Leita í fréttum mbl.is

Já. Bara hægt undir ESB

 "A good plan, violently executed now, is better than a perfect plan next week."
- George S. Patton

Gríska ríkisstjórnin hefði aldrei getað verið að mölva þjóðríki Grikkja eins grunnleggjandi niður og gert er nú undir yfirríkislegu valdi Evrópusovétsambandsins í Berlín, París og Brussel. Þetta hefði aldrei getað gerst hér, það er alveg rétt - enn sem komið er. En það sem meira er; Þetta er einmitt sjálfur tilgangur Evrópusambandsins. Að yfirríkislegt vald algerlega óábyrgt gagnvart kjósendum öllum og alls staðar á sama tíma, komi og endurhanni ríki borgaranna í mynd Evrópusovétsambandsins. Þetta gerði Moskva í öllum gömlu sovétríkjum sínum og í jaðarríkjum. Fræ voru jafnframt send í stórum stíl til Norðurlandanna og þeirra á meðal var sjálft Ísland. Fræberar yfirríkisvalds Kremlarkommúnista báru fræin hingað og reyndu að gróðursetja þau hér í íslenskri mold á sama hátt og Samfylking Vinstri grænna er að gróðursetja fræ hins nýja Evrópusovéts hér í dag. Munurinn á þessu er í eðli sínu enginn, nema tækninni sem beitt er. Evrópusambandið — og allar stofnanir þess — er fyrir löngu orðið ósnertanlegt. Það er orðið gangster-ríki í ríkjum þess. Sovét þess mun dafna ákaft í krafti þeirra hörmunga sem það veldur og stórveldi ESB-gangstera rísa með hægfarandi en öruggum stíganda. Svo koma í lokin nýjar útrýmingarbúðir með öllum græjum, samkvæmt venju. Sú tækni er alltaf á endanum notuð í rústum eyðilagðra þjóðríkja sem minna mest á keisaraveldi og þriðju gráðu evrópsk sovétríki, eins og ESB verður. Þessi sjúkdómur er ólæknandi á meginlandi Evrópu. Og Bandaríkjamenn eru farnir. Doktorinn er farinn heim.

"Fixed fortifications are monuments to man's stupidity."
- George S. Patton

Þjóðríki Grikkja er verið að rústa og því mun verða rústað. Þeir hafa misst af tækifærinu til að útfæra hina efstu línu hér að ofan. Vikan er liðin. Glugginn fyrir Grikkland hefur lokast. Grikkland hættir líklega að vera til. Þeir sem hugsa sjá að Grikkland getur lítið sem ekkert gert nema að herinn taki þar völdin og verndi þau með vopnavaldi. En það mun ekki gerast fyrr en allt er orðið of sótsvart til að hægt sé að þvo hendur neinna hreinar innanlands. Enginn mun þá samt þora að snerta á Grikklandi í návist ESB-veldisins, sáttmála þess, laga og dómsvalds. Þetta er ennþá verri staða en af esb-heilasködduðum upphugsast gat þegar ESB þeirra var smyglað inn í tilveru Evrópubúa á upplognum forsendum allar götur frá og með árinu 1955. Engin leið er út. Og engin leið verður heldur út fyrir nein þau ríki sem gengist hafa sambandinu á hönd. Svona fer þegar stjórnmálamenn gera sjálfstæði og fullveldi ríkja að pólitískri skiptimynt á kauphallargófi hins pólitíska geira þjóðríkja undir áföllum. Eitt átakanlegasta dæmi um pólitíska svikamyllu af þessu tagi eru til dæmis kosningasvikarar Vinstri grænna sem í slagtogi við Samfylkingu kratakomma eru að reyna að selja Ísland fyrir setu í ráðherrastólum. Svona fer pólitísk græðgi illa með menn og heil lönd.

"In case of doubt, attack."
- George S. Patton
 
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband