Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2019

Pakkafífl allra flokka hafa sameinast um öreigur Vesturlanda

The National Conservatives senda út S.O.S.

RÆS! bank bank, RÆS!

Þjóðar-íhaldsmenn allra landa og flokka vakni og komi sér í brækur, áður en kommúnistar, fasistar og nasistar verða fyrri til á vettvang brunarústa líberalismans

Nú hlýtur alþjóðasamfélagið (ekki til) að snúa sér að landamæradeilum hins yfirríkislega Evrópusambands við Bretland á norður Írlandi í stað þess að fókusera 98 prósent af fréttaþvæludælum sínum á landamæramál Ísraels. Og svo hljóta sömu skólpdælustöðvar hins alþjóðlega vinstris, DDRÚV og útborunarstjórnar Reykjavikurborgar, að snúa sér að þeim sem sitja í ESB-vernduðum fangageymslum á Spáni vegna sjálfstæðisbaráttu, eins og þeir gert hafa í 100 ár vegna Platestínu, á meðan ekkert er fjallað um 12 milljónir Þjóðverja sem þurftu að ganga heim eftir að land þeirra var frá þeim tekið 1945 og no-problem

Eftir að opna landamæra-hyskið lét sandblása heilabúum sínum út í eina stóra eyðimörk sem fékk nafnið Sahra, þá hljóta þeir að leggja til að Ísrael opni landamæri sín fyrir öllum, og Írland og Bretland líka. Þá myndi ESB-skítapakkinn þeirra að sjálfsögðu koma og leggja niður landamæri sín í austri og bjóða rússneska hernum gjörðu svo vel, að þurrka loksins út landamærin á milli lífs og dauða. Það hlýtur að vera með í pakkanum

Orkupakkafífl allra flokka hljóta að sjá að þetta er eina leiðin áfram, þ.e. lágfreyðandi forgangslegur "almannahagur" og taki því hið snarasta upp hið gamla slógan sitt, Já Helvíti!

Til alls þessa eru skattgreiðendur svo skyldaðir til að leggja 1 skattafjármagnaðan mann að mörkum á hver fimm börn í skólaherfinu, sem nú er að útskrifa nýja kynsljóð MÍR- og Komintern-afglapa með sandblásin umhverfis-heilabú og sem öskra; "þetta er Guði að kenna, því hann skapaði manninn". Ekkert minna dugar. Og ef betur á að takast til en í síðustu aljþóðabyltingu komma-komm, og sem misheppnaðist, þá ættu alþjóðavædd, markaðsmáluð, vatteruð og getnaðarvarin klof íslenskra stjórnmálamanna að láta hið nýja sandblásna Sahraskólakerfi hafa að minnsta kosti einn ríkisrekinn stafsmann á hvert hálft og heilaþvegið barn sem þaðan er útskrifað inn í nýMÍR og nýKomintern, sem er hin sanna endurfædda umhverfismálakirkja alþjóðaisma vinstrisins, sem Bjarni Ben ríður um loftin blá á núna, pakkaður inn sem orkupakki þrjú þúsund og jú jú jú jú

Stór hluti xD toppsins og flestra annarra flokka er orðinn svo retarderaður af líberalisma að hann myndi frekar opna erlendan pakka sem tifar eins og tímasprengja (takk SDG!) og sem sprengir íslensku þjóðina í tætlur, heldur en að opna Biblíuna sem gengur út á halda þjóðinni saman og að kenna henni hvaðan hún kom og um hvað þjóðin og þjóðfélag hennar snýst

Retarderuð Angela Merkel frá DDR er því enn að opna sinn stóra-stóra pakka: "eitt, tvö, þrjú.. æ, eitt, tvö, þrjú.. æ, ég byrja upp á nýtt.. eitt, tvö, þrjú, ..nú?.. eru þetta milljónir!"

FÍFL!

HVAÐ MEÐ EITT VITIBORIÐ ÞÚSUND ÁRA NEI ÚR NORÐRI !

Fyrri færsla

O3: Að kjósa hafi enga þýðingu


O3: Að kjósa hafi enga þýðingu

- nema til að forðast eitthvað

xD-Pakkamenn Evrópusambandsins hér á landi viðhafa þau rök núna og stundum áður, að kjósendur eigi til dæmis að styðja flokk Vinstri grænna eða Framsóknarflokks (áður var það Samfylkingin), en þegar það kemur að kosningum þá eigi menn ekki að kjósa þá og þar með innleiða Vinstri græna, eða flokk xyz, til valda í ríkisstjórn. Oft hefur maður heyrt pólitískt þvaður. En með svona sótsvörtu rugli með stóran hluta aleigunnar undir, er orðið greinilegt að forysta Sjálfstæðisflokksins situr við rúllettuna í EES-spilavítinu en stendur ekki. Og þegar menn sitja við rúllettuna og standa því ekki, þá þýðir það að þeir hafa tapað svo stórt að þeir þora ekki út án þess að reyna að vinna eitthvað til baka

Rök manna eins og til dæmis Björns Bjarnasonar, Guðlaugs Þórs og Bjarna Ben eru þau að Sjálfstæðismenn eigi að styðja til dæmis Vinstri græna núna en ekki kjósa þá. Þar með komi þeir einhvern veginn í veg fyrir að Vinstri grænir séu innleiddir til að éta þá. Ekki kjósa, bara styðja. Þetta er eins og að kaupa olíu í kauphöll. Ef maður gleymir að selja á réttum tíma, þá kemur hún heim til þín og það er bankað á dyrnar. Og í tilfelli Valhallar þá verður henni bara dælt inn, því þar eru engar hurðir til að banka á, því þær voru einungis lagatæknilegt atriði

Sjálfstæðisflokkurinn er þar með gerður að pólitískt tæknilegum þöngulhausa-flokki sem ekkert merkilegt hefur fram að færa, annað en ESB-þýsku-samlíkinguna um að tengjast Rússlandi af því að Bandaríkin séu í NATO og verji þá gegn sjálfum sér og Rússum. Er þetta ekki dásamlegt!

Það er greinilegt að núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins stendur á sama um risavaxnar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi. Orkupakki3 er nefnilega tímasprengja undir honum. Og þegar hann er farinn þá hefur flokksforystan étið sjálfa sig og flokkinn allan. Öngvri EES-dós verður þá sparkað lengra niður götuna til glötunar, því hún nær ekki lengra en þetta, gatan sú

Öllum má ljóst vera að mjög svo fáir Sjálfstæðismenn geta stutt við stjórnmálafærslu af þessu tagi. En þannig hefur færsla núverandi flokksforystu verið frá því að hún tók við: Stjórnmálatæknilegt þvaður. Þessu verður ekki unað

Já þið heyrðuð rétt: Hvorki undirstöðuatvinnuvegir Íslands, sjávarútvegur og landbúnaður, né heldur hinar afleiddu stóru atvinnugreinar landsins, stóriðja og ferðaþjónusta, þola mikla bindingu Íslands við tortímingarvél Evrópusambandsins. Það er afar dýrmæt og heppileg staðreynd sem allir ættu að geta verið stoltir af. Og það er staðreynd að íslenskir stjórnmálamenn eru kjörnir til að verja stjórnarskrá og fullveldi Íslands alla daga ársins út í gegn. Það þýðir ekkert að spilavítisvæða þessar frumskyldur sínar. Annars er það bara eitt stórt spark í afturendann og út af þingi með þannig spilafíkla. Takið ykkur saman vesalingar!

Sem betur fer er kominn nýr valkostur fyrir Ísland: Miðflokkurinn

Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Raflagnameðferð fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins


Raflagnameðferð fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins

How much usable energy is stored in each material

Mynd, Wall Street Journal í dag: Hve mikil nýtanleg orka er geymd í hverju kílói af efni (bein krækja @trevornoren)

****

Geggjað, en auðvitað vissi maður þetta. Bensíntankurinn minn tekur 70 lítra eða um 70 kg. Ef ég ætti að hlaða sömu orku á rafmagnsbíl þá þyrfti ég 1330 kg þunga baneitraða innflutta (og svo útflutta) rafhlöðu. En ekki nóg með það, ég þyrfti þess utan að draga 1,2 tonna aukalega-þunga rafhlöðuna á hjólum eða eins og að vera með kerru aftan í bílnum sem er 70 prósent af þyngd bílsins (Cherokee SRT8), hvert einasta hænufet sem ég ek. Kemst ég þá fyrir vikið aðeins rúmlega helming þeirrar vegalengdar sem ég annars kæmist. Ef þetta er ekki sovésk hagfræði beint frá læknunum á sovésku geðveikrahæli, þá veit ég ekki hvað. Hvaða fífli dettur svona rugl í hug!

Sem sagt: Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur keypt þessa þvælu af Vinstri grænum og hyggst láta íslenska raforku fara í það að láta bílaflota landsmanna draga 100 þúsund tonna flugmóðurstálstykkið USS Gerald R. Ford eftir vegum landsins, hvern einasta ekinn kílómetra hvern einasta dag ársins - án nokkurs árangurs, nema stjarnfræðilegrar sóunar og absalút klikkunar. Og ef að allur bílafloti landsmanna væri úti að aka samtímis þann daginn, þá þyrfti hann að draga minnst þrjú þannig stálstykki eftir vegum landsins: Þrjú hundruð þúsund tonn. Og við skulum ekki minnast hér á þungavinnuvélar og trukkana. Heldur forysta Sjálfstæðisflokksins að fólk sé almennt fífl? Já það hlýtur að vera. Enginn nema sannur grasasni kaupir svona þvælu. Enginn annar!

Og svo er það orkupakkaþvæla3 sem náð hefur að skjóta sérstökum arfagrösum í heilabúi forystunnar. Og sem í Sunnudagsmogga reynir að halda því fram að ferðamannabransinn sé undirstöðuatvinnugrein á Íslandi. Það er eins og að segja að sjoppurekstur með kók og prins póló hafði byggt upp Ísland og gert því kleyft að taka á móti erlendum ferðamönnum: fjármagnað vegina, brýr, flugvelli, sjúkrahús, þyrlur, flugvélar og bara nánast allt sem þarf til að geta tekið á móti erlendum ferðamönnum, hýst þá og gefið þeim mat sem er ekki innflutt rusl að borða. Ráðherrann veit ekki um hvað hann er að tala. Hann er úti að aka í rafhlöðu Visinna heilagrænna. Einu sinni var það Herbalife en nú er það Batterílife. Hvað er að ykkur!

Það er greinilegt að íslenskir læknar þurfa að bæta tveimur spurningum í viðbót á þann spurningalista sem þeir neyðast til að nota þegar spurt er um lífsvenjur fólks og verðandi mæðra sem leita til þeirra. 1) neytir þú fíkniefna. 2) Ertu á Herablife. 3) Trúir þú á rafmagnsbíla (nýtt). 4) Er sjoppa undirstaða byggðar á Íslandi? (nýtt)

Þeir sem líkja rafmagnsbílaþvælunni við það þegar hitaveitan kom á Íslandi, ættu að prófa að setja hjól undir húsið sitt og negla súrheysturn á það. Þá heldur samlíkingin - og ferðafrelsið blasir við, alla leið upp í Öskjuhlíð. Þá er þvælan um "orkuskiptin" fullkomnuð, þar sem Orkupakki3 er sjálft gufubaðið

"Screw the Government"

****

Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Andvaraleysi í orkumálum stórhættulegt þjóðaröryggi Íslands


Andvaraleysi í orkumálum stórhættulegt þjóðaröryggi Íslands

Fullveldi og sjálfstæði Íslands er þjóðaröryggismál

Ísland þarf ekki á erlendum lögum og reglum um raforku og dreifingu hennar að halda. Það að reyna að halda slíku fram, er móðgun við skynsemi allra manna. Enginn getur haldið þvílíku fram án þess að opinbera hvaða hvítar og jafnvel svartar lygar liggja þar að baki

Íslendingar verða að muna hvernig ókjörin elíta erlendra og innlendra embættismanna hefur á rúmlega 60 árum logið Evrópusambandinu upp og að þjóðum þess, með gúrkuaðferðum. Sambandið treystir því, að sé því einu sinni réttur litli fingur að þá fylgi allur þjóðarlíkaminn smám saman með, vegna innbyggðs hugleysis embættis- og ráðamanna, sem færa þjóðirnar á bak við öll ljós sanninda og heillinda

En þannig rotin illvirkja-stjórnmál skyldi enginn hlusta á. Og allir sjá nú þegar hvernig og hvílíkt stórslys Evrópusambandið er orðið fyrir nær allar þjóðir þess. Þar logar allt stafnanna á milli í illdeilum, vaxandi fátækt og orkuörbyrgð, sem nú þegar er að grafa undan varnarsamstarfi ESB-ríkja innan NATO

Orkumálin heyra einnig undir þjóðaröryggismál. Sérstaklega fyrir Ísland

Engum dytti í hug að Þýskaland myndi samþykkja fransk-breskan iðnaðarpakka1 né Norðmenn olíupakka1, svo ekki sé minnst á slíka pakka númer tvö, þrjú, fjögur og fimm

Stöðvið leikinn á meðan það er hægt

Tengt

Börnin mín og barnabörnin munu ekki eiga þetta land (Viljinn: af hádegisfundi Ögmundar Jónassonar um málið í Safnahúsinu í gær)

Fyrri færsla

Kjarasamningar: Fælnimáttur virkaði á sósíal óligarka


Kjarasamningar: Fælnimáttur virkaði á sósíal óligarka

NATO 70 ára: var stofnað til að 1) halda Rússlandi úti úr Evrópu, 2) Bandaríkjunum inni og 3) Þýskalandi niðri á jörðinni

Floti 8-hreyfla B52 frá Barksdale í Louisiana tók sér stöðu í Fairford í Bretlandi um daginn og æfðu, sem takkk fyrir síðast, kjarnorkuvopnaárás á Rússland, að sögn N.I.

****

ÍSLAND

Það eina sem vantaði til að fullkomna myndina voru bjórslettur á gólfið í Stjórnarráðinu, til af fá út myndina af Downingstræti 10 á valdatímum Verkamannaflokksins og Wilsons. Það eina sem bjargaði Íslandi í kjarasamningum við sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, akademíkera og embættismanna, var fælnimáttur Skúla Mogensen, sem lenti einu stykki grænmáluðu kjarnorkuvopni inn á stofugólf sósíalistans Bjarna Benedikssonar og grænmyglusósíalistans Katrínar Jakobsdóttur. Ég tel Framsókn ekki með í þessu þríeyki social-sósíalista því hún er týnd, finnst hvergi og enginn virðist sakna hennar

Þetta vopn virkaði. Fælnimáttur (e. deterrence) er það eina sem gildir, og þess vegna æfðu Bandaríkin kjarnorkuvopnaárás á Rússland frá norðurheimskautsbaugi suður að Sahara í síðasta mánuði; sem takk fyrir síðast!

Hefði Skúli ekki lent vopni sínu inn á bjórgólf ríkisstjórnar og sósíal óligarkaveldis verkalýðshreyfinganna og akademíkera, þá vær Ísland í enn verri málum en það er í dag. Þetta skipti öllu máli og rotaði óligarkaveldið það mikið, að snertur af jarðsamandi sást langa leiðir að sem blár blossi, og ríkisstjórnin gat því látið sér nægja einn bleyjupakka á sjálfa sig þann daginn, og auðvitað á kostnað skattgreiðenda; sem eru launþegar; og sem allir vinna hjá fyrirtækjum; nema þeir sem vinna við útblásið ríkið og bæinn á bænum. Einu tekjur ríkis og bæja og einu tekjur allra í þjóðfélagi Íslendinga (sem er ekki "samfélag" heldur þjóðfélag) koma frá atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjur eru til. Engar!

Þessu vesalingaveldi tókst þó samt að útópíast þannig að Seðlabankanum var hært út í köku þeirra, verðbólgumælingum meira að segja líka og næst verður það líklega sjálf Veðurstofan sem "leiðrétta" á kuldamæla sína. Af hverju var sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, og samtvinnuðum hauslausum akademíkerum, ekki bara afhentur lykillinn að Stjórnarráðinu sem þá yrði alvöru stjórnarrán. Hvað með að sinna hlutverki ykkar á Alþingi og semja ný lög um verkalýðshreyfingar, þrælahaldsaðild launþega að þeim og fjármál þeirra. Hvað með að losa launþega úr ánauð sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga og akademíkera. Hvernig væri það? Allir sjá að þetta sósíal óligarkaveldi og kúlakkaumsátur gengur ekki lengur. Og til að kóróna klikkunina þá kom einn sósíal óligarkinn af heilögu kvenkyni í viðbót og lýsti því yfir að einn maður ætti varla að geta komið svo mörgum mönnum í vinnu, frá vinnu eða borgað henni launin hennar. Hvernig í andskotanum gátu hálærðir Íslendingar á kostnað skattgreiðenda orðið svona forheimskir? Og það jafnvel lektor við "viðskiptadeild" Háskólans í Reykjavík, sem er að breytast í ruslahaug. Af hverju er þessi kona ekki rekin fyrir þvælu sína eins og hinn sem var rekinn fyrir sína þvælu. En það verður auðvitað ekki gert og ætti heldur ekki að geta gerst. En gerðist þó samt. Skólinn er enn einn Kremlarkastalinn í Austur-Berlín Reykjavíkur í viðbót, eins og DDRÚV. Heilastappa

NATO 70 ÁRA - OG ÍSLAND

Hin evrópska kvöldverðar- og lágvarðadeild NATO á Íslandi hélt að sjálfsögðu upp á 70 ára afmæli hernaðarbandalagsins í gær. Guðlaugur Þór utanríkis talaði um "gildi" NATO frá öðrum stað og vestar, en auðvitað ekki um getu þess. Sem sagt "gildi". Hvaða "gildi" hafði þá vopn Skúla í WOW, Guðlaugur minn kæri? Kannski sósíalistískt fís-gildi eins flest sem kemur frá alkalívirkninni í öllum áður föstum efnum Valhallar, þessi ár fjölbreytts-þvaðurs þar á 22 prósent-smábæ Bjarna (e. diversity). NATO hefur ekkert "gildi" ef vopnin og mannskapinn vantar. EKKERT! Viltu ekki bara vinsamlegast halda áfram að borða súpuna þína Guðlaugur, og reyndu nú að slefa ekki eins mikið og Bjarni, sem þarf orðið nýjan smekk á tveggja tíma fresti

Af hverju hafið þið dæmt okkur Íslendinga sem verandi svo mikla aula og vesalinga að við með okkar eigin orrustuþotum hins íslenska varnarliðs getum ekki stuggað óboðnum gestum burt úr loftrými Íslands, og handhafið þannig fullveldi okkar með fasta og strategískt hyldjúpa baktryggingu í Washington DC, í stað þess að því sem næst ESB-gjaldþrota Ítalir voru látnir um það, nú síðast fyrir nokkrum dögum. Hugsið ykkur hversu öflug lyftistöng það yrði fyrir þjóðfélag okkar Íslendinga að reka okkar eigin loftvarnarvaktstöð. Hugsið ykkur tæknikunnáttuna og spin-off áhrifin sem slíkt hefði fyrir okkur. Við myndum finna upp nýjungar eins og við gerðum í síldveiðum og gerum í sjávarútvegi í dag, og gefa heiminum nýjungar í varnarmálum og afleiðum þeirra. En einmitt þau hafa knúið tækniframfarir á Vesturlöndum öldum saman. Hvar eru tvö prósentin okkar í NATO, Guðlaugur Þór? Með þessu fyrirkomulagi myndi varnarsamningur okkar og Bandaríkjanna endurnýja sig sjálfur, hvort sem NATO væri enn á lífi eða ekki, sem er langt því frá öruggt. Við myndum leggja okkar að mörkum, og eitthvað annað en mest betl. Allir hugsandi menn vita að það er eingin afsökun til fyrir þessu lengur. Við erum fossrík þjóð, en værum það ekki án aðkomu og tækniyfirfærslugetu Bandaríkjanna, því án verndar þeirra væri hér engin stórvirkjun né risavaxnar erlendar fjárfestingar keyrandi á fullu og malandi gull hvern einasta dag ársins við atvinnu- og verðmætasköpun úr fallvötnum okkar, og sem þið vesalingar í Valhöll ætlið svo bara að depónera í orkupakka fangageymslur Brussels til einskis! Eruð þið virkilega svona miklir aular. Virkilega? Það er varla að þið látið okkur geta rekið Landhelgisgæsluna og Lögregluna í landinu okkar. Þið sóið verðmætum í fís. Og þið notið að allt of miklu leyti ólaunaða sjálfboðaliða við björgunarstörf. Hvað er að ykkur?

NATO var stofnað til að halda Rússlandi úti úr Evrópu, Þýskalandi niðri á jörðinni í Evrópu, og Bandaríkjunum inni í Evrópu. Í skjóli NATO reistu kvöldverðadeildir Evrópu sér eitt stykki Evrópusamband sem er að enda, eins og allt annað evrópskt. Án NATO hefði Evrópusambandið ekki getað orðið til, og er ESB þess vegna að enda. En NATO mun þó sennilega lifa áfram í sinni upprunalegu mynd, á einn eða annan hátt, því stofnun þess er óháð stjórnmálum hverju sinni, sérstaklega bananastjórnmálum Evrópusambandsins

Rússland undir Zar, undir aðalritara kommúnisma, undir Pútín og þess vegna undir rússneskt algóðum forsætisráðherra, er alltaf eins, og breytist ekkert. Þar breytist ekki. Takið vinsamlegast eftir; Rússland breytist ekki. Og Þýskaland verður áfram Þýskaland eins og sést. Við fyrsta nýja tækifærið sem því gafst er það nú þegar byrjað að berja á nágrönnum sínum og heimsálfunni allri. Það er komið í slagsmál við ríki Austur-Evrópu vegna glæpsamlegs framferðis Angelu Merekls kanslara í til dæmis innflytjendamálum. Þýskaland, með Evrópusambandið í rassvasanum, kúgar á ný ríkin í austri til hlýðni í dóms og réttarfarsmálum. Þýskaland er strax komið í efnahags- og fjárhagsleg slagsmál við ríki Suður-Evrópu og hefur sett sum þeirra í skuldafangelsi. Og það á einnig í slagsmálum við Bretland vegna brexit. Þýskaland er sem sagt komið í slagsmál við alla á ný og það tók ekki nema tæplega 30 ár. Það sama gildir um Rússland sem er byrjað að gúffa nágranna sína í sig, til þess að geta endurreist sovétríkið í einni eða annarri mynd

Bandaríkin eru að miklu leyti komin út úr Evrópu, en samt ekki alveg. Þau eru það eina sem kemur í veg fyrir stóráhlaup á álfuna úr austri og suðri og öllum áttum þar á milli, suðaustri líka. Þess vegna var Rússlandi sýndur bandaríski hnefinn sem "takk fyrir síðast" í síðasta mánuði, með því að æfa kjarnorkuvopnaárás B52 flota Bandaríkjanna á Rússland. En það hafði Rússland einmitt gert stuttu áður. Það æfði kjarnorkuvopnaárás á Evrópu. Það eina sem Rússland skilur er grjótharður hnefinn. Og þökk sé Þýskalandi, sem mjög svo líklega er komið á band Rússlands á ný, einu sinni enn, hafði slíkt í langan tíma ekki verið gert fyrr en nú, eftir að Donald J. Trump settist í stólinn og batt enda á Wilsonian bjórslettupólitík Barack Obama í öllum-málum

Hvað er NATO

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um NATO og svo kallaða "bandamenn" okkar austur í Evrópu

Fyrri færsla

Sjálfstæðissinnar funduðu með forseta Íslands. Strategika nr. 57 komin út


Sjálfstæðissinnar funduðu með forseta Íslands. Strategika nr. 57 komin út

Í S L A N D

img_0173 Heimssýn fundar með Guðna forseta

Mynd, Forsetaembættið: Frosti Sigurjónsson sjálfstæðissinni og fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, Styrmir Gunnarson sjálfstæðissinni og fyrrum ritstjóri, Haraldur Ólafsson sjálfstæðissinni og veðurfræðingur og Ásdís Helga Jóhannesdóttir sjálfstæðissinni og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands

****

Sjálfstæðissinnar funduðu með forseta Íslands

Þessir Íslendingar með skoðun funduðu með forseta Íslands um þá vá sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna er sennilega að að verða fyrir fullveldi íslensku þjóðarinnar. Það var fullveldi okkar í orkumálum sem fundurinn snérist um. Nánar um fundinn á bloggsíðu Heimssýnar, hér

Hoppaði aftur á vagninn

Það var slæmur dagur fyrir Ísland þegar Bjarni Benediktsson hoppaði enn einu sinni á múgsefjunarvagn lesblindra afglapa með réttu röngu skoðanirnar, sem rann fram hjá honum sem Fjárfestingarbanki Asíulanda (AIIB). Nú er komið í ljós hvað er í þeim pakka: eða það sama og Eitt belti og Ein kínversk hengingaról, úr safni hins gamla Sósíalistaflokks og Alþýðubandalags fram að Ólafi Ragnari: þ.e. Kínagullið sem notað verður í nýju köldu stríði

Ef að Bjarni Benediktsson skyldi vera í Varðbergi, sem ég efast um því Björn Bjarna myndi varla hleypa honum inn, þá getur hann varla átt heima þar, lesi menn rétt það sem á Kínamúrnum stendur. Þar á undan hoppaði formaður Sjálfstæðisflokksins á áróður gáfumennaklúbbs hugleysingja sem kallaði sig "Við segjum já", sem var félagsskapur um uppgjöf, um að koma Icesave-skuldunum yfir á herðar íslensku þjóðarinnar

Í samtali við Morgunblaðið þann 1. júlí 2015 sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra þetta:

"Það gerðist bara á nokkrum sólarhringum, þegar átti að fara að loka stofnskránni og mikill fjöldi annarra bandamanna okkar en Bandaríkjamenn ákvað að vera með, að við ákváðum að vera með,".

Bjarni hoppaði á vagninn, því vagninum hafði verið stillt þarna. Ekki vegna þess að slíkt væri Íslandi fyrir bestu, heldur vegna þess að vagninum hafði verið stillt þarna. Hoppið á mig, stóð þar með stórum og glitrandi stöfum. Sama gildir Orkupakka ESB og Bjarna Benediktsson. Hann hoppar á pakkann á vagninum. Þorir ekki að hafa skoðun. Nú er AIIB-vagninn Íslandi fyrir verstu, eins og ESB-orkupakki3

------ K Í N A ------

Strategika Hoover Institution

Strategika Hoover stofnunarinnar, númer 57, er komin út og má lesa hér

Ritstjóri er Victor Davis Hanson, bóndi og sagnfræðingur. Þeir sem skrifa í Strategika númer 57 eru þessir:

1. Gordon G. Chang
2. Michael R. Auslin
3. Niall Ferguson

1. Kína var aldrei heimsáhrifavald (super power) og verður það ekki í framtíðinni

Xi has essentially put the entire country in a big red time machine and set the dial to 1950, perhaps 1650. State media may talk about "New China", but he is busy recreating a Chinese system that history demonstrates did not work well

Kína sækist eftir heimsyfirráðum og menn ættu ekki að láta blekkast, skrifar Gordon G. Chang. Nixon opnaði ekki Kína. Hann kom því á braut til valda. Kína er aldrei "opið". Það hefur engar fyrirætlanir um að aðhyllast Vestfalíu, þ.e. ríkjaskipan sjálfstæðra ríkja sem drottna ekki yfir hvort öðru. Maó var heimsvaldasinni. Deng Xiaoping var sammála Maó um heimsyfirráð Kína og Xi Jinping er kominn til að ná því marki, sem yfir-kontrólsjúklingur þeirra beggja.

2. Michael R. Auslin skrifar: Já, Kínaflóð er. En er það háflóð?

Finally, the world is beginning to respond to Chinas pervasive influence operations, from spying to propaganda. Beijing-funded Confucius Institutes are coming under scrutiny, while European nations are rallying with America against Chinese companies like Huawei, whose ties to the Chinese state are concerning.

Kína er að eflast, en um leið að hnigna og lönd heimsins eru byrjuð að bregðast við kínversku ógninni. En ekki er víst að metnaði þess til heimsáhrifa muni hnigna að sama skapi

3. Njáll Ferguson skrifar greinina: "Frá viðskipta-stríði til tækni-stríðs til Kalda-stríðs II"

Árið 2016 leit kalt stríð milli Bandaríkjanna og Kína út eins og sjúk og ímynduð þvæla úr höfði Steve Bannon og fræðimanna á leið inn á Klepp. En nei. Ég hafði bara lesið of mikið af Henry Kissinger (sem Njáll var þá að skrifa bók um). Ég hefði átt að hlusta á menn, til dæmis Graham Allison. Þegar hann sagði mér að hann væri að skrifa bókina Dæmd til styrjaldar þá var ég vantrúa. En hann hafði rétt fyrir sér og ég rangt, segir Ferguson. Njáll Ferugson gefur Trump 10 í einkunn fyrir utanríkisstefnu. Trump var sá eini sem þorði að segja það sem var rétt og satt, segir Njáll í hlaðvarpi hér

In 2016 a Cold War between the United States and China seemed like the febrile fantasy of Steve Bannon and a few fringe academics. Even Donald Trump’s campaign threats to impose tariffs on Chinese goods struck me as a throwback to an earlier era.. [..]. I had been reading too much Henry Kissinger. I should have listened more to Graham Allison, another Harvard-trained veteran of U.S. national security policy. When he told me he was writing a book on the U.S.-China relationship with the title Destined for War, I was incredulous. He was right.

Stutt frétt

Í leiðinni er hægt að geta þess að þverpólitískur hópur á bandaríska þinginu, hefur lagt fram frumvarpið "Taiwan Assurance Act", til að bæta stöðu Taívan gegn Kína-kommúnistaflokks. Bandarísk herskip með aðstoð lítilla varðskipa frá bandarísku landhelgisgæslunni, eru nú á hafinu á milli Taívan og Kína. Ég legg til að Ísland viðurkenni Taívan. Bandaríkin hafa einnig sent Úkraínu varðskip frá bandarísku landhelgisgæslunni ásamt strandgæsluratsjám

Um NATO og ESB

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur, og meðal margs annars ritstjóri Strategika, um NATO og "bandamenn" okkar austur í Evrópu

Fyrri færsla

30 ára hrun: Verður ESB eins - eða miklu verra ?


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband