Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

. . you see me screwing everything that moves?

. . á Nixon að hafa sagt. 

Fyrsti fundur ríkisstjórnar George Walker Bush hófst á slaginu, eins og allir fundir hans gerðu. Einn stóll við ríkisstjórnarborðið stóð þó enn auður. Hver er ekki mættur?, spurði Bush. Þetta er víst stóll Colin Powells utanríkisráðherra, var svarað. Læsið hurðinni!, skipar Bush. Síðan líður smá stund áður en bankað er á læsta hurðina. Og sem þá er opnuð (lykli snúið) og inn glíður, sem sést, innbankaður utanríkisráðherrann, Colin Powell. Got you!
 
Að lenda í varnarstöðu er erfitt. Sérstaklega frá fyrsta degi.  

Þetta gæti orðið óþægilegt, þ.e.a.s þessi frétt hér að neðan, eins og ýmislegt annað. Að CIA sofi hvar sem er.
 
 
Bein krækja, svona til vara
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Hátt fall hjá flekklausum foringja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðgöng hafa leyst efnahagsvandamál Íslands

Eins og allir sjá, hafa jarðgöng hér og jarðgöng þar, leyst flest ef ekki öll efnahagsvandamál Íslendinga til frambúðar. Sérstaklega þau skattafjármögnuðu. Samgöngubótakerfi íbúa höfuðborgarsvæðisins um ferðaland þeirra hefur þegar gerbylt hinni efnahagslegu tilveru þeirra í öllu landinu. Nú getur því stór hluti landsframleiðslunnar ekið inn og út um jarðgöng oftar en einu sinni á dag. Þingmenn kjördæma líka. Hvað er í bifreið þessari um landið og hvert það er að fara, skiptir ekki lengur máli. Þetta er svo fullkomið. Þessar sköpuðu stéttir hagkerfisins ná þetta langt út í íslandið. 

Og svo eru komin námskeið fyrir þá sem fara skokkandi um jarðgöng í göngugrindum ríkisins til að geta horft á fiskistofnana synda í taprekstri fram hjá landinu í sólarlagi heils þjóðríkis. Það er svo fallegt að horfa þannig inn í bankahvelfingu selvossbankakerfisins. Jarðgöng auka svo afl og afköst þessarar miklu verðmætasköpunargáfu þingmanna.

Hér áður fyrr þegar vöruflutningabílstjórar áttu bíla sína sjálfir -og lögðu allt sitt undir- þá þurftu þeir ekki að fara reglulega í námsskeið upp í munna jarðgangakerfis höfuðborgarsvæðisins. Og fáheyrt var að nokkurn tíma yrðu þeir fyrir slysum eða skemmdu eignir sínar og farm þann sem svo nauðsynlegur var heimahögum þeirra. Pláss var líka fyrir gospillur og brenni.

Þeir fluttu og fluttu vistir og birgðir og pössuðu upp á græjunrar með því að aka eftir þeim aðstæðum sem þeir sjálfir og bæjarfélög þeirra höfðu oftar en ekki sjálf skapað.  

Jarðgöng hér og jarðgöng þar hafa einnig leyst varnarmál höfuðborgarsvæðisins með því að verða að eins konar loftvarnarbyrgjum gegn árásum raunveruleikans á Róm. Svo nú á bara eftir að byggja lestarkerfið sem tran-sporterar Rómarbúa í byrgin er loftárásir þingmanna á landbúnað og sjávarútveg hefjast með teppabombun. Takmarkið er að 200 tonn af járnarusli þurfi til að flytja hvern mann í byrgin.  

Best að fá sér gospillu og brenni, spila sólarlagið, og taka sér varanlega biðstöðu á meðan fjárfestin um kraga Reykjavíkur hengir Ísland.

Byggðastefna undir sjálfstæðisyfirlýsingu felst ekki í því að troða og kjördæmapota peningum inn í fjöll þingmanna. Hún felst í stefnumörkun. Í sjálfri grundvallarstefnunni fyrir þjóðríkið. Í gamla hvatakerfi landnáms Íslendinga.

Vestur-Þýskalandi 1986, fjórum árum fyrir hrun

- og ESB ekki til

Fyrri færsla

Endurskoðað "minnisblað fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kraganum"

 


Endurskoðað "minnisblað fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kraganum" [u]

Vilborg Hansen hefur innt prófkjörs-frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í því sem kallað er Kraginn —utan um hvað veit ég ekki— eftir afstöðu þeirra til þess hvort leggja eigi fullveldi og sjálfstæði Ísland niður og sem sagt; hvort skríða eigi með þessi fjöregg 18. stærstu eyju veraldar í einum hangandi poka um kraga þess inn í Evrópusambandið að eilífu.

Einföld spurning Vilborgar til frambjóðendanna var þessi:

Hver er afstaða þín til inngöngu Íslands í ESB?

Þess ber að geta að á tvennum vefsíðum hafa menn þegar flokkað svörin sem Vilborg hefur fengið; hér og hér.

Að mínu mati er svar Ragnars Önundarsonar sérstakt ósvar og því ranglega flokkað. Það er ekki flokkað í réttan flokk því það er svona;

 

Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur; "Innganga er ótímabær. Hagsveiflur kæmu fram í atvinnuleysi. Íslenska hagkerfið þarf að verða áhættudreift orkuhagkerfi áður.“

 

Prófkjörsframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur og sem hérlendis varaði við bankabólunni, virðist vera fylgjandi afsali Íslands á fullveldi og sjálfstæði Lýðveldisins yfir til Evrópusambandsins, þegar verðið sé rétt. Honum finnst —að mínu mati— að salan á frelsinu, fullveldinu og sjálfstæðinu sé hins vegar ekki "tímabær" núna (þannig orðar hann það), og þá vegna þess verðs sem nú fengist fyrir fjöreggin þrjú, sem pólitíska skiptimynt inni á kauphallargólfi hins pólitíska hagkerfis ESB, sem orðið er svo tröllrisavaxið um alla Evrópu, að sovétið það nálgast.

Ragnar Önundarson virðist því bíða eftir verðhækkunum. Bíða eftir því að búið sé að breyta hagkerfinu þannig að atvinnuleysi komi ekki út úr því sem hann kallar hagsveiflur og að áhættudreifing í "orkugeiranum" verði meiri (stærri snjóþrúgur til að ganga gjaldþrota á).

Skoðið öll svörin hér á opinni vefsíðu Vilborgar; Afstaða frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Kraganum til inngöngu Íslands í ESB. 

Ég var djúpt snortinn af svari Elínar Hirst, því ég ER fyrst og fremst mannleg tilfinningavera. Ekki vara. Hennar svar er svona;

 

Ísland á ekki að fara inn í ESB. Ástæðan er fyrst og fremst sú að við viljum ekki missa fullveldi okkar sem við börðumst fyrir en sjálfstæðisbarátta okkar var erfið en skilaði loks árangri 1918 þegar við fengum fullveldi. Við misstum fullveldið í hendur Noregskonungs árið 1262, í kjölfar Sturlungaaldar, eða borgarstríðs, og fengum það ekki aftur fyrr en tæpum 700 árum síðar. Þá fór Íslands loks að blómstra eftir margra alda eymd. Fullveldið er okkur verðmætara en nokkuð annað og verður í raun ekki metið til fjár. Síðan má nefna margar aðrar ástæður, eins og til dæmis ástandið innan ESB, en þetta er sú mikilvægasta.“

 

Þegar hingað er komið í sögu þessari, höfum við áður fengið serveraðan ískaldan hagsmunamat —reyndar gaddfreðinn— og svo var æla borin á borð fólksins í eftirrétt og því sagt að kyngja henni. 

"In case of doubt, attack."

- George S. Patton 

 

Uppfært; Jón Baldur L'Orange hefur nú birt súgþurrkaðan lista yfir til-prófs-frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Kraga þessum, sem áður hét Suðvesturkjördæmið á Íslandi; og þar úr varð ekki allt að heyi í harðindum þessum. Hafi hann þökk fyrir.

Í Suðvesturkjördæmi er mér nú sagt að í séu sveitarfélögin: Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Álftanes, Kópavogsbær, Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær, Kjósarhreppur og ef til vill Tímabær.

Fyrri færsla

To be, or not to be, in that sal 


To be, or not to be, in that sal

 
Það er þýðingarmikið, það er lífsspursmál, að slíkir menn séu til í þessum sal núna. Ef þeir finnast ekki hér, er réttast að taka undir með Sr. Sigvalda, að nú sé kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér.

 
To be, or not to be: that is the the question. Og hún mun verða æ áleitnari fyrir þjóðríkið
 
 
Fyrri færsla
 

Merck stöðvar afhendingu á krabbameinslyfi til grískra sjúkrahúsa

Þýska lyfjafyrirtækið Merck KGaA vill ekki lengur afhenda krabbameinslyfið Erbitux til sjúkrahúsa í opinberum rekstri í Grikklandi. Þetta segir talsmaður fyrirtækisins úr aðalstöðvum þess í Darmstadt í dag. Sjálfur yfirmaður fjármála hjá Merck KGaA, Matthias Zachert, segir enn fremur í samtali við Kauphallartíðindi Þýskalands, að sjúkrahús í opinberum rekstri í Suður-Evrópu-Evrópusambandsins séu þau sjúkrahús sem verst fara út úr evruupptöku Evrópusambandsins. Hann segir að Grikkland sé enn sem komið er eina landið í heiminum sem fyrirtækið neitar að afhenda lyfið til. Spánn sleppur enn sem komið er, en naumlega, fyrir horn forstjórnar Merck KGaA í sameinuðu Þýskalandi.

Grikkland gekk í Evrópusambandið árið 1981 —fyrir 31 ári síðan— og hefur á því tímabili þegið 97 miljarða evra af styrkjasukki frá aðalstöðvum Evrópusovétsambandsins í Brussel. Þeir áttu að byggja samfélag Grikkja upp.

Þann 1. janúar 1999 var evru-sogrörs-mynt Evrópusambandsins hleypt af stokkunum úr skipasmíðastöð ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, eftir misheppnuðustu ríkjasameiningu veraldarsögunnar. Tilgangur myntarinnar af Þýskalands hálfu frá upphafi, var að bjarga rústuðum efnahag sameinaðs Þýskalands sem þá hét hinn sjúki maður Evrópu, á kostnað annarra ríkja heimsálfunnar.

Aðalefnafræðingur sameinaðs Þýskalands nú, er frú Angela Merkel. Hún er þess utan að upplagi og mennt stórefnafræðingur frá Austur-Þýskalandi kommúnista; DDR.

Tvær krækjur

FT: Merck halts supply of cancer drug to Greek hospitals

Der Spiegel: Wolfgang Munchau on why German unification was a historical mistake 

Fyrri færsla

Dynkur, marr, hvarf


Dynkur, marr, hvarf

Þar sem ég er ekki meðlimur í hinu lokaða intraneti dottið kom af intraneti Facebooks - og verð það aldrei - þá leyfi ég mér að gera athugasemd við pistil Frosta Sigurjónssonar hérna á því er nefnist Internetið.

Frosti skrifar;

Árið 2012 er staðan sú að seðlabanki landsmanna skapar aðeins 5% af peningamagninu en eftirlætur einkabönkum að skapa þau 95% sem á vantar. Bönkum sem eru að mestu í erlendri eigu sem þýðir að allur arður af peningaútgáfu* rennur þjóðinni úr greipum.

Æi; dynkur, marr, hvarf;

Altså minn kæri Frosti. Þjóðin getur ekki misst af neinu er varðar rekstur Seðlabanka Íslands og peningakerfisins, því hann ER þjóðin. Þannig eru ekta seðlabankar ekta ríkja með ekta mynt.

Fjármálakerfið er ekki Seðlabankinn því Seðlabankinn er þjóðin. Það er eins gott að það sé þannig áfram því þjóðin! ætlar EKKI að verða gírkassi fjármálakerfisins - þar sem 5 prósentin óku út um heiminn allan gíruð upp í áttugasta gír, eins og til dæmis Deutsche Bank gerði á sig í bókum sínum er kreppan skall á árið 2008 - og hangir því nú sem útrúlluð drepsótt um alla hálsa Evrópu. Fjármálakerfið er EKKI peningakerfið.

Síðan er þetta hér, fyrst við erum á annað borð að þessu: Stjórnmálamenn sem loka sig af inni á Facebook —sem krefst aðildar— ættu að skoða Internetið. Það er opið öllum. Fyrir allar kosningar í Lýðveldi okkar Íslendinga ætla ég ekki að skrá mig þar, því ég kem með vegabréfið mitt á kjörstað. Ég er nefnilega í Þjóðinni. Í stóra félaginu. ÞAR er ég skráður, en ekki á Facebook.

Svo ef formaður Sjálfstæðisflokksins kann á tölvu þá ætti hann fyrst og fremst að getað birst kjósendum sínum á Internetinu —og þar með öllum þeim sem í stóra félaginu eru— þar sem ALLIR geta lesið hann; án aðildar-skráningar. Nema að þetta sé lokað home-party hjá honum.

Það er hallærislegt að þurfa að segja þetta. En nú er það sagt. 

Takk

 

Var klárt í farsímum þegar árið 2007 f.h. - þ.e.a.s áður en gírkassi fjármálakerfisins bræddi úr sér

Svona

 


"Skýjatölvun"

Í enda dags alla virka daga ársins eru sendir út tölvupóstar frá fjölmiðlum og fjármálafyrirtækjum sem bera yfirskriftina "lokarinn" (The Closer). Þá er átt við lokun kauphallar-markaða. Hvað gerðist í dag. 

En hvað ef markaðir hafa ekki náð að opna. Er þá hægt að skrifa heim um lokun. Og þá um lokun hvers? Lokun lokunnar? Og ef markaðir Bandaríkjanna eru lokaðir, er þá eitthvað um að skrifa heim til fólks í heimi þessum? Nei. Ekki svo mikið, nema þá einmitt um veðrið á lokuðum mörkuðum Bandaríkjanna.

Larry Leibowitz rekstrarstjóri kauphallar New York borgar (NYSE) sendi eftirfarandi frá sér í kvöld. 

The Closer: Larry Leibowitz, NYSE Euronext's chief operating officer, warned of continued market infrastructure problems. "We are shooting hard to open tomorrow and fully expect to do so, but lots of firms are going to have either connectivity problems, or other things, so we are urging all firms to get out there and test their back-up," Leibowitz said (Reuters).

Oh dear, backups!

Skýjatölva sú sem óvart gekk yfir austurströnd Bandaríkja Norður-Ameríku er enn að fara í stígvélin sín. Alltaf skal það því vera best að drepast íklæddur stígvélum sínum. Því annars þarf maður bara að fara í þau aftur; reboot.
 
Þetta verður spennandi.
 
Fyrri færsla
 

Evrustöðugleiki: Smásala á Spáni hrunin um 10,9 prósent á 12 mánuðum

ÞINGMENN SÆKJA UMBOÐ SITT TIL KJÓSENDA 

ESB-umsókn Jóhönnu & Steingríms

Hæsta mælda atvinnuleysi í hagsögu Spánar er nú að skila sér inn í tröllvaxnar talnaraðir Eurostat hagstofu Evrópusambandsins. Alla leið frá INE-hagstofu Spánar berast eftirfarandi fréttir frá þeim starfsmönnum INE sem enn er borgað fyrir halda utanum Kúbukúlupenna stofnunarinnar, og sem eitthvað svo undarlega eru að þorna upp í takt við uppgufun skattatekna spænska ríkisins í evrum. Skrítið.

ESB-umsókn Ögmundar & Steingríms (umboðslausir)

Atvinnuleysi meðal allra íbúa Spánar mælist nú það hæsta í hagsögu landsins: 25,02 prósent. Þar kom að því að tími ESB kæmi.

ESB-umsókn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur (umboðslaus)

Rúmlega 5,7 milljónir Spánverja eru atvinnulausir í evrum.

ESB-umsókn Árna Þórs Sigurðssonar (umboðslaus)

Atvinnuleysi hjá ungu fólki er 52,34 prósent. Kannski heimsmet og einnig í evrum.

ESB umsókn Svandísar Svavarsdóttur (umboðslaus)

Tæplega 800 þúsund Spánverjar misstu vinnuna á síðustu 12 mánuðum. Stöðugleikinn.

ESB-umsókn Ögmundar & Álfheiðar (umboðslaus)

Um 1,7 milljónir heimila á Spáni eru þannig stödd að enginn á heimilinu hefur atvinnu; eru því orðin dæmigerðar sósíaldemókratískar geimverur í eigin hagkerfi og í evrum: allir á heimilinu eru atvinnulausir. Um 300.000 heimili bættust í þennan hóp á síðustu 12 mánuðum.

ESB-umsókn Lilju Mósesdóttur (umboðslaus)

Smásala í landinu dróst saman um 10,9 prósent á síðustu 12 mánuðum. Að hugsa sér. Hvernig getur staðið á því? Samkvæmt stjórnmáli Jóhönnu & Steingríms ætti hagkerfið í evrum að geta staðið eitt og sér - eins og monolit á geimferðalagi úr öðrum heimi

ESB-umsókn Jóhönnu & Steingríms


Nýja Evrópa: Sement nú óþarft, steinaldarstigi komið á

Í evruríki Spánar í Evrópusambandi Samfylkingar Vinstri grænna, hefur þeim ánægjulega áfanga verið náð að sementsframleiðsla og eftirspurn eftir sementi í hinu og áður fjórða stærsta hagkerfi myntsvæðisins, er nú komin niður á það magn sem þurfti til að undirbúa nýja afsteypu af einum einræðisherra árið 1967. Sem sagt; tæplega hálfa öld aftur í tímann.
 
ESB-stöðugleiki; Oficemen says the industry is suffering the "worst crisis in its history."

Þetta er þá niður um einn þriðja af því sementi sem þurfti til að steypa Spán niður á bak við járntjald evrunnar árið 2011. Stöðuglekinn er svona mikill. Og árið 2011 var miðað við árin þar á undan, niður um einn fjórða af því magni sements sem ECB-seðlabanki evrunnar notaði til að steypa landinu af stóli, öll árin sem evru brjálsemisbandalags ESB var hrært út í steypuklossa þá er nú hanga fastir um hálsa Spánverja sem ein milljón óseldra nýrra íbúða, eins og evran hangir um alla hálsa Grikkja, Portúgala, Íra, Slóvaka, Kýpur und so weiter. 

Furðulegt er nú að hugsa til þess hve mikil áhersla var lögð á að aðskilja bandaríska fólkið í herstöðinni í Keflavík frá Íslendingum á sínum tíma. Greinilegt er á fréttinni hér undir að sá aðskilnaður hefur ekki borið neina ávexti inn í speglasal stjórnarráðsins í Reykjavíkurkreml. En þar er nú unnið nótt sem alla ónýta daga að greftri grafar Lýðveldisins beint niður úr forsætisstólum ríkisstjórnarinnar, undir götur borgarinnar, og upp í aðalbækistöðvar Evrópusovétsambandsins á Íslandi, sem þaðan fjármagnar baráttu ríkisstjórnarinnar gegn lýðveldi Íslendinga.
 
Hin gildandi 10-ára áætlun Evrópusovétsambandsins ber nafnið Lissabon-2020. Hún heitir í höfuðuð á Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins. Þetta kemur.
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Barist um nýja og gamla Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuð Stefáns Ólafssonar að tærast upp ofaní sandi ?

Háskólafræðimaðurinn Stefán Ólafsson sem mér virðist vera eins konar þáttastjórnandi top-of-the-microhagfræði-pops á milli þjóða, skrifar á heimasíðu sinni að;

Írar kusu sjálfir að bjarga bönkunum en voru ekki neyddir til þess. ESB hjálpaði þeim hins vegar að glíma við skuldavandann, gegn kröfum um eigin aðhald og niðurskurð

 

Einmitt það Stefán. Elíta Evrópusambandsmanna smíðar bát sem heitir evra. Á einum góðviðrisdegi hagsögunnar er farið út að sigla á evrubátnum. En all skyndilega er góða veðrið búið og stormur er skollinn á. Þá segir stóra gula hænan við Írland; "ef þú stingur írsku þjóðinni í gatið á bátnum þá komumst við lifandi heim". Reynt er að róa í land. En báturinn er að brotna meira og meira í spón. Portúgölum er þá boðið að "bjarga sér" með því að troða þjóðinni í gat númer tvö, svo sökkvandi Þýskaland og Frakkland komist nú einhvern tíma heim í Wunderland. En allt í einu dettur vélin niður í gegnum þurrafúinn botninn á bátnum og Spáni er boðið að "bjarga sér" með því að troða sér í það risavaxna gat. Akkeri lýðræðisins er fyrir löngu dottið í sjóinn og virkar báturinn nú eins og trollhleraður ryðdallur; eða eins og síbakkandi steypubíll sem gubbar úr öfugt hannaðri rúllunni og steypir sig sjálfur í kaf.

Sem sagt: Elíta Evrópusambandsins í Brussel setur á laggirnar hið stórpólitíska myntbandalag Evrópusambandsins (EMU) sem var og er enn svo hörmulega gallað og illilega undirförult meint frá upphafi, að það setti Írland í þá aðstöðu að annað hvort myndi markaðurinn skjóta myntbandalagið allt í kaf og öll bankakerfi þess samtímis, nema að því tilskyldu að Írland gengist í ábyrgð fyrir öllu misfóstrinu heima í sínum veika hlekk EMU-keðjunnar; og það á meðan hálaunuð hrossháruð ESB-elítan fyndi sér brotlegar leiðir yfir alla sáttmála myntbandalagsins og bryti í leiðinni niður allar þær efnahagslegu sóttvarnargirðingar sem settar höfðu verið upp; til þess að einmitt það sem gerst hefur gæti ekki gerst, því það myndi eyðileggja sjálfa tilvist ríkjanna í myntbandalaginu og þeirra landa sem þar sitja nú einmitt inni sem fangar; allt samkvæmt áætlun. Hér er atburðarásin eins og hún var á Írlandi: 

Innvortis fjármálaleg borgarastyrjöld: hvað er það? 

 ***

Evru- og ERM II svæði Evrópusambandsins; mars 2009

Þegar fjármálakreppan skall á myntsvæði evru og allt brást

- nema saklausir skattgreiðendur

- fjármálalegur störuleikur eftir Gunnar Rögnvaldsson

 

 
E. Hlutabréfamarkaðir byrjuðu að gefa sig

V. Hlutabréf banka- og fjármálastofnana urðu verst úti því hér var einmitt bankabóla að springa

R. "Fjármálamiðstöðin Írland" sem átti orðið mikið undir bankastarfsemi komið, horfði fyrst evrulanda á hlutabréfaverð banka- og fjármálastofnana nálgast fastfrosin blómabeð millibankamarkaðs evrusvæðis á ljóshraða. Sumir bankar áttu aðeins fjögur cent eftir niður í ekki neitt, eftir hafa fallið frá 21 evru hátindi og niður í það núll sem þeir eru enn þann dag í dag

U. Í örvæntingu — og af því að Írar vissu að þeir höfðu enga mynt né seðlapressu — þá ákvað ríkisstjórnin að gangast í ábyrgð fyrir öllum skuldbindingum innlendra banka í landinu. Þetta var örvænting áttavilltra manna og gert til að reyna að sporna við því að allir peningar færu á brott til útlanda úr bankakerfi landsins. Þetta er að sumu leyti sænska EMS-örvæntingar-líkanið frá því í nóvember 1992. En Svíar gátu þetta þá, af því að þeir áttu sína eigin mynt og seðlabanka — og gátu í kjölfarið fellt gengi sænsku krónunnar um 35 prósent til að koma hjólunum í gang á ný — og þannig varðveitt ytra lánstraust og greiðslugetu ríkissjóðs sem þurfti þá ekki, einnar myntar vegna, að þurrausa út í ekki neitt í atvinnuleysisbætur. Sænska ofurríkið er þó ekki, 20 árum síðar, alveg komið út úr bönkunum enn

S. Við þetta minnkaði fjármagnsflóttinn frá Írlandi nokkuð og hrun hlutabréfaverðs fjármálastofnana landsins hægði dálítið á sér

V. En við þetta hófst ofsafenginn fjármagnsflótti frá þeim evruríkjum sem gáfu ekki út auknar ábyrgðir handa sínum bönkum. Hlutabréfaverð þeirra féll hraðar og hraðar. Fjármagnsflótti úr löndum þeirra jókst og jókst  þannig að eiginfé bankanna tók að gefa eftir og nálgast lögleysu

A. Þá kom ríkisstjórn Austurríkis sem peningalegur klæðaumskiptingur út úr skápnum og gekkst í auknar ábyrgðir fyrir sínu bankakerfi
 
Ð. Þar með voru fordæmin sett á myntsvæðinu og þau ríki sem gengust ekki í auknar ábyrgðir fyrir sínum bankakerfum, gátu valið um að horfa á hlutabréfaverð fjármálastofnana sinna keyrt niður í jörðina og peningana yfirgefa landið — þ.e. flýja til þeirra evrulanda sem buðu betri ábyrgðir - eða að öðrum kosti hósta upp þeim ábyrgðum sem þeim af bjálfum í Brussel hafði verið sagt að aldrei myndu þurfa að koma til. Löndin væru jú í skjóli stærstu fljótandi peningavitleysu heimsins; þ.e. í myntbandalagi Evrópusambandsins og seðlabanka þess. Þeim hafði verið sagt að sóttvarnargirðing Maastrichtsáttmálans myndi koma í veg fyrir að áhættutöku einkageirans væri smyglað svona yfir á herðar skattgreiðenda (ríkissjóðs). En nú er Maastrichtsáttmálinn sem sagt brotinn í spón og orðinn að gjalli á 20 ára afmæli sínu.

I. Þarna geisaði eins konar innvortis fjármálaleg borgarastyrjöld á milli evruríkja. Ríkin yfirbuðu hvert annað með ábyrgðum til þess að reyna að sporna við fjármagnsflótta og hruni hlutabréfaverðs fjármálastofnana í sínu landi, hvert fyrir sig. Svona er að vera á hættusvæði

Ð. Danska ríkisstjórnin, sem síðar varð að láta undan þrýstingi, kom frekar seint út til að veita aukna bankaábyrgð. Og í þeirri fréttatilkynningu sem danska ríkisstjórinn sendi frá sér, voru nokkrir frekar óljósir punktar um það winding-up company (hluti af Finansiel Stabilitet) sem átti að taka sig af föllnum bönkum undir líkfylgd ERM-II fyrirkomulagsins. Þetta varð til þess að Danske Bank í mars 2009 var aðeins hársbreidd frá því að verða lagður í rúst með þeim 30 krónum sem eftir voru af 230 króna hlutabréfaverði bankans. Danmörk er í ERM II og því bundið á báðar fætur og hendur. Hún varð að hlýða hjörðinni til heljar, því annars væri hætta á gengishruni og þá myndi umsaminn svo kallaður gagnkvæmur "ERM-II stuðningur" frá ECB-seðlabanka Evrópusambandsins gufa upp eins hratt og hann gerði gagnvart seðlabanka Bretlands, haustið 1992. Ný fréttatilkynning var því send út í hasti til að reyna að róa markaði, hindra fullkominn fjármagnsflótta úr landinu og þurrð. Nú er svo komið að fjórum björgunarpökkum hefur verið hent til bankakerfis Danmerkur og sá fimmti er í smíðum. Því góði minn, Þýskalandið sjálft hefur nefnilega varið einum stærsta hluta landsframleiðslu allra evruríkja til bjargar sínu eigin bankakerfi. Þýskaland ræður alltaf í praxís. Og þú fylgir eftir sem ESB hundur

Þegar þarna er komið sögu er peningagólfið á myntsvæði ECB-seðlabanka evrusvæðis orðið að eggjaskurn. Það er orðið svo þunnt að hundrað þrjátíu og sex tommu snjóþrúgur þurfti að panta fyrir hættuför bankastjórnar ECB út á það. Einn maður, stuttu síðar, stóð þó af eigin sannfæringu nægilega uppréttur til að geta náð því að kasta af sér þvaginu yfir lotnar axlir kanslara Þýskalands. Hún fékk í kjölfarið hárþurrku að gjöf frá Braun. Þetta var Axel Weber seðlabankastjóri Þýskalands, sem síðan gekk út og hætti af beinum viðbjóði. En vatn hans situr þó enn á sínum stað. Framundan er því browning-burst lagning fyrir öll lönd ESB í hárþurrku kanslarans

Og þarna sitja þessar ríkisstjórnir og Brussel evrulanda nú, með makkverk sín. Heimavinnan fór aldrei fram. Af evrum urðu þær apar. Gagnslausasta mynt veraldar var svo illa upp hugsuð að Evrópa liggur nú í rústum, hennar vegna

Það var gott að á Íslandi sátu ekki svona aular í forsæti og við peningavöld haustið 2008. Það hefði orðið óbærilegt fyrir okkur öll. Fullveldi Íslands var þá notað og sjálfstæð íslensk króna gerði þeim það mögulegt. Annars værum við bust
 
Það þarf að nota vöðva frelsisins. Annars visna þeir
 
Bankakerfi flestra evrulanda komust í lausafjárþrot frá og með árinu 2008 og svo aftur um miðbik síðasta árs og eru nú enn aftur að komast í sama þrot. Þetta gerðist vegna þess lánveitingar á milli banka —interbank-lending— stöðvuðust. Þær stöðvuðust vegna þess að bankarnir vissu ekki hver af þeim á markaðinum voru að deyja. Fullkomið vantraust ríkti því bankanna á milli. Þeir treystu ekki hvor öðrum fyrir einni evru yfir nóttina

Í Bandaríkjunum kom bandaríski seðlabankinn —The Federal Resverve— í veg fyrir svona vantrausts-ástand á millibankamarkaði innan þjóðríkis Bandaríkjamanna með því að þvinga (skylda) alla banka í landinu til að taka við björgun (bail-out-money). Alveg sama hver staða þeirra var. Þar með vissu allir bankar í landinu að enginn þeirra var á leið í þrot vegna erfiðrar lausafjárstöðu. Þetta gat bandaríski seðlabankinn gert af því að Bandaríkin eru sjálfstætt fullvalda alvöru þjóðríki - og þetta virkaði. Svona er að hafa skjöld, sverð og Þórshamar. Þá ræður maður

Tvisvar sinnum síðan kreppan skall á síðsumars 2008 hefur seðlabanki Bandaríkjanna enn fremur þurft að koma öllu bankakerfi evrulanda til björgunar vegna þess að millibankamarkaður evruríkja virkaði ekki vegna viðvarandi vantrausts bankanna á milli. Þeir gátu því ekki lengur staðið við dollara-skuldbindingar sínar. Og enginn alþjóðlegur banki vildi lána þeim dollara til að borga þessar dollara-skuldbindingar. The Fed opnaði þá FX-SWAP-línur, þ.e.a.s gjaldmiðlaskiptalínur yfir til ECB-seðlabanka Evrópusambandsins upp á gátt til að bjarga heiminum frá hruni. Ef millibanka-markaður evrusvæðis hefði virkað þá hefðu evrumenn átt að geta bjargað sér sjálfir fyrir tilstilli ECB-seðlabanka Evrópusambandsins

En ECB-seðlabanki Evrópusambandsins er ekki alvöru seðlabanki. Hann er einungis seðlabankalingur, sem enga stjórn hefur á neinum peningamálum

Svona er að búa við platmynt og seðlabankaling. Það gerir Írland því miður. Þar hefur skorturinn á alvöru mynt og peningastjórn valdið neikvæðu framlagi til hagvaxtar í landinu í samfleytt 38 mánuði í röð. Evran og vanskapað peningakerfi hennar hefur dregið írska hagkerfið niður í samfleytt 38 mánuði - ofan í allt annað. En fyrst sprengdi ECB-seðlabankalingurinn Írland í loft upp með því að búa til stærstu fjármálabólu veraldnar; EMU
 
Við skulum ekki minnast á sjálft Grikkland á þessu hættulega augnabliki í sögu hinnar innvortis fjármálalegu borgarastyrjaldar sem Evrópusambandið hefur stofnað til með evrunni inni í ESB. Samúð mín með Grikkjum er djúp. Hún er miklu dýpri en samúð mín er með Steingrími J. Sigfússyni fyrir froðusnakk sitt frá greiðsluvanda yfir í heilshugarþrot. Einungis blaðurmenni haga sér svona

Myntmálið er hundrað sinnum dýpra mál en þú heldur. Þau eru um það bil sjálft framkvæmdavald fullveldisins
 
Hugsið um þetta
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband