Leita í fréttum mbl.is

Kjarasamningar: Fælnimáttur virkaði á sósíal óligarka

NATO 70 ára: var stofnað til að 1) halda Rússlandi úti úr Evrópu, 2) Bandaríkjunum inni og 3) Þýskalandi niðri á jörðinni

Floti 8-hreyfla B52 frá Barksdale í Louisiana tók sér stöðu í Fairford í Bretlandi um daginn og æfðu, sem takkk fyrir síðast, kjarnorkuvopnaárás á Rússland, að sögn N.I.

****

ÍSLAND

Það eina sem vantaði til að fullkomna myndina voru bjórslettur á gólfið í Stjórnarráðinu, til af fá út myndina af Downingstræti 10 á valdatímum Verkamannaflokksins og Wilsons. Það eina sem bjargaði Íslandi í kjarasamningum við sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, akademíkera og embættismanna, var fælnimáttur Skúla Mogensen, sem lenti einu stykki grænmáluðu kjarnorkuvopni inn á stofugólf sósíalistans Bjarna Benedikssonar og grænmyglusósíalistans Katrínar Jakobsdóttur. Ég tel Framsókn ekki með í þessu þríeyki social-sósíalista því hún er týnd, finnst hvergi og enginn virðist sakna hennar

Þetta vopn virkaði. Fælnimáttur (e. deterrence) er það eina sem gildir, og þess vegna æfðu Bandaríkin kjarnorkuvopnaárás á Rússland frá norðurheimskautsbaugi suður að Sahara í síðasta mánuði; sem takk fyrir síðast!

Hefði Skúli ekki lent vopni sínu inn á bjórgólf ríkisstjórnar og sósíal óligarkaveldis verkalýðshreyfinganna og akademíkera, þá vær Ísland í enn verri málum en það er í dag. Þetta skipti öllu máli og rotaði óligarkaveldið það mikið, að snertur af jarðsamandi sást langa leiðir að sem blár blossi, og ríkisstjórnin gat því látið sér nægja einn bleyjupakka á sjálfa sig þann daginn, og auðvitað á kostnað skattgreiðenda; sem eru launþegar; og sem allir vinna hjá fyrirtækjum; nema þeir sem vinna við útblásið ríkið og bæinn á bænum. Einu tekjur ríkis og bæja og einu tekjur allra í þjóðfélagi Íslendinga (sem er ekki "samfélag" heldur þjóðfélag) koma frá atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjur eru til. Engar!

Þessu vesalingaveldi tókst þó samt að útópíast þannig að Seðlabankanum var hært út í köku þeirra, verðbólgumælingum meira að segja líka og næst verður það líklega sjálf Veðurstofan sem "leiðrétta" á kuldamæla sína. Af hverju var sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, og samtvinnuðum hauslausum akademíkerum, ekki bara afhentur lykillinn að Stjórnarráðinu sem þá yrði alvöru stjórnarrán. Hvað með að sinna hlutverki ykkar á Alþingi og semja ný lög um verkalýðshreyfingar, þrælahaldsaðild launþega að þeim og fjármál þeirra. Hvað með að losa launþega úr ánauð sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga og akademíkera. Hvernig væri það? Allir sjá að þetta sósíal óligarkaveldi og kúlakkaumsátur gengur ekki lengur. Og til að kóróna klikkunina þá kom einn sósíal óligarkinn af heilögu kvenkyni í viðbót og lýsti því yfir að einn maður ætti varla að geta komið svo mörgum mönnum í vinnu, frá vinnu eða borgað henni launin hennar. Hvernig í andskotanum gátu hálærðir Íslendingar á kostnað skattgreiðenda orðið svona forheimskir? Og það jafnvel lektor við "viðskiptadeild" Háskólans í Reykjavík, sem er að breytast í ruslahaug. Af hverju er þessi kona ekki rekin fyrir þvælu sína eins og hinn sem var rekinn fyrir sína þvælu. En það verður auðvitað ekki gert og ætti heldur ekki að geta gerst. En gerðist þó samt. Skólinn er enn einn Kremlarkastalinn í Austur-Berlín Reykjavíkur í viðbót, eins og DDRÚV. Heilastappa

NATO 70 ÁRA - OG ÍSLAND

Hin evrópska kvöldverðar- og lágvarðadeild NATO á Íslandi hélt að sjálfsögðu upp á 70 ára afmæli hernaðarbandalagsins í gær. Guðlaugur Þór utanríkis talaði um "gildi" NATO frá öðrum stað og vestar, en auðvitað ekki um getu þess. Sem sagt "gildi". Hvaða "gildi" hafði þá vopn Skúla í WOW, Guðlaugur minn kæri? Kannski sósíalistískt fís-gildi eins flest sem kemur frá alkalívirkninni í öllum áður föstum efnum Valhallar, þessi ár fjölbreytts-þvaðurs þar á 22 prósent-smábæ Bjarna (e. diversity). NATO hefur ekkert "gildi" ef vopnin og mannskapinn vantar. EKKERT! Viltu ekki bara vinsamlegast halda áfram að borða súpuna þína Guðlaugur, og reyndu nú að slefa ekki eins mikið og Bjarni, sem þarf orðið nýjan smekk á tveggja tíma fresti

Af hverju hafið þið dæmt okkur Íslendinga sem verandi svo mikla aula og vesalinga að við með okkar eigin orrustuþotum hins íslenska varnarliðs getum ekki stuggað óboðnum gestum burt úr loftrými Íslands, og handhafið þannig fullveldi okkar með fasta og strategískt hyldjúpa baktryggingu í Washington DC, í stað þess að því sem næst ESB-gjaldþrota Ítalir voru látnir um það, nú síðast fyrir nokkrum dögum. Hugsið ykkur hversu öflug lyftistöng það yrði fyrir þjóðfélag okkar Íslendinga að reka okkar eigin loftvarnarvaktstöð. Hugsið ykkur tæknikunnáttuna og spin-off áhrifin sem slíkt hefði fyrir okkur. Við myndum finna upp nýjungar eins og við gerðum í síldveiðum og gerum í sjávarútvegi í dag, og gefa heiminum nýjungar í varnarmálum og afleiðum þeirra. En einmitt þau hafa knúið tækniframfarir á Vesturlöndum öldum saman. Hvar eru tvö prósentin okkar í NATO, Guðlaugur Þór? Með þessu fyrirkomulagi myndi varnarsamningur okkar og Bandaríkjanna endurnýja sig sjálfur, hvort sem NATO væri enn á lífi eða ekki, sem er langt því frá öruggt. Við myndum leggja okkar að mörkum, og eitthvað annað en mest betl. Allir hugsandi menn vita að það er eingin afsökun til fyrir þessu lengur. Við erum fossrík þjóð, en værum það ekki án aðkomu og tækniyfirfærslugetu Bandaríkjanna, því án verndar þeirra væri hér engin stórvirkjun né risavaxnar erlendar fjárfestingar keyrandi á fullu og malandi gull hvern einasta dag ársins við atvinnu- og verðmætasköpun úr fallvötnum okkar, og sem þið vesalingar í Valhöll ætlið svo bara að depónera í orkupakka fangageymslur Brussels til einskis! Eruð þið virkilega svona miklir aular. Virkilega? Það er varla að þið látið okkur geta rekið Landhelgisgæsluna og Lögregluna í landinu okkar. Þið sóið verðmætum í fís. Og þið notið að allt of miklu leyti ólaunaða sjálfboðaliða við björgunarstörf. Hvað er að ykkur?

NATO var stofnað til að halda Rússlandi úti úr Evrópu, Þýskalandi niðri á jörðinni í Evrópu, og Bandaríkjunum inni í Evrópu. Í skjóli NATO reistu kvöldverðadeildir Evrópu sér eitt stykki Evrópusamband sem er að enda, eins og allt annað evrópskt. Án NATO hefði Evrópusambandið ekki getað orðið til, og er ESB þess vegna að enda. En NATO mun þó sennilega lifa áfram í sinni upprunalegu mynd, á einn eða annan hátt, því stofnun þess er óháð stjórnmálum hverju sinni, sérstaklega bananastjórnmálum Evrópusambandsins

Rússland undir Zar, undir aðalritara kommúnisma, undir Pútín og þess vegna undir rússneskt algóðum forsætisráðherra, er alltaf eins, og breytist ekkert. Þar breytist ekki. Takið vinsamlegast eftir; Rússland breytist ekki. Og Þýskaland verður áfram Þýskaland eins og sést. Við fyrsta nýja tækifærið sem því gafst er það nú þegar byrjað að berja á nágrönnum sínum og heimsálfunni allri. Það er komið í slagsmál við ríki Austur-Evrópu vegna glæpsamlegs framferðis Angelu Merekls kanslara í til dæmis innflytjendamálum. Þýskaland, með Evrópusambandið í rassvasanum, kúgar á ný ríkin í austri til hlýðni í dóms og réttarfarsmálum. Þýskaland er strax komið í efnahags- og fjárhagsleg slagsmál við ríki Suður-Evrópu og hefur sett sum þeirra í skuldafangelsi. Og það á einnig í slagsmálum við Bretland vegna brexit. Þýskaland er sem sagt komið í slagsmál við alla á ný og það tók ekki nema tæplega 30 ár. Það sama gildir um Rússland sem er byrjað að gúffa nágranna sína í sig, til þess að geta endurreist sovétríkið í einni eða annarri mynd

Bandaríkin eru að miklu leyti komin út úr Evrópu, en samt ekki alveg. Þau eru það eina sem kemur í veg fyrir stóráhlaup á álfuna úr austri og suðri og öllum áttum þar á milli, suðaustri líka. Þess vegna var Rússlandi sýndur bandaríski hnefinn sem "takk fyrir síðast" í síðasta mánuði, með því að æfa kjarnorkuvopnaárás B52 flota Bandaríkjanna á Rússland. En það hafði Rússland einmitt gert stuttu áður. Það æfði kjarnorkuvopnaárás á Evrópu. Það eina sem Rússland skilur er grjótharður hnefinn. Og þökk sé Þýskalandi, sem mjög svo líklega er komið á band Rússlands á ný, einu sinni enn, hafði slíkt í langan tíma ekki verið gert fyrr en nú, eftir að Donald J. Trump settist í stólinn og batt enda á Wilsonian bjórslettupólitík Barack Obama í öllum-málum

Hvað er NATO

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um NATO og svo kallaða "bandamenn" okkar austur í Evrópu

Fyrri færsla

Sjálfstæðissinnar funduðu með forseta Íslands. Strategika nr. 57 komin út


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

þessi rómversk kaþolski heimur er allur að hruni kominn. Usa og Evropa. það er ekkert geðslegt ástand í Usa, nema bara peninga prentuninn ein í 70 ár.

Fedrear Reserve var sett á fót, 12 mánuðum seinna, þá braust fyrr heimstyröldin út !!!!!! 

Heldur fólk að það hafi verið tilviljun ???

Hverjir hognuðust á fyrr og seinni heimstyröldinn. 

það skyldi þó ekki hafa verið WASHINGTON DC. 

Wsshington Dc er ekki hluti af Bandaríkjunum og tilheyrir ekki bandarikjunum. Heldur er sjalfsttt ríki og er stjórnað af Pafanum. 

Bandaríkinn er eitt en Washongton Dc er annað. 

Fólk greinir ekki þarna á milli, því að fólk er blekkt. 

Seðlabanki Bandaríkjanna, sést of síðum blaða, en sá banki heitir bara ekki SÐLABANA BANDARÍKJANNA. 

Bsnkinn heitir, Federal Reserve , en ekki Federal Reserve of United states. 

þarna liggur munurinn, þetta er nefnilega einkastofnun og er fyrst og fremst ætlað að þjóna vatikaninu. 

Sá sem heldur þvi fram að ekkert breytist, hvorki Russland né annað í heiminum, þarf virkilega að skoða hug sinn, þvi að heimurinn hefur ALLTAF VERIÐ AÐ BREYTAST og sá einstaklinghur sem að heldur að henn geri það ekki, lifir í tálsýn og drauma heimi. 

Ríki heims higna og rísa sem stórveldi og er Usa ekki neitt annað en hnignandi stórveldi og algerlega búið að vera sem stórveldi. 

San Diego er aðalstoð hersins og hefur breyst í eina risa stóra bjór búllu með míkro bjórframleiðslu á hveju horni. 

það er buið að lögleiða kanabis og enginn stjórn er á styrkleika efnisins. 

Slíkt land getur valla verið á rettri leið heldur þver öfugt. 

Nsto er VATIKANSIÐ, Esb er lika vatikanoð er er ESb stjórnað af KAÞOLSKU KIRKJUNNI Í AUSTURRÍKI með beina símalínu til Romar og þaðan til Washongton Dc. 

NASISTUNUM var nefnilega líka stjórnað af Kaþoslkiu kirkjunni í austur ríki. 

Austurríki hefur nefnilega verið RÓT ALLS ÍLLS. 

Aðal stjórnstöinn fyrir allan viðbjóðin. 

Viðkomandi talar um Russland og vísar óbeint í framferði þeirra, en það er slæmt þegar að fólk getur ekki horft hlutlaust á málin, þvi að þá litast alltaf oll skrif af þvi og það er þannig að framferði Usa er eitthað sem að allir ættu að hafa áhyggjur af og þá meira núna heldur en nokkurn tíman áður, enda hefur allt ástand versnað þar sem að Usa kemur við sogu. 

Ukraina er gott dæmi um það. 

Afskipti Usa af málefnum Ukrainu, er ástæða þess að ALMENNINGUR er búin að missa Krím skagann. 

Afskripti Usa er líka ástæða þess að Ukraina er á leiðinni gjaldþrot árið 2023 með sama áframhaldi. 

Afsktipti Usa er líka ástæða þess að almenningur er búin að missa hlut sinn í Gas fyrirtækinu að hluta. 

Afsktipti Usa í Ukrainu er líka ástæða þess að um 20 til 30 þúsund manns hafa verið strá drepnir í þessu landi. 

Burisma holding, er eignarhalds fyrirtæki sem að var stofnað um gasfyrirtækið í Ukraínu eftir valdsktiptin og er stjórnarformaður þess fyrir, SONUR JOE BIDEN varforseta. 

það er nefnilega,,  ALMENNINGUR ,, sem að þjáist á meðan að aðrir græða.

Ég segi nú bara áfram Russland. 

Ég undirritaður hef aldrei komið til Russlands og á engan facebook  vin frá Russlandi heldur. 

Islendingar eru ekki umvafððir neinu englum, og er Kaninn langt í frá góðmennskan uppmáluð. 

Ég er alveg búin að vera nógu og lengi í Usa og dvelja þar við og átt í samskiptum við fólk þar til þess að skilja að ÞEIM ER ALLTAF ALVEG SLÉTT SAMA.

SJÁLFHVERFASTA ÞJÓÐ Í HEIMI.

Við erum best og mest og þetta á sér rætur til Kaþoslku kirkjunnar, sem að hefur einhvernveginn talið meðlimum vatikansin trú um það, að þeir séu æðri ÖLLU ÖÐRU Í J0RÐINNI OG AÐ PAFIN SÉ SENDI BOÐI GUÐS Á JORÐINNI.

þegar að miljónir manna ganga um með slíkar sjálf myndir á hausnum á sér , að þá er örugglega hætta á ferðum.

kv

LIG

PS, ÁFRA RUSSLASND 

Lárus Ingi Guðmundsson, 5.4.2019 kl. 21:00

2 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Svíar einu mestu vopnasalar heims í árataugi, voru að úthluta FRIÐAR VERÐLAUNUM NOBERLS Á SAMA TÍMA !!!!!!

HRÆSNIN HÉNRA VESTANMEGINN ER ALGER. 

KV

lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 5.4.2019 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband