Leita í fréttum mbl.is

Öldrunarhagkerfi Evrópusambandsins í praxís

Þróun fólksfækkunnar í Þýskalandi sem hófst árið 2004 nf
 
Þú ert mjög ungur maður. Þú stendur fyrir framan gamla niðurslitna íbúðarblokk með 2000 íbúum. Fjórar milljónir samskonar íbúða hafa verið rifnar niður á síðustu árum. Þær voru orðnar tómar. Þú ert að leita að einni konu á frjósemisaldri. Á hve margar dyrabjöllur þarftu að hringja til að finna þessa einu konu á frjósemisaldri í byggingunni? Vegna þess að þú ert í Þýskalandi þá þarftu að hringja á margar margar bjöllur áður en ein frjósöm kona svarar kalli þínu. Þetta er svona því Þýskaland er öldrunarhagkerfi og næst stærsta elliheimili veraldar. Aðeins Japan er meira gelt.

Þýskaland - Atvinnuleysi 1980 - 2011 - 30 ár í ESB nfÞú ert mjög ung kona. Þú býrð í þessari íbúðarblokk ásamt 1999 öðrum íbúum. Þú ert að bíða eftir því að einn ungur maður hringi einmitt dyrabjöllu þinni. En þegar þú loksins hittir unga manninn þinn þá er samt afar ólíklegt að þú viljir eignast með honum barn. Ástæðan er sú að þú býrð í öldrunarhagkerfi sem á litla framtíð fyrir sér. Nútíminn kom aldrei til þín því þú fæddist of seint og í geldu þjóðfélagi. Þú veigrar þér við barnseignir því þú ert einmitt úr fjölskyldu sem átti næstum engin börn og þú veist hvað bíður þín. Þú veist að í samfélagi þínu hefur massíft fjöldaatvinnuleysi verið ríkjandi í meira en 30 síðastliðin ár. Það er því ólíklegt ungi maðurinn sem hringir bjöllu þinni geti fengið launaða atvinnu fyrir fertugt. Að minnsta kosti ekki það vel launaða að hún geti réttlætt þann munað að stofna með honum fjölskyldu og eignast börn. Laun þín duga ekki og jafnvel þegar laun hans bætast við þín þá duga þau ekki heldur. Fólkið í landi þínu hefur aðeins fengið 5 prósent launahækkun á síðastliðnum 15 árum, samtals. Milljónir fjölskyldna þar sem báðir eru útivinnandi þurfa samt félagsmálahjálp því að engin lágmarkslaun eru í landi þínu. Þetta er Þýskaland í hnotskurn. Það er eitt af 25 deyjandi öldrunarhagkerfum Evrópusambandsins. Það er í eilífri innvortis gengisfellingu gagnvart öllum öðrum evruríkjum. Lækka laun, lækka endalaust kostnað, því eftirspurn eftir vörum þess getur aðeins komið til landsins frá ungum kaupsterkum neytendum úr öðrum þjóðfélögum. Innlensk eftirspurn er því miður dáin.

Þingkosningar í landi þínu eru orðnar þannig að miklu meira en helmingur kjósenda eru orðnir sextugir og eldri. Þarfir þínar eru hvorki hjólastóll né hjúkrunarpláss. Þig vantar vinnu, mannsæmandi laun, barnaheimili, bjarta framtíð og umbun fyrir að hafa fætt nýjan skattgreiðanda inn í þjóðfélagið. Að fara á kjörstað og kjósa í Þýskalandi er eins og fyrir 12 ára gamlan dreng að fara í sjómann við sextugan. Vægi ungs fólks í baráttunni er orðið þannig.

Hagvöxtur í Þýskalandi í 60 ár
Þér er sagt að þú búir í þeirri eimreið sem knýja á Evrópusambandið. En er það rétt? Og hvert á að knýja ESB? Leiðin inn í samfélagslegt helvíti er því miður einstefna eimreiðar þinnar. Ástandið í næsta nágrenni þínu er jafnvel enn verra. Þarna í Póllandi og Austurríki við hliðina á þér. Öll Austur-Evrópa er svona líka og enn fátækari. Fyrir sunnan Alpafjöll er ástandið síst betra og jafnvel að sumu leyti ennþá verra. Ef þú vilt eignast framtíð þá verður þú einfaldlega að flýja heimsálfuna. Enda er það einmitt það sem fólk gerir, ef það getur. Ef þú ætlar að verða um kyrrt, þá þarftu að byrja að spara saman fyrir ellinni um leið og þú ert orðin 12 ára. Þú ert fædd á meginlandi tapara. Því miður.

Þú þekkir söguna mjög vel og veist að fjárfestar hafa ekki áhuga á deyjandi eignum. Þú munt ekki verða sá kaupandi af ríkisskuldabréfum Þýskalands sem landið þarf á að halda. Tíminn er naumur því útreikningar lánshæfnismatsfyrirtækja sýna að ríkissjóður Þýskalands verður einmitt orðinn gjaldþrota árið 2060. Kominn í ríkisgjaldþrot vegna ellilífeyrisskuldbindinga og uppþornaðra kistulagðra skattatekna. En það er einmitt þá sem þýska hagstofan spáir því að þjóðinni muni hafa fækkað um 20 milljón manns. Mannfjöldi svarandi til tæpra Norðurlanda horfinn. Þú munt kjósa með fótunum, flýja ef þú getur og neita að taka þátt í þessum hildarleik glataðrar framtíðar í ESB. Hildarleikurinn í ESB er að verða líkamlegt vandamál.
 
Vandamál af þessu tagi lagast ekki næstu 500 árin. Reynsla Evrópu af Svarta Dauða í lok miðalda sannar það. Mannfólkið vex hægt. Og það vex bara alls ekki við rangar aðstæður. Það forðar sér ef það getur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ef þegnar þýsklands eru 82 milljónir nú, það er byrði þýskalds á brauðfæða þetta lið, þá er ráðgert opinberla þar ekkert leyndar mál að þegnarnir verði um : 58 milljónir um  2050.  Ef þjóðartekjur á íbúa HCIP, eða PPP dragast saman um 1,0% ári næstu 30 ár, þá haldast þær stöðugar í Þýskalandi.  Þýskaland  er kominn mjög framlega í rannsókum á ræktun lífæra og líkamshluta til endurnýjunnar, tölur og vélar geta tekið við miklu meiri ábyrgð, aðalatriði er að gamalmenninn  verði virkir neytendur sem lengst og þurfi ekki að lækka í ráðstöfunartekjum. 

Það eru tvær hliðar á öllum málum Gunnar. Gamalmenni þurfa ekki að vera hlutfallsleg byrði. Þjóðverjar geta líka reiknað með fá nóg af 1. flokks tímabundum þrælum frá öðrum ríkjum sem ekki fylgja þegnskapar skildur hins opinbera til dauðsdags kaupþrælanna.  Það er í mínum huga hrollvekja að eiga börn til hreinsa  afturenda óskildra einstklinga í fjarlægum ríkjum.

Þetta er alltaf spurning um PPP per þegn: rauntekjur reiknaðar eftir á. Mannfjöldahugtakið er frá KÍNA, og hafði aðra merkningur fyrir daga kjarnorku þegar stríð milli frænda hreinsuð líka til í stórborgum, fjárlægðu allskonar undirmálslið og þurrkuð út viðskipta skuldir og stór juku hagvöxt  stríðandi aðila að stríði loknu.

Skoða hlutina í sögulegu samhengi séð niður frá þeim sem efst eru  í fæðukeðjunni á hverjum tíma. 1%  Mannkyns er gróft mat.  

Við fáum að fylgjast með Þýskalandi og Grikklandi og líka Íslandi og fáum svörin eftir 30 ár.  Ísland hafi alla möguleika 1918 til að verða við hlið Sviss og Noregs í dag, jafnvel stöndugra.  Lítum okkur nær.

Júlíus Björnsson, 7.2.2012 kl. 22:02

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

1918 þá vissu Íslendingar ekki það sem við vitum.  Við vitum ekkert hvað landinn veit eftir 100 ár og til þess að verða okkur ekki til skammar, þá verðum við að stofna her, landher.

 
Þó að sá her gerði ekkert gagn annað en að kenna ungu fólki að bera virðingu fyrir sjálfu sér, landi sínu og þjóð þá væri það nóg. 

Hrólfur Þ Hraundal, 7.2.2012 kl. 23:07

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í JAPAN ER VIRÐING BORIN FYRIR ALDRI, allt önnur hugmyndfræði og uppsetning á samskiptareglum.

Júlíus Björnsson, 7.2.2012 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband