breiða stuðning sem breski Verkamannaflokkurinn mun aldrei geta fengið sökum tengingar við verstu og mannskæðustu öfl vinstrisins í meira en 100 ár

Og um helgina bárust enn frekari jarðarfararfregnir af kistulagningu fjölþjóðaismans frá Lennon-ráðstefnunni um Yoko-ég-bjáni í Madríd. Í ljós kom að lægsti sameiginlegi nefnarinn sem heldur elítum í söðlinum gekk ekki upp, vegna þess að þjóðir jarðar eiga engra sameiginlegra hagsmuna að gæta með glóbal-geimverum

Johnson mun sennilega troða fjölþjóðlegum elítupappírum Evrópusambandsins upp í veruleikafirrtan Donald Tusk, sem þessi árin er yfirelítuandlit myrkraverksins í Brussel, og gera það sex sinnum, fyrst að hann í Hvítu húsi er sagður hafa notað fimm sinnum töfluna þegar um kartel-þvætting fjölþjóðaismans er að ræða. Tusk gekk nefnilega í lið með þeim sem taka ætluðu upp ósiðmenningu hans sjálfs á götum Bretlands; um að kjósa eigi aftur og aftur þar til að niðurstaða þóknanleg nýlenduherrunum í Brussel kæmi sem háð og spott að lýðræði sem stjórnarfyrirkomulagi upp úr kjörkössunum

Á meðan horfðu flestar þjóðir Evrópusambandsins með viðurstyggðarbragð í munni á, sérstaklega þær þjóðir sem búa rétt handan Ermasundsins, og má þar nefna Frakka sérstaklega. Þeir munu taka alveg sérstaklega eftir því að Boris hefur aftengt stórborgina Lundúnir frá Evrópusambandinu og sameinað hana Stóra-Bretlandi á ný, eins og á dögum Iðnbyltingarinnar og Stórveldisins

Nú fer Boris í gang með að rúlla til baka þeim mannskæðu niðurskurðaraðgerðum sem aðild Breta að Evrópusambandinu krafðist og mun Skotland njóta þar góðs af. Mýtan um sjálfstæði Skotlands verður afþýdd þannig að allir sjái að ekkert verður af því, einfaldlega vegna þess að lönd sem ætla að byggja sjálfstæði sitt á því að vera ekki sameinuð þjóð, verða ekki sjálfstæð ríki. Þau skortir einfaldlega viljann og samstöðuna til þess, og mjög stutt er síðan að sá vilji var kortlagður síðast. Þannig ríki hlyti ekki blessun annarra sjálfstæðra ríkja, vegna þess að þau eru og verða tifandi tímasprengjur

Engar friðargæslusveitir hefur því þurft að senda til Íslands. Þar bjó nefnilega ein sameinuð þjóð sem tók málin í sinar algerlega sameinuðu hendur. EES-aðildin hefur þó skemmt mikið hér fyrir og tekið krafta og samstöðu frá þjóðinni síðustu 30 árin. Slíkan aids-samning ætlar Boris því ekki að apa eftir

Þegar upp er staðið, þá er Sjálfstæðisflokkurinn hér heima í afar vondum málum. Hann hefur ekkert af þessu sem Boris hefur og hann hefur ekkert af því sem Trump getur. Mun hann því þurfa að taka hroðalegum afleiðingum þess að hafa kosið bókhaldara sem leiðtoga sinn, þegar slíkt mátti alls ekki gerast. Sú elítutæra villa segir því miður of mikið um hversu langt út á kalið tún og burt frá ömmu, sá flokkur hefur látið afvegaleiða sig. Þar, eins og í breska Verkamannaflokknum, er engin framtíðarforysta til staðar; bara meira af bókhaldi um metoo-gagghænubúr á ees-prikum esb

Fyrri færsla

Bandaríkin samþykkja refsiaðgerðir á Nord-Stream2 gasleiðsluna


mbl.is Vonsvikinn með niðurstöðu loftslagsráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin samþykkja refsiaðgerðir á Nord-Stream2 gasleiðsluna

Repúblikaninn Mike Conaway frá Texas lýkur umræðunni um Nord-Stream-2 í fulltrúadeild bandaríska þingsins

****

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur með 377 atkvæðum gegn 48 sett refsiaðgerðir á þá og þau fyrirtæki sem vinna- og aðstoða við byggingu Nord Stream 2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands. Hún er byggð til þess að einangra Úkraínu betur áður en hún verður gleypt. Víst þykir að öldungadeildin samþykki líka. Og í hvítu húsi bíður viss maður sem talinn er hafa jafnvel sérstaka ánægju af að staðfesta aðgerðirnar. Þarna vinna báðar deildir þingsins saman þvers á flokka, og svo vill til að forsetanum er ljúft að staðfesta og framkvæma vilja þingsins

Bandaríkin hafa skrifað undir að verja 27 lönd Evrópu með aðstoð landanna sjálfra, sem varla draga andann vegna ESB, og að koma þeim til bjargar, sé á þau ráðist. En Bandaríkin geta ekki staðið við þessar skuldbindingar nema að allir standi saman og að sum ríkin vinni ekki viðstöðulaust að því að sundra hernaðarbandalaginu innan frá. NATO er hernaðarbandalag og slík bandalög krefjast hers. Þann her hafa aðeins Bandaríkin, vegna þess að Evrópa er önnum kafin við að fremja sameiginlegt sjálfsmorð undir fána Evrópusambandsins, sem Bandaríkin geta ekki varið álfuna gegn. En hér gerir bandaríska þingið að minnsta kosti það lágmark sem allir ættu að geta snúið bökum saman um... eða hvað haldið þið...

Enginn á kaffihúsi á Ítalíu hefur hugsað sér að deyja fyrir Eistland, ráðist Rússland þar inn. Ekki frekar en að rétta Grikklandi hjálparhönd þegar það er að deyja undan þýskum Evrópusambands-evrum. Evrópusambandið er nefnilega eins og tískuhugtakið transgender. Ekkert slíkt fyrirbæri er til. Aðeins transvestítar eru til. ESB er klæðaskiptingur, og þar með er það ekki nema eitt prósent af þjóðunum; það er elítan

Kynskiptingar eru heldur ekki til. Aðeins einstaklingur sem skipt hefur um kyn og heldur svo kjafti, er til. Eða réttara sagt; ætti að vera til

Sem sagt; veruleikinn passar ekki við tískuþvaður dagsins í dag, og hefur reyndar aldrei í sögu manna gert það. Af þessu leiðir að Evrópusambandið er einungis pappírsbunki sem kveikja má í og þá er það horfið, án þess að neinn, nema eitt prósent, sakni neins. En hvað með NATO? Er það kannski orðið transgender líka? Eða er það ennþá hin ekta harða vara í hörðum pökkum

Nú er bara að bíða eftir væluliðinu; íklæddu þvaðri

Fyrri færsla

Stórsigur breskra þjóðaríhaldsmanna


Stórsigur breskra þjóðaríhaldsmanna

John Selden (1584–1654)

Hvað er Íhaldsstefna? (ritgerð)

****

Jæja. Nú hafa öll 650 kjördæmi Stóra-Bretlands lokið talningu atkvæða. Stórsigur Borisar Johnsons er í höfn með 80 þingsæta meiri hluta. Þetta er stærsti sigur flokksins í 32 ár, eða frá því að barnónessan Margrét var við völd. Boris kom, sá alla lágkúruna, og sigraði allt og alla með sínum einfalda boðskap; Klárum brexit og endurheimtum fullveldi þjóðarinnar

Leiðtogaráð Evrópusambandsins situr hér með fastfrosið á sínum eigin kamri í miðju Evrópuþjóðsvikasambands, sem í engu sambandi er við kjósendur eins einasta lands. Það óráð hafði gengið í lið þeirra svikahrappa í Bretlandi sem neituðu að virða niðurstöður breska þjóðaratkvæðisins um Brexit 2016. Og það óráð vann viðstöðulaust að því að láta bresku þjóðina kjósa aftur um sama hlutinn; eða þar til að rétt niðurstaða kæmi sem úrkynjunarveldið í Brussel gæti samþykkt sem esb-sovéska útkomu, eins og þeim kamri einum er von og vísa

Jæja. Nú situr þetta svo kallaða leiðtogaráð Evrópusambandsins frosið fast í sínum eigin saur; alveg upp í háls - og nær ekki andanum

Boris Johnson mun frá og með nú ekki sætta sig við neitt minna en skilyrðislausa uppgjöf ESB í besta stíl U.S. Grants, því annars mun hann stinga út úr fjárhúsi þess og tæma kamar sambandsins sjálfs þar inn; losun!

boris johnson

Allir sem augu hafa –nema náttúrlega tómar augnatóftir hæstu Hollandsfjallaforystu Sjálfstæðisþykjustuflokksins hér heima– sjá að ekkert nema sár á afturendann er að hafa upp úr bæði aðild að ESB og hverskonar ill- og útkynja EES-samningum við sambandið. Að versla við heiminn á WTO-skilmálum skiptir engu máli miðað við það að láta bara brot af fullveldi lands síns í hendur kamars á borð við Evrópusambandið

Biðröð þeirra sem vilja eiga viðskipti við Bretland hefur þegar myndast við mynni Thamesfljótsins. Númer eitt í þeirri röð eru Bandaríki Norður-Ameríku. Bless bless verður ESB þá að segja við hinn risavaxna viðskiptahagnað þess við Bretland, og bless bless verður það að segja við strategíska samvinnu við Bretland, vegna þess að Evrópusambandið hefur fullsannað að það er kamar

Til hamingju með sigurinn breskir þjóðaríhaldsmenn. Til hamingju Stóra-Bretland!

Fyrri færsla

Bresku þingkosningarnar 2019: Talning hafin [u]


mbl.is Stærsti sigur Íhaldsflokksins í 32 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bresku þingkosningarnar 2019: Talning hafin [u]

fimmtudagur, 12. desember 2019 kl. 22:42:02

Útgönguspá lofar Íhaldsflokknum (nú Þjóðaríhaldsflokknum) traustum meirihluta þingsæta eða 368 (af 650), og Verkamannaflokkinum er spáð 191 sæti. En sjáum nú til...

Þeir sem hafa rafmagn og sitja með álpappírshjálm við tölvuna sína, geta fylgst með beinum útsendingum í vafra hér:

Bloomberg (hægt að líma slóð beint inn í t.d. Quick Time)

The Telegraph (í vafra)

Sky News (í vafra)

ITV (í vafra)

Við bíðum eftir tölum og ég mun reyna að uppfæra þessa færslu eins oft og gáfulegt er

Eftir þessar kosningar verða allir þingmenn breska Íhaldsflokksins ESB-andstæðingar. Hinir lifðu ekki makkverk sín af

Sterlingspundið hækkaði um 2,3 prósentur gagnvart Bandaríkjadal við þessar fréttir, og strax eru uppi getgátur um að villta bandaríska vinstrið fjúki þar með einnig um koll, reynist útgönguspáin rétt

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 00:48:34

Talningu í nokkrum kjördæmum Noðraustur-Englands er lokið og ljóst er að tap Verkamannaflokksins er tilvistarlegs eðlis. Í atkvæðum talið er tapið 10 til 13 prósentustig. Forystu flokksins verður líklega mokað út með stórri skóflu. Þetta eru fjórðu kosningarnar í röð sem flokkurinn tapar

Nóttin gæti orðið á einum bestu nótum Margrétar Thatcher fyrir breska Íhaldsflokkinn, sem frá og með nú er þjóðaríhaldsflokkur eins og Miðflokkurinn er hér heima. Þetta kallar á hljóðpróf frá Blondie. Ótrúlegar tilfærslur í skara kjósenda eru að gerast í breska flokkakerfinu hér, burt frá vinstri yfir til hægri þ.e. yfir til fullveldis og sjálfstæðis

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 01:41:31

Kjördæmin Workington í Cumbríu og Darlington í Norðaustur-Englandi, sem tilheyrt hafa Verkamannaflokknum stærstan hluta síðustu 100 ára, hafa fallið í hlut Íhaldsflokksins. Hið sama gerðist í Wrexham í Wales

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 02:36:54

Atkvæði í 107 af 650 kjördæmum hafa nú verið talin. Íhaldsflokkurinn fékk 48 þeirra og bætti sex við sig. Verkamannaflokkurinn fékk 47 en tapaði átta kjördæmum. Skoski þjóðarflokkurinn er með 6 og hefur bætt tveimur við sig. Tap Verkamannaflokksins stendur eins og er í tæplega níu prósentustigum þegar um fjölda atkvæða er að ræða

The Corbyn crack-up - The Spectator

Sprungur opnast

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 03:01:18

Atkvæði í 177 af 650 kjördæmum hafa nú verið talin. Íhaldsflokkurinn fékk 81 þeirra og bætti 15 við sig. Verkamannaflokkurinn fékk 74 en tapaði 19 kjördæmum. Skoski þjóðarflokkurinn er með 13 og hefur bætt fjórum við sig. Tap Verkamannaflokksins stendur eins og er í -8,4 prósentustigum þegar um fjölda atkvæða er að ræða. Tölur eru nú byrjaðar að koma inn frá Mið-Englandi og staða Íhaldsflokksins er því að breytast hratt honum í vil

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 03:26:09

The Corbyn crack-up - The Spectator

Islington North: Jeremy Corbyn tapar 8,7 prósentum af fylgi sínu í hans eigin kjördæmi og verður áfram þingmaður þess, en boðar afsögn sína sem formaður Verkamannaflokksins einhvern tíma á þessari öld, sé flokkurinn þá enn til til þess að segja sig frá. Hann skrifar sig út, en án þess að fara, sem þýðir að hann ætlar að ganga alveg frá honum og fara niður með sjálfan sig hangandi við stýrið í þágu "réttlætis og jafnaðar" (Marx- og Stalín bræður). Kjördæmi Tony Blair breyttist rétt í þessu í þingsæti Íhaldsmanna

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 03:35:10

Atkvæði í 315 af 650 kjördæmum hafa nú verið talin. Íhaldsflokkurinn fékk 161 þeirra og bætti 27 við sig. Verkamannaflokkurinn fékk 111 en tapaði 33 kjördæmum. Skoski þjóðarflokkurinn er með 22 og hefur bætt sex við sig. Tap Verkamannaflokksins stendur eins og er í 8,3 prósentustigum þegar um fjölda atkvæða er að ræða. Boris Johnson vann kjördæmi sitt kl. 03:40 og heldur nú tölu

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 04:22:08

Atkvæði í 478 af 650 kjördæmum hafa nú verið talin. Íhaldsflokkurinn fékk 247 þeirra og bætti 34 við sig. Verkamannaflokkurinn fékk 166 en tapaði 46 kjördæmum. Skoski þjóðarflokkurinn er með 41 og hefur bætt 12 við sig. Tap Verkamannaflokksins stendur eins og er í 8,1 prósentustigum þegar um fjölda atkvæða er að ræða

Churchillian triumph

föstudagur, 13. desember 2019 kl. 04:52:11

Atkvæði í 564 af 650 kjördæmum hafa nú verið talin. Íhaldsflokkurinn fékk 301 þeirra og bætti 41 við sig. Verkamannaflokkurinn fékk 192 en tapaði 53 kjördæmum. Skoski þjóðarflokkurinn er með 44 og hefur bætt 12 við sig. Tap Verkamannaflokksins stendur eins og er í 8 prósentustigum þegar um fjölda atkvæða er að ræða

Ljóst er að Boris Jonhson hefur unnið mikið afrek í þessari kosningabaráttu. Hvort að meirihluti hans verður +50 þingsæti, meira eða minna, mun koma í ljós. Þessi sigur Borisar er á við sigur Margrétar Thatcher 1987, segja sumir fréttamenn. Og að afhroð Jeremy Corbyn sé eitt það versta í sögunni. Læt þessu hér með lokið núna

Fyrri færsla

"Orkuskiptin" reyndust vera bleyjuskipti á burgeisum


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband