Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2018
Fimmtudagur, 12. júlí 2018
Þýskir stinga áfram höfðum í nýsovéskan sand ESB
NATO-fundurinn snérist að sjálfsögðu um Bandaríkin því þau halda NATO uppi sem hernaðarbandalagi á meðan stærstu ESB-löndin halda sér að mestu frá því að halda NATO sem hernaðarbandalagi, því stjórnmálin í þeim löndum snúast um að níða Bandaríkin niður og tala út og suður um hvað NATO eigi að snúast um, vegna eigin innri vangetu. Evrópa er orðin eins og fallandi alki sem reynir að útskýra akademískan óbata sinn með blaðri og dagdrykkju. Þýski kanslarinn er pólitískur yfirmaður í steingeldu hálf-sovésku landi sem mælist með hve mesta andúð á Bandaríkjunum, sem halda uppi NATO og þakinu yfir nýsovésku Þýskalandi. Í ríkisstjórn hennar eru vinstrimenn af hreinum stasískum trúbálki sem sjá helst að hernaðarmætti Bandaríkjanna sé skipt út fyrir hernaðarmátt Rússlands. Þýskaland mun um aldur og ævi verða til stórkostlegra vandræða fyrir meginland Evrópu og veröldina. Það hefur hingað til verið liðið, því Bandaríkin umbáru það vegna þess að þau þurftu á Þýskalandi að halda í glímunni við Rússland í full-sovésku stjórnarfari, sem nú er að endurtaka sig undir nýjum merkjum. Bandaríkin þurfa ekki lengur á Þýskalandi að halda og það gremst Þjóðverjum vegna þess að þá þurfa þeir að taka dálitla ábyrgð á sínu lífi. Það er afar erfitt, sérstaklega núna, þegar þau lönd sem báru Þýskaland efnahagslega uppi eru annað hvort sviðin jörð eða orðin andsnúin ESB-ryksugun Þýskalands
Evrópa kemur ekki nálægt neinum mikilvægum málum lengur því hún hefur enga, nada, núll getu til að leysa þau: hvorki Úkraínumálið, Krím né allt hið rotna beinagrindasafn hins afturgangandi sovéts í Vladímír Pútínlandi, ekki Mið-Austurlönd, ekki Kína, ekki Norður-Kóreu, ekki ISIS, ekki heimsviðskiptamál, ekki Ísrael-Palestína, ekki Íran né upprennandi Stór-Tyrkland. Evrópa er orðin gamalt hrúgald á öskuhaugum sögunnar. Hún er orðin ruslatunna sem Bandaríkin umbera, en ekkert umfram það. Þau sjá smá von í Austur-Evrópu sem bandamanni, en restin af meginlandinu er að verða nýtt stasi-ríki undir sovésku ESB
Ekkert merkilegt evrópskt fyrirtæki er lengur til og hinn stafræni hluti heimsins á engan veginn heima þar; núll. Allir bankar meginlandsins eru gangandi beinagrindur. Enginn góður háskóli er lengur til á meginlandinu, jú einn, en hann er í Sviss. Enginn merkilegur stjórnmálamaður býr lengur á meginlandi Evrópu, frekar en var í Austur-Þýskalandi og Sovét. Þeir geta einfaldlega ekki orðið til. Jöfnuður! en ekki frelsi er orðið mottó og Evrópusambandið nálgast nú eins konar mafíuríki sem ekki er hægt að kjósa burt. Allt er orðið fyrrverandi og álfan er ekki fær um að verja sig lengur. Henni tekst með naumindum að kreista fram 1,4 prósent af ESBlanda-framleiðslunni í varnir. Satt að segja -veit Donald Trump- erum við að horfa á rústirnar af því sem einu sinni var. Evrópa er búin að vera fyrir fullt og allt. Hún er orðin hálf sovéskt betlandi fyrirbæri á leið til Rómar II. Evrópusambandið drap hana enda er það Stasi. En eigum við að leyfa því að drepa Ísland líka?
Fyrri færsla
Óvissuferð endar: Nýja Sjáland pantar fjórar bandarískar kafbátaleitarvélar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 11. júlí 2018
Óvissuferð endar: Nýja Sjáland pantar fjórar bandarískar kafbátaleitarvélar
Nýja Sjáland
Nýja Sjáland er að vakna upp við vondan kínverskan draum. Síðasti vondi draumur þess voru kommafriðarhreyfingar Vesturlanda sem KGB hannaði. Friðurinn sá hreyfðist í lokuðu kommaglasi og varð til þess að Nýja Sjáland bannaði bandarískum herskipum að koma í höfn nema að skipherrar þeirra staðfestu að þau væru kjarnorkuvopnalaus, og helst varnarlaus. Sú saga öll er nú skyndilega búin og bandarísk herskip fá að koma í nýsjálenska höfn án þess að staðfesta af né á um slík vopn, sem þau eðli málsins samkvæmt hvergi gera
En það er meira. Nýja Sjáland hefur ákveðið að festa kaup á fjórum nýjum Boeing P-8 Poseidon kafbátaleitarvélum. Flugher landsins mun sjá um leitina og reksturinn, eins og hann hefur séð um rekstur sex P-3 Orionvéla. Þetta eru nokkuð stórar fréttir frá þessu litla landi, sem telur tæplega fimm milljón manns. Kosta nýju vélarnar 1,5 milljarð Bandaríkjadala eða sem svarar til 160 milljarða króna. Nýsjálenski flugherinn var stofnaður 1913 og hefur fimm flugstöðvar í landinu
Óvissuferð Íslendinga hefst (eftir-kosninga-ferðin)
Forsætisráðherra Íslands sagðist vera að fara í óvissuferð í gær. Hún væri nefnilega að fara á NATO-fund. Skelfilegt að þurfa að líða svona sem pólitískt höfuð Íslands. Hreint skelfilegt. Fyrir bandaríska kjósendur hefur Donald J. Trump ekki verið nein óvissuferð. Hann gerir allt sem hann lofaði þeim og tístir hvernig það gengur og hvað hann ætlar að gera og segja næst og hvenær. Í gær kallaði hann bandaríska lyfjaframleiðendur á teppið, og þeim fundi í Hvíta húsinu lauk með því að fyrirhugaðar verðhækkanir á lyfjum koma ekki til framkvæmda í bráð. Mikið hefði ég viljað vera flugan á veggnum þar
WSJ: Pfizer to Roll Back Price Increases After Trump Criticism
Á meðan segja íslensk stjórnvöld kjósendum sínum að þau séu algerlega getulaus, þvert á það sem sagt var fyrir kosningar, og geti því hvorki varið landið fyrir ásókn útlendinga né neinna annarra. Skelfur nú Katrín mikla á NATO-fundi í Brussel því kommar hafa í hálft hundrað ár sagt að Bandaríkin skipti ekki lengur máli. Og Bjarni steinsofandi Benediktsson virðist ætla að leggjast héradauður og bake-off (afbakaður) í jötuna í Brussel, þvert á það sem hann sagði á Hvanneyri, fyrir kosningar. Íslendingar skulu píndir samkvæmt öllum umboðslausum reglum ESB. Má kannski bjóða þér í sanna óvissuferð í næstu kosningum, Bjarni?
Fyrri færsla
Útsala á Íslandi í hendur takmarkaðrar ábyrgðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 10. júlí 2018
Útsala á Íslandi í hendur takmarkaðrar ábyrgðar
Ýmsar kenningar svífa nú um háloftin, langt fyrir ofan loftslög hins almenna kjósenda, um hvernig úrsagnar-niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu Breta úr Evrópusambandinu á að enda með því sem kom ekki út úr henni. Sú einfalda niðurstaða fyrirskipaði útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu
Flest fyrirtæki hafa ekki kosningarétt því það var lýðræðislegt stjórnarfar sem með lögum bjó til fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð, og skapaði þar með kapítalismann. Þess vegna hafa fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð engan kosningarétt. En samt ráða þau miklu um það hvernig málið á að komast til framkvæmda. Of miklu
Það er alger óþarfi að hlusta of mikið á það sem fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð segja. Ábyrgð þeirra er takmörkuð, og þau þar með ábyrgðarlaus í þessu máli. En samt er það svo að öll lönd sem bara svo mikið sem snerta það mál sem heitir Evrópusambandið, eitrast og mygla að innan. Öll lönd sem koma nálægt þessu fyrirbæri verða pólitískir vígvellir hinna ábyrgðarlausu, því það sem ræður för eru fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð
Hvernig væri að þeim sé nú hótað af þeim sem bera ábyrgð á ábyrgðarleysi þeirra. Verið er að selja hluta af Íslandi til hinna ábyrgðarlausu. Hluti af fullveldi Íslands hefur verið færður í vasa þeirra sem takmarkaða ábyrgð bera og jafnvel enga, og sem ekkert umboð frá neinum kjósendum hafa heldur. Sú stund nálgast að allir stjórnmálaflokkar verða gjaldþrota á vegum þeirra sem takmarkaða ábyrgð bera
Hver hefur gefið flokkunum leyfi til að veðsetja sig svona. Ekki kjósendur, svo mikið er víst. Þeir fara því úr flokkunum: flokks-útgangan heitir það
Fyrri færsla
Bandaríkin: bæði þak, gluggar og garður Evrópu - sólin líka
4.700 hektara jörð seld með hóteli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 9. júlí 2018
Bandaríkin: bæði þak, gluggar og garður Evrópu - sólin líka
Mynd Wall Street Journal 8. júlí 2018: Billjón dalir segirðu?
****
NATO og Þýskaland
"Angela, þú skuldar mér eina billjón dala", var það fyrsta sem Donald Trump sagði við Angelu Merkel kanslara Þýskalands, er hún sótti hann heim í Hvíta húsið í kjölfar kosningasigurs hans. Þetta kemur fram í grein Wall Street Journal í gær. Já í kjölfar kosningasigurs sem andstæðingar forsetans eru að tapa vitinu vegna. Þrumulosts sigurs sem nú er að senda þá á bak við lás og slá, því það sem þeir aðhöfðust í krafti sigurvissu sinnar var svo gróft að sigur Trumps virkaði eins og sprengjulost á því augnabliki sem hann varð óhagganleg staðreynd. Þá gerðu andstæðingarnir sér ljóst að þeir myndu líklega fara í steininn og sumir þeirra örugglega
Angela Merkel hefur vissulega ekki búið í Þýskalandi allt sitt líf. En lífið sem hún komandi úr austri fékk þegar múrinn féll, var fjármagnað og gert mögulegt af Bandaríkjunum. Þau voru þakið á Þýskalandi og gluggar þess áratugum saman. Og Bandaríkin voru garður Evrópu, þangað sem hún gat flutt sólstóla sína út í. Sólin var líka fjármögnuð af Bandaríkjunum og hún skein á Evrópu, því Bandaríkin vernduðu hana með því að vera sólfaktor hennar númer allt. Bandaríkin vernduðu iðnaðarfyrirtæki Þýskalands gegn erlendri samkeppni til að forða landinu frá því að verða gjaldþrota. Þetta bitnaði hart á Bretlandi, sem neyddist því síðar til að skríða inn í ESB. En nú er sólin búin, þak Evrópu er að fjúka af og glerið í gluggunum sprungið
Mamma hvað á ég að gera, segir Þýskaland. Gerðu sjálfur segir mamma. Það eina sem þú þarft að gera er að vera eðlilegt land. Ekki neitt annað. Heldurðu að þú getir það? Nei mamma, það get ég ekki því ég er auli. Þú gerðir mig að aula, segir Þýskaland. Þess þurfti nú ekki segja Bandaríkin, því allar götur frá fæðingu 1871, hefur þú hagað þér eins og sannur auli. Geturðu ekki reynt að vera bara eðlilegt land meðal annarra landa. Þú ert ekki neitt sérstakt. Það eina sem við förum fram á er að þú hagir þér eðlilega meðal annarra þjóða. Nei mamma, það get ég ekki. Ég kýs því að fara í nýtt kast. Það geri ég frekar en að vera eðlilegt land. Þetta er það eina sem við kunnum. Að fara í kast
Sem sagt. Af því að Þýskaland gat ekki hegðað sér sem venjulegt land -það eina sem um var beiðið- þá er mismunurinn á þeim tveimur prósentum sem Þýskaland skrifaði undir í NATO, og þess sem það hefur innt af hendi hin síðustu 14 ár, já, orðinn billjón dalir
Vertu eðlilegt land Þýskaland. Ekki fara í það eina sem þú kannt: nýtt kast. En það get ég ekki segir Þýskaland, því ég er auli og ófær um að hvíla í sjálfu mér, því stofnun mín, fæðingin 1871, var misheppnuð og ég fæddist því sem gallakast
Hvað með að byrja til dæmis á því að mála þakið sem við gáfum þér og þrífa gluggana sem við settum í húsið þitt. Geturðu það ekki? Nei ég get það ekki. Enginn í þessu landi kann að halda uppi þaki og því síður gluggunum föstum við húsið. Við erum að hugsa um að leita annað, til dæmis austur
Jæja þá tökum við burt þá vernd sem við höfum skaffað ykkur gegn slæmum öflum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Þau munu þá flæða upp Evrópu og setjast á þakið þitt og anda á glugga þína. Viltu það? Við Bandaríkin erum búin að heyja þá baráttu einsömul í samfellt 16 ár. Ég minnist ekki enn á hættuna fyrir austan ykkur. En það erum við sem höldum henni í skák. Látið okkur vita hvort verður: nýtt kast, eða bara smá vottur af manndómi. Hvað segirðu, eruð þið orðin geld? Ja hérna
Fyrri færsla
Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 8. júlí 2018
Kína reynir að þjappa fólkinu að baki einræðisherrans - og Merkel lýgur áfram
Hinn sænskættaði Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um útboraða háskóla Vesturlanda - Kína-Norður-Kóreu bandalagið - Mið-Austurlönd og útópíuveldi vinstrisins
****
Kína
Í nýju plaggi sem þeir er fylgjast með ritskoðunarmálum í Kína komust yfir, kemur í ljós að einræðisherravaldið í Kína er í vaxandi örvæntingu að reyna að þjappa íbúum landsins að baki einræðisherra Xi Jinping. Kínverskum fjölmiðlum er nú bannað að birta neitt sem útskýrir afstöðu Bandaríkjanna varðandi það viðskiptastríð sem er í uppsiglingu. Bannað er að birta bandarísk gögn og tölur. Bannað er að minnast á sjónarmið Bandaríkjamanna. Bannað er að minnast lengur á "Framleitt í Kína 2025"- stefnu kínverskra stjórnvalda, sem byggja átti á stolinni tækni og tækni-tilþvingunum á bandarísk og evrópsk fyrirtæki. Vara einræðisherravöldin við afleiðingunum, brjóti fjölmiðlar þessar fyrirskipanir. Komandi viðskiptastríði er af einræðisherradæminu stillt upp sem aðför alls heimsins að Kína. Við erum ofsótt og allir aðrir eru vondir, við okkur. Kannski að þessi uppskrift sé sótt til rakettumannsins í Pyongyang, en þangað fer Xi-einræðisherrabatterí Kína í opinbera heimsókn í september. Heilastöppukássan í sjálfsfróunar-háskólum Vesturlanda, með Marxískt-þrungið Parísarloftslag í heilastað, verður hér léttilega auðveld bráð og endurnýtanlegur her nytsamra fábjána fyrir áróðursbatterí kínverska einræðisherraveldisins. Heilastöppukássan sú mun ekki bregðast einræðisherraveldinu
NATO
Angela Merkel hefur brugðist með lygum við bréfi Bandaríkjaforseta til þýsku ríkisstjórnarinnar, þar sem þýsk stjórnvöld eru hvött til að standa við sáttmálaskuldbindingar sínar í NATO. Sem svar við bréfinu lét Merkel senda bréf til Washington sem sagði að "í ljósi NATO-samkomulagsins, mun annað ákveðið skref þegar hafa verið tekið í átt að markmiðasvæði NATO". Þetta er lygi þar sem 2 prósent er ekki "markmiðasvæði" heldur tala, og fjárframlög Þýskalands eru fallandi og verða fallandi, en ekki hækkandi, eins og sósíaldemókratar hafa mótað stefnuna í sjálfri ríkisstjórn Angelu Merkels, og sem hún sjálf blessaði í fjárlögum í maí, þar sem hún laug þessu sama að bandaríska forsetanum. Fölsuð aðild Þýskalands að NATO er orðin að tilvistarvanda fyrir varnarbandalagið sjálft, Austur-Evrópu og þar með Þýskalands líka. Það sama gildir um NATO og ESB, þar sem Þýskaland lætur aðra um að borga en er sjálft svarhol fyrir framlög annarra
Fyrri færsla
Þýski bardaginn heldur áfram: Seehofer aðvarar Merkel og ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 6. júlí 2018
Þýski bardaginn heldur áfram: Seehofer aðvarar Merkel og ESB
Þýskaland, Bretland og NATO
Allt sem Horst Seehofer og Angela Merkel ákváðu í vikunni hefur nú verið útvatnað svo mikið í þýsku ríkisstjórninni að um burtflogna fiskiflugu er nú að ræða. AfD nuddar saman lófunum af eftirvæntingu. Þeirra tími nálgast, því tími hinna virðist liðinn
Og ekki nóg með það, þá hefur Horst Seehofer nú ritað bréf til framkvæmdastjórnar ESB þar sem hann segir að það sé frumskylda þeirra sem fara með völd, að vernda líf og limi borgaranna. Ef að Bretland fer úr ESB án samkomulags (hart Brexit) þá þýðir það að þjóðarleiðtogi Þýskalands, Angela Merkel, hefur brugðist borgurum landsins. Þannig brottför Bretlands ógnar öryggi þýskra borgara og grefur undan þjóðaröryggi Þýskalands. Hvorki meira né minna
Seehofer virðist vera eini maðurinn í Þýskalandi sem hugsar. Allir hinir halda að það gangi bara gott og blessað vel, þegar stærsti markaður fyrir þýska bíla vinkar þeim bless frá Bretlandi
Seehofer segist ekki spila níu manna morris, heldur skák. Merekl er því að verða mát. Stríðið í Þýskalandi heldur áfram og Donald J. Trump bíður svo Merkels á NATO fundi í Brussel eftir fimm daga. Í Bretlandi ræðir mesta herveldi Evrópu, og stærsti lifandi markaður þess, Brexit. Sá fundur hefst á Chequers sveitasetri breska forsætisráðherrans í dag
Kína
Kínversk yfirvöld í að minnsta kosti einni stórri borg landsins eru hætt að geta greitt opinberum starfsmönnum laun. Og berja þurfti niður mótmæli fyrrverandi hermanna kínverska hersins sem urðu er öryggisverðir réðust að þeim, fyrir það eitt að biðja um betri lífeyrir. Einræðisherra landsins, Xi, varð um daginn grípa til þess neyðarúrræðis að kalla alla þá sem koma nálægt utanríkismálum á teppið sitt, þar sem barið var inn í höfuð þeirra, einu sinni enn, að þeir yrðu að fylgja línu kommúnistaflokksins, þ.e. hans sjálfs. Aðeins sá sem á í vandræðum með að halda völdum, þarf að gera slíkt
Þegar Kína fellur saman eins og Sovétríkin og Japan, þá giska ég á að það komi undan komma-jöklinum sem verandi aðeins 1/3 af því sem það mælist erlendis og segist sjálft vera núna. Þá mun koma í ljós að stærð kínverska hagkerfisins er á pari við Japan, eða 1/6 af stærð bandaríska hagkerfisins. Sovét átti að vera 16 prósent af heimsframleiðslunni, en kom undan komma-jöklinum sem 6 prósent stærð árið 1989. Japan átti að vera 17 prósent stærð árið 1989, en kom sem 6 prósent stærð út úr hruni þess 1993. Það er aðeins sex prósent af heimshagkerfinu í dag. Styttist nú óðum í að væntingaverksmiðja kínverska kommúnistaflokksins komi þjótandi sem búmerang í höfuð flokksins, er almenningur gerir sér æ ljósara hve lítið bjó að baki því sem flokkurinn hefur haldið að honum, um staðreyndir lífsins í Kína
Ísland
Coca Cola á Íslandi virðist samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag vera í svo djúpum starfs- og fjárhagserfiðleikum að það getur ekki lengur notað hreint íslensk vatn til framleiðslu á svaladrykk. Að geta ekki lengur boðið dyggum viðskiptavinum upp á lágmarksvörugæði með sóma, er til marks um fallandi stöðu fyrirtækisins. Það er ekki eins og að Coca Cola á Íslandi sé í verri stöðu en þegar Aage Schiöth var að framleiða íslenska svaladrykki í apótekinu á Siglufirði. Ég hélt satt að segja að svona alþjóðlegur vesalingsdómur, eins og ríkir hjá Coca Cola á Íslandi í dag, væri ekki lengur til. En mér skjátlast greinilega
Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er kannski við það að hefja lokaatrennuna gegn flokknum með því að framkvæma endanlegt pólitískt harakiri á Sjálfstæðisflokknum. En svo gæti farið ef lappirnar bregðast honum aftur, með þeim afleiðingum að vélknúin farartæki verða skattlögð út úr íslenska draumnum, sem þá breytist í enn verri ESB-martröð en orðið er. Enn svartari en þá martröð sem EES-samningurinn er að kalla yfir Ísland. Uggandi Sjálfstæðimenn eru að komast í svo slæmt skap vegna þessa máls, að þeir mega varla mæla. Miðflokkurinn bíður eftir enn einni léttu bráðinni, fljótandi í innfluttu vatni
Danmörk
Danske Bank er nú ásakaður um að vera stærsta peningaþvottastöð veraldar, því hann er sagður hafa hvítþvegið sjö milljarða evra fyrir rússneska aðila, sem meðal annars tengjast forseta Rússlands, Vladímír Pútín. Danska fjármálaeftirlitið er ásakað um vítavert gáleysi og vanrækslu. Sagt er að meðal annars sé um blóðpeninga að ræða, fyrir morð á pólitískum andstæðingi Pútíns. Berlingske hefur meðal annarra grafið atriði um þetta mál upp: Frétt EU-Observer í gær
Fyrri færsla
Ungir hvítir bandarískir karlmenn flytja sig til Donalds Trump
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Miðvikudagur, 4. júlí 2018
Ungir hvítir bandarískir karlmenn flytja sig til Donalds Trump
Mynd. Repúblikaninn Ulysses S. Grant, hermaður (106 mín.) og 18. forseti Bandaríkjanna. Ég óska ykkur til hamingju með fullveldið og sjálfstæðið, þjóðhátíðardaginn 4. júlí, Bandaríkjamenn
****
Bandaríkin
Hinn 72 ára Donald J. Trump hefur nú því sem næst einhent gerbylt Repúblikanaflokknum þannig að hvítir karlmenn á aldrinum 18-34 ára, svo kallaðir "millennials" eða þeir sem komu út úr skólum í kringum árþúsundskiptin, hafa flutt sig frá Demókrataflokki og yfir til Repúblikanaflokks
Árið 2016 var nær helmingur (50%) þessa hóps Demókratar, en aðeins 36 prósent Repúblikanar. Tveimur árum síðar er þetta næstum öfugt: Hvítir karlmenn í þessum aldurshópi eru nú 46 prósent Repúblikanar og aðeins 37 prósent Demókratar. Donald J. Trump er að gerbylta Bandaríkjunum (sjá frétt). Svipuð var niðurstaða könnunar sem birtis WSJ í apríl, en fór ekki hátt
Þýskaland
Ljóst er nú að Angela Merkel mætti múr 160 þingmanna í flokksbandalagi CDU/CSU á mánudag, þar sem henni var stillt upp við vegg og sagt að samþykkti hún ekki tillögur Bæjaralands, þá myndu þeir þvinga fram afsögn hennar. Hún ræður því litlu í Þýskalandi lengur og ríkisstjórn hennar enn minna
Samkomulag Merkels og Seehofers er nú að springa út sem farsi í ESB. Austurríki sagði að ekkert samráð hafi verið haft við sig, en landamæri þess liggja upp að Bæjaralandi. Það hótar nú að loka Brennerskarðinu. Því fagnar Ítalía því þá kemur lýður Merkels ekki að þeim úr norðri. Angela Merkel er að springa út í allri álfunni, sem eitt allsherjar getuleysi og klúður
Virkar
Það er afskaplega ánægjulegt að Donald Trump sé eini stjórnmálamaðurinn sem það borgar sig að horfa á - og hlusta vel og vandlega á það sem hann segir. Fox var með viðtal við hann um helgina. Ég horfði á það á YouTube. Þegar fréttamaðurinn spurði hann hvort að tollar á innflutta bíla væru ekki bara auka-skattur á neytendur, þá sagði hann. "Það verða engir tollar. Þeir verða allir framleiddir hér í Bandaríkjunum". Í gær sagði forstjóri Porsche á þá leið að þetta væri ekkert vandamál (no brainer) fyrir þá. "Það tók okkur tvær sekúndur að ákveða að best er byggja verksmiðju í Bandaríkjunum".
Sem sagt tollar Trumps á bíla eru ekki upp til samningaviðræðna, heldur verða menn að flytja verksmiðjur sínar til Bandaríkjanna. Þá er um enga tolla að ræða. Einfalt mál. Messuhald Trumps yfir ESB-ríkjum í NATO hefst svo í næstu viku. Búist er við miklum átökum og jafnvel aftökum, því til dæmis Þýskaland lýgur þar um sjálft sig fyrirfram, og heldur enn að það komist upp með slíkt
Fyrri færsla
Hýrnar yfir AfD í Þýskalandi. Kína að lokast inni - og Merkel úti
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Þriðjudagur, 3. júlí 2018
Hýrnar yfir AfD í Þýskalandi. Kína að lokast inni - og Merkel úti
Viðtal: Utanríkisráðherra Ungverjalands kann Gagn og gaman þjóðanna og saga lands hans er löng og ströng, sérstaklega frá og með Trianon 1920. Hún er lengri en gatslitin smásaga breska ríkisútvarpsins, sem er ónýt í dag, eins og sést hér. De Gaulle er kominn aftur, í mörgum löndum
Þýskaland
Þarna sjáið þið. Angela Merkel er að missa tökin á landsstjórninni og félagar hennar í Bæjaralandi leika sér að henni. Þið hafið enga ástæðu til að kjósa hana og flokk hennar aftur. Enda gerðuð þið það ekki síðast, svo það var rétt með naumindum að flokkur hennar, sá stærsti í landinu, gat myndað ríkisstjórn. Þið kusuð hana ekki vegna þess að ykkur líkaði ekki pólitík hennar. Og pólitík hennar hefur ekki batnað, heldur versnað. Allt hefur versnað. Þó svo að hún fari frá, þá vitum við að þið mynduð ekki kjósa flokk hennar eftir allt það sem hann hefur kallað yfir landið ykkar, Þýskaland. Nú hendist flokkur hennar úr einni krísunni í aðra. Og þetta mun bara versna, skulum við segja ykkur. Það er því ánægjulegt að hvorki Bæjaraland né Merkel í Berlín fengu það sem þau báðu um í gær. Við mætum því til leiks og sláum meirihluta CSU út af laginu í Bæjaralandi í október. Á landsvísu mælumst við með 16,5 prósent fylgi núna. Fyrir níu mánuðum síðan fegnum við 12,6 prósent, þ.e. í kosningunum 24. september 2017. Merkel gat loksins myndað ríkisstjórn þann 14. mars 2018 og aðeins fjórum mánuðum síðar er stjórn hennar við það að springa. Og springa mun hún
Kína
Það styttist í að Donald Trump banni meðlimum í kínverska kommúnistaflokknum að stíga fæti á bandaríska grund. Og þó fyrr hefði verið. Milljón manns frá Kína hafa verið að kaupa sig inn í Norður-Ameríku með peningum sem enginn veit í reynd hvaðan koma. Og þessa dagana er hann Trump að neita kínversku símafélagi um markaðsinngöngu í Bandaríkin. Öll stórveldi mannkynsögunnar hafa verið byggð með því að verjast. Þýskaland varð til með tollum. ESB varð til með tollum. Það er í reynd tolla-kartel. Bretland varð til með tollum og Bandaríkin líka. Þeir sem skilja ekki þjóðarhagfærði skilja ekki Auðlegð þjóðanna. Og tolla mun hann setja á bifreiðar. Allir sem hafa markað í Bandaríkjunum munu flytja framleiðsluna þangað. Það tók bílaframleiðendur ekki nema tvær sekúndur að skilja það, ákveða og samþykkja. Heimurinn er að breytast hratt, en samt ekki. Hann færist í fyrra horf, sem virkaði
Mynd: Franska Maastricht herferð sósíalista 1992. Hún snérist um að hræða almenning með Bandaríkjunum og Japan. Evran snérist aldrei um annað. Aðeins 51 prósent Frakka sögðu já
ESB
ESB getur ekki séð um varnir sínar, því þær kosta svo mikið. ESB getur aldrei byggt upp her. Því vantar peninga, demos, ethos og telos. Það á ekki fyrir tvö þúsund kjarnorkusprengjum. Enda myndi enginn í ESB treysta neinum til að hafa þær þar. Þetta er búið spil fyrir ESB. Annað hvort borgar það Trump eða gefst upp. Reyndar er Evrópusambandið gjaldþrota nú þegar. Siðferðilega, efnahagslega og málefnalega. Það sást vel í gær og hefur sést alla daga síðan 2008 og fyrr
Vitið þið af hverju Þýskaland reynir svona mikið að halda ESB saman. Jú, vegna þess að án hins "innra markaðs ESB" er Þýskaland gjaldþrota. ESB er stuðpúðaverk Þýskalands. Þangað fer helmingur útflutnings þess. Án ESB er Þýskaland kaput, því hagkerfi þess sjálfs er svo hnigið. Allir eru orðnir gíslar Þýskalands í ESB. Stuðpúðar þess
Fyrri færsla
Þýskaland snýst gegn Angelu Merkel
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. júlí 2018
Þýskaland snýst gegn Angelu Merkel
Þessa dagana er pólitískt slagsmál í gangi í Þýskalandi um útlendingamálin. Og flokksbandalagsflokkarnir CDU og CSU sem heyja þá baráttu, vita að bara það eitt að vera í þessu bandalagi frá og með síðustu kosningum, er slæmt fyrir þá báða. Best er því að undirbúa sig með því að gefa ekki eftir, því annars farast báðir, saman. Best er að fá sparkið. Og ekki getur Merkel sparkað sjálfri sér, nema þá allri ríkisstjórninni í einu
Þýska pressan hefur snúist gegn Angelu Merkel, því útlendingamálin eru orðin mikilvægasta pólitíska mál í landinu, og Evrópusambandinu öllu. Pressan veit að Angela Merkel laug að þjóðinni þegar hún kom heim af næturfundum með kollegum sínum í ESB í síðustu viku. Hún sagði þjóðinni að hún væri komin heim með ESB-samkomulag um útlendingamál. Það reyndist ekki rétt. Um ekkert samkomulag var að ræða á þessum fundi. Ríkisstjórnir annarra ESB-landa hafa nú neyðst til að leiðrétta þýska kanslarann til að reyna að komast hjá því að láta hana draga sig niður á botn hins móralska hafs, sem hún liggur á. Tilgangur hennar var að bjarga sjálfri sér á kostnað annarra ríkja
Falli núverandi leiðtogi CSU, Horst Seehofer, sem er innanríkisráðherrann í ríkisstjórn Merkels, þá bíður fyrsti og næsti CSU-maður Bæjaralands, Markus Söder, og afstaða hans til útlendingamálanna er enn harðari en sú sem Seehofer reynir að koma til framkvæmda núna. Að tapa fyrir AfD í október í Bæjaralandi, er ekki ætlun Söders
Merkel þorir hvorki að vera, né fara, og hún reynir að færa SPD eitt lítið ostastykki á dag, svo hún geti haldið áfram að sarga af sér hausinn í litlu músagildrunni sem hún hefur byggt, því ekkert annað byggði hún, síðastliðin 13 ár
Minnihlutastjórn CDU með SPD kemur til greina. En hún mun tosa CDU til vinstri (eins og er að gerast með xD, sem með Bjarna Ben blaðrar nú um jöklabráðnun og þyngri umhverfishlekki á fætur hins vinnandi manns) og það þýðir endalok CDU. Merkel er enn nógu vitlaus til að reyna slíkt, eins og Bjarni Ben. Á Íslandi er hægri umferð Bjarni, annars tekur umferðin þig sjálfkrafa niður
Evrópubruninn hitnar með hverjum deginum sem líður. Hann verður ekki slökktur í bráð, því eldsneyti útlendingamálanna er óendanlegt. Fólkið kraumar af bræði
Fyrri færsla
Hvernig ætlar Þýskalands-keisarinn yfir ESB að bakka út úr þessu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 31
- Sl. sólarhring: 61
- Sl. viku: 447
- Frá upphafi: 1389067
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 254
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008