Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Evrusvæðið: minna en ein fasteign selst á mánuði

Sober Look - Collateral

Sonderweg-mynd frá ESSB; Sober Look

Á evrusvæðinu á Spáni seldust þrjár fasteignir til atvinnurekstrar á öðrum fjórðungi ársins. Þetta er þá ein eign plús ein eign plús ein eign, þ.e.a.s þrjár eignir á heilum ársfjórðungi. Íbúafjöldi landsins er tæpar 50 milljónir manna. Og þetta er jafnframt svo mikið sem ein fasteign á mánuði. Samdráttur er að nálgast 100 prósent. Og á sömu leið er atvinnuleysi meðal ungmenna þessa evrulands.

The Spanish and Italian commercial property markets have all but collapsed with the number of transactions in both countries falling more than 90 per cent in the three months to July as investors worry about the future of the eurozone. Only three property transactions were registered in Spain during the second quarter, down from 58 deals in the previous quarter | FT

Á evrusvæðinu á Ítalíu seldust tvær atvinnufasteignir á sama tímabili: 1+1=2. Íbúafjöldi ítalska evrusvæðisins er rúmar 60 milljónir manns. Þetta er núll komma sex fasteign á mánuði. Samdráttur er að nálgast alkul.

Sovétríki evrusvæðisins taka þarna miklum framförum, því markmiðið var jú að samhæfa "efnahag" landanna með t.d sameiginlegri stjórnarsrká sem enginn kaus, en sem fyrirskipar einn og bara einn ákveðinn ónothæfan gjaldmiðil sem passar ekki á nein lönd Evrópusovétsambandsins. Stjórnarskrárbundin mynt hinna 27 landa Evrópusovétsambandsins ER því evra. Niður skal hún.

Engin leið er nú í evrulöndunum að grafa upp skuldabréf sem tryggð eru með veði í fasteignum innanlands. Bankarnir sitja svo fast á þeim því þetta er eitt af því fáa sem situr eftir í þjóðarseðlabankakerfi evrulanda sem eign. Restin að verða skósverta Brusselveldisins sem inn í framtíðina verður notuð sem prentsverta á evruseðla þessa nýja fyrirburðar.

Peninga- og lánastarfsemi fjármálageirans yfir landamæri lífs og dauða á evrusvæðinu er nú að miklu leyti hætt. Enda eru hætturnar orðnar svo miklar að enginn þorir með sína einu svörtu evru yfir landamæri þessa stæstra peningalega jarðsprengjusvæðis heimsins.

Þrjár krækjur

FT: Spanish commercial property on the brink

SL: Collapse in the Eurozone ABS activity

SL: Stronger Eurozone integration remains elusive as financial fragmentation increases

Fyrri færsla

Hvaða lönd verða ekki gjaldþrota?


Hvaða lönd verða ekki gjaldþrota?

Svarið er einfalt: þau lönd sem ei þrýtur gjaldið. Að verða gjaldþrota er þegar gjald (greiðslugeta) þjóðar eða manns er þrotið => gjaldið er þrotið => gjaldþrot. Þú getur vel átt helling af verðmætum hreinum eignum en samtímis orðið gjaldþrota. Það sama gildir um ríki og þjóðir. Lönd verða í eðli sínu ekki gjaldþrota, heldur einungis þjóðir, ríki þeirra, einstaklingar og fyrirtæki. 

Þegar ISDA lýsir því yfir að þjóðin og ríki hennar sé gjaldþrota, að fullu eða að hluta til, þá er það gjaldþota. Þetta gerðist í Grikklandi í vor. Þá fór lýðveldi Grikkja í evru-þjóðargjaldþrot að kröfu Berlínar- og Parísarkommúnista. Tímabundið að vísu, á meðan líkkistan er sniðin betur utan á þjóðríki Grikkja. Þettar afrek evrunnar er eina ríkisgjaldþrotið í sögu OECD sem leysir úr læðingi útgreiðslu skuldatrygginga, er engin tilviljun. Hér gengur allt samkvæmt áætlun.

Þýskaland — sem nú þenur sig út í allri Evrópu á ný — hefur á síðustu 212 árum haft verðbólgu í samtals 10 ár sem var yfir 20 prósent á ári og í heil 4 ár yfir 40 prósent á ári. Svo hefur verðbólgan þar verið nokkur þúsund prósent í nokkur ár á heilum tveim tímabilum af þýskri óðaverðbólgu (hyperinflation). Hún var búin var til af þýskum stjórnmálamönnum sem yfirleitt eru grasasnar, því ríki þeirra í reynd er ekki til. Það er upplogið til að þjóna þeim og þríeyki þeirra sem þrælakista. Þýskaland er kína Evrópu.

Þýskaland hefur á þessum 212 árum orðið 8 sinnum þjóðargjaldþrota og verið í þjóðargjaldþroti í samtals 15 ár af þessum 212 síðustu árum. 

Hagfræði er ekki til í Þýskalandi. Aðeins sundurvegasöltuð nurlarafræði Hegels sem ól af sér Marximus Kommúnismus. Hjá honum liggja einnig rætur hinna nýju sovétríkja Evrópusambandsins.

Bandaríkin, Ísland, Noregur og Stóra Bretland hafa aldrei orðið þjóðargjaldþrota. Á Íslandi hefur aldrei verið óðaverðbólga eins og til dæmis í Þýskalandi. 

Íslenskir stjórnmálaforingjar með þýska menntun hafa aflað sér fötlunar. Þeir ættu að reyna að afmenntast henni sem fyrst. Annars getur Nýfundnaland endurtekið jarðarför sína hér. Svo ekki sé minnst á þýsku þjóðargjaldþrotin.
 
Landhelgi Íslands var þrýst út svo að okkur þryti aldrei gjaldið. Henni var ekki þrýst út til að hengja þjóðina í henni, eins og þýskalandsfeig ríkisstjórn Steingríms, Jóhönnu, Össurar og Ögmundar heldur greinilega að tilgangurinn hafi verið. Þau sóttu öll um inn í hin nýju sovétríki Evrópusambandsins þar sem þrýsta á landhelgi Ísland öfugri um háls þjóðarinnar og hengja hana.
 
Þegar ærnar hætta að bera verða bændur að sjálfsögðu gjaldþrota. Þær hætta alltaf að bera um leið og þær ganga í Evrópusambandið, sem erfðafræðilega er gelt.
 
Fyrri færsla



Derek Scott látinn

Andlát

Breski hagfræðingurinn Derek Scott er látinn, aðeins 65 ára að aldri. Hann var efnahagsráðunautur Tony Blairs forsætisráðherra Stóra-Bretlands, en sem aldrei hlustaði á hin réttu ráð Scott's, með þeim rökum þau væru ekki nógu fín til að standa í nótnahefti þokulúðrasveitar Evrópu. Þokulúðrasveit Evrópusambandsins lifir því enn hátt á innsoginu úr almenningi með því að bresta alltaf á hann í formi samsærisverka svo kallaðrar samhæfingar og samruna. Sagði Brusselveikur Blair að diplómatía Derek Scott's væri ígildi vetursetu Dirty Harry's í hallargörðum Brusselveldsins. 

Scott sá frá byrjun í gegnum myntbandalag Evrópusambandsins og var í hóp örfárra allsgáðra evrópskra hagfræðinga sem vissu nákvæmlega hvaða ömurlegu hvatir voru að verki við stofnun myntbandalagsins frá upphafi. Hann sá snemma í gegnum Ajax-Heidi-þvaðrið um Þjóðverja og vissi út í gegn að Þýskaland stendur í dag hvorki upprétt né í neinar lappir fyrir eigin tilstuðlan, heldur er það m.a. Suður-Evrópa sem hefur haldið Þýskalandi uppi og forðað landinu frá því að verða að alþjóðlegu athlægi fyrir ódug, lýðræðisleti og króníska nísku í lokuðum þvaðurspekiheimi Hegels og hins Sonderwegaða 1871-upplogna ríkis Bismarcks á meginlandi Evrópu, eilíft á kostnað annarra. 

Scott fórnaði persónulegum frama í stjórnmálum innan hins enn svo nefnds Verkamannaflokks Bretlands til að geta rifið kjaft við eigin menn og sagt vinum okkar Bretum sannleikann um Evrópusambandið. Hann benti réttilega á að eina samhæfingin sem fram færi í Evrópusambandinu undir evrumyntinni væri samhrun ríkisfjármála og sameiginlegt brotthvarf hagvaxtar og lýðræðis í öllum evruríkjum. Sem íhalds- og hægrimaður ber ég virðingu fyrir Derek Scott sem málsvara frelsis þjóðríkisins innan uppgjafarstjórnmálahreyfinga í breska Verkamannaflokknum. Hér má sjá stutt erindi hans á ráðstefnu Bryggjuhópsins í fyrra og hér má einnig lesa lauslega íslenska þýðingu mína á grein Scott's sem hann birti í Wall Street Journal þann 28. september 2009, í aðdraganda tilskipaðrar endurgreiðslu Íra á þjóðaratkvæði sínu til Brusselveldisins, um sjálfa stjórnarskrá Evrópusambandsins, sem enginn borgari kaus yfir sjálfan sig neins staðar á meginlandi Evrópu. Derek Scott varpaði einnig óþægilegu ljósi á eigin flokk með útgáfu bókarinnar Off Whitehall árið 2003.

Síðustu nótt

Geimferðastofnun Bandaríkjamanna, NASA, lenti Boeing-vélknúnu ökutæki sínu djarft og snilldarlega á reikistjörnunni Mars í dagrenningu hálf sex leytisins í gærmorgun. Þar mun ökutækið vinna verk sitt í samfellt 20 ár á meðan meginland Evrópu breytist í nýtt sovétríki, sem ekkert getur gert og aldrei kemst neitt. Gert er ráð fyrir að Bandaríkjamenn fari síðan sjálfir í eigin persónu til Mars á innan við næstu 25 árum, á meðan Evrópusambandið fer með Evrópu til heljar á ný.

Þorskastríðin

Á meðan ég beið eftir beinni útsendingu frá lendingu NASA og Boeingfyrirtækisins á reikistjörnunni Mars, horfði ég á netinu á sjónvarpsþátt um sögu Þorskastríða Íslendinga við Breta. Varð mér þá ósjálfrátt hugsað til þessarar eins konar "ríkisslitastjórnar" Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, hins helsta kosningasvikara Vinstri grænna. Varð mér hugsað til hversu hörmulega illa íslenska þjóðin væri stödd í dag ef slík ríkisstjórn hefði nokkru sinni komist til valda hér á landi, áður en við í mikilli samstöðu náðum að tryggja Íslendingum það sem ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms er nú sem ákafast að eyðileggja. Þá værum það við sjálf sem værum í sporum fólksins sem missti allt í Bretlandi til Evrópusambandsins.
 
Meiri líkur eru nú en nokkru sinni áður á því að yfirvöldum ríkisstjórnar Evrópusambandsumsóknarmannanna Jóhönnu, Steingríms, Össurar og Ögmundar Jónassonar takist að koma landbúnaði og bændastétt Íslands fyrir undir sama rógburðarhatti og íslenskum útgerðarmönnum hefur þegar verið komið fyrir undir; Sem eins konar pakki í stað björgunarmanna. Þannig vinnur ESB-ríkisstjórn Jóhönnu, umboðslauss Steingríms, Össurar og umboðslauss Ögmundar

Krækjur
Saga Þorskastríðanna
Fyrri færsla
 
 

"Efnahagsvandi evrunnar"? Ha ha ha

Peningaviss Skarphéðinsson talar neðan tungumáls fullvita manna um eitthvað sem hann kallar "efnahagsvanda evrunnar". Hver nema fávís talar svona? Það gerir að sjálfsögðu enginn nema þessi landsóviðkomandi utanríkisráðherra sem greinilega heldur að evran sé lífvera. Þetta er eins og að hann sé að tala um efnahagsvanda krónunnar á jarðhitasvæðum, súrefnisvandamál súrefnis, tómt vandamál tómarúmsins í höfði ráðherra, eða um hið fossandi munnvatnsfroðubað neðri tanngarðs til vinstri við gómsviknar kosningar VG. Góðan daginn; ég ætla að fá einn þokubakka, takk. Á honum hef ég hugsað mér að bera bull mitt á borð fyrir íslensku þjóðina.

Hvers konar mann höfum við sem þennan svo kallaða "utanríkisráðherra". Er hann tómur í hausnum. Hann heldur greinilega að myntir séu til þess gerðar að fólk búi við þær. Sannur tilgangur ekta myntar er þveröfugur við þokubakkaburð ráðherrans. Það er myntin sem býr við fólkið. Hún þjónar fólkinu. Hún endurspeglar gjörðir manna rétt. Nema að um þessa fölsku þokumynt hins landsóviðkomandi ráðherra sé að ræða. Og sem frá upphafi var slegin til einræðisherra í pólitískri myntsláttuvél hinnar leyndu dagskrár sitjandi nomenklatúru ESB. Þessa nú lítt dulbúnu Frankensteinamynt embættis- og stjórnmálamanna meginlands Evrópusambandsins, er evra kallast.

Evran er ekki mynt. Hún er ógnarvopn sem lengi var beðið eftir í Brussel. Henni er haldið að höfðum ríkja Evrópusovétsambandsins og þeim skipað að afhenda hinum myntvopnaða handhafa bæði fullveldi og sjálfstæði þjóðríkjanna. Láti ríkin ekki undan, verður vopninu hleypt mun hraðrar af og því beitt enn harðar á allt fólkið og afkomendur þeirra. Jólin í Brussel koma, alveg sama hvað.

Væri evran hins vegar alvöru mynt alvöru þjóðríkis þá myndi hún gagnast fólkinu en ekki valda því þessum hroðalega og örkumlandi efnahags- fullveldis- og þjóðríkisskaða sem hún er að gera. Óbætanlegum skaða, hægfara dauða þjóðríkja og sívaxandi einræði.

Fyrri færsla

Reglumynt og regluverk regluverkamanna


mbl.is Viðræðurnar skammt á veg komnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reglumynt og regluverk regluverkamanna

Einstakur Derek Jacobi leikur einstakan Alan Turing í myndinni "Breaking the Code" (skyldi atriðið ekki spilast þá er bein krækja á það hér)
 
Í upphafi var okkur sagt að mynt Evrópusambandsins væri stórkostlegt framlag sérfræðingaveldis sambandsins til mannkynssögunnar. Að þessi mynt væri bæði sérstök og einstök því hún væri mynt sem byggði tilveru sína á reglum. Reglugerðarbyggð mynt sem átti að koma í veg fyrir efnahagsleg áföll og lækna sjúkdóma. Útrýma hinu þáverandi 20 ára langtímaatvinnuleysi (nú 30 ára) og koma forstoppuðum hagvexti Evrópu í gang á ný. Sem sagt; regluverk embættismanna átti að lækna Evrópu. Þar á undan hafði samfelldum 25 ára áróðri fyrir dauða þjóðríkisins verið básúnað út í Evrópu af allsherjarmönnum ESB í flestum sínum fyrr- og núverandi myndum. Reglur. 

Þetta er nú hin nýja fæðingarútgáfa kommúnisma og alræðis í Evrópu. Reglur og regluverk áttu — og eiga enn — að leysa eðli og náttúru mannsins af hólmi. Einu sinni enn! Allt Evrópusambandið eins og því var logið að borgurum þjóðríkjanna er nú í vaskinn komið. Skemur og skemur er þess þar að bíða að útbendingar miklar til hins ýtrasta hægris og vinstris hefjist á meginlandi Evrópu á ný. Að svona frá einu til tuttugu og sjö stykkjum geislavirkra bauga Vinstri grænna & Co rigni fólkinu til himins í kjölfar — og frá Brussel séð — himneskra áfalla hins gagnslausa regluverks ESB. Geislabaugar hinna hundrað neyðarfunda regluverksins verða ekki í akademísku askana látnir frekar en mynt Evrópusambandsins var það. Hún var nefnilega regluleg. Reglur.

Líf fólks, efnahagur fólks, tilfinningar fólk og tilvera manna hefur aldrei passað ofan í hvorki vélar né nein reglugerðarbyggð mannvirki á borð við Evrópusamband Sovétríkja. Hið einstæða og mikilvæga framlag Alan Turing til talnaheims raunvísindanna var aldrei upphugsað þessu ofangreinda pólitíska viðfangsefni til höfuðs. Hann og fleiri vísindamenn hugsuðu sér að það væri maðurinn sem mataði tölvurnar og léti þær vinna fyrir sig.

Í heimsmynd Evrópusovétsins er það hins vegar tölva Brusselverksins sem mötuð er á fólkinu í þjóðríkjunum. Eins og í Sovét. Hverjir skyldu nú passa best og beinastir ofan í þessar vélar. Hver skyldi best kunna við sig í datamati? Afskaplega erfið spurning. Hvað segir sagan okkur? Ekki eru það hinir engilsaxnesku né hinn einstaki kapítalismi þeira; og sem regluverkamenn meginlandsins hata mest af öllu
 
Fyrri færsla
 
 
Sjá einnig PS í athugasemd við þessa færslu  

Erlend starfsemi banka evrulanda lokar vegna "evruálagsins"

Bankia auglýsing utan evrusvæðis
10 dögum áður. Bankia varð; stærsta bankahrun í sögu Spánar.
 
Eitt sinn var í vissum bankageira reynt að halda því fram að til væri eitthvað sem heita átti "Íslandsálagið". Þessu var reynt að halda fram þegar lokað var á íslensku bankana á alþjóðlegum peningamörkuðum. Þá kenndu bankamenn Samfylkingarinnar smæð íslenska gjaldmiðilsins um erfiðleika sína og kölluðu hann ýmsum nöfnum úr hinu stóra eiginnafnasafni sínu. Samfylkingin, sem bar uppi sönginn, er enn að syngja hann við farvegsborðhald sjálfra síns í stjórnarráði Íslands.

Kosningasvikaumsókn þjónustuliðs Vinstri grænna inn í eitthvað og út í loftið Evrópusamband, þjónar nú stjórnarráði þessarar Samfylkingar sem göngugrind hryggleysingja —handa hryggleysingjum— og sem látin er slettast á milli beggja enda farvegsborðhaldsins í ráðinu. Ördiskuðum smáréttum fyrir minnsta forsætisráðherra íslenska lýðveldisins er staflað og hellt niður á milli allra hluta sem máli skipta. Lárétt situr hún þarna inni sem minnsti forsætisráðherra veraldar, við borðhald einstæðrar marglyttustjórnar og sem setið hefur klesst í krafti göngugrindarvalda á hinu víðfeðma gjaldmiðilssvæði átjándu stærstu eyjar heimsins.

Nú er staðan hins vegar þannig að dótturfyrirtæki og útbú bankakerfa evrulanda eru að pakka sér saman til að fara heim í brunarústir heimalanda sinna á evrusvæðinu. Erlend starfsemi alþjóðlegra banka evrulanda fær ekki peninga neins staðar til að halda uppi alþjóðlegum bankarekstri utan hins nýja múrs evrusvæðisins
 
Skóflustunga nýja múrsins hófst fyrir alvöru með Erectus-tollmúrirarus sex landa með spægipylsuaðferðum á Messina-ráðstefnunni 1955 — í stað fríverslunar — og í geigvænlegri óþökk Breta sem voru sannir sigurvegarar heimsstyrjaldarinnar, en því miður með stuðningi bláeygðra einfeldninga í Washington, sem þá höfðu fengið nóg af helvíti Evrópu og þurftu einnig að glíma við kommúnista morðmaskínu Sovétríkjanna sem ESB smá saman er að leysa af hólmi — með spægipylsuaðferðum
 
Þeir, evrubankar utan múrsins, hafa hingað til reitt sig á evruinnistæður í heimalöndum sínum sem bakhjarl. Út á þær hafa bankarnir gefið út pappíra í Bandaríkjunum sem síðan voru seldir á þarlendum peningamarkaði. Tilgangurinn var að komast yfir Bandaríkjadali. Þannig útveguðu þessir evrubankar sér fé til erlendrar starfsemi. En nú vilja erlendir peningamarkaðir ekki lengur viðurkenna hvorki hinar áhættusömu evruinnistæður í evrulöndunum, né þann gjaldmiðil sem þær standa í.

Sparifé almennings er nú verið að gera upptækt á evrusvæðinu á Spáni. Þetta er að gerast beint fyrir framan augun á okkur. Hið sama mun gerast í öðrum evrulöndum. Og myntin sjálf fer þá auðvitað niður í hinn alþjóðlega kjallara peningamarkaða og endar þar saman með tíma hennar sem punktur á götuðu spjaldi.

Íslenska krónan verður alþjóðlegur gjaldmiðill á undan mynt evruríkja, sem þá mun líklega hafa breyst í rembu og sem verður álíka illa gjaldgeng á mörkuðum og sovéska rúblan var og kommúnistamynt Kína er. 

Það eina sem þarf til svo ISK verði alþjóðleg mynt, er ný ríkisstjórn með svera hryggsúlu hins íslenska þjóðríkis. Ríkisstjórn sem negld er niður í mold okkar og stendur þar fast sem skínandi varðstöðumaður þjóðríkis allra Íslendinga. Mold okkar.

Stefnuljós tólf (!) manna peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands verður að fara því hún er dansljós. Þess utan þá er Close Encounters of the Third stefnuljósasýning hennar fyrirbæri úr gamalli kvikmynd frá 1977. Þannig merkjasamskipti við hinn alþjóðlega peningaheim eru túlkuð sem neyðarljós og vitsmunaleg firring einfeldninga. Ör vænting.
 
Krækjur
Fyrri færsla
Tengt

Sýndu okkur vini þína og allir vita hver þú ert - eftir kosningar

Hinir vinstripólitísku hælisleitendur samfylkingar Steingríms J. Sigfússonar, Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur, hafa alltaf leitað hælis hjá annað hvort kommúnistum eða ríkiskapítalistum með Lenínlöguðu höfuðfati.

Undir kaldastríðinu var ógerlegt að bera Vestur-Evrópu á borð fyrir kjósendur hins íslenska vinstris, því þá var meginland Vestur-Evrópu "mengað" í augum vinstrisins. Það var mengað sökum stórveldis Bandaríkjanna þar. Mengað af hinu bandaríska stórveldi sem hélt og varðveitti friðinn á þessu meginlandi tapara í hálfa öld. Í þessa hálfa öld var meginland Vestur-Evrópu í hugum vinstrisins eins konar marx-hegelíanskur og sonderwegaður falschfahrer í öfugri átt á hinni náttúrulegu hraðbraut sinni til eilífs kommafasaðs einræðis og langtíma glötunar.

Bandaríki Norður-Ameríku urðu ekki stórveldi af ásetningi. Þau urðu það vegna frelsisins. Sjálfkrafa. Þess vegna hafa flest frelsiselskandi lönd alla tíð kviðið þeim degi er Bandaríkjamenn pakka saman og fara heim. Bandaríkjamenn fara alltaf heim því heima vilja þeir vera. Heima í landi hinna engilsaxnesku frjálsu sem hvergi annars staðar á jörðu er til. Ekkert stórveldi sögunnar hefur haft eins lítlinn vott af imperialimsa byggt inn í sökkul sinn. Að fara heim (exit) er alltaf það eina. Exit Evrópa þrisvar. Exit Japan. Exit Kórea. Exit Indokína. Exit, exit, exit. Og alltaf er brottfarardegi þessum kviðið jafn mikið. 

Nú eru Bandaríkjamenn farnir heim frá Íslandi og helvítisbrölt vinstrisins er því þegar hafið. Nú á að möndla því í gegn sem ekki náðist frá 1918 til 1949 og á kaldastríðsárunum. Kynntur er til Íslandssögunnar einn kosningasvikinn afarkostur í skjóli áfalla; í skjóli bankahruns. Umsókn, aðlögun og smyglun Íslands inn í Evrópusovétið. Ekkert annað er í boði var Íslendingum ekki sagt fyrr en eftir að Vinstri grænir sviku kosningar lýðræðis. En í millitíðinni — og eftir brottför Bandaríkjamanna — springur Evrópusovétsambandið algerlega úr úr skápnum — og í loftið upp — eftir að Múr þess hefur stanslaust fallið í 25 ár frá brusselsku austri og yfir Bandaríkjalaust vestrið í Hegel-þýskri Evrópu. Sem afleiðing vill enginn Íslendingur með fullu viti þar inn. Og innan örfárra ára mun teppabombað Evrópusambland einveldis og einræðis lenda sem sprengjurignt nýtt sovétríki meginlands Evrópu. Þá vilja jafnvel íslenskir fávitar ekki þar inn.

Því er annar kostur kynntur til sögunnar undir stjórnartíðahvörfum hryggleysingjanna Steingríms, Össurar og Jóhönnu; Kommúnistaflokki stærsta einræðisríkis Jarðar er boðið Ísland til sölu. Uppboðs- og landsölusútprungin ríkisstjórn Íslands er einstök skepna. Truntan var kölluð og komin upp í rúm. Hún er kyndling Evrópubitans.

Þjóðkjörnir fulltrúar eiga að gæta og vaka yfir hagsmunum þjóðríkisins eins og sjáaldur augna. Annað er glæpur. Dauði Íslands er vinstrið - og aðsig þess
 
Fyrri færsla
 
 

Erektus marglyttus diktarus

 
Apollo 11 Saturn V  - Bandaríki Norður Ameríku 16 júlí 1969
Aðeins Bandaríkjamenn hafa komist til tunglsins

Kreppuvaldur heimsins —sem áfram er númer ekkert— er Evrópusambandið sjálft og hin síðustu 40 árin í sögu þess. Símaskrá Henry Kissingers þykknar upp í takt við marglyttuformaða og skipulega stækkun vandamála Evrópusambandsins. Stækkunarstjórn Evrópusovétsambandsins sér fyrir því. Rauðhettuð marrar þessi glytta sem brunarúst í heimshafinu. Öllum til ills.

Í þriðja bókhaldsfjórðungi iPhone-uppgjörs þess síma sem Kissinger notar daglega, birtust í gærkvöldi myndir út kirkjugörðum evrusvæðis. Frakkaland er kafnað í sósíalisma Evrópusambandsins. Ítalía er dauðari en áður hún gekk í Evrópusambandið. Írland, Spánn og Portúgal eru lokuð inni og læst úti frá hinum alþjóðlega fjármálaheimi. Grikkland er núllað út í ekki neitt og Þýskaland hefur samkvæmt venju sparað sig í Evrópusambandshel. Þetta er áríðandi. Ætlast er nú sem fyrr til að Engilsaxneskar dráttarvélar Vesturheims dragi jómfrúnaðan ritvélaiðnað kínverja Evrópu í gang á ný; eftir að sogrör þess tæmdi önnur lönd evrusvæðisins í læstu gengisfyrirkomulagi við þetta stærsta elliheimili heimsins.

Alltaf þegar ég hugsa um hina sitjandi ríkisstjórn Íslands detta mér marglyttur í hug. Því meira sem ég hugsa um meðlimi ríkisstjórnarinnar því hrygglausari í huga mér verður þessi aðalmarglytta stjórnmálasögu Íslands. Ríkisstjórnin hefur sest að í fjörum landsins sem slím. Hún hvílir sem klessa ofan á Íslendingum í landi þeirra. Lekur þar um sem illa lyktandi og skaðlegur massi. Nályktin af ríkisstjórninni hefur borist til bræðra okkar Færeyinga og til Grænlands. Kosningasvikarinn Steingrímur J. Sigfússon tekur sér áfram há laun frá almenningi fyrir kosningasvik. Inni í sjálfri sér í stjórnarráðinu flýtur forsætisráðherraínan um í farvegi sínum. Fölnaðir geislabaugar Ögmundar lýsa austrændu rauðu yfir landið. Þetta er allt saman hryllilegt fyrir land okkar sem er undir lagt.

Ágústmánuður verður líklega eins konar Apollo-13 vakning fyrir hina mössuðu evrumiðlaelítu Evrópusambandsins. En hinn óafturkallanlegi og grunnleggjandi lýðfrelsislegi atburðarmunur er auðvitað sá, að evran sprakk á ERM teygjubyssuskotpalli Brusselveldis og lagði Evrópu Evrópusambandsins í rúst. Hún náði aldrei lengra upp en í heilabú nómenklatúru Evrópu. Því verður að stofna þar ekta sovétríki í hvelli svo apinn í evrubúrinu komist nú einn hring inni í höfuðstöðvum marglyttu Íslands í Brussel.

Ekta bílskúrskapítalismi getur allt. Hann fór alla leið til tunglsins, af því að honum langaði til þess. Kommúnistar og ESB-sósíaliseraðar sófaelítur komast hins vegar aldrei lengra en á klósettið til að sturta fólkinu niður
 
Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996
Forsíða The Economist 1996 
 
Fyrri færsla
 
 
 

Evran endurbyggir einræðið

Spánn er að endurreisa Francoveldið undir evrunni. Boðaðar aðgerðir yfirvalda Spánar í Evrópusovétsambandinu hafa nú leitt til þess að í landinu er verið að taka upp efnahags- og peningastjórn sem aðeins er hægt að líkja við efnahagsaðgerðir einræðisstjórnar Francisco Franco hershöfðingja árið 1959, segir spænska dagblaðið El País. Aldrei undir lýðræði á Spáni hafa verkfærin til þessa áður staðið yfirvöldum til boða. Þetta er aðeins hægt að gera undir stjórnarfari evru Evrópusovétsambandsins og undir alræði einræðisherra (e. dictatorship). Spánn á því miður ekki langt að sækja spínósaða ráðgjöf yfir lækinn til aðalstöðva Brusselkremlar. Líkur eru á að sparifé almennings verði gert upptækt í þessum aðgerðum. Og að sjálfsögðu er þetta gert evrunni til svo nefndrar bjargar.

Á meðan láta hámenntaðir hagfræðingar hafa sig út í landakortagerð sem sýna á fram á hvernig einstaka lönd gætu brotist út úr evrunni. Líkja má þessu við veðurkortagerð fyrir fólk sem býr í neðanjarðarbyrgjum. Eins mikilvægt og veðurathuganir eru fyrir íbúa Bunkerlands.

Segjum nú að svo ólíklega vilji til að í Grikklandi geti enn myndast eins konar óformlegt "leyniráð" sem er það samstíga í skoðunum og hafi á sama tíma þau völd —sem ei lengur í reynd eru til í landinu— að "leyniráðið" láti til skarar skríða og að Grikkland segi sig þar með úr evrunni. Athugið að Grikkland er ekki lengur til í eiginlegum skilningi, því fullveldi og sjálfstæði þess hefur verið framselt til Evrópusovétsambandsins. En segjum nú svo að þetta "leyniráð" geti myndast í þinginu og að það á einhvern yfirnáttúrulegan hátt geti teflt fram meirihluta þjóðkjörinna manna til aðgerða. Þetta er nánast útilokað. En segjum nú samt að þetta geti gerst í praxís.

Hér langar mig fyrst til að vita hvernig framkvæmdastjórn þessa ráðs ætli sér að koma nýjum peningum út í 7120 hraðbanka og 4200 bankaútibú landsins. Hvernig ætlar valdið að koma nýjum peningaseðlum út til þessara fleirri en tíu þúsund staða á meðan gríska þjóðin horfir á? Á götum úti í öllu landinu ríktu þá líklega hrikalegar óeirðir og eldar óánægju meðal þorra almennings. Ekki bara vegna myntarinnar sem kom og fór, heldur mest vegna þeirrar stemmingar þjóðsvika sem óhjákvæmilega kæmi upp í kjölfar þeirrar neyðarvarnar sem einmitt þá væri verið væri að grípa til. Gríska þjóðin hefur aldrei verið spurð að neinu er varðar aðild landsins að Evrópusovétssambandinu. Uppsöfnuð fyrirlitning og hatur á valdaelítunni myndi einhvern veginn fá útrás. Einhvern veginn.

Svarið við þessari spurningu hlýtur að vera þetta: líklegt er að aðeins sé hægt að koma seðlum út til þessara þúsunda staða undir ströngu útgöngubanni á allt fólkið í landinu.

Grikkir eiga ekki og búa ekki lengur við stjórnarskrá sem heimilar þeim að hafa neina aðra mynt en evru Evrópusovétsambandsins. Þeir búa við stjórnarskrá ESB —sem enginn þegn í landinu kaus— og í henni stendur að evra sé hin eina löglega mynt landsins. Grikkland yrði því að segja sig úr Evrópusambandinu til þess að taka upp aðra mynt. Enginn veit hvort það sé löglegt eða framkvæmanlegt án þess að grípa þurfi til vopna.

Ansi er ég hræddur um að það eina vald sem nægileg virðing sé borin fyrir og samtímis ótti ríkir af, sé einmitt gríski herinn. Það þyrfti líklega að kalla herinn á vettvang til þess að koma á útgöngubanni. Og til þess að það sé virt svo brynvarin ökutæki hersins gætu komið nýjum peningaseðlum út á nokkur þúsund staði í landinu, frekar samtímis en seinna. Átta menn í hverju ökutæki er all mikill herafli og all mörg vopn. 

Þetta myndi í praxís þýða að komin sé til valda eins konar herstjórn í landinu. Spánn myndi líklega síðar fylgja þessari aðferð eftir að Portúgal myndi nýta sér þennan sama ómöguleika ESB.

Hvað mun þá gerast næst? Og hvað mun Brussel Þýskalands og Frakklands gera þá? Hvernig ætla þeir að innleysa öll veðin? Hvað mun fólkið segja.
 
Ríkisstjórn Íslands og ESB-aðildarsinnar eru tilhangendur andlýðræðislegra afla. Þeim verður að koma frá völdum. 
 
Fyrri færsla
 

Þjóðríkjasósíalismi á yfirþjóðlegu plani ESB

Sósíalismi hefur aldrei haft neitt með fólkið að gera. Hann er í eðli sínu fjandsamur eðlisfari mannsins og var því ekki af mannkyninu uppfundinn né framreiddur fyrr en eltía betur vitandi — og helst hámenntaðra — manna skapaði hann sem tækifæri fyrir sjálfa sig, til að ná völdum yfir tilveru fólksins og því sjálfu. Þið munið öll eftir gömlu Sovétríkjunum þar sem glæpaelíta "gáfumanna" tók öll völd og hélt þeim með fjöldamorðum og hryðjuverkum gegn fólkinu í samfellt sjötíu ár. Sovétríkin eru versta manngerða plága sögunnar. Stjórnkerfi og regluverk hinna betur vitandi var þar afar skilvirkt. Talið er að allt að sjötíu milljón manns hafi misst lífið en fæstir þeirra verið jarðsettir. 

Rómarsáttmálinn og Evrópusamband hans er seinna bindi eins konar yfirverptra sovétríkja Evrópu. Í sáttmálanum stendur að stefnt skuli að "æ meiri samruna" þeirra sem undir hann gangast. En hvað er átt við með hugtakinu "samruni"? Hvað er það sem á að renna saman? Og saman við hvað á það að renna?

Í fréttum er næstum daglega talað um þetta atriði Rómarsáttmálans. Þið takið bara ekki eftir því vegna þess að þá er þetta atriði lokatakmarks sáttmálans — sem aldrei næst — kallað til sögustundar yfir alþýðu manna sem "samhæfing" löggjafar og alveg sérstaklega sem samhæfing "efnahags og peningamála". Samhæfing meiri samhæfing og samþætting. Ef við á þessu plani skilgreinum hugtakið samhæfing þá fáum við út eftirfarandi;

Eitt ríki samþykkir að gera fólki sínu eitthvað slæmt gegn því að annað eða önnur ríki geri eitthvað jafn slæmt og illt við fólkið í sínu ríki. Þetta er það sem kallað er samhæfing. Á ensku kallast þetta "coordination". Þetta eru eins konar sampyntingar. Dæmi: EMS, ERM, EMU, EFS, ECJ og EU.
 
Þegar um ESB er að ræða þá gildir þetta um allt líf fólksins í öllum 27 ríkjum hinnar yfirþjóðlegu samsteypu umboðslauss valds. Árangurinn er þjáning, hörmungar, nauð og fátækt þjóðríkjasósíalisma á yfirþjóðlegu plani. Það er þetta sem samhæfingin gengur út á. 

Þetta er samsærið gegn fólkinu. En það er einmitt það sem sósíalismi gengur alltaf út á. Og hann er á ný orðinn samþvættingur stórtapara í Evrópusambandinu og mun leiða meginland Evrópu til endurnýjaðrar glötunar.
 
Fullt Evrópusamband þéttriðið samhæfðum töpurum: ÞJÁNING
 
Fyrri færsla 
 
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband