Leita í fréttum mbl.is

Evran missir restina af jarðsambandinu. Fylgir nú hrísgrjónum og málmum.

Mynd, Financial Times: euro-commodity-fundamentals
Mynd; Financial Times / Alphaville 
 
Financial Times bendir á nokkuð athyglisvert í dag. Evran, eftir aðeins 10 ár í umferð, hefur algerlega rofið allt það litla samband sem hún hafði við raunveruleikann í ESB frá byrjun. 

Hún er hefur misst sambandið við heildarþróun efnahagsmála á því myntsvæði sem hún á að þjóna. Hún er orðin meira háð frammistöðu mynt Bandaríkjamanna á gjaldeyrismörkuðum og áhættusamri spákaupmennsku með áhættusamar eignir og vörur.
 
Rather than moving on the back of its own steam, the direction of the single currency is determined by the performance of other risky assets, notably commodity prices and also the performance of the dollar. 

Verð evru, gengið, hefur misst tengslin við þá stýrivexti sem myntinni eru settir hjá þeim seðlabanka sem gefur hana út. Með öðrum orðum: Stýrivaxtavopn seðlabanka hennar er orðið bitlaust.

Hún er orðin að leiksoppi spilavíta og verð hennar stjórnast nú meira af verðsveiflum og þróun í áhættusókn og áhættufælni spilamanna á mörkuðum hrávöru og vegna spákaupmennsku

Þetta er greinilega myntin sem Grikkir þurfa á að halda til að hárið á lotnum höfðum þjóðarinnar haldist stanslaust standandi þráðbeint upp í loftið.  
 
Svo eru menn að kvarta undan gengi krónu, sem þó lifir í raunveruleikanum. 
 
Einhver hér sem man eftir því að það geisar banka- og ríkisgjaldþrotakreppa á myntsvæði evrunnar?
 
Þetta er svo góð mynt. Hún gengur fyrir kakó og er hrísgrjónatengd. Henni er nú stýrt með andaglasi á miðilsfundum ECB í aðalstöðvum seðlabankans í Frankfurt. 
 
Gríska ríkið - nema kraftaverk gerist - mun stöðva allar greiðslur sínar í júlí næstkomandi og er hagkerfi landsins afskorið frá fjármálamörkuðum heimsins. 
 
 
Fyrri færsla
 

Fjármálaráðherrann gegn vissu öflunum; við tal

 
Eftirmáli Icesave - bíómynd.
 
Ég ætlaði ekki að skrifa neitt, því mig skorti orð. En þau komu samt. Biðst innilega og fyrirfram afsökunar á því. Vona að ég lendi ekki í síberíunni.

Einhverra hluta vegna slysnaðist velvildarmaður ríkisstjórnarinnar á ríkisstjórnar sjónvarpsstöð tvö, af tvö, til að viðhafa einstaka yfirheyrslutækni í viðtali sínu við fjármálaráðherra ríkisstjórnar Íslands, sem segist eiga við viss öfl í landinu að stríða. 

Merkilegt er að maður sem stendur með næst mikilvægasta póst í ríkisstjórn Íslands í höndunum, skuli finnast að hann eigi við viss völd að stríða . .  afsakið . . hér varð mér á í messunni . . hér kemur það; skuli finnast að hann eigi við viss öfl í landinu að stríða. 

Þessi sjaldgæfa yfirheyrslutækni, að fá menn til að tala og láta þá svo bara tala og tala þangað til þeir tala af sér, sést vel í þessu viðtali við fjármálaráðherrann gegn vissum öflum Íslands. Einnig sést hún nokkuð vel hér í bíómyndinni "a few good men", fyrir ofan.  Jessop tekur til máls, talar og talar (og auðvitað af sér).

Ég þurfti að klípa mig til að vera viss um að ég væri staddur í meira en 1000 ára raunveruleika á Íslandi, árið 2011. Hvernig getur staðið á því að þessi ríkisstjórn er ennþá við völd? Hvernig getur það verið?
 
Þetta viðtal var ófyrirgefanlegt stórslys, því það glitti óvart í bláan himinninn fyrir ofan öskuna. Nú vita menn að það er til annar heimur fyrir utan tvo imbakassa öskufalls ríkisstjórnarinnar.

Þakkir til Jóns Vals Jenssonar fyrir að benda mér á þetta viðtal, sem ég annars hefði farið algerlega á mis við. 

 
Að lokum minni ég alla á orðið "líklega" sem er eitt af fyrstu orðum fréttarinnar. Líklega þýðir að veruleikinn sem vísað er til, hafi ekki enn runnið upp. Innfundið sig.
 
Fyrri færsla
 

Felutryggingaálagið á Sjálfstæðisflokkinn hækkar

Gríska ríkið mun stöðva allar greiðslur sínar í júlí næstkomandi. Þá eru allir sjóðir landsins uppurnir eftir 30 ára aðild þess að Evrópusambandinu, 10 ár í myntbandalagi þess og eftir móttöku 80 miljarða evra í ölmusuhjálp á 30 árum.
 
Foringjaráð ESB undirbýr nú í leyni sömu meðferð handa Grikkjum Grikklands og Þjóðverjar Austur-Þýskalands fengu með Treuhand. Ferli sem Milton Friedman varaði mjög við. Og ferli sem Hans-Werner Sinn segir að hafi mistekist því sem næst fullkomlega. Í engu öðru ESB-landi en Grikklandi er eins stór hluti þjóðarinnar litlir sjálfstæðir atvinnurekendur og í engu öðru ESB-landi er hinn opinberi geiri eins mikið sáttarskjól og hann er þar, eftir herstjórnir fyrri tíma. Verði hann eyðilagður mun allt Grikkland tortímast í leiðinni. 

Því lengur sem forysta Sjálfstæðisflokksins lætur vera að leiða samþykktir flokksmanna yfir gjá hyldýpis hugsana yfir til sólarbakka athafna, hækkar felutryggingaálagið á flokkinn. Það hækkar vegna þeirra forystumanna sem ætluðu aldrei neitt út úr helli feluskjóla sinna, með viðteknar samþykktir flokksmanna í ESB-málinu. Máli málanna á Íslandi og í Evrópu, ef út í það er farið. Óskorið fullveldi er undirstöðugrundvöllur alls hér á Íslandi. 

Ætlar forysta Sjálfstæðisflokksins eða ekki að taka undir með flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins? 

Þið sjáið þetta núna í praxís. Ríkisfjárlagahersveitir "friðartollabandalags" Evrópu, með eins konar ríkisstjórn, lögreglu, seðlabanka, skattatekjur, dómstóla, þjóðsöng og fána sinn og margt fleira, eru nú að athafna sig við að taka lýðveldi Grikkja aftanfrá og stinga því upp í þá sem kusu þá ekki.  

Ætlið þið að marka stefnu eða pláss fyrir gröf?
 

Seðlabanki Evrópusambandsins: Lánaði án fullnægandi veðtrygginga. Trúverðugleiki ECB Andrés Önd.

CDS-2011-05-23-Italy
Skuldatryggingaálag 23. maí 2011: Ítalía líka komin á fulla ferð niður í þrotfarveg evruaðildar?
 
Reuters gróf upp frétt úr þýska Der Spiegel sem segir að seðlabanki Evrópusambandsins hafi ekki sinnt skyldum sínum sem yfir-yfirumsjónarmaður seðlabanka evrusvæðis. Hann hefur stundað seðlabankastarfsemi á vafasaman hátt. Ef til vill eins og íslenskur viðskiptabanki. Það á eftir að koma nánar í ljós. 

Der Spiegel segir að ECB-seðlabankinn lánaði bönkum í nú næstum ríkisgjaldþrota evrulöndum (og eflaust einnig í öllum evrulöndunum, það mun koma í ljós) peninga gegn veðtryggingum sem áttu að vera veðhæfar eignir í viðskiptum bankanna við seðlabankann - þ.e. á peningamarkaði þeim sem seðlabankinn á að hafa yfirumsjón með á öllu myntsvæði evrunnar og víðar - en sem voru ekki eins veðhæfar og stóð í pappírum um þessar ABS-eignir (asset backed collateral)
 
Euro zone central banks have been lending money to commercial banks against highly questionable collateral, leaving the central banks potentially exposed to hundreds of billions of euros of bad loans, Germany's Der Spiegel magazine reported. 

Sem dæmi er tekin útrás hins gamla skröltandi þýska beinagrindasafns er nefnist Hypo Real State fjármálastofnunarinnar þýsku til Írlands, í gegnum dótturfyrirtæki þess, Depfa Bank. Þar tókst þessum aðilum að troða 78 tegundum af vafasömum og ofmetnum veðtryggingum inn á ECB-seðlabankann í gegnum evrukerfið (the euro-system), gegn því að fá miljarða evruseðla til láns í staðinn. Ef reglunum hefði verið fylgt þá hefði bankasamsteypan fengið 20 prósent minna fé út á veðtryggingarnar. 

Þetta hlutfall á eflaust eftir að versna til muna eins og allt hefur versnað og er stanslaust að versna á evrusæðinu og í öllu ESB hvern einasta dag ársins síðustu árin og mun gera svo þau mörg næstu. 

Töp ECB-seðlabankans verða því mínútu frá mínútu og frá klukkustund til sólarhringa, daga vikna og mánaða, verri og verri, stærri og stærri og pólitískt óviðráðanlegri og óásættanlegri öllum.   

Sem sagt: Ef reglum í hinu heimsfræga og himin höndum tekna regluverki ECB, ESB ásamt eitt hundruð annarra E-eitthvað regluverksmiðjum Evrópusambandsins, hefði verið framfylgt - til dæmis eins og þeim var alltaf framfylgt í Sovétríkjunum þegar um fyrrverandi manneskjur var að ræða - þá hefði þetta ekki gerst. En þetta gerðist samt. 

Allir seðlabankar allra ríkja á evrusvæðinu standa gagnkvæmt, saman og jafnt í allri ábyrgð fyrir fjármunum ECB, sem franskur embættismaður að nafni  Jean-Claude Trichet stýrir og ber ábyrgð á. Sá maður er landsföðurímyd allra meðlima ríkisstjóralepps Evrópusambandsins á Íslandi.
 
Regluverkið um regluverkina   

En nú er að koma nýtt regluverk - já nýtt regluverkzpf - fyrir alla fjármálastarfsemi á evrusvæðinu og víðar. Það er svo strangt, viðamikið, massíft og flókið að þeir sem taka það sér í hönd látast samstundis af losti nema þær allra stærstu fjármálastofnanir í ESB sem hafa auðæfin og innviðina til að aðmínistrera svona eftirsovéskt stórfyrirbæri.

Til dæmis fjármálastofnanir eins og þýska ríkisbeinagrindin Hypo Real State og Deutsche Bank, sem nú sætir lögsókn Bandaríska dómsmálaráðuneytisins á hendur bankanum fyrir lygar, vanrækslu og svindl með bandarísk húsnæðislán, sem bankinn seldi sem skotheld skuldabréf til lífeyrissjóða og seðlabanka (og auðvitað til ECB einnig), en sem enduðu oft í vanskilum aðeins tveim mánuðum eftir að þau voru veitt. Bankinn henti allan tímann áminninarbréfum frá bandarískum yfirvöldum óopnuðum inn í skáp og sýndi þeim rassinn, sem er stór. Bréfin fundust um daginn. 

Viðskiptahugmynd mín um Opferation Norðangarra sem berandi tvídrangur í nýrri two-pillar-ECB-approach í seðlabankalegum peningauppblæstri, á einstaklega vel við hér. Við sendum þeim Norðangarra og þeir senda okkur reglulega verki. Í bónus fá þeir svo ösku í reiði, ja?    

Sænska krónan skrattar
 
Skuldatryggingálag Svíþjóðar er nú 24.20 punktar, en Þýskalands næstum tvöfalt hærra, eða: 40.28 punktar. Þetta á eftir að versna mikið hjá Þýskalandi. Mynt Svíþjóðar, en ekki Þýskalands, er sænsk króna. Þýskaland á enga mynt, en hefur ofið sig inn í myntvafning með minna þróaðri hagkerfum Evrópusambandsins. Þessi myntvefur hefur skaffað þýska hagkerfinu möguleika á að falsa gengi sitt gagnvart umheiminum.  
 
Danmörk 
 
Svo segjast danskir bankar - eftir að hafa lapið ríkisaðstoð úr bankapakka I og II og III - að þeir geti ekki borgað þetta sem þeir fengu úr bankapakka II, til baka. Því þarf líklega að búa til bankapakka IV og færa þeim. Bankapakki II fellur til greiðslu á næsta og þar næsta ári. Upphæðin er 200 miljarðar DKK. Gamanið er alltaf að kárna í regluverkjaheimsveldinu mikla, Evrópusambandinu.
 
Er Ítalía næst - eða þar næst? 
 
Svo er það Ítalía sem á líklegu sinni án hagvaxtar í 10 leynileg ár er að birtast mönnum sem fílinn í fundarherbergi seðlabanka Evrópusambandsins og á leyniminnisblöðum foringjaráðs ESB.
 
The problem is, like many on Europe’s periphery, after a decade of Euro membership the Italian economy is seriously distorted, and badly in need of devaluation, but of course, as elsewhere there is no currency left to devalue - Is Italy Not Spain The Real Elephant In The Euro Room?
 
 
Krækjur; Reuters | Börsen
 
Tengt:
 
 
Fyrri færsla

Grikkland, Írland og Portúgal munu aldrei geta greitt ríkisskuldir sínar

 
Evrópuvextir Össurar: Vaxtakostnaður ríkissjóða - 10 ára ríkisskuldabréf 23. maí 2011
 
Mynd, Bloomberg: "Evrópuvextir" Össurar. Vaxtakostnaður nokkurra ríkissjóða á 10 ára ríkislánum í dag. Grikkland þarf að greiða fjárfestum 16,6% vexti með gríska evru, Þýskaland þarf að greiða 3% með þýska evru. Svíþjóð þarf að greiða minnst af öllum ESB löndum því þar er áhættan minnst fyrir fjárfesta, því landið notar sína eigin mynt, sænska krónu.
 
Í grein Wall Street Journal í dag segir að ríkisgjaldþrot ofangreindra evruríkja sé nú óhjákvæmilegt. Aðeins sé eftir að ákveða form og ófríðleika ríkisgjaldþrota þessara landa, sem voru svo ólánsöm að kasta eigin mynt fyrir róða og taka niður fyrir sig með því að taka af Brusselhimnum ofan sjálfseyðingar mynt valdaelítu Evrópusambandsins, sem kallast eins og hún er: evra. 

Fitch Ratings gerði framámönnum foringjaráðs evrusvæðisins það alveg ljóst í síðustu viku að allir aðrir skilmálar en þeir sem nákvæmlega standa í pappírum fjárfesta sem festu fé sitt í ríkisskuldabréfum evrulanda eigi að gilda - og að einungis þeir eiga að gilda; Allt annað er ríkisgjaldþrot. Lengja í lánum = ríkisgjaldþrot. Breyta lánum = ríkisgjaldþrot. Sjálfviljugar afskriftir = ríkisgjaldþrot.

Þegar Grikkland fer í þrot mun seðlabanki Evrópusambandsins tapa meiru en 100 miljörðum evra. Hann verður þá þurrausinn af fé og það þarf að endurfjármagna þennan seðlabanka. 

Þegar Írland fer í þrot mun seðlabanki Evrópusambandsins tapa meiru en í Grikklandi. Hann verður þá þurrausinn og það þarf að endurfjármagna hann aftur.

Þegar Portúgal fer í þrot mun seðlabanki Evrópusambandsins tapa minna fé en í Grikklandi. En hann verður þá aftur orðinn þurrausinn og það þarf að endurfjármagna hann í þriðja skiptið. 

Þegar kemur að Ítalíu á undan eða á eftir Spáni - ef evran þá lifir enn - mun Silvio Berlusconi neita að taka við bail-out hjálp. Vinsældir hans munu fyrir vikið stíga til himins hjá kjósendum á Ítalíu, sem þola ekki þessa mynt lengur. Landamærum Ítalíu verður lokað. Þá er Evrópa aftur og á ný komin í leiðandi forystuhlutverk nýrra fjöldahreyfinga nokkurra sterka manna með hakana komna í kross.
 
Svona fer þegar lýðræði Evrópuríkja er drepið af valdasjúklingum elítu Evrópusambandsins. Þarna, einmitt þarna, á Össur Skarphéðinsson einn heima.
 

Kalt stríð - heitt stríð - fullveldisstríð

Stríðið er bráðnað. Þeir sem stóðu í köldu stríði er nú með báða fætur í því heita og ylja sér. Þeir þekkja sig ekki lengur. Fjarlægðin er farin og stríðið komið inn í þá. Þeir fatta þó ekki það. Nú er sjálfur ground zero vígvöllurinn hér; Ríkisstjórnin, meirihluti Alþingis, er í heitu stríði við þjóðina sem undir yfirskini "þjóðareignar" er að falla sem ríkiseign. Nú á að farga öllu því sem vannst hjá okkur; fullveldi og sjálfstæði Íslands, undir herstjórn Samfylkingar Vinstri grænna gegn Íslandi og þeirri þjóð sem byggir landið nú. Bráðum verða Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinssin ein eftir í þjóðinni. Þá mun sú þrenna eiga allt. Allar auðlindirnar, ein. Þær verða jú í "þjóðareign". Allt hitt pakkið skorið og "eignabrennt" niður. 

Í augnablikinu freistast maður til að halda að náttúruöflin íslensku séu að gefa okkur ákveðin merki.
 
Gott að sjómenn Íslands eru ekki túristar og að flotinn er ekki alveg enn orðinn einn stór fljúgandi Hollendingur, fjarstýrt frá jarðfræðistofnun neðanjarðarríkisstjórnar Íslands í Brussel í "þjóðareign" Þjóðverja og Frakka. En þetta kemur.

Síðasta hálmstrá seðlabanka Evrópusambandsins tekið í notkun. Og kanslari Þýskalands messar yfir Grikkjum

Cepos - Vinnustundir á hvern íbúa 2006, samtals á ári
Mynd: Cepos - meðal vinnustundafjöldi allra í þjóðfélögum OECD landa árið 2006, á hvern mann.
 
Eins og vandræði Grikklands væru ekki næg fyrir, eftir að hafa verið þrýst út á bjargbrún ríkisgjaldþrots vegna 30 og 10 ára ESB- og evruaðildar landsins. Nú hótar ECB yfir-seðlabanki landsins Grikklandi alla leiðina frá Frankfurt í Þýskalandi.

ECB hótar að neita að taka við veðhæfum eignum Grikklands í endurhverfum viðskiptum ríkis og bankakerfi þess við seðlabankann, sem er handhafi einkaréttar allrar peningaútgáfu Grikklands um alla eilífð. Hótunin var sett fram á fundi þar sem ECB seðlabankastjórinn gékk út. Til umræðu hafði komið að yfir-yfirvöld Grikklands, sem eru staðsett í borginni Brussel í Belgíu, sendu landið í ríkisgjaldþrot, að hluta til. Aðal stjórnmálamaður evrusvæðisins, seðlabankastjóri Evrópusambandsins, Jean-Claude Trichet, tekur það ekki í mál. Basta. 

Cepos - Tafla 1 meðal vinnustundafjöldi á íbúa 2006
Síðan kom fröken Angela Merkel fram á svalirnar, eftir að hafa verið á intensífu dráttarvélanámskeiði evrusvæðisins árum saman, og lýsti því yfir að Grikkir og Suður-Evrópubúar væru latir, ynnu svo að segja ekki neitt og væru alltaf í fríi. Tölurnar segja okkur hins vegar allt annað, einnig um frídagana, eins og t.d. portúgalska Jornal de Negocios bendir á. 

Næst kom fram Dirk Hoeren á Bild-Zeitung í Þýskalandi og sagði að hinn "góði efnahagur Þýskalands hefði ekki fallið af himnum ofan heldur væri hann árangur af harðri vinnu".
 
Hið rétta er auðvitað að þýska hagkerfið hefur stundað massífa innvortis gengisfellingu gagnvart öllum evrulöndunum í 12 ár. Þau geta ekkert að gert því þau eru í læstu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland um aldur og ævi. Allir hugsandi menn vita að væri þýska hagkerfið með frjálst fljótandi eigin gjaldmiðil, þá væri gengi hans miklu hærra en það er í dag. Þýskaland ríður áfram á bökum minna þróaðri hagkerfa evrusvæðisins í suðri sem norðri - á fölsuðu gengi. Svona hefur Þýskalandi tekist að raka saman hátt í 1000 miljörðum evra í viðskiptahagnað við umheiminn, sérstaklega gagnvart evrulöndum. Þau fara þrot.
 
Yfir-yfirvöld Grikklands í Brussel hafa nú krafist tvöföldunar á niðurskurði gríska ríkisins og að meira land og eignir verði seldar - sell, sell, sell. En lóða- og þinglýsingaskár eru eins og þær eru í gamla Grikklandi, þannig að nú geta Grikkir hafið innbyrðis styrjöld um eignir landsins á sama tíma og þeir berjast við yfir-yfirvöld lands síns í Brussel. Þetta endar með nýrri herstjórn. Sannið til.
 
Svo eru það Írland og Portúgal sem næst fara í skemmtiferðalag. Og síðan Spánn og Ítalía. Þetta smá kemur.  
 
Mynd 1 Cepos: meðal vinnustundafjöldi allra í þjóðfélaginu árið 2006, á hvern mann.
Mynd 2 Cepos: dálkur 1: fjöldi vinnustunda á hvern mann sem hafði atvinnu árið 2006. Dálkur 2: Atvinnuþátttaka fólks á vinnualdri. Dálkur 3: meðal vinnustundafjöldi allra í þjóðfélaginu árið 2006.
 
Athugið: Ísland er efst á mynd 1 því hér höfðu flestir atvinnu þannig að atvinnustig var það besta í öllum löndum OECD. Mest var að gera, flestir höfðu atvinnu en unnu þó færri tíma en hver Grikki sem hafði atvinnu.  
 
Krækja: Financial Times: The ECB goes all-in - The Economist; Sell, sell, sell
 
Fyrri færsla
 

Ríkið sem dó í þjóðareign

Bíddu. Hvernig var þetta aftur. Voru ekki allar eigur og auðlindir Sovétríkjanna í þjóðareign þegna Sovétríkjanna. Var það ekki þannig?

Hvernig gekk þessi búskapur; ríkisauðlindakommúnisminn? Allir voru alveg jafnir. Um það bil 60 milljónir manna voru jafnaðir við jörðu. Sumir þeirra jafnvel jarðsettir ef efnahagur og ríkidæmi þessa heimsveldis fátæktarinnar leyfði. Fátæktin sigraði að lokum flest í þessu ríki auðlinda, sem allar voru alltaf í "þjóðareign". 

Hrikalega massífar auðlindir móðurjarðarinnar voru eign þjóðarinnar, en sem alltaf varð þó bara fátækari og fátækari. Loks dó þjóðin í náttúruauðlindum þessa ríkis upp í háls. Hún dó í þjóðareign.

Stjórnvöld sem tala um að auðlindir eigi að vera þjóðareign eru hvorki meira né minna en klepptæk. Þau hafa ekkert lært og eru ófær um að læra.

Auðlindir í þjóðareign, sem stefna, er hreinræktaður kommúnismi. Hins vegar geta einstaklingar þjóðarinnar nýtt auðæfi lands okkar eins og þeir gera og hafa alltaf gert. Það munu þeir alltaf gera best og mest ríkidæmi fyrir alla mun einungis þannig hlotnast. 

Er skattur á súrefni á Íslandi næst á dagskrá? Hvað verður það næsta; jarðir teknar af bændum? Fyrndar? Landnáma gerð ógild? Afsöl bænda brennd? 

Weimartímabil ríkisstjórnar haturs og hefndar heldur áfram á Íslandi, undir hörpuslætti. Dansinn dunar.
 
Nei, þjóðríki á barmi ríkisgjaldþrots í umsjá AGS á ekki að byggja egypska píramída handa ríkissjóð. Ráðdeild, vinsamlegast! Við erum ekki þjóðnýtt enn, er það?
 
Við eigum að veiða fisk og þéna fyrir því sem gera skal. Sjávarútvegur er undirstaða efnahagslegrar tilveru okkar í þessu landi. Restin af hagkerfinu er byggður með afrakstri sjávar og lands. Áfram sjómenn og útgerðarmenn Íslands! Varið ykkur bændur!
 
Fyrri færsla
 

Allar 101 ferðir Samfylkingarinnar eru Skemmtiferðir

ESB-RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS 101 - BRYNNIR SÉR Í BRUSSEL

 

Skemmtiferð

Að sjá og elska ættland sitt 

er öllum sálubót.

Þeir óku fram hjá Esjunni, 

en enginn sá þar grjót.

Yfir Hvítá æddu þeir,

en enginn sá þar fljót.

 

Svo var aftur haldið heim 

og höfðinglega veitt. 

Ferðin hafði farið vel, 

og fólkið gerðist þreytt. 

Ættjörðin var yndisleg — 

þó enginn sæi neitt. 

(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)

 

Hattur ofan . . 

 

Fyrri færsla

Fullkomin Evra í fullkomnum ríkjum ESB árið 2004 - samkvæmt Jean-Claude Trichet


Fullkomin Evra í fullkomnum ríkjum ESB árið 2004 - samkvæmt Jean-Claude Trichet

Jean-Claude Vigliant Trichet
 
Spurður að því í Dyflinni árið 2004 hvort evran ætti ekki á hættu að rakna upp sem mynt margra ólíkra ríkja vegna þess að það væri engin alríkisstjórn með nein alríkisfjárlög til staðar á evrusvæðinu til þess að koma í veg fyrir ójöfn áföll (asymmetric shocks) á myntsvæðinu, þá svaraði hinn 2004-fullkomni seðlabankastjóri Evrópusambandsins og landföðurímynd íslenskra ESB-sinna, Jean-Claude Trichet, þessu svona:

"Nei alls ekki. Fyrir það fyrsta þá mun bara sjálf tilvist stöðugleika- og hagvaxtarsáttmála Evrópusambandsins (e. Stability and Growth Pact) gera okkur kleift að eyða þessum efasemdum fullkomlega; Maastricht sáttmálinn og stöðugleika- og hagvaxtarsáttmálinn mun veita fjármálaráðherrum evruríkja möguleika á gagnkvæmu eftirliti - þ.e. umsjármönnum ríkisfjármála þjóðríkja evrusvæðisins -  með ríkisfjármálum ríkjanna, þannig að þau séu því sem næst alltaf í hagnaði til miðlungs tíma litið. Því næst mun stöðugleika- og hagvaxtarsáttmáli Evrópusambandsins einn og sér síðan sjálfkrafa sjá til þess að engin ríki lendi í því að brjóta lögin um hámarks þrjú prósent halla á ríkisfjármálum, skyldu þau lenda í efnahagslegum vandræðum (via automatic stabilisers)." (gróf þýðing)
 
In this respect, the very existence of the Stability and Growth Pact actually allows (us) to refute these two arguments: first, the Maastricht Treaty and the Pact provide a mutual surveillance by the “peers”- i.e. the Ministers of Finance - of national fiscal policies; second, by calling upon Member States to maintain their budget close to balance or in surplus over the medium term, the Pact allows the automatic stabilisers to play in full in countries facing an economic downturn, without breaching the 3 % ceiling for the deficit.” 

Hahh!

Nú jæja. Hvar ættum að að byrja? Á árinu 1998, 2001 eða 2007 eða 2008 eða 2011.
Í Grikklandi (gjaldþrota + AGS + ríkisgjaldþrotasjóður ESB) ?
eða í Portúgal (AGS + ríkisgjaldþrotasjóður ESB) ?
eða á Írlandi (AGS + ríkisgjaldþrotasjóður ESB) ?
Spánn?
Þýskaland?
Frakkland? 
 
- eða á þeirri staðreynd að ekkert evruríki uppfyllti Maastricht sáttmálann árið 2008 og allar götur síðan, nema Luxembúrg og Finnland (kannski). Svo kemur sú staðreynd líka að flest ríki evruvæðisins fölsuðu hagtölur sínar til þess að komast um borð í þetta Titanic ESB; evruna árið 2001. Evrusvæðið er bara rúmlega sex árum seinna ein rjúkandi rúst, eins og hagfræðingar á Ugebrevet A4 lýstu því í Danmörku í fyrra. 
 
Nú þurfa evruríkin sem sagt ekki að hafa áhyggjur af neinu: Jean-Claude Trichet mun sjá um þetta - en - bara eitt smáatriði í viðbót; það þarf að stofna alríkisstjórn Bandaríkja Evrópu í einum helvítis hvelli, áður en allt er um bloody seinan. Reddum þessu. Immed!

Á maður að hlægja eða gráta? Ekki fer ég að gráta yfir þessu. Þá er það víst bara hláturinn sem er einn eftir.
 
Jafnvel Sovétríkin hefðu gert betur. 
 
 
Bíddu, það er meira. Hagfræðingar (on the other hand) Handelsbankans í Danmörku spá 23 prósent gengishækkun Bandaríkjadals innan árs - miðað við evru - og mun sterkari útflutningi en hjá Þýskalandi, sem þeir segja að sé frekar hlutfallslega hjáróma miðað við útflutningsstyrk hagkerfis Bandaríkjanna um þessar mundir. Ríkisskuldavandamál evruríkja . . . . (púff) . . . nei nú nenni ég ekki meiru . .  Skoðið krækjuna.  
 
Krækjur:
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband