Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið setur Írlandi landamæri að því forspurðu til að koma höggi á Breta [u]

STÓRA BÓLUÓEFNISMÁL EVRÓPUSAMBANDSINS (OG EES)

Í vikunni sem leið setti Evrópusambandið írsku þjóðinni ný landamæri. Og ekki nóg með það þá gerðist það án þess að ríkisstjórn Írlands vissi af því. Allt í einu voru komin hörð landamæri á milli Írska lýðveldisins og Norður-Írlands. En heldur ekki nóg með það, þá voru allt í einu þau landamæri sem Evrópusambandið hafði notað til að draga samningaviðræður við Bretland á langinn í þrjú ár, komin 180 gráður öfugt við það sem sambandið reyndi að halda fram að Bretar myndu setja gegn Írum gengju þeir úr Evrópusambandinu

Og eins og þetta sé ekki nóg, þá hafði Evrópusambandið allt í einu breyst í það sem sambandið sagði sjálft að Bretland myndi breytast í ef það segði sig úr sambandinu. Á einni viku hafði ESB afhjúpað sig sem nýlendukúgara og keisaraveldi þar sem ókjörið klessuverk dró upp landamæri ríkja að þeim forspurðum og setti útflutningsbann á bóluefni til eins ríkis til að ná sér niðri á öðru ríki

Með öðrum orðum reyndi Evrópusambandið að sprengja viðkvæman frið og friðarsamkomulagið kennt við Good Friday á Írlandi í loft upp, til að koma í veg fyrir að bóluefni Bretlands framleitt í Belgíu, þróað og borgað fyrir af Bretum kæmist til bresku þjóðarinnar og bjargaði þar mannslífum

Hellast nú yfir Evrópusambandið kröfur um að framkvæmda(fávita?)stjórn þess segi af sér og sér í lagi yfirbjálfi þess Ursula von der Leyen, sem einnig á ömurlegan feril að baki í þýskum stjórnmálum

Það var ekki fyrr en eftir að mörg ríki jarðar og þar á meðal Bandaríkin komust að fyrirætlunum Evrópusambandsins, sem hvílir í rassvasa Þýskalands, að Brusselveldinu varð ljóst að það hafði skotið af sér báða fætur, plús sjálft margklofið þið vitið hvað líka

Nú verða Írar loksins að standa upp í hárinu á Evrópusambandinu segir Brendan O’Neill ritstjóri Spiked í grein í Spectator. Þar ritar hann grein um keisaraveldiskast Evrópusambandsins gagnvart Bretum og Írum á síðustu dögum vikunnar. Írska þjóðin, segir hann, hefur setið sem liðleskjur og látið sambandið troða sér að minnsta kosti tvisvar inn í kjörklefana á ný, er þeir kusu að mati keisarans í Brussel ekki rétt. Og í fjármálahruninu var landið flatt úr sem niðurbrennd nýlenda af ókjörnu þríeyki sem fór með hamar um álfunna og negldi þau lönd inn í skuldafangelsi sem hétu ekki réttum nöfnum. En nú keyrir hins vegar um þverbak segir Brendan, þar sem reynt er að henda nýjum landamærum yfir fullvalda þjóð, algjörlega að henni og ríkisstjórn hennar forspurðri

Íslenska esbhaldspressan á DDRÚV og flettiblöðunum hefur ekki fært Íslendingum neinar fréttir af þessu risavaxna máli sem til varð í nýlenduveldi Brusselgengisins í vikunni sem leið. Ekki eitt boffs heyrist úr esbblöðruhálsi niðursuðudósasérfræðings DDRÚV í Lundúnum

Í Bretlandi streyma hins vegar fram á ritvöllinn þeir sem vera vildu áfram í Evrópusambandinu og lýsa nú því yfir, að þeir, já þeir!, hafi verið fullkomnir afglapar að sjá ekki það sem Brexit-fólkið frá upphafi vissi; þ.e. að Evrópusambandið sé einmitt sú ófreskja það var sagt vera, og meira að segja mörgum sinnum verra en það: Að Evrópusambandið sé ekki bara versta örfoka og getulausa fyrirbæri jarðar þegar að bóluefnismálum við kínversku Wuhanveirunni kemur, heldur er þetta samband sem sagt var "friðarbandalag" í reynd ófriðarbandalag sem stofnar ekki til friðar, heldur til ófriðar í álfunni allri

Bakgrunnur málsins: Evrópusambandið missti af bóluefnalestinni (mbl.is 19. des. 2020)

1. Brendan: It is time for Ireland to stand up to the EU (Spectator):

"Ireland’s political class must now make a full-throated defence of Irish sovereignty"

2. Telegraph rekur atburðarrásina hér: How Ursula von der Leyen’s vaccine supply assault backfired spectacularly

"By now the warnings about threats to the Good Friday Agreement had been heard in Washington DC, where sources said the White House was urgently trying to clarify what the move would mean".

3. Grein Daniel Hannan í Telegraph er einnig átakanleg lesning um hvernig augu ESB-aðdáenda standa nú galopin og trúa varla því sem fyrir þau ber: Europhiles have finally had their eyes opened to the hideous reality of the EU

"In a display worthy of 1960s Nasserite dictators, over the last 72 hours Eurocrats have broken every norm of civilised behaviour"

4. Leiðari Telegraph á laugardag segir: This has been a sad and revelatory crisis for the EU

"In a twist that turns all Remainer assumptions inside out, it was the EU – not the UK – that tried to impose a border on Northern Ireland."

5. Og kröfur um afsögn framkvæmdastjórnar ESB vegna landamæra Írlands og bóluefnaklúðursins hrannast upp: Calls for "vindictive" Ursula von der Leyen to resign over Irish border debacle (Telegraph)

"Motivated by her hatred of Brexit, Ursula von de Leyen overruled her top trade advisors with a plan for a new Irish border, The Telegraph has learnt."

6. Alan Cochrane frá og með nú fyrrum ESB-aðdáandi skrifar í dag: As a dyed-in-the-wool Remainer, I now wish I’d been a Brexiteer (Telegraph)

"I basked for years in my European identity but recent days have proved that the EU is much, much less than the sum of its parts [...] But look what’s happened. Shock. Horror. After the last week, they’ve been proved right and I now wish I’d been a Brexiteer. I wonder if it’s too late to join them."

BURT MEÐ EES

Það verður að segjast átakanlegt ef að einhver hér á Íslandi haldi enn að EES-samningurinn sé eitthvað annað en fullveldistortímandi óverri, og í reynd algerlega óþarfir og skaðlegir fötlunar-hlekkir um fætur hins nýfegna þjóðfrelsis okkar Íslendinga, sem fullvalda þjóðar. Þessari viðurstyggð verður hið unga Ísland að kasta af sér strax. Eftir engu er að bíða. Það sést glöggt og einna best á bóluefnisskortinum hér á landi núna. Hann er allur í boði EES-samningsins og nú bænaskjalafalsara hans sem ákalla nýja ánauð yfir þjóðina í krafti EES, og sem þróast hefur út úr sjálfum sér og yfir í nýja ánauð. Evrópusambandið og EES eru orðin gangster-element stjórnmála, eins og allir máttu vita að fyrirbærin yrðu

Uppfært sunnudag 31. jan. kl. 23:49

ÞRÓUN MÁLSINS SUNNUDAGINN 31. JANÚAR HEFUR VERIÐ ÞESSI:

Einkaeigendur Evrópusambandsins, þ.e. Þýskaland og Frakkland, hóta nú AstraZeneca lögsóknum því þeir geta ekki útskýrt bóluefnaskortinn fyrir íbúum landanna. Hóta þeir nú öllum fyrirtækjum, sem taka breskar bóluefnispantanir fram yfir, lögsóknum og refsiaðgerðum

Clement Beaune Evrópumálaráðherra Frakklands hótar AstraZeneca með refsiaðgerðum komi það í ljós að lyfjafyrirtækið hafi veitt Bretlandi forgang

Lesendur vinsamlegast athugið: Gott er að muna bakgrunn málsins: sjá Evrópusambandið missti af bóluefnalestinni mbl.is 19. des. 2020. Bretar pöntuðu fyrstir eða að minnsta kosti þremur mánuðum á undan ESB og voru fyrstir til að samþykkja bóluefnið og lögðu fram mest fé til þróunar þess. Að minnsta kosti tvær verksmiðjur AstraZeneca eru í Bretland og sú í Belgíu er í Vallóníu þannig að ekki er langt fyrir breska herinn að fara, komi til þess. Ég vona að þetta sé brandari hjá mér, en miðað við framferði Evrópusambandsins á Írlandi þá virðist allt geta gerst

Michael Martin forsætisráðherra Írlands sagði í samtali við BBC að Írland hefði af ESB verið fært á bak við ljósið og að sambandið hafi haft rangt við þegar að landamærum Írlands kemur. Þarna lærðum við margar lexíur sagði hann

Breska ríkisstjórnin íhugar nú að láta Írland njóta forgangs strax og bóluefnisstaðan í Bretlandi leyfir. En 2,62 milljónir Breta voru bólusettir á bara síðustu sjö dögum og hefur tala bólusettra nú náð 9 milljón manns sem svarar til 60 prósenta þess 15 milljón manna hóps sem er í fyrsta forgangssætinu. Í gær laugardag var met slegið með því að bólusetja 600 þúsund manns á þeim eina degi. Einnig Bretland hefur mátt kenna á byrjunarörðugleikum hjá AstraZeneca og væru þeir komnir mun lengra í bólusetningum hefði allt gengið snurðulaust fyrir sig. En þannig gerast bara ekki kaupin á eyrinni þegar að nýjungum kemur. ESB nýtur einnig góðs af því að Bretland tók á sig byrjunarörðugleika

Peter Altmaier efnahagsmálaráðherra Þýskalands og náinn samstarfsmaður Angelu Merkels, varaði á sunnudag bóluefnisframleiðendur við því að "það sé óásættanlegt að önnur lönd séu tekin fram yfir Evrópusambandið"

Þarna sjáið þið kæru lesendur að þýski ráðherrann lítur á Evrópusambandið sem land, og að það sé í eigu Þýskalands. En minn kæri þýski kjáni: ESB er ekki land og það er ekki ríki. Það er bara kartel og gangster-element stjórnmála meginlands Evrópu

Frakkland íhugar að halda til baka greiðslum til framleiðenda bóluefnisins og að hætta við pantanir

Munið einnig hér kæru lesendur, að ESB reyndi að viðhafa brexit-samningatækni við framleiðendur bóluefnisins og að þvinga þá niður í verði, þannig að ESB borgar aðeins kostnaðarverð á meðan Bretland borgar 45 prósent hærra verð og hefur þess utan dekrað við fyrirtækið og starfsmenn AstraZeneca í tæplega heilt ár og reynt að gera allt sem það gat til að hvetja það til dáða og auðvelda því og yfirkeyrðum starfsmönnum þess lífið. Þess vegna er Bretland langt á undan í öllu, en Evrópusambands-kartelið og EES er langsamlega síðast

Fyrri færsla

Stormsveitir ESB réðust inn í framleiðslustöð AstraZeneca í Belgíu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þeir eru margir Alan Cochranearnir þessa dagana. Og við, hægrimenn, tøkum øllum syndurum opnum ørmum, því við vitum að þeir vissu ekki hvað þeir gjørðu. 

Ragnhildur Kolka, 31.1.2021 kl. 20:20

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Takk innilega fyrir þennan gríðarlega upplýsandi pistil,Þirfti að komast inn á hvert heimili á Íslandi.

Kveðja Óskar

Óskar Kristinsson, 31.1.2021 kl. 20:22

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Ragnhildur og Óskar fyrir innlitið, góðar kveðjur og skrif.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2021 kl. 00:42

4 identicon

Á sama tíma og þessu vindur fram, þá er það helst af forystu Sjálfstæðisflokksins að frétta að hún fagnar nú mjög allri stefnumótun sem frá Friðjóni R. Friðjónssyni kemur, enda lýtur það að breytingu stjórnarskrár svo koma megi þar fyrir ákvæði um fullveldisframsal til erlends ríkis, "Nonna bóka vina okkar" í Þýskalandi ( sbr. fjálglega orðaðan pistil Styrmis þar um).

Yfirráð yfir orku okkar, fullveldi og sjálfstæði okkar, verða engin ef "Nonna bóka vinir okkar" komast yfir þau, fyrir tilstuðlan forystu og pr. manna "Sjálfstæðisflokksins". 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.2.2021 kl. 13:06

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Sjálfstæðisflokkurinn er fastur niðri í djúpri holu sem forystan bjó til og gróf. Regla númer eitt í þannig stöðu er að hætta að grafa. En það er aldeilis ekki það sem þeir á þeim bæ hafa lært. Haldið er bara áfram að grafa.

Sama gildir um Evrópusambandið og þá hrikalegu holu sem þar er verið að grafa sig niður í núna. Moldarskaflarnir koma bókstaflega fljúgandi upp úr hinni djúpu gröf sem þar er verið að grafa sig enn dýpra niður í núna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2021 kl. 14:57

6 identicon

Rétt Gunnar

forystan stundar nú moldvörpustarfsemi

og holar flokkinn innanfrá

skv. gamalþekktri kommúnískri aðferðafræði.

Boðin koma að ofan að rústa grunngildum flokksins.  Þingmenn flokksins eru allir sömu sök seldir.  Máttlaust mjálm Brynjars er hljómgott, en lítilsvert, og einungis sýndarmennska.

Sannir sjálfstæðismenn eiga nú aðeins tvo kosti í stöðunni:

1) Losa sig algjörlega við ESB sinnaða forystuna

eða, og ef 1) reynist ógerlegt:

2) Sprengja flokkinn og ganga til liðs við vaska sveit Sigmundar Davíðs, þar sem grunngildi flokksins eru, í reynd, í hávegum höfð.

Fyrir mitt leyti tel ég 1) fullreynt og 2) því eina valkostinn sem okkur sjálfstæðismönnum stendur til boða og ættum því að velja svo og verja þar með þau grunngildi sem okkur hugnast best til farsældar fyrir land og þjóð, þau grunngildi sem forysta "Sjálfstæðisflokksins" hefur gegnumholað,

en Miðflokkur Sigmundar Davíðs stendur nú einn flokka hér á landi vörð um.

Vituð þér enn, eða hvað?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.2.2021 kl. 15:30

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Ég hvet alla til að lesa grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu í dag. Í sjálfu sér er greinin og málefnið sem hún fjallar um eitt og sér næg ástæða fyrir mjög marga Íslendinga til að kjósa Miðflokkinn. Það liggur við að að maður kasti upp yfir því sem þar er lýst. Að þetta skuli gerast á vakt Sjálfstæðisflokksins er gersamlega óásættanlegt.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2021 kl. 20:14

8 Smámynd: Jónatan Karlsson

Að mínu mati væri Miðflokkurinn valkostur, ef ekki væri vegna fyrrverandi utanríkisráðherra sem einhverra hluta vegna virðist vera rótgróinn innsti koppur í búri Sigmundar.

Ég er heldur ekki einn um þá skoðun.

Jónatan Karlsson, 1.2.2021 kl. 21:25

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jónatan

Þú um það.

Gunnar Bragi á góðan stað hjá mér, enda að norðan og sá æðsti diplómat Sigmundar Davíðs, hins pólitíska yfirhöfuð lýðveldis Íslendinga, sem dró firrta umsókn firrtra vinstrimanna og ÞKG inn í ESB til baka.

Bréf Gunnars Braga byrjaði svona: "Dear Edgars, Dear Commissioner Hahn".

Því gleymi ég aldrei og sendi honum fingurkoss enn á ný.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2021 kl. 22:06

10 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Gunnar.

Ertu nú alveg viss um að umsóknin hafi í raun og veru verið dregin tilbaka?

Jónatan Karlsson, 1.2.2021 kl. 22:11

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Jónatan ég er 100 prósent viss um það.

En af hverju segi ég það? Jú vegna þess að alþingi getur hvorki sótt um inngöngu inn í Evrópusambandið, né dregið þá umsókn til baka og heldur ekki sagt Ísland úr því, ef það væri þar inni.

Þetta er vegna þess að Evrópusambandið dílar ekki við þjóðþing ríkja, heldur aðeins við pólitísk yfirhöfuð ríkja (e. Heads of States).

Evrópusambandið semur ekki við þjóðþing ríkja. Það semur við pólitísk yfirhöfuð ríkja. Og það er forsætisráðherra Íslands sem fyrir ríkisstjórn lands okkar fer sem er pólitískt yfirhöfuð Íslands. Og í ríkisstjórn hans er æðsti diplómat Íslands utanríkisráðherrann.  Í þessu tilfelli voru það: Sigmundur Davíð, Gunnar Bragi yfirdiplómat og ríkisstjórn SDG.

Að þyrla upp ryki hér innanlands með því að láta líta svo út að alþingi hafi staðið að umsókninni, voru einungis innanríkis-pólitískar sjónhverfingar ætlaðar til heimabrúks.

Alþingi hefur ekkert um þetta mál að segja. Ekki neitt. Bara alls ekki neitt. Enda er alþingi ekki pólitískt yfirhöfuð Íslands. Það er ekki einu sinni persóna.

Þess vegna er engin umsókn neins staðar í gangi og Ísland finnst því hvergi sem umsóknarríki.

Þannig er nú það. Moldvörpungar hér innanlands reyna auðvitað að þyrla upp enn meira ryki í þessu máli, en það er einungis ryk. Og  ryk er bara ryk, og í versta falli heimska.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 1.2.2021 kl. 22:47

12 identicon

Hér skal minnt á að það er Styrmir Gunnarsson, sem tönnlast endalaust á því að aðildarumsóknin hafi ekki verið dregin til baka í tíð Gunnars Braga sem utanríkisráðherra.  Það er leið Styrmis til að koma höggi á Gunnar Braga. 

Væri svo að hún hefði hins vegar ekki verið dregin til baka, af hverju tönnlast þá ekki Styrmir að sama skapi á linku Gulla að draga hana til baka?

Moldvörpuháttur lærisveina "Vina Nonna bókanna" er lævísari en auðtrúa fólk átti sig í fljótu bragði á því.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.2.2021 kl. 23:53

13 identicon

Hið sanna er sem Gunnar segir, hvað svo sem moldvörpurnar skrumskæla sannindin, að það var ríkisstjórn Sigmundar Davíðs,þá head of state, sem dró umsóknina til baka.

Síðan þá hafa moldvörpur og forustuhirð "Sjálfstæðisflokksins" með dyggri aðatoð KOM, almannatenglafyrirtækis Friðjóns og fréttastofu DDRÚV lagt fæð á Sigmund Davíð og dreift út lygum og rógi um hann og Miðflokkinn, í stíl við það sem hér um ræðir.  Hvort það voru moldvörpur þeirra eða samfylktra pírata sem gerðu út Báru, skiptir engu, enda eru moldvörpur og samfylktir píratar af sömu laklegu sortinni.  Og þeir velja sér viðlíka sem skítadreifara DDRÚV.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2021 kl. 00:15

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þar sem enginn samningur var gerður þá er aðkoma Alþingis að málinu núll, void og ekkert.

Enda var um ekkert að semja, því þarna hefði verið um hreina innlimun að ræða, því frá og með Lissabon-stjórnarskrá ESB kom Acquis, og þar segir að um ekkert sé að semja, nema dagsetningar og klukkuslag innlimunarfunda með þeim landráðamönnum sem hætta sér svo langt með fullveldi Íslands á gjafabakka til umboðslauss yfirríkis, til heimils úti í ysta heimi hins eina sannaða helvítis jarðar.

Uppákoman í þinginu var vegna þess að ríkisstjórnin hafði ekki meirihluta í þessu máli og svo til heimabrúks því henni var ætlað að gefa umsókninni einhverskonar lögmæti og að dreifa sök í málinu um kosningasvik Vinstri grænna, sem voru svo yfirgengilegt að aldrei hefur annað eins sést.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafði ekki meirihluta í þessu ákveðna máli. Hún neyddist til að fiska eftir nokkrum marhnútum í þingsalnum og fann þá í formi persónulegrar pólitískrar ofsagræðgi þar sem þingmenn seldu sál sína fyrir stóla og síðan með hjásetu til dæmis Þorgerða Katrínar Gunnarsdóttur nýkomma, og auðvirðislegheita Ragnheiðar Ríkharðsdóttur.

Þarna stofnaði Samfylkingin sitt eigið pólitíska sláturhús er kjósendum hennar varð ljóst að um ekkert var að semja nema beina aftöku Íslands. Hún varð því fimm komma sjö prósentu flokkurinn á þingi.

Og sömuleiðis byggðu Vinstri grænir þér þarna sína eigin fallöxi, og hjó hreyfingin sig niður úr tæpum 22 prósentum niður í tæplega 11 prósent.

Þetta var nú meiri hryllingurinn!

Gunnar Rögnvaldsson, 2.2.2021 kl. 02:27

15 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hér er texti úr WIKIPEDIA um málið:

Alþingiskosningar 2013 og stjórnarskipti

Aðalgrein: Alþingiskosningar 2013

Ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu miklu fylgi í kosningunum og stjórnarandstöðuflokkarnir Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur tóku við stjórnartaumunum. Báðir flokkarnir höfðu ályktað um það í aðdraganda kosninga að stöðva aðildarviðræður. Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar segir:

Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“

— Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði margsinnis lýst því yfir bæði fyrir og eftir kosningarnar að ríkisstjórnin myndi ekki hverfa frá aðildarviðræðunum við Evrópusambandið án þess að leggja málið fyrst í þjóðaratkvæðagreiðslu.[14][15] Þvert á þessi ummæli fór svo að Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, sendi Evrópusambandinu árið 2015 tilkynningu um að aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið, sem þá höfðu verið á ís í nokkur ár, skyldi alfarið hætt.[16] Tilkynningin um endalok aðildarviðræðanna var ekki lögð í þjóðaratkvæðagreiðslu, né var hún afgreidd af alþingi.[17] Aðspurður hví ekki hefði verið staðið við loforðið um að binda ekki enda á viðræðurnar án samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu sagði Bjarni Benediktsson síðar að „pólitískur ómöguleiki“ hefði komið í veg fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um málið.[18]

Jónatan Karlsson, 2.2.2021 kl. 06:59

16 identicon

Já, Jónatan

Gunnar Bragi sendi ESB tilkynningu um að aðildarviðræðunum væri hætt.

Síðan hatast ESB sinnar forystu, vina Nonna bóka vina og Friðjónar og DDRÚV út í hann og Sigmund Davíð.  

Af hverju heldur þú að ESB sinnar hafi síðan ítrekað gert aðför að Sigmundi Davíð og Gunnari Braga?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2021 kl. 10:27

17 Smámynd: Jónatan Karlsson

ESB lítur á stöðu samningsins að hann hafi einungis verið lagður á ís.

Blaðsnepill frá Gunnari Braga er einskis virði.

Jónatan Karlsson, 2.2.2021 kl. 12:16

18 identicon

Jónatan, aðildarviðræðunum var formlega hætt.

Hvað viltu meira? 

Kíkja aðeins meira í pakkann?  

Aðlögunin að ESB fer hins vegar enn fram,

vegna EES samningsins.

ESB sinnar forystu "Sjálfstæðisflokksins"

sækja sér erlent vald í krafti hans

og gerast þar kaþólskari en páfinn.  

Það er EES samningnum sem þarf því að segja upp, það er hann sem er moldvörpu meinsemdin.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2021 kl. 12:46

19 Smámynd: Jónatan Karlsson

Auðvitað eigum við að losa okkur frá EES og Schengen og láta Alþingi formlega draga ESB umsóknina tilbaka.

Þessi svokallaða úrsögn Gunnars Braga er því miður einungis ómerkileg blekking.

Jónatan Karlsson, 2.2.2021 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband