Leita í fréttum mbl.is

Pakkafífl allra flokka hafa sameinast um öreigur Vesturlanda

The National Conservatives senda út S.O.S.

RÆS! bank bank, RÆS!

Þjóðar-íhaldsmenn allra landa og flokka vakni og komi sér í brækur, áður en kommúnistar, fasistar og nasistar verða fyrri til á vettvang brunarústa líberalismans

Nú hlýtur alþjóðasamfélagið (ekki til) að snúa sér að landamæradeilum hins yfirríkislega Evrópusambands við Bretland á norður Írlandi í stað þess að fókusera 98 prósent af fréttaþvæludælum sínum á landamæramál Ísraels. Og svo hljóta sömu skólpdælustöðvar hins alþjóðlega vinstris, DDRÚV og útborunarstjórnar Reykjavikurborgar, að snúa sér að þeim sem sitja í ESB-vernduðum fangageymslum á Spáni vegna sjálfstæðisbaráttu, eins og þeir gert hafa í 100 ár vegna Platestínu, á meðan ekkert er fjallað um 12 milljónir Þjóðverja sem þurftu að ganga heim eftir að land þeirra var frá þeim tekið 1945 og no-problem

Eftir að opna landamæra-hyskið lét sandblása heilabúum sínum út í eina stóra eyðimörk sem fékk nafnið Sahra, þá hljóta þeir að leggja til að Ísrael opni landamæri sín fyrir öllum, og Írland og Bretland líka. Þá myndi ESB-skítapakkinn þeirra að sjálfsögðu koma og leggja niður landamæri sín í austri og bjóða rússneska hernum gjörðu svo vel, að þurrka loksins út landamærin á milli lífs og dauða. Það hlýtur að vera með í pakkanum

Orkupakkafífl allra flokka hljóta að sjá að þetta er eina leiðin áfram, þ.e. lágfreyðandi forgangslegur "almannahagur" og taki því hið snarasta upp hið gamla slógan sitt, Já Helvíti!

Til alls þessa eru skattgreiðendur svo skyldaðir til að leggja 1 skattafjármagnaðan mann að mörkum á hver fimm börn í skólaherfinu, sem nú er að útskrifa nýja kynsljóð MÍR- og Komintern-afglapa með sandblásin umhverfis-heilabú og sem öskra; "þetta er Guði að kenna, því hann skapaði manninn". Ekkert minna dugar. Og ef betur á að takast til en í síðustu aljþóðabyltingu komma-komm, og sem misheppnaðist, þá ættu alþjóðavædd, markaðsmáluð, vatteruð og getnaðarvarin klof íslenskra stjórnmálamanna að láta hið nýja sandblásna Sahraskólakerfi hafa að minnsta kosti einn ríkisrekinn stafsmann á hvert hálft og heilaþvegið barn sem þaðan er útskrifað inn í nýMÍR og nýKomintern, sem er hin sanna endurfædda umhverfismálakirkja alþjóðaisma vinstrisins, sem Bjarni Ben ríður um loftin blá á núna, pakkaður inn sem orkupakki þrjú þúsund og jú jú jú jú

Stór hluti xD toppsins og flestra annarra flokka er orðinn svo retarderaður af líberalisma að hann myndi frekar opna erlendan pakka sem tifar eins og tímasprengja (takk SDG!) og sem sprengir íslensku þjóðina í tætlur, heldur en að opna Biblíuna sem gengur út á halda þjóðinni saman og að kenna henni hvaðan hún kom og um hvað þjóðin og þjóðfélag hennar snýst

Retarderuð Angela Merkel frá DDR er því enn að opna sinn stóra-stóra pakka: "eitt, tvö, þrjú.. æ, eitt, tvö, þrjú.. æ, ég byrja upp á nýtt.. eitt, tvö, þrjú, ..nú?.. eru þetta milljónir!"

FÍFL!

HVAÐ MEÐ EITT VITIBORIÐ ÞÚSUND ÁRA NEI ÚR NORÐRI !

Fyrri færsla

O3: Að kjósa hafi enga þýðingu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Thakka hressilegan og skorinortan pistil Gunnar. Thad er ekki seinna vaenna ad koma sér í braekurnar, ef ekki á illa ad fara.

 Góda helgi og gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 12.4.2019 kl. 18:47

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir Halldór Egill.

Það sem sameinar kommúnista, fasista, nasista og líberalista er heiðnin, og svo trú þeirra á guðinn sjálfan sig og hagfræðina.

Hagfræðin er fín, en hún gagnast ekkert við að halda hvorki þjóð og fjölskyldunni saman né heldur býr hún til gott þjóðfélag sem hjálpar sér sjálft. Nú hafa líberalistar haft nær ótakmarkað frelsi til að eyðileggja allt þetta frá og með 1968 og 1990, og það er byrjað að loga í rústum þeirra.

Þeir sem verða fyrstir á vettvang brunarústanna munu taka við. Allir vita hvernig fer þegar slík öfl komast í glóðvolgan jarðveginn.

Ég hef hingað til ekki hitt þjóðhagfræðing sem veit hvað þjóð og þjóðfélag er, né heldur sem veit hvað það er sem heldur þjóðum jarðar saman sem þjóðum, sem varðveita sig sem grunnpólitískar einingar heimsins. Ég hef heldur ekki hitt þjóðhagfræðing sem veit hvers vegna sumar þjóðir varðveita sig ekki, og líða undir lok.

Þetta lítur ekki vel út. Sannarlega ekki, segi ég. Klukkan tifar og pakkar springa.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 12.4.2019 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband