Leita í fréttum mbl.is

Orkupakkinn mun eyðileggja stóriðju á Íslandi

Nokkuð líklegt má teljast að Evrópusambandið muni með samanlögðum og sístækkandi orkupökkum sínum geta með tíð og tíma náð að banna íslenskum stjórnvöldum að gera samninga við stóriðjufyrirtæki hér á Íslandi. Og með sömu tíð og tíma náð að eyðileggja rekstrargrundvöllinn fyrir stóriðju hér á landi. Íslenskum stjórnvöldum yrði smám saman óheimilt að nýta íslenskra raforku í þágu Íslendinga, eins og okkur sýnist, fram yfir önnur notkunarsvið erlendra ESB-hagsmuna, sem hvenær sem er geta tekið sér bólfestu hér á landi, og nánast gert hvað sem er í skjóli EES, sem bara stækkar og stækkar í trássi við það sem þjóðinni var sagt um samninginn í upphafi. Það sama mun verða látið gilda um raforku og hefði gilt um fiskveiðar í íslenskri lögsögu, ef að við hefðum gengið í Evrópusambandið

Það má kallast jaðra við landráðalegan aulaskap að forystumenn Sjálfstæðisflokksins skuli ekki allir sem einn sjá hætturnar sem fylgja því að leyfa umboðslausu yfirríkislegu embættismannaveldi á borð við Evrópusambandið komast með krumlurnar í íslenska raforkuframleiðslu, dreifingu hennar, verðlagningu og notkun. Þar setjast að ömurleg öfl eins og mýpakkar á mykjuskán út um alla Evrópu

Samhliða þessu áhlaupi á raforkumálin reyna íslenskir stjórnmála- og smásölumenn allt hvað þeir geta að fórna íslenskum landbúnaði á altari ríkisstyrkts ESB-landbúnaðar, og gengur þriðji-flokkur Framsóknarflokksins þar hve harðast fram. Ofan í þetta tvennt bætist svo sú staðreynd, að við Íslendingar ráðum varla lengur því hver býr í landinu okkar eða ekki; og svo því hverjum erlendum er verið að selja landið undan þjóðinni í skömmtum, eða ekki

Þegar ég hugsa um núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins þá sé ég fyrir mér sennilega lélegasta formann flokksins frá upphafi, og sem fyrir aðeins nokkrum árum ætlaði sér að setja íslensku þjóðina í skuldafangelsi vegna skulda einkafyrirtækja. Við hverju má þá ekki búast þegar að íslensku olíunni kemur; raforkunni? Hvar er dómgreind hans? Formenn flokksins hafa verið þessir:

  1. Jón Þorláksson
  2. Ólafur Thors
  3. Bjarni Benediktsson
  4. Jóhann Hafstein
  5. Geir Hallgrímsson
  6. Þorsteinn Pálsson
  7. Davíð Oddsson
  8. Geir H. Haarde
  9. Bjarni Benediktsson

Traust mitt á forystunni í flokki mínum er því miður ekki til staðar í þessum efnum. Það hefur þurft að mata hana eins og hvítvoðung með teskeið á fullveldis-staðreyndum lífsins í næstum því 10 ár, bara til þess eins að flokkurinn rétt næði að lifa forystuna af. Og aðeins eru nokkrir dagar liðnir frá síðasta mannfalli í flokknum. Þá vegna Evrópudómstóla sem fylgja uppskriftinni að einræði æ nánar. Evrópumálin eru að eyðileggja flokkinn, eins og þau mál hafa gert og gera út um alla Evrópu. Er ekki kominn tími til að ranka úr EES-rotinu, sem breyttist í bankarotið vegna eins EES-samnings. Á kannski að eyðileggja enn meira?

Þjóðaröryggisstefna getur aldrei byggst á því að vona það besta. Slík stefna er og verður alltaf þjóðar-óöryggisstefna

Fyrri færsla

Líberalismi hefur steikt heilabú margra Sjálfstæðismanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þar fór síðasta haldreipið,trúfestan sem við héldum að lifði af viðskiptin við "liberisman" sem ég hef lært af þér að skilja hvað er. Öll árin sem formaður Sjst.flokks hefur verið ráðherra í ríkisstjórn hefur hann dregið mig ofl. á asnaeyrunum og ég spyr hvað ætlum við lengi að láta þá komast upp með það.- - Vonandi eru menn að hita vel upp í sal 105 í Háskólanum núna í eftirmidag....  

Helga Kristjánsdóttir, 21.3.2019 kl. 16:41

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Líberalismi er þjóðar-óöryggisstefna, Helga, eins og menn komust að í bankahruninu hér heima og erlendis. Óöryggi, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, og ár eftir ár. Óöryggi, óöryggi og meira óöryggi.

Þegar að öryggismálum borgaranna og þjóða kemur þá er líberalismi stærsta framköllunarvél áfalla. Og þegar að ESB-málum kemur þá eru jafnvel þjóðir Austur-Evrópu, sem slæmu voru vanar, farnar að segja að þær hafi ekki losnað undan kommajöklinum bara til þess eins að taka þátt í nýju sovétríki í smíðum. Þeim finnst sambandið vera nýtt sovét í smíðum.

Allt sem tengist Evrópusambandinu (og EES líka), hefur farið langt langt fram úr því sem sambandið hafði heimild til að verða. Og nú er svo komið að senda þarf fjárlög landanna til samþykkis í Brussel, jafnvel áður en þau eru lögð fyrir þjóðir landanna.

Og því tvennu sem sagt var að væru sjálfar forsendurnar fyrir tilvist ESB, hefur sambandið algjörlega brugðist: Þ.e. 1) öryggi og 2) hagsæld. Hvoru tveggja er til fjandans farið.

Í sjálfri háborg líberalista, Frakklandi, er nú hótað að beita hernum á mótmælendur um næstu helgi, á meðan Katalóníumenn rotna í dýflissum sambandsins.

Þeir sem halda að komandi ESB-her yrði eitthvað annað en einmitt þetta, hljóta að vera syndandi í sýrum eða veruleikafirrtir trúðar.

Þeir trúðar halda svo að þeir sleppi þegar að diktötum  í raforkumálum kemur.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 21.3.2019 kl. 18:42

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Davíð var leiðtogi sem tendraði fólk upp. Sá hæfileik i er ekki á hverju strái.

Halldór Jónsson, 22.3.2019 kl. 08:09

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Vel til orða tekið Gunnar. Það er dálítið aumt að þessir þingmenn hvað þá drengurinn í fermingajakkanum sínum geta verið svo vitskertir að samþykkja algjöra yfirtöku og stjórnun á orku landsins. Það ætti að byrja á undirskriftasöfnun strax en þarna eru mörg fyrirtæki í veði því öll orka kemur til með að vera undir sama hattinum. Svo má ekki gleyma því að við erum þegar búnir að selja orkuver og jafnvel vatnsföll/ár.  

Valdimar Samúelsson, 22.3.2019 kl. 10:33

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Halldór.

Já, mikið rétt hjá þér. Davíð er leiðtogi.

Hvað höfum við í dag?

1. Bjarna Ben; dómgreindarlausan. Getur ekki gengið í gegnum hurð án þess að missa alla sannfæringu fyrir því sem flokkurinn gengur út á og er fæddur til að ganga út á. Sagði því já við Icesave. Tók 8 ár í að meðtaka hvað fullveldi í peningamálum er. Ræður iðnbyltingarráðherra til sín sem veit ekkert. Stjórnast af spákonum með metoo-kristalkúlur. Facebókari og efni í góðan fjármálaráðherra, en ekkert umfram það, eins og Geir. Eyþór verður að taka við flokknum, Bjarni er búinn með tímann og næstum því allan flokkinn líka. Eyþór er leiðtogi, held ég. En ef Gulli tekur við þá batnar ekkert.

2. Landráða Vinstri græna, sem sviku allt og alla og sóttu um. Orðinn grænmygluklúbbur ríkisbubba og esbsukks. Orðnir leiðir á próletarí-ati. Búnir að finna nýtt próletraí-at; grænmyglusveppaskóginn og loftgaldra. Heimsendatrúarsöfnuður. Batikk-hobby-snobb-klúbbur.

3. Framsókn: gangandi beinagrind í gufustrók.

4. Samfylkingin: vinstri-skríll.

6. Píratar: geðklofinn vinstri skríll.

7. Viðreisn: geðklofinn esb-skríll

8. ? Miðflokkur

Það verður ekki skemmtilegt þegar ESB-stoppar raforkusamninga ríkisstjórnarinnar við stóriðjuna, með dómstólaveldi sitt í rassvasanum, næst þegar endurnýja á þá, í ríki orkupakkanna. Þar opnast gröf Sjálfstæðisflokksins og Íslands upp á gátt.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 10:34

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Valdimar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 10:35

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þeir sem tala fyrir þessum andskotans orkupakka eru með höfuð sitt fast í sjálfstýringar EES-poka um háls sér. Þeir gleyma algerlega markmiðinu með pökkunum, sem á að reyna að bjarga því sem hægt er að bjarga á meginlandinu, hvað sem það kostar. 

Pakkinn snýst um: 

1. "Common interest" - þar sem sjálft ESB-veldið skilgreinir á hverjum tíma sem verandi sameiginlega hagsmuni ESB og sem ræður á EES svæðinu, sé undir þetta pakkafargan skrifað. Þetta er eins og með sameiginlegu landhelgina. Ekkert mun stöðva ESB-veldið sé því réttur bara einn litli fingur í þessu máli, því orkumálin í ESB eru eins og allt annað: handónýtt mál, því sambandið eyðileggur allt sem það kemur nálægt og er líf borgaranna þar talið með, og farið er með það eins og að um geislavirkan úrgang sé að ræða. 

2. Cross-border atriðið, eða, þvers á landamæri. Þeir sem halda að þeir sleppi við eitthvað bara vegna þess að Ísland sé eyja úti í hafi, já þeir eru algerlega úti að aka og  hættulegur einfeldningar. Afar hættulegir fullveldi Íslands. Varið ykkur á þannig mönnum.

Þetta VERÐUR að stoppa. EKKERT mark er takandi á neinum sér- og lögfræðingum í þessu máli. ÞJÓÐIN verður að stöðva þetta.

Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 11:42

8 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

 Ekki ætla ég mér að taka þátt í ofangreindum hræring, nóg samt.

Hitt angra mig þegar núna á að fara hylja f.v formann Sjálfsstæðisflokksins og Forsætisráðherra sem "okkar besta mann". 

Enginn Forsætisráðherra í sögu okkar skers hefur fært eins mikið frá þeim mörgu til hinna fáu. 

Skattlagning á þá sem verst hafa það hefur aldrei vaxið meir en í valdatíma þess sem hér á núna að húrra upp (Herðubreið.2014).

Sami aðili sá til þess að hann og örfáir tilviðbótar fengu meiri eftirlaun en aðrir, ca tvöföldun sem síðar var breytt en tjónið er og verður til staðar fyrir þessa sömu enda ekki hægt að breyta lögum afturvirkt.

Þessi sami "ágæti" f.v forsætisráðherra setti svo hóp af hljóðlausum mótmælendum í stofufangelsi þegar einn Forseti kom hér í heimsókn.

Þið megið skemmta ykkur yfir eftirábreyttum söguskýringum en Davíð Oddson kann að hafa haft aga á sínum flokksfélögum [lesist sem að ekki mátti mótmæla aðal] en hann gerði lítið fyrir þá fleiri, meira fyrir þá færri. 

    • Heimild: http://herdubreid.is/launahaekkanir-milljonkallanna/

    Sigfús Ómar Höskuldsson, 22.3.2019 kl. 11:58

    9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Gott að þú ætlar ekki að taka þátt, Sigfús.

    Takk fyrir innlitið

    Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 12:04

    10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Held ég mig því við orkupakkamálið

    3. "Ending energy isolation" er annað markmið þessa máls.

    Það verður viðhaft til þess að tryggja orkuöryggi mikilvægustu landanna á kostnað litlu landanna og er kallað 4."Enhancing the Union security of supply"

    Svona eins og hinn innri markaður var stofnaður sem geopólitískt stuðpúðasvæði í kringum Þýskaland með blessun Frakklands. Og eins og evran var stofnuð til að handjárna löndin á stuðpúðasvæðinu ósjálfbjarga við Þýskaland. Þau eru varnarlaust núna og á skallanum.

    Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 12:06

    11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Þeir sem velta því fyrir sér núna, hvað Evrópusamband um kol og stál hefur með orku- og umhverfismál að gera í dag, ættu að klóra sér aðeins í hnakkanum yfir því, og spyrja gáfulegra spurninga.

    Staðreyndin er sú að Evrópusambandið sest á hvern þann nýja málaflokk sem því sýnist, vegna þess að það er stjórnlaus ófreskja. Algerlega stjórnlaus ófreskja sem ekkert þing í neinu landi megnar að stöðva.

    Við verðum að segja nei og neita sambandinu um að ræna framtíðinni frá Íslandi sem fullvalda og sjálfstæðu ríki. Það er engin engin ástæða til að segja já. Slíkt er fullkominn aula- og roluskapur og ekkert annað!

    Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 12:17

    12 Smámynd: Jón Þórhallsson

    Er þá ekki rétt að rifja upp hin fleygu orð: 

    "Að hver þjóð verðskuldi það sem  hún kýs yfir sig!":

    Jón Þórhallsson, 22.3.2019 kl. 16:36

    13 Smámynd: Valdimar Samúelsson

    Jón ef ég má Gunnar. Það verðskuldar engin lýðræðisþjóð að alþingi þeirra og stjórn breytist í einræðisstjórn.

    Gunnar ég fór að hugsa um allt rafmagn sem Rússar hafa en getir verið að ESB sé í dauðateygjunum og því kreisti út úr smáþjóðunum allt sem þeir geta til þess að vera ekki meira háðir Rússunum sem þeir eru nú þegar ornir. 

    Valdimar Samúelsson, 22.3.2019 kl. 17:23

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Gunnar Rögnvaldsson
    Gunnar Rögnvaldsson

    Búseta: Ísland.
    Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
    tilveraniesb hjá mac.com

    Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

    Bloggvinir

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband