Leita í fréttum mbl.is

Sendið endilega þriðja herinn

Þykknar nú jafnvel dísillinn upp

****

FYRSTI HERINN

Nú hafa vesturveldin att 150-200 þúsund Úkraínumönnum í dauðann og 300-400 þúsund liggja særðir og mæta ekki aftur til mannfórnaaltaris klerkaveldis glóbalisma vesturveldanna: NATO-uber-alles

Rússneski herinn hefur gengið frá þeim upphaflega herafla af græjum og vopnum sem NATO, forsetar þess, forsætisráðherrar, kanslarar og félagar stöfluðu upp í Úkraínu frá og með valdaráni þeirra þar árið 2014 og fram til til ársins 2022. Allar þær græjur voru að velli lagðar á frekar stuttum tíma, af einmitt rússneska hernum

Samkvæmt fjölmiðlum vesturlanda er Rússneski herinn fyrir hádegi svo lélegur að hann ekkert getur, en eftir hádegi er hann hins vegar við það að hertaka alla Evrópu, þannig að tvíefla þarf NATO (uber-alles) og helst breiða það út yfir alla heimsbyggðina, því ógnarmáttur rússneska hersins er þá svo rosalegur. Sem sagt: útbreiddur geðklofi á háu stigi ríkir á ritstjórnum vesturlenskra fjölmiðla. Einn fyrir hádegi en annar eftir hádegi

En umfram allt og allan sólarhringinn hefur Úkraína verið að vinna stríð við Rússneska herinn síðustu tæpu 12 mánuðina. Það hafa verið skilaboðin úr geðklofi vestrænna fjölmiðla, allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. En samt tapar og tapar Úkraína og NATO þannig að nú þarf að bjarga og redda málum í þriðja sinn. Já í þriðja sinn!

ANNAR HERINN

En frá og með sumrinu 2022 hafa sömu krónísku Rússahatarar vesturlanda hins vegar sent græjur sem svara til nýs hers til Úkraínu. Um er að ræða næstum öll fáanleg, og rúmlega það, skotfæri iðnaðar-úthýstra NATO-landa, 410 skriðdreka frá Sovétríkjunum sálugu, 300 brynvarin ökutæki fyrir fótgöngulið, 1100 brynvarin ökutæki fyrir liðsflutninga, 300 fallbyssur fyrir stórskotalið og 95 eldflaugavagna, annað hvort af Sovétgerð, eða af Undravopnagerð vesturveldanna sem nú búa svo vel eða illa að eiga enn eftir 60-70 tonna skriðdreka sem eru svo þungir að þeir komast hvergi yfir almennar brýr nema á sérhönnuðum NATO-vígvelli, því til stóð jú í byrjun að NATO væri varnarbandalag sem héldi sig á heimavelli. En auðvitað breyttist NATO í árásarbandalag og kemst því ekki lengra en að næstu rússnesku staðreynd í dag. Rússar sáu auðvitað fyrir hvað næst kæmi úr geðklofinu því. Það byrjuðu þeir að sjá árið 2007, þegar Rússahaturskvoðan sprautaðist upp um veggina í München og augu Johns heitsins McCain sprungu úr tóftunum af bókstaflega líkamlegri fyrirlitningu og hatri á forseta Rússlands

ÞRIÐJI HERINN

Beðið er nú ákaft í musteri þýska hersetuliðsins í Ramstein í Rínarlandi Þýskalands. Beðið er til hinna sömu forseta, forsætisráðherra, kanslara og félaga um að græjur fyrir þriðja herinn skuli sendar yfir landamæri lífs og dauða, þar sem enginn er lengur til til að valda þeim, nema afar og ungmenni sem enn hafa ekki náð skeggaldri. Sendið endilega þriðja herinn - og síðan þann fjórða. Endilega

Sem sagt. Rússneski herinn hefur nú þegar stútað stærð sem svarar til alls Landhers Bandaríkjanna

NAGLARNIR

Það var jú ekki fyrir neitt að Napóleon keisari var uppi. Hann sá nefnilega næstsíðastur manna um að stefna allri Evrópu inn í Rússland í sömu erindum, eftir að hafa barið hana saman með sömu nöglum glóbalismans og notaðir eru til hins sama í Ramstein, á beljuvöllum Brussels og í Lundúnaþokunni í Washingtonmýri í dag

KISTAN

Það ömurlega er að vestrænir fjölmiðlar eru farnir að trúa þvættingi sínum um það sem þeir kalla "stríðið" í Úkraínu - en sem Rússar kalla enn sem komið er "hernaðaraðgerð"

Aldrei áður í sögu sambandsríkis Þýskalands hefur annar eins samhæfður fjölmiðlaáróður sést, sagði Erich Vad hershöfðingi um fréttaflutninginn af þessu máli í Þýskalandi [og á vesturlöndum] - og þar átti hann við að það var aðeins á tímum Adolfs Hitlers og Jósefs Göbbels að samskonar massífar lygar og áróður voru notuð síðast til að ná fram sömu tilætluðu áhrifum á saklaust fólk. Ekkert hefur verið að marka fréttir fjölmiðla af neinu sem viðkemur átökunum í Úkraínu síðustu tæpa 12 mánuði. Meira að segja punktar þeirra og kommur hafa verið þvæla og er meðvirkni þeirra núna síst minni en hún var með bankastóðinu í síðustu hamförum vesturlanda, en þá reyndist hún banvæn. Svipað gildir um meðvirkni fjölmiðlanna með forheimsku fræðimanna- og háskólaliði vesturlanda og smæðar-fyrirlestrarherferð þeirra um rússneska hagkerfið undanfarin mörg ár

Að þessu sinni er það ekki ríkisvaldið beint, heldur fjölmiðlarnir sjálfir sem standa að þessu, sagði Erich Vad hershöfðingi. Það er hugsanlega rétt hjá honum, segi ég. En þeir sem fóðra fjölmiðlana að þessu sinni eru ofsatrúarmenn djúpríkja vesturlanda sem ráða þar bæði lögum og lofum, og sem skjóta hvaða þjóðkjörna fulltrúa fólksins sem er úr sæti sínu og út í geim, þegar þeim sýnist. Já, þeir virka eins og "sjálfstæðir seðlabankar", segi ég líka

Það er ekki út af engu að þið fjölmiðlar eruð á leið í gröfina

Fyrri færsla

Valery Gerasimov stígur inn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þessi pistill er með því bezta eftir þig Gunnar. Línur eru skýrar og þvælufréttum vandlega svarað. En það sem ég og fleiri eru sífellt að átta sig betur á er að hrunið 2008 var aðeins æfing fyrir enn meira arðrán elítunnar, sem hlýtur á endanum að verða óvinsæl af almenningi. 

Hinn mikli snillingur Jóhannes Björn Lúðvíksson hafði um langt árabil varað við því á Facebooksíðu sinni að góðærið á Vesturlöndum stæði á brauðfótum og að kreppa stærri en nokkrusinni fyrr stæði fyrir dyrum. Egill Helgason fékk hann í viðtal í Silfur Egils 2007, og gengu spár hans eftir þá. Nú heitir þetta bara Silfrið og eru femíníska Silfrið, frænka mín Sigríður Hagalín stjórnar með Agli. Ekki fá þau lengur neina sem rugga bátnum í þáttinn til sín, sama lognmollan og ekkert sagt í raun, aðeins hrært í sömu frösunum og stjórnmálaleiðtogarnir setja á flot.

Mér finnst margir þeir beztu hér á blogginu séu farnir að minna á hrópanda í eyðimörk, ekki síður ég. Samt eru teiknin svo mörg á lofti um að breyttir tímar séu í vændum á Vesturlöndum. Bara ef ráðamenn hefðu hlustað á viðvörunarraddir, myndi það verða auðveldara fyrir fátæka sem ríka og alla.

Ég var að skrifa um nýjustu skýrslu Oxfam samtakanna. Ójöfnuður vex.

Ég hef nokkuð lengi verið þeirrar skoðunar að Rússar hefðu getað bjargað Vesturlöndum, ég á við stjórnmálalega enn frekar en efnahagslega.

Þetta stríð við Rússlands, og þetta Úkraínuklúður, sem á sér langan aðdraganda og vegna leppstjórnar Selenskís, það má segja að hafi slökkt þessa von Vesturlanda um að ganga í endurnýjun lífdaga.

Bara ef fleiri myndu taka sjálfstæða afstöðu og ekki lepja upp eftir RÚV. Mjög góður pistill eins og yfirleitt frá þér.

 

Ingólfur Sigurðsson, 22.1.2023 kl. 02:32

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur.

Því meiri sem niðurlæging NATO-landanna er í þessum átökum sem Rússar vinna með miklu öryggi, því meiri er hættan á að NATO-ríkin grípi í örvæntingu til kjarnorkuvopna, því þar, hjá þeim, finnst eina fordæmið um notkun þeirra.

Niðurlægð Bandaríki Norður-Ameríku eru miklu og stórhættulegra fyrirbæri en Sovétríkin voru nokkru sinni.

Rússar eru því eflaust að reyna að finna leiðir til að vinna þetta allt saman án þess að Bandaríkin og NATO taki eftir því að þeir hafi sigrað.

Svo vandmeðfarin er niðurlæging og vangeta vesturlanda í þessu stríðsmáli ásamt orkumálunum og fjölmiðlamálunum.

Það má ekki kvisast út að keisarinn sé allsnakinn - bæði fyrir og eftir hádegi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.1.2023 kl. 10:07

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Björn Bjarnason skrifar í dag að M1 Abrams skriðdrekar Bandaríkjahers noti flugvélaeldsneyti og komi því ekki til greina sem vopnapakki til Úkraínu.

Þetta er aðeins að hluta til rétt því Honeywell AGT vélin í M1 Abrams er alæta á eldsneyti því vélin er túrbína. Hún drekkur bæði dísil, bensín, flugvéla/þotueldsneyti og svartolíu. Honeywell-túrbínuvélin varð einmitt fyrir valinu á sínum tíma vegna þessara alætu-eiginleika hennar.

Eitthvað annað en þessi rök búa að baki.

Gunnar Rögnvaldsson, 22.1.2023 kl. 17:09

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Flestir mikilvægir öryggisinnviðir eru á hangandi horrim hjá vesturlöndum. Nú er staðan í 155 mm skotfæramálum fyrir stórskotaliðsvopn innan NATO-ríkjanna sú að Bandaríkin hafa sótt þær birgðir af slíkum skotfærum sem þau geymdu til handa þjóðaröryggis Ísraelsríkis í Ísrael (neyðarbirgðir sem hægt væri að grípa til kæmi til fyrirvaralausrar tilvistarógnar fyrir Ísraelsríki) og sent þær til Úkraínu.

Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels sagði að við þessu væri lítið hægt að segja, þar sem skotfærin væru eign bandaríska ríkisins.

Skotfærin munu því enda í höndum Úkraínuhers sem staðsetur fallbyssur sínar oft eins og Palestínumenn, þ.e. í miðju þéttbýli og tekur þar með óbreytta borgara sína og eignir þeirra sem gísla og skildi.

Gunnar Rögnvaldsson, 22.1.2023 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband