Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Málefnalegur fyrirliggjandi: Grein Kolbeins Óttarssonar Proppé

Vinstrivaktin gegn ESB er með ágætis grein um ákveðið vandamál sem sófamenn ESB-mála eiga erfitt með að skilja. Blogg-grein Vinstrivaktarinnar gegn ESB er allra góðra gjalda verð. En hún nær því miður ekki alla leið inn til kjarna málsins.
 

*** Tilvitnun ***

 

"99 prósent af því sem ritað er um Evrópusambandið eru á pari við umræðu um skeggflösu hvað skemmtanagildi varðar. Heittrúað fólk í trúboði er einfaldlega leiðinlegt.

 

Þá er bara að kúra sig með konunni í sófanum, borða popp og horfa á heilalaust sjónvarpsefni. Verst að ákvörðunin um ESB hefur víst áhrif á framtíð þessa lands."

 

Svo segir: "Við á Vinstrivaktinni erum auðvitað að reyna að koma á framfæri haldgóðum upplýsingum og málefnalegri umræðu"

 

*** Tilvitnun lýkur *** 

Hér þurfa menn að staldra við og taka sig á. Þeir þurfa að spyrja sig spurninga sem krefjast þó nokkurrar áreynslu á heilafrumur sem orðnar eru ónæmar. Spurningalistinn getur litið svona út:

Hvenær hefur málefnaleg umræða farið fram um pólitík Samfylkingarinnar? Vinstri grænna? Sjálfstæðisflokksins? Framsóknarflokksins? sem og annarra stjórnmálaflokka í kosningabaráttu? Svarið er auðvitað; aldrei. Ef ég ætla mér að eiga málefnalega umræðu við þig um pólitík Sjálfstæðisflokksins þá þýðir það lítið, nema að þú gefir þér fyrst þá einföldu forsendu fyrir hinni svo kölluðu málefnalegu umræðu, að hún fjalli um pólitík. Þá skilur þú samstundis hvað um er að ræða; PÓLITÍSKA UMRÆÐU, með öllu sem henni fylgir, stórt sem smátt, ljótt sem fallegt, ýkt sem fegrað, ósatt og ólogið.

Sannleikurinn um það fyrirbæri er Evrópusambandið nefnist er nákvæmlega eins og sannleikurinn um pólitík Samfylkingarinnar og annarra stjórnmálaflokka. NEMA, að því leyti að hér er um STÓRPÓLITÍSKT mál að ræða. Og því gera sófamenn sér ekki grein fyrir. Þeir halda að Evrópusambandið sé eitthvað annað en pólitík. Þeir eru að bíða eftir sannleikanum.
 
Góði maður: Ég get stytt þér biðina með því að upplýsa þig á málefnalegan hátt um að það er enginn munur á Evrópusambandinu og Samfylkingunni. Evrópusambandið er eins konar flokkur sem vinnur leynt og ljóst að stofnun Bandaríkja Evrópu. Samfylkingin er flokkur sem hefur það á stefnuskrá sinni að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það þarf helst að gerast sem fyrst, því kjósendur meiga alls ekki fatta að þeir séu að ganga í annað ríki, til lengri tíma litið. 

Í síðasta enda þá gengur þessir spurning út á það hvort þú sem kjósandi viljir leggja lýðveldi okkar á Íslandi niður, eða ekki. Vilt þú leggja Ísland niður? Viltu taka áhættuna á því að þetta stefnumark ESB rætist eða ekki? Það er þetta sem hin málefnalega umræða um ESB á að fjalla um - og ekki neitt annað. 

Þú sérð hér kæri vinur að það er þetta sem er vandamálið. ESB er kynnt til sögunnar sem fyrirbæri sem hafið er yfir pólitíska umræðu. ESB er kynnt sem fyrirbæri sem ekki eigi að ræða um nema á sama hátt og rætt var um tilvistarleg málefni í Evrópu fyrir Upplýsinguna. 

En þú skalt ekki örvænta góði maður, því þú ert ekki einn. Það eru aðeins örfáir stjórnmálamenn sem kunna að bregðast rétt við í þessari glímu við hið óþekkta. Vandamál þessarar svo kölluðu málefnalegu umræðu um Evrópusambandið er best lýst hér í Cosmos-þætti Carls heitins Sagan sem sýnir hvað gerist þegar óþekktur hlutur kemur inn í umræðu flatlendinga. Þeir vita ekki hvaðan á þá stendur veðrið. Þetta er tirx Evrópusambandsmanna; að láta menn halda að þetta eitraða epli fyrir Ísland sé eitthvað annað en það er; stórpólitík!
 
Carl Sagan lýsir því hvað gersit þegar ESB-umræðan kemur inn í Flatland
 

Ég bjó sjálfur í Evrópusambandinu frá 1985 til 2010, eða í 25 ár. Ári eftir komu mína til EF sagði forsætisráðherra landsins að Evrópusambandið yrði aldrei til. Myndi aldrei verða stofnað. Slíkt væri með öllu óhugsandi. Dönum væri því alveg óhætt að segja í þjóðaratkvæðagreiðslunni um EF-pakkann, sem var dulbúinn undirbúningur fyrir stofnun Evrópusambandsins. Þessi forsætisráðherra hélt að hann vissi eitthvað. Hann hélt að land sitt hefði eitthvað að segja í hinu stóra samhengi hvað varðar stofnun Bandaríkja Evrópu. Hann vissi þó ekki neitt. En hann vissi þó meira en Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson vita; þrjú sem vita minna en ekki neitt um ESB. Þau eru flatbrauðin sem ESB nærist á; Evrópusambandið er steindautt
 
Að ganga í ESB er allt örðuvísi en að taka stökk. Best er að líkja því við að panta sér 10 ára tíma hjá tannlækni sem dregur úr manni flestar tennurnar á þessum 10 árum. Hægt en bítandi eru tennurnar dregnar úr þér. Og þar sem þú heitir ekki Þýskaland eða Frakkland þá færðu  enga deyfingu þar sem svíður mest. En tannlaus verður þú smá saman. Og það er ekki hægt að setja gömlu tennurnar í aftur, ef þú seinna sérð eftir þeim.

En þá munu málefnalegir menn kom til þín og segja aftur og aftur - "já en af hverju ekki láta fara fram úttekt á málinu svo það komi fram hverjir séu "kostir og gallar". Af hverju ekki?
 
En þá segi ég aftur: Þið getið ekki vitað hverjir eru kostir og gallar fyrr en þið eruð búin að sitja í tannlækningastólnum í 10 ár. Það er málið. Þegar þið eruð orðin tannlaus magnast öll vandamál þjóðarinnar vegna þess að litlar sjálfstæðar þjóðir þola ekki að missa tennurnar. ESB mun aldrei geta skaffað ykkur gömlu tennurnar aftur eða komið í stað þeirra gömlu sem bitu svo vel. Það verður alltaf hálft bit. Þú munt bara biðja Brussel um mjúka fæðu.
 
Fyrri færsla;
 

Calls for the accession negotiations with Iceland to be halted immediately

*** BEGIN ***

13.1.2012 
PE478.707v01-00.
 
Draft motion for a resolution Cristian Dan Preda (PE473.963v01-00) to wind up the debate on statements by the Council and the Commission pursuant to Rule 110(2) of the Rules of Procedure on the 2011 progress report on Iceland

Amendment 62 Barry Madlener
Motion for a resolution Paragraph 31 a (new)
Motion for a resolution

ZIL 
Amendment
31a. Calls for the accession negotiations with Iceland to be halted immediately;
 
Ástæðan fyrir því að mælt er með því að allar ESB-viðræður við Ísland séu stöðvaðar samstundis, er auðvitað sú að Ísland á ekki í neinum samningaviðræðum við ESB og er ekki í neinum könnunar-kíkja-í-pakka-viðræðum við ESB. Heldur er ástæðan sú að aðlögun Íslands að lögum og reglum ESB-sovét gengur ekki eins og ESB skipar fyrir um. En eftir að Jóni Bjarnasyni hefur verið afréttað og varpað í gúlag VG, þá álítur ESB-sovétið í Brussel að Gjallarbrúar- og Bifrastarinnlimun Íslands inn í ESB sé mun greiðfærari en áður. Sjá viðhengt PDF-skjal með þessari færslu frá ESB-sovétþinginu eða smellið á URL beint á PDF-skjalið hjá sjálfu sovétþingi ESB.

Tyrkir fylgjast vel með og vita meira um Ísland en aðildarsinnar og Sovét-VG-Samfylkingarmenn á Íslandi vita. Þeir vita meira en það sem almenningi er sagt frá af svo kölluðum "stjórn-völdum" hér á landi, sem —áður en ESB komst til skjalanna— voru helstu krónísku aðdáendur Sovétríkjanna þar til þau hrundu ofan á örkumla fórnarlömb sín.
 
Evrópuvaktin hefur birt frétt um málið. Á svo kölluðu Evrópuþingi-ESB er engin stjórnarandstaða, ekki frekar en var í Sovétríkjunum. Enginn væri þar né í Brussel ef laun, skattfríðindi, forréttindi og bifreiðakostur væri ekki eins skuggalegur og hann er. Látum ekki þetta lið hafa íslenska lýðveldið af okkur.
 

Frá Evrópuþinginu; 7. desember 2009;

Mr Schulz defined his 184-strong group in the European Parliament as “anti-capitalist” and declared:  “We need courage to say we are an anti-capitalist movement.”; Við erum and-kapítalistar núna 
 
17. janúar 2012
 

*** FULL STOP ***


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Öldrunarhagkerfi Evrópusambandsins í praxís

Þróun fólksfækkunnar í Þýskalandi sem hófst árið 2004 nf
 
Þú ert mjög ungur maður. Þú stendur fyrir framan gamla niðurslitna íbúðarblokk með 2000 íbúum. Fjórar milljónir samskonar íbúða hafa verið rifnar niður á síðustu árum. Þær voru orðnar tómar. Þú ert að leita að einni konu á frjósemisaldri. Á hve margar dyrabjöllur þarftu að hringja til að finna þessa einu konu á frjósemisaldri í byggingunni? Vegna þess að þú ert í Þýskalandi þá þarftu að hringja á margar margar bjöllur áður en ein frjósöm kona svarar kalli þínu. Þetta er svona því Þýskaland er öldrunarhagkerfi og næst stærsta elliheimili veraldar. Aðeins Japan er meira gelt.

Þýskaland - Atvinnuleysi 1980 - 2011 - 30 ár í ESB nfÞú ert mjög ung kona. Þú býrð í þessari íbúðarblokk ásamt 1999 öðrum íbúum. Þú ert að bíða eftir því að einn ungur maður hringi einmitt dyrabjöllu þinni. En þegar þú loksins hittir unga manninn þinn þá er samt afar ólíklegt að þú viljir eignast með honum barn. Ástæðan er sú að þú býrð í öldrunarhagkerfi sem á litla framtíð fyrir sér. Nútíminn kom aldrei til þín því þú fæddist of seint og í geldu þjóðfélagi. Þú veigrar þér við barnseignir því þú ert einmitt úr fjölskyldu sem átti næstum engin börn og þú veist hvað bíður þín. Þú veist að í samfélagi þínu hefur massíft fjöldaatvinnuleysi verið ríkjandi í meira en 30 síðastliðin ár. Það er því ólíklegt ungi maðurinn sem hringir bjöllu þinni geti fengið launaða atvinnu fyrir fertugt. Að minnsta kosti ekki það vel launaða að hún geti réttlætt þann munað að stofna með honum fjölskyldu og eignast börn. Laun þín duga ekki og jafnvel þegar laun hans bætast við þín þá duga þau ekki heldur. Fólkið í landi þínu hefur aðeins fengið 5 prósent launahækkun á síðastliðnum 15 árum, samtals. Milljónir fjölskyldna þar sem báðir eru útivinnandi þurfa samt félagsmálahjálp því að engin lágmarkslaun eru í landi þínu. Þetta er Þýskaland í hnotskurn. Það er eitt af 25 deyjandi öldrunarhagkerfum Evrópusambandsins. Það er í eilífri innvortis gengisfellingu gagnvart öllum öðrum evruríkjum. Lækka laun, lækka endalaust kostnað, því eftirspurn eftir vörum þess getur aðeins komið til landsins frá ungum kaupsterkum neytendum úr öðrum þjóðfélögum. Innlensk eftirspurn er því miður dáin.

Þingkosningar í landi þínu eru orðnar þannig að miklu meira en helmingur kjósenda eru orðnir sextugir og eldri. Þarfir þínar eru hvorki hjólastóll né hjúkrunarpláss. Þig vantar vinnu, mannsæmandi laun, barnaheimili, bjarta framtíð og umbun fyrir að hafa fætt nýjan skattgreiðanda inn í þjóðfélagið. Að fara á kjörstað og kjósa í Þýskalandi er eins og fyrir 12 ára gamlan dreng að fara í sjómann við sextugan. Vægi ungs fólks í baráttunni er orðið þannig.

Hagvöxtur í Þýskalandi í 60 ár
Þér er sagt að þú búir í þeirri eimreið sem knýja á Evrópusambandið. En er það rétt? Og hvert á að knýja ESB? Leiðin inn í samfélagslegt helvíti er því miður einstefna eimreiðar þinnar. Ástandið í næsta nágrenni þínu er jafnvel enn verra. Þarna í Póllandi og Austurríki við hliðina á þér. Öll Austur-Evrópa er svona líka og enn fátækari. Fyrir sunnan Alpafjöll er ástandið síst betra og jafnvel að sumu leyti ennþá verra. Ef þú vilt eignast framtíð þá verður þú einfaldlega að flýja heimsálfuna. Enda er það einmitt það sem fólk gerir, ef það getur. Ef þú ætlar að verða um kyrrt, þá þarftu að byrja að spara saman fyrir ellinni um leið og þú ert orðin 12 ára. Þú ert fædd á meginlandi tapara. Því miður.

Þú þekkir söguna mjög vel og veist að fjárfestar hafa ekki áhuga á deyjandi eignum. Þú munt ekki verða sá kaupandi af ríkisskuldabréfum Þýskalands sem landið þarf á að halda. Tíminn er naumur því útreikningar lánshæfnismatsfyrirtækja sýna að ríkissjóður Þýskalands verður einmitt orðinn gjaldþrota árið 2060. Kominn í ríkisgjaldþrot vegna ellilífeyrisskuldbindinga og uppþornaðra kistulagðra skattatekna. En það er einmitt þá sem þýska hagstofan spáir því að þjóðinni muni hafa fækkað um 20 milljón manns. Mannfjöldi svarandi til tæpra Norðurlanda horfinn. Þú munt kjósa með fótunum, flýja ef þú getur og neita að taka þátt í þessum hildarleik glataðrar framtíðar í ESB. Hildarleikurinn í ESB er að verða líkamlegt vandamál.
 
Vandamál af þessu tagi lagast ekki næstu 500 árin. Reynsla Evrópu af Svarta Dauða í lok miðalda sannar það. Mannfólkið vex hægt. Og það vex bara alls ekki við rangar aðstæður. Það forðar sér ef það getur.

Merkel loksins komin heim?

The Rise of State Capitalism - Nýr Lenín - The Economist-Jan-2012
Afstöðumynd; The Economist
 
Suðurþýskablaðið veltir því yfir á þakklátar pappírsarkir blaðsins að ný heimsmynd sé að afmyndast í Evrópusambandi Frakklands við Þýskaland, stundum nefnt ESBEFSFEMSERMESM'pfz ja!
 
Jú, sagan er sú, segir blaðið, að enginn forseti verði hvorki í kjöri né þá heldur kjörinn í Bandaríkjum Norður-Ameríku, nema að hver einn og einasti kandídat til embættisins lofi kjósendum þar hátíðlega að Bandaríki Norður-Ameríku bjargi ekki ESBEFSFEMSERMESM Evrópusambandsins frá gjaldþroti. En það hafa Bandaríkin tvisvar gert á síðustu fjórum árum. Read my lips; no more EU-bailout's

Þetta þýðir það að Austur-Þjóðverjinn sem samviskusamlega vann svo vel í agíteringa- og áróðursdeildum hins fyrrverandi ofríkis Austur-Þýskalands, þarf nú að leggja á sig flugferð með fljúgandi dráttarvél hins sameiðana Þýskalands, alla leið til Kína. En þar mun hún reyna að betla peninga þá sem hið sameinaða þýska ríki hennar hefur plokkað af hinum evruríkjunum hin síðustu innvortis gengisfelldu þýsku 15 árin eða svo. Já, peninga til láns frá Kína!

Kína mun auðvitað vilja frá eitthvað afar sérstætt fyrir peninga þá sem þeir plokkuðu af Bandaríkjamönnum. Sem dæmi nefnir blaðið lyftingu banns við vopnasölu til Kína. Þar gæti Merkel grætt einn þúsundkallinn enn. 

Sannleikurinn mun birtast á næstunni. En öngva peninga á Kína til að bjarga því sem ekki er hægt að bjarga. Read my lips; Enginn hér á jörðu getur bjargað evrusvæði ESB - nema Bandaríkin.

Ég hafði því miður rétt fyrir mér um kanslara Þýskalands

"Ég stóð mig að verki við að. . ". Þið kannist eflaust öll við þessa setningu og hugsun. Hún er afleiða þeirrar blekkingar að ÉG'ið í sjálfum mér sé sannur fulltrúi MIG'sins í sjálfum mér.

Staðreyndin er þó sú að ÉG'ið er getulaus vesalingur miðað við MIG'ið. Þegar ÉG'ið þykist vita eithvað þá er það vegna þess að MIG'ið er búið að vita allt um málið í langan tíma. En við þykjumst vera "rökhyggjuverur" og státum okkur af "agaðri hugsun" sem reynir oft að taka völdin af MIG'inu og berja það niður, en þó oftast með fíaskó-afleiðingum.

MIG'ið í heila okkar er eins og ljós í alheimnum. Hefur endalausa bandvídd og getu til að kalla fram hvaða símanúmer sem er hjá hvaða atómi sem er í stjörnuþoku Y. Bandvíddin er svo hrikaleg að MIG'inu nægir að horfa í barnsaugu. Þar sér það allt og miklu meira en alheimurinn hefur upp á að bjóða. Þetta er undirmeðvitund okkar og sál. Hún er sannkallað tryllitæki. Við erum aðeins meðvituð um smá brotabrot af því sem fram fer í þessari stærstu "tölvu" í tilveru okkar. ÉG'ið ræður hins vegar ekki yfir neinu nema einfaldri ryðgaðri reiknivél, en heldur þó alltaf að það stýri öllu. Aðeins dropar eru látnir trítla yfir til þess frá MIG-stórfljótinu. Því ÉG'ið þolir ekki stærri skammta. 

Þið kannist eflaust öll við þá tilfinningu þegar þið gangið á bjargbrún, að þá óttist þið að MIG'ið taki völdin og stökkvi. Bara sí svona. Óttinn kemur fram í ÉG'inu. "Ég stóð mig að þessu". Undirmeðvitundin er ógnar afl og ansi fjörug. Og við þekkjum aðeins brot af því sem hún fæst við allan sólarhringinn.

Lengi vel vonaði ég heitt og innilega að tilfinning mín fyrir kanslara sameinaðs Þýskalands, Angelu Merkel, væri aðeins mín eigin og ranga undirmeðvitaða sannfæring frá fyrstu sýn. En það er nú einu sinni svo, að það sem manni dettur fyrst í hug er yfirgnæfandi oftast það rétta frá byrjun. Mig grunaði þó ekki að kanslari Þýskalands væri fífl. Og heldur ekki svona fullvaxta afdalamaður í orðsins verstu merkingu. Hvað haldið þið að hún hafi sagt í gær? Hún sagði; "Evrópa myndi hætta að virka ef hún breytti um stefnu eftir hverjar kosningar."

“Europe would not function any more if it changed course after every election.” 

Þetta er dráttarvélin í ESB! Fullkominn fáráðlingur! Hún hefur ekki hugmynd um hvað lýðræði er. Hún hefur ekki hugmynd um hvað stjórnmál eru. Hefur ekki hugmynd um til hvers kosningar eru haldnar! Hún er bara hin dapurlega lifandi táknmynd gamla Austur-Þýskalands. Gömul DDR-dráttarvél. Það var einnig það sem MÉR datt í hug við fyrstu sýn. Ég færi það hér með fram til bókunar hjá ÉG'inu. En engin orð fá þó lýst þeim hryllingi sem bíður meginlands Evrópusambandsins. Það ætti hugsandi mönnum að vera orðið ljóst. 

Þetta er önnur tilraun Þýskalands til lýðræðis. Ég sé ekki betur en að hún sé að mistakast eins hörmulega og sú fyrsta; Weimar.

Vissir þú að á síðustu 211 árum hefur verðbóga verið í samtals 10 ár yfir 20 prósent á ári í Þýskalandi og í 4 ár yfir 40 prósent á ári. Svo hefur hún verið nokkur þúsund prósent þar í nokkur ár á heilum tveimur tímabilum af þýskri óðaverðbólgu. 

Svo hefur Þýskaland á þessum 211 árum orðið 8 sinnum ríkisgjaldþrota og verið í ríkisgjaldþroti í samtals 15 ár af þessum 211 árum. Vissir þú þetta?

Ísland hefur aldrei haft óðaverðbólgu og aldrei orðið ríkisgjaldþrota. Bandaríkin hafa heldur aldrei orðið ríkisgjaldþrota. 

Þýskaland hefur reynt að viðhafa lýðræði í bara 65 ár - og greinilega mistekist hörmulega 

<<<< ++++ >>>>

Ratification by Germany’s most important partner in the eurozone also became more complicated as Mr Sarkozy said he would not ask the French assembly to approve the treaty before April’s presidential election. Mr Sarkozy’s likely opponent, Socialist François Hollande, has said he would seek to renegotiate the pact, but Ms Merkel said she did not believe France would back away from the commitment.

 

“Europe would not function any more if it changed course after every election,” she said. 

<<<< ++++ >>>> 

Financial Times 30. janúar 2012 


ESB-Portúgal siglir inn í evrugrad [u]

Mynd- Bloomberg - Lánskjör Portúgals í evrulandi - 3 ára peningar pr 30 janúar 2012

Eftir að þýski seðlabankinn komst í þrot og skall á Berlínarmúrnum í desember, þá var ekki um annað að ræða fyrir ECB-seðlabanka Brussels en að prontó prenta og senda út fréttatilkynningar þess efnis að bankakerfi evrulanda gætu sem snöggvast komið inn úr kuldanum, fengið heita súpu og hlýtt stjörf á hið níunda rúgbrauð friðarins smjaskandi étið af Brussel. Einu sinni enn.
 
Gírkassi Evrópusambandsins: allir gírar eru þar aftur á bak
TARGET2 greiðslukerfi seðlabanka evrulanda hafði þá tekist að henda skuldbindingum sínum svo þungt yfir á seðlabanka Þýskalands — því sjálfir áttu þeir ekki peninga lengur — að ekki var lengur við neitt ráðið. Jafnvel þessi þýski seðlabanki varð þá að gefast upp. Hann þoldi ekki að taka á sig fleiri og meiri skuldbindingar vegna þessa greiðslukerfis, sem þýskir skattgreiðendur hafa enn ekki verið upplýstir um hvers eðlis er. Væri svo myndi bylting hefjast immed.

Þarna lokaðist alveg á Portúgal því evruríkissjóður landsins er nú metinn sem rusl af alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Seðlabankalingur Portúgals gat ekki lengur sent reikninga yfir til Frankfurt og stjórnin gat ekki lengur selt ríkisskuldabréf sín til bankanna í landinu, sem gátu heldur ekki troðið þeim í skiptum fyrir peninga inn í hólfin sem lokuð eru landinu hjá þeim erlenda seðlabanka sem út gefur þá mynt og gagnslausu evruseðla sem lögeyrir er í landinu. Portúgal er lokað úti frá ECB-seðlabanka Evrópusambandsins. Það getur ekki prentað peninga. Það má ekki prenta peninga. Má ekki slá neina mynt. Það hefur glatað fullveldi sínu í peninga, vaxta og myntmálum. Það er búið að vera.

Euro-money-multiplier-M3-versus-monetary-base-Socgen
Þess vegna ganga ríkisskuldabréf þessa evruríkis nú kaupum og sölum fyrir slikk. Enginn vil lána þessu ríki peninga á meðan það er evruland án sjálfstæðrar myntar. Skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Portúgals er nú um 1526 punktar. Meira en fimm sinnum þyngra en á ríkissjóð íslensku krónunnar. Og vaxtakjör þessa evruríkis eru meira en fjórum sinnum verri. Portúgal er að breytast í Grikkland með ógnarhraða. Þökk sé evruaðild landsins.
 
Graph 2 shows that the money multiplier has collapsed. Indeed, using the weekly ECB data from 23 December, base money has increased by 46% over the past year, when broad money supply has grown by just 2% (with the counterparts of M3, loans to the private sector were up by just 1.7% yoy in November and still slowing). In other words the ECB is printing money but the transmission to the real economy is extremely weak. 

Fregnir hafa einnig borist af því að peningalegur gírkassi seðlabanka Evrópusambandsins virki ekki lengur nema í bakkgír. Uppáhalds orðskrípi yfirmanna bankans í ræðum og ritum er einmitt þessi transmission mekkanóhólismi evrupeninga sem ekkert getur. Vogarstangarafl M3 peninga í umferð er hrunið, því bankakerfin eru impótent lafandi ónýt og Brüning ferlið til helvítis inni í ESB er hafið. Síðan þarf að kjósa H-mann þangað til það kemur .

 
[Uppfært] Klaus-Peter Muller aðalbankastjóri þýska Commerzbank, sem er næst stærsti banki Þýskalands, hvetur nú Grikkland til að yfirgefa evruna og taka upp sjálfstæða mynt ef landið og þjóðin vilji lifa áfram. Að þessi nú evruhlekkjaða þjóð þoli ekki fyrirhugaða 30-40 ára pyntingargöngu í fóthlekkjum evrunnar.
 

Þúsund prósent vextir í evrulandi

ESB fáni - Fule - Steinrímur J og Ciolos mbl
 
Grikkland er að verða fyrsta ríkið án óðaverðbólgu sem er útgefandi af ríkisskuldabréfum sem eru svo léleg —sökum evruaðildar landsins— að bjóða þarf fjárfestum 1000 prósent ársávöxtun svo þeir bíti á agnið og láni gríska evruríkinu peninga til nokkurra mánaða. Þessi örvæntingarfulla tilraun Grikklands til að laða smávegis peninga ofan í kassa ríkisins —sem er á leið í gjaldþrot— er að verða svo sorgleg að allt fer nú að geta gerst. Svona er að vera svo kallað evrujaðarland. En það eru öll evrulönd, nema Þýskaland og Frakkland. Þetta er sú framtíðarsýn sem forysta Alþýðusambands Íslands, ásamt kosningasvikaranum á myndinni hér fyrir ofan, vilja búa landi okkar. Hvorugur aðilinn hefur þó sótt neitt umboð fyrir þessu til kjósenda. En þangað eiga a.m.k þingmenn að sækja umboð sitt. Báðir eru umboðlausir og samkvæmir hefðum og siðfræði Evrópusambandssinna.
 
Evruríkið Portúgal fylgir fast á hæla gríska ríksins. Skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Portúgals er komið í 1400 punkta á móti 300 punktum á ríkissjóð okkar hér heima. Allt bankakerfi Portúgals hefur nú verið lokað af frá umheiminum í meira en tvö ár. Fjárfestar krefjast rúmlega 17 prósent áhættuþóknunar á ári fyrir að lána þessu evruríki pening í tvö ár og 20 prósent ársvexti þarf þetta evruríki að borga fyrir peninga til fimm ára. Þetta er fjórfalt hærra en krafist er í áhættuþóknun af íslenska ríkinu á alþjóðamörkuðum. Portúgal er eins og bóndi sem þarf að borga fjórfalt hærra verð fyrir áburð, eingöngu vegna slæms félagskapar. Portúgal er ekki treyst því landið á enga mynt. Þetta er evruríki í hnotskurn. Trúverðugleiki, greiðslugeta og lánshæfni þess er því metin til jafns á við rusl.
 
Rússneska ríkisútvarpið
 
RÚV-ríkisstjórnarútvarpið á Íslandi telur nú að hættustigið fyrir alla Íslendninga sé orðið svo alvarlegt, að fréttin um að flóðvarnargarðar flokksforystuhruns Samfylkingarhrunsins gegn grasrót flokksins — og kjósendum almennt — séu við það að bresta, já hún varð að koma á undan fréttinni um þá snjóflóðahættu sem nú vofir yfir Vestfirðingum. RÚV er ESB-samkomuhús sovéskra fréttatíma. Það þagði því fast um sannleikann í dag og bjó til eina korrekt sviðnu myndina af raunveruleikanum í kvöldfréttunum enn. Síðan voru veðurfréttir poopaðar og lagðar út í gúlagaða geymslu sovéska samkomuhússins, þar til fjárrúningar fyrirbærisins höfðu farið fram. Ekkert var því minnst á helstu utanríkismálafrétt dagsins; kröfu ríkisstjórnar Þýskalands til skattheimtu og ríkisfjárnáms í ESB-Grikklandi;
 
Financial Times: The German government wants Greece to cede sovereignty over tax and spending decisions to a eurozone “budget commissioner” to secure a second €130bn bail-out, according to a copy of the proposal obtained by the Financial Times.

 

Í dag, laugardag 28. janúar - Børsen

Í dag, laugardag 28. janúar - Danmarks Radio

Í dag, laugardag 28. janúar -  TV2.DK myndskeið 

Í dag, laugardag 28. janúar - Morgunblaðið

Í dag, laugardag 28. janúar - Sveriges Riksradio

Í dag, laugardag 28. janúar - Norsk rikskringkasting 

Í dag, laugardag 28. janúar - BBC

Í dag, laugardag 28. janúar - Wall Street Journal 


Langtímavextir í evruríkjum

Langtímavextir í evruríkjum

Stækka.

Áminning - Tímaritið Þjóðmál, haustið 2008, þriðja hefti, fjórði árgangur:

"Umræðan á Íslandi er orðin þannig að menn eru farnir á líta á evru sem fyrsta flokks hagstjórnartæki, en ekki sem þá annarsflokks pólitísku lausn sem hún fyrst og fremst er hugsuð á vandamálum meginlands Evrópu.

Þegar Helmut Kohl kom með hattinn í hendinni til að biðja bandamenn um leyfi fyrir sameiningu Þýskalands, sá François Mitterrand samstundis að þarna opnuðust sjaldgæfar dyr til svo að segja að þvinga Þjóðverja með í myntsamstarf. Þjóðverjar höfðu aldrei haft mikinn áhuga á sameiginlegu myntsvæði, því þýska markið hafði reynst þeim vel, svo sameiginleg mynt var þeim aldrei ofarlega í huga.

Öll undirbúningsvinnan við evru var hastverk og lítið sem ekkert var farið eftir skoðunum akademískra hagfræðinga og sérfræðinga á forsendum og skilyrðum fyrir því að svona myntsamstarf gæti heppnast vel. Werneráætlunin frá 1970 var því tekin fram aftur, eftir að hafa verið kistulögð árum saman, stílfærð og sett í framkvæmd. Aðeins eitt land af ellefu uppfyllti öll upptökuskilyrðin þegar ákveðið var hvaða lönd gætu tekið upp evru, nefnilega Lúxemburg, en Werneráætlunin er verk Pierre Werner fyrrverandi forsætisráðherra Lúxemburgar." Lesa alla greinina; Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?

Og nú ræður Þýskaland yfir Evrópu á ný. Þetta tókst! Loksins, loksins er Evrópa fallin!

Grikkir minnast orða Thatchers

 


Króatía: já aðeins tekið gilt. Tilgangslaust að mæta á kjörstað

Kosningabúr Evrópusambandsins eru og hafa alltaf verið innréttuð sem pyntingaklefar gegn lýðræði og frelsi. Um tíma leit út fyrir að það kæmi nei út úr meirihluta þess minnihluta Króata sem töldu það ómaksins vert að mæta á kjörstað í svo kölluðu "þjóðaratkvæði" Króatíu um ESB-innlimun landsins á sunnudaginn. Aðeins 44 af hverjum 100 kjósendum greiddu atkvæði.  

Þetta voru ekki góðar fréttir fyrir boðbera sovétlýðræðis Evrópusambandsins. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru því þau að segja og gefa í skyn að kosið yrði þá bara aftur um sama hlutinn. Afleiðingin í praxís varð sú að tilgangslaust var fyrir Króata að mæta á kjörstað og greiða moskvuatkvæði um það sem hvort sem er aldrei var í boðinu. Því réðu 28 prósent þjóðarinnar örlögum landsins í þessum moskvukosningum Evrópusambandsins. 

Og nú er Ísland að komast í þennan pyntingarklefa ESB, því yfirkommúnistar landsins - eins og alltaf áður - ætla lýðveldi okkar þau örlög að verða lagt niður og sameinað nýju stórríki Evrópu. Áður hét þetta stórríki Sovétríkin, sem um tíma voru ný og girnileg of mörgum fáráðlingum á Íslandi. Nú heitir stórríkið hins vegar Evrópusambandið, og er næstum því glænýtt fyrir nokkuð sömu fáráðlinga landsins og fleiri. Gardínuræður fáráðlinga um gluggatjöld ESB eru því daglega haldnar á Íslandi í dag.

Þöglir Króatar neita þátttöku í sovétríki Evrópusambandsins


Þöglir Króatar neita þátttöku í sovétríki Evrópusambandsins [u]

Króatía - 29 prósent kjósenda sögðu já
 
Það verður er þegar fróðlegt að sjá þegar sovétstjórn Evrópusambandsins —sem enginn kaus— fagnar þessum ósigri lýðræðisins í Króatíu í dag, þar sem aðeins 44 af hverjum 100 kjósendum landsins þorðu að mæta á kjöstað til að segja satt um skoðun sína á einkaþátttöku stjórnaraðila landsins í hinum nýju sovétríkjum Evrópusambandsins. Þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB aðild Króatíu í dag fór fram í formi einkamála-greiðslugetu stjórnvalda gegn tómum peningakassa og lokaðri hitaveitu hjá andstæðingum þessa skrípaleiks. 

Þegar Ungverjar á svipaðan hátt neituðu að taka þátt í skrípaleik Moskvukosninga Evrópusambandsins árið 2003, þá neituðu 54 prósent þjóðarinnar að taka þátt í þeirri aðför ESB-sinna að nýfengnu lýðræði Ungverjalands. En samt var landinu troðið inn í Evrópusambandið þarna árið 2004. Nú stjórnar Evrópusambandið í Brussel stjórnarskrárgerð Ungverjalands. 

Hversu ömurlegri félagsskap en Evrópusambandið getur nokkurt land fallið í.

We will never recognize it
Fjögur þúsund dalir andstæðinga ESB-aðildar í Króatíu á móti Brusselgullinu máttu sín lítils gegn milljón dölum þess í dag. Inn á þennan sorphaug lýðræðis og frelsis ætlar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingríms J. Sigfússonar og Össurar Skarphéðinssonar að henda íslenska lýðveldinu. Þessi þrenna einkahagsmuna, hugleysis og kosningasvika er einstæð í Íslandssögunni. 
 
Síðustu skoðanakannanir meðal Króata fyrir helgina bentu til þess að 57,2 prósent kjósenda á kjörstað hyggðust segja nei við aðild landsins að ESB. Brusselgullið hefur hér unnið verk sitt vel því 66 af hverjum 100 kjósendum þessa minnihluta þjóðarinnar sem mættu á kjörstað sögðu já í dag. 
 
Um það bil 84 prósent Króata tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Króatíu frá Júgóslavíu árið 1992. Á aðeins tuttugu árum hefur hér með tekist að varpa lýðræði og sjálfstæði Króatíu fyrir róða.
 
Örstuttur tími lýðræðis sem stjórnarformi á meginlandi Evrópu er útrunninn. Evrópusambandið er nú megindrifkraftur öfgasinnaðrar þróunar í löndum meginlandsins á ný. Stjórnmál þess hafa verið þjóðnýtt.

Þeir sem létu ekki kaupa sig með Brusselgulli ESB í dag, segja að ESB-aðild landsins sé ólögleg og að þeir munu aldrei viðurkenna hana. Fræjum ófriðar er hér með sáð. 
 
Þarna datt 28. ríkið ofan í bakpoka Brussels. Gegn vilja þjóðarinnar. Þetta eru hin vel þekktu og gömlu hlandgulu sjörnuvörumerki Össurar, Steingríms J. og jóhönnun veruleikans. Króatar eru hér með upplýstir. Og nú verður aldrei kosið aftur.
 
New York Times; The campaign against European Union membership is being run from a cramped three-room office with no heating. The only visitor before 10 a.m. one recent morning was the landlord asking about the rent. Mr. Bosnjak, the secretary of the Council for Croatia, said the council represented about 25 small groups that together had just $4,000 to $5,000 to spend. (The government said it planned to spend about $800,000 on television spots and a pro-integration information campaign.)

 

Spilling í Króatíu er talin vera minni en á ESB-Ítalíu sem er stofnandi Evrópusambandsins og hefur verið í sambandinu í samfellt 55 ár — og enn minni en í ESB-Grikklandi sem hefur verið 30 ár í Evrópusambandinu og er því á leið í ríkisgjaldþrot — minni en í ESB-Slóvakíu sem hefur verið 8 ár í Evrópusambandinu og er að kafna — og jafnvel enn minni en í ESB-Rúmeníu.

Spilling, óréttlæti, einræði, ánauð, fátækt, atvinnuleysi og glæpir í opinberri stjórnsýlsu sem og öllu samfélagi Króata, mun því aukast hratt við að land þeirra hefur nú verið innlimað í Evrópuspillingarsambandið ESB - sem enginn kaus.

Kosningabúr Evrópusambandsins eru og hafa alltaf verið innréttuð sem pyntingaklefar gegn lýðræði og frelsi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband