Leita í fréttum mbl.is

Danir senda aðvörun til glæpstarfsmanna. Örvæntingin innan ESB magnast

Dönsk landamæravarsla. Mynd; Arne.list
Mynd; Arne List
 
Danskir tollverðir snúna aftur til starfa við landamæri Danmerkur. Öflugt merki er þar með sent til evrópskrar glæpastarfsemi. 
 
Þarna, á þessari nokkuð eldri mynd, blakta við hún fimm fánar Norðurlanda. Danskri fánalöggjöf er að sjálfsögðu fylgt til hlítar, en hún skipar svo fyrir að þjóðfáni Danmerkur sé ávalt við hærri hún ef fánum annarra þjóða er flaggað samtímis. Hve lengi Danir geta haldið í fánalöggjöf sína innan vaxandi valda hinnar nýju stjórnarskrár ráðstjórnar Evrópusambandsins sem enginn kaus, er aðeins spurning um tíma.
 
Í dag blakta engir fánar Norðurlanda þarna við hún. Sjálfur þjóðfáni Dana fór einnig um leið og danska lögreglan yfirgaf landamærin og stálskilti Evrópusambandsins var sett þar upp í stað hennar og þjóðfánans. Að halda uppi þjóðfána krefst fullveldis.
 
Danir, sem á sínum tíma gengu aðeins í EF, hafa loksins gefist upp á ESB-alglæpavæðingu ráðstjórnar Brusselveldisins í Evrópu, og stillt táknrænt upp tollvörðum við landamæri þessa gamla konungsríkis. Fyrir þetta fá þeir að launum skammir, hótanir og efnahagslegar hryðjuverkaárásir frá opinberum ráðherrum í m.a. Þýskalandi, þar sem Þjóðverjar eru hvattir til að hætta að kaupa danskar vörur og fara til Danmerkur í sumafrí. Já, hótanir frá ráðherrum í landinu sem hefur sprengt myntbandalag Evrópusambandsins í loft upp með 12 ára samfelldri innvortis gengisfellingu Þýskalands í kapphlaupi evrulanda niður á botn samfélaga heimsins. Þetta getur Þýskaland gert því hin löndin eru orðin algerlega varnalaus. Þau hafa glatað öllu fullveldi sínu í mynt- peninga- og vaxtamálum og eru varanlega fastlæst í gengis- og gjaldmiðilshandjárnum við hið deyjandi Þýskaland. Ef ekkert verður að gert mun Þýskaland toga þau með sér ofan í líkkistuna. Þannig virka evru-handjárn myntbandalags Evrópusambandsins 

Segja má að landamæraaðgerðir Dana séu ógnvekjandi merki um örvæntingarfulla aðstöðu smáríkis innan Evrópusambandsins. Danir hafa einnig komist að því að á skattafjármögnuðum háskólabekkjum landsins sitja nú 6.153 ESB-útlendingar og þiggja þar ókeypis menntun sem danskir skattgreiðendur eru skyldugir að veita þeim ókeypis. Þessi tala var 1.633 manns árið 2005 og hækkaði hlutfall ESB-útlendinga um 41 prósent á milli áranna 2009 til 2010. Af þessum 6.153 námsmönnum koma 3.800 frá Austur-Evrópu. Aðeins fimmtíu Danir sóttu menntun í Austur-Evrópu á sama tíma. Evrópusambandið skipar Dönum svo fyrir að þeir séu skyldugir að veita öllum Evrópusambandsborgurum ókeypis menntun svo lengi sem Danir sjálfir þurfa ekki að greiða sérstaklega fyrir þessa menntun sína heima í Danmörku. Allir sjá að hér er vegið að danska samfélaginu — sem stundum var kennt við norræna velferð áður en Evrópusambandið tók landið yfir — og danskir skattgreiðendur munu ekki halda til þessarar misnotkunar á skattgreiðslum þeirra sem í upphafi áttu að vera eyrnamerktar Dönum.  

Því miður geta Danir ekki stöðvað útflutning á vinnustöðum Danmerkur suður yfir landamærin. Þangað er stærsti hluti sláturhúsa og eftirvinnslu í dönskum landbúnaði og matvælaiðnaði fluttur, því þar eru tímalaunin aðeins brot af því sem þau eru í Danmörku. Í Þýskalandi vinnur aðeins áttundi hver Þjóðverji fulla vinnuviku og sem þar telst vera 35-38 tímar. Allir hinir vinna mun færri tíma á viku hverri því atvinna er og hefur verið þar af svo skornum skammti síðastliðin 30 ár, því Þýskaland er að deyja sem samfélag. Þar lifir fimmti hver vinnandi maður í fullri vinnu í fátækt og örbyrgð. Launin eru horfin. Engin kauphækkun hefur átt sér stað í samfleytt 13 ár í Þýskalandi. Svona er gengi þýska hagkerfisins gagnvart umheiminum stanslaust lækkað innan frá. Með lækkun launa og kostnaðar.  

Þáttatekjur landbúnaðar: Landbrugets bruttofaktorindkomst efter type og tid; Hagstofa Danmerkur
Í Danmörku hefur þetta meðal annars þýtt að 65 prósent af tekjum bænda verða að koma frá opinberum styrkjum. Þetta hlutfall hefur farið síversnandi síðustu 20 árin. Fjórði hver danskur bóndi er á leiðinni í gjaldþrot og danskir bændur skulda að meðaltali sem svarar til 700 milljónum íslenskra króna hver. Heilu landshlutar Danmerkur eru komnir inn í vítahring örrar hnignunar því hið sterka samfélagslega hlutverk dansks landbúnaðar er að visna svo hratt. Hann er að þrotum kominn eftir öll mörgu mögru árin í Evrópusambandinu og í handjárnunum við hið deyjandi Þýskaland og nú einnig alla hina dauðvona Austur-Evrópu. Ástandið er orðið svo slæmt í dönskum landbúnaði að hver bóndi sem hefur búskap í dag þyrfti að hafa eitt þúsund mjólkurkýr eða 30 þúsund svín til að reksturinn gangi upp aðeins nokkur ár inn í framtíð hans í Evrópusambandinu. Þetta er sú framtíðarsýn sem blasir við bændum í Danmörku. Helmingur alls jarðnæðis Danmerkur þyrfti að komast á hendur aðeins 7 þúsund svo kallaðra iðnaðarbændabýla innan fárra ára. Árið 1988 voru 85 þúsund bændabýli í Danmörku. Tuttugu árum síðar, eða árið 2008, er þessi tala komin niður í 19 þúsund býli og það kostar bóndann um miljarð ISK í dag að hefja búskap. Nýliðun er því sáralítil. Matvæli fyrir neytendur og utan að komandi í Danmörku eru orðin þau allra dýrustu í Evrópusambandinu.
 
Bráðum þarf ekkert landbúnaðarráðuneyti í Danmörku. Því hvernig ættu stjórnvöld að fara að því að afsaka fyrir kjósendum heilt ráðuneyti yfir einum bónda? Það er hvort sem er komið varanlega niður til Brussels. Alveg eins og sjávarútveginn, það steindauða fyrirbæri þar.
 
Ef Danmörk á að lifa af í Evrópusambandinu þá þarf landið að koma sér niður á Austur-Evrópsk lífsskilyrði og lífsgæði hraðrar en í gær. Danmörk verður í eitt skipti fyrir öll að horfast í augu sannleikann og gleyma öllu um eitthvað sem líkist norrænni velferð. Það gekk í Evrópusambandið, lagði niður fullveldið í peningamálum sem og öðrum málum, og verður að horfast í augu við þá óumbreytanlegu staðreynd. Það kostar að ganga í ESB og leggja niður fullveldið.

Á síðasta ári fundust í Svíþjóð fangabúðir úti í skógi fullar af innfluttu fólki sem notað er sem þrælar til ýmissa starfa innan landamæra Evrópusambandsins. Alveg án matar og þar sem fólkið neyddist til að draga fram lífið á soðnu grasi og krákum sem það reyndi að skjóta sér í matinn með teygjubyssum og spjótum. Þetta var aðeins eitt af þeim mýmörgu tilfellum sem sænsk verkalýðsfélög og lögregla hafa þurft að hafa afskipti af á einu ári. Þetta er hamingjan í Evrópusambandinu. Bjöllur Brussels hringa þar inn hinum gulbláu nýju Sovétríkjum Evrópu.
 
Ísland yrði kjörið sem landsvæði fyrir fanganýlendu Evrópusambandsins. Hún yrði mikil nýsköpun og massíft atvinnutækifæri: að fá evrópsku mafíurnar beint í æð Íslendinga. Hægt væri að setja þetta mál í farveg og allir gætu komið að því — nema kjósendur auðvitað — alveg eins og með ESB-umsóknina og flest sem gert er í Evrópusambandinu.
 
In seiner „Weltkarte der Terrorgefahren 2011“ stuft Aon das Risiko für eine „Revolution, einen Staatsstreich oder einen Bürgerkrieg“ als „hoch“ ein. Griechenland liegt damit gleichauf mit Algerien, Bahrain und Iran. Schlechter sind nur Libyen, Ägypten und Somalia eingestuft  
 
Hlutabréf í kerfislega mikilvægustu fjármálastofnun  Ítalíu, UniCredit, lækkuðu um smá 20 prósent í síðustu viku (7,5 prósent fall bættist svo við í dag mánudag). Og nú meta alþjóðlegir miðlarar trygginga og matsmenn áhættuvirkni að hættan á borgarastyrjöld, valdaráni eða byltingu í evruríkinu Grikklandi sé "há" (high) og hærri en í Alsír, Bahrain og Íran. Seðlabanki Evrópusambandsins lýsir hér með eftir sérfræðilegri skyndihjálp handa sjálfum sér vegna komandi ríkisgjaldþrots Grikklands og ef til vill fleiri evruríkja. Skyldi hann einnig vera á leiðinni í gjaldþrot? 
 
Borgarastyrjöld í myntbandalagi Evrópusambandsins? Já, þetta er alveg að takast hjá veruleikafirrtri elítu Evrópusambandsins. Stöðugleikanum fræga er hringt inn í myntbandalagi ESB.
 
Þetta voru ekki fréttir úr DDRÚV 
 
Krækjur
 
Stöðugleiki; Slavearbejde i vor tid (PDF) 
 
 
Fyrri færsla
 

Verstu lánskjör heimsins eru í myntbandalagi Evrópusambandsins

Að taka upp evru hefur haft í för með sér verstu lánskjör í heimi meðal þróaðra ríkja. Engum löndum bjóðast nú eins slæm lánskjör á alþjóðlegum fjármálamörkuðum eins og evruríkjum bjóðast. Nú eru lánskjör evrulanda verri en þau sem Suður-Afríku, Indónesíu og bananalýðveldum bjóðast. Hér eru nokkur dæmi um lánskjör á 10 ára lánum, skyldu þau fást. Snúum okkur að fimm ára lánum til ríkissjóða nokkurra evrulanda og hins vegar Íslands;
 
Grikkland
 
Krafist er 20,86 prósent vaxta af Grikklandi ef fjárfestar ættu að lána gríska ríkinu peninga til fimm ára. Líkleg systir forsætisráðherra Grikklands fengi sennilega betri vaxtakjör á greiðslukortum sínum. Kannski til að kaupa sér skó. En Grikkland fær enga peninga að láni til að kaupa lyf og búnað fyrir fólkið í landinu. Það tók nefnilega upp evru. Grikkland er í myntbandalagi Evrópusambandsins.
  • Skuldatryggingaálag; 2177 punktar (tvö þúsund eitt hundrað sjötíu og sjö).
  • Atvinnuleysi; meira en 15 prósent
Portúgal
 
Af Portúgal er krafist  16,98 prósent vaxta skyldi einhver vilja lána ríkissjóði landsins peninga í fimm ár. Portúgal tók upp evru og er á svipaðri leið og Grikkland; í ríkisgjaldþrot. Portúgal er í myntbandalagi Evrópusambandsins. Fjármálakerfi landsins, allir bankar, hafa verið afskornir frá umheiminum í meira en ár. 
  • Skuldatryggingaálag; 1023 punktar. 
  • Atvinnuleysi; 12,4 prósent
Írland
 
Af Írlandi er krafist 15 prósent í vexti fyrir peninglán til fimm ára. Írland tók upp evru. Landið er því algerlega læst úti frá alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Það er á leiðinni í þrot ef kraftaverk gerist þar ekki fljótlega. Írland er í myntbandalagi Evrópusambandsins.
  • Skuldatryggingaálag; 900 punktar.
  • Atvinnuleysi; 14 prósent
Spánn
 
Frá því í nóvember hefur vaxtakostnaður Spánar hækkað úr 2,8 prósentum á fimm ára lánum og upp í tæplega 5 prósent. Spánn á ekki lengur peninga til að greiða fyrir lyf og búnað til heilbrigðisgeirans. Lyfja- og tækjaframleiðendur fá ekki greitt. Spánn þarf að meðaltali að hrifsa til sín 600 daga greiðslufrest til að skrapa saman peningum fyrir lyfjum og tækjum sem ríkið hefur fengið afhent frá birgjum. Ekkert þýðir að krefjast peninganna, því Spánn á enga peninga. Ríkið er svo illa statt. Spánn tók upp evru og hún sprengdi efnahag landsins í tætlur. Spánn er í myntbandalagi Evrópusambandsins.
  • Skuldatryggingaálag; 314 punktar.
  • Atvinnuleysi; 21 prósent
Ítalía
 
Alþjóðleg lánskjör evruríkisins Ítalíu fara hratt versnandi og hefur vaxtakrafan hækkað úr 2,6 prósentum í nóvember og upp í 4.6 prósent í dag á fimm ára lánum til ríkissjóðs þessa lands. Ítalía er í myntbandalagi Evrópusambandsins.
  • Skuldatryggingaálag Ítalíu hækkar hratt og er komið í 241 punkt.
  • Atvinnuleysi; 8,1 prósent, og hefur varla mjakast þar undir síðustu 28 árin, en er samt örlítið skárra en hefur verið í Frakklandi á sama 28 ára tímabili.   
Ísland
 
Um daginn tók ríkissjóður íslenska lýðveldisins peninga að láni til fimm ára á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Lýðveldið okkar þurfti að borga 5 prósent í vexti til að fá lánið. Mynt Íslands er króna. Ísland er ekki í Evrópusambandinu. Ef svo væri, þá væri Ísland á leiðinni í ríkisgjaldþrot, eins og Grikkland.
  • Skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands; 231 punktar.
  • Atvinnuleysi; 7,8 prósent, sem er nálægt Íslandsmeti.
Á sama tíma var hið opinbera á Spáni að reyna að fá sömu peninga að láni á alþjóðelgum fjármálamörkuðum. Það tókst ekki. Svo lítill var áhugi fjárfesta á að lána þessu evruríki smá peninga til fimm ára. 

Við höfum krónuna sem er mynt fullvalda lýðveldis Ísland. Því mun lánstraust ríkissjóðs okkar ekki þorna upp. Krónan sér fyrir því. Krónan myndar grunn lánstrausts lýðveldis Íslands á alþjóðamörkuðum. Hún sér til þess að tekjur og greiðslugeta ríkissjóðs þorni ekki upp. Þetta vita alþjóðlegir fjárfestar.
 
Þetta er ekki frétt frá DDRÚV
 
Fyrri færsla
 
 

Seðlabanki Evrópusambandsins samþykkir póstkort og frímerki sem tryggingu

Í gær felldi ECB-seðlabankinn niður þær reglur sem seðlabankinn hafði til sýnis í búðargluggum bankans þegar Mjóstrætissáttmálinn svo kallaði var til sýnis öllum sem þá efuðust djúpt og innilega um ágæti járnabindingar þeirrar sem átti að halda þessum seðlabanka frá því að hrynja ofan á borgara þeirra evruríkja sem þá voru gabbaðir þar inn.

Núna veitir bankinn lán úr hirslum sínum gegn veði í grískum póstkortum. Þetta er það eina fé sem seytlar inn til gríska fjármálageirans heima í Grikklandi. Allt annað flæðir þaðan út og forðar sér. Gríski fjármálageirinn er lokaður af frá umheiminum og hefur verið það árum saman. Grikkland á nefnilega enga mynt og getur ekkert gert, það er svo gott. Þessi gríski fjármálageiri kemur nú með póstkort grísku ríkisstjórnarinnar og leggur þau að veði gegn því að fá í staðinn splunkunýja peninga þá sem seðlabankinn býr til á kostnað annara evruríkja. Þess vegna eru allir svo yfir sig glaðir í Evrulandi núna. Ríkin eru svo ánægð innbyrðis yfir því að seðlabankinn skuli verða að þynna mynt þeirra út með vanti, eða því sem þynnra er.

Í gær bættust póstkort Portúgals við í veðsöfnun ECB-seðlabankans. Portúgal, eins og Grikkland, hefur misst það lánshæfnismat sem átti að vera forsendan fyrir því að taka mætti á móti ríkisskuldabréfum þess sem veðum gegn fyrirgreiðslu úr þessum seðlabankaling Evrópusambandsins. Allur fjármálageiri Portúgals hefur verið afskorinn frá umheiminum í rúmlega heilt ár. Ekkert aðgengi að alþjóðlegum lánamörkuðum. Ekki treyst fyrir fimmkalli yfir nóttina. Upptaka evru hefur veitt Portúgal allt þetta traust sem er van-traustið eitt. 

Nú geta allir verið með. Nóg er að sýna Google Buzz boðsmiða eða stimpluð póstkort til að fá peninga úr hirslum Seðlabanka Evrópusambandsins. Nú verða allir Þjóðverjar glaðir.

Hér fyrir neðan er mynd af The Big Three Evrópu frá árinu 1919. Þetta er forsíðukápan utan um bók Margaret MacMillan; Paris 1919
 
Forsíða; Paris 1919, bókar Margaret MacMillan 
 
Í dag, árið 2011, heita hinir þrír stóru ekki mannanöfnum, það er svo hallærislegt. Þeir heita 1) ESB-ráðstjórnin, 2) ECB-seðlabankinn og 3) Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn. 

Í hvorugu tilfellinu var né er fólkið með við skiptingu Evrópu, partasölunni.

Grikkland gengur í myntbandalag Evrópusambandsins og tekur upp evru [u]

Drachma traded for the last time. Really? 
Mynd; Púðaupptaka 
 
Í tilefni af evruupptöku landsins sagði Costas Simitis forsætisráðherra í sjónvarpsútsendingu að Grikkland fyndi þegar fyrir evruaðildinni. "Við vitum það öll að aðild Grikklands að myntbandalaginu og upptaka evru tryggir stöðugleika í landinu okkar og opnar nýjar víddir fyrir þjóðina".
 
Þetta var í fréttum breska ríkisútvarpsins, BBC, þann 1. janúar 2001. 

Já, við vitum það "öll"

Særðir þjóðfélagsþegnar í Evruríkinu Grikklandi; Mynd; Kathimerini
Evruupptaka Grikklands batt enda á hinn efnahagslega raunveruleika í landinu. Frá og með þá fluttist stjórn peningamála og peningapólitískra vaxta í Grikklandi til Frankfurt í Þýskalandi. Frá og með þá missti Grikkland allt fullveldi landsins í peninga- vaxta- og myntmálum. Þarna hringdu bjöllur Brussels Grikki inn í hið Evrópusambandslega krataverk. Stöðugleikann . . og nýjar víddir fyrir þjóðina, auðvitað . .  
 
Mynd; Grikkland á leið í ríkisgjaldþrot eftir 30 ár í Evrópusambandinu og tíu ára evruaðild. 
 
Svona er að taka upp á því að ganga með púða. 
 
Vestar í myntbandalaginu í dag
 
Spænska blaðið El Pais segir í dag að birgðir óseldra íbúða og fasteigna á Spáni hafi verið um 700.000 talsins árið 2010. Þessi tala hefur aðeins lækkað um 521 eign á milli ára. Sem sagt; ekkert hefur gerst.
 
Samkvæmt áliti fróðra manna þarf að eiga sér stað 2-3 prósent hagvöxtur á ári á Spáni næstu mörg árin til þess að Spánverjar og fjármálastofnanir þeirra geti komist af með nokkuð af þessum hrikalegu óseldu birgðum fasteigna. Seðlabanki Spánar segir að fasteignaverðin hafi og muni falla um 25,5 prósent frá 2007-2012.
 
Þessi 2-3 prósent hagvöxtur á ári mun aldrei geta átt sér stað á meðan Spánn er í myntbandalagi Evrópusambandsins. Því mun fasteignaverð þurfa að falla um 50-60 prósent, bankar landsins verða enn frekar gjaldþrota og Spánn sprengja restarnar af myntbandalagi Evrópusambandsins í loft upp, ellegar gjaldþrjóta Þýskaland um leið og Ítalía tæmir þar ríkiskassann neðan frá.
 
Þessi stærsta byggingabóla sögunnar síðan byggingabóla varð á pyramýdamarkaðinum í Egyptalandi löngu fyrir Krists burð, er bein afleiðing af þáttöku Spánar í myntbandalagi Evrópusambandsins og upptöku hættulegustu myntar veraldar; evru - sem leggur efnahag og lýðræði landa í rúst. 

Varla er hægt að segja að bankakreppan í ESB og þrumugnýr hruns myntbandalags Evrópusambandsins sé hafinn enn. Við eigum þann hrylling til góða. Ísland þarf að búa sig undir og verja landið gegn þessum ragnarökum sem munu verða í Evrópu. Klippa þarf villta strengi og burtflogin mosavaxin hænsni.
 
Fyrri færsla
 

Er Finnland næsta evruríkið sem springur? Er Kanadadalur ónýt mynt?

a) Þetta er ansi áleitin spurning hjá þeim sem þekkja til skuldsetningar Finna og heimila landsins. Ég læt þessa spurningu standa hér í smá tíma áður en ég kem nánar inn á hana. 

b) Á allra síðustu árum síðustu aldar, eða þann 11. nóvember 1997, skrifaði einn - og seinna sammála af þrjátíu og tveim - íslenskur hagfræðingur eftirfarandi:

Kanada hefur frá 1987 verið með staðfasta peningastefnu og verðbólgu á svipuðu róli og gerist í Bandaríkjunum, en það gildir einu. Landið er lítið og fylgdi áður óstöðugri gengisstefnu og á gjaldeyrismarkaði er gjaldmiðli þess aldrei treyst, sama hversu góðri efnahagsstjórn er fylgt. Kanadamenn greiða nú um 1 % hærri í vexti en Bandaríkjamenn, sem er e.k. aukaálag fyrir þann munað að slá sína eigin mynt. Þannig er einungis sá ávinningur sem felst í lægri vöxtum um-talsverður fyrir utan það hagræði að fá gjaldmiðill sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar 

Þriðja og fjórða spurning mín er þessi: hvort á ég að hlægja eða gráta? 

Sem sagt: Allt unnið fyrir gíg. Kanada er lítið land með litla mynt, það er ekki í myntbandalagi við neinn og mun því sökkva. Það getur ekki staðið eitt.

Þetta passar upp á hár, því í dag er mynt Kanada talin vera með því allra besta sem gefið er út af útgefendum peninga í heiminum. Ein besta mynt heimsins. Hún hefur verið frjálst fljótandi síðan um 1950 og það þrátt fyrri andstöðu AGS sem leiddi til þess að Kanada var af yfirstjórn sjóðsins sett á ís um langan tíma.

Svona gæti hert íslensk króna verið, þ.e.a.s. ef klessumálarar hagfræðinnar gerðu okkur þann greiða að flytja sig verulega um set; annað hvort heim til Íslands, eða til eins eða allra landa myntbandalags Evrópusambandsins í einu. Hægt væri fyrir þá að fá sér far út með næstu flugeldum myntelítuhagfræði ESB-sinna. Þeir gætu hugsanlega náð því að mæta tímanlega í stærstu flugeldasýningu mannksynssögunnar þar.

En ekki er allt afgreitt með þessu. Því ef til vill stendur Kanada - þrátt fyrir núverandi góða, betri og bestu en áður ónýta mynt - næst í röðinn, sem aðeins seinkuð (delayed) útgáfa af hruninu sem gerðist því miður fyrir sunnan landamæri þess.  

Svo, hvað er klukkan? Gengur hún eins alls staðar? Nei, það gerir hún svo sannarlega ekki. Það góða við náttúrufyrirbærið tímann er það að hann hindrar að allt gerst samtímis alls staðar. Og hann er meira að segja afstæður.
 
Fyrri færsla
 

Tvö þúsund ár - og Barack Herbert Hoover Obama

Tvö þúsund ár 

Tvö þúsund ár 

Meira en 23 prósent af öllum vörum og allri þjónustu framleiddum í heiminum öllum frá og með fæðingu Krists, þ.e.a.s. hin síðustu tvö þúsund og tíu ár, voru framleiddar og búnar til á árunum frá 2001 til 2010. Leiðrétt er fyrir mannfjölda.

Það er því afar vel við hæfi að stinga Geir H. Haarde fyrrum forsætisráðherra Íslands - og einum manni heimsins - í steininn fyrir að ráða ekki við þetta; The Economist

Segja má að þessi nýlegi fornleifafundur hagsögunnar tali bæði með og á móti framtíðinni hjá þeim sem eiga svo mikið eftir og þeim sem hafa lokið sér af.

Barack Herbert Hoover Obama

Síðan bendi ég á bloggfærslu Paul Krugmans sem heitir Barack Herbert Hoover Obama og sem krækir inn á þvættinginn um að rekstri hagkerfa sé hægt að líkja saman við rekstur heimila


Evrópusambandið: verður orðið hæsta fjall í Hollandi eftir aðeins 38 ár

Bretar eiga og verða að beina sjónum sínum frá Evrópusambandinu og Evrópu, því um miðbik þessarar aldar verða hagkerfi Evrópusambandsins orðin engin nema kommar núll núll af hinum tíu stærstu í heiminum árið 2050. Þá mun Evrópusambandið hafa týnt tölunni sem eigandi fjögurra af tíu stærstu hagkerfa heimsins. Þá verður ekki gaman að vera bara hæsta fjall í Hollandi. Það er ekki nóg fyrir þá sem vilja framfarir og velmegun. 

Úrsmiður ríkisstjórnar Íslands er Evrópuúrsambandið. Þar gengur klukkan aftur á bak og skipt er um tímabelti tvisvar á dag á flugi embættismanna fram og aftur um ekki neitt. Magabeltin koma svo. Hert er að til framtíðar.
 
Um daginn útnefndi yfirmaður greiningardeildar Nordea Evrópusambandið sem utangarðssafn framtíðarinnar sem aldrei kom til ESB.
 
En gaman fyrir Spánverja að smásalan hjá þeim sé orðin aðeins 82 prósent af því sem hún var árið 2007 og hafi haldið áfram að hrynja enn hraðar og örugglega um 6 prósent á síðustu 12 mánuðum á sama tíma og lánveitingar til einkageirans séu lok lok og læs vegna veru landsins í myntbandalaginu.
 
Og hið algerlega frábæra er svo auðvitað það að smásalan í Þýskalandi er næstum sú sama og hún var fyrir 20 árum síðan og enn minni hún var fyrir 10 árum. Þjóðverjar hafa ekki fengið kauphækkun í 13 ár. Þetta er sko framtíðin. Þennan "pakka" þarf endilega að klára.
 
ESB-elliheimilið & stöðugleikinn, mínar dömur og herrar; tíminn stöðvaður. Á meðan heldur heimurinn fyrir utan ESB áfram að þróast og verða æ ríkari.
 
 
Fyrri færsla
 

Grikkir minnast orða Margaret Thatcher um Evrópusambandið

 
Margaret Thatcher
 
Fréttir frá Evrópuúrsambandi - úr gríska blaðinu Kathimerini    

"Þetta er allt saman óskhyggja", hefði Margaret Thatcher sagt þegar að "sameiningu Evrópu" kemur í gegnum glansmyndaútgáfufélagið í Brussel, sem virðist hafa lært markaðsfærslu hugmynda sinna í bestu skólum Moskvu Sovétríkjanna. Þegar Þýskulöndin voru sameinuð í eitt varaði Thatcher Evrópumennin í Brussel við:

"Þið hafið ekki bundið Þýskaland kjölfast við bryggju Evrópu. Þið hafið bundið og kjölfest Evrópu við nýtt ráðandi sameinað Þýskaland. Vinir mínir, á endanum munuð þið komast að því að þetta mun ekki virka."
 
You have not anchored Germany to Europe. You have anchored Europe to a newly dominant, unified Germany. In the end, my friends, you will find it will not work. 

Grikkir eru komnir í Pakkann. Alla grein Petros Papaconstantinou er að finna hér: The end of Europe as we know it
 
Með sameiginlegri mynt, peninga og vaxtavopnum, hafa glæframennn Brussels fært Evrópu aftur á Schteinöld.
 
Í Brussel situr ekki neinn Árni Johnsen við völd. Sem var dæmdur. Sem afplánaði og sem var kosinn inn úr kuldanum aftur af meðborgurum sínum. Nei, þar sitja menn sem enginn kaus, sem ekki er hægt að dæma, ekki er hægt að reka, og sem aldrei munu þurfa að svara neinum neitt um hvorki glæpi né sekt. Ég kýs Árna_Johnsen_samfélagið fram yfir allt annað og þar með er talið þetta ESB-bæli í Brussel. Árnafélagið er bæði betra og fegurra.   
 
Þetta er ekki frétt frá DDRÚV.
 
Fyrri færsla
 
 

Ofbeldi eykst eftir atkvæða- og peningaafgreiðslu í Grikklandi

Særðir þjóðfélagsþegnar í Evruríkinu Grikklandi; Mynd; Kathimerini
10 árum eftir evruupptöku. Mynd; frétt Kathimerini: Evruríkið Grikkland 29. júní 2011 
 
Gríska blaðið Kathimerini birti frétt klukkan 19:00 að staðartíma um að ofbeldi á götum úti hafi aukist eftir að gríska þingið samþykkti afarkosti fyrir ríkisfjármál grískra þjóðfélagsþegna, að kröfu Brussel. Læknar Rauða Krossins sem gerðu að sárum slasaðra mótmælenda voru hraktir á brott af lögreglu.

Seðlabanki landsins sagði í gær að Grikkland myndi fremja sjálfmorð með því að neita að uppfylla pöntun Brussels. Fyrir rúmlega tveimur árum gat ég þess á heimsíðu minni að fyrrverandi seðlabankastjóri belgíska seðlabankans, Alfons Verplaetse, hefði sagt að það væri engin leið út úr evru aftur án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs. Um svipað leyti gat Charles Gave þess að evra myntbandalags Evrópusambandsins væri Frankenstein fjármála.

Nú hefur þetta verið staðfest. Allir hugsandi menn vissu þetta þó fyrir löngu síðan.
 
Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 

Evrulandið Kýpur að lokast frá alþjóðlegum fjármálamörkuðum vegna evruupptöku

Ríkissjóður Kýpur þorir ekki út á alþjóðlega fjármálamarkaði lengur. Vaxtakjör ríkissjóðs Kýpur undir evru eru að sögn blaðsins Cyprus Mail þau verstu í sögu landsins. Ríkissjóðurinn var lækkaður í áliti af Moody's í janúar og aftur settur á athugunarbekkinn í maí af ótta við að landið þoli ekki Grikklandsálagið og bankatilveruna í myntbandalagi Evrópusambandsins.
 
Roughly one third of the banking system’s assets are booked as Greek exposure, including that of Greek subsidiaries based in Cyprus. This exposure includes almost EUR14bn of Greek sovereign bonds and an estimated EUR5bn of Greek bank bonds | FT 31/5 2011 

Alþjóðlegir fjárfestar krefjast nú tvöfalt hærri vaxta á tveggja ára skammtímalánum til Kýpur, eða um 4,5 prósenta miðað við 2 prósent fyrir ári síðan. Vaxtakjörin á 10 ára lánum eru nú um það bil 7,5 prósent.
 
Munið vinsamlegast að íslenski krónu-ríkissjóðurinn nýtur nú um það bil tvöflat betri og lægri vaxtakjara á alþjóðamarkaði en ríkissjóður evrulandsins Kýpur. Þetta er sjálfstæðri mynt okkar að mestu um að þakka. Ísland þarf ekki að berjast við ESB-nýlenduálagið svo lengi sem við erum fullvalda þjóð í sjálfstæðu ríki með okkar eigin mynt.

Atvinnuleysi á Kýpur er það versta síðan 1980 og nálgast átta prósent og er yfir tuttugu prósent hjá ungu fólki. Landið sem telur undir eina miljón íbúa gekk í ESB árið 2004 og tók upp evru svo seint sem árið 2008, eftir fyrst að hafa verið í ERM-pyntingarklefa Evrópusambandsins frá því í apríl 2005.

Greinilegt er að evruupptaka landsins hótar nú að taka landið niður, henda því í púðurtunnu Evrópusambandsins og ganga frá því þar. Kýpur er komið í pakkann; Evru-Víetnamið.
 
Þessi frétt er ekki frá DDRUV.

Ég myndi ekki vilja eiga neina peninga í banka á Kýpur, né í neinu öðru evrulandi.

Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband