Laugardagur, 17. október 2020
Hvar eru goðorðin?
Mynd: Fyrrum breskur orrustuflugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í bresku Vickers VC10 farþegaþotunni, sem enn á undir hljóðhraðametið yfir Atlantshaf. Klassi! Allt er hægt, sé viljinn fyrir hendi. Útsölur og uppgjöf eru ónauðsynleg - eins og gerðist þegar Bretland gekk í esb. VC-10 var 50 ár í loftinu
****
Gaman væri að fá að vita hvað alþingi gerði við goðorðin. Hvar eru þau núna? Hver er með þau? Ef enginn er með þau, hvað varð þá um þau? Geta alþingismenn gert okkur í þjóðinni grein fyrir hvar goðorðin eru núna? Hvar eru afsölin og hver var hin þinglega meðferð málsins?
Enn fremur: Hefur verið gerð tilraun til að rukka danska ríkið um þær eigur kirkjunnar á Íslandi sem runnu til danska ríkisins frá og með siðaskiptum? Þarna er um foss fjár að ræða
Hvers vegna hafa alltaf verið til Íslendingar sem vilja koma bæði eigum og réttindum okkar Íslendinga sem þjóðar yfir til útlanda? Ættum við kannski að skipa nýjan og endurmetinn Stóradóm þannig landsölumönnum til höfuðs? Ættum við að gera það?
Og hvað hefur íslenska ríkið gert við þær eigur sem það tók af kirkjunni?
Og þar sem íslenska hagkerfið er í dag stærra en hagkerfi Afganistans, og við það að ná hagkerfum Lettlands og Eistlands að stærð, þá finnst mér stórfurðulegt að við séum að úthýsa og flytja inn fljúgandi varnarlið erlendra ríkja sem sum eru á skallanum til að gæta loftrýmis íslenska lýðveldisins. Það finnst mér stórfurðulegt. Reyndar algerlega óskiljanlegt
Á sama tíma mokar íslenska ríkið út atvinnuleysisbótum í fólk sem misst hefur vinnuna vegna sóttarvarnarleysis Íslands og Stóra-Schengensáttmála. Sumt þetta vel menntaða fólk gæti mjög svo vel hugsað sér að vera í alíslenska flughernum að læra að fljúga okkar eigin orrustuþotum, viðhalda þeim og þjálfa nýtt fólk til starfa þar. Þau störf hverfa aldrei og þau eru öll hátæknistörf
Hugsið ykkur tækniaðföngin sem kæmu inn í landið og settust hér að í stað þess að leka burt úr því (e. technological transfers). Við værum komin með hátæknileg afleidd fyrirtæki í þessum bransa innan 10 ára, eins og við höfum gert svo glæsilega í sjávarútvegi. Og hvar er íslenski hátækni-ullariðnaðurinn og trend-institute Íslands í ullarefnum og ullartískustefnum?
Hvað eru menn að hugsa hér. Hver hefur dæmt okkur samkvæmt þessum aumingjadómi? Ég þekki náttúrlega svarið, en spyr samt
Hvernig væri nú að hysja upp um sig fossríkar brækurnar og hugsa í samræmi við íslenskar aðstæður
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 15. október 2020
Mikið hlakka ég til
Chopin; mynd- og hljóðskreyttur af Miroslaw Szeib og James Last
****
Þá er ég nefnilega ekki lengur einn "í Mossad"
Tralla la la
Vænkast nú hagur okkar sem erum ekki í 300-manna þjóðinni
Áfram með smjörið Margrét, ekki veitir af
Loksins kom góð frétt
-----
Fyrri færsla
Áslaug Arna svipt föðurnafninu? Hvað sagði Sigmundur Davíð?
![]() |
Fjársterkir aðilar koma að nýjum fjölmiðli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 12. október 2020
Áslaug Arna svipt föðurnafninu? Hvað sagði Sigmundur Davíð?
Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þann fyrsta október tvö þúsund ár og tuttugu
****
Það yrði nú saga til næsta barnabæjar í Metoo-Iittala-kristal-vasahnífalandi hinna löngu nátta*, ef að dómsmálaráðherrann Áslaug Arna yrði svipt föðurnafninu, skyldi slettast upp á fjölskyldumálin á þeim bæ. Með þessu áframhaldi hlýtur slíkt að fara að geta gerst. Ætti þá að breyta lögum heils lands hennar vegna?
Verða eftirmæli hennar þau að þar fer Áslaug Arna Sjálfstæðisflokks sem drap dóttir nafn Íslands?
En hvað sagði Sigmundur Davíð um daginn? Jú hann sagði þetta sem þarna sést og er það allt satt og rétt. Takk fyrir að segja þetta Sigmundur Davíð. Við stöndum í þakkarskuld við þig - og hún minnkar ekki heldur stækkar
-----------
* Metoo-hreyfingin sem Áslaug Arna Sjálfstæðisflokkssen gekkst svo mikið upp í á sínum tíma, snérist um að án dóms og laga -svipað og á Kristallnacht- skyldi mannorði og æru fólks fargað og eftirsóttum störfum rænt frá því. Allt saman án dóms og laga. Hreyfingin stöðvaðist hins vegar af sjálfu sér þegar hún snérist gegn fólki í Hollywood og Joe Biden. Þá stoppaði hún, enda komin heim til föðurhúsanna. Á allt þetta hoppaði Áslaug Arna dómsmálaráðherra Íslands
Fyrri færsla
Fréttir og viðbrögð við fréttum [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.10.2020 kl. 06:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Sunnudagur, 11. október 2020
Fréttir og viðbrögð við fréttum [u]
****
Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð
Viðbrögð flestra: "Þetta eru hræðilegar fréttir"
Viðbrögð mín (í plati): Þetta er hræðilegt, en 10 prósent þessara hefðu hvort sem er orðið alkar og önnur sjö prósent dópistar. Og sumir þeirra hefðu meira að segja orðið vinstri grænir eða viðreistir og jafnvel ofvirkir. Margir hefðu látist af slysförum og enn fleiri hefðu orðið feitir. Sumir hefðu meira að segja étið líkama sinn upp í ræktinni og orðið baggi á þjóðfélaginu. Af þessu má læra að fólk á ekki að reyna að lifa sem lengst. Það á að drekka, reykja og dópast á meðan tími er til - og gera það í ræktinni
****
Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð og af þeim voru 1537 persónur yfir nírætt. 2441 persóna var á aldrinum 80-89 ára og 1266 einstaklingar voru á aldrinum 70-79 ára. Alls 409 persónur voru á aldrinum 60-69 ára og 166 persóna var á aldrinum 50-59 ára (heimild)
Viðbrögð flestra: "Nú jæja þetta er þá svona". Nú sleppa allt í einu of margir því að þetta sé "óviðunandi hræðilegt". Nú er þetta allt í einu orðin önnur frétt
Viðbrögð mín (í raun): Þetta er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs. Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð er einnig verstur af þessum fjórum löndum. Langsamlega verstur. Þarna er um pólitískar aðgerðir að ræða. Og hinir látnu eru að of miklu leyti þeir sem byggðu upp heilbrigðiskerfið sem þarna er misnotað í trúarpólitískum tilgangi. Og þetta eru einnig að of miklu leyti þeir sem borgað hafa mest til að halda því uppi. Borgað alla æfi, en fá jafnvel ekkert fyrir peningana
****
Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð og af þeim voru 1537 persónur úr flokki moderata. 2441 persóna voru sósíaldemókratar og 1266 einstaklingar voru úr vinstriflokknum. Alls 409 persónur voru úr flokki græningja og 166 persóna var úr sænska kommúnistaflokknum
Viðbrögð flestra: "Þeir áttu þetta skilið!"
Viðbrögð mín: Það tekur 35 ár að mennta einn sérfræðilæknir. Starfsæfi hans er því stutt og hún er að mestu leyti á efri árum. Er þetta sniðugt? Verðum við ekki bara uppiskroppa með lækna, sé svona mann-flokkun haldið áfram
****
Í engri farsótt síðan 1918 hafa sjúkrahús verið undirlögð flensusjúklingum
****
Þegar við erum komin út í svona mann-flokkun þá mun margur maðurinn hoppa af vagninum og spyrja sjálfan að þessu: Til hvers að borga skatta? Til hvers að reyna að lifa sem lengst? Er ekki bara betra að eiga stutta en "ánægjulega" æfi, en langa og "kvalarfulla"? Það eru svona þankar og hugarfar sem ósjálfkvæmni, ósamstaða og mission creep* stjórnmálamanna koma af stað
****
Lífið býður ekki upp á þann möguleika að allt sé gert í einu og að í forgangsröð aðgerða sé allt sett í fyrsta sætið. Til dæmis þarf að læra að ganga áður en hægt er að hlaupa
Við erum ekki herrar yfir því sem gerist erlendis. En það vill svo til að við erum fullvalda þjóð í okkar eigin landi og höfum þjóðfrelsið til að stjórna því hvað gerist eða gerist ekki í einmitt okkar eigin landi og hvergi annars staðar. Hvernig væri nú að nota fullveldi þjóðarinnar og reyna að stjórna því sem hægt er að stjórna. Við þurfum ekki að lifa með innfluttar veirur svo lengi sem bóluefni við farsóttinni er á tröppunum. Slíkt væri hrein fásinna og mission creep
Uppfært:
HIN EFNAHAGSLEGA HLIÐ MÁLSINS
Allir með bara baun í heilastað vissu (eða áttu að minnsta kosti að vita) í upphafi leiðangurs að ferðaþjónusta við útlendinga væri dauðadæmd og að það væri ekki einu sinni hægt að bjarga henni með því að fórna ýmsu öðru í leiðinni. Því dæmi erum við einfaldlega ekki herrar yfir og verðum aldrei. En restinni af þjóðarskútunni var auðvelt að bjarga og meira að segja að láta hana um að stoppa í verstu götin hjá ferðaþjónustu-geiranum. En það væri hins vegar aðeins hægt, ef að þeim 93 prósentum af hagkerfinu sem ekkert með ferðaþjónustuna hafa að gera, væri haldið heilbrigðum. En jafnvel þarna fóru stjórnmálamenn og embættismenn þeirra inn í spilavíti bankabóluáranna og veðsettu þjóðarskútuna fyrir því sem þá þegar óbjargandi var. Og nú er því, einu sinni enn, allt undir á ný, vegna aulaskapar stjórnmálamanna sem urðu hreinlega að kasta af sér vatni einungis vegna þess að í Evrópusambandinu gegnu menn um með þannig púða framan á maganum. Þetta var sveitamennska af verstu sort og má líkja við spilafíkn day-traders. Tíminn er ekki vinur þannig aðferða. Hann er svarinn óvinur þeirra
Björgunarbátar þjóða eru ávallt þjóðríkið, landamæri þess, fullveldi og sjálfstæði. Notið þá! Það er ekki hlutverk stjórnmálamanna að breyta heiminum. Hlutverk þeirra er að búa þjóðinni örruggan stað i heimi sem alltaf hefur verið og ávallt mun verða hættulegur, og sem ekki lætur breyta sér. Hér eru því "sérfræðingar" og teknókratar algerlega eins og beljur á svelli. Þeir duga ekki til þessa. Duga bara alls ekki, eins og sést
* Að gleyma eða vanrækja upphaflegan tilgang og markmið leiðangurs. Dæmi-1: opna landið fyrir innflutningi Wuhan-veira á meðan lækning er ekki í boði fyrir alla. Dæmi-2: Sjálfstæðisflokkurinn myndi gerast Ósjálfstæðisflokkurinn í praxís (eins og gerst hefur)
Fyrri færsla
ESB brunar fram úr Bandaríkjunum í nýjum smitum [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.10.2020 kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 8. október 2020
ESB brunar fram úr Bandaríkjunum í nýjum smitum [u]
ESB-LEIÐIÐ OG SCHENGEN-FARSÓTTIN
Nú er staðan þannig að ekki þarf nema að leggja saman ný Wuhanveiru tilfelli í Frakklandi, Bretlandi, Spáni, Tékklandi og Hollandi til að fá út 50 þúsund ný tilfelli af Wuhanveirusmitum. Standa þá 207 milljón manns í sex löndum fyrir jafn mörgum nýjum tilfellum og voru í 330 milljóna manna Bandaríkjunum í gær
Boltinn er sem sagt kominn yfir til Evrópu á ný. Hálfleikur er búinn og nú eru það Alapafjöll nýrra tilfella og dauðsfalla sem tekið hafa aftur við, með 73 þúsund nýjum tilfellum í gær á því landakortasvæði sem kallað hefur verið Evrópusambandið Hmpf! Horfur þar eru þær að sambandið mun í fyrsta sinn ekki geta komið sér saman um ný fjárlög fyrir nýtt sjö ára fjárlagatímabil sem er að hefjast núna. Löndin eru á skallanum vegna esb-aðildar og upptöku evru. En ekki nóg með það, þá er afar líklegt að svo kallaður "björgunar og endurreisnarpakki" sambandsins sem skálað var fyrir í sumar, muni ekki koma til framkvæmda nema að litlu leyti og enda sem hálf liðið lík í höndum þeirra villimanna sem héldu að hugmyndin um Evrópusambandið gæti orðið eitthvað annað en tortímandi slæm að næstum öllu leyti
ÞÝSKA "LEIÐIN"
Þýskaland sem lifað hefur hátt á lágum smittölum og dauðföllum í Austur-Þýskalandi, sá tölur Vestur-Þýskalands og Berlínar skyndilega þrusast upp í fjögur þúsund ný smit í gær. Enginn ferðamaður kemur til Austur-Þýskalands, fólkið er fátækt, á engin börn og kann enn að hlýða og blanda sér ekki í það sem Stasi sagði að kæmi því ekki við. Yfirvöld í Rostock fengu meira að segja símtal frá yfirvöldum í Brasilíu sem spurðu "hvernig fóruð þið að þessu". Hugsa ég að hinn íslenski ferðamálaráðherra Wuhan-veiru-útbreiðslunnar hér á landi hringi því ekki þangað
Sjá grein WSJ síðasta laugardag: Covid-19 Sparks New East-West Divide in Germany - 30 Years After Reunification
SÆNSKA "LEIÐIN"
Þetta var sem sagt "þýska leiðin" - sem nú virðist hafa tekið við af "sænsku leiðinni" þar sem dauðsföllin af völdum Wuhan-veirunnar eru orðin 5892 í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar, sem er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs. Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð á öðrum fjórðungi ársins var einnig sá versti af þessum fjórum löndum, eða -8,6 prósentur. Aðeins Ísland er með meiri samdrátt þegar um Norðurlöndin fimm er að ræða. Hér var hann -9,1 prósenta eða álíka og í Svíþjóð, og er það fyrst og fremst frummanna-fyrirferð gjaldþrota-geira ferðaþjónustunnar að kenna, sem þegar var komin á hausinn um síðustu áramót og aldrei hefur átt krónu eiginfjár né þénað túkall og er því í engu standi til að fjárfesta í sjálfri sér. Bönkum munu blæða
TYRKNESKA "LEIÐIN" (ja hérna)
Síðan er það "tyrkneska leiðin" en hún felst í því að Erdogan er svo gott sem búinn að koma því landi á hausinn og vantar erlendan gjaldeyrir því svo margir bankar landsins liggja nú gjaldþrota. Ætlast er til að bláeygt fólk fylgi nú vísindum Tyrklands að málum. Er þetta ekki sprenghlægilegt? Jú þetta er jafnvel enn hlægilegra en finnska leið Jóhönnustjórnarinnar. Rassakastast Erdogan forseti nú vítt og breitt með jóreyk um Miðjarðarhafið til að reyna að breiða yfir getuleysið á heimavelli (rússneska leiðin)
Uppfært 8. október kl. 22:22
MEÐ KVÖLDKAFFI ÍHALDSMANNA: HLAÐVARP VIKUNNAR
Victor Davis Hanson um kappræður Trumps við þáttarstjórnandann og Biden
Nánar eftir sama mann sagnfræðinnar: The Full Crowley og Trump, Escaping Wile E. Coyotevirus
Það er umhugsunarvert hversu margir snobbarar hafa dæmt fyrstu kappræður Trumps og Biden sem misheppnaðar - og vitna í því tilliti stundum í fyrirbæri sem kallað er "stjórnmálaskýrendur á einu máli". Þeir menn skýra ekkert og tala við enga og til engra nema spegilmynda sinna. Þeir gátu hvorki skýrt né greint bandarísku forsetakosningarnar 2016, né það að Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu nokkrum mánuðum áður. Þetta fyrirbæri, "stjórnmálaskýrendur", vissu ekkert um þau mál. Og þeir vissu heldur ekki neitt um að Sovétríkin myndu hætta að vera til nokkrum mánuðum eftir að þeir þóttust vit allt um það mál. Ekkert er til dæmis að marka þá sem koma fram í DDRÚV sem sérfræðingar í stjórnmálum. Þeir eru engir sérfræðingar í neinu nema að villa á sér heimildir
Þessi tölvupóstur frá WSJ var mér afhentur rétt í þessu kl. 23:38. Hvílík vonbirgði fyrir Demókrata. Hefst nú eltingaleikurinn við Trump á ný, og hann aldrei hressari en nú
Fyrri færsla
Hertar hertar aðgerðir: Ferðamálaráðherra stungið inn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.10.2020 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. október 2020
Hertar hertar aðgerðir: Ferðamálaráðherra stungið inn?
Sjálfkeyrandi strætisvagn. Tækni framtíðarinnar kynnt. Rauða hagkerfið 1976 f.M. Frelsarinn Margrét enn ókomin
****
Allar Wuhan-veirur á Íslandi komu frá útlöndum. Allar
Ferðamenn bera veiruna milli landa. Allar
Búið var að skrúfa fyrir það innstreymi Wuhanveira til Íslands snemma í sumar
Það hjálpaði
En þá skrúfuðu örvita ferðamálaráðherrar aftur frá
Og viti menn, nýjar birgðir bárust til landsins - með ferðamönnum
Ég veit að þetta er flókið
Þeir sem tapað hafa þræðinum byrji vinsamlegast aftur á línu eitt
Til að skapa trúverðugleika* gæti ríkisstjórnin sett tölvu í að annast málið
Það er líka ódýrara
Niðurniðurstaða; allar Wuhanveirur koma frá Kína. Þúsund milljón smita herferð hófst með einni Wuhanveiru í Kína
Flókið
Rosalega
* ekki það sama og trúðverðugleiki
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.10.2020 kl. 07:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sunnudagur, 4. október 2020
Bardagahlé Trumps [u]
Uppfært kl 23: Trump sendi skilaboð til stuðningsmanna sinna frá sjúkrahúsinu áðan - stökk síðan út í bíl og keyrði út til þeirra. Eins og er lítur því út fyrir að um örstutt bardagahlé sé bara að ræða. Froðufellir líklega fjölmiðlaveldi Demókrataflokksins heldur betur núna. Og mun CNN-blaðran örugglega ganga hraðast á munnvatnshafi þess
****
Nú gefst kjósendum Bandaríkjanna tækifæri á að lifa án Trumps í nokkra daga. Þetta er stórkostlegt áfall fyrir samsteypu fjölmiðla og gáfumanna vinstrisins, sem lifað og dregið hefur andann á persónu Donalds J. Trump í bráðum fjögur ár
Kjósendur geta allt í einu skoðað hug sinn og velt fyrir sér hvort að flytja eigi til dæmis sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael frá Jerúsalem til baka til Tel Aviv. Þar átti nefnilega allt að rjúka í bál og brand. En ekkert gerðist og ekkert haggaðist - nema til hins betra
Og ættum við kannski að fella tollana á Kína niður og halda áfram að fossa bandarískum auðæfum og störfum yfir til kínverska kommúnistaflokksins?
Ættum við kannski að byrja að strjúka kínversku kommúnistunum um bakið á ný, með yfirsérfróðum sérhræðum vestrænna friðþægingaraumingja, þ.e. líberalista í ánauð glóbalkirkju hnattrænna framleiðslu-keðju-fræða? (háskólaþvaðrið)
Ættum við kannski á ný að taka upp Obama-stuðninginn við kjarnorkuvopnasmiði klerkaveldis Írans? Stakkels þeir, lítið sem ekkert nema óseld olía til drykkjar þar núna
Og ættum við á ný að hefja peningasendingar til Palestínumanna og vinda ofan af friðarsamkomulagi Arabaríkja og Ísraels? Er það ekki?
Hvað með Úkraínu? Ættum við að hætta Trump-stuðningi við þá og kannski að draga úr vörnum gegn Pútín-genginu í Austur-Evrópu?
Og ættum við kannski að skila því aukna NATO-framlagi sem Trump tókst að pína upp úr þýsk-evrópska öreigafélaginu í útópíuklóm evru og elíta esb?
Síðan er það Norður-Kórea sem nú bítur gras og þegir sem steinn á síðustu metrunum. Ættum við að halda áfram að láta það félag brjálæðinga pína út úr okkur fjármuni bandarískra skattgreiðenda og aðstoða þá þar með við að koma sér upp kjarnorkuvopnaeldflaugum sem miðað yrði á Oregonríki Demókrata?
Nú hafa bandarískir kjósendur nokkra daga til að íhuga þetta. Nú geta þeir loksins horft til himins og skoðað möguleikana sem felast í Demókrataflokki- dauða og eyðileggingar, þar sem kveikt er í bandaríska fánanum og forseta landsins óskað skilvirkum dauða
Efast ég stórlega um að bandarískur almenningur sé jafn heimskur og samsteypa fjölmiðlahóruhúsa- og gáfumanna vinstrisins. Hann var það að minnsta kosti ekki síðast þegar kosið var
"Kosningar hafa afleiðingar" voru inngangsorð Trumps í kappræðum síðustu viku. Standa þau orð væntanlega meitluð í vitund bandarískra kjósenda næstu vikurnar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.10.2020 kl. 02:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 1. október 2020
Tek undir með Sigmundi Davíð
Slagandi (wobbly) stjórnmálamenn, ráð- og álitsgjafar hafa alltaf verið til. Margrét var bara ekki einn af þeim
****
Mikið er ég sammála Sigmundi Davíð í því sem hann segir í viðtengdri frétt
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að danska Socialdemokratiet (S) með Bjarna Nyrup Benmussen í brottfararbroddi
Samfylkingin er því orðin að danska Socialistisk Folkeparti (SF)
Alþýðubandalagið er orðið trúfélag Vinstri grænna, þ.e. Lenín-legudeildin, grænt ríkislík
Framsóknarflokkurinn er orðinn Kolbeinseyjarflokkurinn, sem veit ekki hvort hann er að farast eða ekki. Það fer eftir næstu undiröldu og uppfyllingartilefninu sem ef vel viðrar kastað er niður til hans
Viðreisn er danska Radikale Venstre (B), rassasleikjuflokkur ESBista (sbr. Danmörk er bóla á rassi Þýskalands)
Píratar eru hin OSS-kerfis-dellu-kalla-stafræna útgáfa Danmarks Kommunistiske Parti/Marxister-Leninister (DKP/ml). Karlar Marx með tölvur sem keyra á stýrikerfi gratís-geirans (fá hvergi vinnu vegna Oasis-aumingjalegs-útlits og karlkerlingar-hugarfars). Tölvugáfumennin
Þetta er átakanlegt...
Fyrri færsla
Bardagastöðin Trump í gærkvöldi
![]() |
Stefnumál ríkisstjórnarinnar fáránleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.10.2020 kl. 02:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Miðvikudagur, 30. september 2020
Bardagastöðin Trump í gærkvöldi
BARDAGASTÖÐIN TRUMP
Ræst var bardagastöðin Trump í gær. Þetta er hljóðmerki hennar. Átta hundruð skot á mínútu, hvorki meira né minna
****
Joe Biden mun að mínu mati ekki hafa sannfært marga óákveðna um að einmitt hann hafi styrk og hugrekki til að vera rétti maðurinn í Hvíta húsinu á erfiðum tímum. Það held ég ekki
Skattamálin afgreiddi Trump með því að segja við Joe Biden; "þetta er skattakerfið sem þú sendir mér. Á ég kannski ekki að fara eftir því og nota það?"
Trump fyrirtækið er 400 fyrirtæki svipað og bóndi sem rekur 400 sauði á kennitölu sjálfs síns öll í persónulegri eigu hans sjálfs og þar af bera 200 fjölskyldunafnið Trump. Persónan Donald Trump er Trump-fyrirtækið. Amma hans og afi stofnuðu fyrsta hluta þess og Donald tók við því 1971. Hvernig ætti að vera hægt að afgreiða skattamál mannsins í einni setningu? Það er auðvitað ekki hægt, og þess vegna kom New York Times með skattamál Trumps nokkrum dögum fyrir kappræðurnar, sem sumir vilja greinilega ekki að séu háðar af kappi, heldur af ókappi
En Donald J. Trump kann ekki ókapp. Vita menn það kannski ekki enn. Læra menn aldrei neitt?
Já þetta er skattakerfið sem Joe Biden vann við að búa til í 46 ár - og svo er hann að kvarta yfir því að það sé notað eins og til er ætlast. Bara aular í rekstri nota ekki þann frádrátt sem hægt er að fá, sagði Trump, og er það rétt í raunheimum hjá honum - og öllum öðrum
Trump á hinn bóginn er sá maður sem standa mun einn gegn Kína, gerist þess þörf - og hafa betur!
Aldrei að gefast upp. "Never give in", er mottó hans. Og það gerði hann heldur ekki í gær, og engan dag síðustu fjögurra ára
HIN EKTA VARA
En hér eru kappræðurnar. Bandaríkjamenn fengu ósvikna vöru fyrir peningana. Já, ósvikna vöru sem endurspeglar tímana sem fylgja því að hið pólitíska fyrirkomulag sem komst á í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar á endastöð sína er komið
Fyrstu kappræður Trumps og Biden 2020. Þær hefjast á 27. mínútunni
Fyrri færsla
Stuttar fréttir: Norwegian á leið í þjóðnýtingu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 29. september 2020
Stuttar fréttir: Norwegian á leið í þjóðnýtingu?
NORSKA FLUGFÉLAGIÐ
Breska Telegraph skrifaði í gær að norska lágfargjalda-flugfélagið Norwegian Air og norska ríkisstjórnin sitji nú og ræði enn einn björgunarleiðangur til handa flugfélaginu, eftir að í ljós er komið að björgunarhringurinn frá því í mars dugði ekki. Flugfélagið er samt sökkvandi og sekkur dýpra og dýpra. En þá kom norska ríkið um borð með því skilyrði að lánadrottnar breyttu útistandandi þeirra í hlutafé. Í þetta sinn, segir blaðið, munu eftirlifandi hluthafar verða þvingaðir til að koma með meira fé, vilji þeir komast hjá því að norska ríkið þynni núverandi eignarhlut þetta með því að hella ríkisfé út í pottinn. Segir blaðið að norska ríkisstjórnin vilji frekar bjarga Norwegian en SAS. Norska ríkið seldi hlut sinn í SAS 2018 og haft er eftir manni sem vit á að hafa á flugi þess félags, að brottför norðmanna einfaldi dansk-sænska björgun á SAS. Alls staðar er verið reyna að bjarga því sem bjargað verður af þjóðfélagslega mikilvægum flugrekstri ríkja
Eignarhluturinn í Norwegian kostaði 212 norskar krónur í mars 2016. Í dag kostar hann 92 norska aura. Langt er síðan að slík loftkryppa hefur sést rétta úr sér og verða lágrétt núlllína við hálsbaug á eins stuttum tíma. Hófst hún 2004
MS ESTONIA - SJÓSLYSIÐ 1994
Fréttir frá Svíþjóð sega að menn hafi nú fundið 2x4 metra stórt gat á hlið hinnar sokknu ferju MS Estoina. En hún sökk mjög svo hratt og skyndilega um miðja nótt í september 1994, með þeim hryllilegu afleiðingum að 852 manns drukknuðu. Gatið ku vera nálægt vélarrúminu á stjórnborða og fyrir neðan sjólínu. Sænsk yfirvöld þegja enn sem komið er eins og steinn um málið. En það gera Eistlendingar hins vegar ekki. Fyrrverandi saksóknari í Eistlandi segir að allt bendi til þess að sænskur kafbátur hafi sökkt ferjunni með ásiglingu. Fria Tider segir að sænska ríkisstjórnin hafi gert allt til að þagga bæði rannsóknina á sjóslysinu niður og reynt að hylja gatið með 400 þúsund rúmmetrum af grjóti og steypu, jafnvel áður en rannsókn var lokið. Hefur skipið nú flutt sig á sjávarbotninum, enda engin smásmíði
SPÁNN
Héraðsstjórnir á Spáni neita nú að hlýða spænsku ríkisstjórninni í Madríd í Wuhanveirumálum. Sjálfsstjórnarhéraðið Madríd segist ekki ætla að hlýða ríkisstjórninni í sóttvarnarmálum, en Madríd er með verstu þróun í smitklakningu í Evrópu, segir El País. Svipað hefur gerst í Frakklandi. Það er ekki bara í Stóra-Bretlandi að hinir og þessir ásaki ríkisstjórnina um stjórnleysi í sóttvarnarmálum. Bæta má sennilega Íslandi við á þann lista hvað úr hverju. Ríkisstjórninni hér er að takast að gera landsframleiðsluna að skafmiða-happdrætti og jólin að tapshátíð. Skafið er daglega af landsframleiðslu Íslands með plakatdrengs-dekri, vonlausum og gersamlega óraunhæfum ferðaþjónustudraumum ríkisstjórnarinnar, sem er í 2007-afneitunarástandi. Sjö daga meðaltal Wuhanveiru-dauðsfalla á Spáni hefur nú fimmtíufaldast á síðustu átta vikum
Orðið sóttvarnir er dregið af orðunum farsóttir og varnir. Ekkert orð er til sem heitir sótt-stjórnun né sóttsókn, því þá væri nú þegar búið að þurrka Kína út. Að koma í veg fyrir að farsóttir nái til þjóða og ættbálka er því markmið sóttvarna. Allir dýralæknar vita það. Þess vegna erum við með sóttvarnargirðingar
TRUMP OG NEW YORK TIMES
Donald J. Trump er enn og aftur með nafnlausum heimildum og engum sýndum gögnum ásakaður um að vera svín. Svo mikið svín að fjölmiðlar háskattalanda Skandinavíu segja og skrifa hann mannætu. Nýjasta herferð New York Times gegn þeim lesendum sem enn halda blaðinu uppi, gengur út á að sanna fyrir kjósendum að Trump sé svín og ónýtur sem atvinnurekandi og athafnamaður á byggingar- og fasteignasviðinu. Segir blaðið Trump ekki hafa borgað alríkisskatta því allur rekstur hans sé í bullandi og krónísku tapi. En það gengur víst ekki upp, því blaðið segir í sömu falsfrétt að Trump hafi svikið alríkisstjórnina um glommu af skattgreiðslum. Bæði getur einfaldlega ekki verið satt. Eitt útilokar annað. Engar fréttir voru úr nafnlausum heimildum New York (old) Times um greiðslur frá Rússum, eins og blaðið hefur haldið fram. En Rússi hefur verið undir hverju síðunúmeri blaðsins í bráðum fjögur ár. Og ekkert hrópaði blaðið heldur upp um "mútugreiðslur" til hinna og þessa úr reikningshaldi Trumps, þar á meðal til fröken Hrossfés (e. horse face) sem hann átti að hafa greitt
Skattareglur bandaríska alríkisins gefa mönnum og fyrirtækjum kost á að flytja frádrátt vegna taps á milli ára yfir á allt að 18 ár, og þannig er ljóst að Trump þénaði það mikið á tímabilinu frá 1995 til 2005 að hagnaðurinn dugði til að nýta sér (skattalega) milljarð dala tap sem hann varð fyrir er fasteignamarkaður New York borgar hrundi. Sé enginn hagnaður, er ekki hægt að nýta sér frádrátt vegna taps. New York Times lætur þess heldur ekki skilgetið að Amazon sem á Washington Post greiddi enga alríkisskatta síðustu tvö árin. Tapið þar er víst svo mikið, en þó af ástettu ráði. Þó er Amazon ekki í byggingar- og fasteignabransanum, sem þekktur er fyrir að burðast með háan vaxta- og fjármögnunarkostnað, sem hægt er að dreifa á mörg skattaár, og er það eitt af því sem gerir mönnum yfir höfuð kleift að hafa þann bransa
SAMT NÝTT
En að öðru leyti eru þetta samt nýir og fljótandi kjötbitar á bandarísku kommasúpunni, því að í síðustu kosningabaráttu sögðu Demókratar og hinn firrti Hillary frambjóðandi þeirra, að Trump hefði ekki byggt neitt. Þú byggðir þetta ekki "You did not build that", sögðu þeir þá. Trump hélt nefnilega hvorki persónulega um skófluna né var kranamaðurinn sjálfur. Þú byggðir þetta því ekki, sagði hún
Fyrri færsla
"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 0
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 178
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 103
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008