Leita í fréttum mbl.is

Öll vinna við lagningu Nord Stream2 gasleiðslunnar stöðvuð í gær

Í gær laugardag stöðvaði svissneska Allseas fyrirtækið alla vinnu við lagningu NS2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands. Daginn áður hafði Donald Trump forseti Bandaríkjanna staðfest samþykkt beggja deilda Bandaríkjaþings um refsiaðgerðir og eignafrystingu á hendur þeim sem vinna við lagningu leiðslunnar

Allseas stöðvaði umsvifalaust alla vinnu í gær og sagði að það myndi fara eftir öllum tilmælum og leiðsögn Bandaríkjanna í þessu máli. Hefði fyrirtækið hins vegar ekki farið eftir bandarískum tilmælum, hefði Bandaríkjastjórn lagt hald á öll þrjú skip fyrirtækisins –Pioneering Spirit, Audacia og Solitaire– sem þarna eru að störfum, um leið og þau kæmu inn í bandaríska lögsögu í framtíðinni. Bandarísk stjórnvöld hefðu einnig lagt hald á og lokað skrifstofum Allseas í Houston í Texas og bannað fyrirtækinu að starfa í lögsögu Bandaríkjanna árum saman

Þessi gasleiðsla hefur valdið miklum og djúpum klofningi meðal þjóða Evrópu og sérstaklega á milli þeirra þjóða sem þykjast vera bandalagsþjóðir í NATO, sem Bandaríkin bera uppi. En segja má hins vegar að án aðstoðar Bandaríkjanna frá og með 1945 og vernd þeirra, væri Þýskaland ekki orðið óformelgur einræðisherra og keisari yfir 27 löndum álfunnar núna, og því í standi til að tröllríða óskum nánustu NATO-bandalagsþjóða í þessum efnum. Þá aðstöðu komst Þýskaland aðeins í vegna verndar Bandaríkjanna

En nú eru komnir nýir tímar, nýr forseti í Hvíta húsið vestanhafs og nýtt sovétríki í smíðum austur í Rússlandi, sem Barack Obama og Hillary Clinton særðu að of miklu leyti fram og efldu, með friðþægingarstefnu sem olli því að Rússland taldi sér óhætt að rúlla yfir Krím og hluta af Úkraínu og sem varð þess valdandi að Eystrasaltslöndin þrjú og stór hluti landa Austur-Evrópu upplifa stöðuna sem lífshótandi fyrir sig. Og eins og lesendur kannski vita, þá er Rússland einnig zarinn í Sýrlandi fyrir tilstilli Obama núna, og ástandið þar eftir því. Barack Obama og Hillary Clinton ætluðu að fremja "reset" (endursetningu) á Rússlandi og reyna að búa til Wisconsin úr því. Óx því fyrirlitningin í Kreml á Bandaríkjunum í takt við skriðdýrsháttinn sem viðhafður var þar, eins og gerðist í kjölfar München 1938. "Ég hef hitt þá og þeir eru ormar" var þá sagt þar

Staðreyndin á jörðu niðri í Evrópu er sú, að ef að Bandaríkin myndu pakka saman og fara heim með herlið sitt þaðan og loka niður bækistöðvum sínum þar, þá væri friðurinn úti í álfunni. Þjóðir Evrópusambandsins væru komnar í hár saman mörgum sinnum meira og dýpra en þær eru nú þegar, og staðbundin hernaðarátök væru ekki langt undan, og jafnvel þegar hafin. Ekkert land myndi sætta sig við ofríki Þýskalands í Evrópu ef að Bandaríkin væru ekki þar sem eins konar umsjónarafl

En nú er sem sagt kominn annar maður í Hvítt hús og nýir tímar eftir hrun útópíu líberalismans árið 2008. Og sá maður hefur megnustu fyrirlitningu á þeim sem komu þessari stöðu um kring. Þess vegna hafa elítutærir menn verið að koma fljúgandi út um glugga þess húss. Menn sem héldu að kórrétt ferilskrá þeirra og réttu doktors-phd-embættismanna-eftirnöfnin kæmu sjálfkrafa í stað utanríkisstefnu þjóðkjörins forsetans; sbr. villta-vesturs ástand þannig eftirnafna innan FBI, CIA og NSA

Í fyrsta sinn mælist nú meirihluti fyrir því meðal Pólverja að landið þeirra yfirgefi Evrópusambandið, eða 47 prósentur; á móti 45 prósentum sem vilja það ekki. Og staðan í Póllandi er þannig að enginn Pólverji mun fara í stríð við annan Pólverja vegna hugsanlegrar útgöngu þess af lögsögu Evrópusambandsins. Þar er staðan ekki eins og í Skotlandi, þar sem helmingur Skota myndi berjast mjög svo hart fyrir því að vera áfram hluti af öflugu Bretlandi. Lönd verða yfirleitt ekki sjálfstæð ríki með aðstoð kjörkassa. Þau verða það flest fyrir tilstilli vopnaðrar baráttu, blóðsúthellinga og dauða. Ekkert getur haldið ríkjum saman nema fólkið í þeim. Þess vegna er Evrópusambandið að liðast í sundur. Og flestu venjulegu fólki er auðvitað nákvæmlega sama, nema náttúrlega phd-elítunni sem bjó það til, og tróð því sem hettu með hengingaról yfir höfuð þess

Leiðtogar verða heldur ekki leiðtogar til dæmis Vesturlanda með aðstoð samþykkis annarra ríkja. Nei, þeir verða leiðtogar vegna þess að enginn annar hefur burði né getu til að vera leiðtogi hins frjálsa heims. Leiðtogahlutverkið er eins og sjálfstæði ríkja; maður tekur það. Ísland tók sér því sjálfstæði sjálft, og vegna þess að öll þjóðin var nær 100 prósent sammála, þá þurfti ekki bardaga til. En það er hins vega ekki þannig með þá tugi þúsunda manna sem búa hér í landi okkar og eru ekki fæddir hér á Íslandi. Hvað þeir myndu gera í þannig stöðu, þarf ekki endilega að fara saman með því sem við Íslendingar gerum og viljum. Of mikill innflutningur framandi fólks og of hratt, er mjög svo hættuleg skepna, enda stendur allt um það í Biblíunni. Aðeins Íslendingar geta haldið Íslandi saman sem ríki. Staflar af útópískum líberalistum og glóbalistum geta það ekki

Fyrri færsla

Orkupakkar ESB eyðileggja fyrir Íslandi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eru þá ekki Íslendingar loksins farnir að sjá það; nú eða aldrei!

Helga Kristjánsdóttir, 22.12.2019 kl. 05:12

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Ekki lökrar nú romsunum þínum Gunnar, Og nú er eg alveg viss um hvar okkar Boris er, og tími til kominn að reina að byggja utan um hann.cool

Óskar Kristinsson, 22.12.2019 kl. 13:36

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Helga.

Jú flestir Íslendingar sjá það örugglega. En þar sem valdhafar okkar hafa of lengi verið og eru enn staflar af útópískum líberalistum og glóbalistum, þá er slökkt á öllum ljósum þar. Þú sérð hvers konar sértrúarsöfnuðir eru þar á ferð. Það eina sem upp á vantar þar, er að hnefinn sé steyttur á meðan inter-nation nallinn er kyrjaður daginn út og daginn inn í fjandans ráðuneytum þeirra.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.12.2019 kl. 17:15

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Óskar.

Já já einmitt, Boris er kominn til að vera. Okkar líka.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.12.2019 kl. 19:08

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kannski þróast þessi staða í Evrópu þannig að Pólland sæki um inngöngu í Bandaríkin. Það uppfyllir að minnsta kosti annað af tveimur inntökuskilyrðunum þangað inn; Að vera kristið land. Það eru hins vegar frekar miklar líkur á því að Pólland muni seint uppfylla inntökuskilyrði númer tvö; Að enska sé orðið móðurmál Pólverja áður en því væri hleypt inn í Bandaríkin.

Líklegra er því að Tyrklandi verði hleypt inn í Evrópusambandið áður en Póllandi yrði hleypt inn í Bandaríkin. Og það þýðir að Bandaríkin munu sennilega vinna mjög svo áfram að því að Intermarium geti orðið sá staður sem Pólland muni drottna yfir undir vernd Bandaríkjanna, þegar það yfirgefur Evrópusambandið til að gera þar pláss fyrir Tyrkland. Intermarium verður þar með hið raunverulega verndarsvæði Bandaríkjanna í Evrópu, þvers á öxli Evrasíu og Rússland mun þurfa að lifa með það, hvað sem tautar og raular.

Gunnar Rögnvaldsson, 22.12.2019 kl. 19:32

6 identicon

Mjög athyglisvert sem þú skrifar um intermarium fleyginn.  Það hefur lengi verið helsta stefna Bandaríkjanna að reka fleyg á milli Evróputotunnar og Asíu.  Evrasía er þeim eðlilega þyrnir í augum.

Þessari einföldu og nöktu staðreynd skilja hins vegar Bjarni kínabankaráðsmaður og Gulli vitleysingur ekki.  Þeir eru svo skyni og viti skroppnir að þeir halda að þeir geti vílað og dílað og ullað framan í Bandaríkin, sem reyndust okkur best í sjálfstæðisbaráttu okkar og landhelgisdeilum.

Auðvitað eigum við að vera með þeim í liði sem reyndust okkur best, Bandaríkjunum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.12.2019 kl. 20:44

7 identicon

ESB og Kína sleikjuháttur

forystu Sjálfstæðisflokksins

er beinlínis móðgun við Bandaríkin.

Rétt eins og valdaframsal 

forystu Sjálfstæðisflokksins 

til ESB í hverjum EES pakkasamþykktum

er brot á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.

Íslenska lýðveldisins

sem einmitt Bandaríkin

voru fyrst til að viðurkenna og virða.

Og svo ullar núna

forysta Sjálfstæðisflokksins 

framan í Bandaríkin.

Forysta Sjálfstæðisflokksins 

er skipuð óforskömmuðum fíflum

og illa innrættum búrakratatittum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.12.2019 kl. 21:21

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Já Evrópa er að verða komin í ruslflokk að allt of mörgu leyti, og það getur álfan aðeins þakkað tilvist Evrópusambandsins fyrir.

Þetta gildir á flestum sviðum; efnahagslega, og á sviðum gerðar- og samsetningar mannfjöldans, sem er að breyta álfunni í allsherjar elliheimili, og svo einnig á sviði menningar, lífskjara og framfara. ESB hefur breytt álfunni í hálfgert svarholssólkerfi með ubersvartholið Þýskaland í miðju þess.

Ef litið er til dæmis til MSCI-vísitölunnar sem mælir afrakstur og árangur fjárfestinga á hlutabréfamörkuðum 15 þróaðra landa Evrópu, og sem innihalda 85 prósentur af andvirði allra þannig eigna í Evrópu, þá sést glöggt hversu galin hugmynd Evrópusambandið, evran, erm, ems, og nær öll E-eiturmerki álfunnar eru. Því sé vísitalan stillt á 100 stig árið 1969 miðað við SP-500-vísitöluna í Bandaríkjunum, þá stendur MSCI-Evrópuvísitalan í aðeins 50 stigum í dag. Sem sagt allt hefur helmingast í virði miðað við SP-500 síðan þá, og hér er mælt í mynt landanna sjálfra. Sjá mynd

Og nær allar niðursveiflur sem komið hafa á þessu tímabili frá 1969 til 2019, hafa orðið margfalt lengri og illvígari viðureignar í Evrópu en í Bandaríkjum. Sú síðasta, þ.e. evru-skulda-kreppan sem hófst 2008 og varir að miklu leyti enn, braut MSCI út úr 40-ára hlutfallslegri plús/mínus 15 prósentu fylgni við  SP-500 árið 2011, og hefur verið húrrandi niður á við síðan þá.

Öll E-eiturmerki Evrópusambandsins eru að ganga frá álfunni fyrir fullt og allt. Og þetta mun aðeins versna enn til muna á næsta ári, þar sem lönd sambandsins (nema Stóra-Bretland) munu mæta til leiks varanlega fjötruð föst í hjólastólum, með hengingaról evrunnar óafturkallanlega fasta um hálsa þeirra. 

Þessi trunta mun ekki haggast neitt nema niður á við næstu mörgu áratugina. Og þetta ljóslogandi helvíti kallar Kínverski-gangstéttar-Guðlaugur-Þór fyrir "helstu markaði" Íslands. Þetta er algjörlega glatað lið þarna i xD. Algjörlega úti á þekju við allt og alla. Enda ekki viðbjargandi, eins og sést.

Tilvist Evrópusambandsins hefur gert álfuna að útnárabotnlanga.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.12.2019 kl. 22:43

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ríkisstjórnin á Ítalíu mátti svo seint sem í þessum mánuði henda milljarði evra til að björgunar Popolare di Bari bankanum á Suður-Ítalíu. Þetta er óskráður smá-banki á mælikvarða svo kallaðs banka-bandalags-ESB, og sem þarna er notað eins og kaffærandi og samkeppnisríðandi tröllskessa sem enn á ný er að særa fram vítahring banka-og-þjóðargjaldþrota-spíralsins sem var aðeins fimm mínútum frá því að leggja evruna í rúst fyrir bara örfáum árum. Nú sætir bankastjórnin rannsókn fyrir svindl, á meðan algjör Grikklands-misþyrmandi kjáni úr liði AGS sest við stýrið á ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands ofan í önnur lönd sambandsins í Frankfurt.

Kannski er þetta svar Ítala og flestra annarra landa ESB við Þýskaland-fyrst-stefnu Þjóðverja í Evrópusambands-helvítinu, sem lagt hefur álfuna svo gott sem í rúst.

Og eins og að Þýskaland-fyrst-stefna Þjóðverja í ESB sé ekki nóg, þá er Angela Merkel frá DDR byrjuð að taka stjórnarskrárbundið málfrelsi frá borgunum með því að draga þá fyrir dómstóla ef þeir segja ekki bara það sem henni er að skapi. Þeir sem lenda í því í Þýskalandi að tala gegn vilja þýskra esb-elíta og hafa rangar skoðanir, verður nú þaggað niður í með lögum sem hvergi standast skoðun nema í hinu afdankaða ríki hennar, sem er á leið í enn eitt þjóðargjaldþrotið til viðbótar við hin fjögur.

Nord-Stream2-málið snýst um Þýskaland-fyrst-stefnuna sem landið hefur ávallt viðhaft í Evrópusambandinu og í NATO og í ERM og í EMS. Hún svarar til þess að Donald Trump viðhefði New-York-fyrst stefnu í Bandaríkjunum.

Svo kemur þetta hrúgald af getulausri og ákvarðanatöku-lamaðri DDR-manneskju og kvartar yfir því að Bandaríkin "leiði ekki hinn vestræna heim" í hennar þágu aðeins, en ekki í þágu annarra og að Bandaríkin verði að hugsa allra síst um sinn eigin þjóðarhag af öllum þjóðum jarðar. En öllum ríkjum jarðar ber skylda til að gera það, þ.e. hugsa um sinn eigin þjóðahag fyrst, svo að hún nái ekki að búa til einn allsherjar köngulóarvef úr honum í þágu Þýskalands, aðeins.

Þessi vonlausa gervi-mannesja sem eyðilagt hefur Evrópu mun ekki eiga sjö dagana sæla þegar hún fer frá völdum.  "Hún mun þurfa að flýja til Suður-Ameríku" sagði einn af leiðtogum AfD-flokksins í þýska sjónvarpinu.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2019 kl. 11:23

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já, -

- Talandi um Grikkland, þá leitar það mjög svo stíft þessi árin á náðir Bandaríkjanna vegna nágranna þess, Tyrklands. Staðan þar nágrannanna á milli er orðin þannig að Erdogan Tyrklandsforseti lét tyrkneska flugherinn brjóta lofhelgi Grikklands 70 sinnum á síðustu 30 dögum. Hann flaug inn í gríska lofthelgi 70 sinnum á síðustu fjórum vikum. Ekkert þýðir fyrir Grikkland að leita til truntuverksins í Brussel, sem á dósaupptakara.

Þarna vex og dafnar uppreisnin gegn Evrópusambandinu í Aþenu hvern einasta dag ársins. Angela Merkel hefur þó ekki enn minnst á það við Bandaríkin að þau eigi að leiða hinn vestræna heim í þágu Grikklands, því ekki gerði hún það sjálf þegar þess þurfti, og á meðan hún hafði mikið og stórt tækifæri til þess.

Þess vegna eru tengslin á milli Aþenu og Washington sterkari en tengslin eru á milli Aþenu og Brussel, því Brussel er aðeins pappírsbunki sem kveikja má í um leið og dósaupptakari ESB hættir að opna það sem öll lönd sambandsins sækast eftir: peningum annarra landa sem læstu eru föst við þau með lögunum um súgþurrkun (the cleaners).

Það er hrein firra að Ísland sé á nokkurn hátt bundið þessu illfyglis-viðrini með lögum. Alger firra og tímaskekkja. Þessi lagalegu súgþurrkunartengsl verður Ísland að rjúfa. Strax!

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2019 kl. 11:59

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og til að minna Ísland svona rétt aðeins á jólagjafastaðreyndir ESB; þá er Orkubandalag Evrópusambandsins nákvæmlega eins. Það er súgþurrkun! 

xD hefur sent Ísland til the cleaners => þ.e. Þýskaland fyrst (Ísland síðast).

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2019 kl. 12:26

12 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta breitir engu með lagningu Nordstream II
Gasprom hefur yfir að ráða þremur öðrum skipum sem geata klárað lögnina.
Sama gegnir um Turkstream
Þetta verður væntanlega til þess að eignarhlutur Gasprom eykst í verkefninu.

Hliðarverkanir sem  af þessu verða eru að Evrópubúum er að verða það ljóst að Bandaríkin eru ríki sem best er að hafa engin samskifti við.
Ofbeldi þeirra á sér engin mörk.
Fram að þessu hafa Evrópubúar staðið í þeirri trú að þeir væru einhvernveginn undanþegnir frá efnahagslegu og hernaðarlegu ofbeldi Bandaríkjanna.
Þeir hafa ekki almennilega gert sér ljóst að staða þeirra er nákvæmlega sú sama og ríkja Austur Evrópu gagnvart Sovétríkjunum sálugu.
Þau eru látin í friði ef þau gera eins og þeim er sagt og meðan þau afhenda heimsveldinu aurana sína.
Engin óhlýðni er liðin.
Fyrr eða seinna munu ríki Evrópu rísa upp gegn þessu eins og Pólland gerði forðum. 

Það er þegar farið að tala um Bandarísku "freedom mólicule" sem gereyðingarvopn í Evrópu.Gereyðingarvopn vegna þess að Bandaríska gasið mundi endanlega slökkva á möguleikum Evrópuríkjanna til að taka þátt í samkeppninni á heimsmarkaði.
Gamla hexið Merkel er á útleið ásamt fleiri smámennum og það munu taka við stjórnmálamenn sem leggja áherslu á hagsmuni Evrópubúa frekar en að synda um í Bandarísku mútufé.

Þetta verður bardagi sem verður gríðarlega kostnaðarsamur fyrir Evrópu svipað og þegar þeir undir forystu Sovétmanna losuðu sig undan Nasismanum. Líkt og í seinni heimstyrjöldinni mun Rússland leika aðalhlutverkið í frelsun Evrópu. Eins og Rússland hefur reyndar alltaf gert í gegnum aldirnar en verið illa launað.


Vaxandi ofbeldi Bandaríkjanna stafar ekki af styrkleika þeirra heldur veikleika.
Þetta eru veikburða tilraunir til að halda nefinu uppúr á lokamínútunum.
Líkt og Þýskalnd Nasismans munu Bandaríkjamenn kjósa að fara út með hvelli en hrun þessa heimsveldis er óhjákvæmilegt vegna gríðarlegrar innri spillingar og vegna þess að allt samfélgið er rotið inn að beini.

Á hernaðarsviðinu eru Bandaríkjamenn búnir að tapa fyrir Rússum og það er bara tímaspursmál hvenær Kínverjar ná yfirráðum á Kyrrahafinu. Ekki hvort heldur hvenær.
Það er með öllu óráðið hvaða áhrif þetta mun hafa í framtíðinni ,en eitt er víst að við núverandi ástand verður ekki unað lengur.

Borgþór Jónsson, 23.12.2019 kl. 14:50

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Borgþór.

Mikil er gasleiðsla þín. 

Núlifandi og sálug sovétríki Rússlands líða ekki skort svo lengi sem þau þau hafa menn eins og þig á rússneska þinginu til að impítsa aðalritara þeirra.

Megi Rússalönd allra tíma varðveita þig.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.12.2019 kl. 17:26

14 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það sem ég á við er að ástandið verður að batna.
Það getur ekki gengið svona að allar þjóðir heims lifi í stöðugum ótta við að verða fyrir Bandarískri árás af einhverju tagi.
Að stjórnmálamenn heimsins geti ekki tekið einfaldar ákvarðanir sem eru landsmönnum þeirra til framdráttar af því að þá gætu Bandaríkjamenn misst eitthvað af aurunum sem þeir kúga stöðugt út úr þjóðum heims.

Við getum ekki búið við að Bandaríkjamenn drepi 500 þúsund börn í Íran úr hungri og lyfjaskorti

Við getum ekki lifað við að Bandaríkjamenn séu í stöðugu makki við hryðjuverekalið og eyðileggi þjóðríki og kosti hundruð þúsunda fólks lífið.

Við getum ekki lifað við að Bandaríkjamenn starti stríði í Sýrlandi sem rústar lífi nánast allra landsmanna og drepur 500 þúsund manns.

Við getum ekki lifað við að Bandaríkjamenn komi til valda hryðjuverkalýð í Líbýu og rústi afkomu fólksins þar og valdi hrinu flóttamanna í Evrópu.

Við getur ekki lifað við að Bandaríkjamenn neyði Evrópu við að kaupa gas á yfirverði og valdi þannig aukinni fátækt í löndum Evrópu.

Við getum ekki lifað við að Bandaríkjamenn haldi uppi Nasistum í Úkrinu og hvetji þá áfram við að drepa fólk hvern einasta dag.
Þessi gæludýr Bandaríkjaforseta hóta nú að hengja núverandi Úkrainuforseta í ljósastaur ef hann semur um frið.
Nasistar hafa alltaf verið hrifnir af því að hengja fólk í ljósastaurum af einhverjum ástæðum.

.

Ástandið í heiminum er að mörgu leiti svipað og í aðdraganda Seinni heimstyrjaldarinnar.
Allar þjóðir heims eru að reyna að þóknast Bandaríkjamönnumm til þess að verða ekki fyrir árás.
Þetta er alveg sama ferlið og þegar þjóðir Evrópu voru að reyna að friðþægja Nasista á árunum fyrir stríð.
Þá var það Evrópa,en nú er allur heimurinn undir.

Þetta er búið að standa yfir í tuttugu ár eða meira. Sennilega urðu straumhvörfin þegar Serbía var lögð í rúst á sínum tíma.

Líkt og á árunum fyrir stríð er smá saman að renna upp fyrir fólki að það er ekki hægt að friðþægja fólk eins og það sem hefur stjórnað Bandaríkjunum undanfarna áratugi.
Það er hægt og rólega að renna upp fyrir fólki að þessi óþjóðalýður kemur til með að ofsækja það til eilífðar nóns ef það snýst ekki til varnar.
'I dag er engin þjóð á jörðinn sem litur á Bandaríkin sem æskilega bandamenn og viðskiftafélaga. Bara þjóðir sem eru misundirgefnar.

Og þá hefst fasi tvö.
Nú þegar öllum er ljóst að það stefnir í átök byrjar dansinn við að reyna að komast hjá því að lenda í átökum sjálfur en beina þeimað einhverju öðru ríki.
Kannski í ljósi fyrri tíðar datt Merkel og Makron helst í hug að athuga hvort Putin vildi aftur fórna Rússlandi fyrir Evrópu.
Þau hjúin fóru fræga sneypuför til Pétursborgar í þessum tilgangi.

Putin af sinni alkunnu hæversku benti þeim á að þeir hefðu sjálfir búið til þetta óargadýr á sama hátt og þeir sköpuðu Þýskaland Nasismans og þeir skildu sjálfir ráða niðurlögum þess.
Hann minnti þau á að hann hefði margsinnis varað þau við að svona mundi þetta fara.

Allavega væri lágmark að þeir legðu eitthvað af mörkum í þetta skifti. Það yrði ekki liðið aftur að Frakkar skenktu Þjóðverjum rautt og hvítt með matnum meðan Rússar berðust við SS sveitirnar og Bretar skriðu inn í neðanjarðarbyrgi eins og rottur.

Að  svo mæltu sneri hann í þau öxlinni og skrúfaði frá glænýrri og gljáandi gasleiðslu með vini sínum Xi Liping.

Það er ekki gott að segja hvernig þetta gasleiðslumál fer.
Gasleiðslan verður lögð,þó það verði einhverjar tafir.
Spurningin er hinsvegar hvort Þjóðverjar hafa þor til að skrúfa frá henni. Ég þori ekki að veðja á þau úrslit.
Mér finnst alveg jafn líklegt að þeir taki Chamberlain á þetta og reyni einn ganginn enn að friðþægja ófreskjuna.
Geri þeir það sjá þeir ekki lengur öxlina á Putin,heldur bakið.


Það eru undarlegar sviftingar í Evrópu núna.
Macron hangir nú eins og hundur í jakkalafinu hjá Putin og reynir að fá hann til bandalags við sig.Bandalags þar sem Rússar njóta ekki jafnræðis.
Putin hefur hins vegar engann áhuga á slíku bandalagi. Hann gefur ekki færi á neinu öðru en samvinnu tveggja jafn rétthárra þjóða.
Macron er undarlegur maður.
Merkel situr hinsvegar í fýlu hema af því að Putin neitaði að axla byrgðar Þýskalands.

Hvenær fasi þrú byrjar er ekki gott að segja.
Stríðið er löngu byrjað en Evrópubúar eru ekki að fatta það fyrr en á síðustu mánuðum.
Nú er spurningin hvort þeir kjósa að lyppast niður eins og þeir gerðu gagnvart Nasistum eða hvort þeir munii taka til varna.  

Borgþór Jónsson, 23.12.2019 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband