Sunnudagur, 27. september 2020
"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]
Þetta er að minnsta kosti rétt hjá Sigmundi Davíð, þegar atburðir síðustu daga eru skoðaðir, plús nær allt núverandi kjörtímabil xD, plús öll árin frá því að núverandi Bjarni Benediktsson varð formaður þess flokks
Og jafnvel enn dapurlegra er að hugsa til þess að fráfarandi Þorgerður varaformaður xD hefur sennilega alltaf verið eins konar fjölbreytileikkona þar, ásamt Benedikt úr sömu ESB-skúffu, og sem bæði og samstíga virðast komin inn í forstofu líberalismans inn í marxisma; sjá "vinstri velferð" hirt upp úr vösum hægrimanna, sem var slagandi orð hennar og hans upp að altari marxismans fyrir síðustu kosningar
Hvenær skyldi Bjarni hoppa af og yfir til þeirra? Hann þyrfti meira að segja varla að hoppa, því hann hefur séð til þess að xD liggi lágt og rísi ekki. Gæti jafnvel bara labbað yfir. Enginn tæki að minnsta kosti eftir neinu þegar hann opnar munninn næst
Hvað er þá eftir af xD? Ekki mikið, eða eins lítið og við sáum á humarveislunni í fyrradag í því sem áður var dómsmálaráðuneytið. Hvílík hneisa, stjórnleysi, lögleysi og aumingjaháttur. Svona er þetta því miður búið að vera hjá Sjálfstæðisflokknum frá því að Bjarni Benediktsson og lið hans tók við
Bless Evrópa og dead-cat-bouncing Kína, er eiginlega það sem hægt er að lesa út úr þessu öllu. Sérstaklega þegar lesnar eru nýjustu viðbæturnar við þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna; Western Hemisphere Strategic Framework. En þar segir að frá og með nú sé það fyrst og fremst Vesturhvel jarðar sem móti rammann um þjóðaröryggisstefnu þeirra í efnahagslegu tilliti, þar sem allt verður flutt þangað undir einkunnarorðunum "heimahýsing" og "nærhýsing"
Inter-Amerkíu-þróunarbankinn, en ekki AIIB-útþenslubanki Kínverska kommúnistaflokksins þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins situr í bankaráði, er það sem notað verður á Vesturhveli jarðar, plús fimm fjárfestingarstólpar fyrir ríkin á því hveli veraldar; þ.e. í nýja heiminum. Og til marks um nýtt mikilvægi Vesturhvels (Ísland er á Vesturhveli jarðar) hefur Bandaríkjamaður nú tekið við IADB-bankastjórninni í fyrsta sinn í sögu bankans. Lesa má í nýtt mikilvægi IADB út frá því. Norður-Ameríka, Mið-Ameríka og Suður-Ameríka er það sem sá fjárfestingarbanki snýst um, ásamt restinni af ríkjum Vesturhvels
Ísland er auðvitað ekki þar, frekar en dómsmálin eru í humarráðuneytinu. Nei nei, formaður Sjálfstæðisflokksins sá um að henda í Íslandi inn í imperíal-útþenslubanka hins kínverska kommúnistaflokks Kínagúlaga. Hugsið ykkur! Og svo henti hann Íslandi inn í Orkupyntingasamband Evrópusambandsins, þar sem "Þýskaland fyrst" stefna yfirtapara meginlandsins tröllríður hinni hrynjandi spilaborg Evrópusambandsins. Ekkert ríki Evrópu mælist nú eins fjandsamlegt Bandaríkjunum og Þýskaland. Junge Freiheit útskýrir ágætlega sumar ástæðurnar fyrir því í grein blaðsins hér: Sie trommeln weiter
Þýskaland er nú með lélegustu orkuinnviði og versta orkubúskap Evrópu plús lélegustu fjarskiptainnviði nokkurs ríkis Evrópusambandsins. Hið fyrra er í vösum Kremlar og hið síðara er í vösum Húkavéa Kínverska kommúnistaflokksins. Hvernig haldið þið að þetta endi. Jú, varla nema á einn veg
Já, blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins í orku-icesave-pökkum hins ósjálfstæða EES-skrifstofuformanns hans
Tek undir orð Sigmundar Davíðs um að afturkalla verði aðild Íslands að Orkupakkabandalagi taparanna í ESB, ásamt ýmsum öðrum hugmyndum Miðflokksins hér: Vilja lækka tekjuskatt í 24%
Uppfært-
Ég er þó efins um framtíð ferðaþjónustu sem atvinnugreinar á Íslandi. Nýtt og langtum minna normal mun myndast þar eftir faraldurinn. Það þarf þó ekki að vera slæmt til lengri tíma litið, því ef eitthvað eitt sérstakt er hægt að segja um ferðaþjónustu í hálaunalöndum eins og okkar, þá er hún ávallt brautin inn í og um leið afleiðing efnahagslegrar hnignunar. Við vorum með ferðaþjónustu vegna hnignunar, og sú hnignun mun festast í sessi verði ferðaþjónusta eitthvað annað og meira en aukabúgrein sem allir geta verið án, gerist þess þörf og þegar þess þarf, því þetta er ekki síðasta skyndilega stopp greinarinnar. En það þarf samt að takast á við skyndilegt stopp ferðaþjónustu núna og snúa því einhvernvegin Íslandi í hag með krosshagsmunanýtingu milli geira. Og þar er Sigmundur Davíð sérstaklega sterkur, eins og við sáum síðast
Tími sérleiðanna fyrir hina útvöldu er liðinn, enda gáfust þær illa. Sigmundur Davíð er greinilega með herðar og hugmyndir breiðar. Já, breiðar hugmyndir...
Fyrri færsla
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 25. september 2020
Er Trump að hitta í mark?
Mynd: iPhone X símamynd fréttastofu þjóðaríhaldsmanns (NatCon)
****
Myndin hér fyrir ofan sýnir verðið og verðþróunina á eignarhlut í bandaríska skotvopnaframleiðandanum Sturm, Ruger & Company (merki: RGR/NYSE)
Eignarhlutur í þessu merka skotvopnafyrirtæki, sem byrjaði í bílskúrnum heima, fæst í kauphöllinni í Nýju Jórvík og kostaði 62,71 dali í enda gærdagsins
Verðið á hlutnum fer eftir framboði og eftirspurn. Kauphöllin sér um að birta það. Fólk sem vinnur í nágrenni hennar á Wall Street sér svo um að skrifa um verðið sem hún birtir. Einn pakki af andaglasi fylgir einnig ókeypis með skrifum þess. En aðeins Bandaríkjamenn sjálfir vita hins vegar hvort að þeir hafi þörf fyrir vörur skotvopnaframleiðandans Sturm og Ruger, eða ekki
Takið eftir verðhækkununum á eignarhlutnum í RGR síðustu sex mánuðina. Þær hófust í mars. Að kaupa hlut í RGR varð skyndilega mun dýrara en áður. Hvers vegna? Jú vegna þess að þegar Bandaríkjamenn halda að Demókratar séu á leið í Hvíta húsið, þá eykst yfirleitt sala skotvopna í landi þeirra til muna, og sér í lagi í þeim ríkjum sem lúta stjórn Demókrata. Bandaríkjamenn þekkja sína vinstrimenn og vinstrimenn Bandaríkjanna þekkja sjálfa sig best - og vita því vel hvers konar líf þeim fylgir, komist þeir í Hvíta húsið
Þegar kínverska Wuhan-veiran byrjaði að slá sér niður í Bandaríkjunum tók eignarhluturinn í RGR að hækka stórkostlega í verði, því vitað er að sitjandi forseta er yfirleitt kennt um flest það slæma sem bitnar á þjóðinni
Vörueftirspurnin og verðmatsþróunin meðal almennings á RGR-skotvopnaframleiðandanum í Southport í Connecticut sem er almenningshlutafélag frá því í mars og fram í byrjun ágúst, helst mjög svo vel í hendur við álit kjósenda á frammistöðu Donalds J. Trump forseta í embætti. Sterka ánægjan með störf hans minnkaði í takt við þá auknu vígbúnaðarþörf sem almenningur taldi að hann hefði og þyrfti að hafa, kæmust Demókratar í Hvíta húsið
En hvað gerist svo. Jú verðið á eignarhlut í RGR byrjar síðan að lækka í takt við aukna ánægju almennings með frammistöðu Donalds J. Trump sem forseta. Það er það sem gerst hefur frá og með í byrjun ágúst og áfram í september
Bandaríkjamenn telja því frá og með í byrjun ágúst að minni þörf sé á að þeir vígbúi sig sjálfir gegn vinstrinu, í takt við að vinstrihættan minnkar og að þeir geti því áfram látið sér nægja að stóla á fallbyssu Trumps og Lýðveldissinna, þ.e. Repúblikana
Lykilorðið hér er fælnimáttur. Donald J. Trump hefur hann í miklu magni og hann vill þar að auki að regla varða laganna lögreglan hafi hann líka. Þannig virkar fælnimáttur. Hann heldur fólki á mottunni og minnkar þörfina á vígbúnaði meðal almennings; sem hvorki hefur einkalífverði né himinháa múra í kringum sig, sína og heimili sín - og heldur ekki vinstrisinnaða fjölmiðlaelítuna á sínu bandi. Trump er að hitta í mark
Fyrri færsla
Kvensjúkdómalækningar Harwards-Hólm í Svíþjóð [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. september 2020
Kvensjúkdómalækningar Harwards-Hólm í Svíþjóð [u]
SÆNSKA TEIKNIMYNDIN
Sunnanfarið hefur undanfarna daga heyrt mikið um Wuhanveiru-kraftaverkin Svíþjóð. Allt átti þar að vera með svo kyrrum sænskum kjörum að annað eins kraftaverk átti ekki að hafa sést vestan sænska sovétríkisins í Stokkhólmsheilkenni þeirrar þjóðar. Aðeins gluggatjöldin vantaði
Dauðsföllin vegna Wuhan-veirunnar eru orðin 5870 í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar, sem er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs
Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð á öðrum fjórðungi ársins var einnig sá versti af þessum fjórum löndum, eða -8,6 prósentur. Aðeins Ísland er með meiri samdrátt þegar um Norðurlöndin fimm er að ræða. Hér var hann -9,1 prósenta eða álíka og í Svíþjóð, og er það fyrst og fremst frummanna-fyrirferð gjaldþrota-geira ferðaþjónustunnar að kenna, sem þegar var komin á hausinn um síðustu áramót og aldrei hefur átt krónu eiginfjár
Svo tala menn eins og sænsk vélmenni sem gúffa í sig hvað sem fyrir þau er sett um kraftaverið í sænska sovétríkinu, þar sem allir fjölmiðlar landsins og yfirvöld reyna allt sem þau geta til að leyna ástandinu og koma í veg fyrir að nokkur maður geti á auðveldan hátt áttað sig á stöðunni. Svíþjóð er sennilega eina land veraldar, fyrir utan Sovétríkin sálugu, þar sem hugtakið borgari er orðið allt að því glæpsamlegt
Ný Wuhanveiru-tilfelli í Svíþjóð frá og með 1. september 2020:
1 Sep 2020 172
2 Sep 2020 213
3 Sep 2020 286
4 Sep 2020 262
5 Sep 2020 171
6 Sep 2020 67
7 Sep 2020 185
8 Sep 2020 238
9 Sep 2020 314
10 Sep 2020 257
11 Sep 2020 292
12 Sep 2020 206
13 Sep 2020 106
14 Sep 2020 220
15 Sep 2020 295
16 Sep 2020 331
17 Sep 2020 390
18 Sep 2020 437
19 Sep 2020 279
20 Sep 2020 133
21 Sep 2020 185
Veiran fór aldrei í neitt frí í Svíþjóð eins og sést hér fyrir ofan og kom einnig fram í Telegraph í dag:
"According to the Public Health Agency of Sweden, Dr Tegnells agency (teiknimyndafígúra), around 1200 new cases and five deaths have been reported since Friday, a sharp increase on the average of around 200 cases per day seen in recent weeks"
Hvað skyldi kerlingarbókaður herra Hólm-Harward segja við Kára núna? Auðvitað ekkert, því hann var bara lofttegundin þvæla
Og hvernig gengur svo að finna geimverurnar sem vísa á úr landi? Þá mannsmyglara sem fela þær þarf að draga fyrir dómstóla. Og Humarráðuneytið verður að taka sig á og klippa af sér halann og fullorðnast, ekki síðar en í gær. Láta sér vaxa klær!
- uppfært
TVENNIR TÍMAR
Tveir geirar hagkerfisins hafa nú náð því stigi að geta kallast deyjandi; Ferðamennska og fjölmiðlun. Enginn séns er á því að túristabransinn nái sér á strik á ný hin næstu mörgu árin, ef þá nokkru sinni. Vetrartímabilið er ónýtt miðað við 2019 og næsta sumar verður bara brot af því sem sumarvertíðin var 2019. Mörg ár munu líða þar til þorri manna með fullu viti nennir yfir höfuð að ferðast á ný
Þess utan eru kjósendur í Evrópu og víðar við það að verða beinlínis herskáir gegn bæði glóbalisma (afurð sérfræðiveldis teknókratíunnar) og fjölþjóðaisma (merkantílismi dulbúinn sem e. multilateralism) á sama tíma og þeir eru að uppgötva að mjúkt vald (e. Soft-Power) sem sérfræðingar sögðu þeim að væri raunverulegt vald, reyndist vera hin fullkomna þvæla. Lönd kjósenda eru því í reynd orðin valdalaus (e. No-Power) og kjósendur eru að byrja að taka eftir því og bregðast við. Ferðamenn (kjósendur) vita því best sjálfir að þeir eru næstum því hvergi velkomnir lengur, og alveg sérstaklega ekki á flugvöllum og um borð í flugvélum. Þar eru þeir að breytast í og jafnast á við nokkurs konar veirur. Ferðamannabransinn er því að falla ofan á sama skurðarborðið og verið er að brytja hnattrænar framleiðslukeðjur í parta á. Hvernig og í hverju sá umskurður endar, munum við kannski byrja að sjá á næsta eða þarnæsta ári. Um strategískt mikilvægt fyrirbæri er þó að ræða, svo mikið er víst, og það mun verða geopólitískt-gírað (e. geopolitically leveraged)
Fjölmiðlun eins og við þekktum hana er að mestu komin í líkkistuna og á það sérstaklega við um svo kallaða ljósvakamiðla. Vonlaust er orðið að manna þau fyrirbæri góðum mönnum, eins og sést. Rafmangað suð er það eina sem frá þeim kemur. Kvikmyndabransinn er á sömu leið, enda stétt kverúlanta að mestu. Segja má að sjóvarpsskjár og breiðtjald sé á leið með að verða liðin tíð
Strategar Valhallar -séu þeir þá yfir höfuð til hafa því miður verið tóm fífl í mörg ár og haft strategískt rangt fyrir sér í nær öllum mikilvægum málum. Enda er uppskera þeirra samkvæmt því; þ.e. meðalaldur bimbó
Fyrri færsla
Sigríður: "Talsvert eftirlit í gangi" [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 20. september 2020
Sigríður: "Talsvert eftirlit í gangi" [u]
Mynd: Kosningasamkoma (mótmæli hah!) Trumps í Norður-Karólínu í gær. Alltaf eins: Svartur síður frakki, tveggja fermetra hálsbindi og sami Queens-hreimurinn hvar sem hann fer. Breytist ekki. Þeir sem teknókratía sérfræðinga dæmdi úr leik sem "hina fyrirlitlegu", fagna hugrökkum leiðtoga sínum ákaft, enda ekki um teknókrata að ræða. Samkvæmt trúarsetningum sérfræðinga eru "hinir fyrirlitlegu" hin risastóra hvíta iðnaðar-millistétt í hjarta Bandaríkjanna og afkomendur hennar. Fellibylur hennar sækir nú í sig veðrið og rífa mun hún margt upp með rótum og storma annað um koll. Hún var skilin ein eftir á fjóshaug sérfræði-glóbalismans, allt frá því að Rögnvaldur Reagan fór frá völdum
****
Nú jæja? Í hvaða gangi skyldi það eftirlit vera. Frígangi? Stofugangi?
Jú, ekkert eftirlit er með ríkisstjórninni -sem annað hvort er í felum eða vísað úr landi- nema það, að sjá til þess að hún haldi áfram að troða veirum inn í landið okkar. Hún er auli og án einkaframtaksins væri hún örverpi
Ekkert eftirlit er með þeim geimverum sem vísa á úr landi, nema það, að strangt eftirlit er haft með því að ríkisstjórn Íslands -sjálft framkvæmdavaldið- ráði engu hér í okkar eigin landi. Æðislegt. Gersamlega sprenghlægilegt. Þetta er eina "eftirlitið" sýnist mér
Rosalegt "eftirlit" er hins vegar haft með því að útlendingar stjórni óáreittir Íslandi. ESB, EES, Schengen, Orkupakkar og E-sáttmálar bla bla bla. Þetta er orðinn einn allsherjar samsærispakki gegn þjóðinni. Enginn kjósandi trúir lengur öðru en því að íslenska ríkisstjórnin, ambáttar-embættismenn Brussels, stjórnkerfið og flokkarnir séu samsæri gegn þjóðinni. Og ekki mun takast að sannfæra kjósendur um neitt annað svo lengi sem þessi E-fíflagangur keyrir sem sjálfskiptur gæsagangur
Ekkert eftirlit er haft með að Víðir-lögga sé áfram lögga. Nú er hann kannski veira, og það er ekki gott. Við þurfum á Víði að halda sem löggu
Það eina sem við höfum er Kári. Þökk sé Guði fyrir hann. Gott væri nú ef mögulegt væri að klóna Kára. Ég fyrirgef honum alla gallana, því eins og herra Andrew Jackson, þá er það hugrekki hans eitt og sér sem jarðar alla hugsanlega galla hans og gerir hann að leiðtoga sem um munar. Kári, Jackson og Trump. Þetta eru mínir menn. Hugrakkir menn. Um þá munar
Húmbúkkið Hmpf! og Vesalingarnir virðast hins vegar vera af óendanlegri stærð
Getum við ekki bara fengið hugrakkan Davíð aftur? Þetta gengur ekki upp lengur
Uppfært
Horfið vestur um haf, því þar býr nú stórþjóð sem sannfærst hefur um að þingið og framkvæmda- og embættismannavald lýðveldisins sé orðið einn heilsteyptur samsærispakki gegn henni. Bandaríkin eru FIFO. Fyrst inn og fyrst út; sem þýðir að boltinn sá hefur nú þegar rúllað hingað, og héðan mun hann rúlla yfir á Meginland taparanna
Pólitískar ástríður- og áhugi eiga rætur sínar að rekja til þess að kjósendur og stjórnmálamenn trúi því að þeir skipti máli. Kjósendur hafa misst þá trú, og stjórnmálamenn trúa ekki lengur á að þeir sjálfir skipti máli. Þannig virkar stjórnarfyrirkomulagið technocracy
Sérfræðiteknókratía eftirstríðsáranna -arfleið Síðari heimsstyrjaldarinnar- var í fyrstu gerð að pólitískri hugmyndagloríu um næstum öll Vesturlönd. En síðan varð hún að pólitískum trúarbrögðum. Allt þetta er að byrja að enda núna, því sérfræðingar þessarar trúarhreyfingar hafa næstum því náð að eyðileggja Vesturlönd. Þeir reyndust nefnilega ekki vera sérfræðingar. Sannaðist það rækilega 1991, 2008 og 2020 - plús loftslagstrúarþvælan úr sömu skúffu
It is not the Economy, stupid! Ekki lengur
Fyrri færsla
Háskólabólutímabilið er að enda, ekki byrja
![]() |
Sigríður: Talsvert eftirlit í gangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 18. september 2020
Háskólabólutímabilið er að enda, ekki byrja
Það sjá vonandi allir að þetta tímabil sögunnar -háskólabólan- er að enda en ekki að byrja, því það gengur einfaldlega ekki upp; hvorki í rekstri þess, arðsemi né í tengslum þjóðfélagsgerðar við þjóðir og stofnanir þeirra, og sérstaklega ekki í tengslum við lýðveldisstofnunina sjálfa sem gengur út á það að sjálfstætt fólk haldi henni á beinu brautinni og uppi og stundi pólitík, en ekki nýr aðall sérfræðinga, opinberra óstarfsmanna og smekksdómara
Fyrst að hæstaréttardómarar Bandaríkjanna gátu hér áður fyrr verið hæstaréttardómarar án þess að hafa farið í háskóla og lært lögfræði, þá segir það sig sjálft að við erum komin langt langt fram úr því sem þolanlegt er í menntabólunni. Hún skilar ekki því sem ætlast er til og er þar með orðin léleg fjárfesting fyrir alla, nema háskólana sjálfa sem komnir eru í stöðu eins konar bankabólubransa. Þess utan er menntabólan orðin skaðleg fyrir þjóðfélag lýðveldisins. Dæmin eru út um allt: Strassborgar hér og þar, ESB, EES, Schengen, beinar gúrkur og endalaust týranní E E E ... plús það að háskólarnir eru eins og við var að búast orðnir forstofur inn í marxismann
Gerum háskólana ábyrga fyrir námslánum nemenda, fái þeir í stórum stíl ekki vinnu við það sem háskólinn seldi þeim. Þessi óútfyllti tékkabisness sem háskólanir stunda má að minnsta kosti ekki hafa neitt með skattgreiðendur landsins að gera
Ég veit að Lilja vill vel í þessum efnum, því þannig er hún; velmeinandi. En ég held að enn ein fimmfalda 5-ára áætlun skipulagasmiðanna, ofan í allar hinar, sé úti í móa. Þess utan þá þarf að gera alþingi mun erfiðara fyrir að setja ný lög. Það er allt of auðvelt að setja ný lög, enda árangurinn eftir því. Klessukeyrsla og bremsuklossafabrikkur út um allt
Fylgist vel með Bandaríkjunum í þessum efnum því þar eru miklar breytingar í þessum málum í deiglunni. Þau eru alltaf FIFO-fyrst. Sérfræðingar knýja ekki framtíð landa. Þeir stöðva hana, enda dóu Sovétríkin úr menntun og náttúruauðæfum upp í háls
Fyrri færsla
Evrópa á leið í lokun-2. Jólin komin í vaskinn?
![]() |
Ein stærsta áskorun samfélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 16. september 2020
Evrópa á leið í lokun-2. Jólin komin í vaskinn?
Mynd: The Daily Shot 15. september 2020
****
KÍNVERSKA WUHAN-VEIRAN
Þessi mynd hér fyrir ofan sýnir greind Wuhan-veirusmit í Evrópu og Bandaríkjunum. Evrópa er á leið inn í nýja lokun en Bandaríkin eru sennilega á leið út úr sínum lokunum. Evran er því á leið niður og Bandaríkjadalur á leið upp aftur. Mikil sala mun verða, því veðmál vogunarsjóða á hækkun evrunnar eru yfirbókuð og voru reyndar án jarðsambands allan tímann. Sjö-daga meðaltal Wuhanveiru-dauðsfalla á Spáni hefur 25-faldast á síðustu sex vikum
ÁNÆGJA Í BANDARÍKJUNUM
Mikil ánægja ríkir nú meðal Bandaríkjamanna með störf Donalds J. Trump forseta. Sé ánægjan með störf hans borin saman við óánægjuna með störf Obama á sama tímabili 2012, þá er munurinn sláandi. Heil 52 prósent segjast ánægð með Trump á meðan aðeins 48 prósent Bandaríkjamanna voru ánægð með störf Obama þann 14. september 2012. Hafði Obama þó ekki neinn slíkan fellibyl í fangið eins og Trump hefur haft næstum allt þetta árið og meira að segja alla daga allra áranna frá og með haustinu 2016. Líkar Bandaríkjamönnum vel High Noon frammistaða mannsins í svarta síða frakkanum með tveggja fermetra hálsbindið. Skyldurækni kúrekans og hugrekki stríðsmannsins vekja lotningu meðal hins almenna borgara Bandaríkjanna, sem enn þráir frelsi frá elítum meira en flest annað
HVÍTARÚSSLAND
Pútin og Lukashenko hittust í Sochi á mánudaginn til að koma sér saman um hvernig Pútín skerst í leikinn í Hvítarússlandi. Gangur Lukashenko á jafnvægisstönginni sem heldur Hvítarússlandi fullvalda er byrjaður að rambelta það mikið, að núna er af það sem áður var. Lukashenko getur ekki lengur sagt Pútín að fara í rass og rófu eins og hann oft hefur gert, því nú heldur Pútín á lyklinum að áframhaldandi fullveldi Hvítarússlands. Pútín einn getur þaggað niður í mómælendum í Hvítarússlandi, en að þagga niður í þeim er forsendan fyrir því að landið sé fullvalda áfram. Líklegt er því að Pútin og Lukashenko hafi rætt um hvernig staðið skuli að nærveru yfirþyrmandi rússnesks herstyrs í Hvítarússlandi og sem þagga mun instant niður í mótmælendum. Það þarf þó að gerast án þess að það líti út fyrir að vera það sem það er
BISKUPSSTOFA
"Far from being the opposite of Marxism, liberalism would merely be a gateway to Marxism." - Yoram Hazony
Þegar ég les ritgerð Yorams Hazony vinar okkar í Jerúsalem, þá sé ég að Biskupsstofa er ekki forstofan inn í Himnaríki, heldur forstofan inn í marxismann. Forstig marxismans er Líberalismi Upplýsingarinnar, segir Hanzony í Jerúsalembréfinu þann 31. ágúst. Yoram Hazony er einn fremsti og virtasti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda þessa áratugina. Ekkert slíkt verður sagt um grautarhausana um borð í Biskupsstofu
HLAÐVARP VIKUNNAR
Victor Davis Hanson sagnfræðingur og bóndi í The Classicist
Fyrri færsla
Sóttvarnarlokun 2.0 í Evrópu yfirvofandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 11. september 2020
Sóttvarnarlokun 2.0 í Evrópu yfirvofandi?
Mynd: Worldometer 11. september 2020: Dagleg ný Wuhan-veirutilfelli í Frakklandi. Þau voru 9843 í gær, sem er það mesta frá því að faraldurinn hófst. Spánn tilkynnti um 12183 ný tilfelli í dag
****
Nýjar Wuhan-veirusýkingar ryðja sér nú til himins í löndum Evrópu og dauðsföllum er byrjað að fjölga á ný. Bretar virðast vera að setja í neyðargírinn á ný og að hefja 10 milljón skimanir á dag, þannig að öll þjóðin verði skimuð einu sinni í viku. Mikið er undir, en óvist er um getu hins ríkisrekna heilbrigðiskerfis landsins til að ná þessu markmiði
Löndin á meginlandi Evrópu með mörgum sinnum fleiri nýjar sýkingar á dag núna, munu reyna að berjast við að fylgja þessu fordæmi. Talar Boris Johnson nú opinberlega um Lockdown 2.0 sem möguleika, takist ekki að veiruprófa 10 milljón manns á dag. Bandaríkin hafa eins og er framkvæmt rúmlega 90 milljón skimanir
Verði þetta svona mun það þýða óendanlegar hörmungar fyrir hagkerfin á meginlandinu sem liggja fullkomlega berskjölduð gegn þessum höggum, liggjandi nú þegar meira og minna 2008-dauðvona í handjárnum Evrópusambandsins. Þau hafa engan möguleika á að komast með tærnar þar sem Bandaríkin eru með hælana í efnahagslegum viðbrögðum við áföllunum núna og það sama gilti um áföllin 2008. Bandaríkin eru þegar að framkvæma það sem menn láta sig aðeins dreyma um í þeim efnum á meginlandi taparanna í Evrópu í dag
Fari þetta svona er úti um ferðamannaættbálkinn í Evrópu allt næsta árið og tómt mál að tala um hann, því með þessu yrði hann alls staðar útlægur gerður
Þróun bóluefnis rakst einnig á vegg af óvissri hæð í vikunni. Alvarlegar bólgur í mænu komu í ljós. Enn er þó óvíst hvaða áhrif þessi óvænta(?) hliðarverkun mun hafa á þróunarvinnuna. Kannski var þetta bara einn af þessum útlögum sem alltaf koma í leitirnar við prófanir. En sé þetta alvarlegt, og finnist fleiri slíkir, mun það draga úr áhuga og trausti almennings á öryggi efnisins. Fyrir vikið gæti útbreiðsla og upptaka þess meðal þjóðanna orðið hægari en vonast er til
Allt þetta hefði venjulegur dýralæknir við skyldustörf sín 1963 getað sagt svo kölluðum stjórnmála-, embættis-, og vísindamönnum í mars 2020. Þess vegna fást lærin í sunnudagsmatinn eftir messu enn
Fyrri færsla
Ha ha ha: ESB missir aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 8. september 2020
Ha ha ha: ESB missir aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu
Wishbone Ash - gamla uppáhaldið mitt (Fjögur)
****
Mikið skal ég hlægja þegar að fíflin í Brussel missa aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu, og sjá loksins að Brexit snérist um að Evrópusambandið færi úr Bretlandi en ekki öfugt
Fíflin í Brussel voru þó og því miður af sömu manngerð og bresku fíflin í bönkunum, málalengingarstofunum og hinni pólitísku stétt landsins, sem 2016 uppgötvuðu að þau voru og höfðu aldrei verið í sambandi við bresku þjóðina, og reyndar aldrei skilið hinn almenna borgara landsins. Og það sem verra var; þeim var alveg sama um aðstæður og örlög hins almenna borgara Bretlands svipað og þeir sem enn berjast fyrir því að berja Ísland til að innan að beiðni graftarkýlisins EES
Fíflin hinumegin við pappírsborðið í Brussel héldu á hinn bóginn að þau væru húsráðendur í Bretlandi. Milliríkjasamningur úr pappír hafði stigið þeim álíka mikið til höfuðs og of hækkandi hlutabréf í túlípana. Evrópusambandið er túlípanabóla á milliríkjasviðinu. Er sú bóla búin og byrjuð að hjaðna núna
Einnig Ísland verður að stinga á graftarkýlið EES, áður en skera þarf fótinn af, og jafnvel stjórnmálaflokka landsins líka
Ha ha ha ha. Bráðum verður Bretland stærst, mest og best á ný
En þessi maður Roger Scruton skildi fólkið, enda þjóðaríhaldsmaður - NatCon
Fyrri færsla
Klikklið gegnsósa af vinstrimennsku
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.9.2020 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sunnudagur, 6. september 2020
Klikklið gegnsósa af vinstrimennsku
Nú? Og ég sem eitt augnablik hélt að þetta væru konur sumar að vísu í karlafötum að fagna því að Margrét Thatcher hefði getað orðið fyrsti kvenkynsforsætisráðherra Stóra Bretlands og þar að auki í nafni Breska Íhaldsflokksins, þéttpökkuðum ekta miðaldra körlum með skoðanir
Í alvöru talað. Hvers vegna fögnuðu heilagar kvenrembukerlingar vinstrisins ekki ákaft og innilega þegar Margrét varð fyrsta konan á stóli forsætisráðherra eins mesta ríkis mannkynssögunnar? Var það kannski vegna þess að hún hafði samkvæmt þeim rangar skoðanir og var ekki vinstrisinnuð, eða það sem sumir háskólamenntaðir fæðingarkjánar kalla "illiberalism" á ensku í dag?
Er það ekki frekar það sem þetta klikklið gegnsósa af vinstrimennsku þarna á myndunum snýst sem grænir bjánar um
Marxistar þ.e. vinstrimenn eru alltaf eins alls staðar, og þess vegna aka engir sjúkrabílar í Venesúela lengur. Biðraðir vegna marxískar eyðileggingar vinstrisins er það sem alls staðar blasir þar við. Og olían kemur meira að segja innflutt frá Íran núna, frá Klerkaveldinu. Allar hreinsunarstöðvar landsins eru niðurslitnar og óstarfhæfar. Þetta niðurrif vinstrimanna tók ekki langan tíma. Síðasti borpallur landsins lokaði niður um daginn. Venesúela vinstrimanna er þar með orðið rautt... afsakið grænt; sjá grein WSJ
Er þetta ekki yndislegt! Snérist auðvitað aldrei um kyn, heldur um skoðanir. Kynið er marxískur felulitur sem aðeins veiklundaðir vesalingar falla fyrir. Og nú er það orðið grænt, sem áður var rautt. Skoðanir vinstrisins eru svo lélegar að þeim þarf að pakka inn í kyn og umhverfisþvælu marxismans. Þær geta nefnilega ekki staðið undir sér sjálfar, vegna þess að þær eru þvæla
Kommar, kommar, kommar og kommar!
Fyrri færsla
"See Me Here"- lest Demókrata brunar áfram [u]
![]() |
Mótmæltu meintum mistökum fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 3. september 2020
"See Me Here"- lest Demókrata brunar áfram [u]
See Me Here
Horfðu á Darren Tate plötuna frá 2001 snúast, settu þig í vocal-trance Óríon (rödd: Rebecca Raines), og ímyndaðu þér að platan sé járnbrautarlest. Um borð í henni er stjórnmálaflokkur Demókrata, með Joe Biden bundinn framan á. Brunar nú lestin og brunar, blind af hatri á Trump. Hún er knúin af pakt-samkomulagi Demókrata við Antifa* og Svört líf skipta máli*, sem hljóðar þannig að "við rústum borgum og bæjum Bandaríkjanna með ofbeldi, brennuvörgum, innbrotum og óeirðum sem við kennum Trump um og fáum þig þannig kosinn sem nýjan forseta Bandaríkjanna. Í staðinn kemur þú stefnumálum Bernie Sanders um sósíalisma í Bandaríkjunum í framkvæmd, því hún er stefna okkar"
Should I, could I, try to say
Brunar lestin nú og brunar, og bæir brenna. Joe Biden, flokkur hans og fjölmiðlar, neita því að um ofbeldi og skrílsaðgerðir sé að ræða, er borgarhlutar, eigur borgaranna og atvinnurekenda stíga til himins sem reykmekkir í þeim bæjum og borgum sem lúta stjórn Demókrata. "Ekkert ofbeldi og engar óeirðir eru hér. Ekkert er í gangi hér, nema friðsöm mótmæli". Öll hallelújapressan á talnabandi Demókrata og sem nú næstum eingöngu er mönnuð nýmarxistum; CNN, ABC, MSNBC, New York Times, Washington Post og svo framvegis, spilar með: "Hér er ekkert ofbeldi, engar óeirðir né skrílslæti á ferðinni, bara friðsamleg mótmæli" er sagt, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuðum saman. Borgir og borgarhlutar brenna og engum heilvita atvinnurekanda mun nokkru sinni á ný koma til hugar að opna nýjan en nú niðurbrenndan Burger King eða Target-verslun í þessum skrílsborgum Demókrata aftur. Aldrei
Should I tell you? Should I walk away?
Bandaríska þjóðin er hins vegar hvorki heimsk, blind né vitlaus. Hún sér vel hvað er að gerast. Íbúarnir eru búnir að fá nóg og margir í mörgum fjölskyldum landsins eiga nú um afar sárt að binda, þökk sé þessum pakt-gengjum Demókrata
Do you see me wanting?
Trump forseti og Repúblikanar keyra hins vegar grunnstefnu flokksins sem er "með lögum og rétti skal land byggja" og er hún grunnstyrkur flokksins sem allir Ameríkanar þekkja, frá fæðingu af. Repúblikanar heimta að Demókratar fordæmi ofbeldið, brennuvargana og þjófana. En það geta Demókratar ekki, því þeir eru jú búnir að staglast á því nú mánuðum saman að ekkert sé að; hvergi sé neitt ofbeldi í gangi og að enginn sé að brenna neitt niður neins staðar. Not happening, segja þeir. "Allt er í fínu lagi, þetta eru bara friðsamleg mótmæli". Demókratar geta því ekki bakkað, nema þá inn í helvíti, eðlilega. Það er nefnilega ekki hægt að fordæma það sem Demókratar og pressa þeirra hafa sagt, og segja enn, að sé ekki til
Do I run? Do I stay?
En bandaríska þjóðin horfir og horfir, og hún sér og sér. Því lengur sem Demókratar segja að ekkert sé að og ekkert ofbeldi þurfi að fordæma, því bremsulausari verður lestin sem þeir bruna í. Demókratar sem gerðu pakt við djöfulinn, geta ekki lengur stoppað hann. Þeir hafa enga stjórn á honum, eðlilega. Ekki ferkar en herra Hi hafði öxulstjórn á herra Mú
Chorus (CNN, ABC, MSNBC, NYT, Wash.P...)
Já, lestin brunar og brunar. En bremsurnar eru farnar og framundan er bjargbrún. Og einmitt þar stendur Donald J. Trump, veifandi bandaríska fánanum, lögum og rétti, og kallar; See Me Here! Brunar nú lestin. Já hún brunar og brunar...
See Me Here!
* Antifa er hreyfing "and-fasista" sem segir að allir sem ekki eru sammála henni séu fasistar. Henni svipar til stjórnmálahreyfingar hamra, sem segir að öll vandamál heimsins séu naglar (til að berja á). Nokkurs konar hryðjuverðasamtök. Samtökin Svört líf skipta máli er hins vegar hreinræktuð rasistahreyfing sem engan áhuga hefur á stéttum (e. classes). Marxistar öfgavinstriarms Demókrataflokksins hafa því enga stjórn á henni og skilja hana ekki. Hún er nokkurs konar fallöxi á hjólum sem fyrirvaralaust getur snúist gegn jafnvel sköpurum og stjórnendum hennar. Henni svipar til morðgengisarms Frönsku byltingarinnar sem heimtaði að mannkynssagan yrði strokuð út og ártalið stillt á núll
Save me from misery
Tengt: Hlustið endilega á Victor Davis Hanson rúsínubónda og sagnfræðing segja söguna um járnbrautarlest Bidens í VDH-hlaðvarpi númer 31 - og lesið endilega grein Andrew Roberts í breska Telegraph um hinn sögulega en silkiklædda járnhnefa lögmálsins um ótilætlaðar afleiðingar
- uppfært
HVAÐ MÁ LÆRA AF ÞESSU?
Jú, svo kallaður líberalismi eða frjálslyndis-jafnaðarstefna og stofnanavæddur eftirstríðs-líberalismi Vesturlanda er hruninn. Eina von þeirra líberalista sem ekki vilja verða undir hruni hans og eru enn trúir líberalismanum, er sú að leita skjóls og bandalags við okkur þjóðaríhaldsmenn. Annars bíður þeirra lestin vonda sem brunar fyrir björg. Í henni vilja þeir ekki vera og alls ekki undir henni. Yoram Hazony, einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda, er með skilaboð til þeirra sem vilja ekki verða undir hruni líberalismans. Þau má lesa hér í nýrri ritgerð sem hann birti á vefsetri sínu, Bréf frá Jerúsalem: The Challenge of Marxism
Í Bandaríkjunum verður stjórnmálaflokki Demókrata ekki treyst á ný næstu áratugina. Enda flokkurinn svo gott sem ónýtur eftir að Obama eyðilagði hann með því að breyta honum í spegilmynd sína, þannig að hann passaði engum nema honum. Úr engum góðum leiðtogaefnum er því að velja þar núna og þess vegna er Joe Biden forsetaefni flokksins 2020, hjálparlaus negldur og krossfestur framan á reiðilest flokksins sem Obama lagði í rúst með róttækri vinstrimennsku
Í röðum Repúblikana, hins vegar, er næstum úr endalausum fjölda af framúrskarandi góðum og hæfum framtíðarleiðtogaefnum að velja og sem taka munu við nýju og endurreistu framleiðsluheimsveldi Bandaríkjanna er Trump fer frá í janúar 2025. Má þar nefna til dæmis Tom Cotton, Devin Nunes, Kristi Noem og Daniel Cameron, til að byrja með. Donald J. Trump hefur endurreist Repúblikanaflokkinn sem stjórnmálaflokk hinna vinnandi stétta Bandaríkjanna
Fyrri færsla
Finnst einhverjum þetta sniðugt?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 2
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 180
- Frá upphafi: 1407137
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 105
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008