Leita í fréttum mbl.is

Þýsk yfirvöld: Evrópusambandið hefur eyðilagt bankakerfi Þýskalands

Efnahagsmálaráðherra Schleswig-Holstein kennir Evrópusambandinu um vandræði bankakerfis Þýskalands - sem núna er að komast i þrot

Dr. Werner Marnette

Dr. Werner Marnette er efnahagsmálaráðherra fyrir þýska ríkið Schleswig-Holstein (ferilskrá). En Schleswig-Holstein er nyrsta ríki Þýskalands og liggur upp að landamærum Danmerkur. Í Schleswig-Holstein býr einnig danskur minnihluti frá því Schleswig-Holstein tilheyrði Danmörku

Dr. Werner Marnette sagði í viðtali við BBC að bankakerfi Þýskalands hafi verið breytt að tilskipan Evrópusambandsins þegar ESB skipaði því að verða “meira samkeppnishæft”

Samkvæmt fréttum frá Þýskalandi neitaði Dr. Marnette að samþykkja neyðaraðstoð til HSH Nordbank eftir að bankinn hafði tapað miklum fjármunum á “flóknum fjármálagerningum”

Dr. Marnette segir að þegar Landesbank(ar) Þýskalands veittu þýskum bönkum og fyrirtækjum lán fyrr á tímum, þá var ríkisábyrgð á bak við áhættutökuna. Þessar ríkisábyrgðir gerðu Landesbankakerfinu (fylkisbankakerfinu) kleift að lána peninga á hagstæðari kjörum og á lægri vöxtum. En árið 2001 voru þessar ábyrgðir bannaðar af Evrópusambandinu. Þegar þetta gerðist varð Landesbankakerfið að breyta um stefnu og stefnumark

Landesbank

En afleiðingarnar voru hörmulegar, segir Dr. Marnette. Bankarnir misstu það góða innsæi og samband sem þeir höfðu við fyrirtæki í ríkjum Þýskalands. Bankarnir urðu að þróa með sér alþjóðlega stefnu fyrir starfsemi sína. Þetta var afleiðing og arfleið tilskipananna frá ESB

Bankakreppan í fylkisbankakerfi Þýskalands er ekki bein afleiðing hinnar alþjóðlegu fármála- og efnahagskreppu, segir Dr. Marnette. Nei, mistökin sem til dæmis HSH Nordbank gerði voru þau, að þeir lánuðu ódýra peninga á alþjóðamarkaðnum, en höfðu engin fyrirtæki eða viðskiptavinni í Þýskalandi til að taka við meiri lánum frá bönkunum. Því fóru bankarnir út í að þróa nýjar leiðir til að koma peningunum í lóg. Þeir fóru til dæmis inná bandaríska fasteignamarkaðinn, sem var meira og minna bólugrafinn og sem hrundi þegar kreppan kom. HSH Nordbank er að hluta til eign fylkisríkisstjórnar Schleswig-Holstein og Hamborgar

Landesbankar Þýskalands

Ástandið í Landesbankakerfi Þýskalands er nú svo alvarlegt að ríkisstjórn Þýskalands hefur farið þess á leit við Evrópusambandið að Þýskaland fái leyfi til að að endurskoða bókhaldsreglur banka og að það verði slakað á kröfum um eiginfjárhlutfall banka; samkvæmt Basel reglunum um eiginfjárkröfur til banka. En þessu hefur verið hafnað. Viðbúnaður í Þýskalandi til að mæta hinni seinni hrinu á fjármálamarkaði í haust og vetur er því núna í áköfum undirbúningi. Málin líta alls ekki vel út í Þýskalandi. Verk ESB elítu Evrópu tala víða. Þegnarnir fá svo náðarsamlegast að greiða fyrir draumana 

 

SÍMSKEYTI: > Steinbruck says government has received warnings of a credit crunch

Peer Steinbruck yesterday revealed that the German government had received expert advice that a credit crunch might come about during the second half of the year, and preparation are being made to solve the problem. Steinbruck said that the Bundesbank might in this case circumvent the banks by lending directly to companies. Axel Weber, who had made similar remarks yesterday, went out of his way to confirm that the situation had not arisen yet, but it seems that they extremely worried about a general deterioration in banks’ willingness to provide credit. FRÁ - FULLT STOPP

 

Hrun iðnaðarframleiðslu Þýskalands núna og 1929

Þýska ríkið greiðir niður atvinnuleysið. En nú eru peningarnir að verða búnir 

Í júní mánuði sagði Dr. Werner Marnette að atvinnuástand í Þýskalandi væri mjög bágborið og ennþá verra en opinberar tölur segja til um. Í Þýskalandi er nefnilega í gangi prógramm á atvinnumarkaði sem kallast "Kurzarbeit". Þar greiðir þýska ríkið hluta af launum starfsfólks því atvinnuástand er það bágborið að stór hluti vinnuafls hefur ekki fulla dagvinnu og vinnur því minna en fulla vinnuviku. Ríkið greiðir mismuninn samkvæmt þessu Kurzarbeit prógrammi. Þetta dylur hið raunverulega atvinnuleysi sem er því mun hærra en þau 8,1% sem opinberlega eru gefin upp til hagstofu

Dr. Marnette segir að þetta fyrirkomulag ali upp ósamkeppnishæf fyrirtæki og þegar þeir peningar sem eru veittir í þetta “Kurzarbeit-fyrirkomulag” eru búnir, þá muni atvinnuleysi Þýskalands þjóta upp. Yfir 10.000 fyrirtæki urðu gjaldþrota í Þýskalandi á fyrstu þremur mánuðum ársins

Mín skoðun

Ef Þýskaland átti áður fyrr gott bankakerfi þar sem yfirvöld sáu sér hag í að deila hluta af áhættunni með fjárfestum og starfsfólki í fyrirtækjum Þýskalands, af hverju máttu þeir ekki fá að hafa þetta bankakerfi sitt í friði fyrir Evrópusambandinu? Þýskaland hefur alls ekki jafn sterka hefð fyrir því að afla fjárfestingarfjármuna á opnum hlutabréfamörkuðum eins og til dæmis Bandaríkjamenn hafa. Hinn almenni Þjóðverji spáir ekki í hlutabréf. Svoleiðis er þetta bara. Þetta er kannski álíka átakanlega fjarstæðukennt og hugmyndin um að ætla Spánverjum og Ítölum að búa við sömu efnahagsstefnu og mynt og Þjóðverjar nota. Gengur aldrei upp. Fáránleg hugsun.

En af hverju á að þvinga þetta stóra Þýskaland til að spila það spil sem þeir eru kannski ekki svo góðir í? Þjóðverjar geta ýmislegt annað og aðra hluti en allir hinir geta. Marga hluti. Hversvegna í ósköpunum þarf þetta allt að verða ein og sama steypan? Það er jú ekki eins og að allt Þýskaland hafi verið eða sé rekið eins og Norður Kórea eða Kúba. Það var og er fullt af bönkum í einkaeigu í Þýskalandi

Af hverju máttu Þjóðverjar ekki hafa Landesbankakerfi sitt í friði fyrr ESB? Hvaða tilgangi þjónar þetta? Þurfa allir að vélsagast ofaní sama Brussel formið? Lesandi góður: hefur þú hugsanlega rekist á fleiri bankakerfi sem "alveg óvart" hafa látið lífið ofaní naglasúpupotti ESB? Kannski myndi upptaka evru í Þýskalandi bjarga "fjármálageiranum" þar. Það segir kór fræðinga á Íslandi að sé allra meina bót sem leysi fjármálavanda allra landa á einu bretti 

The Illustrated Road to Serfdom Planners

Kórinn og titlarnir - kirkjukór Evrópusambandsins á Íslandi 

Er það ekki dæmigert fyrir kirkjukór ESB á Íslandi að það skuli birtast lofsöngsgreinar eftir greinar á bestu stöðum blaða og ríkisfjölmiðla. Lofsöngur um það hvernig ESB ætti að færa Íslandi því sem næst gulli og grænum skógum - og það alveg gratís. Höfundar greinanna skrifa yfirleitt alltaf undir með titlagrobbtittum sínum. Veifa þeim sem fána við húninn á stönginni. “Höfundur er menntaður xxxxfræðingur”. Eins og okkur sé ekki nákvæmlega sama um hvort maðurinn hafi heildsöluháskólagráðu eða gagnfræðapróf, sem þó einungis áttu að vera gagnleg en ekki þjóna í hlutverki magnara fyrir tómar tunnur. Maður er bókstaflega að ærast í fræðingabullinu

Við viljum fá menn sem geta hugsað. Titlagrobbið á Íslandi er sprenghlægilegt og jafnframt hjákátlegt. Heimurinn hefur haft yfirdrifið ofgnótt af mönnum og konum sem kunna, en geta þó ekki hugsað. Lang-langskólagengið fólk án menntunar og hreinnar hugsunar. Eins og gamli Douglas Hurd, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands sagði við drenginn sem langaði að verða atvinnupólitíkus - “já en fyrst þarftu að verða góður í annarri atvinnu áður en þú getur orðið góður stjórnmálamaður”.

Af hverju er þingið okkar svona þétt setið fólki sem veit ekki neitt og kann ekki neitt? Ég spyr! Er þingið og stjórnsýslan nokkuð að breytast í nýtt útrásarbankakerfi? Getur það nokkuð hugsast? Mér finnst nefnilega smíðahljóðin frá þessum apparötum minna eitthvað svo óþægilega á gamlan gusugang frá Ólafstímunum. Taka lán ofaní lán og borga seinna, sama hvað það kostar. Meiri og stærri lán. ESB-aftansöngur og útsölutilboð skoðana í þinginu um miðja nótt sem ónýta daga. Allt látið reka á reiðanum sem máli skiptir. Skriðið út um allar jarðir með skuldirnar standandi út úr eyrunum og beðið um meira, miklu meira! Beðið um yfirskammt eiturlyfjaneytandans. Gefðu mér frið núna, borga seinna. Við vitum öll hvernig það endar

Hagvöxtur í Þýskalandi í 60 ár

Kunna, vita og hugsa 

Þeir sem vita eitthvað um Evrópusambandið vita að þar er ekki stöðugleiki, því 30 ára massíft fjöldaatvinnuleysi hefur fært því stöðnun sem er orðin að hnignun. Að vera næst lélegasta hagvaxtarsvæði heims þýðir hrörnun og lömun. Að vera orðið stærsta elliheimili heims vegna þess að ungt fólk í ESB hefur ekki trú á framtíð sinni í ESB, - og eingast því engin börnin - er hnignun og hvorki meira né minna en stórslys, disaster. Það er kistulagning hinnar efnahagslegu framtíðar Evrópusambandsins um aldur og æfi sem fer fram núna. Þessi þróun hefur verið í gangi öll hin síðustu 25-30 ár. Og alveg án þess að esbkórinn á Íslandi hafi tekið eftir neinu. Þau lönd sem hafa einu sinni farið undir 1,5 lifandi fædd börn að meðaltali á hverja konu í fæðingatíðni, hafa aldrei náð sér upp úr öldudalnum aftur. Það er aðeins ein undantekning til frá þeirri reglu. Svo kæru Íslendingar. Gleymið öllu um ESB. Það verður ekki þar sem framtíðin mun lýsa björt, því ESB mun verða hið stóra ríki fátækarinnar. Þá þróun er ekki lengur hægt að stöðva. Það er því miður of seint. Allt of seint

Fyrri færsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Spenna hjá Lofti A.

Júlíus Björnsson, 9.7.2009 kl. 07:58

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Gleymdi Jón Fríman að taka lyfin sín í morgun?

Hagvöxtur í heiminum samkvæmt spá Alþjóðabanka í gær: frèttafluttingur RUV, vex í 2,2% næsta ár. Hækkun í Kína og Indlandi. Á EU var ekki minnst. Húsbónda 30% Íslendinga.

Aftur á móti er kannski ódýrara að auka hagvöxt á þessum svæðum enn í EU. 

Kreppan er komin. EU [8%] er einangruð.

Júlíus Björnsson, 9.7.2009 kl. 08:58

3 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Jón Frímann ESB sinni hvað færðu á mánuði í laun fyrir að stunda þennan ESB útursnúninga áróður fyrir sossana?????

Marteinn Unnar Heiðarsson, 9.7.2009 kl. 09:37

4 identicon

Sælir,

Með þetta í huga er hollt að skoða eftirfarandi efni:

The Real Face of the European Union

http://video.google.com/videoplay?docid=2699800300274168460&hl=en

og ekki skemmir eftirfarandi í bland til að sjá fleiri hliðar á málunum.

Hvað er rétt í þessu verðum við að reyna að vega og meta sjálf.  Er þá ekki best að hafa fullt sjálfræði til þess að meta stöðuna í stað þess að hafa afsalað sér möguleikan á sjálfstæðum ákvörðunartökum?

New rulers of the world, a Special Report by John Pilger

http://video.google.com/videoplay?docid=-7932485454526581006

http://en.wikipedia.org/wiki/The_New_Rulers_of_the_World

Það sem þarf að byrja á að gera á Íslandi til að koma okkur í takt við EU og önnur þróður efnahagskerfi er að fella niður hið óréttláta verðtryggða efnahagskerfi okkar og innleiða nútímalega viðskiptahætti eins og eiga sér stað í hinum þróaða heimi...  

Eigið góðan dag, áfram sjálfstæð hugsun og áfram Ísland.

Kv.

Atli

 

Atli (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 10:12

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þú meinar neysluverðs verðtryggja íbúðarhúsnæði í stað þess að fasteignverðs verðtryggja það? Það er hinar þjóðirnar gera . Tyrkir eru álíka vitlausir Launaverðs verðtryggja íbúðarhúsnæðið.

Júlíus Björnsson, 9.7.2009 kl. 10:23

6 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Jón Frímann er greinilega útlendingur, útsendari ESB. Í öllu falli virðist hann ekki skrifandi á íslensku.

Ég er enginn íslenskusérfræðingur en að lesa þetta rugl úr Jóni, bæði efnislega og málfræðina, er þjáning sem á ekki að þurfa að bjóða nokkrum manni upp á.

Sigurður Sigurðsson, 9.7.2009 kl. 19:47

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Nýlegur úrskurður stjórnarskrárdómstóls Þýskalands mun gera þeim auðveldara að verjast ESB tilskipununum sem þessari. Hér heima fjallaði RÚV um úrskurðinn um hvort Lissabon sáttmálinn samrýmdist stjórnarskrá Þýskalands eins og að allsherjarsigur ESB hafi unnist.

Mér sýnist þessi úrskurður geta orðið upphafið að endalokum Evrópusambandsins, í það minnsta stórríkisins.

Ætli endirinn verði ekki bara að EES dugi til þess sem þörf er á.

Ragnhildur Kolka, 9.7.2009 kl. 22:26

8 Smámynd: Historiker

Svona fyrir utan það að vera rugl í heild sinni, þá er eitt alveg sérstaklega athugavert við þá skoðun sem fram kemur í þessum pistli. ESB myndi aldrei nokkurn tíma setja lög eða reglur sem stangast á við heildarhagsmuni Þýskalands, and that's a fact.

Historiker, 9.7.2009 kl. 23:00

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

ESB myndi aldrei nokkurn tíma setja lög eða reglur sem stangast á við heildarhagsmuni Þýskalands, and that's a fact.

Þýsku og Ensku og Frönsku Elíturnar sameinast í sínum fjölbreytileika, efnahagur léna verður áfram sjálfstæður þótt flest lénin taki á sig hagræðingu og sérhæfingu í því sem þau teljast best gera. Frjálst flæði Seðlabankakerfi EU og Nefndin vinna daga og nótt við að láta grunninn rætast.   

Vanmetum ekki risanna: heimsvaldastefna er þeirra sérfræði.

Júlíus Björnsson, 9.7.2009 kl. 23:47

10 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Sniðugt, hófst í Bandaríkjunum og alþjóðavæðingin og ómældur auður neyddi þýska banka til að koma peningum í lóg í USA - en einhvernvegin er það svo allt vonda ESB að kenna. - Sumir menn eiga bágt - virkilega bágt.

Helgi Jóhann Hauksson, 10.7.2009 kl. 02:13

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

USA og Kína er vissulega mestu örlagavaldar á heimsmælikvarða framtíðarinnar. Á sama mælikvarða hefur gengi EU fallið.

Þetta er engum að kenna heldur svarið við spurningunni hverjir komast af. 

Á sínum tíma um 1932 losuðum við okkur við Danska efnahagsbandalagið. 

Það er arfavitlaust að einangrast með 8% heimsins í EU. 

Pólverjar í USSR þurftu að senda bestu vörurnar til Moskvu og láta sér nægja skort eða drasl. Miðstýring.

Bíða eftir því að uppgangur  kemur aftur í EU  er besta valið í stöðunni í dag. USA sér ekki sólina fyrir uppgangsmörkuðum ASíU: aðal keppnautar EU hingað til.

Júlíus Björnsson, 10.7.2009 kl. 02:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband