Leita í fréttum mbl.is

O3: Að kjósa hafi enga þýðingu

- nema til að forðast eitthvað

xD-Pakkamenn Evrópusambandsins hér á landi viðhafa þau rök núna og stundum áður, að kjósendur eigi til dæmis að styðja flokk Vinstri grænna eða Framsóknarflokks (áður var það Samfylkingin), en þegar það kemur að kosningum þá eigi menn ekki að kjósa þá og þar með innleiða Vinstri græna, eða flokk xyz, til valda í ríkisstjórn. Oft hefur maður heyrt pólitískt þvaður. En með svona sótsvörtu rugli með stóran hluta aleigunnar undir, er orðið greinilegt að forysta Sjálfstæðisflokksins situr við rúllettuna í EES-spilavítinu en stendur ekki. Og þegar menn sitja við rúllettuna og standa því ekki, þá þýðir það að þeir hafa tapað svo stórt að þeir þora ekki út án þess að reyna að vinna eitthvað til baka

Rök manna eins og til dæmis Björns Bjarnasonar, Guðlaugs Þórs og Bjarna Ben eru þau að Sjálfstæðismenn eigi að styðja til dæmis Vinstri græna núna en ekki kjósa þá. Þar með komi þeir einhvern veginn í veg fyrir að Vinstri grænir séu innleiddir til að éta þá. Ekki kjósa, bara styðja. Þetta er eins og að kaupa olíu í kauphöll. Ef maður gleymir að selja á réttum tíma, þá kemur hún heim til þín og það er bankað á dyrnar. Og í tilfelli Valhallar þá verður henni bara dælt inn, því þar eru engar hurðir til að banka á, því þær voru einungis lagatæknilegt atriði

Sjálfstæðisflokkurinn er þar með gerður að pólitískt tæknilegum þöngulhausa-flokki sem ekkert merkilegt hefur fram að færa, annað en ESB-þýsku-samlíkinguna um að tengjast Rússlandi af því að Bandaríkin séu í NATO og verji þá gegn sjálfum sér og Rússum. Er þetta ekki dásamlegt!

Það er greinilegt að núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins stendur á sama um risavaxnar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi. Orkupakki3 er nefnilega tímasprengja undir honum. Og þegar hann er farinn þá hefur flokksforystan étið sjálfa sig og flokkinn allan. Öngvri EES-dós verður þá sparkað lengra niður götuna til glötunar, því hún nær ekki lengra en þetta, gatan sú

Öllum má ljóst vera að mjög svo fáir Sjálfstæðismenn geta stutt við stjórnmálafærslu af þessu tagi. En þannig hefur færsla núverandi flokksforystu verið frá því að hún tók við: Stjórnmálatæknilegt þvaður. Þessu verður ekki unað

Já þið heyrðuð rétt: Hvorki undirstöðuatvinnuvegir Íslands, sjávarútvegur og landbúnaður, né heldur hinar afleiddu stóru atvinnugreinar landsins, stóriðja og ferðaþjónusta, þola mikla bindingu Íslands við tortímingarvél Evrópusambandsins. Það er afar dýrmæt og heppileg staðreynd sem allir ættu að geta verið stoltir af. Og það er staðreynd að íslenskir stjórnmálamenn eru kjörnir til að verja stjórnarskrá og fullveldi Íslands alla daga ársins út í gegn. Það þýðir ekkert að spilavítisvæða þessar frumskyldur sínar. Annars er það bara eitt stórt spark í afturendann og út af þingi með þannig spilafíkla. Takið ykkur saman vesalingar!

Sem betur fer er kominn nýr valkostur fyrir Ísland: Miðflokkurinn

Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Raflagnameðferð fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hefur þá ekki MIÐJU-FLOKKURINN  pálmann í höndunum?

Jón Þórhallsson, 11.4.2019 kl. 14:03

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvað ef að MIÐJU-FLOKKURINN fengi nú 51% fylgi á bakvið sig

í næstu skoðanakönnun / kosningum?

Jón Þórhallsson, 11.4.2019 kl. 14:09

3 identicon

Sæll Gunnar

Pólitík er dauð a.m.k sú sem við þekkjum og höfum alist upp við. Útförinn verður auglýst síðar, líklega eftir einhvað gott hrun.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 14:59

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Jón og Sigþór.

Já Sigþór. En friðþægingarstefna er samt afar voldugt vopn. Hún lamar stjórnmálamenn í sætum sínum, fellir flokka, lönd og heimsálfur. Hún er einnig smitandi.

Enginn bjóst við né gerði ráð fyrir því að valdajafnvægi í Vestur-Evrópu myndi falla og hrynja til grunna á aðeins sex vikum síðast, algerlega að ástæðulausu. Bandaríkjunum var svo kennt um.

En orsök falls Vestur-Evrópu þá (1939-1940), var hins vegar ótti stjórnmálamanna, eins og við sjáum í dag. Óttinn við óttann. Glymurinn úr sérfræðingum. Ekki mátti styggja neinn, nema sína eigin menn.

Sjálfstæðiflokkurinn hefur viðhaft friðþægingarstefnu alla daga síðan að Bjarni Benediktsson tók við flokknum. Hann er því að falla.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 17:51

5 identicon

Tortíming flokksins heldur áfram.

"Já, áfram" var slagorð ESB sinna á tímum

helferðarstjórnar Jóhönnu Sig. og Steingríms J.

"Já, áfram"

heldur tortíming "Sjálfstæðisflokksins"

fylgið hrunið niður í slefandi 21%.

Og þegar hræið er þangað komið

mun það brátt falla með vörgum í véum 

og æ færri vilja veita því lið,

hvað þá að kjósa bleyðurnar og lúserana

sem skynja ekki hjartslátt og vilja þjóðarinnar.

Og þeir munu hrynja ofan í gröfina

sem þeir grófu sér sjálfir,

með stærilátum blekkingum og lygum,

því allt heiðarlegt fólk foraktar og fyrirlítur

litlar hræddar ríkisvaldsins bleyður

sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar veit

að eru berrassaðir út á túni

og girtu sjálfir niðrum sig og munu verða

rassskelltir af þjóðinni sem elskar lands sitt

og auðlindir þess og fegurð.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 18:07

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Gunnar.

Þetta er bara væl í þér, og þú veist það.

Þú bendir réttilega á að þú ert íhaldsmaður, og íhaldsmenn eru í Sjálfstæðisflokknum.  Frjálshyggjumenn eru hins vegar í Viðreisn, líkt og var hér á árum áður, þegar íhaldsmenn voru í Íhaldsflokknum og frjálshyggjufólk í Frjálslyndaflokknum.  Við sameininguna urðu gildi íhaldsmanna ofaná, eins og röð formanna flokksins sína og sanna, Ólafur, Bjarni, Geir, en ég játa að ég þekki nógu vel til Jóhanns.

Við minnsta mótbyr þykist þið íhaldsmenn eiga ekkert skjól, gleymdur er flokkur ykkar, og þið ætlið að ráðast á vígi okkar Hriflunga, sem nóta bene hafa aldrei verið í Sjálfstæðisflokknum eða Íhaldsflokknum, hvað þá skoffínsflokknum sem kallaður var Frjálslyndi flokkurinn.

Hvarflar ekki að þér í eina mínútu Gunnar, að þegar vík verður á milli vina, þá yfirgefa þeir flokkinn sem virða ekki stefnu hans og lífsskoðanir, í stað þess að yfirtaka hann??

Það er ykkar hlutverk í þessar baráttu um framtíð þjóðarinnar að verja flokk ykkar.

Hættið því þessu væli, og gerið það sem ykkur er ætlað að gera.

Þetta er ekki flókið verkefni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.4.2019 kl. 18:26

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ah, nú skil ég þig loksins Ómar.

Ástæðan fyrir því að ég hef svo oft átt erfitt með skilja þig, er þá bara sú að þú ert Framsóknarmaður. Af hverju sagðir þú mér það ekki strax, í stað þess að segja að þú værir Hriflungur. Því ekkert slíkt er eftir í Framsónarflokknum. Hann fór í malbik á vakt Halldórs heitins, Og nú er Sigurður Ingi að búa til risavaxnar holur í það bik. Ekkert er að verða þar eftir, nema útópískt græn mygla VG og ESB-væddur dauði íslensks landbúnaðar í boði Framsóknarflokksins.

Jæja hvað um það. Hvað fólk gerir inni í kjörklefanum er hins vegar það sem skiptir öllu máli. Við Winston getum skipt um flokk án þess að blikna, sé nógu mikið í húfi. Hann gerði það og ég get það líka ef mér sýnist svo.

En með þessum rökum þínum þá eru Vinstri grænir íhaldsútibú Sjálfstæðisflokksins, því þangað flúðu margir Sjálfstæðismenn 2009, vegna loforða forystu þess flokks um að verja fullveldið, sem svo auðvitað var svikið á nokkrum vikum. Allir vita hvert þeir eru að fara núna og fóru 2017, og það er ekki í Framsókn og alls ekki í VG.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 19:02

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur

Ég er að verða þér hjartanlega sammála, haldi þessu rugli xD-forystunnar áfram. Græn mygla og ESB friðþæging. Maður kastar upp!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 19:03

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Æ Gunnar, það er sök sér að væla, en að rugla er nú öllu verra.

Ég er Hriflungur, og þó kannski fullyrðing mín um að eitthvað af slíku eimi eftir í Miðflokknum sé hæpin, en Sigmundur Davíð hefur nú samt mörg einkenni Hriflunga, þá gætu ekki einu sinni VinstriGræn flokksgleraugu fengið þig til að tengja þessa athugasemd mína við Framsóknarflokkinn.

Hvað þá önnur flokksgeraugu, jafnvel ótti við að gera það sem gera þarf, skýrir það ekki heldur.

Rugl er jú alltaf rugl. 

En kannski ef þú væri Pírati í tilvistakreppu, nýbúinn að vera í Bjartri framtíð og finnst Jón Gnarr vera stjórnmálaskörungur, þá hugsanlega gæti ég skilið þessa nálgun þína.

En það er bara vegna þess að slíku fólki er eðlislægt að þekkja ekki rugl frá rugli, eða því sem er ekki rugl.

En þegar ég sía ruglið frá, þá stendur eftir ein hæpin tilvísun í söguna, og það er líking þín við Winston, þann ágæta íhaldsmann sem til dæmis Símon Pétur veit að ég vitnaði oft í, oftar en Davíð, í ICEsave stríðunum.

Þú veist að Winston var ungur þegar hann gekk úr Íhaldsflokknum í Frjálslyndaflokkinn, hugsanlega var hann ekki ennþá búinn að átta sig á  á heli frjálshyggjunnar og hvaðan hún var ættuð, kannski var hann að leita að fram sem hann í æskuákafa sínum gat ekki beðið eftir að fá í hinum íhaldssama flokki sem kenndur var við íhald.

Allavega þá þroskaðist hann, og snéri til baka.

Þú getur ekki líkt þér saman við hann, þú hlýtur að átta þig á aldursmuninum, þú ert jú þroskaður og íhaldsmaður.

Íhaldsmaður getur aldrei verið í öðrum flokki en íhaldsflokki.

Winston lenti hins vegar í mótbyr í sínum flokki, og var hreinlega útskúfaður þegar hann talaði gegn undanlátssemi flokksforystunnar gagnvart alræði og mannvonsku sem kennd var við nasismann.  Ég hef lesið allt sem skrifað hefur verið um hann á íslensku, og mig rekur ekki minni til þess að einu orði hafi verið minnst á að hann hafi mætt því andstreymi með því að þykjast gerast Hriflungur, eða annað sem var andstætt hans íhaldsskoðunum.

Hins vegar veit ég að hann barðist eins og ljón, eins og ljón Gunnar, fyrir skoðunum sínum og fyrir sálu flokksins.

Og hann uppskar, sagan uppskar, vestræn gildi uppskáru.

Vegna þess að hann vældi ekki, hann barðist.

Sjálfstæðisflokkurinn er ykkar Gunnar.

Verjið hann, varðveitið grunngildi flokksins, látið þá víkja sem það gera ekki.

Þið eruð fjöldinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.4.2019 kl. 19:28

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ómar þú verður að hjálpa mér hér.

Hvar ertu?

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 19:42

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í Krossgátuflokknum kannski?

Nýr flokkur?

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 19:44

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Hriflungur Gunnar, hvað þarf ég oft að segja þér það??

Og þó þú sért kannski farinn að efast, þá ertu ekki Pírati í tilvistarkreppu sem telur Jón Gnarr vera mikinn stjórnmálaskörung.

Þú ert sjálfstæðismaður, íhaldsmaður, og þú átt að verja þinn flokk.

Það er ekki þitt að yfirgefa hann, það er þeirra sem sviku, það er að segja ef þeir sjá ekki að sér.

Þið eruð meirihlutinn, af hverju virkið þið ekki flokksstofnanir ykkar???

Það er fullt af fólki í forystusveitinni, kannski ekki í innsta hring, en á þingi og í öðrum trúnaðarstörfum, sem hugsar eins og þið.  En án baklands mótmælir það ekki.

Gefið þið því bakland, og sjáið svo til.

Eina sem ég veit að þá fer vatnið að renna að ykkar ósi.

En að bögga Miðflokkinn, ussum og svei.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.4.2019 kl. 20:29

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mikið rétt Ómar. En samt skil ég þig ekki. Hvaða flokkur er Hriflungar núna? Spurt í fullri einlægni.

Hvað sem öllu líður þá er það núið sem gildir, eins og Íhaldsmaðurinn og lýðveldissinninn Linclon sagði: NOW, NOW, NOW.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 21:16

14 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er nú ekki nema von að þú skiljir ekki Gunnar, ef þú vilt leita uppi hálfa setningu þar sem ég stríddi þér á að láta okkur Hriflunga um Miðflokkinn, tilvísun sem á sér sögulegar skírskotanir því Jónas var í raun útlægur ger úr Framsóknarflokknum, líkt og Sigmundur Davíð seinna.  Nema Jónas var gamall og hafði ekki kraft til að stofna nýjan flokk, en daðraði við ýmsa á gamals aldri, þar á meðal þá sem voru harðir í andstöðunni við komma og Nató fjandvini.  Um þetta getur þú lesið í stórgóðri ævisögu Jónasar, Ljónið öskrar eftir Guðjón Friðriksson. 

Og þeir sem lesa hana skilja líka betur hvað ég á við þegar ég segist vera Hriflungur, en mig minnir að sá síðasti sem var formlegur, hafi dáið fyrir þó nokkuð árum síðan.  En hann var tengdur Samvinnuskólanum á Bifröst, og var það skörulegur að hann var ekki látinn gjalda tryggðarinnar við Jónas.  Man ekki nafnið, en las mjög skemmtilegar minningargreinar þar um.

En hvað kemur það málinu við hvaða flokkur Hriflungar eru í dag??, mér er til efs að þeir gætu mannað eitt fundaborð, hvað þá einn flokk. 

Það er ekki okkar flokkur sem er undir.

Það eru ekki við sem eru íhaldsmenn sem upplifa að það sé verið að stela flokki okkar.

En allt leiðir að ósi, þar á meðal umræða tveggja manna sem deila um margt sömu sýn, þó þeir túlki hana á ólíkan hátt.

"Hvað sem öllu líður þá er það núið sem gildir, eins og Íhaldsmaðurinn og lýðveldissinninn Linclon sagði: NOW, NOW, NOW.".

Nema ég hélt að Lincoln hefði verið sveitalögfræðingur og þar með forframsóknarmaður.

En ætla samt ekki að hefja deilur þar um.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.4.2019 kl. 22:32

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og þú vilt sem sagt Ómar að ég bjargi Sjálfstæðiflokknum til að þú getur haldið áfram að gera hvað og kjósa hvað ..?  -ef ég mætti gerast svo djarfur að spyrja.

?

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2019 kl. 23:13

16 identicon

"Það er góð regla að opna EKKI pakka 

sem tikkar eins og tímasprengja."

Svo einfalt er það.

(SDG um þriðja orkupakkann)

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.4.2019 kl. 00:14

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gott hjá SDG!

Verst að stór hluti xD toppsins og flestra annarra flokka er orðinn svo retarderaður af líberalisma að hann myndi frekar opna erlendan pakka sem tifar eins og tímasprengja og sem sprengir þjóðina í tætlur, heldur en að opna Biblíuna sem gengur út á halda þjóðinni saman og að kenna henni hvaðan hún kom og um hvað þjóðin og þjóðfélag hennar snýst. FÍFL!

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2019 kl. 02:03

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður

099 SignOff og PWRDWNSYS

Sofið rótt (og hlustið ekki á tifandi pakkamenn)

Amen

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2019 kl. 02:27

19 Smámynd: Ómar Geirsson

Nú til að geta haldið áfram að vera á móti honum, hvað annað?

En það er kannski ofmælt að þú getir bjargað honum einn, en þú ert ekki einn.

Þið þurfið aðeins að rísa upp.

Og ykkar aldri er hvort sem er vont að híma á hnjánum, gæti endað í sliti.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.4.2019 kl. 06:48

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú kýst sem sagt engan flokk Ómar af því að sérviska þín passar hvergi inn, en gerir samt kröfu til annarra um að þeir bjargi tóm-stunda-iðju þinni.

Pólitískt viðrini?

Af því leiði ég að þú sért Vinstri grænn. Pólitískur líberalisti sem skiptir um gunnfána eftir þörfum eins og sá glóbalisti sem kommahreyfingin sú alltaf hefur verið.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2019 kl. 11:17

21 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, þetta er kröfuharka Gunnar, en tilefnið er svo sem gefið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.4.2019 kl. 12:04

22 Smámynd: Ómar Geirsson

Og þar sem ég elska botna sem eru ekki suður í Borgarfirði, þá renndi ég yfir 2 síðustu pistla þína, og þar er ekkert væl.

Heldur brýndar raddir svo jarðar við að yfirngæfi þrumuguðinn sjálfann.

Vissulega er tóm-stunda-iðja mín aukaafurð, svona svipað og það hold sem var skafið af dálk frá góðum flatningsmanni, en það er lítið miðað við verðmætin sem felast í vel flöttum fiski. Eða mikilvægi þess að þið íhaldsmenn verji flokkinn ykkar og hrekið óværuna þangað sem hún á heima.

Því þessu stríði líkur ekki nema með fullnaðarsigri annarar hvorrar fylkingarinnar, þeirra sem vilja selja þjóðina, og okkur hinna.

Og félagar mínir til vinstri eru alltof miklir sveimhugar til að vinna nokkurt stríð, enda dugar að kaupa forystu þeirra, þeir hlýða alltaf þegar á reynir, þess vegna velta úrslitin á íhaldsmönnum, alveg eins og það gerði í ICESave átökunum.

Ég spái því að svo fari að einn daginn banki Þór uppá hjá þér, og vilji fá leiðsögn.

Og ekki um þögnina.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.4.2019 kl. 21:36

23 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ómar..

.. Það sem sameinar okkur tvo enn þéttar í þjóðinni eru sennilega "sérfræðingarnir" sem fjargreindu Jónas og Trump sem geðbilaða.

Þakkir Hriflungur, -og Bjartsmaður!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.4.2019 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband