Leita í fréttum mbl.is

30 ára hrun: Verður ESB eins - eða miklu verra ?

Wall Street Jorunal - ekki kaupa hlut í japönskum bönkum

Mynd, Wall Street Journal 19/3: Þróun japanskra hlutabréfavísitalna í 30 ár. Aðeins bílaiðnaður til útflutnings handa neytendum í löndum með ungt fólk, og hjólastólar og heilsugæsla handa japanska óðaöldrunar-hagkerfinu, eru með lífsmarki. Restin er ekkert, eða í stórkostlegum mínus. Gosbrunnurinn í tæknigeiranum um aldamótin er "nýja hagkerfið" sem dó á ofsahraða í Japan

****

Líkurnar á því að meginland Evrópu verði svona, aukast með hverju árinu sem líður og á Ítalíu er staðan nú þegar enn verri en þetta, og versnar enn. Myndin sýnir þróunina á japönskum hlutabréfamarkaði í tæp 30 ár, eða frá því í febrúar 1990, er hrun undrabarna-hagkerfis Japans kom loks fram á hlutabréfamarkaði. Þá voru "sérfræðingar" og háskólaprófessorar á Vesturlöndum enn á þeirri skoðun að "japanska módelið" væri svo öflugt að landið myndi taka fram úr Bandaríkjunum, svona eins og nóbelsverðlaunahafinn Paul Samuelson í hagfræði sagði að hagkerfi Sovétríkjanna myndi taka fram úr því bandaríska að stærð árið 1984, en í síðasta lagi árið 1997. Hann hafði reiknað það út. En þegar sovétið kom undan kommajöklinum var það einungis brot af þeirri hagstærð sem sérfræðingar sögðu að það hefði verið og væri enn. Það var ekki 17 prósent, heldur aðeins 5 prósent af efnahag heimsins. Bandaríkin voru þá 30 prósent og sennilega 40 prósent, væru tölurnar um undrahagkerfi annarra landa réttar


MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JULI 1992Eignasöfn japönsku bankanna voru þó þegar gufuð upp heilum tveimur árum áður en hagkerfið hrundi. Japanska hrunið komst svo á forsíður dagblaða á Vesturlöndum í kringum 1991. Mynd: Morgunblaðið 28. júlí 1992 - allt að koma og "bara" rétt handan við hornið. Nei, það varð heldur betur ekki þannig

Þetta var að sjálfsögðu hin "fjórða iðnbylting" í höfðum sérfræðinga. Því næst tók "Nýja hagkerfið" við á árunum 1990-2000. Þá sögðu sérfræðingar að ný iðnbylting hefði gerst og að það sem út úr henni væri hingað komið héti "Nýja hagkerfið" (e. the New Economy). Tími samdráttar væri liðinn og hagkerfin myndu aðeins geta vaxið, og hrun væru algerlega úr sögunni og óhugsandi með öllu. Þetta væri svona vegna þess að ný tækni væri komin og hún hét internetið og tölvun, og svo vegna þess að "seðlabankar" væru sjálfstæðar stofnanir (hugsið ykkur þvæluna!), og að evran myndi verða hin fullkomna útungunarvél hagsældar. Ég man aðeins eftir einum hagfræðingi sem efaðist og taldi menn fara of geyst, en það var Torben Andersen í Danmörku. Þá var ég sjálfur úti í Evrópu og á kafi í viðskipta- og markaðsrannsóknum á fjarverslunarþætti "nýja hagkerfisins". En mér tókst bara aldrei að finna neina veltu með vörur og þjónustu hjá neinum. Það eina sem ég fann var velta með pappíra eða stofnfé svo kallaðra "fjárfesta", sem án björgunarhrings höfðu hent sér í ískaldan sjóinn vegna trúar á hið nýja hagkerfi. Hitinn sem mældist kom allur frá brunaum á fjárfestingafé þeirra. Hagfræðingar og sagnfræðingar höfðu jú skrifað bækur og sagt að gamli heimurinn hefði endað með falli Sovétríkjanna og friður yrði því með okkur um alla eilífð - og hagvöxtur

Þess vegna hrundi nýja hagkerfið í janúar 2000 og fé fjárfesta í "nýja hagkerfinu" brann til ösku. Svo gerði gamli heimurinn árás á Tvíburaturnana í Bandaríkjunum og árið 2008 hafði sérfræðingaveldi Vesturlanda keyrt heiminn í svo mikla klessu, að sjálf 1945-uppsetning hans féll þá um sjálfa sig, því gamli heimurinn hafði alls ekki endað, og ríkisgjaldþrot blöstu við út um allt. Rússland tók að gúffa sína nánustu í sig á ný, svo að endurreisa megi Sovétríkið. Kalt stríð II milli Bandaríkjanna og Kína er í smíðum, og hvort það verður heitt er alls ekki útilokað. Þeir sem bentu fyrst á þessa þróun voru útlægir menn eins og Steve Bannon, sem er sjálflærður sagnfræðingur. Reyndar eru flestar metsölubækur á sagnfræðisviðinu í dag eftir fólk sem aldrei hefur látið eitra hugsun sína í hálf-marxískum háskólum nútímans. Fólk er hætt að nenna að lesa; annars vegar, hins vegar, á annan bóginn og hinn bóginn sérfræðingana sem ekkert hafa fram að færa nema sjálfa sig handa kollegum sínum. Bla bla bla

SX7P - 30 ár

Mynd, Stoxx: Þróun SX7P hlutabréfavísitölunnar: Bankar í Evrópu: 30 ár => ekkert

****

Sem sagt. Hvað svo sem þú gerir þá máttu aldrei fjárfesta í bönkum og fjármálageirum Evrópusambandsins. Það er lærdómurinn sem draga má af japanska hruninu. Og það er víst óþarfi að vara menn við evrópsku og kínversku sprengjuhleðslunum, nema náttúrlega þá sem lifa á plánetum íslenskra ráðuneyta, og eru því ekki í neinu sambandi við móður jörð. En meginland Evrópu er ekki Japan og mun aldrei þola það sem japanska þjóðin hefur staðið sameinuð um að halda út og þola. Aðeins sannur brjálæðingur heldur sig fast við Kína- og Evróputrú ESBismans

Fyrri færsla

Ríkisstjórnin ánægð: Skúli í WoW stöðvar alla losun, umsvifalaust


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sæll Gunnar

Það er oftast gaman að lesa skýringar þínar á upp og niðursveiflum eða hagvexti. Markaðurinn og landsframleiðslan er eins og fljót sem ýmist þornar upp eða flæðir yfir alla bakka. Þar sem eru vaxtaskilyrði eins og nú í Pólandi, Indlandi, Filippseyjum og Kína er mikið framboð af hæfu starfsfólki á lægri launum. Þegar laun og vara hækkar leitar allt jafnvægis, svipað og hefur orðið í Japan.

Eftirköstin af margra ára veisluhaldi, hvort sem er í ríkjum Evrópu / Ameríku eða hjá tilraunaflugfélögum eru áþekk. Ekki má gleyma að stjórnskipulag með frjálsræði og aðhaldi er undirstaða þess að hreyflarnir nái að komast á loft. Síðan er það "skipstjórans" að ná landi og lendingu með afla?

Sigurður Antonsson, 30.3.2019 kl. 20:30

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigurður.

30 á verðhjöðnun er hvorki niður- né uppsveifla. Og heldur ekki stöðugleiki. 30 ára verðhjöðnun er skelfilegt misfóstur í einu og tveimur hagkerfum. Á endanum verða þannig ríki gjaldþrota. Enginn verður eftir í þjóðinni til að kaupa ríkisskuldabréfin af ríkisstjórninni og seðlabankanum, og enginn útlendingur mun líta við ríkisskuldabréfum í geldri kú, einni og kálflausri úti á túni. Hún deyr bara út.

Það er alger óþarfi að láta sem svo að allt sé jafngott í þessum heimi. Sumt er gott og annað er slæmt. Japan er slæmt, Kína er verra og hrein viðurstyggð, en ESB getur samt orðið verst.

Pólland er nýsloppið undan skriðjökli sósíalismans og var rétt aðeins að ná því að verða fullvalda og sjálfstætt ríki á ný. En nú er Evrópusambandið hins vegar að reyna að plokka fullveldinu af því aftur.

Allt sem kom undan kommajöklinum viðurstyggilega, vex að minnsta kosti betur en undir honum. Það er varla að Pólland geti talist þróað hagkerfi enn, og það mun aldrei ná því, ef að hæfileikaríkasta og duglegasta fólk þess góða lands flýr landið sitt, eins og það hefur gert, of mikið.

Hagkerfi hafa ekkert með flugvélar að gera annað en það að þegar sviptivindar ráðast á flugvélina, þá er bæði farþegum og áhöfn skipað að setjast niður og spenna beltin.

Árshátíð Íslandsbanka fer farm nú í kvöld. Og að þessu sinni þá situr samkundan í sætum. Í fyrra var starfsfólkinu gert að standa upp á endann. En ekki núna. Það er sest.

Kannski eins og í spilavíti þar sem þeir sem sitja við rúllettuna eru þeir sem hafa tapað miklu og sitja sem fastast við að reyna að minnka tapið, en yfirgefa yfirleitt ekki spilavítið nema sem rúnir menn. "Situr hann eða stendur", það er málið.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.3.2019 kl. 21:49

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hérna Sigurður eru tvö sýnishorn úr 20 ára verðhjöðnun í 30 ára hruni í Japan. Kannski að einhver Íslendingur vilji opna fasteignasölu þarna í miðju markaðslögmáli sem segir; ekki kaupa í dag, því allt verður ódýrara á morgun, og hinn, og hinn, og hinn, dag eftir dag í nú 30 ár. Flest er farið til fjandans í lífi fólksins og börn fæðast varla lengur:

Hrun og meira hrun

Gunnar Rögnvaldsson, 30.3.2019 kl. 23:03

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Pólverjar eru sannfærðir um að ESB hafi fært þeim frelsi en ekki hrun kommúnismans. Fyrir það verða þeir ennþá í kverkataki esb sem hefur troðið sínum helsta þunga og mengunariðnaði þangað og stendur undir atvinnulífi þar sem þeir ráða launum og því eru Pólverjar á flótta til að komast í tekjur til að senda heim í örbirgðina.

Pólland og fleiri fyrrverandi austurblokkarlönd eru þrælakistur esb og þeim er ætlað að gegna því hlutverki svo herraþjóðirnar geti verið samkeppnishæfar á markaði. Þar fyrir munu þessar þjóðir ekki líta betri tíð en nú er.

Pölland er þrælakista þjóðverja og verður það þangað til þjóðverjum og esb sýnist annað.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2019 kl. 23:10

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Jón Steinar.

Pólverjar þakka fyrst og fremst Bandaríkjunum fyrir frelsi sitt og sér sjálfum, og þeir eiga fyllilega skilið að þakka sér sjálfum fyrir mikið. Þeir þakka ekki Þýskalandi, sem frekar reyndi að hindra frelsi þeirra, en að gera það mögulegt. Og þeir þakka ekki ESB. Svo mikið er víst, enda á það engar þakkir skildar í þeim efnum.

70 prósent Pólverja hafa jákvæða afstöðu til Bandaríkjanna og það eiga Þjóðverjar erfitt með að þola. Pólland myndi frekar segja sig úr ESB hundrað sinnum en að segja sig úr NATO eða frá vináttu við Bandaríkin og Bretland.

Já það fór ekki beint vel með einkavæðinguna þegar að löndin komu undan kommajöklinum. Mikið af eignum þjóðanna lentu á erlendum höndum. Sérstaklega þýskum. ESB-Pakkar númer þú veist 1,2,3,4,5,6,7,8,9.

Annars er Pólland með mikla sérstöðu hér, því að pólska þjóðin veit vel og man enn vel að landið þeirra var þurrkað út af landakortinu, þegar Rússland og Þýskaland sömdu sín á milli. Þannig að búseta erlendis er öryggisventill fyrir marga Pólverja, eða eins konar erfðabanki geymdur á öruggum stað. Pólland hefur verið krossfest svo oft, og er eins konar Kristur þjóðanna. Blóðið seytlar enn, og margar minningarnar eru afar sárar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.3.2019 kl. 23:35

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já það er rétt Jón Steinar að Þjóðverjar notfæra sér lág laun í Póllandi, og reyndar alls staðar sem þeim er gert það mögulegt í gegnum ESB.

Úr vestri sækir Þýskaland með ESB í rassvasanum nú að Póllandi og úr austri er það rússneska ógnin sem sækir að Póllandi.

Og enginn veit með öryggi á hverra bandi Þýskaland er. Og það gildir einnig innan NATO. Bandaríkin geta ekki verið örugg um að Þýskaland sé ekki á bandi Rússlands. Þetta er staðan í dag.

Gunnar Rögnvaldsson, 30.3.2019 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband