Leita í fréttum mbl.is

Áslaug Arna svipt föðurnafninu? Hvað sagði Sigmundur Davíð?

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þann fyrsta október tvö þúsund ár og tuttugu

****

Það yrði nú saga til næsta barnabæjar í Metoo-Iittala-kristal-vasahnífalandi hinna löngu nátta*, ef að dómsmálaráðherrann Áslaug Arna yrði svipt föðurnafninu, skyldi slettast upp á fjölskyldumálin á þeim bæ. Með þessu áframhaldi hlýtur slíkt að fara að geta gerst. Ætti þá að breyta lögum heils lands hennar vegna?

Verða eftirmæli hennar þau að þar fer Áslaug Arna Sjálfstæðisflokks sem drap dóttir nafn Íslands?

En hvað sagði Sigmundur Davíð um daginn? Jú hann sagði þetta sem þarna sést og er það allt satt og rétt. Takk fyrir að segja þetta Sigmundur Davíð. Við stöndum í þakkarskuld við þig - og hún minnkar ekki heldur stækkar

-----------

* Metoo-hreyfingin sem Áslaug Arna Sjálfstæðisflokkssen gekkst svo mikið upp í á sínum tíma, snérist um að án dóms og laga -svipað og á Kristallnacht- skyldi mannorði og æru fólks fargað og eftirsóttum störfum rænt frá því. Allt saman án dóms og laga. Hreyfingin stöðvaðist hins vegar af sjálfu sér þegar hún snérist gegn fólki í Hollywood og Joe Biden. Þá stoppaði hún, enda komin heim til föðurhúsanna. Á allt þetta hoppaði Áslaug Arna dómsmálaráðherra Íslands

Fyrri færsla

Fréttir og viðbrögð við fréttum [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Puntudúkkur Sjálfstæðisflokksins

flytja boðskap samfylktra viððreisnarpírata

af meiri hind en ratarnir sjálfir.

Stefna Sjálfstæðisflokksins, í praxis,

er að aðlaga sig algjörlega að þeim

og verða hinir fullkomnu libbar og lybbar

í settinu hjá xD Gísla Marteini DDRÚV. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.10.2020 kl. 23:14

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Takk fyrir þessa færslu og ekki siður að birta ræðu Sigmundar sem ég var búin að klippa út en tiltektin fargaði henni.En "fyrst ég annars hjarta hræri,helst ég mér að lifa kýs"; í paradísinni okkar þótt umsetin sé her andstyggilegra alþjóðasinna.- Þar með sendi ég þér og þínum baráttu kveðjur. Til sigurs lýðveldi Íslands.      

Helga Kristjánsdóttir, 12.10.2020 kl. 23:39

3 identicon

Á vakt Sjálfstæðisflokksins 

hefur aldrei verið tekið við fleiri

hælisleitendum. 

Íslenskum mannanöfnum, þjóð, tungu og sögu

skal fórnað af Sjálfstæðisflokknum,

allt til að þóknast ESB.

Sjálfstæðisflokkurinn gerir allt

til að þóknast þeim sem aldrei munu kjósa hann.

Þannig mun hann tortíma sjálfum sér.

Undir forystu Bjarna, Gulla og puntudúkkanna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.10.2020 kl. 23:45

4 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn

eins og Sigmundur Davíð segir réttilega

þægasti krakkinn á upptökuheimili ESB.

Frábær samantekt þar um, í ræðu Sigmundar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.10.2020 kl. 23:57

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir, Símon Pétur og Helga.

Rögnvaldi Reagan hefði ekki litist á Sjálfstæðisflokkinn núna. En hann kom og endurskilgreindi tengsl ríkisins við bandarísku þjóðina og tengsl hennar við ríkið. Hann afnam það ofríkis hlutverk sem Roosevelt (FD) hafði sett ríkinu á válegum tímum. En Rögnvaldur gerði það hins vegar ekki með því að ráðast á og níða niður hefðir, sögu og arfleið þjóðarinnar. Hann var nefnilega ekki plebbi og lagði mikla rækt við það sem bandarískt var. Og nú er Trump að endurskilgreina tengsl ríkisins við sjálft sig. Allt að gerast þar - og Bandaríkin fyrst í þeim málum eins og venjulega (FIFO).

Sósíaldemókrataflokkur Sjálfstæðisflokksins er heldur betur búinn að gera í buxurnar eftir að Davíð fór. Og lyktin er hreint út sagt hræðileg.

En nú er kominn nýr Davíð. Guði sé lof. Og hann er hér, en ekki þar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 00:28

6 identicon

Við erum stakstæð eyja norður í Ballarhafi,

og eigum þannig okkar náttúrulegu landamæri

en Björn Bjarnason vill að ESB Schengen ráði þeim.

Hann, eins og Bjarni, Gulli og puntudúkkurnar

vinna markvisst áfram að því að vega niður réttindi okkar frumbyggjanna sem þraukað höfum hér í 1150 ár.  Aðför Sjálfstæðisflokksins að okkar örþjóð og landi er svívirðileg, hún er níðingsleg!

Hver sá/sú sem kýs þessa svívirðu í næstu kosningum hatast við íslenska þjóð, sjálfstæði og fullveldið. 

Megi þeir, sem það gera, skammast sín að eilífu!

En nú eigum við, hinir sönnu sjálfstæðismenn, okkar flokk, Miðflokkinn og Sigmund Davíð fyrir formann.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 01:00

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

... Og er það ekki dálítið merkilegt að Guðlaugur Þór utanríkisráðherra úr xD-Sósíaldemókrataflokknum skuli nú stunda ofsatrúboð erlendis, á meðan svo gott sem bannað er að kynna kristni fyrir sonum og dætrum Íslands á Íslandi.

Hann heldur greinilega að það sé hlutverk þjóðkjörinna stjórnmálamanna að bjarga heiminum. En það er það ekki. Hlutverk stjórnmálamanna er að búa þjóðinni öruggan stað i heimi sem alltaf hefur verið og ávallt mun verða hættulegur, og sem ekki lætur breyta sér. Lemur Guðlaugur Þór nú höfði sínu við plánetuna.

Er þetta ekki dæmigert fyrir glóruleysið innanborðs í þeim flokki. Hver ömurlegur og glórulaus maðurinn fer þar við annan. Maður trúir vara sínum eigin augum.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 01:04

8 identicon

Dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins vill auka libba frelsi flokksins hvað mannanöfn varðar svo Gulli geti skipt um nafn og heitið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og stundað vöfflubakstur í Brussel, og hjá glóbalhirð SÞ, með alþjóðarembu ybba sullumbulli júró búrkrata kommanna.

Sjálfstæðisflokkurinn,

flokkur brusselskra glóbalista sem vill útrýma öllu því sem er íslenskt, þjóð, hefðum í aldanna rás, sögu, menningu og tungu og selja landið og auðlindir til Ratcliffe og viðlíkra ómenna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 01:26

9 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn,

flokkur samfylktra viðreisnar pírata

undir formennsku Bjarna, Gullu S. Gísladóttur,

Háslaugar Brennivíns frá Búðum og Þórdísar Reykás.

Gjöriði svo vel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 01:39

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og eftir að Guðlaugur Þór studdi fóstureyðingarlög Katrínar Jakobsdóttur, sem vildi helst að heimilt yrði að lífláta börn fram að fæðingu, þá segir hún nú að rétturinn til lífsins sé ofar öllu.

Því er ég auðvitað sammála. En hefði þá ekki verið hægt að láta þann rétt gilda einnig fyrir þá einstaklinga sem enn eru í móðurkviði?

Eða er það hin gamla stefna Demókrata sem á að ráða hér. En sem talsmenn þrælahaldara sögðu þeir á sínum tíma að svertingjar væru bara 1/3 manneskjur.

Er ekki mótsögn í þessum meira eða minna sovésku kennisetningum hjá sértrúarfélagi Katrínar forsætisráðherra og Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra? Og ef mig minnir rétt studdi Áslaug Arna þessa sérauknu líflátsheimild forsætisráðherrans líka.

Hvernig ber að skilja þetta?

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 03:12

11 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er ekki allt slæmt við þetta frumvarp. T.d. mun það heimila fólki að taka upp eins mörg mörg nöfn og það vill.

Ég gæti þá tekið upp nöfnin Nikulás Örn Lárus Davíð Reynir Ari Rúnar Ingólfur Njáll Narfi, Skammstafað NÖLDRARINN

Hvernig þjóðskrá mun síðan leysa þann vanda að skrá þetta í sínar bækur er svo annað mál enda tölvukerfið hjá þeim frá 1980 og býður einungis upp á örfá stafabil í sínu skráningarkerfi.

Gunnar Heiðarsson, 13.10.2020 kl. 08:20

12 identicon

Í ískaldri alvöru, það er skelfilegt

hvernig komið er fyrir Sjálfstæðisflokknum.

Algjörlega skelfilegt.  Með þessa forystusveit

er mér ómögulegt að skilja hvernig nokkur

heiðarlegur sjálfstæðismaður, sem þykir vænt

um sögu og menningu lands og þjóðar,

geti annað gert en styðja flokk Sigmundar Davíðs.

Hann ber af öðrum stjórnmálaforingjum hér á landi

og virðir öll helstu grunngildi sjálfstæðismanna. 

Enda hataður af júró krata kommastóði DDRÚV.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 11:51

13 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Merkilegt að mannanafnahefðin hér skuli hafa haldið sér í þúsund ár án mannanafnanefndar. Jafn merkilegt og að fólk skuli tala íslensku hér þótt það vanti alveg lög sem banna fólki að viðlögðum sektum að tala önnur tungumál innanlands.

Þorsteinn Siglaugsson, 13.10.2020 kl. 12:24

14 identicon

Talarðu einnig fyrir fleiri hælisleitendum,

og ESB stofnanavæðingu, Þorsteinn?

Skilurðu ekki að nú eru 20-25% þeirra

sem búa hér útlendingar.

Heldurðu að glórulaus libba kratismi

ESB sinnanna

muni engar afleiðingar hafa?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 13:04

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Gunnar nafni

Merkilegt að þessi fíflagangur turnheimskunnar í Valhöll skuli ekki líka eiga að gilda um kennitölur. Að fólk geti bara valið sér hvaða kennitölu sem er. Af hverju skyldi það nú vera þannig?

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 17:10

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Þorsteinn.

Ég hef tekið eftir að flest virðist koma þér algerlega á óvart. Ég vona að þú yfirgefir ekki þennan heim þannig, þ.e. eins tómur að innan og þegar þér var heimilað að koma í hann - sem Íslendingur.

Taktu eftir að nokkuð örugg landamæri Íslands í þúsund ár er það sem olli því að hér varð til tungumál sem er okkar eigin menning og engra annarra. Henni viljum við halda, því það er hún sem gerir okkur að þjóð og það er hún sem gerir Ísland að okkar eigin landi.

Við viljum halda þeirri reglu. Og því fleiri nýjar reglur þurfum við því harðar sem sótt að okkur með nýjum  aðferðum.

Já, því fastar viljum við halda menningu okkar, því meira sem sótt er að okkur með því að brjóta niður þau landamæri sem skilgreint, skapað og verndað hafa tilvistarrýmið fyrir okkur sem Íslendinga og þjóð.

Ef þú villt ekki áfram vera einn af okkur þá er þér frjálst að fara og taka upp tungumál, siði, menningu og trú annarra þjóða, vilji þær yfir höfuð hýsa þig. Kannski kæmi þér líka flest á óvart þar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 17:22

17 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

 Ég get skipt um kyn ef mér sýnist en ég get ekki skipt um litaraft og breyst í lesbíuna Guyana Xelence - mér finnst það vera ofbeldi!

:D

Guðjón E. Hreinberg, 13.10.2020 kl. 19:32

18 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

--- leiðr - "svörtu lesbíuna"

Guðjón E. Hreinberg, 13.10.2020 kl. 19:33

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðjón.

Það sama er að gerast hér og gerst hefur í Bandaríkjunum: Stjórnmálastéttin og embættismenn hennar hafa ekki minnstu hugmynd um hversu heitt og innilega þeir eru fyrirlitnir af stærstum hluta þjóðarinnar.

Þjóðir eru víða orðnar svo hrikalega klofnar vegna 30 ára dugleysis-ágangs þessara stétta, að stjórnmálastéttin og embættismenn tala ekki við neina aðra í þjóðinni en spegilmyndir sínar.

Þess vegna kallaði bandaríska þjóðin á utanaðkomandi mann til að taka þetta samfélag embættis-pólitískra ruslatunna í gegn.

Hér þarf heldur betur að taka til. Það samfélag pólitískra ruslatunna sem ber svona þvætting eins og þennan sem Áslaug Arna ber á borð fyrir þjóðina, þarf að taka í gegn.

Eitt af því mikilvægasta sem gerir land stjórntækt (e. governable) er tungumálið og traust manna á milli. Ekkert traust getur orðið né myndast sé ekki staðinn vörður um það sem sameinar þjóðina. Tungumálið verður að varðveita og hefðir þess líka: allar.

Út með þetta rusl.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 20:32

20 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Hafðu bestu þakkir fyrir skrifin sem eru mjög góð,og gestir þínir góðir líka fl.....

Sigmundur stendur upp úr þarna á alþingi,en þá koma úlfarnir.

Sigmundur og hans lið á nóg af skotfærum,til að sópa þessu rusli ÚT.

Óskar Kristinsson, 13.10.2020 kl. 21:56

21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Óskar.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.10.2020 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband