Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hæsta fjalli í holulandi falið að gera úttekt á Evrópusambandinu

Þetta fjall —háskólarnir— á nú að skyggnast fyrir um hvernig útsýnið yfir Evrópusambandið er. Á hvaða leið sambandið er og hvernig það muni þróast. Þetta er sama háa fjallið og sá um að sjá fyrir um þróun Sovétríkjanna. Sama fjallið og sá fyrir hrun þeirra daginn eftir að þau hrundu. Hið sama gildir um önnur hrun og gos úr veraldarfjallinu. Þeir sáu ekkert fyrir, nema sjálfum sér

Sérfræðinefnd ríkisstjórnarinnar umhverfis ESB-málin er sjálfur útvarpsturn Evrópusambandsins á Íslandi. Og ríkisstjórnin er komin í áskrift hjá því

Ríkisstjórnin er þar af leiðandi að verða, eða er kannski orðin, aumingi með kryppu. Lokið vinsamlegast mörgum háskólum sem fyrst, því þaðan kemur lítið út nema fornleifar. Þeir eru að minnsta kosti ekki nothæfir til þessa formáls

Hvað tefur þjóðkjörna fulltrúa á bak við ríkisstjórn Íslendinga á Alþingi frá því að vinna verkin sín, eins og almúginn þarf að gera. Almúginn sem bankaði fullveldi og sjálfstæði Íslands upp í gegnum gólffjalir háskólanna, án aðstoðar holulands. Á þessu standið þið nú
 
Reynið að vinna fyrir kaupinu ykkar! Annars setjum við kjósendur ykkur á vanskilaskrá og þá verður lokað á yfirdráttinn ykkar. Hann er nú þegar kominn yfir í yfirfum
 
Hin sérstaka hugmynd um Evrópu(sambandið) —"Une certaine idée de l'Europe"— er ein af hættulegustu hugmyndum veraldarsögunnar

Fyrri færsla
 

Spurt og svarað um Frankenstein

Vegna spurningatíma fyrri bloggfærslu 
 
Málið sem ég vek athygli á er þetta: Þýskaland er í hörðu órjúfanlegu myntbandalagi með 15 öðrum löndum á meginlandi Evrópu, ásamt fyrrverandi kafbátalægi þess, Írlandi

Hin peningapólitíska stefna og raunstýrivextir hafa alltaf eingöngu miðast við þarfir Þýskalands, sem er allsherjar elliheimili

Írland, Spánn, Grikkland, Portúgal, Ítalía, Kýpur, Slóvenía og fleiri lönd liggja nú í dauðadái undir þessari evru Þýskalands. Sprengd í tætlur til að skaffa þýska elliheimilinu örvun og til að halda gengi þess falskt lágu. Þessi evra Þýskalands er bakdyra-inngenginn pólitískur klæðaumskiptingur, klæddur upp sem einn peningur afsteyptur á myntmótinu af Frankenstein

Öllum öðrum ríkjum en Þýskalandi er nú sagt að saga verði af þeim heilabúið til þess að þau geti keppt við Þýskaland. Ef þetta hauslausa Þýskaland á 1930-oktan bensíngufum Brünings, heldur áfram að lækka laun sín og stunda innvortis gengisfellingu með 16 lönd Evrópu handjárnuð föst við sig, þá mun allur sá hópur marsera handjárnaður í takt við Þýskaland á leið þess með Evrópu til heljar á ný
 
Og hér er þessi umrædda fyrri bloggfærsla
 

Á meðan fjármálastofnanir geta ekki gegnt hlutverki sínu

Þegar fjármálastofnanir verða fyrir miklum áföllum þá gerist það að þær hætta að geta sinnt frumhlutverki sínu eins og vera skal. Þær geta ekki veitt góð lán því útistandandi lánasafn þeirra er að rotna vegna fjármálalegrar drepsóttar. Þetta gildir jafnt um fjármálastofnanir sem alltaf og ævinlega hafa gætt fyllstu aðgæslu og svo um þær fjármálastofnanir sem lagt hafa það á sig og eigendur sína, að taka mikla áhættu

Áburður kemst þá ekki til skila inn í hagkerfið frá neinum fjármálastofnunum. Þær vel stöddu og stæðilegu loka strax fyrir vatnið og bíða þar til svarti dauði hefur lagt sig og drepið allt líf. Þessi hegðun er þeim eðlislæg. Og hana verður að virða. Annað er ósanngjarnt

Þegar þetta gerist er oft aðeins einn bjargráðaaðili sem getur gengið í stað fjármálageirans á hengibrún; en það er seðlabankinn. Kjósi steinsteyptir skoðanamenn stjórnmála að halda seðlabankanum utan við þetta drepsóttardæmi, þá er það svo, að ekkert apótek mun heldur geta lifað af án sjúklinga sinna. Drepi menn sjúklinginn þá deyr apótekið hvor sem er einnig í þeirri ferð

Seðlabankinn getur rekið apótek. Og það er hollt fyrir fjármálastofnanir að vita. Því hætti þær sér enn og aftur út á hið tæpasta vað, þá mun apótek seðlabankans opna og taka frá þeim lyfsöluna. Drepast þá illa reknir bankar. Hinir vel reknu bíða hins vegar átekta

Sé seðlabankinn ekki munkaklaustur, en hins vegar fast jarðtengdur þjóðríki borgaranna, þá vil ég frekar svoleiðis apótek, heldur en þrútin, alkalívirk og háfjármálapólitísk ríkisfjárlög steypustöðva stjórnmála, sem öngvan bakkgír virðast hafa, sama hvernig viðrar. Því að seðlabankinn getur rakað til sín til baka gróða af sjúklingnum —og bakkað út— er hann braggast á ný. Á bak við seðlabankann stendur svo í síðasta enda eða fellur allt þjóðríkið - hvort sem er

Þeir sem vilja búa til nýtt kakkalakkað bankakerfi sem er í engu samhengi við lífið, tilveruna og kaupin á eyrinni, ættu að prófa að opna fyrstu banka sína á plánetunni Mars

Þessa vegna er evrusvæðið að drepast. Þar eru öll ríkin án myntar og án eigin seðlabanka. Þau eru í ríkisfjárlögum steypustöðva; Marðarspelku-sáttmálanum

Statistisches Bundesamt - Real earnings unchanged in the 2nd quarter of 2013 − 8 október 2013 - vísitala launabreytinga frá ári til árs - Þýskaland
Og nú eru raunlaun=kaupmáttur í Þýskalandi tekin upp á því að lækka enn frekar. Hafa þau þó ekkert hækkað síðustu 15 árin

Hvaða evruríki skyldi nú fyrst ná niður til botns helvítis í launakapphlaupi þeirra þangað? Örugglega Þýskaland. Og munu þá önnur ríki þessa evrusvaðs jafnvel þurfa að banka sig þangað fram að lokuðum dyrum, að venju. Komast þau ekki einu sinni fyrir eigin vélarafli inn til andskotans

Í dag er seðlabanki Bandaríkjanna —The Federal Reserve— stærsti lánveitandinn í þjóðríki Bandaríkjamanna. Hann getur keypt upp gjaldfallin ríkisskuldabréf bandaríska þjóðríkisins ef á þarf að halda. Enda eru þau tryggð af sjálfu þjóðríki Bandaríkjamanna. Hann getur rekið greiðslukortaþjónustu ef á þarf að halda. Og hann getur jafnvel neyðarráðstafað lánum beint út til borgara bandaríska þjóðríkisins. Það vita kengbognir bankar veraldar mjög vel en þó mest misvel. Þeir vita einnig —sumir hverjir— að á peningaseðlum Federal Reserve stendur áletrað: "In God we trust". Take that ECB!

Sakna nú margir verðbólgunnar gömlu. Því hana var þó hægt að lækna. Það vitum við. Svarti-dauði er hins vegar ólæknandi - nema þá helst með styrjöld
 
Fyrri færsla
 

"Þarf eiginlega einbeittan brotavilja" - fundið?

Mbl. 3. október 2013: „Þjóð sem er með svo mikið af ungu fólki, sem er einstakt í Evrópu, svo mikið af náttúruauðlindum. Það þarf eiginlega einbeittan brotavilja til að klúðra klúðra því,“ sagði hann að lokum

Mikið er ég sammála Ásgeri Jónssyni. Þetta eru vandfundnar sam-stærðir á til dæmis meginlandi tapranna í Evrópusambandinu og víðar

En svo virðist sem hinn umtalaði og sögulega vandfundni brotavilji til að klúðra því, sé nú í umtalsverðar leitir kominn. Hann má lesa um hér: Um „Versalasamninga“ vinstri stjórnar­innar (Evrópuvaktin) og hér á bloggsíðu Björns Bjarnasonar

Bj.Bj. 8. október 2013: "Ásgeir efaðist um að rétt hefði verið að innleiða höftin haustið 2008 miðað við eftirleikinn og hve illa hefði gengið að losna við þau. Vond áhrif þeirra mögnuðust aðeins"

Hér er ég innilega sammála Ásgeiri aftur. Og þess utan hefði aldrei átt að hleypa Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum inn í landið. En sú stofnun er frá upphafi til enda einn allsherjar hagsmunagæslulíkami Evrópuríkja - og er þá SDR-slefkarfa sjóðsins þar meðtalin

Lausnina er ávallt að finna í gagnkvæmri samvinnu þjóðkjörinnar ríkisstjórnar í sterkri samvinnu um sameiginleg markmið þjóðríkisins, og Seðlabanka Íslands. Þetta tvennt verður að haldast í hendur um sameiginleg markmið Lýðveldisins. Allt annað en sjálfstæð peningastefna þjóðríkisins —e. independent national monetary policy— undir þessari samvinnu-umgjörð Lýðveldisins, er glötun og hreint vanvit. Leitið og þér munið finna lausnina í kjarna "the anglosphere"

***

The principle of national liberty offers a nation with an evident capacity for self-government, and with the ability to withstand the siren songs of empire and anarchy, an opportunity to live according to its own understanding

- Yoram Hazony, “On the National State, Part 1: Empire and Anarchy,” Azure 12 (Winter 2002) hér

***

 

Þetta höfum við bæði sýnt og sannað

Við Íslendingar í þjóðríki okkar þurfum því ekki að búa við hörmulega óaðgreinda manngæsku — e. undifferentiated humanity — eins og undir heimsveldisfyrirkomulagi (empire sate structure) á borð við ESB; því við erum þjóðin í þjóðríki okkar - og engra annarra

Fyrri færsla

Öll nema tvö lönd Varsjárbandalagsins gengin í múr Evrópusambandsins


mbl.is „Þarf eiginlega einbeittan brotavilja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll nema tvö lönd Varsjárbandalagsins gengin í múr Evrópusambandsins

Til Brussel
Rannsókn Jena háskólans í Thüringen-fylki Þýskalands leiddi í ljós að meðlimir í nasista-stjórnmálaflokki Adolfs Hitlers í Þýskalandi stigu vel til valda og áhrifa í hinu fyrrverandi ríki kommúnista í Austur-Þýskalandi.
 
Því hefur oft verið haldið fram að nasistar hafi ekki komist til valda og áhrifa í "hreinu" kommúnistaríki Austur-Þýskalands. Að það hafi einungis gerst í Vestur-Þýskalandi, þar sem til dæmis nasista-yfirmenn myntmála yfir hinum hernumdu ríkjum stigu eftir styrjaldarlok til æðstu valda, eins og dr. Bernhard Benning gerði til dæmis fyrst í Bank deutscher Länder og síðan í seðlabanka Þýskalands —Bundesbank— sem er fyrirsætan á málverkinu af ECB-seðlabanka Evrópusambandsins.
 
“I have never understood why public opinion about European ideas should be taken into account” – Raymonde Barre, fyrrum forsætisráðherra Frakklands og framkvæmdastjóri Evrópusambandsins á sviði efnahags- og fjármála frá 1967 til 1973 
 
Þar sat Benning svo í Directorate Bundesbankans fram til 1972, eða þar til að seðlabankastjórn Helmuts Schlesingers yfirtók myntbandalags teikningar hans frá 1941 svo þær mættu á sem hagkvæmastan hátt nýtast komandi nýjum peningayfirvöldum yfir meginlandi Evrópu. Þetta sannreyndist svo sem verandi ákaflega hagkvæmt, því að X-énarque-elítuliði Frakkalands fannst —og finnst enn— að herseta nasista ofan á Frakklandi fara betur með landið og falla betur að hugmyndum þeirra um tæknilega þaulskipulagt einræði, en subbulega óskipulagt engilsaxneskt lýðræði- og kapítalismi að vestan.

En rannsókn Jena háskólans sýnir hins vegar að nasistar áttu góða möguleika á áhrifastöðum í ríki kommúnista í Austur-Þýskalandi. Enda lítill munur á þessum stjórnmálahreyfingum, sem báðar eru sósíalismi.
 
Þannig varð hinn fyrrverandi nasisti Hans Bentzien menningarmálaráðherra Austur-Þýskalands á sjöunda áratug síðustu aldar og jafnframt sá síðasti sem gengdi embætti útvarpsstjóra Austur-Þýska ríkisútvarpsins á árunum 1989 til 1990 (Rundfunk der DDR).

Nú eru öll nema tvö lönd gamla Varsjárbandalagsins gengin í Evrópusambandið. Það er kannski vert töluverðrar umhugsunar. Til dæmis í tilefni þessarar fréttar á Evrópuvaktinni í dag.
 
Varla þarf að efast um að það fólk sem vann í og bjó undir menningarmálaráðuneytum þeirra 7-10 fyrrverandi austantjaldslanda sem öll eru nú í Evrópusambandinu, hafi orðið fyrir miklum áhrifum frá þeirri "menningu" og þess "útvarpsefnis" sem framleitt var og sent út frá þessum 7 menningarmálaráðuneytum og 7 ríkisútvörpum landanna í samfleytt 45 ár. Skólar, námsefni, útvarp, sjónvarp, bækur og blöð.

Martin Schulz - Progressive Allianz der Sozialisten und Demokraten im Europäischen Parlament - mánudaginn 7 desember 2009Þess er nú hægt að geta hér að leiðtogi sósíalista á þingi Evrópusambandsins, Þjóðverjinn Martin Schulz, hefur frá og með árinu 2010 lýst því yfir að frá og með þá séu 184 þingmenn þessa hóps sósíalista á þingi Evrópusambandsins orðnir hreyfing “and-kapítalista” sem mun ráðast gegn hagkerfi sem byggist á “peningum eða sem er peningaknúið".
 
Varla þarf því að efast um að minnsta kosti eitthvað af vinnu þessara 7 "menningarmálaráðuneyta" og 7 ríkisútvarpa í 45 ár hafi nú þegar skilað vissum árangri yfir til hinna áður kallaðra landa "Vestur-Evrópu" og sem kallast geta nú Norðausturslóðir eða Nýja-Norðaustrið
 
Af hverju er ekki formlega búið að jarða falska og illa tilkomna umsókn Lýðveldisins inn í þetta Evrópusamband? Hvað er þetta mál að gera annarsstaðar en í höndum stjórnmálamanna sem kosnir voru til að grafa umsókninni þá gröf sem hún verður að deyja í?
 
Og af hverju er hið fyrsta lífs- og bráðnauðsynlega pólitíska verk nýrrar ríkisstjórnar ekki það að gangsetja laga-bandorminn, sem skilyrðislaust á að rífa af og afmá skemmdarverk fyrri ríkisstjórnar á lýðveldi Íslendinga.

Það er að segja, þá ólöglegu aðlögun hennar á íslenska lýðveldinu að þeim lögum og reglum sem frá 1957-upphafi Evrópusambandsins, hafa, voru og eru enn alveg sérstaklega samin og sett í verk sem grundvallar aftökuvél og eyðileggingarafl sambandsins á þeirri hugsjón sem af Magna Carta breiddist út á meðal engilsaxneskra manna. Og sem frá upphafi til enda fóstraði sjálfan sigurinn og árangurinn af seinni heimsstyrjöldinni og kalda-stríðinu á meginlandi Evrópu; en sem Evrópusambandið er nú non-stop að þurrka út með strokleðri acquis (aðlögun)

Að lögin, samkvæmt þeirri Magna Carta grundvallarhugsjón og heimsspeki, séu samin, sett og innleidd fyrir borgarana. En ekki samin, sett og innleidd til að upprétthalda nomenklattúru-veldi elítunnar yfir borgunum.
 
En það er einmitt það sem acquis Evrópusambandsins gengur út á; Að rústa fyrir fullt og allt og rífa upp með rótum þeim anda og hugsjónum sem Magna Carta frá 1215 gekk út á
 
Fyrri færsla
 

Bjarni bókhaldari

 

Bjarni sagði að munurinn á skuldum ríkissjóðs sem væru tilkomnar vegna hallareksturs og öðrum skuldum væri að engar eignir lægju að baki þeim 400 milljarða skuldum sem hefðu orðið til frá árinu 2009 meðan ríkissjóður var rekinn með halla.

Hér er hægt að umskrifa tölur töluvertsins umtalsvert. Það er að segja -

- þau útgjöld sem ríkissjóður Íslendinga hefur haft umfram tekjur á tímabilinu, eru til bókhalds Bjarna komin vegna þess að þau, útgjöldin, urðu ekki strax arðbær. Því sem eytt var á tímabilinu í hið immaterielle skilaði ekki immed tekjum inn í hinn sama ríkissjóð landsmanna. En þessi fjár-sjóður er sjóður allra landsmanna. Svo er að minnsta kosti enn giskað á. Jafnvel þó að á honum sjóði svo mikið að hann hefur brennt 11,5 milljónum krónum á klukkustund á síðustu 120 dögum.

Til dæmis eyddi ríkissjóður peningum í að greiða Bjarna nokkuð há laun á ofangreindu tímabili. Það er þó ekki þar með sagt að Bjarni Benediksson þingmaður hafi verið þjóðnýttur þannig að hann sé nú orðinn verðlaus þjóðar-eign á móti skuldum þjóðarinnar - eða jafnvel kominn í skuldafangelsi að evrusið.

Nei. Við skulum bara rétt vona að Bjarni borgi sig. Og jafnframt að honum hafi hér einungis fipast við hljóðnemann. En það tel ég líklegustu skýringuna. 

Og þó. Hér sýnist mér með öðru blinda auganu, að búa eigi til vissa holu. Visst gat í veginn sem slefa þarf einhverju ákveðnu ofan í. Til dæmis vissum eignum.

Hvað skyldi sjálfur forsætisráðherrann segja við þessu?

En hér í leiðinni er smávegis hægt að segja frá því að þeir vegatolla-vegir í einkarekstri á Spáni sem á síðustu 15 árum voru lagðir utanum höfuðborgina Madríd, eru nú svo að segja gjaldþrotnir orðnir fyrir 600 miljarða króna. Þeir söfnuðu skuldum sem nema þessari upphæð, því enginn ók um þá af því að Spánn er á evrum. Þetta ekkert (núll) er að sjálfsögðu með ríkisábyrgð. Tra la la.

Hvort væri nú betra að gera í þessari stöðu; 1) að leigja strax eina B-52 Stratofortressu með fimm manna áhöfn til að teppabomba vegina til ösku, svo að komist verði hjá því að þurfa að langtímabeita á þá búfénaði með styrkjum (eins og gera átti strax við Hörpu) - eða - 2) að hella ókeypis 95-oktana 65 prósenta sköttuðu bensíni á ökutæki Spánverja, svo þeir geti ekið fram og til baka um vegatolla-vegina í 26,2 prósent atvinnuleysi Spánar í evrum ESB, engum til gagns.

Hvort er betra? Hlutafélagið Ónýtar grasivaxnar eignir h/f - eða engar eignir? Svarið er auðvitað; krónan er best, því hún kemur hjólum atvinnulífsins af stað

Í Svíþjóð var þetta spursmál alltaf leyst með því að gefa út tilskipun númer 1.239.636.589 um að kjúklingar séu hollur matur; Kyckling är bra mat - og stýrivextir Nóbelsbankans samstundis hækkaðir í 500 prósent á sekúndu til að bjarga þeim frá slátrun. Þar með rættist úrið . . var það ekki . . 

Fyrri færsla

"Seljum" peningaprentvélina 


mbl.is Endurfjármögnun bankanna kostaði 250 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Seljum" peningaprentvélina

Þingmenn sem leggja til að peningaprentvélar íslenska lýðveldisins séu seldar vegna þess að kreditkort hafi gert peninga “óþarfa”, ættu alvarlega að hugsa sinn trapantaða tvígang. 

Enginn ríkissjóður með fullu viti selur undan sér þær peningaprentvélar sem felast í því að prenta út úr þeim þá peningaseðla sem náttúruauðlindir þjóðarinnar hafa gefið okkur.

Það eru mýmörg tilfelli þar sem sala á ríkiseignum almennings borgar sig aldrei. Eitt þannig tilfelli er sjálf skattheimtan. Að selja hana væri geggjun. Allir geta verið því sammála -

- nema að það sé einmitt framtíðarsýn stjórnmálamanna að beita skattheimtunni það hart í þágu þeirra sjálfra, að náttúruauðlindin —sem skattheimtan eys peningum upp úr— hverfi úr landinu. Að þjóðin í þjóðareign pakki saman og fari. Það mun hún gera, sé komið fram við hana sem eins konar ómálga skítapakk.

Að selja peningaprentvélar náttúruauðlinda Íslendinga væri því sem næst geðbilun. Þegar þannig áætlanir eru farnar að grafa um sig meðal þjóðkjörinna stjórnmálamanna lýðveldisins, þá er óhætt að segja að upplausn þess lýðveldis færist í nánd og hefji aðsig. Að helvíti evrusvæðis hafi jafnvel verið flutt inn í Helklufjall. 

Stjórnmálamenn lýðveldisins á þannig buxum verða ekki landsvirkjaðir, því þeir eru bankahrundir. Í rúst og bankaðir niður.

Það er synd að fæstir þeirra vita ekki að við erum heimsmeistarar í rafmagni, þegar að stofnun nýrra og að rekstri núlifandi fyrirtækja kemur. Og sá 2013-listi World Bank nær þó yfir 186 lönd veraldar. 
 
Doing Business á Íslandi er þar í fyrsta sæti á þeim lista þegar að rafmagni kemur. Í heild og á öllum sviðum fyrirtækjarekstrar erum við í fjórtánda sæti á listnaum af 186 mögulegum, þegar að því kemur að stunda, stofna og hefja rekstur nýrra fyrirtækja á Íslandi.
 
Kílómetra-fjarlægðina til vígstöðvanna, e. distance to frontier (DTF), höfum við snúið okkur í hag. Við höfum einfaldlega landsvirkjað hana í þágu Íslendinga. Við erum þess vegna heimsmeistarar í rafmagni, hvorki meira né minna.

Við skulum ekki brjóta í spón það sem hér er best í heimi. Og við skulum ekki enda eins og ESB-haleljúga Mölturíki DDRÚV-ríkisútvarpsins, þar sem verra er að stofna og reka fyrirtæki en í Albaníu.

Annað hvort stöndum við - eða þá að við stöndum bara alls ekki.

Var þetta nokkuð Albanía, Pétur?

Hvenær skyldi ég nú geta kosið Sjálfstæðisflokkinn aftur? Ég sé ekki að flokkurinn sé á neinn hátt að ganga í mig. Þvert á móti: hann virðist vera að ganga fyrir björg.

Hér með upplýsi ég í lokin að ALLAR tekjur ríkissjóðs íslenska lýðveldisins koma frá atvinnustarfsemi. Og að engar aðrar tekjur eru til; ENGAR!
 
Fyrri færsla
 
 

Germany As Currency Manipulator

Þessi yfirskrift hér að ofan er ekki mín. Hún er Paul Krugmans og hún er frá 27. september 2013:
 

***

Paul Krugman skrifar: "The general point is that if we imagine a euro breakup, I think everyone would agree that the new mark would soar in value, making German manufacturing much less competitive. The German public imagines that it is being cruelly exploited for the benefit of lazy southerners; arguably, what’s really happening is more like China’s purchases of dollars, which are intended not to subsidize America but to boost industry."

*** 

 
Þann 1. nóvember 2010 skrifaði ég eftirfarandi nótat hér á bloggsíðu minni, undir yfirskriftinni:

"Dönitz mynt Evrópusambandsins er hættulegur rekaviður"

"Evran er alveg laus við allt gagn fyrir öll lönd evrusvæðis nema Þýskaland og kannski Frakkland líka. Með evrunni hefur Þýskalandi tekist að falsa gengi þýska hagkerfisins í heilan áratug og velta miklum samfélagslegum byrðum yfir á Bandaríkin og fleiri lönd. Allir sem hugsa vita að ef Þýskaland væri með sína eigin mynt, þýska markið, væri gengi þess einn á móti tveimur Bandaríkjadölum. En það er bara einn á móti einn komma þremur dölum.

Ef Bandaríkin myndu endurgjalda þennan þýskalemjandi óheiðarleika í alþjóðlegum viðskiptum, myndu þau strax ganga til þeirra þurftar-verka með því að falsa gengi Bandaríkjadals. Það gerðu þau með því að hleypa allri Suður-Ameríku inn í eitt dollarasvæði. Þá myndi gengi Bandaríkjadals lækka mikið, því þá gætu Bandaríkin notið góðs af því að hafa vanefna annars flokks hagkerfi með í myntinni sinni. Þetta er evrusvæðis aðferðin.

Á þessum rúmlega eina áratug hefur Þýskalandi tekist að raka til sín viðskiptahagnaði sem nemur þúsund miljörðum Bandaríkjadala. Þetta hefur allt gerst á kostnað Bandaríkjanna og þeirra landa evrusvæðis sem heita hvorki Þýskaland né Frakkland."

Síðan þetta var skrifað, hefur allt í Evrópusambandinu og myntbandalagi þess orðið miklu mun verra. Heil ríki er verið að mölva og leggja í rúst undir ægivaldi ECB-sogrörs-aukaseðlabanka Þýskalands, sem sýgur merginn úr hryggsúlum mölbrotinna ríkja svo að ESB-elítan og pólitísk gangster-gengi meginlandsins geti sjálfumglöð smjattað og viðhaldið sér á honum

Þýskaland ríður nú um heiminn á brotnum bökum farlamaðra ríkja undir evru. Og sem eru brotin af því að þau létu fullveldið og sjálfstæðið af hendi með því að ganga í Evrópusambandið og taka upp mynt Þýskalands, evruna, og þá óhjákvæmilegu stálfátækt sem henni fylgir

Ríður nú Þýskalandið um á þessum stimulus sem Marðarspelkusáttmálinn frá 1992 færði því heim. En tilgangur hans og ERM-kreppukerfisins var frá upphafi að smokka minniháttar ríkjum Evrópu upp á lyklahring Lotharinga. Eru hin minni ríki nú algerlega undir hæl Lotharinga komin. Vanmáttug, undirgefin og krónískt háð herra hringsins, fyrir tilstilli stórkostlegs samsæris stjórnmálamanna gegn kjósendum

Krækjur

Fyrri færsla

Tengt


Út á glerhálku og í útrýmingarhættu

Hér á landi er ástandið orðið þannig að ef maður leyfir sér að minnst á hugtökin "byggðastefna, byggðamál eða byggðaþróun" að þá sjá menn annað hvort fyrir sér hugtakið "kjördæmapot" í framkvæmd eða þá að þeir sjá rautt

Samt virðist algjör sátt og fullkomið samþykki ríkja meðal valdhafa og almennings um tilvistarþörf og tilgang þess hugtaks er því sem næst heilafrumulega og sjálfkrafa nefnist "byggingareglugerð, bæjar- og sveitafélagsskipulag"

Öllum Íslendingum finnst fæðingar-eðlilegt að hvert manngert mannvirki sé byggt eða rifið niður samkvæmt ákvæðum þeirrar skipulags- og byggingareglugerðar sem gildandi er á hverjum tíma. Og ekki skortir á umsvifaveldi og bölvunarvöld embættismanna þegar að framkvæmd og eftirfylgni ákvæða skipulags- og byggingareglugerðar kemur

En bannorðið í orðaforað flestra er sjálf "byggðastefnan, byggðamálin eða byggðaþróunin". Séu þessi hugtök nefnd á nafn er maður samstundis kominn út á glerhálku og í útrýmingarhættu

Jarðgöng út og inn í ekki neitt fyrir ofan og neðan þefnæmt peninganef héraðsafla og án réttra efnahagslegra staðarhvata, eru hvorki byggðastefna þjóðríkis né kapítalismi. Þau eru því miður kjördæmapot þingmanna inn í fjöll fólksins. Þau skila svo oft engu og geta jafnvel skaðað; geta stórskaðað! Hvatinn að þeim þarf alltaf að vera sjálfsbjargarviðleitni héraðsins undir ramma djúpt hugsaðrar byggðastefnu þjóðríkisins, sem virkar vel

*** *** ***

Nánast heilagur ritningur dagsins í dag, er efrideild leiðara Morgunblaðsins: 

Efrideildin: Alþjóðalögreglan á eftirlaun? - blaðsíða 60
Neðrideildin: Von, væntingar og verk - blaðsíða 60 

Óritningur dagsins er hins vegar gamma-geislunin sem lekur frá sama blaðs síðunúmeri

Aðvörun - Þvaður - blaðsíða 34

*** ***

Skipulagsmenn Íslands eru nú að verða svo fjölmennir og svo skipulega illa í stakka sína búnir, að þeir munu fara létt með að ganga frá næstu 10 ára áætlun kommúnistaríkis Kína og Evrópusambandsins - samtímis!

Fyrri færsla

SQL-fyrirspurnaframboð til Alþingis


SQL-fyrirspurnaframboð til Alþingis

Látum ekki kúga okkur

Burt með ólöglega aðlögun Lýðveldis Íslendinga að Evrópusambandinu

Á meðan flokkar eru í stjórnarandstöðu þá eiga forystumenn þeirra að fylgjast með hverju skrefi sitjandi ríkisstjórnar og uppfæra skuggaráðuneyti sín stanslaust, án afláts. Algerlega óstöðvandi. Og svo þegar til þingkosninga kemur þá eiga ráðherrar skuggaráðuneyta flokksins að færa fram fullunnið kosningaprógramm, meðal annars, unnið upp úr gagnabrunnum skuggaráðuneyta flokksins

Það væri harla hlálegt að setjast sem forsætisráðherra, ráðherra eða þingmaður við æðstu stjórnvöld lýðveldis okkar Íslendinga, að kosningum loknum, án þess að vita haus né sporð á því sem þeir áttu að vita allt um. Ég vona að svo sé ekki. Að atkvæði kjósenda séu ekki notuð til að fá að keyra fyrirspurnir um þá vinnu sem þeir í framboðsræðum sínum á fullum launum, sögðust þekkja til hlítar

Nú bíð ég til dæmis eftir því að Sjálfstæðis-flokkurinn gangi í mig. Ég hef ekkert breyst. Ég er sjálfstæðismaður. En hvar er flokkurinn? Á hvaða markmið lýsir hann stefnuljósi sínu þessa stundina á? Er stefna flokksins kannski orðin námskeið í meðferð vasaljósa niðri í skoðunarkönnu? Að flokknum sé að verða orðskrípislega best borgið með SQL-fyrirspurnaframboðum til Alþingis? Snérist framboð hans um SQL-fyrirspurnir og til dæmis framlögð njósnafrumvörp gegn almenningi. Á bara að halda áfram í þessum könnunar-ökutímum til Alþingis?

Af hverju er ekki formlega búið að jarða falska og illa tilkomna umsókn Lýðveldisins inn í Evrópusambandið? Hvað er þetta mál að gera annarsstaðar en í höndum stjórnmálamanna sem kosnir voru til að grafa umsókninni þá gröf sem hún verður að deyja í

Einnig mætti spyrja sömu stjórnmálamenn af hverju gjaldeyriseftirlitið með borgurum landsins er ekki í þeirra höndum í stað stofnunar Seðlabankans. Af hverju vilja menn ennþá moka þeirri leðju upp á ókjörna embættismenn þeirrar stofnunar sem minnst má við þannig hlutverki. Af hverju er ekki gjaldeyriseftirlit stjórnmálamanna einfaldlega sett í hendur ríkislögreglunnar. Andi laganna og eftirlits þeirra vegna, er orðinn þess eðlis. Óþarfi er að svína út Seðlabanka þjóðarinnar með þessu lengur. Nóg hefur sú stofnun lýðveldisins mátt þola af skítugum skóm trampandi á gólfum hennar frá því að kommúnista ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hóf þar herverk sín

Og af hverju er hið fyrsta lífs- og bráðnauðsynlega pólitíska verk nýrrar ríkisstjórnar ekki það að gangsetja laga-bandorminn, sem skilyrðislaust á að rífa af og afmá skemmdarverk fyrri ríkisstjórnar á lýðveldi Íslendinga; Það er að segja, þá ólöglegu aðlögun hennar á íslenska lýðveldinu að þeim lögum og reglum sem frá 1957-upphafi Evrópusambandsins, hafa, voru og eru enn alveg sérstaklega samin og sett í verk sem grundvallar aftökuvél og eyðileggingarafl sambandsins á þeirri hugsjón sem af Magna Carta breiddist út á meðal engilsaxneskra manna, og sem frá upphafi til enda fóstraði sjálfan sigurinn og árangurinn af seinni heimsstyrjöldinni og kalda-stríðinu á meginlandi Evrópu; Að lögin, samkvæmt þeirri Magna Carta grundvallarhugsjón og heimsspeki, séu samin, sett og innleidd fyrir borgarana; En ekki samin, sett og innleidd til að upprétthalda nomenklattúru-veldi elítunnar yfir borgunum. En það er það sem acquis Evrópusambandsins gengur út á; Að rústa þeim anda og þeim hugsjónum sem Magna Carta frá 1215 gekk út á;

acquis

“. . that philosophy is the idea of the acquis, a rejection of the snakes-and-ladders, winner-takes-all, creative-destruction nature of “Anglo-Saxon” capitalism; it is also a rejection of the individualism of that strand of capitalism . .”

 

Bernard Connolly 27. maí 2004

Connolly Insight

 

- og viðtalið

En hvað nú ef þeir eru ekki geðbilaðir?

5 mínútur og 31 sekúnda með Bernard Connolly

sem var gestur á CNBC þann 16. maí 2013 

 

Uppfærðar á vefsetri mínu má nú finna tölur yfir: Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 (nefndin, þið vitið hver)

SQL er ensk skammstöfun yfir Structured Query Language; þ.e.a.s tölvumál til þess að heimta gögn úr gagnasafni og hugsanlega breyta þeim, nota þau, slá um sig með þeim, eða til að komast hjá því að hugsa, aðhafast eða framkvæma

Fyrri færsla

The mother of all sudden stops: Capital flows and reversals in Europe, 1919-1932

Við-bót

 acquis = rústun ríkja

"Accession negotiations"

(áherslur eru mínar) 

 

First, it is important to underline that the term “negotiation” can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate’s adoption, implementation and application of EU rules – some 90,000 pages of them. And these rules (also known as “acquis”, French for “that which has been agreed”) are not negotiable.

 

For candidates, it is essentially a matter of agreeing on how and when to adopt and implement EU rules and procedures. For the EU, it is important to obtain guarantees on the date and effectiveness of each candidate’s implementation of the rules.

 

Negotiations are conducted individually with each candidate, and the pace depends on each country’s progress in meeting the requirements. Candidates consequently have an incentive to implement necessary reforms rapidly and effectively.

 

Some of these reforms (rústun ríkja, G.R.) require considerable and sometimes difficult transformations of a country’s political and economic structures.

 

It is therefore important that governments clearly and convincingly communicate the reasons for these reforms to the citizens of the country. Support from civil society is essential in this process.

 

Accession negotiations take place between the EU Member States and candidate countries. Negotiating sessions are held at the level of ministers or deputies, i.e. Permanent Representatives for the Member States, and Ambassadors or Chief Negotiators for the candidate countries.

 

To facilitate the negotiations, the whole body of EU law is divided into “chapters”, each corresponding to a policy area. The first step in negotiations is called “screening”; its purpose is to identify areas in need of alignment in the legislation, institutions or practices of a candidate country.

 

 

European Commission – Directorate General for Enlargement

Unit A2: Information and Communication

Office address: Rue de la Loi 200, B-1049 Brussels

Tel: (+32-2) 299.06.66 Fax: (+32-2) 299.17.77

 

Viðhengd PDF-skrá;

rit númer NI78-07-352-EN-C 

enl-understand_en

creation date: 20.11.2007

kl: 16:16(GMT+1)

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband