Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2021
Sunnudagur, 31. janúar 2021
Evrópusambandið setur Írlandi landamæri að því forspurðu til að koma höggi á Breta [u]
STÓRA BÓLUÓEFNISMÁL EVRÓPUSAMBANDSINS (OG EES)
Í vikunni sem leið setti Evrópusambandið írsku þjóðinni ný landamæri. Og ekki nóg með það þá gerðist það án þess að ríkisstjórn Írlands vissi af því. Allt í einu voru komin hörð landamæri á milli Írska lýðveldisins og Norður-Írlands. En heldur ekki nóg með það, þá voru allt í einu þau landamæri sem Evrópusambandið hafði notað til að draga samningaviðræður við Bretland á langinn í þrjú ár, komin 180 gráður öfugt við það sem sambandið reyndi að halda fram að Bretar myndu setja gegn Írum gengju þeir úr Evrópusambandinu
Og eins og þetta sé ekki nóg, þá hafði Evrópusambandið allt í einu breyst í það sem sambandið sagði sjálft að Bretland myndi breytast í ef það segði sig úr sambandinu. Á einni viku hafði ESB afhjúpað sig sem nýlendukúgara og keisaraveldi þar sem ókjörið klessuverk dró upp landamæri ríkja að þeim forspurðum og setti útflutningsbann á bóluefni til eins ríkis til að ná sér niðri á öðru ríki
Með öðrum orðum reyndi Evrópusambandið að sprengja viðkvæman frið og friðarsamkomulagið kennt við Good Friday á Írlandi í loft upp, til að koma í veg fyrir að bóluefni Bretlands framleitt í Belgíu, þróað og borgað fyrir af Bretum kæmist til bresku þjóðarinnar og bjargaði þar mannslífum
Hellast nú yfir Evrópusambandið kröfur um að framkvæmda(fávita?)stjórn þess segi af sér og sér í lagi yfirbjálfi þess Ursula von der Leyen, sem einnig á ömurlegan feril að baki í þýskum stjórnmálum
Það var ekki fyrr en eftir að mörg ríki jarðar og þar á meðal Bandaríkin komust að fyrirætlunum Evrópusambandsins, sem hvílir í rassvasa Þýskalands, að Brusselveldinu varð ljóst að það hafði skotið af sér báða fætur, plús sjálft margklofið þið vitið hvað líka
Nú verða Írar loksins að standa upp í hárinu á Evrópusambandinu segir Brendan ONeill ritstjóri Spiked í grein í Spectator. Þar ritar hann grein um keisaraveldiskast Evrópusambandsins gagnvart Bretum og Írum á síðustu dögum vikunnar. Írska þjóðin, segir hann, hefur setið sem liðleskjur og látið sambandið troða sér að minnsta kosti tvisvar inn í kjörklefana á ný, er þeir kusu að mati keisarans í Brussel ekki rétt. Og í fjármálahruninu var landið flatt úr sem niðurbrennd nýlenda af ókjörnu þríeyki sem fór með hamar um álfunna og negldi þau lönd inn í skuldafangelsi sem hétu ekki réttum nöfnum. En nú keyrir hins vegar um þverbak segir Brendan, þar sem reynt er að henda nýjum landamærum yfir fullvalda þjóð, algjörlega að henni og ríkisstjórn hennar forspurðri
Íslenska esbhaldspressan á DDRÚV og flettiblöðunum hefur ekki fært Íslendingum neinar fréttir af þessu risavaxna máli sem til varð í nýlenduveldi Brusselgengisins í vikunni sem leið. Ekki eitt boffs heyrist úr esbblöðruhálsi niðursuðudósasérfræðings DDRÚV í Lundúnum
Í Bretlandi streyma hins vegar fram á ritvöllinn þeir sem vera vildu áfram í Evrópusambandinu og lýsa nú því yfir, að þeir, já þeir!, hafi verið fullkomnir afglapar að sjá ekki það sem Brexit-fólkið frá upphafi vissi; þ.e. að Evrópusambandið sé einmitt sú ófreskja það var sagt vera, og meira að segja mörgum sinnum verra en það: Að Evrópusambandið sé ekki bara versta örfoka og getulausa fyrirbæri jarðar þegar að bóluefnismálum við kínversku Wuhanveirunni kemur, heldur er þetta samband sem sagt var "friðarbandalag" í reynd ófriðarbandalag sem stofnar ekki til friðar, heldur til ófriðar í álfunni allri
Bakgrunnur málsins: Evrópusambandið missti af bóluefnalestinni (mbl.is 19. des. 2020)
1. Brendan: It is time for Ireland to stand up to the EU (Spectator):
"Irelands political class must now make a full-throated defence of Irish sovereignty"
2. Telegraph rekur atburðarrásina hér: How Ursula von der Leyens vaccine supply assault backfired spectacularly
"By now the warnings about threats to the Good Friday Agreement had been heard in Washington DC, where sources said the White House was urgently trying to clarify what the move would mean".
3. Grein Daniel Hannan í Telegraph er einnig átakanleg lesning um hvernig augu ESB-aðdáenda standa nú galopin og trúa varla því sem fyrir þau ber: Europhiles have finally had their eyes opened to the hideous reality of the EU
"In a display worthy of 1960s Nasserite dictators, over the last 72 hours Eurocrats have broken every norm of civilised behaviour"
4. Leiðari Telegraph á laugardag segir: This has been a sad and revelatory crisis for the EU
"In a twist that turns all Remainer assumptions inside out, it was the EU not the UK that tried to impose a border on Northern Ireland."
5. Og kröfur um afsögn framkvæmdastjórnar ESB vegna landamæra Írlands og bóluefnaklúðursins hrannast upp: Calls for "vindictive" Ursula von der Leyen to resign over Irish border debacle (Telegraph)
"Motivated by her hatred of Brexit, Ursula von de Leyen overruled her top trade advisors with a plan for a new Irish border, The Telegraph has learnt."
6. Alan Cochrane frá og með nú fyrrum ESB-aðdáandi skrifar í dag: As a dyed-in-the-wool Remainer, I now wish Id been a Brexiteer (Telegraph)
"I basked for years in my European identity but recent days have proved that the EU is much, much less than the sum of its parts [...] But look whats happened. Shock. Horror. After the last week, theyve been proved right and I now wish Id been a Brexiteer. I wonder if its too late to join them."
BURT MEÐ EES
Það verður að segjast átakanlegt ef að einhver hér á Íslandi haldi enn að EES-samningurinn sé eitthvað annað en fullveldistortímandi óverri, og í reynd algerlega óþarfir og skaðlegir fötlunar-hlekkir um fætur hins nýfegna þjóðfrelsis okkar Íslendinga, sem fullvalda þjóðar. Þessari viðurstyggð verður hið unga Ísland að kasta af sér strax. Eftir engu er að bíða. Það sést glöggt og einna best á bóluefnisskortinum hér á landi núna. Hann er allur í boði EES-samningsins og nú bænaskjalafalsara hans sem ákalla nýja ánauð yfir þjóðina í krafti EES, og sem þróast hefur út úr sjálfum sér og yfir í nýja ánauð. Evrópusambandið og EES eru orðin gangster-element stjórnmála, eins og allir máttu vita að fyrirbærin yrðu
Uppfært sunnudag 31. jan. kl. 23:49
ÞRÓUN MÁLSINS SUNNUDAGINN 31. JANÚAR HEFUR VERIÐ ÞESSI:
Einkaeigendur Evrópusambandsins, þ.e. Þýskaland og Frakkland, hóta nú AstraZeneca lögsóknum því þeir geta ekki útskýrt bóluefnaskortinn fyrir íbúum landanna. Hóta þeir nú öllum fyrirtækjum, sem taka breskar bóluefnispantanir fram yfir, lögsóknum og refsiaðgerðum
Clement Beaune Evrópumálaráðherra Frakklands hótar AstraZeneca með refsiaðgerðum komi það í ljós að lyfjafyrirtækið hafi veitt Bretlandi forgang
Lesendur vinsamlegast athugið: Gott er að muna bakgrunn málsins: sjá Evrópusambandið missti af bóluefnalestinni mbl.is 19. des. 2020. Bretar pöntuðu fyrstir eða að minnsta kosti þremur mánuðum á undan ESB og voru fyrstir til að samþykkja bóluefnið og lögðu fram mest fé til þróunar þess. Að minnsta kosti tvær verksmiðjur AstraZeneca eru í Bretland og sú í Belgíu er í Vallóníu þannig að ekki er langt fyrir breska herinn að fara, komi til þess. Ég vona að þetta sé brandari hjá mér, en miðað við framferði Evrópusambandsins á Írlandi þá virðist allt geta gerst
Michael Martin forsætisráðherra Írlands sagði í samtali við BBC að Írland hefði af ESB verið fært á bak við ljósið og að sambandið hafi haft rangt við þegar að landamærum Írlands kemur. Þarna lærðum við margar lexíur sagði hann
Breska ríkisstjórnin íhugar nú að láta Írland njóta forgangs strax og bóluefnisstaðan í Bretlandi leyfir. En 2,62 milljónir Breta voru bólusettir á bara síðustu sjö dögum og hefur tala bólusettra nú náð 9 milljón manns sem svarar til 60 prósenta þess 15 milljón manna hóps sem er í fyrsta forgangssætinu. Í gær laugardag var met slegið með því að bólusetja 600 þúsund manns á þeim eina degi. Einnig Bretland hefur mátt kenna á byrjunarörðugleikum hjá AstraZeneca og væru þeir komnir mun lengra í bólusetningum hefði allt gengið snurðulaust fyrir sig. En þannig gerast bara ekki kaupin á eyrinni þegar að nýjungum kemur. ESB nýtur einnig góðs af því að Bretland tók á sig byrjunarörðugleika
Peter Altmaier efnahagsmálaráðherra Þýskalands og náinn samstarfsmaður Angelu Merkels, varaði á sunnudag bóluefnisframleiðendur við því að "það sé óásættanlegt að önnur lönd séu tekin fram yfir Evrópusambandið"
Þarna sjáið þið kæru lesendur að þýski ráðherrann lítur á Evrópusambandið sem land, og að það sé í eigu Þýskalands. En minn kæri þýski kjáni: ESB er ekki land og það er ekki ríki. Það er bara kartel og gangster-element stjórnmála meginlands Evrópu
Frakkland íhugar að halda til baka greiðslum til framleiðenda bóluefnisins og að hætta við pantanir
Munið einnig hér kæru lesendur, að ESB reyndi að viðhafa brexit-samningatækni við framleiðendur bóluefnisins og að þvinga þá niður í verði, þannig að ESB borgar aðeins kostnaðarverð á meðan Bretland borgar 45 prósent hærra verð og hefur þess utan dekrað við fyrirtækið og starfsmenn AstraZeneca í tæplega heilt ár og reynt að gera allt sem það gat til að hvetja það til dáða og auðvelda því og yfirkeyrðum starfsmönnum þess lífið. Þess vegna er Bretland langt á undan í öllu, en Evrópusambands-kartelið og EES er langsamlega síðast
Fyrri færsla
Stormsveitir ESB réðust inn í framleiðslustöð AstraZeneca í Belgíu
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2021 kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Fimmtudagur, 28. janúar 2021
Stormsveitir ESB réðust inn í framleiðslustöð AstraZeneca í Belgíu
"Triangulation is what Brussels does for a living"
STÓRA BÓLUEFNISMÁLIÐ STÆKKAR
Samkvæmt tilskipun (diktat) kommissara Evrópusambandsins réðust stormsveitir á vegum ESB inn í framleiðslustöð sænsk-breska lyfjafyrirtækisins AstraZeneca í Belgíu. Tilefnið er það, að nú reynir Evrópusambandið að breiða yfir hinar hroðalegu og banvænu aðferðir sem sambandið viðhafði við kaup á bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn kínversku Wuhanveirunni
Þar reyndi Evrópusambandið að viðhafa brexit-samningaaðferðir við lyfjaframleiðandann, vel vitandi að slíkt myndi setja lönd sambandsins í síðustu röð kaupenda með því að setja þýsk-franska hagsmunagæslu- og valdabaráttu, verð og tímasetningu afhendinga á bóluefni ofar lýðheilsu þjóða
Missti sambandið því af bóluefnalestinni (mbl) með því að vakna of seint og koma síðast allra til myllu, og draga samningaviðræður á langinn með því að reyna að pína verðið á Oxford/AstraZeneca bóluefninu 45 prósent niður fyrir það sem Bretland greiðir fyrir það. Já Bretland borgar 45 prósent hærra verð og gerði samninga þremur mánuðum á undan steinsofandi ESB, sem á bak við tjöldin var að bíða eftir frönsku bóluefni frá Sanofi, en sem kemur ekki
Með sömu kartel-aðferðum og seinagangi dró sambandið að semja við Pfizer. Þar borgar ESB 25 prósent minna en Bandaríkin
Þess utan er fjárframlag fullvalda og sjálfstæðs Bretlands til þróunar á bóluefni fyrir fátækari lönd veraldar, sem hafa ekki innviðina til að ráða við dreifingu ofurkældra bóluefna, tíu sinnum stærra að hlutfalli en það sem 27 lönd Evrópusambandsins samanlögð tímdu að leggja af mörkum
GENETÍSKUM GADDAVÍRUM ESB RÚLLAÐ ÚT
Heimta nú stormsveitir Evrópusambandsins að lagt verði jafnvel bann við útflutningi á bóluefni frá framleiðslustað AstraZeneca í Belgíu, og að það sjálft fái það bóluefni sem Bretland hafði samið um að fá frá fyrirtækinu
Svo að segja samstundis og samhliða þessu eru þýskir fjölmiðlar fylltir af áróðri gegn sjálfu bóluefninu, að það sé svo gott sem "gagnslaust", jafnvel hættulegt, og að framleiðandinn sé "vondur, gráðugur og spilltur". Þennan áróður endurjarma síðan einnig fjölmiðlar gervihnattalandanna sem á fastri sporbraut um Þýskaland sveima, vegna landfræðilegrar legu þeirra aðeins. Til dæmis danska inngróna bólan sem steypt er föst á þýska afturendann
Rússlandsforseti hefði varla getað gert betur. Hafa þýsku fjölmiðlarnir nú mátt éta ofan í sig þvætting þeirra undanfarna daga. Virðist kóróna alls þessa illkynja klúðurs sitja sem samnefnd veira á höfði Angelu Merkels kanslara Þýskalands. En það land sameinaðist sem gerviríki umhverfis efnahagslega kartelhugmynd árið 1871, og hefur aldrei beðið þess bætur eins og hin svarta saga þess sannar
Eurointelligence: "To this day, the EUs DNA is that of a producers cartel. Its priority is not to secure supplies, but reduce costs and achieve some balance between French and German interests. Triangulation is what Brussels does for a living." Um gjaldþrot ESB í Stóra bóluefnismálinu
HÆLBÍTANDI KARTEL ESB
Þarna sést svart á hvítu að Evrópusambandið var aldrei stofnað sem neitt annað en nýtt valda-kartel umhverfis hinn gamla og rótgróna ömurleika meginlandsins. Að tala um bóluefna-nasisma er sennilega réttnefni í þessu samhengi ásamt fjármála-nasisma ESB frá 2001 til í dag, þar sem heilu þjóðunum var varpað í skuldafangelsi af því að þær hétu ekki réttum nöfnum. Í Evrópusambandinu er útkoma úr áföllum ávallt háð þjóðerni, algerlega öndvert við það sem sambandið heldur sjálft fram í þvaðurstofnsáttmálum þess, sem allir byggja á pervertri hugmyndafræði úr ranni löngu liðinna embættismanna með yfirríkishálm í heilastað
Hvað skyldu önnur lönd heimsins segja sem samið hafa sem fullvalda ríki um bóluefni frá AstraZeneca? Og hvað skyldu lyfjafyrirtæki álfunnar sem og fjármálafyrirtæki segja við þessu? Þau sem enn eru eftir innan gaddavíra sambandsins hljóta að líta með afar hýrum augum til nýrrar staðsetningar í Stóra-Bretlandi, frá og með nú. Ekki þarf annað en að skoða síðustu hagspá AGS fyrir 2021 og 2022 til að komast að því að sjóðurinn álítur að fyrir Bretland sé framtíðin björt. Og hér gæti Ísland boðið upp á margt gott með því að segja EES-samningnum upp strax og þannig verða allsgáð og fullvalda ríki á ný. Uppsögn á EES-samningnum myndi sanna fyrir okkur sjálfum og umheiminum að hér sé allsgáð og hreint land, laust við hinn inngróna og innvortis perverta ömurleika meginlands Evrópu
EÐLI ESB SANNAST ENN OG AFTUR
Í þessu Stóra bóluefnismáli lærist ríkjum veraldar að Evrópusambandið er hvorki réttarríki né mannríki. Þar sést að samningar eru ekki samningar og að fólk er ekki fólk, heldur eins konar aðskotadýr sem flækjast bara fyrir pervertri hugmyndagloríu hins umboðslausa Evrópusambands, með dómstóla þess í rassvösum þeirra ríkja sem heita réttum nöfnum. Að sambandið er hælbítandi kartel tapara meginlandsins og því afar óöruggur staður fyrir hvers konar fjárfestingar, sérstaklega þær tilvistarlega mikilvægu sem allar þjóðir verða að viðhafa, eigi þær ekki að splundrast og tortímast
Nú þarf enga "hugmyndafræði" lengur til að sanna hversu lífshættulegt Evrópusambandið er þjóðum þess. Stóra bóluefnismálið eitt og sér er næg sönnun fyrir banvænleika Evrópusambandsins og skaðræðis þess, því í eðli sínu er það tundurspillir sem eyðileggur sambúð ríkja, efnahag og frið í álfunni
MEÐ BREXIT FÓR NÁNDIN VIÐ BANDARÍKIN LÍKA
Þetta kartel gat Stóra-Bretland ekki lengur sætt sig við né lifað með. Það fór því út, og sjá: útgangan borgaði sig strax. Og Pólland og lönd Austur-Evrópu eru að upplifa hið sama. Að ESB-kartelið ógnar þeim og nýfengnu frelsi þeirra
Og í vestri sjá Bandaríkin að þau eiga lítið eða ekkert sameiginlegt með Evrópu lengur. Sá kafli sögunnar leið undir lok með ESB-útgöngu Bretlands. Því án Stóra-Bretlands er Evrópa bara eitt stykki meginland árið 1930
Tengt
Telegraph: AstraZeneca vaccine site in Belgium raided "at request of European Commission"
Fyrri færsla
Rúmlega tvöfalt meiri samdráttur á evrusvæðinu en í Bandaríkjunum á síðasta ári
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 27. janúar 2021
Rúmlega tvöfalt meiri samdráttur á evrusvæðinu en í Bandaríkjunum á síðasta ári
Á síðasta (veiru) ári dróst landsframleiðsla evrulanda rúmlega tvöfalt meira saman en varð raunin í Bandaríkjunum. Efnahagur evrusvæðisins, sem sekkur dýpra og dýpra með hverri kreppunni sem það sjálft að mestu framleiðir og magnar upp með því einu að vera til, dróst saman um 7,2 prósentur á síðasta ári. Í Bandaríkjum Trumps var samdrátturinn hins vegar aðeins 3,4 prósentur. Þetta eru tölur frá AGS
Og eins og að þetta eitt og sér sé ekki nóg, þá féllu ráðstöfunartekjur heimilanna á evrusvæðinu á meðan þær jukust í Bandaríkjum Trumps. Plús það að fjárfestingar hrundu um 10 prósent á evrusvæðinu. Er það miklu stærra gat en svo kallaður björgunarsjóður ESB á að fylla, og sem kemur ekki til framkvæmda fyrr en síðar á þessu ári og nemur 0,4 prósentum af landsframleiðslu dreift yfir fimm ár; þ.e. "björgunarsjóðurinn" er eins konar varalitur á svín. Mun hann sanna svo ekki verður um villst að Evrópusambandið sér alveg sjálft um að spengja sig í tætlur; innanfrá
Þarna sést hvað það kostar evruríkin að lúta svo lágt að hafa enga mynt sér til bjargar og engan Trump. Og varla er lengur hægt að segja að evruríkin séu fjárráða þegar að ríkisfjármálum þjóðanna kemur. Þau eru orðin nýlendur
Þarna ber allt að sama brunni. Næstum allt sem Evrópusambandið kemur nálgægt visnar, veslast upp og deyr, fólkið líka, því það býr við kartel-stjórnarfar
Engan skyldi því undra að bóluefnismál Bretlands gangi vel og miklu betur en í ESB eftir að það kom sér út úr þessum ömurlega og nú banvæna félagsskap sem kallast "Evrópusambandið"
ESB-maðurinn Wolfgang Münchau stofnandi Eurointelligence og sem ég hef lesið í 14 ár, er við það að gefast upp á sambandinu sínu einu sinni enn. Hann segir: "To this day, the EUs DNA is that of a producers cartel. Its priority is not to secure supplies, but reduce costs and achieve some balance between French and German interests. Triangulation is what Brussels does for a living." Um gjaldþrot ESB í Stóra bóluefnismálinu
Nú þarf enga hugmyndafræði lengur til að sanna hversu lífshættulegt Evrópusambandið er þjóðum þess. Stóra bóluefnismálið eitt og sér er næg sönnun fyrir banvænleika Evrópusambandsins og skaðræðis þess, því það er í eðli sínu tundurspillir sem eyðileggur sambúð ríkja, efnahag og frið í álfunni
Ítölsk mafía sem ókjörið stjórnarfar fer að hljóma sem álitlegur kostur fyrir þau ríki sem þarna sitja inni, svo ekki sé minnst á sjálfpuntandi og heilaþvegnu EES-taglhnýtingana hér heima
****
PS; það er rangt að Ísland sé með of lítið af "erlendum fjárfestingum". Við erum sennilega með einna mestar og stærstar nú þegar starfræktar og gangverandi erlendar fjárfestingar flestra ríkja OECD. Þeim þarf að sinna og leggja rækt við þegar í stað. Stundum er nóg nóg í bili. Innlendir fjárfestar eru þó einna bestir eins og sannaðist á síðasta ári. Björgunarbátar Íslands eru ávallt innlend smíði. Þess utan höfum við almenningshlutafélög á markaði. Þær fjárfestingarleiðir eru oftast betri en beinar
Fyrri færsla
Situr Joe Biden ólöglega í embætti forseta Bandaríkjanna? [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 24. janúar 2021
Situr Joe Biden ólöglega í embætti forseta Bandaríkjanna? [u]
Svarið er sennilega já. En hversu lengi seta hans mun halda, veit ég hins vegar ekki. Þetta mál um kosningakerfissvik í forsetakosningunum í nóvember 2020 mun ekki fara neitt eins og þarna sést - og hérna
Þarna eigast við öldungadeildarþingmaðurinn Rand Paul frá Kentucky og ókjörinn fréttamaður ABC, sem enn þykist vera fréttafjölmiðill en er það náttúrlega ekki lengur, heldur er um eins konar götudómstól að ræða - sem minnir óneitanlega töluvert á rannsóknarréttinn
Uppfært
Mér var bent á eftirfarandi upptöku Bandaríkjamannsins David K. Clements sem er prófessor í lögum við háskólann í Nýju Mexíkó. Hann sendi hana frá sér þann 10 janúar. Látum hana tala og veltum málinu fyrir okkur í ró og næði, því það fer ekki neitt
Tengt
Nítján ríki Bandaríkjanna kæra forsetakosningarnar í fjórum ríkum landsins
Fyrri færsla
Þýskaland að mjaka sér úr ESB?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2021 kl. 04:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 21. janúar 2021
Þýskaland að mjaka sér úr ESB?
Mynd: Geopólitískur útsýnisgluggi Þýskalands
****
Mathieu von Rohr blaðamaður á þýska Spiegel skrifaði að mati Eurointelligence hrollvekju um aftaka Angelu Merkel sem formanns þýska kristilega demókrataflokksins (CDU), þ.e. sé litið burt frá misheppnaðri og tímabundinni örformennsku Annegret Kramp-Karrenbauer. Nýr arftaki Merkels var nefnilega kjörinn um daginn og heitir hann Armin Laschet:
Samkvæmt von Rohr er Laschet-maðurinn mikill stuðningsmaður Bashar al-Assad forseta Sýrlands. Árið 2018 hélt þessi nýi formaður CDU því fram að Bandaríkin væru stuðningsmenn Ríkis íslam (ISIS). Dreifði hann fölskum yfirlýsingum um að efnavopnaárásin á Ghouta 2013 hefði verið verk ISIS, þrátt fyrir að öll sönnunargögn bentu til þess að ríkisstjórn Assad forseta hefði verið þar að verki. Þá skrifaði Armin Laschet, nú formaður CDU, að eina lausnin í sýrlensku borgarastyrjöldinni væri þátttaka Rússlands
Mathieu von Rohr blaðamaður bendir einnig á að það sé óvenjulegt að stjórnmálamaður CDU-flokksins sé nákominn Valdímír Pútín forseta Rússlands. Hinn nýi formaður CDU-flokksins hefur einnig margsinnis kvartað yfir "and-Pútín stemmingu" í Þýskalandi
Armin Laschet hinn nýi formaður CDU er einnig mikill stuðningsmaður NordStream2 gasleiðslunnar milli Rússlands og Þýskalands. Hann dró einnig í efa og gerði lítið úr upplýsingum Bresku leyniþjónustunnar um að það hefði verið rússneska novichok eiturefnavopnið sem beitt var á Sergei Skripal og dóttir hans Bretlandi
Segir von Rohr að það sé óhugsandi að engar þessara yfirlýsinga Armin Laschet, nú formanns CDU, hafi verið ræddar þegar valið á nýjum formanni flokksins fór fram um daginn. En það endurspegli hins vegar eðli þorpsstjórnmálamenningar Þýskalands sem ríkis
Eurointelligence endar umfjöllun sína þann 19. janúar með þeim orðum að annað hvort sé um risavaxin mistök að ræða, eða þá, og það sé enn verra, að um komandi geópólitískt endurskipulag á stöðu Þýskalands í heiminum sé að ræða - og það án þess að þýska þjóðin viti neitt um það
Árum saman hef ég bent á að Þýskaland sé að endurreikna stöðu sína í heiminum. Að enginn hafi í raun vitað hver geopólitísk staða landsins frá stríðslokum sé, og allra síst undir blekkingartímabili þess í Evrópusambandinu, þar sem landið samkvæmt til dæmis ráðum Helmuts Schmidt íklæddist skikkju til að villa á sér heimildir
Fyrir þá sem áhuga hafa á forsögu málsins, sjá vefsetur stofnunar Margrétar Thatchers: 1) Britain and the origin of the EMS. 2) Bundesbank Council meeting with Chancellor Schmidt [declassified 2008] ásamt skjali númer 111553
Fyrri færsla
Wuhan-veiran finnst í kínverskum ís
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 18. janúar 2021
Wuhan-veiran finnst í kínverskum ís
Fréttastofur Sky News og Yahoo segja að Wuhanveiran hafði fundist í kínverskum ís sem seldur er í neytendapakkningum innanlands í Kína. Þar virðist hún hafa það gott
Það þarf víst ekki að benda íslenskum yfirvöldum á hættuna sem að fiskútflutningi okkar myndi steðja ef veiran kæmist úr verkunarfólki í fisk til neyslu og útflutnings
Þeir sem segja sóttvarnir við landamærin og innanlands óþarfar og jafnvel ekkert gagn gera, hljóta að minnsta kosti að taka þessum rökum þó svo að þeir taki beinum fólksvörnum fálega
Um það bil 37.500 manns liggja nú á sjúkrahúsum Bretlands vegna kínversku Wuhan-veirunnar og þar af eru um það bil 3.900 í öndunarvélum. Staðan í Þýskalandi er að 22.000 manns liggja á sjúkrahúsum landsins vegna veirunnar og þar af eru 5.000 á gjörgæslu. Samt er Þýskaland ekki enn á sama stað í veiruferlinu og Bretland
Fyrri færsla
Vatnaskil í alþjóðavæðingu tölvunargeirans. Pólland grípur til sinna netráða
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. janúar 2021
Vatnaskil í alþjóðavæðingu tölvunargeirans. Pólland grípur til sinna netráða
"Think different" [og þú verður tekinn úr sambandi] - var ekki það sem Steve Jobs meinti með þessu slagorði. Þarna sést hann á mynd með repúblikananum og um tíma óháðum Ross Perot, sem hjálpaði honum á fætur eftir eftir að Steve var rekinn frá Apple og byggði þá með aðstoð Perot upp Next, sem síðar varð kjarninn í Apple er Steve snéri aftur til að bjarga sökkvandi skútu sykurvatnsmanns, með einu stórkostlegasta "turnaround" fyrirtækjasögunnar. Steve hefði kosið Trump því hann trúði á framfarir og vissi vel að þeim fylgdu næstum ófrávíkjanlega umbrot. Í dag hefði hann sennilega rekið Tim Cook forstjóra Apple fyrir IBM-heimsku. Risa-EDS tölvunarmaðurinn Ross Perot er sá óháði forsetaframbjóðandi sem náð hefur mestum árangri í sögu Bandaríkjanna, fyrir utan Teddy Roosevelt. Hann felldi George Bush eldri í forsetakosningunum 1992. Einnig hann þekkti IBM-heimsku manna best, enda átti hann ávallt bara eitt par af skóm
****
ÁRÁS HEIMS-TÖLVUNARKLÍKU
Alþjóðavæddur gagna- og upplýsingageiri veraldar varð fyrir ofurfyrirsjáanlegri tölvuárás undanfarna daga. En í þetta sinn kom árásin innan frá. Var henni beint að eina landskjörna fulltúra bandarísku þjóðarinnar; forseta hennar. Hann skyldi tekinn úr sambandi við kjósendur, og þeim í staðinn stungið í einokunarsamband við þessa (NGO) klíku ókjörinna og fossríkra manna. Hvað gerist næst? er því ófrávíkjanlegt og augljóst mál. Sú alþjóðavæðing sem kom gagna- og upplýsingageirum þjóðríkja í einokunarsamband við þessa fámennu klíku plebba með háskólagráður, mun snúast við og taka enda eins og gerst hefur á öðrum sviðum veraldar, frá og með 2008; Tölvunar-Brexit-Trump mun eiga sér stað. Enginn er óhultur lengur með gögn sín og tölvunargetu í höndum umræddra gagna-baróna. Það er hér með bæði sannað og staðfest. Og engar ríkisstjórnir né stofnanir þjóðríkja geta lengur verið þekktar fyrir úthýsingu til annarra landa í þeim efnum. Heldur ekki fyrirtæki veraldar. Umrædd úthýsing reyndist verk plebba - eins og í bóluefnismálum. Eina ástæðan fyrir því að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni er komið á tröppur þjóða núna, er grjóthörð samkeppni milli landa og fyrirtækja þeirra. Lesið varir mínar: úthýsing er óafsakanleg á flestum sviðum. Hún festir afturfarir í sessi
PÓLLAND GRÍPUR TIL SINNA RÁÐA
Pólska ríkisstjórnin, sem rétt svo nýlega sloppin er undan síðasta þöggunar-skriðjökli kommúnista á borð við þá sem nú eru að reyna og hafa að hluta til gert bandaríska demókrataflokkinn að flokki hinna fossríku ríkisbubba aðeins, er hoppandi reið yfir því sem fram fer á veraldarvefnum núna. Hún er því að smíða ný lög sem veita framkvæmdavaldinu heimildir til að sekta til dæmis "félagsmiðla" um 1,5 milljón evra fyrir hvern þann tilburð netfyrirtækjanna til ritskoðunar á tjáningu Pólverja á netinu sem stenst pólsk lög. Hart verður látið mæta hörðu
TVÍÁLA ÁSTAND BEGGJA MEGIN ATLANTSHAFS
Aðgerðarsinnar stormuðu þýska þingið í ágúst í fyrra. Ástæðan var sögð aðgerðir stjórnvalda þýsku ríkjanna sem mynda sambandsríki Þýskalands í sóttvarnarmálum. Þar eins og í Ameríku eru það ríkin en ekki forsetinn eða kanslarinn sem ráða framkvæmd sóttvarna. Í Hollandi réðust bændur með dráttarvélum sínum á ríkisstjórnarbyggingar vegna samsæriskenningasmiðju stjórnmálamanna um "losanir" vegna áburðar. Ekki er þó átt við að heilabú ríkisstjórnarmanna hafi losnað og þau farin að skrölta sbr. losun, en það er þó ekki fjarri lagi
Samningar Angelu Merkel við kínversku alræðisstjórnina um 135 milljarða evru "fjárfestingar" mun ekki fara vel í landsmenn hennar og heldur engan annan í Evrópu og NATO, því það inniheldur engar varnir fyrir gögn borgaranna, og hún neitaði ennfremur að skilyrða þær því að þvingað þrælavinnuafl ríkisstjórnar Kína væri ekki hluti þess. Donald J. Trump forseti hefur til dæmis bannað kínversku Alipay greiðsluþjónustuna því gögn hennar eru nú á leið í vasa Kínverska kommúnistaflokksins, sem tekið hefur hana til meðferðar vegna valdaógnar hennar við alræðisveldi Kommúnistaflokksins
Í tannhjólandi Þýskalandi halda menn hins vegar bara áfram að stæra sig af því að vita sem minnst um tölvunar- og gagnamál, sem bera má saman við að monta sig af því að hafa ekki kunnað tal-í-síma-brölt er talsíminn komst í almenna notkun í þróaðri löndum veraldar fyrir 120 árum síðan
GOTT OFBELDI OG SLÆMT OFBELDI
Bandaríski demókrataflokkurinn virðist nú aðhyllast ofbeldi með því að flokka það í slæmt og gott ofbeldi. Þegar flokkurinn með aðstoð "félagsmiðla" og peningagjafa frá forstjórum þeirra hvetur til óeirða í landinu, þá er það samkvæmt þessu látið ganga óáreitt fyrir sig og alls ekki fordæmt þó svo að 700 bandarískir lögregluþjónar þjóðarinnar liggi í valnum, flestir meiddir og slasaðir, en sumir látnir. Byggingar og hverfi borgaranna hafa verið bæði hertekin og brennd niður, og einkafyrirtæki lögð í rúst og þar með ævistarf þeirra sem þau stofnuðu og ráku. Ástandið var orðið svo slæmt að versalnir og íbúar negldu krossvið fyrir gluggana rétt fyrir forsetakosningarnar í nóvember, vegna þess að þeir voru orðnir næstum vissir um að Trump myndi vinna þær. Takið eftir að fólk var ekki hrætt við stuðningsmenn Trumps, heldur þann skríl sem rasar á götum landsins með óformlegum stuðningi Demókrataflokksins, sem neitar að fordæma ofbeldi þeirra þegar þeir tapa, eins og þeir gerðu 2016 og sennilega 2020 líka, en það á þó enn eftir að koma í ljós því Trump hefur enn ekki játað sig sigraðan og þar með ekki viðurkennt úrlistin sem flokkur Joe Bidens ætlar að byggja forsetatíð hans á
NIÐURLAG (sólarósamkomulagið)
Alþjóðavæðingin, þ.e. tilraunir elíta til heimsstjórnunar, berst um á sama dánarbeðinu og Evrópusambandið hefur verið fast á síðastliðin 35 ár. Pendúllinn hefur nú flutt á þann stað í sveiflunni að hann getur ekkert annað farið en til hægri, segir Pat. Kannt þú hægri stjórnmálamaður góður? Eða ertu kannski bara að bíða eftir að þér sé skammtað bóluefni frá Evrópusambandinu samkvæmt bænaskjali og "mátt því ekki vera að þessu"
Fyrri færsla
Gagnaveitur í Bandaríkjunum loka fyrir Facebook og Twitter [u]
Hvíta húsið birtir ávarp frá Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 12. janúar 2021
Gagnaveitur í Bandaríkjunum loka fyrir Facebook og Twitter [u]
Mynd, Wikipedia: Þegar vinstrimenn reyndu að sprengja þinghús Bandaríkjanna í loft upp í nóvember 1983. Federalist fjallar um það. National Geographic segir hins vegar söguna um fleiri slíkar árásir, en þó enga um tískuljósmyndun bandarískra þingmanna í þingfundarsalnum "fyrir vini sína í Lundúnum"
****
Internetþjónustufyrirtæki (e. internet service providers) í Idaho og Washington ríkjum Bandaríkjanna hafa ákveðið að loka frá og með næstkomandi miðvikudag fyrir alla gagnaumferð til og frá Facebook og Twitter. Segja fyrirtækin að viðskiptavinir hafi látlaust hringt til þeirra og kvartað yfir því að þau [internetþjónustufyrirtækin] séu að veita fyrirtækjum á borð við Twitter og Facebook aðgang að internetinu
Í tilkynningu frá netþjónustufyrirtækjunum segir að viðskiptavinir hafi vakið athygli þeirra á að ofangreind fyrirtæki séu önnum kafin við að ritskoða viðskiptavini, gögn þeirra og upplýsingar
Segir í tilkynningu að of margir viðskiptavinir hafi hringt og kvartað til að þau geti annað því, "og höfum við því ákveðið að loka alveg fyrir Facebook og Twitter og við opnum ekki aftur nema þá til þeirra sem biðja sérstaklega um það. Hið sama munum við gera við önnur fyrirtæki sem taka þátt í ritskoðun"
"Hafa viðskiptavinir okkar sagt að þeir vilji ekki að börn þeirra fari á vef svona fyrirtækja. Tveir þriðjuhlutar viðskiptavina okkar óska eftir að við lokum á þessi fyrirtæki", segir í tilkynningunni
"Við sem fyrirtæki getum heldur ekki samþykkt að Google, Amazon, Twitter, Apple og Facebook séu að kúga önnur fyrirtæki á borð við Parler til undirgefni og þar með að kæfa samkeppni". Við trúum ekki að vefsetur þessi hafi vald til að ritskoða gögn og leyna upplýsingum fyrir þér, segir ennfremur | Breitbart
****
PS: Olivia MFSK er stafrænt og hnattrænt internet á stuttbylgju sem notar heiðhvolf jarðar sem "ISP" eða internetþjónustu. Svo er það náttúrlega telefaxið, en það var fundið upp áður en Arnold Schwarzenegger fann upp mannkynssöguna
Uppfært:
Ánægja Bandaríkjamanna með störf Donalds J. Trump forseta hefur ekki minnkað eftir atburðina í Washington D.C. í síðustu viku. Það kom fram í reglubundinni könnun Rasmussen Reports í gær. Þannig segjast 48 prósentur þjóðarinnar ánægð með störf hans á meðan 51 eru óánægð. Þetta kemur ekki á óvart því fáir Bandaríkjamenn hafa áhuga á því sem gerist í pólitískri höfuðborg landsins. Útlönd hafa mun meiri áhuga á Washington D.C. en Bandaríkjamenn, enda er þar lítið annað en mýri sem sökkvir borginni sjálfkrafa ef hún verður of þung
"Og ég er ekki einu sinni með gítar" - sagði Donald J. Trump er 45.000 manns mættu á kosningasamkomu hans í Butler í Pennsylvaníu í byrjun nóvember
Sennilega mun bjánaskapur Twitter og Facebook renna inn í mannkynssöguna sem ein stærstu afglöp í fyrirtækjasögu Vesturlanda. Að minnsta kosti er Eurointelligence sammála mér í því. Þögult bankaáhlaupið á þau tvö verður ekki stöðvað, segi ég, því það litla traust sem þau höfðu er farið. Stærstu afglöp í fyrirtækjasögunni síðan að Coca Cola framdi sjálfsmark með Classic Coke, segir Wolfgang Munchau í dag
Fyrri færsla
Trump afnemur takmarkanir á samskiptum við Taívan. Navalny fordæmir Twitter
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 10. janúar 2021
Trump afnemur takmarkanir á samskiptum við Taívan. Navalny fordæmir Twitter
TAÍVAN OG BANDARÍKIN
Mike Pompeo utanríkisráðherra Trumps tilkynnti á laugardag að frá og með nú hafi bandaríska utanríkisráðuneytið afnumið allar takmarkanir sem verið hafa í gildi á gagnkvæmum samskiptum bandarískra ríkisins, embættismana þess og annarra við Taívan. Segir Pompeo að til að þóknast kommúnistastjórninni í Kína hafi bandaríska utanríkisráðuneytið og stjórnsýslan áratugum saman sett og haft í gildi flóknar sjálfskapaðar takmarkanir á samskiptum Bandaríkjanna við Taívan. "En ekki lengur" sagði hann. Heilbrigðismálaráðherra Trumps, Alex Azar, var fyrsti ráðherra í ríkisstjórn Bandaríkjanna til að heimsækja Taíwan frá því 2014, en hann heimsótti Taívan í ágúst í fyrra | Newsmax
(ath: ég kræki með vilja ekki á frétt WSJ um sama efni því mér er orðið svo illa við blaðið að sennilega mun ég segja upp 15-ára áskrift minni þar, því þeir eru í anda á leið til Kína og tekst ekki lengur að leyna því. Í kjölfar Brexit 2016 sagði ég 10-ára áskrift minni að Financial Times upp og mun aldrei lesa það samsærisblað gegn bresku þjóðinni aftur)
NAVALNY OG TWITTER
Rússneski stjórnarandstöðumaðurinn Alexei Navalny sem fer fyrir rússneska framfaraflokknum, fordæmir Twitter fyrir að hafa ritskoðað og bannað Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna á því sem sumir kalla "samfélagsmiðli" fyrirtækisins. Segir hann að ritskoðun Twitter á Trump forseta sé eins og ritskoðun Pútíns á honum. "Kaldrifjaðir morðingjar nota Twitter eins og ekkert sé" og nefnir hann að Pútín forseti og Maduro einræðisherra Venesúela noti Twitter án takmarkana
"Ég fæ líflátshótanir á hverjum degi, árum saman, og Twitter bannar engan (ekki það að ég biðji um það)" segir hann, og bætir við að geðvillinga-verksmiðjur einræðisherraríkja sem fjöldaframleiða notendareikninga á Twitter noti "samfélagsmiðilinn" til að koma ríkisstjórnarmorðgengjum sínum á framfæri þar | Breitbart
RICHARD GRENELL, TWITTER, PARLER
Fyrrum sendiherra Trumps Bandaríkjaforseta í Þýskalandi og friðarsamkomulagssmiður forsetans í samningunum milli Serbíu og Kosovo segir að að Twitter mæli enn með því að notendur fylgi Ayatollah Ali Khamenei og Kínverska kommúnistaflokknum á vef fyrirtækisins. Forstjóri félagsmiðilsins Parler segir að "hengjum Mike Pence varaforseta" sé "trending" eða auglýst sem vinsældavaxandi lykilslagorð á Twitter núna. Er Amazon Inc. nú að henda Parler út úr hýsingarþjónustu hjá því. Tölvuský Amazon endar þarna eins og önnur ský í regni, eins og við var að búast af þeirri tískubrellu. Þá vita öll önnur fyrirtæki í regnskýinu á hverju þau geta átt von | The Federalist
SPIKED OG TWITTER
Ritstjóri Spiked, Brendan Oneill, telur að með samræmdri tölvuárás tæknigeirans sem enginn kaus á forseta Bandaríkjanna sem 74 milljónir manna kusu, hafi hinir nýju oligarkar Kísildalsins komið í veg fyrir samskipti forsetans við bæði fylgismenn hans og gagnrýnendur á hinu opinbera torgi veraldarvefsins. Telur Brendan að útilokun tæknigeirans á lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna marki söguleg tímamót í stjórnmálum og menningu Vesturlanda. Og vanmeti menn mikilvægi þessara tímamóta, sé það á okkar eigin ábyrgð. Grein Brendans er mikilvæg. Hana má lesa hér: The woke purge
APPLE, AMAZON, GOOGLE, TWITTER, FACEBOOK OG FLEIRI
Ég hef átt og unnið á og notað nær öll tölvkerfi samtímans frá 1985, miðlæg einnig, en sem langtíma Applenotandi í 30 ár og maraþonfjárfestir hef ég kannað stemminguna í mínu gamla baklandi, og sé að þar segja menn að um eins konar sjálfsmark sé að ræða með því að Apple skuli ætla að banna niðurhal á til dæmis Parler en ekki líka á Twitter og Facebook osfv., fyrir lófatölvur fyrirtækisins. Google hefur þegar lokað á niðurhal á Parler og lokað á íhaldsmenn á YouTube. Segja sumir að sleggjan í 1984-auglýsingu Steve Jobs á Macintosh sé þar með að hitta sjálft Apple núna, undir stjórn Tim Cook. Því er ég sammála og tek undir
Reyndar er ég viss um að Steve Jobs hefði kosið Trump væri hann enn á lífi því hann trúði á framfarir og þeim fylgja umbrot, en hann hefði samt aldrei farið til Washington, sem hann og aldrei gerði. Hann rak fyrirtæki sem fann upp nýjungar og sem græddi foss peninga á því, til að geta búið til enn betri vörur. Hann rak ekki pólitískan kjaftaklúbb, eins og ég sé til dæmis líka hjá íslenskum bönkum í dag, sem senda viðskiptavinum umhverfisáróður úr samsæriskenningasmiðjum öfgavinstrimanna um lofthita jarðar. Banki er bissness en ekki pólitísk kjaftahóra. Trú mín á bankanum sem sönnu fyrirtæki beið þarna skaða
Steve vissi að hann eins og hver annar stjórnandi bakarís, vissi ekkert um stjórnmál frekar en stjórnmálamenn vissu um tölvunartækni. Og til að passa sig, sá Steve ávallt til þess að hann og fjölskylda hans byggi meðal almennra borgara landsins og vissi því hvað þeir voru að hugsa og hvað þá vantaði. Trúi ég ekki öðru en að Tim Cook forstjóri Apple verði rekinn. Ég vona það að minnsta kosti. Hirðfíflin sem reka "samfélagsmiðlana", tekur sig ekki að minnast á með nafni
Sjálfur hef ég aldrei skráð mig á samfélagsmiðil og mun sennilega aldrei gera það úr þessu. Ég vissi vel hvernig þeir myndu verða, því viðskiptalíkan þeirra frá upphafi er ónýtt, og þau eru alls ekki tæknifyrirtæki. Þau eru bara gamaldags gratís-auglýsingafyrirbæri þar sem notandinn er eina vara þeirra. Ég er ekki vara
Hollt er að muna að stofnandinn Steve Jobs var rekinn, en kom síðan sterkari til baka, meðal annars með aðstoð Ross Perot. Sykurvatnsmaður við stýrið á skútunni á meðan gekk auðvitað ekki upp. Verður það eins með Trump?
ÁBÓTIN
Victor Davis Hanson bóndi í hlaðvarpsþætti John Batchelor: Um ólætin á Þinghúshæðum sem náðu ekki sambærilegum hæðum og árás Demókrataskríls á Hvíta húsið síðastliðið sumar
****
Fyrri færsla
Ný brennu-mannkynssaga Demókrata að hefjast?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.1.2021 kl. 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 8. janúar 2021
Ný brennu-mannkynssaga Demókrata að hefjast?
Febrúar 2020: Nancy Pelosi þingleiðtogi Demókrata rífur stöðuræðu forseta Bandaríkjanna að baki hans í tætlur í beinni sjónvarpsútsendingu frá þinghúsi þjóðarinnar
****
BRENNUKRATASAGA
Hvað var það sem til dæmis Nancy Pelosi leiðtogi meiri hluta Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings gerði er hún reif stöðuræðu forseta Bandaríkjanna í tætlur í beinni sjónvarpsútsendingu til þjóðarinnar (State of the Union Address). Hverjum sigaði hún þá á þinghús þjóðarinnar?
Hvaða áhrif hafði það á bandarísku þjóðina að horfa á Demókrata halda því fram að niðurrif skríls á borð við rasista- og fasistahreyfingarnar BLM og Antifa á helgidóma- og sáttargjörðamerkjum lýðveldisins, ásamt árásum á lögregluna, innbrotum, þjófnaði, hertökum, hverfistökum og yfirþyrmandi lögleysu, væri ásættanlegt og sjálfsagt mál sem þeir, Demókratar, vikust undan að fordæma og stöðva, en hvöttu í staðinn til, til þess eins að ná sér niðri á sitjandi forseta þjóðarinnar?
Greinilegt er á öllu að innbrotið í þinghús bandarísku þjóðarinnar á nýliðnum dögum var ekki eitt af áhyggjuefnum lögreglunnar í höfuðborg Bandaríkjanna, því engin fordæmi voru um annað en að stuðningsmenn Trumps forseta hegðuðu sér nær óaðfinnanlega friðsamlega hvar sem þeir höfðu farið í landinu mikla, þrátt fyrir hinn mikla fjölda þeirra og ástandið í landinu
Lögreglan bjóst því ekki við neinu öðru en friðsamlegum mótmælum. Það gerði hún þrátt fyrir það að stuðningsmenn forsetans, og reyndar þjóðin öll, hafði í næstum heilt ár mátt þola að horfa upp á Demókratastuddan skríl vinstri-öfgahreyfinga brenna Bandaríkin niður út um næstum allt - og að fjölmiðlar landsins væru meðvirkir í því
Þá var þjóðinni bara sagt að brennuvargarnir væru handhafar hugmyndafræði sem krefðist þess að Bandaríkin væru brennd niður og dagatalið stillt á árið núll og ný mannkynssaga útópískra öfgamanna vinstrisins væri að hefjast. Að leggja þvílíkan viðbjóð eins og þessa fjölmiðla í slefbandi Demókrata á eina þjóð er svo alvarlegt umhugsunarefni að það hálfa væri nóg
Að lokum fór svo að upp úr sauð. Það hljóta allir hugsandi menn að hafa mátt vita
Skyldu Demókratar enn kalla eftir því að lögreglan sé lögð niður, eftir innbrotið í þinghúsið? En það gerðu þeir í næstum ár til þess eins að brennuvargalið þeirra fengi frítt skotleyfi á þjóðina og eigur hennar
Nú þegar Demókratar hafa logið til sín forsetaembættinu eins og skrílsleiðandi vinstrimenn lugu sér hér heima til valda 2009 og sviku svo allt, þá bíð ég spenntur eftir að skrílshvetjandi nýr forseti brennuvarga stilli til friðar í landinu mikla. Trúir einhver maður með fullu viti því? Nítján ríki Bandaríkjanna reyndu að kæra kosningu hans!
****
Trump forseti sendi skilaboð til þjóðarinnar í gærkvöldi og fordæmdi þar innbrotið og ofbeldið
Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna. Koma 2022 og 2024 næst?
Fyrri færsla
Trump fordæmir árásina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 15
- Sl. sólarhring: 68
- Sl. viku: 431
- Frá upphafi: 1389051
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 246
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008